Vísir


Vísir - 01.09.1939, Qupperneq 3

Vísir - 01.09.1939, Qupperneq 3
Föstudaginn 1. september 1939. VlSIR 3 KNUTUR ARNGRIMSSON: DDBLIN. Fríiuihald af ferda- insiímiss;nm. Við vorum nýkomin til Du- j blin þegar eg lét þráðinn niður | falla siðast. Og aðkoman þar var að ýmsu leyti skemtileg. Við höfðum ekkert af þeirri örygg- iStilfinningu að segja, sem er því samfara að eiga einhvern kunnugan fyrir að liitta. Hér urðuni við sjálf að fikra okkur áfram, komin fyrirvaralaust til horgar, sem telur 468 þús. íbúa, þ. e. a. s. heldur fleira fólk en fjórum sinnum alla íslendinga. Og til að gera þetta enn þá skemtilegra, liöfðu atvikin hag- að þvi svo til, að við höfðum verið að velkjast á ánni Mersey og írlandshafi alla undangengna nótt við skilyrði, sem ekki gáfu svefnfrið. Og eg tel rétt að taka það fram, að okkur fanst engin ástæða til að vera neitt stúrin yfir jiessu, því það er alkunn reynsla, að menn fá varanlegri kynningu af borg, ef jieir verða að komast þar í fyrstu áfram án lijálpar kunnugra, lieldur en verða myndi, ef þeir létu fylgja sér alt, sem þeir fara, og leið- beina sér um smátt sem stórt. Munurinn er likur og verða myndi við tungumálaniám á því að láta kennarann þýða fyrir sig lexiuna og hinu að brjótast í gegnum hana sjálfur með orða- hók og öðrum viðeigandi hjálp- argögnum. Síðari aðferðin gef- ur varanlega þekkingu. Sú fvrri svíkur, þegar frá liður. Og Dublin var mjög spenn- andi lexía, einmitt með því að brjótast í gegnum bana með þessu móti. En hvað myndi nú koma manni í orðabókarstað gagnvart svona lexíu? Á Þýska- landi hafði maður hér áður fyrr fengið sér ferðabækur,Griebens, þar sem kort eru yfir borgirnar og leiðbeiningar um liið helsla, sem í hverri borg er að sjá. Við höfðum þannig dottið, ef það orð mætti nota, inn i nýjar og nýjar borgir og bæi, og altaf getað klórað okkur fram úr þeim með Griebens góðu hjálp, sem einnig liafði þann kost að ná nógu stutt, svo altaf væri eilthvað handa manni sjálfum að uppgötva og setja í rétt sam- bönd. En Griebens yfir Dublin eða Irland yfirleitt höfðum við ekki kært okkur um að eiga. Við vildum fá í hendur þá leið- arvísa, sem írar myndu sjálfir hafa ritað um sitt. eigið land. Og það tókst. í fyrstu bókabúð, sem við komum að þarna um morguninn, var á boðstólum ódýr cn fajög myndarlegur pési um horgina, og ;áfast við hann sæmilega greinilegt kort. Með þessi gögn í höildum réðumst við svo á verkefnið. En livað er svo Dublin? Fyrst og fremst er liún höfuðborg liins Unga Eire. Hún varð að- setur innlendrar stjórnar, þegar írska fríríkið var stofnað 1922, og enn meiri höfuðborg eftir lögleiðing nýju stjórnarskrár- innaí 29. des. 1937, þegar írland varð fullvalda ríki, lýðveldi með þjóðkjörnum forséta. 1 norðvesturjaðri borgarinnar er stór og fagur skrúðgarður, liinn svonefndi Phænix Park, með risavöxnum kastaniutrjám, angandi, ótallitum blómabeðum og" grasflötum og leikvöllum af ýmsu tægi, þar sem fjöldi fólks úr borginni liefst við í tóm- stundum sínum við að iðlca íþróttir eða aðeins að ganga sér til liressingar. Þar stendur lítil og fremur látlaus höll, sem áð- ur fyrr var bústaður jarla Breta- konungs á Irlandi. Nú býr þar aldraður, gæðalegur maður Dr. Douglas Hyde, fyrsti forseti írska lýðveldisins. Uaclitaran na liEireann (með íslenskum fram- burði hér um bil: úktoron na heironn) er hans írski embætt- istitill, sem eg set hér þeirra vegna, sem liafa gaman af að iæra ]kí ekki séu nema tvö eða þrjú orð í írsku. Sunnan við ána Liffey, sem skiftir borginni i tvent, er Leinster-húsið svonefnda, þar sem þjóðþingið lcemur saman. Hið irska heiti þess er Oir- eachtas. Efri deildin, Seanad Eireann, er skipuð 63 fulltrú- um. Neðri deildina, sem þeir nefna Dail Eireann (frb. dojl eirann) skipa 138 fulltrúar. Við Merrion Square er svo mikil og vegleg bygging, sem er eins- konar stjórnarráðshús þeirra Iranna. Þar situr forsætisráð- herra þeirra De Valera, sem mun vera nefndur hér oftast allra íra, vegna stórbrotins stjórnmálaferils síns og bar- áltu fyrir fullu sjálfstæði lands sins. I daglegu tali nefnir al- menningur liann bara Dev, en heiðursnafn hans er Taoiseacli (frb. þísjakt, eða eitthvað í þá áttina). En Dublin er líka aðalmenta- ból landsins. I sama borgarliluta og áðurnefnd hús, er bygging ein vegleg og stór, sem var lok- ið við að reisa skömmu eftir striðið. Það er University Coll- ege, þar sem Dr. Douglas Hyde var prófessor i írskum fræðum mörg ár, og þar kendi einnig Thomas Mac Donagli, sem stóð í broddi fylkingar í írsku .upp- reisninni árið 1916. Þar fer mest af kenslunni fram á írsku. En eldri miklu og frægari er þó annar háskóli þarna i borg- inni, Trinity College, sem stofn- aður var 1591. Þar stunda yfir þúsund stúdentar nám í hinum fjölbreyttustu greinum. Og þessi mentastofnun lirósar sér af því að þar hafi starfað sem kennarar eða nemendur á liðnum öldum fleiri framúr- skarandi menn en í nokkrum öðrum liáskóla, og er þar mikið sagt, að svo miklu leyti, sem slíka umsögn má talca alvarlega. því erfitt e’r að vigta vit. En þarna voru Edmund Burke, Jonathan Swift, Oliver Gold- smith og Thomas Moore. Þarna voru líka William Rowan Ham- ilton, George Francis Fitzger- ald og William Stokes, svo nefnd séu að eins örfá fræg nöfn af öllum þeim aragrúa, sem gert hafa þennan garð frægan. Háskólinn er í heilli j hvirfingu af byggingum um j fallegan trjá- og blómagarð, og veit framhlið aðalbyggingar- innar lil að torgi, þar sem þrjár fjölfarnar götur mætast. Þar stendur mikil myndasytta af Henry Grattan, sem barðist á síðustu tugum 18. aldar manna ákafast fyrir írskum málstað, og vísl raunar alla líð til æviloka 1820. Þá er margt af eftirtektar- verðum söfnum í Dublin. Mesta atliygli mína vakti þjóðminja- safnið. Er það nú aldar gamalt einmitt á yfirstandandi ári, og hefir milda og rúmgóða bygg- ingu til umráða. Um þetta safn hefir verið sagl, að það „sýndi á sérstaklega ljósan liátt þróun menningar frá steinöld fram á þennan dag, og að þrátt fyrir landfræðilega afstöðu sína til annara landa hafi írland aldrei verið einangrað. Það liefir altaf tekið á móti menningarstraum- unum, er flæddu vfir Evrópu og oft lagt sinn skerf til þeirra“. Yið dyr safnsins stendur stór steinn, sem manni verður fljótt starsýnt á. Hann fanst i Wick- lowhæðunum suður af Dublin, og er hnullungur mesti í laginu, en á slcáhöllum fleti ofan á lion- um er eftirtektarverð teikning. Það er grunnflötur af völundar- liúsi, eins og því, er stóð i forn- öld á eyjunni Krit, og hafa ýms- ir viljað álylcta af þessum fundi, að viðskifti liafi átt sér stað milli Krítverja og þeirrar þjóð- ar, er bygði írland, áður en Kelt- ar lögðu það undir sig. Þarna er líka sýnt bæði mun- ir og mót, er gefa hugmyndir um háborgina miklu er stóð í grárri fyrnsku á Tara-hæð norð- ur af Dublin. Hafa menn það fyrir satt, að þar liafi verið höfuðborg og lconungsetur, áð- ur en Róm var reist og áður en Keltar fluttu járnið til Irlands. Hafa menn þar og víðar fundið gullmuni frá bronzeöld, þegar ibúar írlands grófu eftir gulli í Wicklowhæðum og skiftu á þvi og tini við þá, sem bjuggu á Cornwallskaganum á Englandi. — Þarna er lika 52 feta langur bátur, gerður með þeim liætti, að liolaður var innan trjástofn og tálgaður mjórri í báða enda. Hefir hann geymst ófúinn i mýraleir að sínu leyti eins og vikingaskipin frægu, sem geymd eru á Bygdö í Oslo, og eg einnig sá á þessu sumri. Þarna er þá ekki síður merkileg klukka sú, er Ulster- annálar segja, að legið liafi í gröf heilags Patreks, þjóðar- dýrlings Ira, sem Patreksfjörð- ur hér á landi er kendur við. Er hún ellileg mjög sem vænta má, en um liana þarf eg síðar að verða langorðari, en við verður komið í þessum þætti. — Það er annars einkennilega litskrúðug leið, sem maður gengur þarna á safninu,frá þess- um eldfornu minjagripum nið- ur eftir öldunum, þangað til komið er í sérstakan sal sem er helgaður minningu áranna 1916—21, borgarastyrjöldunum sem þá geysuðu á Irlandi og þá einkum minningu vissra manna, sem gátu sér þá orðs- tír. Þar eru myndir, sendibréf, dagblöð, klæði og vopn, sem hvað á sinn hátt varpa ljósi yfir viðburði þessara ára. — Menn muna ef til vill hér eftir borgarstjóranum i Cork, sem svelti sig í hel í mótmælaskyni við aðgerðir Englendinga. Svo mikla athygli vakti sá viðburð- ur um heim allan, að afdala- bændur á íslandi biðu með ó- þreyju næstu blaða til þess að fá að vita, hvað úr þessu yrði með borgarstjórann í Cork. Það var nú heldur ekki að furða, því frá 12. ágúst til 25. október árið 1920 — samfleytt 74 daga sat hann í Brixton- fangelsi og bragðaði hvorki vott Nkilg;eíiii liörn Hin eðlilega fjölgun fólks hér á landi, fæddir umfram dána, hefir aukist. Bæði dauðsföllum og barnsfæðingum hefir fækkað að tiltölu, en dánartalan hefir þó lækkað meir en fæðingar- talan. Á árunum 1896—1905 nam fæðingartalan (lifandi fæddir af bverjum 1000 manns) 29.0%o: en dánartalan (dánir af liverju 1000) 17.1%c. Samsvarandi töl- ur 1931—35 voru 23,5%, og 11.1 %.£?. Lifandi fæddir umfram dána voru því af hverju 1000 íbúanna: 11.9 1896—1905 en 12.4 1931—35. Síðan um alda- mót liefir fæðingatalan m. ö. o. lækkað um % en dánartalan um rúml. %. Viðkoman í land- inu, eða liin eðlilega fjölgun íbúanna, var þar af leiðandi töluvert meiri 1931—35, en bún hafði verið um aldamót. • Það hefir vakið mikla athygli hve mjög fæðingum óskilget- inna barna liefir fjölgað að til- tölu hin siðari ár, eða í hlutfalli við fæðingu skilgetinna barna. Iiafa raddir lieyrst um það, að hin vaxandi tala barnsfæðinga utan hjónabands muni fyrst og fremst stafa af erfiðleikum fóllts á stofnun hjúskapar. En sú ályktun getur naumast verið rétt, þar sem eldd verður séð, að hjúskaparstofnunum hafi fækkað til neinna muna. Þær voru t. d. eins margar að til- tölu á ári 1931—35 og þær böfðu verið að meðaltali árlega síðastliðin 30 ár. Á árunum 1911—15 nam fæðingartala lifandi fæddra, skilgetinna barna 22.9%0 en ó- skilgetinna barna 3.5 %c. Sam- svarandi tölur fyrir 1931—35 voru 19.2%0 og 4.3%c. Á móti hverjum 100 börnum skilgetn- um fæddust 1911—15 um 15 ó- skilgetin en 23 1931—35. Árið 1935 var tala óskilgetnu barn- anna 25 á móti hverju 100 skil- getinna barna, eða 1 á móti 4. Fimmta hvert barn sem fædd- ist liér á landi 1935 var með ö. o. óskilgetið, eða fælt utan hjónabands. Hlutfallið á milli skilgetinna og óskilgetinna barna er allmis- munandi eftir bygðaháttum landsins. Óskilgetnu börnin eru fleiri að tiltölu í bæjum en sveitum, en þau eru færri í Reykjavík en öðrum kaupstöð- um. Á árunum 1931—35 fædd- ust óskilgelin börn á móti hverju 100 skilgetinna barna: I Reykjavík 24.4, öðrum kaup- stöðum 28.6, en í sýslunum 19.5. • Hér að framan liefir komið í ljós, að fæðingatala óskilget- inna barna liafði beinlinis bældcað á sama tíma og fæðing- artala skilgetinna barna hafði lækkað til mikilla muna. Vitað mál er, að barnsfæðingum inn- an hjónabands hefir fækkað vegna þess, að þær eru nú með ráðnum hug takmarkaðar. Lægi mest að ætla, að það sama gæti gilt um barnsfæðingar utan hjónabands. né þurt. — Þarna er mynd gerð eftir vaxmóti af andliti hans látins og fleira til minningar um hann. * Hann bét Terene Mac Swiney — og er eg sneri frá mynd hans ómaði aftur og aftur í huga mér ]>essi setning: Sæl er sú þjóð, sem eignast píslarvolta, þegar Iieill hennar er í veði. «g* €l«kilg*e^ iai Fjölgun barnsfæðinga utan bjónabands gæti og stafað af því, að færst liefði í vöxt að fólk byggi samvistum án þess að stofna til hjúskapar, og þau börn er fæddust í slíkri sam- búð bæri raunverulega að telj- ast til hjónabandsbarna, er rétt- ur samanburður ætti að fást við fyrri tíma. Áður befir verið sýnt fram á, að tala bjónavigslnanna lielst nær alveg óbreytt miðað við íbúatöluna. Þeim hefði átt að fækka vegna misræmisins sem skajiast hefir í hlutfallinu á milli kynjanna í bæjum og sveitum. Hinsvegar virðist breyting heimilisfélaganna, sú breyting, að heimilin takmark- ast nú nær eingöngu af fjöl- skyldunni gagnstætt því, sem áður var, að miða að fjölgun hjúskapar- eða að minsta kosti heimila-stofnana. Það er staðreynd, að hjú- skaparstofnununum hefir ekki fjölgað, en þar með er ekki ságt, að sama gildi uin heim- ilastofnanir. En þá ætti að hafa færst í vöxt, að fólk lifði sam- vistum, án þess að stofna til hjúskapar. Virðist auðvelt að sanna með tölum að svo muni vera. • I manntalsskýrslum eru ráðs- konur eða bústýrur taldar með heimilishjúum. Á síðustu ára- lugum hefir lieimilishjúum fæklcað, þ. e. a. s. öðrum en ráðskonum. Þeim hefir aftur á móti fjölgað mjög rnikið. Frá 1920 til 1930 tvöfaldaðist tala þeirra á öllu landinu. Hún fer- faldaðist í kaupstöðum utan Reykjavíkur, þrefaldaðist í verslunarstöðunum, en liækkaði um 140% hér í Revkjavik. Ráðskonunum hefir þannig fjölgað mest i kaupstöðum öðr- um en Reykjavik og verslunar- stöðunum, eins og barnsfæðing- um utan hjónabands. Það gefur til kvnna að á milli Jsessa tveims sé nokkurt samband, hið síðara þá afleiðing hins fyrra. Af þvi virðist ennfremur mega ráða, að algengara sé nú en áður, að stofnuð séu heimili án þess að jafnframt sé um lijúskaparstofnun að ræða. Tala hjónavígslna verður þar með ekki réttur mælikvarði á stofn- un heimila. Heimilastofnunum ælti þá að hafa fjölgað, miðað við íbúatöluna, frá þvi sem áður var, eins og líka má vænta af breytingu heimilisfélaganna. Þessi venjubreyting, að al- gengara virðist nú en áður að fólk lifi samvistum án þess að ; ganga i hjónaband, þarf ekki að ! vera, og er sjálfsagt heldur ekki, eina skýringin á röskun hlut- fallsins milli fæðingartölu skil- I getinna og óskilgelinna barna. Getur þar margt annað komið til greina, eins og t. d. breyttir uppeldishættir, breytt félags- og samkvæmislíf, breyttur hugs- unarháttur, breytt ahnennings- álit o. s. frv. • Fækkun barnsíæðinganna liér á landi þarf enn ekki að vekja áhygggjur lijá hinni íslensku þjóð, eða ekki á meðan að dauðsföllunum fælckar enn þá meir, og fólksfjölgunin e>rkst. En þó er að því gáandi, að um leið og barnsfæðingum og dauðsföllum fækkar samhliða, brevtist aldurskifting þjóðar- innar. Aldursflokka aldraðs og gamals fólks gætir smámsaman meir og meir í íbúatölunni en áður, en meðal þeirra aldurs- flokka er dánartalan eðlilega til- tölulega mjög há. Sá tími nálg- ast þvi smátt og smátt, að lieild- ardánartalan getur ekki lækkað meir, heldur stígur sennilega aftur, þótt heilbrigðishættimir séu óbreyttir eða fari jafnvel batnandi. í haust verða birgðir Banda- ríkjatnanna af baðinull, sem ekki finst markaður fyrir, 14 miljónir balla. Það verður þvi nóg baðmull fyrir hendi handa öllum til þess að troða í eyrun, þegar kosningabaráttan undir forsetakjörið byrjar. , (New Yorker). DRENGURINN MEÐ RÓFUNA. Þessi drengur, Jang Kirshnan, frá Borneo, hefir 6 þml. langa rófu. Myndin er tekin við kom- una til Los Angelos, er snáðinn var á leið til Heimssýningarinn- ar i New York. ÍK BOSICw OG BÆ.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.