Vísir - 13.12.1939, Side 2
visih
VfSlR
OAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F.
Ritstjóri: Kristján Guölaugsson
Skrifst.: Félagsprentsmiðjunni.
Afgreiðsla: Hveifisgötu 12
(Gengið inn frá Ingólfsstræti)
Símar: 2834, 3400, 4578 og 5377.
Verð kr. 2.50 á mánuði.
Lausasala 10 og 20 aurar.
Félagsprenlsmiðjan h/f.
Furðulegt
ósamræmi.
J»AU tíöindi gerðust í Efri
deáld Alþingis í gær, er
frumvarp dómsmálaráðherra
um ríkislögreglu var afgreitt til
þriðju umræðu, að socialistarn-
ir í deildinni greiddu atkvæði
gegn frumvarpinu ásamt
kommúnistunum, og gengu
þannig beint gegn gefnum yf-
irlýsingum í blaði flokksins. Er
frumvarpið var lagt fram á Al-
þingi komst blaðið m. a. svo
að orði: „Út af þessu frum-
varpi dómsmálaráðberrans
hafa kommúnistar bæði í
blaði sínu og á Alþingi rekið
upp milcið ramavein, og mun
engum lcoma það á óvart um
flokk, sem vinnur markvist að
því að undirbúa lilóðug bræðra-
víg og byltingu hér á landi, boð-
ar götuvígi i Reykjavík i lok
styrjaldarinnar og brýtur lands-
lög og beitir ofbeldi við aðra
flokka hvar og bvenær, sem
hann scr sér færi á þvi, eins og
í Hafnarfirði síðastliðinn vetur.
Það er vel skiljanlegt, að slikur
flokkur vilji ekki, að ríkisvald-
ið geti lialdið uppi lögum og
reglu i landinu né varið menn
fyrir ofbeldi hans.“
í þessari sömu grein Alþýðu-
blaðsins er þess ennfremur get-
ið, að sinnaskifti Alþýðuflokks-
ins í ríkislögreglumálinu stafi
af því, að réttarstaða verka-
lýðsfélaganna sé nú öll önnur
en áður var, enda hafi greini-
Iegt ákvæði ve!rið tekið í lög
um það, að „lögreglunni megi
ekki beita í vinnudeilum“, og
það ákvæði standi óhaggað
þrátt fyrir frumvarp það, sem
nú er á ferðinni.
HeSrmann Jónasson dóms-
málaráðherra hefir látið undr-
un sína i ljós við hverja um-
ræðu þessa frumvarps, yfir því
að þeir menn skuli til vera í
landinu, sem standi gegn þvi að
ríkisvaldið geti haldið uppi lög-
um og rétti, svo sem vera ber.
Socialistarnir hafa með þögn-
inni viðurkent þessa nauðsyn,
og bæði Sigurjón Ólafsson og
Erlendur Þorsteinsson, sem í
gær greiddu atkvæði gegn
frumvarpinu, hafa ekki mælt
því í gegn eða rökstutt þessar
tiltektir sínar, og skyldu menn
þó ætla að þeir hefðu ekki graf-
ið álit'sitt í þögn í jafn veiga-
miklu máli, ef um hreina and-
stöðu frá þeirra hendi hefði ver-
ið að ræða.
Meiri hluti allsherjarnefndar
Ed„ þeir Sigurjón Á. Ólafsson
og Ingvar Pálmason, fluttu
nokkrar breytingartillögur við
frumvarpið, og vildu m. a.
binda framlag ríkissjóðs við 14
kostnaðar vegna liins fasta lög-
regluliðs, og ennfremur var
þeim illa við að dómsmálaráð-
lierra yrði falið að ákveða
hvaða tæki lögregluliðið skyldi
hafa til umráða, en dómsmála-
ráðherra sýndi fram á að til-
Iögur þessar væru gersamlega
þýðingarlausar. Magnús Gísla-
son, sem einnig á sæti í alls<
herjarnefnd, gat ekki fallist á
tillögur meiri hlutans, og taldi
þær frekar spilla frumvarpinu
en bæta, enda voru tillögurnar
feldar við atkvæðagreiðsluna.
Af framanrituðu er auðsætt
að Alþýðuflokkurinn hefir tek-
ið ákveðna afstöðu til ríkislög-
reglufruinvarpsins, og er fylgj-
andi framgangi þess, og verður
því það tiltæki Alþýðuflokks-
mannanna í Efri deild, að
greiða atkvæði gegn frumvarp-
inu, ekki skýrt með þeim rök-
um, ?ð þeir hafi þar farið að
flokksins vilja. Hitt er líklegra,
að með því að þeir hafa séð, að
frumvarpið yrði samþykt, hafi
þeir gripið til þessa ráðs, eink-
um af þeim sökum, að vegna
sundrungar kommúnistanna, er
ekki ólíklegt að eitthvað af
þeiin sálum, sem þaðan reika,
geti felt sig hetur við að ánetj-
ast Alþýðuflokknum, ef þing-
menn hans fara að dæmi Pila-
tusar og þvo hendur sínar í
þessu máli.
Hitt er auðsætt, að hér verð-
ur aldrei um annað en Pilatus-
arþvott að ræða, með því að
hér er svo þýðingarmikið mál
á ferðinni, að ef Alþýðuflokkur-
inn væri því andstæður, hlyti
liann að hætta stjórnarsam-
vinnu nú þegar, er auðsætt er
að málið nær fram að ganga á
Alþingi. En væri það ekki
mannlegra af fulltrúum Al-
þýðuflokksins á þingi, að taka
á sig hreina ábyrgð á afgreiðslu
þessa máls, í stað þess að hafa
í frammi slikan tvíveðrings-
hátt, sem allir hugsandi menn
hljóta að liafa andstygð á?
Hæstiréttur:
Sex mánaða fangelsi
fyrir þjófnað.
Með dómi hæstaréttar í dag
var Ólafur Magnús Einarsson
dæmdur í 6 mánaða fangelsi
við venjulegt fangaviðurværi
fyrir þjófnað.
Eru atvik málsins þau, að 19.
okt. s. 1. fór ákærði inn í húsið
Barónsslíg 19 til þess að liitta
þar mann nokkurn. Maður
þessi var ekki heima og var
herbeTgi hans læst. Fór ákærð-
ur þá upp um þakglugga og eft-
ir þakinu að glugga í lierbergi
mannsins og inn um hann.
Kveðst ákærður hafa farið inn
í herbergið til þess að bíða
komu mansins, en honum hafi
fyrst dottið í hug að stela úr
þvi er liann var kominn inn í
það. Tók Iiann því næst i her-
berginu 2 pela af brennivíni,
vindlingaveski og pípu og fór
siðan sömu leið út og liann kom
inn. Áfengið draltk hann, en
pípuna gaf hann. Héraðsdómar-
inn taldi þrátt fyrir skýrslu á-
kærða, að hann hefði farið inn
í herbergið i þeim tilgangi að
stela og dæmdi ákærða, sem oft
hefir verið dæmdur áður fyrir
þjófnað, í 6 mánaða fangelsi.
Dómur þessi var staðfestur ó-
breyttur í hæstarétti. Sækjandi
málsins var hrm. Guðmundur
Guðmundsson en verjandi hrm.
Gunnar Þorsteinsson;
Stærstu liðii út-
flutningsins í
nóvember.
Skýrsla Hagstofunnar um út-
fluttar afurðir er nú í prentun,
en Vísir getur þó birt hvaða út-
flutningsvöruflokkar voru
hæstir að verðmæti s.I. mánuð.
í mánuðinum voru fluttar út
252 þús. gærur, og nam and-
virði þeirra 2,9 milj. króna —
Voru gærurnar hæsti liðurinn í
útflutningi nóvembermánaðar.
Næst kemur ísfiskútflutning-
urinn. Hann nam 1 mánuðinum
Frá Alþingi.
Nokkur skriður hefir nú
komist á afgreiðslu þingmála,
og þar sem fjárlög eru komin
lil 3. umræðu má gera ráð fyrir
að þingi verði brátt lokið.
Breytingartillögur við 2. um-
ræðu fjárlaganna voru að þessu
sinni óvenju fáar. Fná fjárveit-
inganefnd lágu fyrir 37 tillögur,
en að eins 2 frá þingmönnum.
Hefir þcgar náðst samkomulag
um nokkurn niðurskurð á fjár-
lögum, en væntanlega verður
hann minni en þörf er á. Nokk-
ur átök urðu um breytingartil-
lögu nokkurra þm„ þess efnis,
að hafa rithöfunda og listamenn
áfram í fjárlögum. En ríkis-
stjórn og f járveitinganefnd
Iiafði lagt til, að þessir menn
skyldu teknir út úr fjárlögum og
Mentamiálaráði falið að úthluta
því fé, er þcim væri ætlað. Var
tillagan felld með 23 atkv. gegn
21.
Af öllum þeim málum er
komið hafa fram á Alþingi má
óhætt fullyrða að hinn svokall-
aði „höggormur“ veki mesta
athygli, en svo er kallað meðal
þingmanna frumvarp til laga
um nokkrar ráðstafanir vegna
styrjaldarástandsins. Frumvarp-
ið er borið fram í efri deild af
þeim fulltrúum fjárveitinga-
nefndar, er þar eiga sæti, en það
eru þeir Jónas Jónsson, Þor-
steinn Þorsteinsson og Bernharð
Stefánsson.
Enda þótt frumvarp þetta sé
óvenjulegt að formi og efni, þá
er það eigi að síður eftirtektar-
vert, þar sem með því er leitast
við , að ráða fram úr ýmsum
þeim ágöllum og erfiðleikum,
er skapast hafa af löggjöf og
stjórnarháttum síðustu ára o. fl.
Frumvarpið er all-langt í 18
greinum svo eigi er rúm til að
hirta það í heild. Að eins skal
hér geta nokkurra atriða.
Samkvæmt 1. gr. skal ríkis-
stjórnin skipa 3ja manna nefnd
til eins árs í senn til að liafa á
hendi framkvæmdir til fram-
leiðslubóta og bjargráða undir
yfirstjórn ráðherra. Nefndin
skal ráðstafa fé þvi, sem veitt
er á fjárlögum til framleiðslu-
bóta og bjargráða. Fénu skal
ráðstafa til atvinnUaukningar.
Nefndin skal ráðstafa atvinnu-
Iausm, verkfærum framfærslu-
þurfum, er sveitarstjórn hefir
eigi komið í vinnu. Heimilt er
að ráðstafa slikum mönnum til
starfs hvar sem er á Iandinu, á
lieimili, til atvinnufyrirtækja
og í vinnuflokka undir opin-
herri stjórn eða með öðrum
hætti.
Samkvæmt 2. gr. er ríkis-
stjórninni heimilt að skipa svo
fyrir, að færri megi vera skip-
stjórnarmenn og vélamenn á
íslenskum skipum en gildandi
lög um siglingar mæla fyrir.
Samkvæmt 4. gr. er óheimilt
að setja skorður við tölu iðn-
nema í nokkurri grein, nema
með samþykki rikisstjórnar-
innar.
Samkvæmt 8. gr. slcal kenslu-
miálaráðherra skipa útvarps-
stjóra. Ráðherra ræður starfs-
menn útvarpsins, að fengnum
tillögum útvarpsstjóra og út-
varpsráðs.
Samkvæmt 9. gr. er forráða-
mönnum rikisstofnana, þar með
taldir bankar, bannað að ráða
00 smál., að verðmæti 1,8
Ij. króna.
Þá lcemur saltfiskur, verkað-
og óverkaður.Af honum voru
ttar út 3400 smál. fyrir sam-
s 1,6 milj. króna.
Síldarmjöls útflutningurinn
m 3100 smál. fyrir kr. 1,1
Ij. og af sildarolíu voru flutt-
út 1200 smál. fyrir 0,7 milj.
fasta starfsmenn, nema að und-
angengnu samkepnisprófi.
Samkvæmt 13. gr. skal dag-
; legur vinnutimi á skrifstofum
| ríkisins og í ríkisfyrirtækjum
eigi vera skemri en frá kl. 9 iár-
degis til kl. 6 síðdegis, að frá-
dregnum Vá klukkutíma.
Samkvæmt 14. gr. er kenslu-
málaráðherra heimilt að stytta
hinn árlega kenslutíma í barna-
skólum landsins, ennfremur að
fjölga kenslustundum í íslensku
og auka vinnu- og íþrótta-
kenslu.
Samkvæmt 16. gr. er ríkis-
stjórninni heimilt að takmarka
fjölda þeirra slúdenta er fá inn-
göngu í Háskóla íslands iá ári
hverju.
Af þessum dæmum fá menn
séð, að frumvarpið fjallar um
hin sundurleitustu og fjarskyld-
ustu efni. og þvi eigi ólíklegt að
um það kunni að standa nokk-
ur styrr. Má því telja líklegt að
á því kunni að verða gerðar
ýmsar breytingar.
Ný stjórn
mynduð í
Svíþjóð.
Sænska samsteypustjórnin
nýja mUn verða fullmynduð á
morgun og er búist við, að Per
Albin Hanson verði forsætisráð-
herra áfram. Sandler utanríkis-
málaráðherra mun ganga úr
stjórninni. NRP.—FB.
Sex skipum sökt
undangengin dægur
I*jódverjar kátir.
Undangengin dægur hefir sex
skipum verið sökt. Eru þetta
skip hlutlausra þjóða og bresk
og hafa þau ýmist farist á tund-
urduflum eða verið skotin í kaf.
Þykir Þjóðverjum vel ganga og
eru mjög kátir. Segja þeir, að
ef svo haldi áfram, verði unt
að stöðva allar siglingar til
Bretlands og frá. — NRP—FB.
Peninsragjafir til Vetrarhj.
Frá Bergstaðastræti 50A 5 kr„
St'arfsmenn á Húsgagnaverkstæ'ði
Hjálmars Þorsteinssonar 67 kr„
Eimskipafélag Reykjavíkur (s.s.
„Hekla“ og s.s. ,,Katla“) 1000 kr„
P. L. A. 25 kr„ Starfsmenn hjá
Timburversl. Árna Jónssonar 35
kr„ Eimskipafélagið ísafold (s.s.
„EddT‘) 500 kr. — Kærar þakkir.
— F. h. Vetrarhjálparinnar, Stef-
án A. Pálsson.
Kynningarkvöld Far-
fngladeildar R.víkur.
í Oddfellow var fult hús í
gærkvöldi á skemtifundi Far-
fugla. Páhni Hannesson rektor
flutti bráðskemtilegt og fróð-
legt erindi með skuggamynd-
um um Landmannaleið, ein-
liverja fegurstu og litauðugustu
öræfaleið þessa lands. Frásögn
Pálma var með ágætum, enda
hefir hann alla þá kosti til að
bera, sem maður æskir hjá
góðum fyrirlesara. Hann hef-
ir mikla jarðfræðikunnáttu,
hann er vel að sér í sögu, sið-
i:m og lífsvenjum ísletisku
þjóðarinnar og hann talar af
lijartfólginni ást til þessa and-
stæðuríka en undur fagra lands.
Myndirnar er Pálmi sýndi
voru allar teknar af Páli Jóns-
syni verslunarmanni. Voru þær
hver annari fallegri, svo unun
var á að liorfa. Voru þær auð-
sjáanlega teknar af kunnáttu og
með næmu auga fyrir fegurð
hinnar íslensku náttúru.
Blástakkar sungu og Jóhann
Möller og Ólafur Beinteinsson
léku saman á sög og guitar. —
Loks var stíginn dans til kl. 1.
Það er i ráði, að Farfugla-
deildin haldi slíka kynningar-
fundi mánaðarlega í vetur, og
eftir undirtektum fólks í gær-
lcveldi að dæma, má búast við
góðum skemtunum framvegis,
ef þær takast eins vel og þessi.
Tilkynning
um siglingahættu.
Samkvæmt tilkynningu frá
flotamálaráðuneytinu hreska,
dags. 18. nóv. s.l., er öllum skip-
um öðrum en lierskipum og spí
talaskipum algerlega bannað að
viðhafa innan breskrar land-
helgi bendingar þær með ljós-
hlossum (Flare-up Lights), sem
fyrirskipaðar eru í alþjóðasigl-
ingareglum og í reglum um
neyðarbendingar skipa í sjávar-
háska.
Þar sem margvislegar höml-
ur hafa verið lagðar á siglingar
um Ermarsund, eru skipstjórar
alvarlega ámintir um að afla
sér rækilegra upplýsinga um
alt, er að þessu lýtur, eigi þeir
1 ð um sundið.
UNGMENNAFÉLAGAR
SKORA Á ALÞINGI AÐ SAM-
ÞYKKJA FRV. UM VINNU-
SKÓLA.
Ungmennasamband Kjalar-
nessþings efndi i gær til far-
fuglafundar Ungmennafélaga.
Fundurinn var haldinn í Kaup-
þingssalnum.
Annaí háskólaerindl
Fontenays sendiherra.
Fontenay sendiherra fluttí
annað háskólaerindi sitt um
múhameðska menningu í Odd-
fellowhúsinu í gær við góða að-
sókn.
Lýsti hann fyrst kóraninum,
og hvernig hann er til orðinn, að
hann séu sundurlausar opinber-
anir Allahs til Múhammeds um
hvað honum hæri að kenna
mönnum og segja. Hinar ein-
stöku suralis kóransins væru al-
veg sjálfstæðar, og ekki einu
sinni i réttri tímaröð, svo að
nú flæktist það fyrir fræði-
mönnum að koma þeim Iieim
að því leyti. Það væri annars
auðvelt að skifla surahs niður
i tvo flokka, eftir því, hvort
liann liefði fengið opinberan-
irnar í Mekka, eða eftir að hann
var flúinn til Medina. í opinber-
unum í Mekka væri hann pre-
dikarinn, postulinn og trúar-
frömuðurinn, en í Medína-opin-
berununum væri hann mikið
fremur löggjafinn og ríkis-
stofnandinn, og mætti skýra
þennan klofning út frá þeirri
hreytingu er varð á viðfangs-
efnum hans við flóttann. Það
væri óneitanlegt, að sumar op-
inberanirnar í Medína hefðu
komið sér mjög vel fyrir Mú-
hammed og á allra lientugasta
tíma, því hefðu ýmsir ætlað, að
hér væri um svik og brellni af
hans hendi að ræða. En Mú-
hammed hefði hvorki verið geð-
veikur, niðurfallssjúkur né
svikari, en eins og hjá mörgum
miklum mönnum hefði ósk og
vilji orðið að óbifanlegum
sannleika, sem svo hefði brotist
út lijá þeim innsæisleiðina með
miklum harmkvælum; svo
hefði verið um Napóleon, svo
hefði verið um Bismarck og svo
var um Múhammed.
Næsta erindi sitt flytur Fon-
tenay sendiherra í febrúar.
Lúðvíg Guðmundsson flutti
þar erindi um þegnskap og
þegnskyldu. Að loknum um-
ræðum um málið var samþykt
í ednu hljóði eftirfarandi á-
lyktun:
„Fundurinn lýsir sig fylgj-
andi frumvarpi því um almenn-
an vinnuskóla ríkisins, sem
mentamálanefnd neðri deildar
nú flytur á Alþingi, að tilhlut-
an forsætisráðherra og skorar á
Alþingi að samþykkja það.“
Austurbæingar!
Vetrarhjálpin kallar til ykkar. —
Munið, engin gjöf er svo lítil, að
hún komi ekki að notum.
Nýfrægasti pitliöfuiidup Amerlku á ísleusku*
Kátir voru karlar..
eftir JOHN STEINBECK.
KARL ÍSFELD blaðamaður íslenskaði.
Þessi saga gerist í Monterey, sem er smáborg á hinni
sólgyltu strönd Kaliforníu. Segir hún á hnyttinn og
’ skemtilegan hátt frá nokkrum glaðlyndum náung-
um, er þar eiga heima — frá ástarævintýrum þeirra,
því að þarna eru kátar og fjörugar konur, sem setja
sunnudagsandlitið oftar upp en tvisvar í viku, — frá
drykkjuskap þeirra og róstum — frá því hvernig þeir
tengdust vinaböndum og hvernig leiðir þeirra skild-
ust að lokum. — Þetta eru heiðingjar með sólblik í
augum, og öllum þykir vænt um þá, sem kynnast
þeim.
Það leiðist cngfnin nm jölin. sem lcs þcssa liök.
Iliin cr tilvalin Jóla^iöf Iiainlíi Itmiiiing'lnniiiii.