Vísir - 10.10.1940, Blaðsíða 1
Ritstjóri:
Kristján Guðlaugsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð).
30. ár.
Ritstjóri
Blaðamenn Sími:
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri S línur
Afgreiðsla
234. tbl.
Hræðileg grimdarverk
í Ungverj alandi.
440 manns myrtir í Transylvaniu -
LOFTSTYRJÖLDIN
SEINUSTU DÆGUR.
Lxjndon í moreun.
EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun.
Um leið og fregnir berast frá Belgrad um, að Þjóð-
verjar auki stöðugt lið sitt í Rúmeníu og mikið
lið með skriðdreka og loftvarnabyssur sé á
leið niður með Dóná, hefir frést, að mjög hefir kastast
í kekki milli Ungverja'og Rúmena. Ungverjar saka
Rúmena um grimdarlegar aðfarirgagnvartungverskum
mönnum í Rúmeníu, en Horia Sima, leiðtogi járnvarð-
liðsmanna flutti ræðu í gær og bar gagnsakir á Ung-
verja. Sagði Sima, að síðan er Ungverjar fengu Tran-
sylvaníu hef ði þeir myrt með köldu blóði um 440 Rúm-
ena — hengt þá eða skotið, án þess þeir hef ði nokkuð til
til saka unnið. Ungverjaland hefir ekki virt hið frið-
samlega samkomulag, sem gert var, sagði Sima.
Ungverjar skera tunguna úr rúmenskum mönnum. sagði
Sima ennfremur, áður en þeir drepa þá, og þeir hafa neglt rúm-
enska flaggið á bök þeirra, áður þeir voru brendir á báli á torg-
unum í borgum Transylvaníu. Sumir hinna ofsóttu manna voru
hengdir þannig, að höfuðin vissu niður, og aðrir voru skornir
á háls.
ERU ÞJÓÐVERJAR AÐ HÓTA RÚSSUM?
Þær tilgátur hafa komið fram, að Þjóðverjar hafi sent lið til
Rúmeníu, til þess að koma í veg fyrir styrjöld milli Rúmena og
Ungverja. Tyrkir ætla, að Þjóðverjar séu að ógna Rússum meö
því að flytja herafla til Rúmeníu.
Rúmenia og
Bretland.
Verður stjórnmála-
sambandinu slitið í
dag?
Breski sendiherrann í Bukar-
est ræddi við Antonescu forsæt-
isráðherra Rúmeníu í gær. Við-
talið var langt, en árangurinn
neikvæður, að því er sagt er í
breskri tilkynningu. Sendiherr-
ann hafði áður spurst fyrir um
það, hvort rétt væri, að þýskt
herlið væri að taka sér bæki-
stöðvar í Rúmeníu, en fengið
loðin svör, eða undanfærslur.
Er nú talið, að til þess kunni að
koma þá og þegar, að stjórn-
málasambandi Bretlands og
Rúmeniu verði slitið.
Það varð kunnugt í gær, að
12 símskeyti frá sendisveit
Breta í Bukarest, liafa ekki
komist til skila. Var frá þessu
skýrt í Reuterfregn. Er talið
víst, að töfin stafi af því, að til-
raun hafi verið gerð til þess að
linýsast i skeytin, en sum þeirra
voru á dulmáli.
Það er vitanlega injög mikið
um það rætt, livað fyrir Þjóð-
verjum vaki, með því að senda
lið til Rúmeníu. Það er nú talið
nokkurn veginn víst, að þeir
ætii að iiafa þar herlið á flestum
hernaðarlega mikilvægum stöð-
um. En ýmsar getgátur eru uppi
um það, að þeir ætli sér að
sækja fram lengra suður. á Balk-
an og jafnvel til Litlu-Ásíu, og í
tyrkneskum og egipskum blöð-
um kemur fram sú skoðun, að
ákvörðun í þessa átt lcunni að
liafa verið tekin á fundi þeirra
Mussolinisog'Hitlers á dögunum
— og, að ákvörðunin liafi verið
íekin vegna þess, að innrásar-
fyrirætlanir Þjóðvérja hafi far-
ið út um þúfur, og verði því að
leitast við að vinna sigra á öðr-
um vettvangi, til þess að trú al-
mennings á Italíu og í Þýska-
landi á leiðtogunum haldist ó-
skert.
En í öllum getgátum um hver
vera kunni áform Þjóðverja í
auturhluta álfunnar er að þvi
vikið, að eklcert verði sagt um
afstöðu Rússa, en vitað ex% að
þeir vilja liafa aðstöðu lil þess
að láta áhrifa sinna gæta á
Balkanskaga, og þeim er ekki
um, að Þjóðverjar fái sömu
álirifaaðstöðu í Asíu og þeir. —
Seudilxerra Bi-eta í Rúmeníu
hefir ráðlagt hresku fólki þar
að fara úr landi, og liefir sumt
af því Jxegar farið að því ráði, en
annað er ferðbúið, en fer þó ekki
að svo stöddu.
FRÉTTIR
í STUTTU MÁLl
Ameriskar útvarpsstöðvai-
liafa skýrt frá því, að fjórir
fimtu hlutar alli’a matvæla-
farma, sem komi til Marseilles,
sé gerðir upptækir til handa
þýska hernum í hinum lxer-
numda hluta Frakklads.
•
Liðsafnaður gengur svo vel i
Kanada, að lierinn þar er nú að
nálgast liiálfa miljón manna.
•
Sparnaðai’herferðin. sem haf-
in er í Bretlandi, gengur mjög
vel. Samtals liafa rúmlega
150.000 sparíiaðai’félög verið
stofnuð víðsvegar um landið.
•
Til stuðniiigs við liina „frjálsu
Frakka“ í Brétlandi, hafa verið
stofnaðar styrktarriefndir í
næstum öllum hlutlausum lönd-
um og þeir hafa fullti’úa i 20
löndum.
•
Bretar hera Þjóðverja þeim
sökum, að þeir liafi síðuslu tvær
vikur tekið 1 miljóu svína,
200.000 nautgi’ipi og 58% af
kornuppskeru Frakka til sinna
þarfa.
Breskar sprengjuflugvélar
gerðu árásir með miklum ár-
angri i fyrrakvöld og fyrrinótt
á hernaðarstöðvar Þjóðverja á
meginlandinu. M. a. voru gerð-
ar árásir á Bremeu, þar sem
eldur kom upp á 14 stöðum,
Wilhelmshaven, Essen (Krupp
verksmiðjurnar), Hamborg
(olíustöðvar) o. s. frv. Þrátt
fyrir það að loft var skýjað og
flugskilyrði ekki sem best,
voru gerðar harðar árásir á
Calais (í 4 klst. samfleytt) og
aðrar Ermarsundshafnir, sem
Þjóðvei-jar hafa á valdi sínu.
Þjóðvei’jar gex-ðu árásir á
London í gærkvöldi. Tunglskin
var og flugskilyrði góð. Áköf
skothríð var hafin úr lofl-
varnabyssum og skotið á flug-
vélarnar og sviflxlys þau, sem
flugmennirnir vörpuðu niður.
Árásir voru einnig gerðar á
staði í Norðvestui’-, Norðaust-
ui’- og Suðvestur-Englandi. í
Londoti og mörgum öðrum
stöðum varð tjón allmikið á
húsum og nokkurt manntjón.
Átta þýskar flugvélar voru
skotnar niður i fyrradag og
varð sprenging í einni þeirra í
lofti. Fjórar þýskar flugvélár
voru skotuar niður í gær og
ein bresk.
De Gaulle dregur upp íána hinna
frjálsu Frakka í Kamerun.
EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun.
Fregnir bárust um það til London í morgun, að De Gaulle,
leiðtogi hinna frjálsu Frakka, væri kominn til Kamerun í Afríku,
og hefði honum verið tekið þar með kostum og kynjum. Fáni
hinna frjálsu Frakka blaktir nú yfir Kamerun.
Landstjórinn í Kamerun tók sjálfur á móti De Gaulle, sem
kom þangað í frönskum fallbyssubiit. Mikill mannsöfnuður
hylti de Gaulle og kannaði hann herlið, er hann steig á land, en
því næst var haldið til bústaðar landstjórans, og hinir innfæddu
höfðingjar kyntir fyrir De Gaulle.
Landstjórinn futti ræðu og kvað Kamerunbúa mundi berjast
áfram, þar til Frakkland væri frjálst aftur.
STYRJÖLD MILLI JAPAN
OG BANDARÍKJANNA LÍK-
LEG — SEGIR YARNELL
AÐMÍRÁLL.
London í morgun.
Fregn frá Philadelpliia
hermir, að Yarnell aðmiráll,
fyrrverandi flotaforingi Asíu-
flota Bandarikjanna, hafi
flutt ræðu og komist þannig
að orði, að lildegt væri, að til
styrjaldar,kæmi við Japan.
„Við eruin sennilega betur
undir það búnir, að til átaka
komi við Japani nú en að sex
árum liðnum, þegar „tveggja
lxafa floti“ Bandaríkjanna er
tilhúinn. Við getum ekki stutl
aðra þjóð með öllum þeim
meðulum, sem við höfum yf-
ir að ráðd, án þess að fara í
strið — og hætt svo. Þar fyi’-
ir vakir það ekki fyrir stjórn-
ixxni í Washington að livetja
til styrjaldar, hún xxiun gera
alt sem hún getxxr til þess að
afstýi’a styrjöld. Eins og
stendur getxxr Kyrraliafsfloti
Bandai’íkjanna mætt því, sem
að höndum ber í Asíu, svo
fremi að breski flotinn sé ó-
sigraður í Atlantshafi.“
*
Pctain flytur lítvarpsræðn
I¥ýtt isiklpiilagr.
London í morgun.
Fregn frá Vichy hermir, að
Petain márskálkur hafi flutt út-
arpsræðu, og skýrt frá því, að
ríkisstjórnin hafi að undan-
förnu unnið að undirbúningi
nýs stjórnarfyrirkomulags.
Verður gerð nánari grein fyrir
þessu í dag. Alt fjárhags- og at-
vinnulíf þjóðarinnar verður sett
Kviknar 1 Lv.
Alden í Slippnum
f moi’gun á tíunda tímanum
var slökkviliðið kallað vestur í
Slipp. Hafði kviknað í línuveið-
aranpm Alden, sem þar er í við-
gerð.
Kviknað hafði í frammi í há-
setaklefa skipsins, seniiilega frá
logsuðutæki, sem notað var við
viðgerðina á skipinu. Tókst
slökkviliðinu að kæfa eldinn
fljótlega.
Skemdir urðu litlar. Þurfti
að í’ífa nokkrar þiljur, tíl þess
að ráða niðurlögum eldsins.
undir stjórn og eftirlit hins op-
inbera. Er hér um gagngera
byltingu að ræða í þjóðfélags-
málum Frakklands.
I . ......... ...........
Yfirmaður Canada-
hersins í Bretlandi
G. R. PEAKES, major-general,
frá Calgai’z, Albcrta lxefir verið
skipaður yfirforingi fyrsta
canadiska herfylkisins í Bret-
landi.
Japanir taka ákvðrðnn
Breta með rð.
Auiaað Biljóð i japönsku Iilöðiinum.
Það var alment búist við því, er Bretar tóku ákvörðun sína
um, að opna Burmabrautina til hergagnaflutninga (til Kína) á
ný, að Japanir myndi grípa til gagnráðstafana. Það var jafn-
vel búist við, að til styrjaldar kynni að koma milti Bretlands og
Bandaríkjanna annarsvegar og Japan hinsvegar, en þar með
væri í rauninni skollin á heimsstyjöld, með þessu væri styrjald-
irnar í Evrópu og Asíu sameinaðar (New York Times). Og sú
hætta er engan veginn liðin hjá, þótt Japanir hafi nú boðað, að
þeir muni ekki grípa til gagnráðstafana.
Það var talsmaður japanska
utni’íkismálaráðuneytisins, sem |
lýsti yfir því í gæi’, að ekki yx’ði
gripið til gagnráðstafana. Við-
liorf japönsku blaðanna liefir
breyst skyndilega. Þar til fyr-
ir skemmstu höfðu sum þeirra
í hótunum — sögðu beinum
orðum, að styrjöld gæti orðið
afleiðingin, ef Bretar fram-
lengdu ekki samkomulagið um
Burmabrautina, Bretar yi’ði að
taka afleiðingunum af gerðurn
sínuin o. s. frv. Nú lialda hlöð-
in'því fram, að það skifti svo
sem. engu nxáli, þótt brautin sé
opnuð á ný, til hei’gagnaflutn-
inga, vegna þess, að Japanir
liafi ixú flugstöðvar í Franska
Indókína og geti gert árásir á
Burmabrautina þaðan og
hindrað hergagnaflutningana.
Eru tilnefndir tveir staðir á
brautinni, senx auðvelt sé fyr-
ir Japani að gera árás á, en
báðir eru í Kina, svo að til
áreksturs við Breta kemur ekki
út af ásásunx á þá.
í Bretlandi og Bandaríkjun-
uixi er litið svo á, að japönsku
blöðin séu að reyna að bera sig
borginmannlega með þvi að
lxalda þessu franx. Nú sé kom-
ið annað hljóð í strokkinn,
þegar festa sé sýnd. Jafnfraiíit
er hent ét það, að mjög vafa-
sanxt sé, ftð Japanir geti liindr-
að flutninga um brautina mcð
loftárásum. Tugþúsundir Kín-
verja hafa lagt franx krafta
sína til þess að leggja þennan
veg, aðallega með liandverk-
færum, og þúsundir Kínverja
munu óðara gera við allar
skemdir, sem á brautinni
verða.
Þá lialda japönsku blöðin
því fram, að Brelar og Bandá-
ríkjamenn ætli að lxeita Jap-
an vlðsltiftalegulii refsiaðgerð-
unx, en segja, að það muni ekki
ná þeim tilgangi, sem ællasl
sé til, þvi að Japanir geti fcng-
ið öll þau lxráefni, sem þeir
þarfnast frá franska Indokina,
hollensku Austur-Asíu og Suð-
ur-Ameríku. En bresk og ame-
rísk blöð benda á, að nxegnið
af þeim hráefnum, senx .Tapan-
ir lxafa flutt inn, sé frá Banda-
ríkjunum og breskum löndum,
og sumt af þeirn (nenxa að
mjög litlu leyti) geti þeir alls
ekki fengið annarsstaðar.
KYRRAHAFSFLOTI
BANDAR ÍI< JANNA
HAFÐUR REIÐUBÚINN.
Það er auðséð á öllu, að
!
Bandarikin ætla að vera við
öllu búin. Það er nú verið að
útbúa og nxanna öll herskip
Kyrrahafsflotans og verið að
senda mikið sjólið til Hawai,
en þar er ein mesta stöð Banda-
ríkjaflotans. Með fyi’stu f-lota-
de'ldinni. sem hangað fer frá
Kaliforníu, til eflingar þeim
flota, senx fyrir er á Hawai,
fara 4200 sjóliðar úr varasjó-
liðinu.
Kosning i
fulltrúaráð
fJinræðiiriiar a
Aarðarftiiidiniiiii
SVo sem getið var hér í blað-
inu í gær var fyrsti fundur
Varðarfélagsins haldinn í gær-
kveldi.
Fyrir lá að kjósa mann i lxús-
næðisnefnd og hlaut Magnús
Jónsson prófessor kosningu. —
Þá voru eftirlaldir 12 menn
kosnir i fulltrúax’áð sjálfstæðis-
félaganna: Sveinn Sveinsson,
framkvæmdastjóri í Völundi,
Hafsteinn Bergþórsson útgm.,
Magnús Gíslason skrifst.stj., dr.
Bjöxn Björnsson, Hallgrimur
Benediktsson stórlcm., Guðni
Jónsson mag., Guðjón Jónsson
bx-yti, Bjöx-n Ólafsson stórkm.,
Magx^ús Joclxumsson póstftr.,
Einar Ásmundsson lögfr., Þor-
steinn Þorkelsson verslm.. og
Þorteinn Árnason vélfræðingur.
Árni alþm. Jónsson frá* Múla
lióf umræður unx stjórnarsam-
vinnuna, og ræddi það sem unn-
ist liefði og hitt, sem miður
hefði farið. Urðu allmiklar um-
ræður um málið og kvöddu
þessir menn sér hljóðs: Hannes
Jónsson verkanxaður, Vilhelm
Stefánsson prentari, Jóhann Jó-
sefsson alþm., Jónas Jónasson
verkamaður, Bjai-ni Benedikts-
son borgarstjóri, Jakob Möller
fjármálaráðherra og Hallgrim-
ur Benexliktsson stórkaupm.
Fófu umræður pxýðilega fram,
þótt ýms og ólík viðhorf kæmu
fram á fundinum.
Sjómannablaðið Víkingur,
septeniberhefti II. árg., er ný-
koniið út. Efni er m. a.: „Stýri-
mannaskólinn" eftir Friðrik Ólafs-
son skóiastjóra. „Hvað er nú orðið
okkar starf í 50 sunxur?“ eftir Ás-
geir Sigurðsson skipstjóra. „Vél-
stkólinn 25 ára“ eftir Þorkel Sig-
urðsson vélstjóra. „Engin sérrétt-
indi — aðeins jafnrétti" eftir Frið-,
rik Halldórsson loftskeytamann.
„Aðbúðin i Stýrimannaskólanunx“
eftir Konráð Gislason stýrimann.
„Lífgun ítr dauðadái" eftir Jón Q.
Jónsson. Steingr. Jónsson ritar unx
nauðsyn á fullkominni matreiðski-
deild í hinum nýja sj ómannaskóla.,
Henry Hálfdanarson loftskeytanx.
ritar unx deild loftskeytanxanna i
Stýrimannaskólanum, K. Ó. unx hlut
sjómanna í skólamálum landsnianna,
Pétur Sigtirðsson sjóliðsforingi ,um
herskip nútimans. Ýmsar fleiri
greinar eru í heftinu; er það prýtt
niörgum myndum og vandað að ;
um frágangi.