Vísir - 06.07.1939, Page 2
VlSIR
u
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÖTGÁFAN VÍSIR H/F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson
Skrifstofa: Hverfisgötu 12
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12
(Gengið inn frá Ingólfsstræti)
S í m a r:
Afgreiðsla " 3400
Ritstjórn 4578
Auglýsingastjóri 2834
— (kl. 9—12) 5377
Verð kr. 2.50 á mánuði.
Lausasala 10, 15 og 20 aurar.
Félagsprentsmiðjan h/f.
íslenskt þjóðlíf
og norræn
samvinna.
J^JÁLTÆKIÐ segir, að glögt
sé gestsaugað. Útlendingar,
sem hingað til lands koma og
opin hafa augu, veita því flestir
athygli, að hér á íslandi er
demókratiskari bragur á þjóð-
lífinu en nokkursstaðar ella,
sem til þekkist í Norðurálfunni.
Hér er minni stéttagreining,
minni mannamunur. Ástæðurn-
ar til þessa eru margvíslegar.
Mannfæðin veldur því að við
höfum meiri kunnleika hver af
annars högum en títt er annars-
s taðar. Ættvísin sannf ærir okkur
um, að við séum af sama bergi
brotin. Stopulir atvinnuve'gir
hafa löngum átt sinn þátt í því,
að auðsöfnun hefir orðið
skámmæ. Hér hefir aldrei
myndast nein arfgeng yfirstétt.
Af þessum sökum höfum við
ekki þurft að glíma hér á landi
við ýmsa þá jileypidóma, sem
erfiðastir hafa verið viðfangs
erlendis í baráttunni fyrir frelsi
og lýðréttindum. Við höfum
haft skilyrði öðrum þjóðum
fremur til þess að meta mann-
inn eftir því hver hann er, en
ekki aðeins hvað liann er. Við
vitum þá einnig líka, að í öllum
stéttum eru til ágætismenn, al-
veg eins og hitt, að „í öllum
stéttum er nokkur skrill“ eins
og vitur maður sagði eitt sinn.
Þegar á alt þetta er litið ætti
lýðræðinu að vera betur borgið
hér á íslandi en nokkursstaðar
ella. Við höfum í daglegu lífi
þjóðarinnar traustari undir-
stöðu í þessum efnum en ailir
aðrir. Á þeim grundvelli virðist
vera einsætt að reisa hið full-
komnasta lýðræðisskipulag í
löggjöf og stjórnarvenjum.
Hinn síðasta mannsaldur höf-
um við verið að finna ný og ný
verðmæti á landinu og kring
um landið. Hér hafa orðið stór-
stígari framfarir í verklegum
efnum en víðast hvar annars-
staðar á ekki lengri tíma. Við
þekkjum kosU landsins betur
en fyr og viljum láta þá njóta
sín. Hitt er vafamál hvort við
höfum liaft nægilega opin augu
fyrir kostum sjálfs þjóðlífsins.
Við liöfum ekki gert okkur
nægilega grein fyrir því, hvílík-
ur ávinningur það hefir verið
fyrir frelsi og jafnrétti ein-
staklinganna, að við höfum
haft minni félagslega hleypi-
dóma, minni stéttagreiningu,
minni mannamun, við að stríða)
en flestar aðrar þjóðir.
Á þessum timum er mikið
talað um samvinnu Norður-
landa, — efnahagslega, andlega
og menningarlega samvinnu.
Ilvað getum við Islendingar
lagt fram í þeim efnum? Þótt
verklegar framfarir liafi mikl-
ar orðið, stöndum við enn að
baki nágrönnum okkar á þvi
sviði.
Norðurlandaj)j óði rnar eru '
taldar útverðir lýðræðisins i
heiminum. Á þessum tímum, 1
þegar frelsi og mannréttindi er
fótum troðið, verður ekki bent
á göfugra menningarhlutverk.
Og einmitt í þessu efni höfum
við tækifæri lil að vera öðrum
þjóðum fyrirmynd í stað þess
að sækja fyrirmyndir til þeirra.
Á Norðurlöndum eru menn
komnir til viðurkenningar á
•því, að þeir flokkar sem með
völdin fara eiga ekki að sitja
yfir hlut annara. Hér liefir um
sinn ráðið sú stefna, að skerða
rélt andstæðinganna af fremsta
megni. Á þennan hátt höfum
við orðið eftirbátar annara ein-
mitt í þeim efnum, sem við
höfum skilyrði til að vera þeim
fyrirmynd. Við höfum vanrækt
þá kosti íslensks þjóðlífs, sem
líklegastir eru til að skipa okk-
ur tignarsess meðal þeirra, sem
halda vörð um frelsi þjóðanna
til liugsana og athafna. Lið-
veisla okkar í hinni sameigin-
legu menningarbaráttu nor-
rænna þjóða, er undir því kom-
in, hversu greiðlega tekst að
bæta úr þeirri vanrækslu.
a
Húsmæður úr
sveitum í
kynnisför.
300 konur úr Borgarfjarðar-,
Mýra- og Hnappadalssýslum
hafa tekið þátt í f jórum ;ferðum
sér til hressingar og skemtunar.
í síðastliðinni viku komu
hingað til bæjarins um 70 hús-
freyjur úr Borgarfjarðar-,
Mýra- og Ilnappadals sýslum.
Voru þær í kynnisferðalagi og
liöfðu farið i bílum úr Borgar-
fjarðarhéraði til ýmissa staða á
Suðurlandi, Þingvalla, Laugar-
vatns, Geysis og Gullfoss, í
Þrastalund og svo liingað.
Komu þær liingað fimtudag og
skoðuðu sig um í bænum og
lögðu svo af stað heimleiðis, eft-
ir af liafa föngið hressingu í
Stúdentagarðinum. Fararstjóri
var frú Geirlaug Jónsdóttir í
Borgarnesi. Þetta var seinasta
ferðin af fjórum, sem húsfreyj-
ur úr framannefndum sýslum
liafa farið í vor og sumar. Er
það Kaupfélag Borgfirðinga,
sem hefir gengist fyrir þessum
ferðum, boðið húsfreyjunum í
ferðirnar og kostað þær að öllu
leyti.
Ferðir þessar eru farnar í
þeim tilgangi, að gefa húsfreyj-
unum í sveitunum tækifæri til
þess að lyfta sér upp, skoða
merka staði og kynna sér verk-
legar framkvæmdir, svo sem á
sviði garðræktar, þar sem hún
er rekin með fyrirmyndar brag.
Það mun sennilega engin stétt
hér á landi, sem hefir eins lang-
an vinnudag og húsfreyjurnar í
sveitinni flestar — þær eru
margar störfum hlaðnar frá því
snemma að morgni daghvernog
langt fram ó kvöld5 ekki aðeins
annatímann, heldur flesta daga
ársins. Er það því góð hug-
mynd, að gefa húsfreyjunum
kost á að fara í ferðalög slík
sem þessk enda hafa ferðirnar
orðið mjög vinsælar. AIls munu
um 300 konur hafa tekið þátt i
ferðunum.
Vopnasending-
arnar til Danzig.
Oslo 5. júlí. FB.
Miklar vopnasendingar koma
daglega til Danzig og er nú tal-
ið sannað, að þær sé sendar
þangað frá Königsberg í Aust-
ur-Prússlandi. — NRP.
Bretar lána samherjum sínum á
megínlandínu 2 miljarða og 700 milj.
kr. til vígbúnaðar " Mciibb, §cm koiiia við wög-is
Yfiplýsing Gliambeplaiiis
um Danzig samþykt á
stj órnarfundi*
EINKASKEYTI frá United Press. — London í morgun.
Breska ríkisstjórnin kom saman á fund í gær til
þess að ræða árangurinn af samkomulagsum-
leitununum við Rússa og Danzig-málin. Fund-
urinn stóð lengi yfir og hófst hann árdegis og var frest-
að þar til síðar um daginn eftir tveggja til þriggja
klukkustunda umræður.
Að því er United Press hefir fregnað mun á-
kvörðun hafa verið tekin á fundinum um yfir-
lýsingu þá, sem búist var við að Chamberlain
mundi gefa í neðri málstofunni í gær. Vegna þess
hversu fundurinn stóð lengi yfir var yfirlýsing-
unni frestað. Það er búist við, að Chambérlain
lýsi yfir því, að ef nokkurar breytingar verði gerð-
ar á stjórnskipulagi Danzig af Þjóðverjum og frí-
ríkinu eða öðrum hvorum þessum aðila, án frjáls
samþykkis Póllands, muni pólsk-breska hernað-
arbandalagið þegar í stað koma til framkvæmda.
Af þessu leiðir, að ef Pólland telur sjálfstæði sínu
hættu búna, vegna þess sem Þjóðverjar eða nazistar í
Danzig kunna að gera, munu Bretar þegar í stað veita
Pólverjum alla þá aðstoð, sem þeir mega, hernaðarlega
og á annan hátt.
Þá hefir breska ríkisstjórnin, einnig að því er United Press
hefir fregnað, tekið ákvarðanir um að leggja fram frumvarp,
sem heimilar stjórninni stórkostleg- hernaðarlán. Vill stjórnin
fá heimild til þess að lána 100 miljónir sterlingspunda í þessu
skyni. Mikinn hluta þessar fjárhæðar munu Pólverjar, Tyrkir,
Rúmenar og Grikkir fá til þess að styrkja landvarnir sínar.
Nokkurum hluta fjárins verður varið til kaupa á hergögnum,
flugvélum og öðru, í Bretlandi.
Bretar hafa áður veitt fyrr-
nefndum ríkjum lán til vígbún-
aðar. Þannig fengu Tyrkir all-
mikið lán hjá Bretum í vor sem
leið. Nefnd pólskra fjármála-
og stjórnmálamanna hefir að
undanförnu verið í Bretlandi til
þess að ræða mál, sem varða
fjármál og landvarnir Pólverja.
Hafa ítolsk blöð og þýsk að
undanförnu látið í veðri vaka,
að nefndarmennirnir mjmdi
fara tómhendir heim.
Ákvörðun sú, sem breska
stjórnin hefir tekið um lánveit-
ingar til framannefndra landa,
er mjög mikilvæg, því að hún
sýnir enn betur en flest annað,
að Bretum er rammasta alvara,
að þeir og samherjar þeirra sé
viðbúnir hvarvetna, þar sem
óttast er, að Þjóðverjar kynni
að gera tilraun til að beita of-
beldi. En Bretar óttast, að þeg-
ar mesta hættan út af Danzig
er liðin hjá, muni Hitler snúa
sér að ríkjunum í suðaustur-
hluta álfunnar (sbr. annað
skeyti, sem birt er í blaðinu í
dag).
Ilitler beitir ekki
valtli í Danzig: - - -
CH Ijsii* yfir Jbví, að þjöövcrjar
í Danzig: §cu þý§kir ■•íliisborgarar.
EINKASKEYTI frá United Press. — London í morgun.
Stjórnrnálamenn í London, sem hafa góð sambönd
á meginlandinu, eru þeirrar skoðunar, að Hitler hafi
— vegna þess hversu ákveðin afstaða Breta er með
Póllandi — tekið ákvörðun um, að beita ekki valdi i
Danzig. Hafi hann nú horfiið að því ráði, að birta yfir-
lýsingu þess efnis, að allir Þjóðverjar í Danzig skuli
fá þýskan ríkisborgararétt.
Að svo búnu muni Hitler beina allri atliygli sinni að
öðrum viðfangsefnum, og hyggja menn helst, að hann
muni snúa sér að rikjunum í suðausturhluta álfunnar,
og þá éinkum Rúmeniu.
Það er eigi kunnugt hversu langt Þjóðverjar muni
ganga í kröfum sínum gagnvart Rúmeniu, en það er
víst, að þeir hafa beyg af fyrirætlunum Þjóðverja, og
átti rúmenski sendiherrann, i London, Ttilea, langar
viðræður við Halifax lávarð um þessi mál í gær.
Bandank) amenn selja
hernaðarflugvélar í ár
fyrir 100 milj. dollara.
Fullnaðarákvarðanir um hlutleysislögin í U.S.A. og
önnur mikilvæg mál verður að taka fyrir 15. júlí, er
þingmenn fá sumarleyfi.
SMETONA,
forseti Lithauen. Lithauar vilja
eiga vingott við Pólverja og
Þjóðverja, nágranna sína, en
það er erfitt að gera „tveimur
stórlunduðum herrum til hæf-
is“. Þetta hefir þó tekist furð-
anlega og er ekki hvað minst
Smeton að þakka.
JOSEF BECK,
utanríkismálaráðh. Póllands. —-
Hann hefir unnið mikið að þvf
að Pólverjar fengi hernaðarlán
í Bretlandi. — Beck ræddi ný-
lega við forsetann, forsætisráð-
herrann og Rydz-Smigly um að
senda Þjóðverjum mótmæli út
af Danzig.
New York, United Press.
Það er búist við því að þjóðþing Bandaríkjanna Ijúki störf-
um fyrir 15. þ. m. og fari þingmenn þá heim í sumarleyfi sitt.
Ákvarðanir um hlutleysislögin og önnur mikilvæg mál verður
því að taka fyrir þann tíma. Eins og áður hefir verið getið vill
Roosevelt, að afnumið verði bannið við útflutningi hergagna,
en einangrunarstefnumennimir eru því mótfallnir. Þeir vilja
þó leyfa útflutning á hernaðarflugvélum áfram.
Útflutningur flugvéla — að-
allega liernaðarflugvéla -— mun
að líkindum nema um eitt
hundrað miljónum dollara, en
til samanburðar má geta þess,
að útflutningur flugvéla i fyrra
— og hann var meiri en nokk-
uru sinni áður — nam $68.200.-
000. Á fimm árunum, sem end-
uðu 1938, nam útflutningur
hernaðarflugvéla að verðmæti
143.000.000 dollara. Má af þess-
um tölum sjá liversu útflutn-
ingurinn hefir aukist gífurlega.
Útflutningur varahluta og ann-
ars tilheyrandi hefir og aukist
svo, að hanh er meiri en nokk-
uru sinni. Það er aðallega hið
heimskunna Curtiss-Wriglit
flugvélaframleiðslufélag, sem
flutt hefir út flugvélar og North
American Aviation Corporation
og Lockheed Aircraft Corpora-
tion.
Frakkar hafa pantað mikið
af hernaðarflugvélum frá Dou-
glas Aircraft Company, United
Aircraft Corporation og Glenn
L. Martin Company og eiga
flugvélarnar að afhendast fyrir
áramót.
í júnímánuði aðeins nam
verðmæti útfluttra flugvéla 15
miljónum dollara og mun kom-
ast upp í 20 milj. dollara í júlí.
Frá því um miðjan maí hefir ,
Locklieed Aircraft Corporalion
afgreitt sex flugvélar á viku af
250 árásarflugvélum, sem fé-
lagið er að smíða fyrir breska
flugmálaráðuneylið. — Starfs-
menn þessa félags eru nú 6000
— helmingi fleiri en fyrir 2 ár-
um. Pantanir, sem fyrir liggja,
nema 33 milj. doílara. Mikið af
þeim er frá Bretum (hernaðar-
flugvélar). Ennfremur 50 hern-
aðarflugvélar fyrir Ástralíu.
NORSKU krónprins-
hjónin lögðu af stað
heimleiðis í morgun.
Oslo 5. júlí. FB.
Norsku krónprinshjónin hafa
að undanförnu komið opinber-
le'ga fram víða í Bandaríkjun-
um, m. a. lagði Ólafur konungs-
efni sveig á gröf Lincolns í
Springfield. í Boston var liann
liyltur af milclum mannfjölda.
Krónprinslijónin eru nú i New
York og leggja af stað heim-
leiðis á Stavangerfjord á morg-
un (fimtudag). — NRP.
Langar samkomulags-
umleitanir fyrir
dyrum
Oslo 5. júlí. FB.
Samkomulagsumleitanirnar
við Rússa ínunii fyrirsjáanlega
e'nn dragast á langinn vegna
hinna nýju ágreiningsatriða.
Hinsvegar er víst, að rússneska
stjórnin hefir lýst ýfir skilorðs-
bundnu samþykki sínu við til-
lögur Breta og Frakka, þ. e.
ef samkomulag næst um hin
nýju atriði, sem Rússar hafa
dregið inn í umræðurnar, er
fullnaðarsamkomulag í vænd-
um, en umræðurnar um þau
kunna að standa yfir lengi. —-
NRP. —