Vísir - 12.12.1940, Page 1

Vísir - 12.12.1940, Page 1
Ritstjóri: Kristján GuðSaugsson Skrifstofur: Félagsprentsmiðjan (3. hæð). 30. ár. Ritstjóri Blaðamenn Sími: Auglýsingar 1660 Gjaldkeri S línur Afgreiðsla j 288. tbl. Bretar hafa her tekið Sidi Barrani — Sigur þessi getnr haft úr- slitaáhrif í Afrikustyrj öld- inni. EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun. Igærkveldi bárust fregnir um það til London frá Kairo, að breski herinn, undir forystu Sir Matiland Wilson, hafi hertekið Sidi el Barr- ani, hafnarborgina í Egiptalandi, nokkuru fyrir aust- an landamæri Libyu, en Sidi el Barrani höfðu ítalir gert að höf uðbækistöð innrásarinnar í Egiptaland. Bret- ar hafa unnið hér mikilvægan sigur sem getur haft úr- slitaáhrif í Afríkustyrjöldinni. Það er kunnugt, að Bretar tóku mikinn f jölda fanga, þeirra meðal þrjá herforingja, og mikið herfang, en það hefir enn ekki verið talið. Sigur þessi er afleiðing þess, að breskum hersveitum tókst að brjóta sér leið til sjávar, milli Bug Bug og Sidi Barrani. Eina hættan var, að lið ítala fvrir vestan I3ug Bug og liðið í Sidi Barr- ani, gæti marið þetta breska lið milli sín, en til þessa hef- ir ekki komið. Sókn Breta hefir verið svo hröð og hörð, að þeir liafa getað fylgt eftir sigrinum er þeir brutust til sjávar, og þjarmað svo að Itölum í Sidi Barrani, að þeir hiafa orðið að gefast upp. Bretar halda áfram sókn sinni vestur á bóginn. Breski flotinn aðstoðaði flugher Breta og landher við töku Sidi el Bárrani. Segir í tilkynningu fiotamálástjórnarinnar, að herskipin hafi haldið uppi skothríð á varnarstöðvar ítala allar þarna á ströndinni, og var einkum miðað að því, að'gera aðstöðu ítala í Sidi Barrani sem erfiðasta. Mun það ekki hvað síst vera skothríð herskipanna að þakka, að breski herinn milli Bug Bug og Sidi el Barrani gat lokið hlutverki sínu. Að því er United Press hefir fregnað frá áreiðanleg- um heimildum hafa Bretar þegar tekið yfir lO.OOOfanga, síðan er sóknin í vestursandauðninni byrjaði. Eins og tilkynt var eftir að sóknin hófst á mánudag gerðu breskar hersveitir áhlaup á ítali, hægri víglínu þeirra miðja, milli Sidi el Barrani, og staðar nokkurs all-langt suður í sand- auðninni, og brutu sér leið til sjávar. Þegar svo Italir voru kró- aðir inni í Sidi el Barrani eða í stöðvum þeirra þar, gerðu Bretar árásir á þá úr öllum áttum; einnig frá sjó, og urðu ítalir þá gripnir fáti, því að þetta kom þeim mjög á óvart, og fór vörnin í handaskolum. ítalska stjórnin viðurkendi í tilkynningum sínum í gær, að Italir hefði orðið að hörfa undan, og var farið miklum lofsorð- um um fasistasveitir Itala fyrir vöm þeirra. Eins og áður hefir verið getið hafa ítalir lagt vegi alla leið til Sidi el Barrani, frá stöðvum sínum í Libyu, og tilkyntu þeir fyrir skemstu, að vegarlagningunni væri lokið. Var það skilið svo sem nú myndi sókn þeirra brátt verða hafin, og er engu lík- ara en að ítalir hofi þóst geta verið öruggir um, að Bretar myndi láta sér nægja að verjast. Sókn Breta hefir komið þeim að ó- vörum og afleiðinga þessa ósigurs ítala mun gæta víða, heima fyrir og í Albaníu. I Egiptalandi hefir fregnin um töku Sidi el Barrani vakið fádænáa fögnuð, en þegar var mikil gleði ríkjandi þar yfir þeim árangri, sem náðst hafði áður en Sidi el Barrani var hertekin. 1 skeytum í gær segir svo um ástand og horfur á vígstöðvunum í styrjöldunum við ítali, í Albaníu og Egipta- | þar sem talað var um að ítalir væri enn á hröðu undanhaldi, og væri það sumslaðar óskipu- legt, og í nánd við Tepelena hafa Grikkir unriið allmikil- væg'an sigur, því að þeir hafi náð þorpi skamt þaðan og vegi, sem er mikilvæg samgönguæð, á sitt Vald. Svo kemur og liitt lil greina,aðþóttítalirgetistöðv- að undanhaldið og veitt viðnám á nýrri varnarlínu, að vörnin getur orðið þeim mjög erfið til lengdar, vegna þess að aðstaða ítala til þess að senda her sín- um i Albaníu liðsauka og birgð- ir versnar stöðugt, vegna lxinna tíðu loftárása á hafnarborgir Albaníu og birgðastöðvar ítala þar í landi. Það eru nú aðallega tvær hafnir, sem ítalir nota, Vallona og Durazzo, en bresk- ar sprengjuflugvélar halda uppi stöðugum loftárásum á þessar borgir. Aðaláherslan er lögð á, að gera árásir á Vallona, sem er sunnar, og liafa nú breskar og grískar sprengjuflugvélar gert alls 15 árásir á þessa borg, hafn- argarðar og önnur mannvirki eyðilagst, og skip á höfninni orðið fyrir sprengjum. Gæti svo farið, að ítalir gæti hvorki sent þangað auknar birgðir eða liðs- afla —- og kannske gæti loft- árásirnar haft þær aflciðingar,- að ítliar gæli ekki heldur kom- ist undan með lið sitt þá leið. Undanhald Ilala. er hraðast á ströndinni, og hyggja ítalir til að veila viðnám við Chiamara, milli Sante Queranta og Vall- ona. ítalir hafa mist hverja flugstöðina á fætur annari, en aðstaða Grikkja og Breta batn- ar að sama skapi, við að ná þessum flugstöðvum, þótt skemdir á þeim og veðurskil- yrði hamli í svip, að af þeim séu full not. Loks er það ótalið, sem getur liaft hin mikilvæg- ustu áhrif, að því er vörn ítala í Albaníu áhrærir, og það er hvort framhald verður á hrak- förum ítala á landamærum Egiptalands og Libyu. Frekari ósigrar þar geta haft hinar Háskalejgustu afleiðingar fýrir Itali í Albaníu og heima fyrir. Þegar eru farnar að berast fregnir um, að heimaþjóðin sé farin mjög að ókyrrast, og eink- um ber á því á Norður-Ítalíu, að andúðin gegn facismanum er mjög að magnast. Það er svo komið, eins og segir í ýmsum erlendum blöðum, að Italir eru i varnaraðstöðu ekki aðeins i Albaníu, lieldur og í Afriku, og takist Itölum ekki að rétta hlut sinn mjög bráðlega, er hætt við að mjög illa fari fyrir þeim. Hinsvegar er þess að geta, að ítalir liafa svo mikinn herafla í Libvu enn, að það er alt of snemt að spá neinu um það, að Brétar vinni úrslitasigur i bráð, þótt þeir sigrar, sem Bretar hafa unnið undangengin dægur, liafi bætt aðstöðu þeifra að miklum mun. Þeir hafa nú tekið alls (>000 fanga í orustunum við Sidi Barrani og þar i grend, og mik- ið herfang, og takist Bretum að halda þeim stöðvum, sem þeir hafa tekið milli Bug Bug og Sidi Barrani, liorfir svo, að lierlið j)að, sem Italir hafa við Sidi Barrani neyðist til uppgjafar. Italir viðurkendu í gær í út- varpi sínu, að þeir hefði neyðst til þess að hörfa undan, en telja mannfall mikið í liði Breta. Þó er sýnilega reynt að láta bera sem minst á því, hversu mikl- um hnekki Italir liafi orðið fyr- ir, þvi að birtar eru fregnir, sem eiga að sýna, að tjón Breta i bresk-ítölsku styrjöldinni sé margfalt meira en Itala. Voru endurteknar tölur um herskipa- tjón Breta og flugvélatjón, en Bretar hafa áður lýst yfir því, að þessar tölur nái engri átt, og nefna til dæmis, að ef réttar væri tölur Itala um herskipa- tjónið, væri þeir búnir að sökkva eða valda skemdum á miklum hluta alls Miðjarðar- hafsflotans. ítalir segjast og hafa skotið niður fyrir Bretum um 660 flugvélar, en að eins mist á annað liundrað sjálfir. Manntjón sittistyrjöldinni segja ítalir að eins 19 þúsund, þ. e. fallnir, særðir og teknir til fanga, iil 30. nóv. s. 1., og inni- fela þessar tölur ekki manntjón- ið í bardögunum frá því á laug- ardag, en þá hófst forleikur þeirrar sóknar, sem nú er háð, er meginsóknin hófst á mánu- dagsmorgun, eins og áður er getið. I gær síðdegis var tilkynt, að breski flugherinn hefði haldið upþi stöðugum árásum á her- stöðvar Itala í Libyu og Egipta- landi í heilan sólarhring, og voru skotnar niður 10 ítalskar flugvélar í gær, en margar voru evðilagðar í flugstöðvum þeim, sem, árásir voru gerðar á. Að eins ein bresk flugvél var skotin niður. Aðallega hefir verið lögð stund á að varpa sprengjum á flug- og olíustöðvar ítala, og staði, þar sem vélahersveitir þeirra hafa bækistöðvar. Bret- ar hafa haldið uppi árásum á aðrar stöðvar ítalá í Afríku, svo sem Assab við Bauðahaf, og sprengjum hefir verið varpað á járnbrautina milli Djibouti i Franska Somalilandi og Addis Abeba, og hafa orðið á lienni miklar skemdir. landi: I tilkynningum grísku her- málastjórnarinnar í gærkveldi var svo að orði komist, að grísku hersveilirnar væri enn í sókn á öllum vígstöðvum, þrátt fyrir óhagslæð veðurskilyrði. Það var tekið fram af hálfu hermálastjórniarinnar, að þess væri ekki að vænta, að um, hraða framsókn gæti verið að ræða fyrst um sinn, þar sem grisku hersveitirnar væri nú komnar langt frá aðalhæki- stöðvum sínum og erfitt um að- drætti til liinna nýju stöðva, auk þess sem nokkurn tima tæki að búast þar fyrir lil varn- ar. Yar jafnvel gefið i skyn, að ekki væri neinna frekari stór- tíðinda að vænta næstu viku, enda hafa Grikkir nú tekið hverja borgina á fætur annari, og vitað er, að mótstaða ítala er harðnandi, og þeir munu leggja alt kapp á, að stöðva undan- haldið^því að ef framhald yrði á þvi, sem að undanförnu, gæti svo farið, að þeir, yrði að gefast upp. Það verður að svo stöddu ekki sagt með vissu, hvort und- anhald Itala muni stöðvast, þrátl fyrir það, að griska lier- málastjórnin sé svo varfærin, sem, að framan segir, og dragi úr ]:vi, að menn búist við frek- | ari grískum sigrum i bráð. Eft- I ir að aðvörun i þessa átt var ■ hirt, komu fregnir siðar i gær. Grikkir fram á ölliim stöðrnm. CIIll Vl> EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun. Gríska hermálastjórnin tilkynnir, að Grikkir sæki fram á öllum vígstöðvum, þrátt fyrir (jflugt. viðnám óvinanna allvíðá. )Þeir fá hvergi tækifæri til þess að búast um ramlega sér til varnar. Grikkir hafa tekið marga fanga og mikið herfang. — Sam- kvæmt upplýsingum frá áreiðanlegum heimildum hafa ítalir gert stórfeld gagnáhlaup, en þeim var hrundið með aðstoð gríska stórskotaliðsins. Mikið mannfall var í liði ítala. Þetta áhlaup var gert á Mokra-hálsum, en samkvæmt fyrri fregnum frá Pogradec höfðu ítalir flutt þangað mikinn liðsauka. Voru það úrvalshersveitir ítalskar, sem þangað voru sendar. Vafasöm þjóðrækni. Einhver þjóðrækinn náungi hefir nýlega gefið út flokk mynda, af förumönnum og flækingum, sem uppi hafa verið fyr á árum, og borið utan á sér einstakan viðrinisskap og af- lappamensku. Myndir þessar eru seldar i öllum bókabúðum og seljasl vel, — einkum kváðu útlendir menn kaupa þær, og senda til heimkynna sinna. Á þessum tímum verður að telja það mjög vafasama þjóðrækni að gera slíka myndaútgáfu sér að atvinnu, og Islendingúm er enginn vinningur í því að þjóð- in sé kynt erlendis með ömurlegasta vesaldóminum, sem ljjá henni hefir þrifist, — meðan vesaldómur hennar sjálfrar var sem mestur vegna hallæra og erlendrar ánauðar. Er ekki ástæða til að reyna að kynna þjóð sína á annan hátt og lientari en þennan? I fregn frá Pogradec segir, að Grikkir sæki fram í Mokrafjöll- um, en þau eru nú snævi þakin, og fara Grikkir nú að eins og Finnar í bardögunum við, Rússa, og klæðast hvíturn skikkjum og hafa hvítar hettur á höfðum sér. — ítalir þjást mikið af kulda og hefir marga þeirra kalið, gefast þeir upp í hópum. Fullyrt er, að 300 hermenn Alpaherfylkis nokkurs hafi orðið úti, en her- menn þessir áttu við fleiri hörm- ungar að búa en frosthörkurn- ar, því að vegna hinna tíðu loft- árása Breta og Grikkja, gátu þeir ekki fengið neinar mat- vælabirgðir, og bættist hungrið ofan á kuldann. Einu birgðirn- ar, sem sumar hersveitir ftala fá, eru fluttar loftleiðis. Þý§km( hcrfor- iiigi seiidnr tíí Albaníu. London í morgun. Þýskur herforingi er í þann veginn að taka við herstjórn ítala í Albaniu, að því er United Press hefir fregnað. Mun her- foringi þessi vera kominn af stað suður þangað. . Það er litið svo á, að Musso- lini hafi streitst gegn öllum kröfum Þjóðverja um lier- stjórnarihlutun af hálfu Þjóð- verja, þótt hann kunni nú að liafa neyðst til að leita stuðnings þeirra. Mussolini er sagður hafa óttast afleiðingarnar heima fyrir, þvi að samvinnan við Þjóðverja er ekki vinsæl meðal ítala. — Ýinsar líkur benda til, að Hitler hafi áformað að sam- eina ítalska og franska flolann undir þýskri stjórn, og hafi Hitler þvi orðið ógurleg von- brigði að þvi hvernig fór í Tar- anto, er mörg herskip voru eyði- lögð eða stórskemd fyrir ítölum. Hvöt, SjálfstæÖiskvennafélagi'ö, heldur basar á rnorgun kl. 2 í húsi K.F. U.M. Á basarnum verSa mjög hentugar jólagjafir. Allir gera góö kaup á basar hjá Hvöt. Hollenskur tundurspillir 1 Itertekur þýskt kaupskip London í morgun. Flotamálaráðuneytið i Banda- ríkjunum tilkynnir, að hol- lenski tundurspillirinn Van Kins Bergen hafi hertekið þýska flutningaskipið Rhein, sem er 6000 smálesta skip. Fór skip þetta frá Tampico í Mexi- co fyrir skemstu. Eigi er kunn- ugt hvar hollenski tundurspill- irinn náði skipinu, en áhöfnin gerði tilraun til þess að sökkva því. Tókst sjóliðum á Van Kins Bergen að koma í veg fyrír það. Þetta mun liafa gerst undan ströndum Cuba. Ekki er kunn- ugt um áhöfn Rhein annað en það, að hún yfirgaf skipið eftir að tilraun liafði verið gerð til þess að sökkva þvi. — Tvö önn- ur skip þýsk fóru nýlega frá Tampico, og eru þau bæði úr sögunni. Hinu fyrra var sökt, er amerisk herskip skiftust á merkjum,, en skipverjamir á þýska skipinu hugðu herskipin hresk. Ilinu sökti áhöfnin und- an ströndum Kuba, er breskt beitiskip nálgaðist. Lothian lávarður ílytur ræðu, % London í morgun. Lotbian lávarður, breski sendiherrann, flutti ræðu i Baltimore i gær. I ræðu þessari sagði liann, að ef Bandaríkin veitti' Bretlandi nægan stuðn- ing með því að láta þeim i té hergögn og fé, myndi Bretar sigra 1942 og ef til vill fyrr. Þið eruð ekki að styðja þjóð, sem gefst upp, sagði hann. Birmingham varö fyrir árás i nótt. Það var viðurkent i breskum tilkynningum í dag, að það liefði verið borgin Birmingham, sem Þjóðverjar gerðu aðalloftárás- ina á. Það er nú kunnugt, að hið fræga Eton College varð fyrir miklum skemdum i loftiárás ný- lega. Það var bygt á 16. öld.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.