Vísir - 28.02.1940, Page 3
VlSIR
Dr. phil.
Ejnar Munksgaard
fimmtugur.
Föstuguðsþjónusta
í Dómkirkjunni i kvöld kl. 8.15.
Síra Bjarni Jónsson.
Vestfirðingar!
Þeir munu fáir hér á 1
landi, er ekki kannast við
dr. Ejnar Munksgaard. En |
á merkisafmælum þykir !
rétt að minna á helstu æfi-
atriðin. Dr. Munkgaard er
fæddur í Viborg á Jótlandi
28. febrúar 1890.
Lærði hann þar bókaverslun,
en framaðist síðan í þeirri grein
árin 1911—17 í Þýskalandi,
Svisslandi og Frakklandi. Árið
1917 stofnaði hann með Otto
Levin forlagið Levin & Munks-
gaard og hefir átt það einn síð-
an félagi hans dó 1933. Ekki
munu rnikil auðæfi hafa runn-
ið undir fyrirtækið í byrjun, og
minnir mig að dr. Munksgaard
segði mér einhvern tíma, að
þeir félagar hefðu tekið að láni
1000 kr. til að stofna það. En
það óx brátt og dafnaði og hafa
að minsta kosti þrjár danskar
bókaverslanir runnið inn i það.
Er það nú eitt liið stærsta út-
gáfu- og bókaverslunarfyrirtæki
í Danmörku og alþjóðlegt i !
sniði. Gefur það einkum út vis-
indarit, sérstaklega læknisfræði.
En sérstaka rækt hefir forlagið
lagt við útgáfu stórra eftir-
mynda (facsimile) af merkileg-
um fornum handritum, íslensk-
um, irönskum og bysönskum,
og er sú útgáfustarfsemi í stærri
stíl en dæmi munu til áður, að
minsta kosti á Norðurlöndum.
En auk þess hefir dr. Munks-
gaard gefið út eftirmyndir af
merkilegum handritum eftir
síðari tima höfunda, svo sem H.
C. Andersen, Dickens, Sören
Kierkegaard, Björnstjerne
Björnson, Bjarna Tliorarensen
og Jónas iHalIgrímsson. í for-
mála síðastnefnda ritsins segir
Dr. Munksgaard:
„Sá, sem horfir á uppkastið
að skáldverki, sér vinnubrögð
skáldsins, sér hugsanir lians
fæðast, skynjar andagiftina,
sem einkennir . allan mikinn
skáldskap.“
Löngunin lil að veita öði-um
þessa nautn ræður slikum út-
gáfum Dr. Munksgaards.
Sjálfur er hann ritfær vel og
manna fróðastur um sögu bóka-
gerðar, og hefir hann bæði gefið
út og samið ýmis smárit og rit-
gerðir um bóksöguleg efni, á
dönsku og öðrum málum, þar
á' meðal um Flateyjarbók og
sögu hennar, er komið hefir út
á dönsku, sænsku og þýsku.
Dr. Munksgaard hefir verið
fulltrúi stéttar sinnar í ýmsum
dönskum og alþjóðlegum nefnd-
um, situr í stjórn Árna Magnús-
sonar safnsins, er sæmdur liá-
um heiðursmerkjum, íslands,
Danmerkur, Noregs, Frakk-
lands og Ítalíu, heiðursfélagi
Bókmentafélagsins 1933, Flat-
eyjar framfara stiftunar 1935,
lieiðursdoktor Háskóla íslands
1936.
Hann kvæntist 1917 Yelva
Christensen, ágætri konu, og er
liún listmálari. Eiga þau tvær
dætur.
Þelta voru æfiatriðin, og er
þó ótalið það, sem gert hefir Dr.
Munksgaard þjóðkunnan hér á
landi, en það er vinarþel lians
til þjóðar vorrar og hið mikla
útgáfustarf hans íslenskum
bókméntum til gagns og sóma.
Vinarþel lians hefir meðal ann-
ars komið fram í stórum gjöf-
um til Háskólans, Landsbóka-
safnsins og fleiri mentastofnana
vorra, og jafnframt hefir hann
verið hvatamaður að ýmsum
öðrum gjöfum, er þjóð vorri
hafa borist. En starf hans fyrir
bókmentir vorar er ómetanlegt.
Hann kom brátt auga á það,
E.TNAB MUNKSGAARD.
livers virði íslenskar bókmentir
vorii, og hefir engin bókaversl-
un komið gömlum íslenskum
bókum í slikt verð og gengi sem
bókaverslun Dr. Munksgaards.
Eðlilegt framhald af því var að
gefa út eftirmyndir af elstu
prentuðum íslenskum hókum,
sem voru gersamlega ófáanleg-
ar. Það hefir Dr. Munksgaard
gert með útgáfu sinni Monu-
menta typographica islandica,
sem komin eru 5 bindi af.
En meira var þó vert um út-
gáfuna af eftirmyndum skinn-
bóka vorra. Undarleg örlög
liöfðu sópað þeim með tölu úr
landinu og þarna sátu þau öld
eftir öld í erlendum söfnum. Sá
andans aliður, sem í þeim er
fólginn, hefir að vísu ekki verið
ófrjór. Svo er prentlistinni fyrir
að þakka. Allur þorri merkustu
handritanna liefir verið gefinn
út og þar með orðið undirstaða
norrænna og germanskra fræða
víða um lönd. En engin slík út-
gáfa getur að öllu gengið í hand-
ritsins stað, jafnvel þótt hún eigi
að heita stafrétt. Hvort hún er
stafrétt, verður altaf spurning,
sem enginn getur gengið úr
skugga um, nema hann fari
sjálfur til KaUpmannahafnar,
Stokkhólms, Uppsala, eða hvar
liandritið nú er, og beri útgáf-
una saman við það. En margt
er orðið máð og torlesið í hand-
ritunum, margt er bundið,
skammstafað, og því ekki ætíð
víst, hvernig lesa skuli. Mörg
vísa er að efni svo torskilin og
röð orða og setninga svo flókin,
að lesarinn fær lítið ljós af sam-
bandinu. Þá kemur hin kvelj-
andi óvissa f ræðmannsins:
Hvað stendur í handritinu ? Hef-
ir útgefandinn lesið rétt? Og
svo er annað: handritið er ekki
sál ritsins ein, það er sálin klædd
hinum einkeimilega líkama hins
ritaða bókfells. Bókfellið bér
með sér blæ af ritaranum, birtir
oss hreyfingarhátt lians, fegurð-
arskyn, hugkvæmni og úrræði.
KemUr það best í ljós, þegar
handritið er lýst og prýtt mynd-
um. Þá verður það um leið þátt-
ur í íslenskri listasögu. Á bók-
fellinu fékk gáfa Islendinga til
myndagerðar og skrautlistar
sinn aðalleikvöll, þröngan að
vísu, en þó mikilsverðan. Þarna
gat runnið að einum ósi ástin
á bókmentum og fegurðarþrá-
in. Og þarna var stundum tæki-
færi til að bregða upp smámynd-
um úr daglegu lífi, er sýna við-
horf og hugsunarhátt ritarans
jafnt og starfslíf og tísku aldar
lians. Smámyndin verður þá
söguleg heimild. Og loks er það,
sem síst má gleyma. Hvert hand-
rit er einstætt. Ef það tortímist,
verður það aldrei bætt. Svipur
þess og sérkenni eru þá horfin
af jörðunni. Hvert liandrit er
sem auga, sem starir á oss með
ibyggnu augnaráði liðins thna.
En „hætt er einu auganu“, ekki
síst á vorum dögum, er villi-
menskan gerir „loft alt lævi
blandið“ og enginn veit, hvenær
fólskan stefnir skeytum sínum
að þeim fjársjóðunum, sein
aldrei verða bættir. Eina hugs-'
anlega tryggingin i þessu efni
eru fullkomnustu eftirmyndir,
sem unt er að gera af handrit-
nuum, dreifðar sem víðast út
um heim. —
Alt þetta hefir Dr. Ejnar
Munksgaard séð og skilið manna
best. En hjá lionum, hinum hag-
sýna franikvæmdamanni, er
ætlun og framkvæmd eitt og
hið sama. Hann sá, að rétta að-
ferðin var að varðveita allan
svip og yfirbragð þessara dýru
minja fortíðarinnar í nægilega
mörgum eintökum út um viða
veröld. Hann tók i þjónustu sína
hina miklu nútíma tækni
mynda- og bókagerðar. Hann
sparaði elckert til að útgáfan
mætti verða í senn sem sönn-
ust og glæsilegust mynd af hin-
um fornu handritum, svo að
þau til allra venjulegra vísinda-
nota yrðu jafngild handritun-
um sjálfum. Jafnframt hefir
hann gert sér far um að láta í
hvert skiftið þann sérfræðing
skrifa inngang að handritinu,
er best var til þess trúandi, og á
þeirri tungunni sem flestir lesa,
á ensku. Þar með er verkinu
fengin sú umgerð, er það þarf
til þess að njóta sín á sínum stað
í sögu bókmentanna.
Þau 12 bindi, sem síðustu 10
árin liafa komið út af Corpus
codicum islandicorum medii
aevi liafa þegar gert þessa út-
gáfu að einstæðu afreki í sinni
grein. Á henni er lieimsborgara-
bragur. Það, sem afskektir ís-
lenskir fræðimenn gáfu af auð-
Iegð anda síns, verður þannig
sýnilegt og tiltækt hverjum, sem
leitar jiess á einhverju hinna
stærri bókasafna viðsvegar um
heim. Iðkendur norrænna fræða
þurfa nú ekki lengur að takast
langa ferð á hendur til að ganga
úr skugga um, hvað i þessum
handritum stendur, þegar þeir
eru í einhverjum vafa. Þeir geta
séð það í útgáfu Munksgaards.
En livar sem þessi útgáfa kem-
ur„ mlm hún minna á það, að
andans afrek eru ekki eign stór-
þjóðanna einna og að frumskil-
yrði þeirra eru ekki mannmergð
og glæsileg ytri kjör, lieldur
frjálsborinn andi, er liefir háar
liugsjónir að leiðarstjörnu.
Alls þessa munu íslendingar
minnast í dag og senda hinum
hlýja og bjartsýna danska vini
sínum hin bestu hugskeyti. ,
Guðm. Finnbogason.
Falleg
Skíðasett
Peysur
Húfur og
Vetlingar
í lirvsili
Hlfn
Laugaveg 10
Flýtið yður að ákveða þátttöku
yÖar í Vestfirðingamótinu, ' sem
verður haldið I. mars.
Refur
slapþ úr haldi hér í nágrenni bæj-
arins i fyrradag og hefir ekki fund-
ist aftur. 1 morgun, um kl. 8, urðu
menn varir við ref inn við Skeið-
völl og er talið, að hér sé um sama
dýrið að ræða. Refur þessi var 600
kr. virði.
fsnám.
Nordals-íshús lætur taka ís af
Tjörninni um þessar mundir. Ætti
foreldrar að vara börn sin við vök-
unum, þegar þær fer að leggja aft-
ur, þótt þær verði vel merktar.
Árshátíð B. í.
Síðustu forvöð að sækja pant-
aða aðgöngumiða er í dag.
Póstferðir á morgun.
Frá Rvík: Akranes, Súðin vest-
uf um í hringferð. — Til Rvíkur:
Laugarvatn, Akranes.
Skömtunarseðlarnir.
1 gær voru sóttir um 11 þús. seðl-
ar og er þá alls búið að afhenda
16 þús. seðla. Menn eiga að sækja
þá í Tryggvagötu 28, kl. 10—12
og 1—6.
Næturlæknir.
Bergsveinn Ólafsson, Hringbraut
183, sími 4985. Næturvörður í Ing-
ólfs apóteki og Laugavegs apóteki.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 19.45 Fréttir. 20.20 Útvarps-
sagan: „Ströndin blá“, eftir Krist-
mann Guðmundsson (Höf.). 20.50
Iþróttaþáttur: Þjálfun og vöðva-
starf (Ben. Jakobsson íþróttakenn-
ari). 21.10 Strokkvartett útvarps-
ins: Kvartett í F-dúr eftir Dvorak.
21.30 Útvarpskórinn syngur.
i 1
Happdrætti
Háskóla íslands.
.
Hvað á eg helst að kaupa:
fjórðnngiiniða,
liálfmiða
eða
heilmiða?
Þannig spyrja margir sjálfa sig.
En Cestur hefur 'svarað
þessu, og er hér svar ’hans
til leiðbeiningar þeim, sem
eru í vafa:
Þá ertu að sökkva í örbirgðarhyl
og áhyggjur sál þína buga:
leitaðu Happdrættis Háskólans til,.
það hefir kvartmiða’, er dugá.
Ef hugur þinn girnist mest hús. J jós og yl
og lióglífisþrána að metta:
skundaðu Happdrættis Háskókns til
og hálfmiða taktu — þann rétta.
En viljirðu höndla það helst gleður drötf
og hamingju veitir og yndi:
símaðu Happdrætti Háskólans fljótt
og heilmiða keyptu í skyndi.
Lieikfélagr H e y k | a fíknr
»Fjalla-Eyvindurcc
Sýning í kvöld kl. 8.
Aðgöngumiðar seldir eftir lcl. 1 í dag. —
Bifreiðastoðin GEYSIR
Símai* 1633 og 1216
Nýir bílar. Upphitaðir bílar.
BEST AÐ AUGLÝSA í VÍSL
SkðftleHingamót :
verður lialdið að Hótel Borg 6. mars n. k. ef næg þátttaka fassL ij
'j
Hefst með sameiginlegu borðlialdi kl. 7.30.
Ræður — Söngur — Gamansagnir o. fl. —— DANS*
Áskriftarlfstar í Versl. Vík, Versl. Fram, Klapparstíg, B: S. K.
og Hótel Borg. —
Nauðsynlegt að menn gefi sig fram fyrir 4. mars.
Allir Skaftfellingar verða að mæta á Skaftfellingamóti. —
í ráði er að stofna Skaftfellingafélag i sambandi við mótiðL
UNDIRBÚNINGSNEFNIN.