Vísir - 22.06.1940, Side 3
VÍSIR
Ingibjörg Dahlmann
Fimtudaginn hinn 13. júní
bar dauða hénnar skyndilega
að, en næstkomandi mánudag
verður hún til moldar borin.
Frú Ingibjörg Iiafði verið lasin
um skeið, en engan grunaði, að
svo skjótt myndi sól bregða
sumri.
Frú Ingibjörg fæddist að
Strönd á Völlum á Fljótsdals-
héraði hinn 12. apríl 1875, og
voru foreldrar hennar .Tón
bóndi Eyjólfsson og Jóhanna
Sigurðardóttir kona hans.
Árið 1897 giftist frú Ingi-
björg Jóni Dahlmann ljós-
myndara, og dvöldu þau fyrst
á Austfjörðum, en árið 1900
fluttust þau hjónin lil Akureyr-
ar og bjuggu þar til ársins 1912,
en þá fluttu þau liingað til bæj-
arins og liafa búið hér síðan.
Eru börn þeirra hjóna: Sigurð-
ur pósl- og simastjóri á ísafirði,
Kaja gift i Kaupmánnahöfn,
Axel læknir, Dagmar ógift og
Ásta kona Egils Sigurgeirsson-
ar hdm. hér i bænum. — Tvö
börn mistu þau lijón, annað i
æsku, en hitt um tvítugt, og
fóru því eklci varliluta af raun-
um þeim, sem barnamissir
veldui',
Við» sem höfum margar
stundir dvalið á heimdli þeirra
Dahlmannshjónanna, minn-
umst frú Ingibjargar með sér-
stakri hlýju, með því að hún var
öllum þeim kostum búin, sem
vöktu traust og vináttu æsk-
unnar, og sjálf kunni hún þvi
vel að hafa hóp æskumanna á
heimili sínu. Hún var glaðlynd
kona, gáfuð og skemtin í við-
ræðum og ljúf í öllu viðmóti.
Heimili sínu stjórnaði hún með
mesta myndarbrag, og féll ekki
verk úr hendi, en manni sinum
reyndist hún ávalt hinn öruggi
og trausti lífsförunautur, enda
var hjónaband þeirra farsælt
með afbrigðum. Bæði voru þau
hjón gædd þeim kostum, sem
góða menn prýða, og vöktu
sameiginlega yfir hag og vel-
ferð barna sinna, en miðluðu
þeim, er i kringum þau söfnuð-
ust, ríkulega af gestrisni sinni
og höfðingsbrag.
Við, sem eigum að fagna vin-
áttu þessarar ágætu fjölskyldu,
mætum henni í innilegri sam-
úð, og þökkum liðnar stundir.
Við skiljum að það skarð stend-
ur opið og ófylt, sem nú er
höggvið í þeira hóp, en eftir
lifir þó hin ljúfasta minning
þess, sem var, og er það mikils
um vert. Við óskum þess, að
aldurhniginn eiginmaður frú
Ingibjargar öðlist styrk í þeirri
trú, sem hann er svo ríkur af,
og að börnum hennar megi
vegna vel og megi auðnast að
feta dyggilega í fótspor ágætra
foreldra. Við viljum gera óskir
frú Ingibjargar í þeirra garð, að
okkar óskum, en fyrir þau
starfaði liún heil og óskift til
hinstu stundar.
K. G.
boltann frá Högna í snörpu
upphlaupi og skoraði. — Valur
hugði nú að jafna leikinn en
varð að láta sér nægja að verja,
það sem eftir var fyrri hálfleiks.
Seinni hálfleikur hófst á
snöggu upphlaupi Framara,
sem ekkerl varð úr og skiftust
nú uppldaupin á, en er rúmar
20 mín. voru af leik fékk Björg-
úlfur boltann frá Ellert og ætl-
aði að hlaupa með liann að
marki, er Sig. Halldórsson brá
fæti fyrir hann. Vítaspyrna, sem
Ellert tekur. Mark!
Stóð nú leikurinn jafnt og
báðir böfðu fullan hug á að
vinna leikinn, en er af bráði
var sóknin Framara megin og
komust j>eir nokkrum sinnum
í færi og í einu þeirra fær Fram
vítaspyrnu á Val. Högni skaut,
boltinn lendir upp undir slána,
síðan niður á jörð og svo slær
Hermann hann út, en þá var
hann fyrir innan marklinu.Eftir
það varð nokkur harka i leikn-
um, en fleiri mörk voru ekki
skoruð.
Standa nú leikar þannig, að
Víkingur hefir 7 stig, Valur 4,
K. R. 3 og Fram 2 st.
b.
Sjúklingar
á Vífilsstöðum hafa beðið Vísi að
færa j>eim Kristínu Einarsdóttur,
Jónu Jónsdóttur og Gunnari Sigur-
geirssyni þakkir fyrir komuna og
skeintunina föstudaginn annan er
var.
Vísir.
Vcgna Hólaferðar prcntara, sem
stendur yfir1 til þriðjudagskvölds,
keinur nœsta blað Vísis ckki út fyrri
cn næslk. miðvikudag.
Messur á morgun.
1 dómkirkjunni kl. II, síra Sig-
urbjörn Einarsson, kl. 5, sr. Bjarni
Jónsson.
1 fríkirkjunni kl. 5, sr. Árni Sig-
urðsson.
I Laugarnesskóla kl. 2, sr. Garð-
ar Svavarsson.
í fríkirkjunni í Hafnarfirði kl. 2,
sira Halldór Kolbeins.
1 kaþólsku kirkjunni í Landakoti:
Lágmessa kl. 6.30 árd., hámessa kl.
9 árd. F.ngin síðdegisguðsþjónusta.
Nieturlæknar.
/ nótt: Páll Sigurðsson, Hávalla-
götu 15, sínii 4959. Næturvörður í
Ingólfs ajxkeki og Laugavegs apó-
teki.
Aðra nótt: Halldór Stefánsson,
Ránargötu 12, sími 2234. Nætur-
vörður í Lyfjabúðinni Iðunni og
Reykjavíkur apóteki.
Aðfaranótt þriðjudags: Alfreð
Gíslason, Brávallagötu 22, sími
3894. Næturvörður sami og áður.
Aðfaranótt miðvikudags: Axel
Blöndal, Eiríksgötu 31, sími 3951.
Næturvörður sami og áður.
Fimtug
er í dag frú Herdís Strörn, fædd
Guðmundsdóttir, Skólavörðustíg 3.
Helgidagslæknir.
Bergsveinn Ólafsson, Hringbraut
183, sími 4985.
Litla dóttir okkar,
Sigríöur Rut,
andaðist að heimili okkar, Langavegi 46, laugard. 22. júní.
Rannveig Oddsdóttir. Kjartan Friðriksson.
Islenskir
minnast 500 ára
prentlistarinnar.
Viðtal við Ólaf Erlingsson form. Hólanefndar.
Prentarar, bókbindarar og prentsmiðjueigendur hér í bæ
minnast í ár 500 ára afmælis prentlistarinnar(þ. e. a. s. prení-
unar með lausum stöfum) með því að fjölmenua að Hólum í
Hjaltadal dagana 23.—25. þ. m., en á Hólum var fvrstu prent-
smiðju þessa lands komið á Iaggirnar.
í lilefni af þessari ferð sneri
tíðindamaður Vísis sér til for-
manns Hólanefndar, Ólafs Er-
lingssonar.
„Þið ætlið á sunnudagimi af
slað norður?“
„Já við förum kl. 7 að morgm
með m.s. „Laxfoss“ upp á Akra-
nes, en þaðan förum við í bif-
reiðum sem leið liggur norður
yfir Borgarfj., Iloltavörðulieiði,
Húnavatnssýslur, Vatnsskarð og
norður að Hólum. Við etum og
drekkum þar sem við teljum
þess þörf, en áætlað er að vera
komið að Hólum kl. hálf ellefu
að kvöldi. Þá göngum við í
fylkingu og undir fánum lieim
á staðinn, þar snæðum við
kvöldverð og þar gistum við.“
„Hvað verðið þið mörg í ferð-
inni ?“
„Um 170 manns, sem fara
liéðan, en svo koma Akureyrar-
]irentarar til móts við oklcur í
Vatnsskarð og verða okkur sam-
60 ára
verður n.k. mánudag frú Jóhanna
Gísladóttir, Ránargötu 10.
Hjúskapur.
í dag veröa gefin sainan i hjóna-
band ungfrú Sigrún Jónsdóttir,
Hverfisgötu 66 og Sigurjón Sig-
urðsson, deildarstjóri i Kaupfélagi
Reykjavíkur og nágrennis. Heimili
þeirra verður á Vifilsgötu 6.
Stundum og stundum ekki,
skopleikurinn, sem Leikíélagið
hefir verið að sýna, var sýndur i
25. sinn síðastl. föstudag. — Næsta
sýning verður annað kvöld, en i
næstu viku verður hætt að sýna
þennan skemtilega leik vegna þess,
að sumir leikararnir fara úr bæn-
um.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 19.30 Hljómplötur: „Galdra-
nemandinn“, tónverk eftir Ducas.
20.00 Fréttir. 20.30 Upplestur:
„Þýskalandsför Kobba gamla“, saga
eftir Nexö (ungfrú Solveig Guð-
nrundsdóttir). 20.45 Útvarpstrióið:
Einleikur og trió. 21.05 Upplestur:
Kvæði (Steinn Steinarr), 21.20
Danslög til kl. 23.00.
Sextug
verðun á morgun frú Nikólína J.
Þorsteinsdóttir, Ljósvallagötu 8.
Forðum í Flosaporti.
Sýning á þessari bráðfyndu revyu
verður næstk. mánudagskvöld kl.
8p2. Fer nú hver að verða síðast-
ur, því að sýningum verður nú
hætt. Aðgöngumiðar seldir á morg-
un (sunnud.) kl. 4—77, og er viss-
ara að koma þá, svo að ekki þurfi
menn frá að hverfa, eins og átti
sér stað á síðustu sýningu.
Gengið í dag.
Sterlingspund .......... kr. 23.38
100 Dollarar .......... — 651.65
Smalað
verður í Breiðholtsgirðingunni á
morgun (sunnudag) kl. 1 og alt
fé rekið á afrétt.
ferða heim að Hólum. Samtals
verða tæp 200 manns, er gista
staðinn.“
„Gistið þið í tjöldum,?“
„Við gistum i bráðskemtileg-
um gististað, sem allir mega öf-
unda okkur af.“
„Er það fjósið?“
„Tja, það segi eg ekki. En
við gistum í heljarstórri flat-
sæng, nema þeir allra viðkvæm-
ustu, þeim verður séð fyrir
rúmum.“
„Er þessi flatsæng bæði fyrir
karla og konur?“
„Eg segi það ekki, því eg vil
ekki koma neinu óorði á okkur.
En eg vil samt segja þér í trún-
aði, að ef þú vilt einhverntíma
stofna til hópferðar og fá margt
fólk í förina, þá skaltu bara aug-
Iýsa flatsængina — og aðsóknin
er trygð.“
„Ætlið þið einhverntíma að
vakna á mánudagsmorguninn?
„Eldsnemma, meira að segja.
Sá sem ekki er búinn að opna
augun kl. 7 að morgni fær vafns-
gusu framan í sig. Annars er
þetta sjálfsagður hátíðisdagur.
24. júní er kallaður Gutenbergs-
dagur hvarvetna um heim og sá
dagur er talinn vera „afmælis- ,
dagur prentlistarinnar.“
„Og á hvern liátt minnist þið
þess, íslenskir prentarar og bók-
iðnaðarmenn?“
„Við gerum það með veislu-
höldum, skrúðgöngum, guðs-
þjónustu, söng og ræðuhöldum,
skuggamyndasýningum, hljóÖ-
færaslætti og dansi, auk þess
sem við skoðum Hólastað undir
leiðsögn Gunnlaugs Björnssonar
kennara.“
„Og svo náttúrlega i flatsæng-
ina aftur.“
„Já, og daginn eftir böldum
við sömu leið heim. Við komum
á miðnætti á þri<jjudagskvöld til
Reykjavikur, vonandi enn glað-
ari og ánægðari en við fórum,
enda þótt ekki sé liægl miklu við
það að bæta.“
„Geturðu sagt mér nokkuð
fleira um ferðina?“
„J:á, eg gæti alveg fylt Vísi i
dag, ef þú bara vilt. En eg hefi
svo mikið að gera í sambandi
við undirbúning ferðarinnar, að
eg ætla að eins að drepa á örfá
atriði. Þess má t. d. geta, að allir
lielstu viðburðír ferðarinar
verða kvikmyndaðir. Þess má
lika geta, að þetta er ein stór-
kostlegasta liópferð, sem farin
hefir verið hér á landi bin síð-
ustu ár. Og loks má ekki gleyma
þvi, að þetta er eina tækifærið
sem gefst til að núnnast 500 ára
afmælis prentlistarinnar. I sam-
bandi við ferðina hefir verið
gefin út leiðangurslýsing í bók-
arformi — besta bók ársins
vitaskuld.“
Revýan
1940
Forðum í
Flosaporti
Sregna þess, hve margir urðu
frá að hverfa á síðustu sýn-
ingu verður
sýning mánudagskvöld
kl. 81/2.
Aðgöngumiðar seldir á
morgun -sunnudag) kl. 4—7.
Sími 3191.
NINON
Spotlllíssir
00 olls
margar gerðir og
litir.
BANKASTRÆTl 1
Tii sölu eða ieigu
<óður trillubátur, 4—5 tonn.
Fylgir kr. 600.00 (styrklar-
lán). — Uppl. hjá Halldóri,
Hringbraut 146, 23. og 24.
júní kl. 4—7.
K. F. U. M.
Almenn samkoma ld. 8V2.
Ræðumenn tveir. Atlir vel-
komnir.
i ágætu standi til sölu. Verð
krónur 3000,00. — Til sýnis
Reynimel 3J. — Uppt.
5452 eða 3410.
snm
VÍSIS KAFFIÐ
gerir alla glaða.
DUGLEGA
stúilkn
*. í > ( .
vantar í e’Idhús Elli- «jg
hjúkrunariuúmilisins Grund.
Uppl. gefui ráðskonan i dag
kl. 4—7. Uppl. ekki gefnar í
sima.
Aðaíundur
Sambands ísl. samvinnufé-
laga hefst að Laugarvafni
mánudaginn 24. júní næstk.
kl. 9 fyrir hádegi
Sambandsstj örnin
Sumarstarfsemi
K. F. U. K.
Síðastliðið sumar liafði K. F. U. K. sumariiústað fjTÍr fétága
sína að Straumi við Hafnarf jörð. Þykir þeim sem þar hafa dval-
ið staðurinn aðlaðandi og útsýni tilkomuniikið og fagurt. Ee nú;
í ráði að félagið haldi starfsemi jiessaiÆ áfram 1 sumar, og eru
allar félagssystur hvattar til Jiess að notfæra sér þeíta..
lngai* síúlkui*!
Atlmgið: Dagana 4.—11. júli geta stútkur J4—18 ára dvalið
á þessunt fagra stað , í viku-flokk. — Þátf íökugjakF er 157Er.
með ferðum — Allar upplýsingar þessu viðvikjandi eruí gefiiar
á hverju kvöldi í húsi félagsins frá'kl. 8—10. — Sími 3437,_
STÚLKUR frá aldrinum 10—13 ára, munu fá tækifæri tifþess,
að dvelja í þriggja daga-flokki dagana 11.—14, júlí. — Þátttökm
gjald 7,50 með ferðum.
Óskum eftir að fá nöfn ykkar sem allra fynjt,:
Við væntum góðrar þátttöku.
Velkomnar að Straumi.
SUMARSTA RFSNEFFTD K. F. U. ÍL
K.A. (Meistira
Víkingur
Keppa á morgun kl. 8,30
!f
)