Vísir - 30.05.1940, Page 1
Ritstjóri:
Kristján Guðlaugsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð).
30. ár.
Ritstjóri Blaðamenn Sími:
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri S línur
Afgreiðsla
122. tbl.
ÞAÐ, SEM CHURCHILL ÁTTI VIÐ:
Me§*inliSiitI hvi'MÍ&m lier^inm fyrir iieFHan
Noinme verður að velfa inilli upp^jafar
o§* tortíming:ar-------------------------------------
EINKASKEYTI FRÁ UNITED PRESS. — London í morgun.
Imorgunblöðunum kemur það nú fram, að almenningi i Bretlandi er að verða
Ijóst, hvað Churchill átti við, er hann bað neðri málstofuna að vera við því
búna, að mikil og þungbær tíðindi kynni að berast næstu daga. Mönnum er
farið að skil jast, að það sem Churchill átti við, væri það, að mjög vafasamt er, að meg-
inþorra breska hersins fyrir norðan Sonnne verði undankomu auðið.
Stjórnmálafréttaritari News Chronicle segir í morgun, að þótt nokkur hluti hers Breta
og Frakka fyrir norðan Somme geti komist undan sjóleiðina, verði mikill hluti breska
hersins að likindum að velja milli uppgjafar og tortímingar. Hinar einangruðu her-
sveitir geta varla búist við því, að geta rutt sér braut þvert yfir skarð það, sem Þjóð-
verjar hafa myndað í víglínu Frakka, til þess að sameinast bresk-franska hernum fyr-
ir sunnan Somme.
Dailv Mail segir í ritstjórnargrein, að bresku hermennirnir verði að búa við hina stór-
kostlegustu skothríð, sem nokkur her hefir orðið fyrir — stórskotahrið, sem sé svoáköf,
að erfitt sé að gera sér í hugarlund hversu geigvænleg hún er.
Hermálasérfræðingar, sem skrifa um horfurnar á vígstöðvunum, segja að lier Wey-
gands sé stöðugt að búast um á Sommevígstöðvunum (fyrir sunnan Sommefljót) og
liafi her þessi mikinn f jölda vélknúinna hergagna.
Þeir benda á það í greinum sínum, að Bandamönnum sé nærri óbætanlegt tjón að
því, að missa hafnarborgirnar Calais, Dunkerque, Ostende og Zeebrúgge.
í tilkynningum Breta og
Frakka í morgun snemma seg-
ir, að her þeirra í Belgíu haldi
áfram undanhaldi sínu til sjáv-
ar og sé herinn ótvístraður. í
gærkveldi var tilkynt í Frakk-
landi, að tekist hefði að tefja
framsókn hersins, og hefði
Bandamönnum tekist að koma
sér upp varnarlinum, þar sem
veitt væri öflug mótspyrna. í
breskum tilkynningum í morg-
un segir, að flugherinn hafi
veitt her Bandamanna i Fland-
ern hina mikilvægustu aðstoð,
með stöðugum, árásum á her
Þjóðverja. Brottflutningur liers
Bandamanna fer fram frá Dun-
kerque, hafnarborg í Frakk-
landi, skamt frá belgisku landa-
mærunum. Þjóðverjar liafa gert
itrekaðar tilraunir til árása á
borgina og valdið þar miklum
skemdum, en þrátt fyrir það
liefir verið unt að halda áfram
brottflutningi he^sins, og er það
viðurkent af Þjóðverjum, að
herflutningaskip hafi komist
vfir sundið. Franskar og bresk-
ar hersveitir hafa komið sér
upp varnarstöðvum fyrir utan
Dunkerque og breskt sjólið að-
stoðar þá í vörninni.
Frönsk og bresk herskip taka
einnig þátt í henni og vemda
skipin, sem fljrtja lierliðið á
brott. Ilerlið er einnig flutt á
brott á herskipum.
Að svo stöddu verður ekki
sagt um liversu mildum hluta
hersins tekst að komast undan.
Er liér um mikinn lier að ræða.
Opinberlega liggur ekkert fyrir
um, hversu mannmargur hann
er, en það er giskað á, að í hon-
um séu 500.000—700.000 menn.
Að sjálfsögðu verður s'vo mik-
ill her ekki fluttur á brott í
skyndi, en aðstaðan við brott-
flutninginn er hin erfiðasta,
vegna stöðugra árása Þjóðverja
úr lofti.
Georg Bretakonungur sendi
Gort lávarði, yfirmanni breska
hersins, skeyti í gær, og lýsti að-
dáun sinni og þjóðarinnar á
lietjulegri vörn hersins. Sagði
konungur, að herinn í Flandern
liefði unnið afrek, sem væri
sambærilegt við hin mestu af-
rek, sem um gæti í sögu breska
hersins. Gort lávarður svaraði
með stuttu skeyti og þakkaði
orðsendingu konungs og kva'ö
lierinn mundu gera alt, sem
liann gæti, til þess að viðhalda
þeirri liefð, sem breski herinn
liefði unnið sér.
Síðustu íregnir.
I seinustu tilkynningum
Frakka segir, að her Frakka og
Breta haldi áfram að hörfa und-
an og sé Þjóðverjum veitt hin
hárðvítugasta mótspyrna á und-
anhaldinu og mannfall sé stöð-
ugt gífurlegt í liði þeirra. í til-
kynningunni segir, að barist sé
við Yserfljól, alt til Cassel, en
Yserfljót á upptök sín í Frakkl.
skamt frá Cassel, sem er 32 km.
suðaustur af Dunkerque.
Bandamenn berjast af hinni
mestu hreysti og þykir vörn
þeirra fyrir norðan Somme
hvarvetna hin frækilegasta.
Bretar skutu niður yfir 50
þýskar flugvélar í gær.
í tilkynningum Þjóðverja er
einnig rætt um bardagana við
Yser og vörn Bandamanna þar
talin vonlaus. Borgin Lille hefir
verið umkringd, segja Þjóðverj-
ar, og í Belgíu hefir þýskur her
farið gegnum Briigge og tekið
hafnarborgina Ostende. Þýskar
hersveitir eru komnar til Dix-
muiden. Vörn enska hersins í
Flandern er talin vonlaus, og
auk þess sem þýskar flugvélar
halda uppi stöðugum árásum á
Dunkerque hafa þeir nú aðstöðu
til þess að skjóta á borgina af
fallbyssum, en annarstaðar á
víðstöðvunum í norðurhluta
Flandern hafa Þjóðverjar nú að-
stöðu til þess að koma við fall-
byssum sínum.
Yfirlýsing Sir
Kingsley Wood.
Einkaskeyti frá United Press.
London í morgun.
Sir Kingsley Wood, fjár-
málaráðherra Bretlands, flutti
ræðu í neðri málstofunni i gær
og boðaði, að stríðsgróðaskatt-
urinn (excess profit tax) yrði
látinn ná til allra fyrirtækja í
landinu — en ekki aðeins til
þeirra, sem vinna að styrjaldar-
framleiðslunni. Skattur þessi er
100% og rennur því allur stríðs-
gróði til ríkisins.
Sir Kingsley sagði, að þjóðin
yrði að leggja á sig eins þungar
byrðar og liún frekast gæti bor-
ið, til þess að sigra, — en þjóð-
in hefði altaf sýnt það, er mikið
væri í lnifi, að hún væri fús lil
þess að inna liinar þyngstu
fórnir af hendi, og liann væri
sannfærður um, að hún myndi
gera það, og án þess að mögla.
Sir Kingsley sagði, að ráðgert
væri, að ofannefnd ákvörðun
vrði látin koma til fram-
kvæmda frá 1. apríl s. 1. Þá boð-
aði hann nýjar lántökur vegna
stríðsins.
Verkamenn beðnir að afsala
sér rétti til sumarleyfa.
I sti’iðsframleiðslu-verksmiðj-
um Bretlands er nú unnið dag
og nótt. Verkamálaráðherrann
hefir fai’ið fram á það við
verkamenn, að þeir taki ekki
Frh. á bls. 4.
LOFTÁRÁS. — Myndin er frá Siegfried-línunni og sýnir loftvarnaskyttur flýta sér úr byrgi sínu,
þegar merki er gefið um að loftárás sé í nánd. Að baki Siegfried-línunni er alveg sérstakt loftvarna-
svæði, sem kent er við Göring.
Ægileg loitárás á Bodð.
llorgfiu í riftstsiBu — að eius fá hn§
upinstandandi í litliverfuuuin.
EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun.
Þýskar flugvélar gerðu í fyi-rakvöld hina ægilegustu loftárás
á bæinn Bodö í Norður-Noregi. Fréttaritari Norsk Telegram-
byraa, sem nú starfar í Stokkhólmi, var sjónarvottur að loft-
árásinni, og var hann staddur ofarlega í hlíð, utan við bæinn,
er hún fór fram. Segir hann að varpað hafi verið á annað hundr-
að sprengikúlum og íkveikjusprengjum yfir borgina og einnig
var skotið af hríðskotabyssum á hús og fólk.
Bærinn stóð brátt í ljósum loga og að eins fá hús eru uppi-
standandi í úthverfunum. Opinberar bygging-ar, bankar, sjúkra-
hús, skólar, gistihús — alt stóð í Ijósum loga, er síðast frétt-
ist, og var þá talið, að eldurinn myndi loga í rústunum í marga
daga.
Til allrar gæfu höfðu rnargir íbúanna verið fluttir á brott.
Fréttaritarinn segir, að það hafi verið engu líkara en að, sérstök
áhersla hafi verið lögð á að leggja sjúkrahúsið í rústir, því að
sprengjum var varpað úr lítilli hæð á báða enda hússins. í
sjúkrahúsinu voru um 160 sjúklingar og voru þeir fluttir niður
í kjallarann og mun flestum þeirra hafa verið bjargað, en enn er
ekki kunnugt um manntjón. Eldur kviknaði í kolabingjum við
höfnina og mannvirkjum þar og var reykjarmökkurinn svo
mikill, að hann sást úr miklum hluta Norður-Noregs. Fréttarit-
arinn segir, að þegar íbúamir hefði haldið, að árásin væri um
garð gengin, og þeir voru að tínast úr skýlum sínum, kom þýsk
flugvél á ný og var skotið af hríðskotabyssum hennar á íbúana.
Fréttaritarínn lýsti hinni ægilegu loftárás sem níðingsverki,
er vart væri dæmi til — níðingsverki, sem norska þjóðin muni
aldrei gleyma.
Þúsundir manna eru heimilislausar eftir loftárásina.
Bandaríkin veita
Bandamönnum
aukna hjálp.
Slakað til á hlutleysis-
lögunum.
Einkaskeyti frá United Press.
London í morgun.
Cordell Hull, utanríkismála-
xáðherra Bandaríkjanna, hefir
slakað til á ákvæðum hlutleys-
islaganna, til þess að gera
Bandamönnum auðveldara að
kaupa flugvélar þær, sem
Bandaríkin hafa á boðstólum.
Kemur þetta sér sérlega vel nú,
þar sem stjórnin í Washington
hefir nýlega leyft útflutning á
allra nýjustu gerðum flugvéla,
en það var bannað xiður. Mátti
þá ekki flytja flugvélarnar út
fyrri en einu eða tveim árum
eftir að þær komu á markaðinn
í Bandaríkjunum.
Tilslaltanir á lihxtleysislögun-
um eru i því fólgnai’, að flug-
menn Bandai’íkjanna mega nú
fara með flugvélarnar yfir
landamæri Kanada. Áður var
þetta svo að þeir urðu að lenda
við landamærin og máttu ekki
fara lengra. Nú þui’fa þeir enn
að lenda við landamærin og ýta
flugvélunum yfir þau, en mega
svo fljúga áfram til New Bruns-
wick, Nova Scotia og Pi’ince
Edwai’dseyju.
Aðalborgin á þessum slóðum
er Halifax á N. S. — Flugmenn-
ii-nir mega ekki fara til Ný-
fundnalands.
ítalÍF fara i
stFídið inn-
an fáFra daga
segip Mussolini.
AMKVÆMT fregnum,
sem borist hafa frá
Ítalíu, hefir Mussolini látið í
ljós þá skoðun sína, að ítalir
geti ekki staðið lengur utan
við þann hildarleik, sem nú er
háður í Evrópu, og að það sé
aðeins um nokkura daga að
ræða þar til ítalski herinn
skerist í leikinn. Reynist sú
raunin á mun ófriðurinn
breiðast út til Norður-Afríku,
þ. e. a. s. nýlendna Frakka,
ftala, Egiptalands að vestan
og sunnan, og má þá einnig
vænta að Tyrkland verði ekki
aðgerðalaust.
Allmiklar æsingar eru einn-
ig á Spáni, en hann er enn I
sárum eftir borgarastyrjöld-
ina, og því ekki talið sennilegt
að Spánverjar taki þátt í
ófriðinum að svo komnu
máli. Hafa allhvassyrtar
greinar birst þar í blöðum að
undanförnu í garð Banda-
manna.
Sennilegt er að ítalir fari
gegn Frökkum strax er borg-
irnar við Ermasund eru falln-
ar í hendur Þjóðverjum, til
þess m. a. að gera þeim hæg-
ara fyrir um hernaðarráð-
stafanir gegn Bretum.
Heimssýningar-
frímerki.
Vegna þess, að ísland tekur
þátt í framhaldi heimssýningar-
innar í New York á þessu ári,
hefir fyrir noklcuru verið á-
kveðið að yfirprenta nokkuð af
eftirstöðvum sýningarfrímerkj-
anna, sem gefin voru lit i fyrra.
með ártalinu 1940.
Frímerki þessi sýndu m. a.
leiðina milli Evrópu og Amer-
íku um ísland.
Frímerki þessi gilda á alls-
konar póstsendingar til ársloka.