Vísir - 09.04.1940, Blaðsíða 4
V! SJÆl
Báza aímæli Kvenna-
deiMar Slysavarnaíél.
íslands,
í fycrákvöld muxíist kvenna-
cMaM. 'Slysavarnafélags íslands
Il@ Juaa ‘starfsafmæíis sins með
aBafeima a Hótel Borg.
IWrú Unðrún Jónasson flutti
ærindi um starfsemi
^wmnadeildanna víðsvegar á
gaiiÆiBi, en þær eru um 19 að
aölnL í ræðu sinni gat hún þess,
sr<5 ælarfsemi kvennadeildanna
aníðaði einku mað því, að safna
Sé Í$S slysavarnastarfseminnar i
Jandmii, og hefðu safnast í þvi
ÆHgRamiði kr. 213.900,75. Af
gjessari upphæð hefðu um 60
kr. verið greiddar til Slysa-
’wanaafélags Islands, þar af
liefðu nær % hlutar farið til
"jrékáíui-s Ihjörgunarskipsins Sæ-
• ibjargar, en hitfc til annarar
slysavarnarstar fsemi félagsins.
laefðu kvennadeildirnar veitt
Btyrk lil þess að koma upp tal-
stöðvum í um 30 báta, og hefði
wcarið varið til þess á 9. þús. kr.
tlm 3 þús. kr. héfði verið varið
© ælyrktar sundlaugahygging-
.nm og sundkenslu, en 250 kr.
lieffi éin kvennadeildin varið til
skanpa á ljóskastara, til þess að
Sjlsa xipp bátaleguna á einu fjöl-
aneanasta fiskiþorpi landsins.
Slm siðustu áramót áttu deild-
gmarlkr. 138.661,71 í sjóði.
á.'sanikomunni fluttu auk þess
aræður Tliora Friðriksson, María
ftlarjiík, iLovisa Lúðviksdóttir,
sKtóSbjartnr Ólafsson, Þorsteinn
Þorsteinsson, Geir Sigurðsson
<ag ítm 1S. Bergsveinsson.
Mlli þess að ræður voru
flntlar var sungið og leikið á
iiijóSfærl. Frú Guðrún Ágústs-
dól&r söng nokkur lög, enn-
fremur song 11 inanna flolck-
ar úr karlakórnum Fóstbræður,
andlr stjörn Jóns Halldórsson-
ar, og Lárus Ingólfsson skemti.
AS loknum r-æðuliöldunum
'vstr lesáð upp ávarp, er Kvenna-
cíeildinni liafði liorist frá stjórn
Slysavarnafélags íslands. Var
það skrautrltað á skinn, mjög
vandað og fagurt. Því næst voru
fjöMi i heillaslcey ta frá félags-
deifdum og éinstökum mönn-
aim lesln.
Samkoman för í alla staði
fjiýffiilega fram og var kvenna-
jdeildinni lil sóma, en viðstödd-
ann lil ánægju.
Teírið í morgun.
I Reykjavík i st., lieitast í gær
4, kaidasí v Tióít -o st. Sólákin í gær
&-3 st. Heitast á landimi í tnorgtm
.4 st, í Eyjum og Fagurhólsmýri,
vkaMast —-6 st., á. Fagradal og í
'Balnngarvík.---Yfirlit: HæÖ yfir
ísaíndL Laigð við S.-Grænland. —
fflorfur: SuÖvesturland: Austan
ikaML iörkomulaust. Aðrir lands-
!5iittíar: Hægviðri. Þurt og víða
fjjarí veðnr.
Sjötugur í dag:
SiDUdor Streinssoo
dyravörður.
Trúað gæti eg þvi, að Sig-
mundur tæki þátt i víðavangs-
úlaupinu nú i vor, og áreiðan-
lega yrði hann með þeim
fremstu. Hann er altaf á hlaup-
um, þýtur áfram eins og örskot.
Sigmundur á erfitt með að
ganga hægt enda hefir það Iient-
að honum best að flýta sér. Erf-
iðið hefir lialdið lionum ungum,
hin glaða lund, liið örugga trú-
artraust, kapp hans og áhugi,
alt hefir þetta stutt að þvi, að
æskan hefir fengið að njóta sín.
Sigmundur er sjötugur að daga-
tali, en tvítugur í anda.
Fæddur er hann 9. apríl 1870
í Gerðum í Garði, og naut liins
besta uppeldis lijá ágætum for-
eldrum Sveini Magnússyni og
Eyvöru Snorradóttur. Varð
hann auðvitað snemma æfinnar
að leggja liart að sér. Um eitt
skeið æfinnar var hann gest-
gjafi og liótelstjóri, en hann er
ekki alinn Upp á hóteli og var
ekki á uppvaxtarárum sínum
Vegna atburða þeirra,
sem nú eru að ske úti í heimi,
fellur skemtifundur Farfugladeild-
ar Reykjavíkur niður í kvöld.
íþróttablaðið,
3. tbl., er komið út. Er það bæÖi
fjölbreytt og læsilegt og prýtt ýms-
um góðum myndum. Af efni þess
má nefna : Skíðamótin, Þankar, Af-
mælissundmót Iv.R.“, Drengir með
fullorðnum, Getraunarkeppi, Frétt-
ir, innlendar og erlendar, o. s. frv.
Yfirleitt er blaðið orðið mjög svo
hentugt heimildarrit fyrir íþrótta-
menn og aðra þá, sem íþróttum
unna.
Nýja skákblaðið
heitir hlað, er nýlega hóf göngu
sína hér í bæ. Ritstjórar eru Óli
Valdimarsson og Sturla Pétursson,
en annars er blaðið opinbert mál-
gagn Skáksambands Islands. Af
efna hlaðsins má nefna grein um
alþjóðaskákmótið í Buenos Aires og
skákir frá því. Þá er og grein um
Skákmót Reykjavíkur 1940 og loks
skákannáll. Því miður virðist próf-
arkalestur vera í verra lagi og spill-
if það nokkuð frágangi hlaðsins.
Annars mun blaðinu vera tekið með
! tþökkum af öllum skákiðkendum,
eiida var þeiin orðin hrýn þörf á
sínu blaði.
daglega á veitingahúsum og
skemtistöðum.
Sigmundur hefir altaf skemt
sér við starf og notið fræðslu í
vöndum og hollum skóla. Hon-
um kom það að góðu gagni að
læra að hlýða og ganga að starfi
bæði á sjó og landi með tápi og
kjarki. Sjóveikur var hann, og
meðalaskamta fékk hann ekki,
en oft var hann barinn með
rennblautum sjóvettlingnUm,
og þá gleymdi hann sjóveikinni
og fór að draga þorskinn. Þann-
ig hefir Sigmundur ávalt verið,
hið erfiða liefir knúð liann til
starfa og það hefir verið honum
fjarri skapi að leggja árar í át.
Jú, liann hætti að róa og tók að
nema skósmíði lijá Birni Krist-
jánssyni, og var við það nám
um nokkurt skeið. En stundum
lagði hann frá sér stígvélin og
fór þá beint til foreldranna og
stundaði sjóróðra, og var ekki
sjóveikari en það, að hann var
formaður um tvítugt. Fiskveið-
ar stundaði hann á Austfjörðum
og 3 sumur var liann á Bíldudal.
Það er auðséð á Sigmundi, að
hann hefir fengist við margt,
sjómaður, skósmiður, fylgdar-
maður, gestgjafi, bóndi, dyra-
vörður.
Snemma gjörðist hann fylgd-
armaður útlendinga. Bar mjög
á dugnaði hans og snarræði við
komu dönsku stúdentanna slim-
arið 1900. Með mælingamönn-
um var liann víðsvegar um
bygðir landsins og óbygðir og
ávann sér vinsældir og traust,
er menn kyntust atorku hans og
áræði.
Gestgjafi var liann um nokk-
ur ár í „Valhöll“ á Þingvöllum.
Þurfti hann þá lítið að sofa, var
oftast vakandi nótt og dag og
altaf í góðu skapi. Hann bjó búi
sínu á Brúsastöðum, var þar um
Basar
Húsmæðrafélags Reykjavíkur, til
ágóða fyrir sumarstarf félagsins við
Elliðaár, verður haldinn sunnudag-
inn 14. þ. m. í Varðarhúsinu. Mörg
góð og ódýr barnaföt verða þarna
á boðstólum.
Svigkeppni innanfélags,
fyrir fullorðna, var háð hjá Ár-
menningum í Jósefsdal síðastl.
sunnudag. Fyrstur varð Eyjólfur
Einarsson á 83.6 sek. báðar ferðir,
annar Hörður Þorgilsson 90.3 sek.
og þriðji Þórarinn Björnsson 97.4
sek. Skíðafæri var ágætt og veður
sæmilegt.
Næturlæknir.
Halldór Stefánsson, Ránagrötu
12, sími 2234. Næturvörður í Ing-
ólfs apóteki og Laugavegs apóteki.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 18.20 Dönskukensla, 2. fl.
18.50 Enskukensla, 1. fl. 19.15
Þingfréttir. 19.45 Fréttir. 20.20 Er-
indi: Þættir úr sögu lífsins, III:
Frá plöntum og dýrum (Jóhannes
Áskelsson, jarðfræðingur). 20.45
Tónleikar Tónlistarskólans: Tríó-
sónata, eftir Bach-Casella. 21.15
Hljómplötur: Symfónía nr. 3, o. f 1.,
eftir Schumann.
16 ár, og voru þau ár, að hans
eigin dómi, sólskinsár æfi hans.
Sigmundur hefir verið gæfu-
samur maður og dregur ekki
dul á, að heill hefir lionum
hlotnasL Sú hamingja veittist
honum, að eignast góða konu. í
sambúð við hina ágætu konu,
Kristínu Simonardóttur, hefir
haim orðið aðnjótandi mikillar
farsældar. Þau hjónin hafa sam-
eiginlega starfað að velferð
barnanna, og liafa lagt fram alla
krafta þeim til hjálpar og hvatn-
ingar.
Það liefir verið hjónunum
mikið gleðiefni, að Sesselja dótt-
ir þeirra hefir leyst af liendi á-
gætt starf á barnaheimilinu
„Sólheimar“. Því starfi liafa
foreldrar hennar fylgt með
miklum áhuga. Velgengni barna
sinna liafa þau hjón á allan hátt
viljað efla.
Árið 1919 fluttist Sigmundur
hingað til Reykjavíkur með
konu sína og átta börn. Um 20
ára skeið hefir liann gegnt hinu
vandasama og umsvifamikla
dyravarðarstarfi við Barnaskól-
ann. Hefir hann verið trúr í því
starfi og ekki kvartað, þó að
stundum væri á hann kallað úr
mörgum áttum.
Sigmundur er bjartsýnn
kjarkmaður, iðandi af liffjöri,
áhugamaður, brennandi í anda
og ráðandi yfir sannfæringar-
krafti.
Sigmundur er í hinum besta
skilningi vakandi.maður. Hann
fer ekki í felur með skoðanir
sínar í þjóðmálum og hann sér
enga ástæðu til þess að þegja um
þá trú, sem er hin helgasta eign
hans. Er hann mjög áhugasam-
ur kirkjumaður, hefir um all-
mörg ár átt sæti í sóknarnefnd
og verið þátttakandi í kristilegu
starfi.
Ungur og hvatur inaður á af-
mæli í dag. Það á langt í land,
að Sigmundur Sveinsson verði
gamall. Njóti hann æskunnar
vel á komandi árum.
Bj. J.
MlNERVA nr. 172. Fundur
annað kvöld. Systurnar annast
hagnefndaratriði. Æ. t. (283
ST. EININGIN nr. 14. Fund-
ur miðvikudagskvöld kl. 8V2.
Hagnefndaratriði: Br. Frey-
móður Jóhannesson listmálari:
Erindi um Egiptaland með
skuggamyndum. — Fjölsækið
fundinn. Æ. t. (301
| Félagslíf |
ÁRMENNING AR! Skemti-
fundur verður í Oddfellowhús-
inu miðvikud. 10. þ. m. og hefst
hann kl. 9. Róðrardeildin sér
um skemtiatriðin. Mætið rétt-
stundis. (278
iKENSLAl
VÉLRITUNARKENSLA. —
Cecihe Helgason, simi 3165. —
Viðtalstími 12—1 og 7—8. (71
TIL LEIGU
1 STÓR stofa og eklhús við
miðbæinn til leigu 14. mai. Árs
fyrirframgreiðsla. Uppl. á Rán-
argötu 15. (274
4 HERBERGJA íbúð með
nýtísku þægindum til leigu i
Garðastræti. — Tilboð merkt
„Garðastræti“ sendist Vísi. (275
TVÆR ábyggilegar mæðgur
óska eftir stofu og eldhúsi 14.
mai eða jafnvel strax i vestur-
bænum. Uppl. i síma 1419. (293
ÓSKA eftir stofu og eldhúsi,
þarf að vera innan Barónsstigs.
Þrent i heimili. — Uppl. i síma
3932 til kl. 8 síðd. (292
HÚSSTÖRF
STÚLKA óskast i vist strax.
Uppl. Smáragötu 9 A kl. 8—9
e. h.___________________(286
UNGLINGUR óskast til 14.
maí. Fermingarkjóll til sölu
sama stað, simi 5855. (299
SAUMASTOFUR
SÓLRÍK 4 lierbergi og eldhús
við Öldugötu til leigu 14. mai
Ennfremur kjallaraíbúð, 1—2
lierbergi og eldhús á sarna stað.
Tilboð merkt „H. F.“ sendist
Vísi.____________________(277
4 STOFUR og eldhús (heil
hæð) við höfnina til leigu. (279
2 STOFUR til leigu Óðins-
götu 20 B. Stólar til sölu sama
stað. (280
NÝTÍSKU þriggja herbergja
íbúð til leigu í Norðurmýri frá
14. mai. Uppl. i síma 2895 kl.
6—8 i kvökl._____________( 281
2 STOFUR og hálft eldhús til
leigu fyrir harnlaust fólk. —
Hringbraut 70, niðri, eftir kl, 6,
________________________ (285
ÍBÚÐ, tvær sólríkar stofur,
eldliús og bað til leigu á Báru-
götu 5, efstu liæð. — Mánaðar-
leiga 125 kr. Einstaklingsher-
hergi er til leigu á sama stað,
sími 4244. (287
TIL LEIGU 14. maí í suðaust-
urbænum 2 lierhergi og eldhús,
með nútima þægindum. Tilhoð
merlct „Suðausturbær“ sendist
Vísi fyrir 15 þ. m. (289
SAUMASTOFAN Laugavegi
28 sníðir kjóla og mátar. Verð
frá 4,00, kápur frá 5,00 og
dragtir frá 6,00. Símar 5545 og
4940. (875
KKÁUPSEÁPtiel
FORNSALAN, Hafnarstræti
18 kaupir og selur ný og notuð
húsgögn, lítið notuð föt o. fl. —
Simi 2200.__________(351
BÁTUR til sölu. Uppl. Holts-
götu 14 A. Þorkell Steinsson.
(300
_________HÚS___________
HÚS, nýtt eða nýlegt, óskast
til kaups. Tilboð auðkent „Sól“
innihaldandi upplýsingar um
stærð og lierbergjaskipun, ald-
ur, verð og livar i bænum send-
ist afgr. Vísis fyrir 14. þ. m.
Úthorgun eftir samkomulagi.
(294
FRÍMERKI
ÍSLENSK FRÍMERKI kaupir
hæsta verði Gísli Sigurbjörns-
son, Austurstræti 12, 1. hæð. —
(216
STÓR stofa og stór þriggja
herbergja íbúð til leigu. Uppl.
Leifsgötu 9, II. hæð. (290
2 HERBERGI og eldhús til
leigu 14. maí á Vitastíg 10. —
Uppl. eftir kl. 7. (298
ÓSKAST
BARNLAUS hjón vantar 2
herbergja íbúð með öllum þæg-
indum á austurbænum. Uppl. í
5613 frá 6—7. (276
MAÐUR í fastri stöðu óskar
eftir 3 herbergja íbúð. Tilboð
merkt „1002“ sendist Vísi. (282
1—2 HERBERGI og eldliús
óskast. Ábyggileg greiðsla. —
Þrent í heimili. Sími 2549. (288
ÓSKA eftir tveimur herbergj-
um og eldhúsi. — Uppl. í síma
5637. (295
NOTAÐIR MUNIR
TIL SÖLU
BORÐSTOFUHÚSGÖGN, —
vönduð, úr eik, til sölu og nokk-
ur liúsgögn önnur. — Sann-
gjarnt verð. Til sýnis Sellands-
stíg 1, niðri, 6—7% dagl. (236
STOFUSKÁPAR og klæða-
skápar, margar tegundir, til
sölu. Víðimel 31. Sími 4531. —
__________________(224
SILFURREFUR, sportdragt
o. fl. Fatnaður til sölu. Sellands-
stig 1, uppi.________(284
FERMINGARKJÓLL til sölu
á Baldursgötu 22 A. (296
BARNAVAGN til sölu. Mýr-
argötu 7, sími 2837. (297
LJÓS dragt, nýleg, til sölu
Hverfisgötu 37. ) (272
FERMINGARKJÓLL til sölu
á Grettisgötu 63. (273
W. Somerset Maugham: 34
A ÓKUNNUM LEIÐUM.
IÞegar ótti Lucy hjaðnaði flaug henni í hug,
sS Bobbie væri kominn til þess að spyrja liana
i®n eínu sinni hinnar „eilífu spurningar", en
<í2F Jxún sá áhyggjutilhtið í augum hans sann-
tSaexSi.ist hún 'þegar um, að svo var ekki. Hann
Tírar að Jafnaði svo unglingslegur og glaðlegur,
csn-nöú'var hann mjög alvarlegur á svip. Frú
CCrowley séttist og sneri sér undan.
hefi mjög slæm tíðindi að flvtja þér,
IpGT, sagði Bobbie.
JÞað var auðséð á öllu, að honum veittist erf-
Hliaðsegjalienni fra því, sem hann varð að gera
I'aenni kunnugt. Það var óeðlilegur hljómur í
úwM bans, af því. að hann reyndi svo mjög að
íTiæla eins og vanalega.
,,*Óskið þér, að ég fari ?“ sagði Alec, sem liafði
&amið irteð henni inn í lierbergið.
(Húsn. horfði á hann. Henni fanst, að livað svo
són gerast nnindi/yi'ði auðveldara fyrir liana
íáS íaka því, ef hann væri viðstaddur.
OTVIlt þú tala við mig í einrúmi, Bobhie ?“
spurSi liún.
„Eg liefi þegar sagt frú Crowley og Dick frá
þessu,“ sagði hann.
„Hvað er það?“ spurði hún.
Bobbie horfði á Dick eins og hann byggist við
lijálp frá honum til þess að segja Lucy þetta.
Bobbie gat ekki fengið af sér að valda Lucy
sársauka. Og þó liafði hann flýtt sér á fund hans,
ef það kynni að draga úr sársaukanum, ef liann
segði lienni það sjálfur. Dick sá liversu erfitt
þetta var fyrir Bobbie, því að það kom kipring-
ur í munnvik hans og hann fékk eklci mælt.
Dick gekk fram og mælti:
„Faðir þinn hefir verið liandtekinn fyrir fals“.
Næstu augnahlik var steinþögn. Þögnin var
óbærileg, fanst frú Crowley, og hún liugsaði
sem svo, að liið breska stöðuglyndi færi illa með
taugarnar. Hún gat ekki horft á Lucj-, en öll hin
horfu á hana af mikilli samúð. Fí'ú Crowley
urðaði sig á því, að ekki skyldi líða yfjr hana.
En Lucy fanst eins og ísköld hendi liefði gripið
um lijartað og blóðið kreistist úr því. Ilún lagði
hart að sér að missa ekki vald á sér, reyndi að
liugsa skýrt, og loks sagði hún:
„Það getur ekki verið.“
„Hann var tekin fastur í gærkveldi og leidd-
Ur fyrir Bowstreet réttinn í morgun. Hann var
settur í gæsluvarðhald viku tíma.“
Augu Lucy urðu rök, en hún harkaði af sér
og tárfeldi ekki.
„Það var fallega gert af þér, Bobbie, að koma
hingað til þess að segja mér frá því“, sagði liún.
„Dómarinn félst á, að hann væri látinn laus,
gegn 5000 sterlingspunda tryggingu. Alice
frænka og eg lögðum fram féð,“ sagði Bobbie
vinsamlega.
„Er hann hjá Alice frænku núna?“
„Nei, honum fanst, að hann gæti ekki farið
til hennar. Hann fór til íbúðar sinnar í Shaftes-
bury AvenUe.“
„Veit Géorg þetta ?“
„Ekki enn þá“.
. Dick sá, að Iienni létti mikið. Hann rendi gi'un
í hvað hún hugsaði.
„En það vei-ður að segja honum frá því taf-
arlaust,“ hætti hann yið. „Hann rekst annars á
eitthvað um þetta i blöðunum. Við verðum að
tala við hann í síma þegar í stað“.
„Vafalaust hefði pabbi getað skýrt málið í
einni svipan — að þetta -væri ;á misskilningi
bygt.“
Bobby lyfti höndunum litið eitt, eius og til
þess að láta vonleysi i ljós. Hann sá hversu á-
kveðið augnatillit hennar var og liann gat ekki
fengið af sér að segja henni allan sannleikann.
Frú Crowley fór að gráta.
„Þú skilur þetta ekki, Lucy,“ sagði hann. „Eg
er smeykur um, að þetta sé mjög alvarleg ákæra.
Faðir þinn verður leiddur fyrir rétt og fær sinn
dóm,“ sagði Dick.
„Þú veist eins vel og eg, að pabbi hefir ekki
gert neitt ólöglegt. Hann er veikur fyrir — og
fljótfær, en hann fer ekki út í það að fremja
lögleysur. Honum mundi fyr detta í hug, að
freista að fljúga til tunglsins. Hafi hann, vegna
vanþekkingar sinnar í viðskiftum, framið eitt-
hvað ólögmætt, getur hann auðveldlega sann-
að, að það hafi ekki verið gert í illum tilgangi.“
„Hvað sem því líður, verður hann svara til
saka í Old Baijy“, sagði Dick alvarlega.
Honum skildist mæta vel; að Lucy skildist
alls ekki hversu alvarlega var ástatt fyrir föð-
ur hennar. Eftir fyrstu örvæntingarálirifin hall-
aðist hún að því, að það gæti ekki verið mikil
liætta á ferðum, — þetta gæti lagast.