Vísir - 07.07.1939, Page 4

Vísir - 07.07.1939, Page 4
4 Ví SIR Föstudaginn 7. júlí 1939. ytéyz''/yy?^'y'yjí?y - JirtLcaJUt? ef yZsurtto SUMARHATTUR, samkvæmt nýjustu tísku. Hatt- urinn er sniðinn á óvanalegan hátt. Hirðing hársins. Hárið er talið mesta skraut konunnar, en þó því að eins, að það njóti sín og sé vel hirt. Ef konur vildu fórna hársnyrtingu svo sem 10 mín. á kvöldi, gætu þær fegrað hár sitt svo að ekki yrði betur gert. Ör og óhindruð blóðrás um hársvörðinn er aðalatriðið, og æðsta boðorð Jæirra, sem um Iiár sitt vilja hirða. Hársvörður- inn og vöðvarnir, sem standa í sambandi við hann, eiga að vera það liðugir, að hægt sé að hréyfa höfuðhúðina sjálfstætt. Þið sltuluð byrja i kvöld á líirðingu hársins með 5 mín- útna nuddi. Þrýstið fingurgóm- unum fast að hársverðinum og nuddið hann í hring, án þess þó að fingurnir strjúkist í hring á liárinu sjálfu. Færið fingurna til án þese að lyfta þeim frá hár- sverðinum og notið aðeins fing- urgómana til þess að nudda húðiná. Nuddið þannig hár- svörðinn allan aftur á linakka og aftan við éyrun, þannig að hörundið hitni alt og enginn hlettur verði eftir skilinn. Fimni mínútur eiga að vera alveg næg- ar til nuddsins, en það verður að vera þannig frámkvæmt, að hiti hlaupi í allan hársvörðinn. Nuddið hefir mjög góð áhrif á taugarnar, og fegrar andlitið sjálft, með þvi að hrukkur og þreytusvipur hverfur og andlits- drættirnir verða fjörlegri. Strjúkið hundrað sinnum í gegnum hárið með liárburstan- um og strjúkið á móti hárinu, þegar búið err að nudda hár- svörðinn. Notið til j>ess harðan hárbursta, en ekki of þéttan. Beygið ykkur niður og látið hárið hanga fram af enninu og burstið það því næst niður. Þetta er það, sem ykkur ber að gera á kvöldin. Það e'r ein- falt og auðvelt, en að sama skapi gagnlegt. Það er aðeins að hefjast handa. Hitt kemur af sjálfu sér. Feitt hár. Ef hárið er fitukent breytir það litlu þótt j)að sé þvegið oft. Eftir örfáa daga sækir í sama horfið. Reynið heldur að vefja þunnu gas-bindi um burstann, þannig að hárin gægist í gegn um það, og strjúkið svo eins og hundrað sinnum í gegn um hár- ið. Skiftið um gas-bindi strax og óhreinindi setjast á það. — Gasbindin hafa þann eiginleika, að þau sjúga í sig alt ryk og ó- hreinindi úr hárinu og alla fitu. Haldið áfram að strjúka í gegn um hárið þar til engin óhrein- indi setjast á gasbindið, því að þá er hárið fyrst orðið alveg hreint. ljóst. Dökkt hár og Ef hárið er dökt og óskað er eftir að gera það enn þá dekkra, þá er best að þvo það upp úr tjörusápu og skola það upp úr vatni með dálitlu eddiki saman við. Séuð þér Ijóshærðar, en viljið að hár yðar sé nokkru ljósara, þá er ágætt að nudda hárið upp úr 1—2 eggjarauðum. Síðan er það þvegið úr kamillete og að lokum upp úr sitrónuvatni. — Vökvi úr tveim sítrónum er settur í fat með volgu vatni og hárið því næst þvegið. Hvort sejn hárið er dökt eða ljóst, er ágætt að setja dálítið af bóraks í þvottavatnið. Það mýkir hárið og gerir það gljá- andi. Setjið dálítið af ediki í það vatn, sem þið skolið hárið seinast úr, eða dreifið dálitlu af eddiki yfir hárið og látið það sitja um stund í hárinu, þangað til að þið þurkið það. Nokkrir dropar af olivuolíu gera hárið gljáandi, án þess að það verði fituborið. Flasa í hárí. Fjöldi manns, bæði konur og karlar, ganga með flösu, þ.e.a.s. yfirhúðarhreistur í hársverðin- um. Besta og eina örugga ráðið við því er olivuolía. Hana skul- uð þér bera i hárið í hvert sinn áður en þér þvoið það, og láta olíuna sitja í hárinu yfir nótt- ina. Skiftið hárinu með dálitlu millibili, og núið olíunni niður í hársvörðinni með baðmull, en gætið þess, að olian fari ekki í sjálft hárið. Ef þið viljið gera róttækari aðgerðir skuluð þið dýfa hárburstanum í olíuna og strjúka með honum frá enni og aftur eftir hárinu, og bursta því næst hárið mjög vandlega. Bindið því næst pentudúk, eða eitthvað slíkt, uiu höfuðið, þannig að koddaverið smiti ekki af olíunni. Lifandi blóm eru mikið not- uð núna — ekki að eins til skrauts í hári heldur og sem armbönd, hálfestar eða skraut á axlaböndum, eins og sjá má hér á myndinni. Þvoið hárið um morguninn. Blöndun af grænsápu og möndlusápu er ágætt að nota við þvottinn, þ.e.a.s. dökkliærð- ar konur geta líka notað tjöru- sápu, ef þær kjósa heldur. Það er best að tálga sápuna í spæni og leysa hana upp áður, en löginn er liægt að geyma í flöskum. Það er auðveldara, enda sparnaður á sápunni, að nota hana þannig. Háríð og sjóböðin. Á sumrin, þegar stunduð eru sjávarböð, blotnar hárið auð- vekllega af sjónum, þótt þéttar baðhettur séu notaðar, og ásetn- ingurinn sé sá, að láta liárið ekki vökna. Af þessu leiðir að hárið verður dautt og gljálaust, eða jafnvel klístrað saman. Það eina, sem unt er að gera því til bóta, er að skola hárið úr vatni og setja i það dálitið af bóraks eða eddiki. Þetta er að sjálf- sögðu dálítið ómak, en hárið þornar fljótlega, en best er að láta það þorna án þess að sólin þurki það. Ef liárið er lirokkið, er hent- ast að halda því yfir gufu. Guf- an er besta lokkajárnið. Það verður auðvelt að hagræða hár- inu og setja það í bylgjur, og best er að nota vangakamba til þess. í hitanum. Ef liárinu hættir til að verða dautt og fituborið i hitum, er best að blanda saman að jöfnu „Bayrum“, víneddiki og rósavatni, ásamt nokkrum dropum af „Eau de Cologne“, og bursta liárið upp úr þessu einu sinni á degi. Þéttar baðhettur eyðileggja alveg hárgreiðsluna, en ef þér setjið hárnælur (klemmur) í hverja bylgju, helst hárið í sín- um skorðum, jafnvel þótt það vökni. Hún (einstök tildurrófa): Eg þyrfti endilega að kaupa mér skó úr slönguskinni — í stíl við nýja liattinn! Hann: Fjarri því! Vertu bara berfætt, kona — þá er alt í lagi. llollrád íyrir vatnadíiir. Augnabrúnalitur. Þið skuluð elcki nota áugna- brúnalit er þér farið í sund, e'n berið dálítið vaselin á augnhár- in, augnabrúnirnar og augna- lokin áður en þér fariö út i vatn- ið. í stað vaselins má einnig nota olíu. Fegurðarmeðulin þola ekki vatn, og það væri eng- anveginn hentugt eða fagurt, að koma úr kafinu með svarta strauma um alt andlitið vegna brúnalitsins. Roði. Það er hið eina, sem eg tel að þér eigið að nota, er þér syndið, því að roðinn er altaf fegrandi. Notið roðasmyrsl, en aldrei þurran roða, því að vatn- ið „forðast“ feitina. Eplakinn- arnar láta að engu leyti á sjá, ef svona er faiáð að. Vararoði. Það er sjálfsagt að hafa vara- roða þegar þér farið í sund. Rauðar varir eru að minsta kosti fallegiá en hvítar. Notið varalit, sem er með feiti í, því að hann lætur ekki á sjá, en auk þess þorna varirnar ekki, ef þér notið liann. P. S. Þér megið ekki gleyma and- litslit yðar á sumrin, þótt þér séuð sólbrendar. Þegar sólbrun- inn kemur til sögunnar, verður að nota dekkri liti, ekki aðeins ,.púður“, heldur einnig andlits- roða og varalit. HÚSRÁÐ OG HEILLARÁÐ Salat er hest að geyma á dimmum stað, t. d. í pottum, eða að liafa það vafið inn i prentpappir. • Lauk má skræla eða skera niður, án þess að fá sviða í aug- un, ef það er gert niður í vatni eða undir vatnskrananum. — Lauklykl hverfur af hlutum, t. d. hníf, er hann er núinn með þurru salti. • - Heitur matur kólnar fljótt, ef ílátið er lálið standa í sterku saltvatni. • Matvara með eddiki j má ekki geymast í málmíláti, t. d. gaff- albitar í dósum, eftir að búið er að opna þær, því að eddikið samlagast málminum, en við það geta myndast eiturefni. • Spínat lieldur græna litnum, ef það er soðið í loklausum Fptti. Blómsturpotta, sem leka, má þétta með bræddu parafin. Hendurnar er gott að þvo upp úr eddiksvatni, eftir að menn hafa verið í moldarvinnu. • Sítrónur má geyma svo vik- um skiftir, ef sag er liaft í kass- anum, sem þær eru geymdar í. • Freknum er gott að ná úr með sítrónusafa eða með per- sille, eða að þvo þær daglega upp úr vatni, sem persille hefir verið látið liggja í i sólarhring. KYIKMYNDAKÓN GURINN Cecil B. Mille varð hættulega veikur í vor og- var lagður í sjúkra- hús. Þrátt fyrir bann lækna sinna lét hann dag hvem flytja sig á sinn gamla vinnustað og stjórnaði þar kvikmyndatökum, eins og ekkert hefði í skorist. Á myndinni hjá honum er Bar- bara Stanwyck, kvikmyndaleikkona. MA TREIÐSLA. Eggjarönd með grænnrejti. 4 egg 214 dl. mjólk dálítið salt grænmeti. Eggin, mjólkin og saltið er þeytt mjög vel, og sett i rand- mót, sem smurt hefir verið með óbræddu smjöri, — ekki of þunnu lagi. Mótið er því næst sett í pott með sjóðandi vatni og lok sett yfir, þar til eggjaröndin er full- soðin. Gætið þess, að sjóða þetta við hægan eld, og ekki of lengi. Eggjaröndin er losuð úr mót- inu með oddmjóum hníf, og henni hvolft á kringlótt fat. Inn- an i eggjaröndina eru settar grænar baunir í jafningi eða spínat, en utan með röndinni eru setlir vafningar af reyktum lax ecía svímjkjöti og ;'þannig borið á borð. Þetla er mjög ljúf- að sama skapi. Þorskur og spínat. Þorskleýfarnar eru settar í mót, sem smurt hefir verið með smjöri. Spinatlag er sett þar yf- ir, en yfir það er lielt mjöljafn- ingi (uppþökuðum), og í mjöl- jafninginn hefir niðurrifinn ost- ur verið settur. Þá er niðurrifn- um osli stráð yfir og þvi næst hell á þella dálitlu af bræddu smjöri. Þá er mótið sett inn í bakarofn og réttúrinn látinn brúnast þar i 20 mínútur. IIÁRFLÉTTlJIft við ísl. og útlendan búning i miklu úrvali. Keypt sítt, afklipt liár. ttárgreiðslDstofan PERLA Bergstaðastr. 1. Sími 3895 Creme og húðolía veita hina öruggu vörn gegn hverskonar skaðlegum áhrifum lofts og vatns. GLEÐI SUMARFRlSlNS og vellíðan verð- ur meiri, ef þér munið að taka N I T A- CREME og HÚÐOLfU með í fríið. * Inisar siiiávörnr íil (irkifæri§g:| af a.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.