Vísir - 10.08.1939, Side 2
VISIR
Þjóðverjar hefj
stórum stíl á
hernaðarflugvéla
Þjoðvcrjar ^aiula fiacm§t allra
jijóða á §vlði flugfiiiálðisniði.
EINKASKEYTI frá United Press. — London í morgun.
lexander de Seversky, flugvéla framleiðandinn
heimskunni, sem nýlega hefir ferðast um alla
Evrópu og heimsótt helstu flugvélaverksmiðj-
ur Þýskalands og talað við helstu menn Þjóðverja á
sviði flugmála, segir í viðtali við United Press, að Þjóð-
verjar sé í þann veginn að hef ja smíði nýrra hernaðar-
flugvéla í mjög stórum stíl.
Flugvélar þessar, segir Seversky, verða hrað-
fleygari og betur búnar að byssum og öðrum her-
gögnum en nokkurar aðrar flugvélar, sem nú eru
tn. — i; ,J
„Þjóðverjar“, segir Seversky, „eru nú að gerbreyta ölium
flugvélaverksmiðjum sínum, vegna þessarar ákvörðunar um að
hefja smíði hinna nýju hernaðarflugvéla. Framleiðslan á
að byrja í næsta mánuði, þegar uppskeruönnunum er lokið“.
framleíðslu í
nýrri tegund
EFTIR SPRENGINGUNA.
Fyrir nolckuru urðu sprengingar í farangursgeymslum
Charing Cross og IGng’s Cross járnbrautarstöðva í London. —
Myndin er frá King’s Cross stöðinni, tekin rétt eftir að spreng-
ingin varð þar. Hafði vítisvél verið sett í koffort og beðið að
gevma það á stöðinni. Síðan er farið var að reka leiðtoga I. R. A.
manna úr landi, hefir dregið úr hermdal'verkum, en nú er farið
að senda sprengiefni í pósti frá írlandi til Englands. Eklci liefir
þó slys orðið af enn.
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson
Skrifstofa: Hverfisgötu 12
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12
(Gengið inn frá Ingólfsstræti)
3 í m a r:
Afgreiðsla 3400
Ritstjórn 4578
Auglýsingastjóri 2834
— (kl. 9—12) 5377
Verð kr. 2.50 á mánuði.
Lausasala 10, 15 og 20 aurar.
Fólagsprentsmiðjan h/f.
„Sérhagsmunirn-
ir gegn heild-
inni“
jB$LÞÝÐUBLAÐIÐ hefir fylst
óskiljanlegri þykkju yfir
grein, sem birtist hér í blaðinu
i fyrradag um viðskiftamálin. í
grein þessari var því lýst yfir,
að um áframhaldandi samstarf
gæti ekki orðið að ræða af hálfu
Sjálfstæðisflokksins, nema frek-
ari rétting fengist í þessum efn-
um en orðið er. Þessi yfirlýsing
getur ekki komið neinum á ó-
vart. Hún er ekki annað en á-
rétting á afstöðu Sjálfstæðis-
flokksins fyr og siðar. En það
er íullkomin rangfærsla hjá Al-
þýðublaðinu, að Vísir liafi kraf-
ist „ótakmarkaðs innflutnings
á erlendum vörum“ eins og
blaðið vill vera láta. Því hefir
einnig margsinnis verið lýst yfir
af málssvörum kaupmanna, að
þeir sætti sig við allan nauð-
synlegan niðurskui'ð á innflutn-
ingi til landsins. Það, sem farið
hefir verið fram á, er ekki ann-
að eða meira en það, að úthlut-
un innfluiningsins sé látin
ganga jafn'U yfir, að allir inn-
flytjendur lúti sömu skilyrðum
af liálfu þess opinbera til að
flytja inn vörur og greiða þær.
Þetta er það frelsi, sem viður-
kent er hvarvetna í lýðfrjálsum
löndum, þar sem innflutnings-
höftum hefir verið beitt.
Ágreiningurinn í þessum mál-
um liér á landi er sprottinn af
því, að stjórnarvöldin hafa not-
að sér aðstöðu sína til þess að
ívilna einstökum innflytjend-
um á kostnað annara. Sjálf-
stæðisflokkurinn krefst þess, að
þessi forréttindastefna viki fyr-
ir því frelsi, sem hvarvetna er
viðurkent i þessum efnum, þar
sem lýðræði ríkir. Bræðraflokk-
ar Alþýðuflokksins í nágranna-
löndunum taka sömu afstöðu
til þessara mála og Sjálfstæðis-
flokkurinn. Það sem Sjálfstæð-
isflokkurinn fer fram á um til-
högun innflutningsins, er ekki
annað en það, sem framkvæmt
er i Danmörku undir stjórn
Staunings. Alþýðublaðið getur
svo dæmt um það hvort þessi
kunni flokksbróðir þess sé lík-
legur til að berjast fyrir „sér-
hagsmunum gegn heildinni“.
Alþýðuhlaðinu finst endilega,
að það þurfi að réttlæta inn-
flutningshöftin. Farast þvi orð
á þessa leið: „Vísir veit það eins
og allir aðrir, að innflutnings-
höftin voru ekki sett til að of-
sækja verslunarmannastéttina,
heldur til þess að bjarga þjóð-
arbúinu í alvarlegustu krepp-
unni, sem yfir það hefir skoll-
ið ....“
Engin ástæða er fyrir Visi tif
þess að vera að elta ólar vlð
Alþýðublaðið út af blessun inn-
flutningshaftanna, því á sinum
tíma ge’rði Alþýðublaðið svo
rækilega grein fyrir afstöðu
sinni til málsins, að þar er ekki
um neitt að villast. Þegar þá-
verandi ríkisstjóm greip til inn-
llutningshaftanna, heilsaði Al-
þýðublaðið þeirri ráðstöfun á
þessa leið:
„Nú er landsstjórnin að
leggja út í nýjar og stórfeldar
ráðslafanir, sem er það, að setja
á innflutningsliöft samkvæmt
lögum frá 1920. Mun hér sum-
part vera um ráðleysisfálm
þeirra manna að ræða, „sem
ekki vita hvaðan lcreppan kem-
ur eða hvert hún fer“, en sum-
part ráðstöfun, sem á að breiða
yfir þrot það, sem kaupfélögin
eru komin í, vegna hinna gegnd-
arlausu útlánavel'slunar“.
Ennfreinur segir Alþýðu-
hlaðið:
„Frá Alþýðuflokksins sjónar-
miði verða innflutningsliöftin
eingöngu að skoðast út frá þvi,
hvort þau gagni eða skaði
verkalýðinn. En þar sem ekki
er sýnt, að þau geti á nokkurn
hátt gagnað verkalýðnum, en
hinsvegar vist, að þau verða til
að gera vöruna dýrari, verður
að skoða þau sem skaðleg“.
Næsta dag heldur blaðið á-
fram i sama dúr. Telur það að
ríkisstjórnin hafi farið að „eins
og skottulæknir, sem skilur
ekki hver er orsök sjúkdómsins,
reynir hin fáránlegustu meðöl
gegn lionum“. „Alþýðuflokkur-
inn er lilyntur kaupfélagsskap,
en liver maður hlýtur að sjá, að
ekki dugir að stöðva alla versl-
un til landsins til þess að bjarga
þeim kaupfélögum, sem vegna
gegndarlausrar lánsverslunar
eru orðin illa stæð“.
Næsta dag birtust mótmæli
gegn innflutningshöftunum frá
ýmsum stofnunum, þar á með-
al Alþýðusainbandinu og Yersl-
unarráðinu. Alþýðublaðið birtir
þessi mótmæli, en gerir ekki
ráð fyrir að tillit sé tekið til
þeirra. Blaðinu farast svo orð
um þetta: „En hvað stoðar það,
þegar Sambandi íslenskra sam-
vinnufélaga liggur á að komið
sé á innflutningsliöftum til þess
að breiða yfir þrot það, sem
mörg kaupfélög eru komin i.
Þá eru innflutningshöft sett á
og ekkert hugsað um hvaða af-
leiðingar það liefir í þá átt, að
gera varning dýrari fyrir al-
menning og skapa margskonar
cþægindi“.
Hér skal þessum tilvitnunum
lokið. Þær nægja til að sýna, að
Alþýðublaðið leit i öndverðu
svo á, að innflutningshöftin
væri ekki sett á vegna heildar-
innar, lieldur til að tryggja
„sérhagsmuni gegn lieildinni“.
Þessir sömu sérhagsmunir eru
enn trygðir með framkvæmd
haftanna,
Alþýðublaðið segir í gær, að
á örðugleákatímum eigi allir
„að sýna þann þegnskap, að
færa nokkrar fórnir“. En þessi
„þegnskapur“ og þessar „fórn-
ir“ eru í því fólgnar, að lialda
dauðalialdi í „sérhagsmuni gegn
heildinni"!
a
Frílisti.
í Lögbiríingablaðinu, sem út
’kom í gær, er auglýstur nýr frí-
listi, sem nær til ýmsra vara,
og eru það aðallega matvörur,
svo sem rúgur, rúgmjöl, hveiti,
hveitigrjón, hveitimjöl, hafra-
grjón, hrísgrjón, hrísmjöl, sago-
grjón, sagomjöl, bankabygg,
matbaunir, kartöflumjöl, sit-
íónur o. fl. Ennfremur ýmsar
nauðsynjar til útgerðar, prent-
aðar bækur, blöð og tímarit.
Þjóðverjar fremstir.
„Þjóðverjar standa fremstir
allra þjóða á sviði ílugmála“,
segir SeVersky, „þeir hafa bestu
sérfræðingana og bestu iðnað-
armennina til þess að vinna að
vélagerð, og engin þjóð stendur
eins vel að vígi til þe'ss að fram-
leiða flugvélar i stórum stíl“.
Seversky kom í flugvélaverk-
smiðjur margar i Þýskalandi,
Ítalíu og Frakklandi og ræddi
við lielstu menn allra þessara
þjóða á sviði flugmála. Hann
fékk einnig tækifæri til þess að
fljúga i mörgum tegundum
flugvéla.
Hraðfleygustu flugvélarnar,
sem nú þekkjast, telur hann
bresku eltingarflugvélarnar,
Spitfire, en i þeim eru Rolls
Royce-Martin hreyflar, og ít-
alskar þrílireyfla sprengjuflug-
vélar, sem eru útbúnar með
nýjum sjálfstýritækjum, furðu-
lega liugvitssamlega gerðum.
Hann kvað flugvélar Þjóðverja
hafa verið reyndar á Spáni og
hefði komið greinilega í Ijós þar
liversu miklum eyðile'ggingum
þær geta valdið, en hinar nýju
liernaðarflugvélar þeirra yrði
útbúnar enn stærri og hættu-
legri byssum og auk þe'ss gæti
þær liaft fleiri sprengikúlur
meðferðis.
Bretar verða búnir að ná há-
marki í framleiðslu á sínum á-
gætu he'maðarflugvélum, þegar
Þjóðverjar byrja framleiðslu í
stórum stíl á enn fullkomnari
hernaðarflugvélum, en Bretar
eiga nú. Fx-anskar flugvélar,
segir SeVersky, standa að baki
breskum og þýskurn flugvélum.
Þjóðverjar eru svo birgir af
flugvélunx nú, að sem stendur
er lítið unnið í flugvélaverk-
smiðjunum, — verkamennirnir
liafa verið sendir i uppskeru-
vinnu, en þegar þeir koma úr
lienni, verður tekið til óspiltra
málanna við framleiðslu flug-
vélanna.
Um rússneskar flugvélar seg-
ir Seversky, að það sé alt of
mikið gert úr styrkle'ika rúss-
neska flughersins. Flugmenn-
irnir sé ágætir, en flugvélarnar
séu eftirmyndir af amerískum
flugvélum, sem séu orðnar úr-
eltar. Seversky var á sinni tíð
yfirforingi í keisarahemum
rússneska.
Seversky varaði Bandarikja-
menn við að gera of lítið úr her-
veldi Þýskalands og ætla Hitler
lítt merkilega „toppfígúru“.
Ef styrjöld kemur á þessu
ári mun hún að líkindum
brjótast út í september og
Þjóðverjar munu sýna yfir- ‘
burði sína á landi og í lofti.
Hinsvegar kveðst Seversky * 1
ekki vera trúaður á það, að j
til styr jaldar komi — einmitt 1
af því, að Þjóðverjar séu
sterkastir loftnhernaðarlega,
Og það er til þess að vera það
áfram, að þeir efna til hinnar
miklu smíði hernaðarflug-
véla, sem að framan hefir
verið getið um.
Bre'tar fara ekki í strið út af
Danzig, að minni liyggj u, og
hvorki Chambei'lain eða Hitler
vilja stríð, sagði Seversky, en
eg lield, að Danzig falli Þjóð-
verjum í skaut friðsamlega um
það er lýkur. En komi til styrj-
aldar, lcemur liún þegar Hitler
vill. Og liann verður reiðubúinn
i septembeT.
KoriiRiii'grili*
Norðinaniia.
Oslo, 9. ágúst. FB.
Kornhirgðir Norðmanna
nema nú 200.000 smálestum og
ætti sá forði að duga þjóðinni í
eitt ár. Frá þvi haust vei'ða
tilbúnir geymslustaðir fyrir
50.000 smálestir til. — Þegar
heimsstyrjöldin bi'aust út 1914
höfðu Norðmenn að eins korn-
birgðir til nokkurra vikna. —
NRP.
Finnar vilja engan
hlutleysisstuðning.
Oslo, 9. ágúst. FB.
Finski u tanríkismiálaráðherr-
ann hefir lýst yfir, að Finnar
muni grípa til kröftugra var-
úðarráðstafana, ef reynt verður
að neyða Finnland til að fallast
á loforð unx stuðning, sem
Finnar óska ekki eftir.
Knattspyrnumenn í boðhlaupi.
i. flokkur K.R. fór til Vest-
mannaeyja á þjóðhátíðina á dög-
unum, keptu þar í knattspyrnu og
sigruðu með 6—3. Þá tóku nokkr-
ir piltanna þátt í boðhlaupi gegn
hlaupurum Ármanns -— vegna þess
áð Vestmannaeyingar voru forfall-
aðir og sigruðu K.R.-ingar.
Engin síld:
------------- I
Norðaustan kaldi
1
og þokusúid á |
miðunum. !
1
„í dag er að heita má ekki ■
veiðiveður hér nyrðra“, sagði |
fréttaritari Vísis á Siglufirði í
morgun, þegar blaðið talaði
norður. „Á miðunum er norð-
austan kaldi og þokusúld“.
Örfá skip liafa lcornið inn í
morgun með 50—100 tunnur
og er það miklu minna en eftir
undanfarnar 4 nætur. Alls mun
ve'ra húið að salta á Siglufirði
um 30 þús. tn.
Flugvélin TF-ÖRN er nú hér
í Reykjavík. Kom hún liingað
seint á mánudagskvöld vegna
smávægilegrar hilunar, sem á
henni varð.
Var svo ráð fyrir gert, að liún
færi héðan áleiðis norður kl. 5
í morgun og leitaði á leiðinni,
en vegna þess. hvernig veðri var
spáð i gærkveldi var brottför-
inni freslað.
Óhagstæður
ver slunar j öf nuður.
I lok júlímánaðar nam inn-
flutningurinn frá áramótum —
þ. e. fyrstu sjö mánuði ársins —
kr. 36.644 þúsund krónurn, en j
útflutningui’inn 25.077 þús. kr.
í fyrra á sama tíma nam inn-
flutningurinn 30.913 þús. kr. og
útflutningurinn 22.720 þús. kr.
Herskip sekkur.
Oslo, 9. ágúst. FB.
Franskur mótor-torpedóbát-
ur V. T. B. 9, klofnaði i tvent í
Ermarsundi og sökk á fáum
sekúndum. Á bátnurn voru 8
menn, skipstjóri, stýi’imaður og
6 liásetar. Hásetunum var
hjargað, er þeir höfðu lialdið
sér á floti í 12 klst. á planka.
j Var það franskt flutningaskip
á leið til Newlxaven, sem bjarg-
aði þeim. Yfirmenn torpedó-
bátsins fórust. NRP.
Fyrsti íslenski læknir-
inn í Kanada látinn.
Dr. Ólafur Stepliensen, fyrsti
íslenski læknirinn í Canada, 74
árá gamall, dó mánudaginn 17.
júlí að lieimili sínu, 162 Sliei’-
burn St., Winnipeg. Ilann liafði
slundað lækningai' hér í bæ frá
1896 og þar til fyrir 10 árum,
að liann tók sér livíld frá störf-
um. Hann var gáfu- og hæfi-
leikamaður og tók mikinn þátt
í þjóðlífi landa sinna hér á fyrri
árum, og var einn af lcunnustu
og merkustu mönnum í hópi
Ves lur-íslendinga.
Hann var fæddur og uppalinn
á íslandi, kou til Canada 1893.
Menlun sína hlaut liann í Lat-
inuskólanum í Reykjavík og frá
liáskólanum i Kaupmannahöfn
útskrifaðist liann sem læknir.
Á Manitoba læknaskólann gekk
hann eitt ár og útskrifaðist
1895.
Hann innrilaðist seln læknir
í herinn í stríðinu mikla og var
i læknisþjónustu i hernum í Ev-
rópu fi'á 1916 til 1918.
Dr. Stephensen lifa lcona lians
og fjórar dætur: Mi's. Robert
Black, Mrs. V. J. Percy, Mrs. G.
P. Kennedy og Eme'lie ógift,
allar í Winnipeg, og þrír synir:
Magnús, í Long Beach, Calif.,
Stefán í Vancouver og Frank i
Winnipeg. Tvær systur liins
látna eru á íslandi, (Hkr.).
*
Aflcidiiig:íir
ölæði§.
Oslo, 9. ágúst. FB.
Drukkinn maður braust i
gær inn i Þjóðskjalasafnið i
Oslo og braut þar alt og braml-
aði, sem hann gat, reif verð-
mæt skjöl úr liillum og kastaði
þeim liingað og þangað. Tókst
loks að handtaka manninn, sem
var alveg viti sínu fjær. Þegar
maðurinn hafði sofið úr sér
vímuna mundi hann ekkert,
sem gerst hafði. NRP.