Vísir - 17.08.1939, Blaðsíða 2

Vísir - 17.08.1939, Blaðsíða 2
VISIR VÍSIR DAGBLAÐ Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F. Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson Skrifstofa: Hverfisgötu 12 Afgreiðsla: Hverfisgötu 12 (Gengið inn frá Ingólfsstræti) S I m a r: Afgreiðsla 3400 Ritstjórn 4578 Auglýsingastjóri 2834 — (kl. 9—12) 5377 Verð kr. 2.50 á mánuði. Lausasala 10, 15 og 20 aurar. Félagsprentsmiðjan h/f. Sumarstarf Sjálfstæðis- fiokksins. 17NGINN vafi er á því, að á- hugi sjálfstæðismanna á flokksstörfum hefir aldrei ver- ið meiri en nú. Þetta er ljóst bæði af hréfaviðskiftum og við- tölum við menn hvaðanæfa af landinu. Það má vel vera, að allra fyrst eftir stjórnarmynd- unina í vor hafi einhverjir sjálf- stæðismenn litið svo á, að hér væri í raun og veru um einn sameiginlegan „þjóðstjórnar- flokk“ að ræða, þar sem áður voru þrír flokkar. Þess vegna þyrfti ekki að leggja mikla á- herslu á flokksstarf sjálfstæðis- manna. Þeir menn, sem þann- ig kunna að hafa litið á málin í upphafi, liafa áreiðanlega skift um skoðun. Sennilega hafa ein- hverjir menn í hinum flokkun- um, sem að stjórninni standa, einnig verið eitthvað hikandi við sjálfstætt flokksstarf fyrst eftir stjórnaimyndunina. En ef rétt er munað benti Eysteinn Jónsson á það í útvarpsumræð- unum um gengismálið, sem fram fóru snemma í maímánuði að samstarfið táknaði engan- veginn það, að stuðningsflokk- ar stjórnarinnar létu sjálfstætt flokksstarf liggja niðri, og er fullkomlega þakkai-vert að leið- rétta þann misskilning. Á þessu sumri he'fir Sjálf- stæðisflokkurinn gengist fyrir fleiri samkomum út um land en nokkru sinni fyr. Þessar samkomur hafa undantekning- arlaust verið ágætlega \ sóttar. Þeir, sem verið hafa á slíkum mótum geta um það borið, hverja þýðingu þau hafa. Gagn- stætt hinum flokkunum byggir Sj álfs tæðisflokku rin n ekki til- veru sina á hagsmunasamtök- um. Allir vita að Samband ís- lenskra samvinnufélaga er uppistaðan í Framsóknar- flokknum alveg á sama hátt og Alþýðusambandið í Alþýðu- flokknum. Þessar víðtæku hagsmunahedldir skiftast í deild- ir út um alí land. Á þennan hátt er lialdið uppi stöðugu sam- handi milli flokksmannanna. Sjálfstæðisflokkurinn hefir eng- um slíkum stofnunum á að skipa. Þess vegna hefir þótt skorta á hin nánu kynni manna á meðal innan flokksins, sem eru svo þýðingarmikil í allri l'Iokksstarfsemi. Með samkomum þeim, sem flokkurinn gengst fyrir er ekki síst unnið að kynningarstarf- semi. Á héraðsmótunum hittast menn úr fjariægum sveitum og bindast vináttuböndum. Oft eiga þessir menn við ofurefli að etja í sinni sveit, en kynningin við flokksbræður úr öðrum liéruðum veitir þeim stuðning og hvatningu í þeirri baráttu. Og ]>að eru raunar ekki ein- ungis flokksbræður, heldur engu síður flokkssystur, .sem láta til sín taka í starfi Sjálf- stæðisflokksins. Það er engin tilviljun að Sjálfstæðisfloklcur- inn hefir einn allra flokka átt kvenfulltrúa á þingi. Ástæðan er sú, að altaf hefir kveðið mik- ið að konum í flokknum og flokksstjómin hefir kunnað að meta þann áhuga, sem þær liafa sýnt og það starf, sem þær hafa lagt fram. Ennþá standa fyrir dyrum nokkur flokksmót út um land, t. d. á Vestfjörðum. Samkvæmt ósk héraðshúa hefir þeim fundahöldum verið frestað fram undir haustið. Hér í Reykjavík hafa útisam- komur verið haldnar að Eiði hin síðustu sumur. Þær sam- komur hafa allar verið mjög vel sóttar og eru mikilsverður þáttur í starfsemi reykvískra sjálfstæðismanna. Næsta sunnudag verður hald- in samkoma á Eiði, ef veður leyfir. Ekki e'r vitað hverjir taka þar til máls. En hin vin- sæla Lúðrasveit Reykjavíkur hefir verið fengin til að leika þar um daginn. Sumri tekur hrátt að halla og má vera að nú sér hve’r síðastur um útisam- komur. Þess vegna er enginn efi á því, að sjálfstæðismenn munu nota þetta tækifæri, ef kostur er, til þe'ss að njóta á- nægjulegrar dagstundar í hinu Idýlega umhverfi á Eiði í hópi áhugasamra flokksmanna. a Saltsíldin er nú um 100 þús. tn. Ágætt veður var fyrir norðan í morgun, en lítil sól. Nokkuð hefir verið saltað í nótt, en að- allega við Ingólfsfjörð og á sölt- unarstöðvum við Húnaflóa. Er veiði þar áfram, en ekki meiri en undanfarið. Þegar Vísir átti tal við síld- arútvegsnefnd í morgun voru skýrslur ekki komnar yfir sölt- un í gær, en gert var ráð fyrir að saltsíldin væri komin upp i 100 þús. tn. Þær tölur, sem hér fara á eft- ir, eru frá í gærmorgun: Tunnur Siglufjörður ......... 61.337 Akureyri og nágrenni .. 1.170 Dalvik .................. 888 Hrísey ................. 1.910 Ólafsfjörður........... 2.723 Hofsós................. 366 Sauðárkrókur ............ 900 Skagaströnd ........... 3.729 Hólmavík .............. 5.417 Ingólfsfjörður ......... 6.910 Reykjarfjörður ........ 5.734 Austfirðir ............... 16 Húsavík ................. 104 Suðurland................ 197 Samtals er söltun samkv. þessu orðin um 91.400 tunnur. Af saltsíld voru fluttar út 934 tn. i sið- asta mánuði, fyrir kr. 27.510, en alls hafa þá verið fluttar út 24421 tn. á árinu, að verðmæti kr. 833.420. Á sama tíma í fyrra voru fluttar út 50.034 tn. fyrir kr. 1.319.630. ! Af síldarolíu voru í júlí fluttar út 3440.4 smál. fyrir kr. 1.148.900, en jan. —júli 10.352.1 smál. fyrir 3.002.840 kr. Á sama tíma í fyrra nam þessi útflutningur 8741.4 smál. fyrir kr. 2.185.760. Pólverjar handtaka 100 Þjóðverja í Kattowicz. Þeir eru s&kadip um njósnip og ofbeldisvérk. EINKASKEYTI frá United Press. — London í morgun. Fregnir frá Yarsjá í morgun herma, að opinber tilkynning hafi verið gefin út um það, að um eitt hundrað Þjóðverjar hafi verið handtekn- ir í Kattowics-héraði. Eru menn þessir sakaðir um njósnastarfsemi og aðra starfsemi hættulega sjálfstæði og öryggi pólska ríkisins. Það hefir sannast við rannsókn út af morði á pólsk- um embættismanni fyrir nokkurum dögum, að félags- skapur ungra Þ jóðverja í Slesiu, hefir skipulagt starf- semi til n jósna og oíbeldisverka. Samtök þessi eru m jög víðæk og hefir starfsemin verið Skipulögð af mönnum, sem sendir hafa verið til þess, frá Þýskalandi, og lýtur félagsskapurinn yfirstjórn þeirra, Þessi fregn, eins og fleiri, sem borist hafa í seinni tið bendtr íil, að sama ástand liafi i þann veginn verið að skapast í þeim hluta Slesiu, sem Pólverjar eiga, og í Súdetahéruðunum á sinni tíð, er deilan um Tékkóslóvalciu var að ná hámarki, og hafi þýski þjóðernisminnihlutinn í Slesiu ætlað sér að liafa svipað hlutverk með höndum, og Súdetar, þ. e. eflingu samstarfsins við Þjóðverja. SAMKOMULAGSTILLÖG- URNAR ENN Á DAGSKRÁ. TiIIcgur þær, sem blöðin í álfunni hafa rætt svo mikið um, til lausnar Danzig-deilunni, eru enn á dagskrá, og eru frönsku blöðin komin á þá skoðun, að Þjóðverjar miði raunverulega að því, með núverandi bardaga- aðferðum, að spilla samvinnu Pólverja við Breta og Frakka; talið um ráðstefnu fram komið í því skyni. Blöðin leggja áherslu á, að það, geti ekki komið til nokk- urra mála, að Bretar og Frakk- ar fari að kaupslaga við Þjóð- verja um Danzig, þar sem ekk- ert fullnaðarsamkomulag sé unt að gera um Danzig, án Pólverja. ítölsk blöð skýra frá því, að Þjóðverjar muni halda til streitu kröfum sínum umDanzig en muni fúsir til þess að fallast á, að Pólverjar haldi öllum við- skiftalegum hlunnfndum í Dan- zig, og muni Þýskaland ábyrgj- ast Pólverjum að réttindin verði ekki skert á nokkum hátt. VIÐRÆÐUR VON RIBBENTROPS OG CZAKY GREIFA. Frakkar og Banda- ríkjamenn sameinað- ir gegn Japönum. Fregnir frá París herma, að miklar viðræður fari fram milli ríkisstjórna Frakklands og Bandaríkjanna út af Kínamál- unum, aðallega viðskifta- og fjárhagslegs eðlis. Frakkar og Bandaríkjamenn eru sagðir gera sér ljóst, að þótt andróðr- inum hafi aðallega verið beint gegn Bretum, þá sé það aðeins í tilraunaskyni, og muni Japan- ir færa sig upp á skaftið og hefja andróður gegn öðrum hvtíum þjóðum, ef þeir þora. Munu Bandaríkjamenn þess hvetjandi, að Japönum verði sýnt það þegar, að þeim muni ekki haldast slíkt uppi. Frakk- ar og Bandaríkjamenn ætla sér að koma sameiginlega fram gagnvart Japan, að því er heyrst hefir, a. m. k. í öllum málum, sem fjárhag og viðskifti varða. Bonnet ræddi Við Bullitt sendi- herra Bandaríkjanna í gær. 200 franskar sprengjuflugvélar gera „árás“ á Bretland í dag. EEVKASKEYTI frá United Press. — London í morgun. Hinum miklu flughersæfingum Breta og Frakka er haldið áfram. í dag fljúga 200 franskar sprengjuflugvélar frá Frakk- landi inn yfir England og gera tilraunir til „árásar“ á breskar borgir. Þær eiga að reyna að komast alla leið til Liverpool. — Eltinga- og árásarflugvélar breska flugflotans eiga að hefja sig til flugs, þegar er til frönsku flugvélanna sést frá athugunar- stöðvum loftvarnaliðsins breska, eða heyrist til þeirra, í hlust- unartæki loftvarnastöðvanna. Hinar bresku flugvélar eiga að gera alt, sem í þeirra valdi stendur til þess að hrekja innrásarflugherinn á flótta, og verða notuð kastljós og loftvarnabyssur við æfingar þessar. Nýr landstjóri í spænska Marokkó. - London, í morgun. Frá Burgos er símað, að þar hafi verið tilkynt opinberlega, að Charlos Asensio herforingi hafi verið skipaður landstjóri í spænska Marokko. KiMiiíð Oríniieyjinga. Grimseyingar liafa undanfar- in 4 ár unnið að bryggjugerð við eyna, því að mesta tálmun- in á samgöngum milli eyjarinn- ar og lands, liefir verið skortur á brvggju, er þyldi brimið, sem þar er oft, og vélbátar gæti lagst við. Sumarið 1935 var bryggju- smíði hafin og þá smiðaður 19 m. langur og 6 m. breiður stúf- ur, sem smáhátar geta lagst við í flóði. Árið 1937 og 1938 voru veitt- ar samtals 3800 kr. á fjárlögum til áframhaldandi hryggju- smíðis og var unnið fyrir það fé i júní og júlí í sumar. Er lengd hins nýja hluta 16.8 m., en hreidd hin sama og áður, 6 m. Er þá bryggjan orðin alls 35.8 m. og dýpt við hausinn 10 fet i háflóði, svo að meðalstór- ir hátar eiga hægt með að leggj- ast að henni. Teikning og áætlun var gerð hér á vitamálaskrifstofunni og Jón Dagsson, héðan úr Reykja- vík, var verkstjóri við bryggju- gerðina i snmar. Allan annan vinnukraft lögðu eyjarskeggjar sjálfir fram. —o— í Grímsey hefir jafnan verið fremur erfitt um vatn. Eru þar að vísu brunnar, en þegar mikl- ir þurkar ganga á sUínrum eða langvarandi frosthörkur á vetr- um, ]íorna þeir allir. Taka veiði- skip oft vatn i Grímsey, en þeg- ar það þrýtur verða þau að sækja það til „meginlandsins“. Á sumum bæjunum á eynni er þó að eins safnað rigningar- vatni til allrar notkunar. Þó er á eynni tjörn, sem aldrei þornar með öllu og telja Gríms- eyingar, að ef vatn væri leitt frá henni, myndi það nægja fyrir alla bæina. Er þetta nú eitt mesta áhugamál Grímsey- inga. Hestamannafélagið Fákur efnir til skemtiferÖar næstkom- andi sunnudag. VerÖur lagt af staÖ kl. io árdegis frá íshúsinii viÖ Frí- kirkjuna. — FormaÖur félagsins, Björn Gunnlaugsson, Grettisgötu 75, gefur nánari upplýsingar um förina. Czaky utanríkismálaráðherra Ungverjalands og von Ribben- trop ræðast við í Salzburg og mun Horthy ríkisstjórnandi ef til vill einnig taka þátt í þeim víðræðum. Ætla margir, að við- ræður þeirra fjalli um hemað- arlega afstöðu Ungverjaalnds til Stór-Þýskalands. — Nokkura athygli vekur, að ítalski sendi- herrann í Rómaborg átt í gær viðtal við Daladier. Halifax lá- varður er aftur farinn á fugla- veiðar á Yorkshireheiðum, en hann og Chamberlain eru vænt- anlegir til London eftir helgina. ■ I : 16É Síldarmjöl var stærsti liðurinn í útflutn- ingi landsmanna í júlí s.l. — alls 5.218.5 smál. fyrir kr. 1.512.630. Á tímabilinu jan.— júlí nam síldarmjölsútflutning- urinn 8375.7 smál. fyrir kr. 2.181.070, en á sama tíma í fyrra 2961.3 smál. fyrir 610.360 krónur. FLOTAÆFINGAR BRETA. Mestu hex-æfingar, sem nokkuru sinni hafa fx-am farið, standa nú yfir i Bretlandi, og verður ekki lokið fyrr en í baust. Hópflug breska flughersins til Frakklands og loftvai'naæfingarnar um dag- inn eru alt hluti af þessum miklu lieræfingum. Laixdliei'inn er nú að æfingum og verður við þær fram i septemhei'lok, en um 140 lierskip éru að æfingum við strendur Englands, aðallega í Norð- ui-sjó. Vafalaust er þelta alt gerl nxeð lxliðsjón af því, að draga úr líkunum fyrir því, að nokkur þjóð áræði að stofna til árásarstyrjaldár. Vert er að athuga, að Tyrkir og Rúmenar, bandamenn Brela, hafa einnig miklar heræfingar um þessar mundir, en Pólverjar hafa mikinn her undir vopnum. — Myndin er af enskum varaliðsmönnum á leið til skipa sinna i Weymouth, en þar safn- aðist breski flotinn saman áður en lagt var af slað til flotaæfinganna, og fór þar fram liðskönnun, sem Geox-g VI. konungur framkvæmdi sjálfur. —

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.