Vísir - 27.01.1940, Qupperneq 1
Ritstjóri:
KRISTJÁN GUÐLAUGSSON.
Sími: 4578.
Ri itstjórnarskrifstofur:
Uélagsprentsmiojan (3. hæð).
Afgreiðsla:
HVERFISGÖTU 12.
Sími: 3400.
AUGLÝSINGASTJÓRI:
Sími: 2834.
30. ár.
Reykjavík, laugardaginn 27. janúar 1940.
22. tbl.
Rú§§ar g:efa§t npp á
isókitiimi fyrir norð-
an Ladog:aratnið.
Voroshilov á leið til vígstöðvanna.
EINKASKEYTI frá United Press. — Khöfn í morgun.
Webb Miller, fréttaritari United Press, símar
í morgun frá Helsingfors, að svo mjög hafi
dregið úr áhlaupum Rússa fyrir norðan La-
dogavatn, að fullyrða megi, að sókn þeirra hafi mistek-
ist, og að þeir verði að hætta frekari tilraunum til þess
að komast að Mannerheimvíggirðingunum að norðan-
verðu frá, að minsta kosti í bili. Manntjón Rússa, falln-
ir og særðir, er talið vera að minsta kosti 20.000 á þess-
um vígstöðvum undangengna 5—6 daga, þar af um
1/4 fallnir eða upp undir 5000 menn.
í gær var dimmviðri á vígstöðvunum og bætti það
aðstöðu Finna.
Fregnir hafa borist um, að Voroshilov, yfirmaður
rauða hersins, sé í þann veginn að koma til vígstöðv-
anna í Finnlandi í eftirlitsferð.
ÞEKKING RÚSSNESKRA
FANGA Á LÁGU STIGI.
Finska útvarpið hefir byrjað
nokkurskonar spurningakepni
meðal rússneskra fanga og er
spurningum og svörum útvarp-
að. Spurt er um ýmislegt, sem
flest barnaskólabörn geta svar-
að, en rússnesku fangarnir hafa
staðið sig illa, og kemur fram
hjá þeim alveg furðuleg van-
þekking í sögu, landafræði o. s.
frv. og ekki verður heldur séð,
að þeir hafi mikil kynni af því,
sem er að gerast í heiminum nú.
Margir fanganna, sem spurn-
ingum svöruðu höfðu aldrei
heyrt Roosevelt Bandaríkjafor-
seta nefndan á nafn og sumir
höfðu aldrei heyrt getið um
Napoleon mikla eða Nikulás
Rússakeisara og fjölskyldu
hans. Flestir könniiðust þó við
von Ribbentrop. Einn hélt, að
Tyrkland væri Eystrasaltsríki.
Þeir, sem best stóðu sig,
fengu vindil í verðlaun.
NÝ FJÁRSÖFNUN HANDA
FINNUM.
Norræna félagið hefir hafið
nýja fjársöfnun handa Finn-
landi og safnaðist á fyrsta degi
100.000 kr. - NRP.
Bardagar eru stöðugt harðir
fyrir norðan Ladogavatn, en
til þessa hefir öllum áhlaupum
Rússa verið hrundið. Það er
vafalaust, að Rússar hafa teflt
þarna fram úrvalsliði sínu, en
þeir hafa beðið mikið mann-
tjón og mikið af hergögiium
liefir fallið í hendur Finna. —
Á Petsamovigstöðvunum hefir
tveimur áhlaupum verið hrund-
ið. - NRP.
BRESKU HERGÖGNIN KOM-
IN TIL FINNLANDS.
Breska verkalýðsnefndin, sem
dvelst í Finnlandi, lætur í ljós
mikla aðdáun á vörn Finna.
Formaður nefndarinnar, Sir
Walter Citrine, hefir upplýfct,
að Finnum sé farin að berast
mikil hjálp frá Bretlandi,- NRP.
Japanir vilja efla
viðskifti sín á
Balkanskaga.
K.höfn í morgun.
Einkaskeyti frá United Press.
Frá Budapest er símað, að
sendiherrar Japana í París,
Rómaborg, Berlín, Ankara,
Bern, Bukarest og Sofia séu
komnir til Budapest, til þess að
ræða Evrópumál.
Það er talið, að Japanir hafi
mikinn áhuga fyrir að auka við-
skifti sín í suðausturhluta álf-
unnar og í Balkanskagalöndum.
Yfirleitt horfir svo fyrir Jap-
önum, að róðurinn verði þeim
þungur á viðskiftasviðinu. Við-
skiftasamningur Japana og
Bandaríkjamanna er nú geng-
inn úr gildi og ekkert hefir þok-
ast í áttina til samkomulags um
nýjan viðskiftasamning þeirra
milli, en markaður sá, sem Jap-
anir höfðu í Bandaríkjunum er
þéim afar mikils virði, og 'vafa-
mál, að þeir geti bætt sér miss-
inn upp annarsstaðar.
Sænska skipið Patria rakst á
tundurdufl nýlega á leið frá
Rotterdam til Gautaborgar. 18
manna af skipshöfninni er
saknað. - NRP.
14-000 smálesta
amerískt skip
strandar.
Japanskt skip bjargar
áböfninni.
London 1 morgun.
Einkaskeyti frá United Press.
Freg-n frá Kagoshima í Japan
hermir, að ameríska farþega-
skipið „President Quezon“,
14.187 smálestir, hafi strandað
við Bonini-eyju, 700 mílur suð-
ur af Tokio.
Fjögur japönsk skip komu á
vettvang og björguðu öllum far-
þegum og skipverjum.
DYRTlÐARUPPBOT
1 NOREGI.
Báðir aðilar hafa fallist á til-
lögur sáttasemjara rikisins um
dýrtiðaruppbót á kaup. Tillag-
an hljóðar Um 7% hækkun og
nær hún til um 120.000 manns.
Af hækkuninni leiðir aukaút-
gjöld fyrir iðnaðar- og önnur
atvinnufyrirtæki, sem nemur
22% milj. lcr. — Einnig var fall-
ist á tilboð ríkisins um skipu-
lag á uppbót lianda starfsmönn-
um hins opinbera. Það var til-
skilið af hálfu stjórnarinnar,
að Stórþingið féllist á tilhögun-
ina. Af tillögunum leiðir aukin
útgjöld fyrir ríkissjóð, er nema
6.8 milj. kr. iá yfirstandandi
fjárliagsári og 18.9 milj. kr. á
öllu næsta fjárhagsári. - NRP.
Þýskur kaf-
bátur sökkv-
ir skipi.
London í morgun.
Einkaskeyti frá United Press.
Frá Dublin er símað, að skip-
verjar af sænka skipinu Sonja
hafi skýrt frá því, að þýskur
kafbátur hafi sökt því með
tundurskeyti. Skipstjórinn á
Sonju neitaði að verða við þeirri
kröfu kafbátsforingjans, að
skrifa undir skjal þess efnis, að
í skipinu væri ófriðarbannvara,
sem ætti að fara til Englands.
Skipstjóri neitaði og var þá
Sonju sökt með tundurskeyti.
Skipið var á leið frá New
York til Rotterdam með gúmmí
og baðmullarfarm.
Á Sonju voru 24 menn og
voru þeir settir á land í hafnar-
borg á suðvesturströnd Eire í
gap\
BRESKIR OG FRANSKIR
HERMENN VERÐA KOMN-
IR TIL FINSKU VÍGSTÖÐV-
ANNA FYRIR VORIÐ.
London á hádegi í dag.
Einkask. frá United Press.
Að því er United Press hef-
r fregnað frá áreiðanlegum
heimildum, eru allar líkur til
að breskir hermenn verði
farnir að berjast hlið við hlið
Finnum á vígstöðvunum í
Finnlandi undir vorið, enda
þótt breskir stjórnarembætt-
ísmenn vilji ekki láta hafa
neitt eftir sér um þetta. Það
er ennfremúr talið líklegt, að
franskir hermenn verði send-
lr til finsku vígstöðvanna
næstu vikur.
Enda þótt hér verði um
sjálfboðaliða að ræða, verða
eingöngu æfðir hermenn
sendir til Finnlands.
Dagsbrúa segir sig úr
Landssambandi islenskra
stéttaíélaga.
Brottrekstur alþýðuflokksmanna
úr íélaginu ómerktur.
Fyrsti fundur hins nýkjörna trúnaðarráðs Dagsbrúnar var
haldinn í Alþýðuhúsinu kL 8% í gærkveldi. Mættir voru 89
manns af þeim 100 sem kosnir voru.
II tanr íkisverÉi.
Landráð kommúnista.
Skákþingið:
3ja umferð í
Meistaraflokki
í gær fór fram 3. umferð í
Meistaraflokki, en í 1. flokki
voru tefldar biðskákir.
I meistaraflokki fóru svo
leikar: Sturla og Áki gerðu
jafntefli, Ilafsteinn vann Bene-
dikt, Sæmundur og Ásiiiundur
gerðu jafntefli, Gilfer vann
Hermann, Hannes og Guð-
mundur biðskák.
1 meistaraflokki er Hafsteinn
hæstur. Hefir hann 2% vinn.
Biðskákirnar í fyrsta flokki
fóru svo: Sigurður Gissurarson
og Magnús Jónasson gerðu
jafntefli,, Magnús J. og Kristján
Sylveríusson jafntefli og Pétur
Guðmundsson vann Ragnar
Pálsson.
Sjálfstæðisfélagið
Skjöldur
í Stykkishólmi á io ára afmæli
í dag og verður þess minst með
fjölmennu samsæti þar á staðnum
í kvöld. í Skildi eru nú 120 félag-
ar og félagslíf með miklum blóma.
— Formaður félagsins er Kristján
Bjartmarz hreppsnefndaroddviti.
Kommúnistar hafa að und-
anförnu reynt að gera samn- í
ingaumleitanir Islendinga við j
bresku ríkisstjómina tortryggi- j
legar í augum almennings og (
hafa þeir fullyrt, að samningar |
séu þegar gerðir við Breta, sem
gangi landráðum næst. Ummæli
þessi hafa þeir bygt á því að
hernaðarviðskifta ráðherrann
breski hafi lýst yfir því í þing-
ræðu, að samningar væru gerð-
ir milli Islands og Bretlands, og
einnig Bretlands og Belgíu.
Samkvæmt upplýsingum, er
Vísir hefir aflað sér eru um-
mæli breska ráðherrans mjög
úr lagi færð. Mun hann aðeins
hafa getið þess að viðræðum
um samninga við ísland væri
lokið, en liitt er alrangt, að hann
hafi sagt að samningar liafi ver-
ið gerðir. Um samningana við
Belgíu er aftur það að segja,
að viðræður um þá lialda enn
áfram, og sýnir þetta að um-
mæli ráðherrans hafa mjög ver-
i ið úr lagi færð.
Það skal tekið fram, að Vísir
hefir ennfremur aflað sér upp-
■ lýsinga um það, að það hefir
, orðið að ráði að ednstaklingar
átvinnu- og viðskiftalífsins
stofnuðu i eigin þágu með sér
félagsskap og tilnefndu fulltrúa
af sinni liálfu í viðskiftanefnd,
sem fulltrúi eða fulltrúar af
Breta hálfu taki einnig sæti í,
til þess að greiða fyrir nauð-
synlegum viðskiftum við útlönd
á þessum ófriðartímum. Þessa
ráðstöfun var kommúnistum
fullkunnugt um, og þeir hafa,
eðli sínu samkvæmir, notað
þann kunnugleika til þess að
þyrla upp blekkingum, i hreinu
landráðaskyni, og er ógerningur
að fullyrða neitt um eins og nú
standa sakir hverjar afleiðing-
ar þessi viðleitni þeirra kann að
hafa. Hitt er óhætt að fullyrða,
að manntegund þessi hefir ekki
velferð eða liagsmuni sjómanna
fyrir augum, eða það,að tryggja
lif og öryggi þeirra á sjónum.
Formaður félagsins, Einar
Björnsson, setti fundinn og (
bauð menn velkomna til sam- j
starfsins, og kvaðst vona að j
samvinna hinna tveggja lýð- j
ræðisflokka innan Dagsbrúnar j
mætti leiða til meiri einingar .
bg farsældar innan félagsins en j
verið hefir, og skapa þar með
gott fordæmi til eftirhreytni
fyrir Önnur verkalýðsfélög. Var
máli hans tekið með dynjandi
lófaklajipi og var auðséð á öll-
Um fundarmönnum að þeir
gerðu sér miklar vonir um góð-
an árangur af samstarfi þess-
ara tveggja stæi’stu verkalýðs-
flokka á landinu.
Fyrsta verkefni fundarins
var að stjórn félagsins skipaði
eftirtalda menn i atvinnuleysis-
nefnd Dagsbrúnar:
Kristin H. Kristjiánsson.
Ingvar Hannesson.
Björn Benediktsson.
Þórð Gíslason.
Þorstein Sigurjónsson.
Edvard Sigurðsson.
Þorkel Gíslason.
Næsta mál á dagskránni var
að stjórn félagsins bar fram svo j
hljóðandi tillögu:
Þar sem fundur félagsins,
sem haldinn var 11. nóv. 1938
var eigi ályktunarfær sökum
þess, að eigi voru nægilega
margir félagsmenn á fundi, en
samkv. gjörðabókinni mættu
196 félagsmenn, og þar sem i
fundargjörð trúnaðarráðs 13.
nóv. s. á. kemur hvergi frarn
að fundurinn sé löglega boðað-
ur og þar af leiðandi tekur
helmingur trúnaðarráðsmanna
á fundi, ákveður trúnaðarráðs-
fundur haldinn föstudaginn 26.
jan. 1940, að samþyktir þær, er
gerðar voru á fyrtöldum liunþ
um Um brottrekstur þeirra:
Guðm. R. Oddssonar, Guðjóns
B. Baldvinssonar, Kristínusar
Árndals, Vilhjálms S. Vil-
hjálmssonar og Iiaraldar Pét-
urssonar sé eigi löglegur sam-
kv. gildandi félagslögum og
skulu fyrnefhdir menn þvi telj-
ast áfram löglegir meðlimir
félagsins.
Fyrstur tók til máls um tillög-
una varaform. félagsins Sig.
Halldórsson og mælti-hann ein-
dregið með því að hún yrði sam-
þykt, þar sem brottvikning
þessara manna væri fram-
kvæmd á algjörlega ólöglegan
hátt. Rökstuddi hann mál sitt
með tilvitnunum í lög félagsins
og þær fundargjör^r félags-
fundar og trúnaðarráðsfundar
sem um málið fjalla. — Auk
hans tóku til máls um tillöguna
þeir: Amgrímur Kristjánsson,
Kristinn Kristjánsson, Torfi
Þorbjörnsson, Björn Benedikts-
son, Jón S. Jónsson og Sigur-
björn Markússon, og töluðu þeir
allir með tillögunni. Síðan bar
formaður tillöguna undir at-
kvæði og var hún samþykt með
87 samhljóða atkvæðum.
Var samþykt að leyfa þessum
sex mönnum, sem Héðinn
Valdimarsson og kommúnistar
höfðu rekið úr Dagsbrún í trássi
við lög félagsins, að setja á þess-
um fundi. Buðu fundarmenn þá
velkomna í félagið aftur með
lófaklappi, en Guðm. R. Odds-
son þakkaði fundarmönnum
móttökurnar fyrir þeirra hönd.
Þá fór fram kosning í trún-
aðarmannaráð, sem skipað er
níu mönnum; stjóm félagsins
ásamt f jórum öðrum, sem kosn-
ir eru af trunaðarráði féjagsins.
En eins og áður hefir verið
skýrt frá hér í blaðinu, var á-
kveðið í samningunum milli
Alþýðuflokks og Sjálfstæðis-
flokksverkamannanna að Al-
þýðuflokkurinn ætti þar fimm
fulltrúa en Sjálfstæðisflokkur-
inn fjóra. Þar sem sjálfstæðis-
menn eiga þrjá fulltrúa í stjórn
félagsins en Alþýðufl. tvo, var
kosinn einn maður til viðbótar
af hálfu sjálfstæðismanna,
Kristinn Ámason, og var hann
kosinn með öllum greiddum at-
kvæðum, en varamaður hans
var kosinn Oddur Jónsson. Af
liálfu Alþýðufl. voru þessir
menn kosnir með samhljóða at-
kvæðum: Guðm. R. Oddsson,
Guðjón B. Baldvinsson og Helgi
Þorbjörnsson en til vara Krist-
inus F. Arndal, Jón Arason og
Kristján Guðmundsson.
I>ví næst bar stjómin fram
svohljóðandi tillögu:
Fundur haldinn í trúnaðar-
ráði verkamannafél. Dagsbrún,
föstudaginn 26. janúar 1940
samþykkir að félagið segi sig
úr Landssainbandi islenskra
stéttarfélaga og felur stjórn fé-
lagsins að tilkynna stjórn
Landssambandsins þessa sam-
þykt.
Jafnframt samþykkir fund-
urinn, að Dagsbrún sé utan
allra verklýðssambanda þar til
öðruvísi verður ákveðið.
Fylgdi Sig. Halldórsson einn-
ig þeirri tillögu úr garði með
nokkrum orðum. Var liún síð-
an borin undir atkvæði og sam-
, þykt mótatkvæðalaust.
j Að lokum voru mörg liags-
munamál verkamanna rædd og
I urðu miklar og fjörugar um-
, ræður um þau. Bar fundurinn
j þess greinilegan vott að fylgis-
menn lýðræðisflokkanna eru
staðráðnir í því að hefja drengi-
legt og sigursælt samstarf á
hinu nýbyrjaða starfsári félags-
ins. Og munu þeir með sameig-
inlegum átökum hrinda hvers-
konar klofningsstarfsemi af
hálfu kommúnista af höndum
sér, en jafnframt hefja sleitu-
Iausa baráttu fyrir hagsmunum
verkamanna í Dagsbrún.