Vísir - 11.11.1940, Blaðsíða 3

Vísir - 11.11.1940, Blaðsíða 3
VÍSIR Ms. Eldborg hlekkist á. Ljóslaust, pólskt skip siglir á hana. Um klukkan 3 >/2 í fyrrinótt sig-Jdi ljóslaust, óþekt skip á mó- torskipið „EIdborgina“ um 30 sjómílur suðVestur-suður af Vestmannaeyjum með þeim afleiðingum, að stefni frá sjólínu og upp Iagðist út af og rifnaði frá beggja megin. Boltar sprungu og lífbátur brotnaði, að því er segir í skeyti, sem Friðrik Þor- valdssyni útgerðarstjóra í Borgarnesi barst í gær. ^ýkomið: Lífstykki og Mjaðmabelti — Brjósthaldarar, Teygjubandabelti — Teygjubandabuxur, Ullarsokkar — Flauel. Versl. Dyngrja, Laugav. 25 I skeytinu segir ennfremur, að norðaustan stormur hafi verið á er áreksturinn varð, en skip það, sem sigldi á Eldborg- iná nam ekki staðar -og hvarf það út í næturmyrkrið án þess að númer eða nafn næðist af þvi. Eldborgin var á leið til Eng- lands með fiskfarm er keyptur hafði verið á ísafirði. Hún lagði um liádegi s. 1: laugardag af stað héðan, en í býti í gær- morgun barst Friðriki Þor- vadssyni skeyti um ásigling- una og jafnframt að skipið ræki hjálparlaust undan veðri og sjó, en alt hefði verið gert til að þétta skipið í svip gegn leka. v Sneri Friðrik sér þegar í stað til Pálma Loftssonar fram- kvæmdai-stjóra Skipaútgerðar ríkisins og bað liann um aðstoð. Varðskipið Ægir lá þá hér á höfninni og var hann þegar í stað sendur Eldborginni til lijálpar. Um hálf fimm leytið í gær barst Friðriki nýtt skeyti frá skipstjóra Eldborgarinnar, þar sem segir, að veður fari batn- andi og að skipið muni kom- ast hvort heldur til Vestmanna- eyja eða Reykjavíkur. Varð það að ráði að Eldborg- in færi til Eyja og að bráða- birgðaviðgerð fari þar fram á henni, svo hún komist nxeð farminn til Englands. Meiðsli hafa ekUi orðið nein á mönn- um. Eldborgin er nýlegt skip, bygð árið 1932 og er 280 brúttó- smálestir að stærð. Eigandi er S.f. Grímur í Borgarnesi, en skipstjóri Ólafur Magnússon. Fréttaritari Vísis í Vest- mannaeyjum náði tali af 1. stýrimanni á Eldborginni, og hefir fengið lijá honum svo- hljóðandi frásögu um árekstur- inn: Kl. 3.25 á aðfaranótt sunnu- dagsins vorum við á siglingu 79 sjómílur SSA af Reykjanesi. Höfðum við uppi full siglinga- ljós og löglega siglingavakt og voru tveir menn í gluggum. Norðaustan stormur var á, 8 vindstig, skipið mjög hlaðið, en sjór mikill og sjórok. Skyndi- lega sást rautt siglingaljós fyrir aftan stjórnborðsvant og var þá vélin stöðvuð, en tveir menn stukku á stýrið og reyndu að leggja Eldborginni það hart á stjórnborða, að komist yrði hjá árekstri og aftur fyrir hitt skip- ið. Þetta tókst ekki og var á- rekstur óumflýjanlegur. Skip- in rendu saman og það svo fast, að 1. vélstjóri, sem staddur var í vélarúmi, kastaðist flatur og lá }>ar sem liann var kominn, en raknaði þó skjótlega við. Orsökina til árekstursins telur skipsliöfnm á Eldborginni, að skip það, sem er pólskt, er sigldi á Eldborgina, liafi verið Ijós- laust, og ekki brugðið upp ljós- um fyrri en nokkrum sekúnd- um áður en áreksturinn varð. Eftir áreksturinn varð uppi fót- ur og fit í Eldborginni, og bjuggust básetar við að skipið myndi sökkva þá og þegar. Við áreksturinn liafði björgunar- báturinn brotnað, stögin slitn- að, sem héldu honum niðri, en við það slóst báturinn inn á bátadekkið og varð ekki um þokað, þrátt fyrir ítrekaðar til- raunir. 1. vélastjóra var falið að fara í framlest skipsins og athuga Iivort sjór liefði komist í fiski- leslina, en þótt furðulegt megi heita reyndist það ekki, og telur skipshöfnin að það hafi orðið skipinu til bjargar, — annars hefði það sokkið og engri björg- un orðið víð komið. Við athug- un á skemdunum kom í ljós að stefnið hafði bognað og press- ast inn í forstafnstanka, og plöt- urnar við stefnið rifnað og klofnað frá á stóru svæði. Skips- höfnin tók þegar til óspiltra málanna við að troða í rifurn- ar og steypa í götin, og var skipið látið reka, en jafnframt athugað livort og hvar leki hefði komist að því. Skipið náði sambandi við loftskeytastöðina í Reykjavik og bað skipstjóri um bráða að- stoð og var þá Ægir sendur af slað liéðan til liðveislu. Skipin Iiöfðu samhand sín í millum og með miðunum gekk greiðlega að finna Eldþorgina, og var Æg- ir kominn henni samhliða kl. 19 —20 í gær og sigldu skipin þannig inn til Vestmannaeyja. Pólska skipið nam ekki stað- ar að neinu ráði eftir að árekst- urinn hafði orðið, en sigldi inn til Vestmannaeyja og liggur þar á ytri höfninni. Hafa sjópróf farið fram í morgun og standa þau enn yfir. M.b. Hegri talinn af. M.b. Hegri, sem fór þriðju- daginn 29. október frá SauÖár- króki áleiöis til Hafnarfjarðar, hefir ekki komið fram og ekk- ert til bans spurst. Hegri var 10 smál. brúttó að stærð, bygður i Hrísey árið 1929 úr furu. Báturinn mun hafa vei-ið seldur til Hafnar- fjarðar og var formaðurinn að líkindum meðal eigenda. F|imm manna áhöfn var á bátnum. Vísir hefir ekki gelað fengið upplýsingar um nöfn þeirra, sem voru á bátnum. D AGSBRÚN ARFUNDURINN. Frh. af 1. síðu. inu, úrsögn Dagsbrúnar úr landssambandinu og sjóðþurð- armálið. Þar sem liér er um ó- skyld mál að ræða ákvað fund- arstjóri að taka málin fyrir eftir röð, og var þá mál sexmenning- anna fyrst. Var Jóni Rafnssyni boðið að taka til máls, en æskti þess ekki. Kom fram tillaga frá Guðm. Ó. Guðmundssyni um að vísa máli þessu frá félagsfundi fyrir fult og alt, og var hún samþykt sem dagskrártillaga. Út af þessu kom til æsinga og óeirða á fundinum. Höfðu kommúnistar sig mjög í frammi og létu dólgs- lega, og var þá fundi slitið, eftir ítrekaðar tilraunir fundarstjóra til þess að koma friði á. FTTVI :1.1 « 11 Esja Hraðferð til Akureyrar 14. þ. m. kl. 9 síðd. Kemur á Patreksfjörð, ísa- fjörð og Siglufjörð báðar leiðir. Háskólafyrirlestur. Dr. phil. Símon Jóh. Ágústsson flytur erindi á morgun kl. 6.15 i 3. kenslustofu háskólans. Efni: Sefjun og dáhrif. Ólafur Jóhannsson, læknir, hefir opnað lækningastofu i Kirkjustræti 10. Viðtalstími 5—6. Ólafur hefir undanfarin 4 ár starf- að á spítölum í Danmörku og lagt aðallega stund á handlækningar og auk þess kvensjúkdóma og fæð- ingarhjálp. Háskólahljómleikar. Björn Ólafsson, fiðluleikari og Árni Kristjánsson píanóleikari ætla að halda sex hljómleika í Hátíðasal Háskólans i vetur, og verða fyrstu tónleikarnir á föstudaginn kemur. í dag byrjar sala aðgöngumiða að öllum hljómleikunum sex í einu, en eftir miðvikudag verða miðar seldir að 'hverjum «einstökum hljómleikum. HúsmæSrafél. Rvíkur heldur fund í kvöld kl. 8/2 í Odd- fellowhúsinu. Konur, f jölmennið! Félag til hjálpar lömunarsjúklingum verðu stofnað annað kvöld kl. Syí í Kaupþingssalnum. Þess er fastlega vænst, að allir, sem áhuga hafa á málinu, mæti. Næturlæknir. Ólafur Þ. Þorsteinsson, Eiriks- götu 19, sími 2255. Næturvörður í Lyfjabúðinni Iðunni og Reykja- víkur apóteki. Útvarpið í kvöld. Kl. 19.25 Hljómplötur: Harmón- íkulög. 20.30 Um daginn og veg- jnii (Sigfús Halldórs frá Höfn- um). 20.50 Hljómplötur: Létt lög. 20.55 Útvarpssagan: „Kristín Laf- fransdóttir", eftir Sigrid Undset. 21.20 Útvarpshljómsveitin : Lög eft- ir isl. höfunda. Kvæði kvöldsins. Einsöngur (Gunnar Pálsson) : Ljóð eftir Matthías Jochumsson: a) Lýsti sól (Jónas Helgas.) ; b) Skín við sólu Skagafjörður (Sig. Helga- son) ; c) Eitt er landið ægi girt (Bj. Þorst.); d) Hátt eg kalla (Sigf. Einarsson). De Gaulle sendir her- Uð til Libreville. Fregn frá Leopoldville í Belgiska Kongo hermir, að De Gaulle hafi sett herlið á land i Libreville i Gaboon, nýlendu Fralcka í Vestur-Afríku. Lítið viðnám var veitt og manntjón var sáralítið á hvoruga hlið. Ekkert breskt herlið var sett á land þama og engin bresk herskip aðstoðuðu við landsent- ingu liðsaflans.— Nýlenda þessi liggur að Belgiska Kongo. Sökum sívaxandi eklu á skiftimynt skorar s júkrasanilagið á meðlimi sína að hafa með sér smápeninga er þeir greiða iðgjöld sín. SJÚKRASAMLAG REYKJAVÍKUR. Mýkomið: UUargarn Káputau Laxfoss fer til Vestmannaeyja á morgun kl. 10 síðdegis. Flutningi veitt móttaka til kl. 6. Laxfoss fer til Breiðafjarðar fimtu- daginn 14. þ. m. FLUTNINGI veitt móttaka miðvikudag. Laxfoss Áætlunarferðir til Borgar- aess eru framvegis: Frá Reykjavík mánudaga og föstudaga. Frá Borgarnesi þriðjudaga 0g föstudaga. vantar strax í verslunina Baldur, Framnesvegi 23. Eiiisk fataefni nýkomin. Sparta Laugaveg 10. Nýkomid: Sokkabandabelti, Brjósthaldarar. Korselett. Einnig stærstu fáanleg númer í lífstykkjum. Laugavegi 23. Bidjidur BlflNDRHlS úaffi Tek i\ moti sjúkllnguni í lækniiigastofuiKiii Kirkjnsfræti ÍO Viðtalstími daglega kl. 5—6. Sími 5459. Heimasími 2490 fyst um sinn. Siðar 5979. ÓLAFUR JÓHANNSSON, læknir. Árni Kristjánsson og Björn Ólafsson halda 6 hljómleika í vetur í Hátíðasal Háskólans. verða föstudaginn 15. nóvember kl. 9 síðd. FRÖNSK TÓNLIST. Aðgöngumiðar að öllum 6 hljómleikunum verða seld- ir i dag, þriðjudag og miðvikudag i Bókaverslun Sig- fúsar Eymundssonar og H1 jóðfærahúsinu. Eftir þann tirna verða seldir aðgöngumiðar að einstökum hljóm- leikum. §ímaskráin 1941 Handrit að Símaskrá Reykjavíkur fyrir árið 1941 liggur frammi i afgreiðslusal landssímastöðvarinnar frá mánúdeginum 11. þ. m. til miðvikudagsins 13. þ. m., að báðmn dögum meðtöldum. Þer, sem ekki þegar hafa sent breytingar við skrána, eru beðnir að gera það þessa daga. Hjartlcær faðir okkar og lengdafaðir, JEinar G. Einarsson Laugavegi 85, andaðist að heimili sínu i gærkveldi. Böm og tengdabörn. Konan min og móðir okkar, Jenný M. Helgadóttir verðnr jarðsungin þriðjudaginn 12. þ. m. fró frikirkjunni. Atliöfnin liefst með liúskveðju á heimili hinnar látnu, Bræðraborgarstíg 4, kl. 1% e. h. Steindór Nikulásson og börn. Hjartkær móðir, tengdamóðir og amma okkar, Jónína Jönsdóttir, frá Sandi verður jarðsungin frá þjóðkirkjunni þirðjudag- inn 12. j>. m. Húskveðja verður á heimili hennar, Mýrargötu 5, kl. 3. Guðrún Georgsdóttir. Þórarinn Vilhjálmsson. Jón Gíslason. Karen Jónsdóttir. Sigríður Gísladóttir og barnaböm.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.