Vísir - 01.12.1939, Síða 3
vrsitt
PnlínalilíoVióHri UriMTlAIIAP follnv> nirin II v©gna atbnrðanna í
f ullVululSuðllU OIjIIuUiiLiiiiii iuiiur ulUU 1 Fioulaudi.
Gamla Bfó
Dansandi
stjörnur.
Söng- og danssýningar-
mynd er vakti mikla
hrifningu er hún var
sýnd i Danmörku, því
hinn frægi Ballett Kon-
unglega leikhússins
leikur i myndinni.
Hinn ungi Reykvíkingur
Lárus Pálsson
leikur ennfremur eitt aðalhlutverk myndarinnar,
og er það fyrsta kvikmyndahlutverk hans. —
Aðrir leikarar eru Ebbe Rode — Aage Fönss —
Bodil Kjær — Beatrice Bonnesen o. fl.
Danssýningarnar eru teknar í sjálfu Konunglega
Ieikhúsinu, og aðalhlutverkin hafa Ulla Poulsen —
Margot Lander og Leif Örnberg.
Myndin sýnd í dag kl. 5, 7 og 9.
Aðstoðarlæknisstaða
II. aðstoðarlæknisstaða við handlæknisdeild
Landspítalans er laus frá 1. jan. 1940. Staðan
er til 1 árs. Laun kr. 300 á mánuði.
Umsóknir sendist til Stjórnarnefndar rikis-
spítalanna, Arnarhváli fyrir 30. des. n. k.
Reykjavik, 30. nóv. 1939.
STJÓRNARNEFND RlKISSPÍTALANNA.
HIJSMÆÐUR!
IttJOLKII IIEFIR EKKI
II EEiIÍ IO I VEROI.
^KVHVERÐIÐ ©r ©iimig
obreyK. ogr ©ftirlltismiiðurliiu
m©ð vörum vorum segir það
iiii vera in©ð allra besta móti.
MJÓLKUBSAMSALAN.
Lítið í glugga Sýningarskálans
Austurstræti 20 í dag og næstu daga. — Sýning á emailleruð-
um skiltum o. fl. frá vinnustofu okkar.
Ósvaldur Knudsen, Daniel Þorsteinsson
EMAILLERING — HELLUSUNDI 6.
St. Víkingur nr. 104
30 ára
í dag er st. Vikingur nr. 104
35 ára gömul.
Hún er stofnuð af sjómönn-
um, einkum hásetum þilskipa-
flotans.
Um síðustu aldamót voru hér
á verstöðvunum umliverfis
Faxaflóa, starfandi samtök sjó-
manna, hin svonefndu Dárufé-
lög, stofnuð árið 1894.
Þá var engin bindindisöld í
landi. A fulltrúaþingi Bárufé-
laganna árið 1904 kom Sigurð-
ur Eiríksson, regluhoði, sá mað-
ur sem drýgstan þátt hefir átt í
því að útbreiða Góðtemlara-
regluna hér á landi, með þá til-
lögu í samráði við hina mæt-
uslu menn þessara samtaka, að
reynt yrði að stofna stúku með-
al sjómanna, og ef ])að tækist,
að hún þá fengi aðsetur í Báru-
húsinu (nú K. R. húsið).
Sjómenska var þá með noltk-
úð öðrum hætti en nú, „úthöld“
löng og landlegur langar á
milli. Vildi það þá oft henda,
að hásetar færu illa með hlut
þann er ]>eii' á torsóttri og erf-
iðri ferð höfðu með súrum
sveita aflað sér. Kom það þá oft
fyrir að mestur hluti „Iiýrunn-
ar“ hafnaði á áfengissvínastí-
um bæjarins, í stað þess að
ganga til framfærslu fjölskyld-
unni. Verkefnið var því ærið
nóg fyrir stúku til að starfa að,
ef stofnuð yrði.
Tillögu Sigurðar var vel tek-
ið og hún samþykt. Uóf hann
síðan Undirbúning að stúku-
stofnun, með þátttakendasöfn-
un; sóttist lionum vel verkið,
en fékk þvi ekki lokið vegna
ferðalags. En við frekari undir-
húningi tólai þeir Þorsteinn Eg-
ilsson, Ottó Þorláksson, Helgi
Björnsson o. fl. áhugamenn um
þetta mál.
1. des. var svo ákveðið að
boða til fundar og stofna slúk-
una, höfðu ]iá rúmlega 70
manns ritað iá stofijendalista. Á
fundi þessum, sem öllum var
heimill og haldinn var í Báru-
húsinu niðri og var mjög fjöl-
sóttur, mættu þeir Þ. J. Thor-
oddsen þáverndi S. T. og séra
Ólafur Ólafsson hinn mikli eld-
móðsræðumaður og skörungur
jafnt utan sem innan kirkju.
Flutti liann þar eina af sínum
áhrifaríku og gneistandi bind-
indisræðum. Sýndi fram á hver
vágestur áfengið er, og ekki
livað síst sjómannastéttinni,
sem heyir hina hörðu baráttu
við „særok, brimgný og trylta
vinda“ og „úthafsins voldugu
stórsjóa“ og einmitt liver nauð-
syn þeim mönnum, sem í slíkri
baráttu eiga við sjálfar höfuð-
skepnurnar væri á að vera laus-
ir við hin deyfandi og lamandi
áhrif áfengisnautnarinnar.
*
EINAR B.TÖRNSSON.
Á þessum fundi var svo st.
Víkingur stofnuð, og varð sú
104. innan Góðtemplararegl-
unnar á íslandi með tæpum 100
félögum.
Séra Ólafur gerðist félagi
stúkunnar og varð um langt
skeið hennar liöfuðprestur.
Fyrsti Æt. Víkings var Þor-
steinn Egilsson, en mælt var
með Jóni Jónssyni sem U.st.
En nú 35 árum síðar sitja í
þessum sömu embættum stúk-
unnar, þeir Jóh. Ögm. Oddsson
stórritari í Stórstúlcu tslands,
sem æ.t., en Jón Guðnason fisk-
sali, sem U.st., en hann er
stofnandi stúfeunnar og hefir
fylgt henni óslitið fram á þenn-
an dag.
Stofnun St. Víkings var
merkur viðburður fyrir G. T.
regluna og bindindismálið í
lieild, því þá einmitt nær Regl-
an fyrst til sjómannastéttarinn-
ar alment með boðskap sinn.
St. Víkingur bóf starf sitt
fyrir bindindismálið af alefli og
alúð, enda þegar sldpuð góðu
og starfsliæfu fólki, sem leit á
bindindisstarfið sem þjóðar-
nauðsyn, sem bæri að starfa að
með festu og alvöru.
ú ss g ö g n.
: 1
Notið tækifærið til húsgfagnakaupa
áður en verðið stígur ennþá meira.
Höfum fyrirliggjandi nokkrar birgð-
ir af tilbúnum húsgögnum.
(Smíðum eftir pöntunum).
Hjálmar Ihu^Hmiikkoii C«.
Klapparstíg 28.
Sími 1956.
JÓII. ÖGM. ODDSSON
núverandi æ.t. stúkunnar.
í febrúar-byrjun 1905 stofn-
ar Víkingur barnastúkuna
„Unnur‘‘ ásamt St. Bifröst, sem
litlu síðar lét af verndarstúku-
starfi og liefir Víkingur einn
annast það siðan. Lengst hefir
Magnús V. Jóhannesson fram-
færslufulltrúi gegnt gæslu-
mannsstörfum í b.st. þessari eða
um 25 ár samfleytt.
Þess er auðvitað enginn kost-
urað rekja starfs- og þróunar-
sögu eins félags yfir 35 ára
tímabil, svo að nokkuru nemi,
í stuttri blaðagrein, enda um
starfsemi st. Víkings í bindind-
isbaráttunni þau ár, sem liðin
eru, svipað að segja og um
starf annara stúkna.
Með fundahöldum, fyrir-
léstrumog fræðslu hefir látlaust
verið að því unnið að opna augu
manna fyrir böli áfengisneysl-
unnar, og með persónulegum
viðtölum að fá menn til að
Nýja Bi6
Maðurinn minn.
Amerisk kvikmynd frá
Fox, sem talin er í fremstu
röð ameiískra músik-
mynda.
Aðalhlutverkin leika:
AUCE FAYE,
TYRÓNE POWER
og lang frægasti jazz-
söngvari Ameríku:
A L. JOLSON,
er hér syngur hið fræga
lag: Maminy og fl. —- 1
myndinni eru leikin og
sungin yfir 20 lirífandi tiskulög og þolir myndin fyllilega
samanburð við hina frægu músikmynd: Alexander’s Rag-
time Band. — Mynd þessi er nýkomin á markaðinn og er
enn sýnd við mikla aðsókn á helstu kvikmyndaleikhúsum
heimsborganna. ---
naManamn SÝND KL. 7 OG 0. m^^mmmmmmmmm
Sölumaðurinn sikáti
hin bráðskemtilega mynd, leikin af skopleikaranum JOE
E. BROWN, — sýnd kl. 5. — (Lækkað verð).
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 1.
JÓN GUÐNASON
núverandi u. st.
scgja skilið við Bakkus og alt
hans fylgilið, með ferðalögum
ti! útbreiðslu bindindis og með
beinum fjiárframlögum til
Reglumiar í heild.
í þau 35 ár sem liðin eru
munu félagar Víkings vera
liúnir að leggja fram i félags-
gjöldum, styrkjum og gjöfum
milli 30—10 þús. lcr. sem öllu
hefir verið.varið til bindindis-
"stavfsemi á einn eða annan
liátt.
Svipaða sögu hafa aðrar
stúkur að segja i þessum efn-
um. Af því má marka, að það
er ekki lítið fé, sem félagar
Reglunnar í heild liafa lagt
fram til bindindisstarfa í land-
inu i þau 55 ár sem Reglan hef-
ir starfað hér á landi.
Eins og að likum lætur var
það auðvitað bindindismálið
sem skipaði æðsta sess í öllum
störfum stúkunnar.
En auk þess lét st. Víkingur
ýms önnur mál til sín taka, og
má þar til nefna stofnun Dýra-
verndunarfélags íslands, sem
St. Víkingur gekst fyrir með að-
stoð annara stúkna að hrint
vrði af stað. Dýraverndunarfé-
lagið, sem enn lifir og starfar
vel, hefir unnið mikið og gott
þjóðnytjastarf, og opnað augu
alþjóðar fyrir því að ill meðferð
á dýrum er til háðungar og
verðskuldar fyrirlitningu allra
góðra drengja.
Þegar Eimskipafélagið var
stofnað eggjaði stúkan félaga
sína til hlutabréfakaupa og
keypti sjálf hlutabréf. Fleira
mætti fram telja, en sleppa skal
því rúmsins vegna.
Á fundum stúkunnar var
margt rætt, auk bindindismáls-
ins, dægurmál ýms og menn-
ingarmál, er uppi voru með
þjóðinni á hverjum tíma, fyrir-
lestrar fluttir um þjóðleg fræði
og erlend efni o, s. frv.
I í 35 ár hefir st. Víkingur nr.
104 unnið að því ásarnt öðrum
(stúkum, að bindindissöm þjóð
ibvgði þetta fagra land.
i Þegar forgöngumenn þessar-
ar stúku, íiinir fátæku fiski-
menn hins reykvíska þilskipa-
flota, hofu baráttu sína undír
merki alþjóðareglu Góðtempl-
ara, gegn hörmungum og úr-
kynjun áféngisneyslunnar, var
engin bindindisöld í landi, og
35 ái'um síðar, er þvi miður Iífet
ástatt. Ölæði og áfengisnautn
landslyðsins svo úr Iiófi keyr-
andi, að allir hugsandi skelfast
við. En hverí er þá orðið okkar
starí ? — Góðtemplarareglunni
tókst um tima að þurka landið
°g fyrra þjóðina/ hinu þung-
bæra böli áfengisneyslunnar,.
en því miður, þjóðin har ekki
gæfu til þess að lialda láfram á
þeirri braut sera Reglan hafði
markað henni og vísað Iienni á
í þessu máli, en út í það skal
ekki frekar farið liér.
En framundan er nú ný bar-
átta, sem vai l mun létlari eða
auðsóffari en sú fyrri. Liggur
mikið við, að enginn bregðist
já, heill og hamingjá sjálfrar
þjóðarinnar, enginn skyldi unna
sér hvíldar, þeim sem ekki er
sama uni manndoni’ og meim^
ingu þjóðarinnar, fyr en áfeng-
ið með drykkjusiðina, er uppi-
stöðu og eymd og auðnuleysi
einstaklinganna, sem ívaf er út-
lægt gert úr íslensku þjóðlífi.
Megi st. Víkingur nr. 104
standa framarla í því menning-
arstarfi og sýna í nútíð engu
minni dug og alypru í störfum,
en forgöngumenn og braut-
ryðjendur stúkunnar sýndu í
fortið.
Einar Björnsson.
Duglegur mnheimtumaður
getur fengið atvinnu nú þeg-
ar. — Tilboð sendist til af-
greiðslunnar fyrir mánudags-
kvöld, merkt: „Duglegur“.