Vísir - 19.06.1940, Qupperneq 2
ViSIR
17.000 tonn af kolum keypt
til landsins.
Flutningsgjald lækkar um 30 shillings á
tonni.
Samkvæmt upplýsingum, sem Vísir fékk í morgun
hefir ríkisstjórnin gengið frá samningum um
kaup á 7000 smálestum af kolum, sem bráðlega
munu flutt til landsins. Hefir svo vel til tekist að náðst
hafa samningar um miklu ódýrari flutning á kolunum
en áður, þannig að flutningsgjaldið er nú ákveðið 50
shillings pr. tonn, en komst áður upp í 80 shillings. Mun-
ar því væntanlega allmiklu á kolaverðinu hér á staðnum,
með því að kolaverð á erlenduni markaði hefir haldist
nokkurnveginn óbreytt frá því sem var í vetur. — Þá
hefir Vísir frétt að kolakaupmenn hafi fest kaup á
10.000 tonnum af kolum, og mun þeim háfa tekist einn-
ig að fá flutningsgjöldin lækkuð í 50 shillings á tonnið.
Hafa þannig 17.000 tonn af kolum verið keypt til lands-
ins, og ætti sá forði að endast landsmönnum nokkuð, og
spara þeim mikið fé, miðað við það verðlag, sem var á
kolum í vetur.
Sumardvöl fyrir 2-300 börn
fengín síðustu daga.
Skemtanir í Hljómskálagarðinum á laugar-
dag og sunnudag.
Barnaverndarráð og Rauði Kross íslands hafa starfað af elju
og kappi að því, að koma börnum fyrir í sveit, og hefur starf-
semi þessi borið hinn ágætasta árangur undanfarna daga, og
eru endanleg svör þó ekki fengin enn nema frá nokkurum stöð-
um.
VÍSIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson
Skrifst.: Félagsprentsmiðjunni.
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12
(Gengið inn frá Ingólfsstræti).
Símar 1660 (5 línur).
Verð kr. 2.50 á mánuði.
Lausasala 10 og 20 aurar.
Félagspreijtsmiðjan h/f.
Kvenréttinda-
dagurinn.
QKKUIv finst það alveg sjálf-
sagður hlutur, að konur
hafi kosningarétt og kjörgengi.
En ætli að það hefði orðið upp-
lit á honum langafa okkar, ef
kelsa hans hefði þóst eiga er-
indi á kjörstað? Já, og ætli
blessunin hún langamma hefði
kært sig nokkuð um það?! —
Þetta er eiginlega alveg ný
uppáfinning, að vera að hafa
kvenfólkið með. Svo ný, að það
er ennþá verið að halda upp á
sérstakan kvenréttindadag. Al-
veg eins og kvenrétlindi séu
eitthvað frábrugðin almennum
mannréttindum. En þeir sem
muna 30—40 ár aftur í tímann,
minnast þess, að þá var barist
fyrir kvenréttindum og gegn
kvenréttindum. Og sú barátta
var engin uppgerð eða látalæti.
Nú er þetta alt saman búið og
gert. Stjórnmálabaráttan hefir
ekki tekið neinum stakkaskift-
um. Flokkamir ýtast þetta og
nudda. Ilatast um kosningar og
taka svo höndum saman í bróð-
erni, þegar þarf að bjarga landi
og þjóð, karlþjóð og kvenþjóð.
Kannske það séu eftir alt sam-
an systurnar, sem skapa bróð-
ernið? Hver veit? Konurnar
hafa altaf verið betri helming-
urinn. í kjósendahópnum eru
þær „stærri helmingurinn“. Ef
þær tækju sig til og skipuðu sér
í eina „kynvísa“ fylkingu, mætt-
um við karlmennimir biðja guð
að hjálpa okkur, þeir sem ekki
væra þá svo klókir eða kven-
hollir að fylgja meirihlutanum
möglunarlaust.
Það voru margir dauðhrædd-
ir um það, í fullri alvöru, að
konurnar mundu verða að ein-
tómum pilsvörgum, ef þær
færu að „vasast í pólitík“. Ef
reyndin hefði orðið sú, sem þeir
góðu menn kviðu fyrir, hefði
verið komnar upp háværar
raddir um að afnema öll kven-
réttindi, i guðanna bænum. Og
kröfurnar hefði vitanlega fyrst
og fremst komið frá konunum
sjálfum. En þetta hefir alt sam-
an útleiðst blessunarlega. Þama
koma þær 21 árs gamlar á kjör-
staðina, permanent krullaðar í
pjúrsokkum og lakkskóm, með
varasmyrsl og vangapúður,
krussa við A, B eða C með alveg
eins miklum sannfæringar-
krafti og skoðanafestu og lang-
afi þeirra hefði gert í sínurn
vaðmálsbuxum og skinnsokk-
um.
Konumar hafa haldið áfram
að vera konur, þó þær liafi orð-
ið þjóðfélagsborgarar með full-
um réttindum. Það er þeirra
Btóri sigur í kvenréttindamál-
inu. Réttindin og skyldurnar,
*em þeim fylgja, hafa ekki bætt
einni hrukku í þeirra ásjónu.
Þær hefðu áreiðanlega ver-
ið hrukkóttari, ef þeim hefði
▼erið synjað um réttindin. Ef
þeir, sem stóðu gegn kvenrétt-
indunum, hefði séð alt þetta
fyrirfram, hefði þeir játað villu
sína og snúið rakleitt við.
Konurnar gleyma því auðvit-
að ekki, að það voru karlmenn-
irnir, sem veittu þeim réttind-
Og karlmennimir gleyma því
ekki, að konurnar hafa farið vel
með þennan ré'tt. Þær hafa ver-
ið vandanum vaxnar. Þær hafa
ráðið fyrir körlunum sinum,
eða liaft þeirra ráð, alveg eftir
,styrkleikahlutföllunum‘ í sam-
búðinni. Heimilisfriðurinn hefir
haldist, alveg eins og áður var.
Vita menn til þess að hjúskap-
arslit hafi orðið út úr pólitísk-
um ágreiningi? Konurnar hafa
eldað og stoppað og stagað og
bætt, ekkert síður eftir að þær
fengu kosningaréttinn en áður
var. Þær hafa ekki vanrækt
heimilin. Þær hafa ekki van-
rækt börnin. Þær hafa ekki van-
rækt neitt. Þess vegna finst
okkur það alveg sjálfsagður
hlutur, að konur hafi kosninga-
rétt og kjörgengi. Það er aðeins
eitt sem okkur finst undarlegt
i dag: að það skuli ekki vera
nema 25 ár siðan ]>etta ljós
rann upp fyrir löggjöfum lands-
ins.
a
Sjómenn fá uppbót á
| J [ lifrahlutnum.
J^ÉTT fyrir helgina náðist
samkomulag milli sjó-
manna og útgerðarmanna, um
að sjómönnum yrði frá 1. jan.
að telja, greidd sama dýrtíðar-
uppbót á lifrina og greidd hef-
ir verið á hið fasta mánaðakaup
á sama tíma.
Sjómenn gerðu þá kröfu í
haust, að lifrarhluturinn liækk-
aði í hlutfalli við verðhækkun-
ina, sem orðið hefði á lifrinni,
en útgerðarmenn höfnuðu
þeirri kröfu vegna þess, að lifr-
arþóknun var samningsbundin
og lögfest, eins og fastakaupið.
Málið fór fyrir kauplagsnefnd,
en hún neitaði að kveða upp úr-
skurð í málinu.
Þegar svo var samið um á-
hættuþóknunina af nýju í vor
náðist heldur ekki samkomu-
lag þá.
Samkvæmt þeim samningum
sem náðust á föstudaginn
greiða útgerðarmenn hásetum
kr. 2.52 á hvert lifrarfat á tíma-
hilinu 1. janúar til 1. apríl, en
frá 1. apríl til 1. júlí kr. 4.41
á hvert fat. Eftir 20. apríl skift-
ist uppbótin aðeins milli 13
manna.
Reykjavíkurmótin.
K.R. og Víkingur
kvöld.
DÍÐARI umferð heldur áfram
í kveld og keppa þá K.R. og
Víkingur kl. 8 '/z* Annað kvöld
keppa svo Fram og Valur.
Eftir fyrri umferðina liafa
Víkingar 6 stig, svo að jieir
hafa mesta möguleika á að
vinna mótið. Þeir leggja því
kapp á að sigra K.R.-inga í
kveld og ætti það ekki að vera
sérstaklega miklum vanda
hundið, þegar borin er saman
frammistaða heggja félaganna í
fyrri umferðinni.
Þá má líka búast við spenn-
andi leik milli Fram og Vals
annað kveld. Valur hefir 4 st.,
en Fram ekkert, svo að Valur
hefir góða vinningsmöguleika á
mótinu, enda eiga þeir traust-
asta og jafnasta liðið.
Liðflutningar Kanada-
manna til íslands.
MacKenzie King skýrði frá
því í þingræðu í gær, að fyrstu*
herflokkar í því liði, sem Kan-
adamenn sendi til íslands, væri
nú þangað komnir.
Sumardvöl barna:
Á 3ja hundrað bömum
komið fyrir.
Mest áhersla hefir verið lögð
á að koma börnum fyrir á
sveitaheimilum, og í þeim til-
gangi liafa menn verið fengnir
til að fex-ðast um flestar sýslur
norðanlands, til að koma þar
fyrir kaupstaðarbörnum yfir
sumarið. Nú þegar er vitað um
allgóðan árangur í flestum eða
öllum sýslunum, en endanlegar
niðurstöður liafa ekki enn feng-
ist nema í Vestur-Húnavatns-
sýslu einni. Þar var 25 börnum
lofað sumarvist.
Þar sem þó sýnt þykir að ekki
komist nærri öll hörn á sveita-
heimili, sem þarf að koma burt
úr kaupstöðum, þá hefir fram-
kvæmdastjórn félaga þeirra, er
að þessum málum standa, leit-
ast fyrir um sumardvalarheinv
ili á nokkrum stöðum og er
þegar búin að fá loforð fyrir
Laugum i Suður-Þingeyjarsýslu
(tekur ca. 100 hörn), Staðarfelli
í Dölum (tekur ca. 50 börn),
Þingborg hjá Skeggjastöðum
og Brautarholt á Skeiðum (taka
samanlagt um 80 börn). Samn-
ingar standa yfir um fleiri staði,
en fullnaðarákvarðanir enn
ekki teknar.
Jónsmessuhátíð.
Leyfi hefir fengist lijá bæj-
arstjórn Reykjavíkur til að
halda skemtanir í Hljómskála-
garðinum á laugardaginn og
sunnudaginn kemur. Verður
þar mikið um skemtanir og á-
gætir skemtikraftar að störfum
M. a. verða þar ræðuhöld, söng-
ur, liljómleikar, íþróttasýninga.-
og dans.
Sunnarlega í hljómskálagarð-
inum verður komið fyrir ræðu-
jialli, ennfr. íþrótta- og dans-
palli. Þar verða og reist tvö stór
veitingatjöld, en konur — með-
limir félaga þeirra er vinna í
samráði með Rauða Krossi Is-
lands og Barnaverndarráði —
hafa lofað aðstoð sinni við und-
irbúning veitinganna og munu
þær að öllu standa fyrir þeim.
i
Happdrætti.
I sambandi við Jónsmessu-
hátíðina verður selt happdrætti
á götunum þessa daga og er
þar um að ræða tólf vinninga,
samtals 2—3 þús. kr. virði. —
Stærsti vinningurinn er hestur-
inn Geysir — þúsundkrónagrip-
iir — sem var á liappdrætti
Fáks á dögunum. Hlaut Þorst.
Scli. Thorsteinsson lyfsali hest-
inn og gaf hann svo aftur i
þetta happdrætti.
Foreldrar, sem hafa óskað
eftir fyrirgreiðslu Rauða Kross
íslands til þess að koma börn-
um sínum til sumardvalar í
sveit, eru heðnir að vera við því
húnir í dag og næstu daga að
útfylla umsóknareyðublöð, sem
kennarar konia með heim á
heimilin, og svara eftirfarandi
fyrirspurnum í þvi sambandi:
Um sveitaheimili:
a) Hefir framfærandi auga-
stað á heimili?
h) Er lieimilt að ráðstafa
harninu á heimili, sem talið er
heilbrigt og gott?
c) Getur framfærandi húið
harn sitt i sveitina og kostað
ferðir og dvöl?
Um sumarhæli:
a) Hvað getur framfærandi
greitt á mánuði?
h) Getur harnið liaft með sér
koddaver, sængurver og lök
(ein til tvenn) ?
Skrifstofa Rauða Krossins
svarar fyrirspumunum í sima
5063 og 4658 kl. 10—12 og 2—
5.
Framkvæmdanefndin.
NASISTAR ÆTLUÐU AÐ
HERTAKA URUGUAY.
Einkask. frá United Press.
London * morgun.
í Uruguay hefir komist
ípp um Víðtæk áform nas-
ista. Ætluðu þeir að leggja
landið undir sig og setja nas-
ista í öll embætti. Félags-
skapur nasista hafði safnað
vopnum og bifhjólum.
Gripið hefir verið til víð-
tækra varúðarráðstafana í
Uruguay og er m. a. verið að
auka herinn stórkostlega.
Þjóðgarðurinn
Eg var á ferð um Þingvalla-
hraun og Þjóðgarðinn laugar-
daginn 8. maí síðastliðinn, og
kom þá við í Hrauntúni og
Skógarkoti. Blöskraði mér um-
gengnin á þessum eyðijörðum,
sem eins og kunnugt er voru
lagðar í eyði fyrir fimm árum.
— Myndirnar, sem hér fylgja.
fer sildveiQiflotinn flr
hölo, - - hflít ekki sfl
flflflflið frfl ensku satun-
iflflfllll?
Samkvæmt upplýsingum, er
Vísir hefir aflað sér, er enginn
endi bundinn á íslensk-bresku
viðskiftasamningana, og því alt
í óvissu um afdrif þeirra.
Þrátt fyrir það vinnur ríkis-
stjórnin kappsamlega að því að
koma síldveiðiflotanum af stað,
og hefir ýmsar ráðstafanir með
höndum í því efni. Má telja
vafalaust að flotinn haldi mjög
bráðlega á veiðar.
Talið er að síld sé mikil fyrir
Norðurlandi, og með því að tíð
hefir verið ágæt nyrðra, og er
enn, getur það valdið miklu
tjóni, ef það skyldi dragast að
síldveiðiflotinn lialdi úr liöfn.
Nú eru veiðiskilyrði hin bestu,
sem á verður kosið, en fari flot-
inn ekki til veiða úr þessu, get-
ur það valdið óbætanlegu tjóni.
FUNDURINN í MÚNCHEN.
Frli. af 1. síðu.
honUm, m. a. utanríkismálaiáð-
herrarnir von Ribbentrop og
Ciano greifi. Að fundinum lokn-
um komu þeir Hitler og Musso-
lini fram á svalirnar og hylti
mannfjöldinn þá með miklum
fagnaðarlátum. Hitler fylgdi því
næst Mussolini á stöðina og
ræddust þeir við þar til þeir
skildu. Hitler fór frá Munchen
skönunu eftir, að einkalest
Mussolini fór þaðan.
Það hefir enn sem koniið er
elckert verið látið uppi um hver
niðurstaða fékst á fundinum.
ítalska fréttastofan Stefani gef-
ur í skyn, að Þjóoverjar og Italir
muni ekki koma fram af neinni
hörku við Frakka, en annað
hljóð er í þýskum blöðum og
útvarpi, og má af ummælum
þeirra húast við, að Þjóðverjar
dragi málið á langinn, og muni
í Ijós koma, að þeir hafi engu
gleymt frá 1918.
VOPNAHLÉ EKKI SAMIÐ.
BARDÖGUMIHELDUR ÁFRAM
Franska herstjómin tilkynti í
gærkveldi að ekkert vopnahlé
hefði verið samið, og fyrirhug-
aðar samkomulagsumleitanir
um vopnahlésskilmála væri ekki
byrjaðar, og bæri því hersveit-
um bandamanna að berjast
áfram. Var tilkynning herstjórn-
arinnar birt sem aðvörun, þar
sem Þjóðverjar höfðu notað
hvita fána, til merkis um, að
vopnaviðskifti væri hætt, og
á Þingvöllum.
tala sínu máli, og Þjóðgarð-
inum eru rústirnar svona út-
lits síst til prýði. Er þetta með
samþykki Þingvallanefndar eða
hefir hún aldrei koinið á hæ-
ina?
Reykjavik, 17. júní 1940.
Halldór Jónasson
frá Hrauntúni.
tókst þeim að treysta aðstöðu
sína á nokkrum stöðum með
þessu móti.
Það hefir vakið mikla atliygli,
að franska stjórnin hefir valið
fulltrúa páfarikisins í Frakk-
landi sem milligöngumann ítala
og Frakka. Þykir þetta benda til
að Frakkar ætli að vera við því
húnir að þreifa fyrir sér um
samninga við Itali jafnt sem
Þjóðverja.
En enn sem komið er, verðiu’
ekkert sagt með vissu um hvað
gerast muni. Það virðist vera
mest undir því komið hvaða
kostir Þjóðverjar og ítalir bjóða
Frökkum — verði þeir mjög
liarðir lítur út fyrir, að Frakk-
ar haldi áfram vörninni, a. m. k.
eftir yfirlýsingu Baudoin utan-
ríkismálaráðherra að dæma, en
yfirlýsingar í sömu átt liafa síð-
an verið endurteknar í franska
útvarpinu, þ. e. að Frakkar gef-
ist ekki upp skilyrðislaust.
Þjjóðverjjiir taka
kvcrja kor^ina aí
fæÉur anuari.
Þjóðverjar halda áfrani sókn
sinni og er ekkert lát á henni.
Þeir eru fyrir nokkuru búnir að
einangra Maginot-virkin og haf-
ast Frakkar nú aðeins við í fá-
einum þeirra, en þau verða
eyðilögð alveg á næstunni.
Ein mesta hergagnafram-
leiðsluhorg Frakka, Le Creusot,
er fallin í liendur Þjóðverja og
húast má við, að Lyon falli í dag
eða á morgun, ef ekki verður
samið vopnalilé áður. Eru Þjóð-
verjar komnir svo langt suður,
að þeir eru á móts við Genfar-
vatn.
fægri fylkingararmurinn er
víðast kominn yfir Loire og
hefir lekið fjölda horga. Held-
ur sóknin áfram og er vörn
Frakka alveg í molum. Fang-
arnir, sem Þjóðverjar hafa tek-
ið síðan sóknin frá Somme
liófst, skifta hundruðum þús-
unda, en engin leið er að áætlá
hversu rniklu herfangið neniur.
Smr flflskra flusvéla
jfir BrelW s. I. III.
Sjö þýskar flugvélar
voru skotnar niður.
Mikill fjöldi þýskra flugvéla
flaug inn yfir austurströnd Eng-
lands síðastliðna nótt og var
varpað sprengjum í náud við