Vísir - 11.05.1940, Side 2
VÍSIR
Lið hefir hvergi verið sett
á land nema i Reykjavik
og Akranesi.
Npurit íyrir ijni Þjóðverja á Ne^ðiifirði.
VISIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F.
Ritstjúri: Kristján Guðlaugsson
Skrifst.: Félagsprentsmiðjunni.
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12
(GengiS inn frá Ingólfsstræti).
Sím'ar 1660 (5 Iínur).
Verð kr. 2.50 á mánuði.
Lausasala 10 og 20 aurar.
Félagsprentsmiðjan h/f.
Sóknin mikla
maí 1940 verður vafa-
" laust minnisstæður dagur
í sögu okkar Islendinga. ÞangaS
til höfðum við setið hjá og horft
á hildarleikinn. Til skamms
tíma hafði okkur ekki til hugar
komið, að til þess gæti dregið,
að við yrðum nokkurn tíina
annað og meira en áhorfendur
að hverju því, sem yfir kynni að
dynja. Við höfðum trúað því að
lega landsins fjarri alfaraleið-
um, vopnleysi þjóðarinnar og
ævarandi hlutleysisyfirlýsing,
yrði okkur þær varnir, sem að
fullu haldi kæmi. Við höfum
lirósað happi yfir því að njóta
meira öiyggis en aðrar þjóðir
hér í álfu. Nú liöfum við fengið
að vita að hætturnar liafa vofað
yfir oklcur. Englendingar hafa
eett hér lið á land og hafið und-
irbúning til hervarna. Þeir skýra
þennan verknað á þá lund, að
með því einu móti yrði komið i
veg fyrir það, að við Iilytum
sömu örlög og nágrannaþjóðir
okkar á Norðurlöndum Hefði
þeir ekki komið, hefði aðrir
orðið fyrri til. Okkur tjáir ekki
að deila við dómarann. Við höf-
um mótmælt. Að öðru Ieyti
verðum við að treysta þvi, að
hernámið standi ekki stundinni
lengur en stríðsnauðsyn krefur.
Afleiðingar þessara athurða
verða ekki séðar fyrir. Það eitt
er víst, að vonir oldcar um full-
komið öryggi í skjóli hins ævar-
andi hlutleysis, eru að engu
orðnar. Við höfum dregist inn 1
hringiðuna.
En þótt þessir atburðir hefðu
ekki gerst hér á landi, er líklegt
að dagurinn í gær hefði engu að
síður orðið okkur minnisstæður.
Það er engu líkara en að ófrið-
urinn fram að þessu hafi verið
leikur einn hjá því sen nú er að
gerast.Þjóðverjar hafa lagt und-
ir sig Luxemborg og ráðist inn í
Holland og Belgíu. Þeir segja að
ef þeir hefðu ekki orðið fyrri til,
hefðu Bandamenn gert hið
sama. Jafnframt hafa verið
gerðar loftárásir á borgir i
Frakklandi og á Suður-Eng-
landi. Hermennirnir á Vestur-
vígstöðvunum hafa fengið þann
boðskap, að á þeim velta örlög
þjóða næstu 1000 ánn. Sóknin
mikla er hafin.
í Bretlandi hafa orðið stjórn-
arskifti. Chamberlain fór frá
stjórnarformenskunni í gær.
Hann liéfir þótt of hægfara og
aðgerðarlítill. Öll breska þjóðin
virðist nú sameinast um þá
harðskeyltustu forustu sem völ
er á. Nú er barist upp á líf og
daiiða. Það má búast við að
næstu dagar og vikur verði með-
al viðburðamestu og afleiðinga-
ríkustu tíma í veraldarsögunni.
Við horfum eins og allar aðr-
ar þjóðir með ugg og kvíða til
framtíðarinnar. Enginn veit hve-
nær létta muni j>eim ósköpum,
sem nú dynja yfir heiminn, né
hvernig. Við sjáum hvernig eld-
tungur sleikja þær stoðir, sem
menning heimsins er reist á. Við
heyrum livernig hriktir í hverju
tré. Það er ekki hægt að berjast
nema með ofbeldi. En j>að er
hægt að berjast fyrir öðru en of-
beldi. Örlög okkar og annara
smáþjóða velta á því, hver úr-
slit baráttunnar verða. Hvort
málstaður frelsis í athöfnum og
liugsun verður sigursæll eða
hvort hann verður að lúta.
Sóknin mikla er hafin. Um
allan heim standa menn á önd-
inni yfir því, sem nú gerist. Eng-
inn veit livað í blikunni býr.
Enginn veit livenær élinu léttir.
Við íslendingar verðum að vona
að málstaður frelsisins og rélt-
lætis fáí staðist eldraunina.
Okkur hefir dreymt um frjálsa
framtíð þjóðarinnar. Við skul-
um eklci gleyma því, að einnig
okkar örlög verða ráðin i þeirri
miklu sókn, sem nú er hafin.
Brc§knr liermað-
ur fotlirotnar.
y?INS og Vísir skýrði frá í
gær, hafði Rauða kross-
stöð Breta, sem aðsetur hafði í
Hótel ísland, lítið að gera, vegna
þess að fátt var um særða eða
fallna.
Ekki fór þó uppskipun var-
anna og skotfæranna alveg
slysalaust fram, þvi að einn
binna bresku bermanna mun
hafa fótbrotnað við uppskipun
á fallbyssum.
Hann mun hafa verið fluttur
í Landakotssjúkrahúsið eða
iþróttaliús í. R., en þar hefir
nokkur hópur aðsetur.
75 ára
verður á morgun, 12. maí, Margrét
Finnsdóttir, Eiriksgötu 37.
Kjalarnesssveitin.
Visir átti tal við Brautarholt
í morgun og fékk nokkrar upp-
lýsingar um ferðir Bretanna,
sem fóru um Kjalarnes. Héldu
þeir i gær að Hvammi i Kjós.
10 flutningabílar fylgdu liðinu,
og fluttu margskyns efni, e. d.
skotvopn, ýms verkfæri, svo
sem skóflur og haka, ennfrem-
ur girðingarefni o. fl. Megnið af
liðinu gisti i nótt að Arnarholti,
en þar eru miklar byggingar.
Allmargir komu og að Brautar-
bolti i margvíslegum erinda-
gerðum, en gistu þar ekki.
Munu þeir liafa í huga að búa
þar nokkuð um sig.
Frá Vestmannaeyjum
er símað, að í fyrrakvöld hafi
sést til stórs herflutningaskips,
er stefndi vestur með landi.
Ekki sást til annara skipa og
ekkert breskt herlið hefir verið
sett þar á land.
Frá Akureyri
símar fréttaritari Vísis og
kveður allar ságnir um land-
göngu bresks herliðs ekki liafa
við rök að styðjast. Þangað
bafa engin lierskip konrið. 3 eða
4 Þjóðverjar dvelja á Akureyri,
og bafa þeir gert ýmsar ráðstaf-
anir vegna skylduliðs síns, ef
svo skyldi fara, að jKvir yrði
teknir til fanga.
Frá Seyðisfirði.
Þangað kom í gærmorgun,
skv. skeyti frá fréttaritara Vísis,
vopnaður breskur togari. Lagð-
ist hann sem snöggvast að
bryggju, en skipverjar kölluðu
í land og spurðu, hvort þar væri
nokkurir Þjóðverjar. Þegar því
var neitað sigldi togarinn fráaft-
ur. —
Utarlega í firðinum beið stórt
skip eftir togaranum og sigldu
J>au bæði suður með landi.
I
Frá Siglufirði
símar fréttaritari blaðsins, að
ekkert hafi þar borið við. Ekk-
ert hefir þar sést til herskipa,
en eitthvað mun vera um Þjóð-
verja þar í bænum, og búast
menn J>ví við heimsókn Breta
senn hvað liður.
Frá Akranesi.
33 hermenn fóru J>angað í
gær og bafa þeir bækistöð sína
i gamla prestsselriim Görðum.
Hafa Bretar J>annig tekið sér
stöðu beggja vegna Hvalfjarð-
ar, í Brautarholti og Akranesi.
Hér í blaðinu í gær var að
mestu lýst hinni prúðmannlegu
framkomu ensku hermannanna,
sem gengu hér á land. Allur
þorri manna liér i bænum hag-
aði sér einnig sómasamlega, en
þó bar ýmislegt við, sem rétt
er að gefa gaum.
Það var fyrst og fremst til
leiðinda, að er hreinsað var til
á gistihúsum bæjarins, lentu í
bópi Þjóðverjanna flokkur
dauðadrukkinna manna, — ís-
lendinga, sem setið höfðu að
Jjjóri fram eftir nóttu og létu
sumir dólgslega meðan á flutn-
ingi stóð, en aðrir reikuðu um
göturnar með nokkurum háv-
aða og bækslagangi.
Þegar alt var um garð gengið,
safnaðist hópur manna, kvenna,
unglinga og barna utan um verði
J>á, sem víðsvegar voru í bæn-
um, og störðu eins og naut á
nývirki á þessa menn, sem
gengu fram og aftur á sínum
stað, eða stóðu við dyr gistihús-
anna. Þetta mátti stöðugt sjá
framan við Hótel Borg og á öðr-
um stöðum í miðbænum og var
það í fylsta máta óviðfeldið og
til leiðinda.
Sá er þetta ritar fór víðsvegar
um bæinn, eftir J>ví sem við varð
komið í gær og gærkveldi, til
J>ess að sjá hvað fram færi. Var
það athyglisvert að á hverjum
stað, þar sem Bretarnir voru við
vinnu sína, safnaðist að J>eim
hópur kvenna og unglinga, sem
voru svo nærgöngulir að furðu
sætti, að slíkt skyldi J>oIað. Ung-
lingarnir rjáluðu við allskonar
hluti, sem ó staðinn voru fluttir
t. d. byssur og verkfæri. Kven-
fólkið sumt var furðu gleiðgosa-
legt við Bretana og virtist sem
J>að fagnaði J>ví að þurfa ekkert
að sækja til liafnarinnar lengur.
Það skal þá sérstaklega tekið
fram, að hér var að eins um
nokkurar undantekningar að
ræða, en þær geta stórum spilt
áliti íslensku kvenþjóðarinnar í
augum allra siðaðra manna,
ekki síst Jieirra, sem hér eru ó-
kunnugir með öllu.
Eftir miðnætti í nótt var fáít
manna á ferli á götunum, en J>ó
var J>ar slæðingur af kvenfólki.
Sá er J>etta ritar ók fram hjá
einni setustöð Bretanna. Loguðu
þar Ijós, en til mikillar undrunar
fyrir þá, sem fraiii lijá fóru,
hékk eitthvað af kvenfólki þar
á gluggunum. Það væri full
ástæða til að lögreglan léti slíkt
til sín taka, þannig að einstak-
lingum leyfist ekki slík hegðun,
landi og l>jóð til skammar.
SAMÚÐARSKEYTI TIL
LEOPOLDS KONUNGS OG
WILHELMÍNU DROTN-
INGAR.
Georg Bretakonungur hefir
sent Leopold Belgiukonungi og
Wilhehnínu drotningu Hol-
lands samúðarskeyti. Það hef-
ir Hans heilagleiki páfinn einn
ig gert.
Nýlendubúarnir í hollensku
Austur-Asíu hafa vottað Hol-
landsdrotningu hollustu sína.
AF HVERJU HITLER HÓF
INNRÁSINA NÚ.
Blaðið Daily Telegrapli seg-
ir í morgun, að likur séu til,
að Hitler hafi ákveðið að hefja
innrásina í Holland nú, af því
að bann hugði stjórnmálalegt
Bandarikiii ogr
Iiernáni Itreta
á Mamli.
Fregn frá Washington herm-
ir, að stjómmálamenn í Banda-
ríkjunum hafi ekki viljað láta
neitt álit í ljós um hernám Breta
á íslandi, en segja, að við þessu
hafi mátt búast að, undanförnu.
Það er gert ráð fyrir, að her-
námið hafi farið fram til þess
að koma í veg fyrir, að Þjóð-
verjar kæmi sér upp flugstöðv-
um og kafbátastöðvum á ís-
landi.
Eftir að Þjóðverjar hertóku
Danmörku hefir Bandaríkja-
stjórn raunverulega yfirlýst, að
Grænland sé á áhrifasvæði Vest-
^rheims, en ísland tilheyri Ev-
rópu.
öngþveiti ríkjandi í Bretlandi
— þjóðin væri forystulaus og
sundruð, en því fer f jarri, sagði
blaðið. Þjóðin hefir aldrei ver-
ið ákveðnari í stríðsbaráttu
sinni en nú, og er undir það
búin, að halda henni áfram af
enn meira krafti, undir foryslu
nýs leiðtoga.
Lú&rasveit Reykjavíkur
leikur á Austurvelli kl. 2 á hvita-
sunnudag og leikur hún marsa og
islensk lög og ennfremur eftirfar-
andi lög: Finlandia, Symphoniskt
tónverk eftir Sibelius, Ouvertúre
Vasentasena, eftir Hause, Valsa-
syrpu eftir Robrecht, Amina, eftir
Lincke, Söngur til kvöldstjörnunn-
ar úr Tannháuser, eftir R. Wagner.
Mótmæli rikisstjórnar-
innar gegn hernáminn.
UTANRÍKSMÁLARÁÐUNEYTIÐ,
Reykjavík, 10. máí 1940.
Herra sendiherra.
Út af atburðum þeim, sem gerðust snemma í morgun, hemámi
Reykjavíkur, er hlutleysi íslands yar freklega brotið og sjálf-
stæði þess skert, verður íslenska ríkisstjórnin að vísa til þess,
að þann 11. apríl síðastl. tilkynti hún bresku ríkisstjóminni
formlega, fyrir milligöngu fulltrúa hennar hér á landi, afstöðu
íslensku ríkisstjórnarinnar til tillögu hennar um að veita Islandi
hernaðarvernd, 0g samkvæmt því mótmælir íslenska ríkisstjóra-
in kröftuglega ofbeldi því, sem hinn breski herafli hefir framið.
Þess er að sjálfsögðu vænst, að bætt verði að fullu tjón og
skaði, sem leiðir af þessu broti á löglegum réttindum fslands
sem frjáls og fullvalda hlutlauss ríkis.
Kveðjuorð . ..
sign. Stefán Jóh. Stefánsson.
Herra sendiherra Charles Howard Smith,
Reykjavík.
LÖGFRÆÐIS- OG FASTEIGNASKRIFSTOFU
höfum vid
opnað í Hafnarstræti
Reykjavík.
Önnumst kaup og sölu fasteigna, verðbréfa,
skipa, bíla og- ýmissa annarra verðmæta.
Gerum samninga, tökum að okkur innheimtu,
málflutning og önnur lögfræðisleg störf.
Höfum m. a. í umboðssölu:
1. Húseignir bæði við f jölfamar verslunargöt-
ur og í íbúðarhúsahverfum innan Hringbrautar, í
Skerjafirði og á Seltjarnarnesi. Höfum kaupendur
að húseignum hér í bænum, sérstaklega einbýlis-
húsum.
2. Erfðafestulönd í nágrenni Reykjavíkur þar
á meðal eitt með íbúðarhúsi og útihúsum.
3. Fimm vélbáta (6—45 tonn).
4. Nokkrar jarðir víðsvegar um land.
Ennfremur viljum við vekja eftirtekt á því að
við munum leggja sérstaka áherslu á kaup og sölu
loðdýra. Við höfum sambönd við nokkur stærstu
og bestu refa- og minkabú landsins.
Höfum kaupendur að veðdeildarbréfum.
Óskum eftir fasteignum og skipum í umboðs-
sölu.
Gnnnar Signrósson,’ iögfr. & Geir
Gnnnarsson, miðlari
Hafnarstræti 4. (Gengið inn frá Veltusundi). Skrifstofusími 4306. Heimasímar 5314 og 4306.