Vísir - 10.02.1941, Side 2
Ví SIR
11
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIB H.F.
Ritstjóri: Iíristján Guðlaugsson
Skrifst.: Félagsprentsmiðjunni
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12
(Gengi'ð inn frá Iugólfsstræti)
Símar 1 660 (5 línur).
Verð kr. 3,00 á mánuði.
Lausasala 15 og 25 aurar.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Hættumerki.
M ENN bregðast misjafnlega
við hættumerkjum. Sum-
ir sleppa sér af hræðslu. Aðrir
yppta öxluin ög láta seni sér
komi Jietta ekkerl \úð. Loks eru
enn aðrir, sem liugsa um' það
eitt, að fara eftir settum regl-
um. Sem betur fer eru menn
ekki farnir að venjast lofthern-
aði. En það ætti að vera óþarft
að fjölyrða um, hversu nauð-
sjmlegt er að allir fari eftir
þeim reglum, sem iit hafa verið
gefnar.
Enginn getur sagt, hversu
oft þýzkar flugvélar kunna að
liafa verið yfir íslandi. Tvisvar
sinnuin hafa þær gerzt svo nær-
göngular, að skotið liefir veríð
á þær úr varnarvirkjum setu-
liðsins hér í höfuðstaðnum. Það
er réttmætt, að líta á þessi
könnunarflug sem fyrirboða
meiri líðinda. Og hvernig fer
þá?
Flugvélin, sem flaug yfir
Reykjavík í gær lagði leið sína
yfir ströndu suður að Keflavík,
sneri þar við og kom sörnu leið
til baka að liðnum stundarfjórð-
ungi. Við vitum ekki hver end-
anleg’ örlög þessarar flugvélar
hafa orðið, en svo mikið er víst,
að henni hlekktist ekki alvar-
lega á við heimsóknina til höf-
uðstaðarins.
Það má segja, að við liöfum
lítið vit á hernaði, og séum því
ekki bærir að gagnrýna aðgerð-
ir eða aðgerðaleysi þess herafla,
sem hér hefir aðsetur. En það
verður að segja það eins og er,
að það er ekki til þess að auka
öryggistilfinningu íslenzkra
borgara, þegar það kemur fyrir
oftar en einu sinni, að þýzkar
flugvélar geta athafnað sig hér,
án þess verulega saki.
Okkur hefir verið boðin
vernd. Við liöfum ekki beðið
um hana. Sumir okkar eru svo
uppveðraðir yfir þessari vernd,
að þeir Jiafa viljað hlaupa yfir
það smáræði. að landið liefir
verið svipt hlutleysi sínu og
frelsi um stundarsakll*.
En úr því þessi vernd átti yf-
ir okkur að koma, livort sem
við vildum eða vildum ekki, þá
hefðum við kosið, að liún væri
svo áhrifarík, að henni yrði
treyst lil fullnustu'.
Reykjavík er ekki stór bær.
íbúatalan er tæp 40.000. En
engu að síður er þetta stærsta
höfuðborg í heimi, miðað við
íbúatölu landsmanna og dýrasta
höfuðborg í heirni miðað við
þ,ióðarauðinn. Lundúnaborg er
kölluð hjarta brezka heims-
veldisins. Reykjavík er Islend-
ingum margfalt meira virði en
Lundúnaborg Bretum.
Svona horfir málið við frá
okkar sjónarmiði. Hertaka
landsins hefir leitt hættur yfir
þessa borg. Við vildum gjam-
an sjá sem skýlausastar sann-
anir fyrir því, að varnirnar
væri slíkar, að hættunum yrði
afstýrt. Sunnudagsheimsókn
Þjóðverjans var ekki til þess
fallin að leiða slikar sannanir
í ljós.
Flugvélin kemur við á Sel-
fossi og lieilsar upp á hermenn-
ina, sem þar dvelja. Koma
hennar er tafarlaust tilkynnt.
Svo líður góð stund þangað lil
hún flýgur yfir Reykjavík. Eng-
ar brezkar flugvélar eru á lofti.
Þýzka flugvélin heldur áfram
suður með sjó, snýr þar við og
kemur sömu lcið lil baka' eins
og ekkert bafi í skorizt. Engin
brezk flugvél á lofti.
Við erum fáfróðir i hernaði
og það má segja okkur margt.
En er til nokkurs að reyna að
telja okkur trú um, að þetta sé
vernd eins og vernd á að vera?
Hættumerkið, sem gefið var í
gær, verður vafalaust ekki það
síðasta í þessari styrjöld. Það er
ekki vert að vera méð neinar
hrakspár. En er ekki rétt að
vera við því búinn, að Þjóð-
verjar kunni að þykjast eiga
hingað erindi meira en bara í
lcönnunarskyni ? ’ Ef til þess
kemur er vonandi að verndar-
arnir verði viðbragðsskjótari en
þeir liafa reynzt þau tvö skipti,
sem Þjóðverjar liafa verið hér
i sunnudagsheimsóknum.
a
Sigurður Bene-
diktsson sýknað-
ur og látinn laus
úr gæzluvarð-
haldi.
Sakadómari, Jónatan Hall-
vatðsson, kvað upp dóm s. I.
laugardag1 í máli því, er réttvís-
in höfðaði gegn Sigurði Bene-
diktssyni póstmanni, og var Sig-
urður sýkn fundinn. Var Sig-
urður ákærður fyrir að hafa
reynt að telja tvo erlenda há-
seta á að sprengja upp skip sitt
gegn 2 þúsund króna þóknun.
í forsendum dómsins segir
svo:
„Ákærður hefir ákveðið og
eindregið neitað því, að liafa
liaft í liuga, eða unnið að
skemmdarstarfsemi þeirri, er
hann er sakaður um. Hann hef-
ir skýrt svo fró, að liann liafi
verið við drykkju á jóladaginn
og um kvöldið verið orðinn það
drukkinn, að hann ekki muni
eftir sér. Hefir hann skýrt ffá
félögum sínuni um daginn og
tilnefnt nokkra menn, er hann
liafði hitt og drukkið með, og
hafa þeir staðfest frásögn lians
um drykkjuna.
Ákærður sat bjá kunningjum
sinum um kvöldið og fór þaðan,
að því er ætla má, um kl. 12.
Kveðst liann eftir það liafa út-
vegað sér eina hálfflösku af
koníaki, en síðan»ekki muna til
sín. Hefir hann með öllu neitað
að ínuna tíl þess að hafa hitt
vitnin, né hafa viðhaft við
nokkurn mann þau tilmæli, er
þau skýra frá.“ Að áliti rétt-
arins eru ekki fram komnar
gegn neitun ákærða sannanir
fyrir því, að hann hafi unnið að
verki þvi, sem á liann er borið.
Hin enskli vitni hafa ekki orðið
leidd fyrir rétt, og jafnvel þótt
frásögn þeirra sé lögð til grund-
vallar, verður að líta á ummæli
þau, er í framburði þeirra eru
höfð eftir ákærðum, frekar sem
drykkjuraus en alvarlega áskor-
un. Þykir sjálf frásögn vitnanna
sýna það, og það eins koma
heim við það, sem vitað er um
drykkju ákærða um daginn.“
Samkvæmt ofanskráðu varð
niðurstaðan sú, að Sigurður var
sýknaður og honum sleppt úr
gæzluvarðhaldi, en þar hafði
liann setið frá því 5. f. m.
Nýtt námskeið í þýzku
hefst bráðlega i háskólanum.
Kennari Ingvar Brynjólfsson. Uppl.
hjá háskólaritara fyrir sunnudag.
Næturlæknir.
Gunnar Cortes, Eiríksgötu II.
Sími 5995. Næturverðir í Lauga-
vegs apóteki og Ingólfs a|óteki.
ÞÝZK FLUGVÉL
yfir Nelfossi ogr ná-
gfrenni Re^kjavíknr.
Var elt á h.af út af
brezkri flugvél?
Kl. 11.12 árdegis í gær hófst skothríð mikil hér
við bæinn, og allnokkuru síðar kváðu við loft-
varnarmerki. Hafði þá sést til þýzkrar flug-
vélar, er kom úr austurátt. Flaug hún hér innanvert
við bæinn, hátt í iofti, en fylgdi því næst strandlengj-
unni til Hafnarfjarðar og Keflavíkur, beigði því næst
norður yfir flóann og þá til austurs og sást síðast til
hennar yfir Sandskeiði.
Skip, sem lágu hér í höfninni tóku að blása í eimpípur sínar
áður en loftvarnarmerki var gefið, — strax er sást til flugvél-
arinnar, — og er hún flaug hér yfir hófu þau skothríð að henni,
eins og varnarstöðvamar í námunda við. bæinn. Skothríð þessi
mun ekki hafa sakað flugvélina að neinu leyti, og hélt hún
áfram flugi sínu eins og ekkert hefði í skorizt.
Það liafði verið tílkynnt í
blöðunum að loftvarnamerki
myndi fyrst gefið í þrjár mínút-
ur, ef hætta bæri að höndum, en
því næst yrði blé þar lil gefið
yrði merki um að hættan væri
liðin hjiá. Loftvarnarmerkið
hljómaði hinsvegar miklu leng-
ur, en þrjár mínútur, og er það
hæfji héll fólk að nú væri öllu
óhætt og tók að þyrpast sem
skjótast úr öryggisstöðvum sín-
um. Var það þá tekið til bragðs
að hefja hættumerkið að nýju
og var það látið hljóma óslitið
þar til kl. liðlega 11.50, en þá
var hættunni aflýst.
Fregnin um flugvélina mun
fyrst liafa verið simuð frá Árbæ
lil lögreglustöðvarinnar hér kl.
11.06 f. h., en óður hafði flug-
vélin flogið yfir Selfoss, og það-
an mun koma hennar hafa verið
tilkynnt þá þegar.
Flugvélin mun hafa flogið
lágt yfir Selfossi, og var hafin á
bana skothríð úr vélbyssum, en
var þá liafin vélbýssuskothríð
einnig úr flugvélinni, og sam-
kvæmt upplýsingum Capt.
Wise, blutu nokkrir hermenn
skeinur í þessari viðureign. Tel-
ur setuliðið við Selfoss líkmdi
til að flugvélin hafi orðið fyrir
skotum í þessar viðureign. Hins-
vegar bar liún þess engin merki
á flugi sínu hér í nágrenni
bæjarins, að hún væri verule^a
löskuð.
Það vildi þannig til að tveir
starfsmenn Vísís voru staddir
austur á Hellisheiði, fyrir ofan
Hellisskarð er þýzka flugvélin
kom austan fyrir Kambabrún.
Flaug hún þó lágt en smá hækk-
aði flugið er vestar dró. Horfðu
þeir á hana um stund í sjónauka
og sáu að hún var stór, en gátu
þó hvorki greinl einkenni henn-
ar négerð, og kom enda ekki til
hugar annað en hún væri brezk.
Skömmu eftir að hún hvarf
sjónum þeirra drundi við skot-
hríð, að því er virtist niður á
Sandskeiði eða þar í grennd, og
jafnframt sáust nokkurar af
kúlunum stíga til lofts er þær
sprungu. Nokkuru seinna sáust
enn skotmekkir stíga til lofts i
nokkuru meiri fjarlægð en áður,
og gizka mennirnir á, að það
væri yfir Reykjavík. En þá var
fjarlægðin orðin svo mikil að
skotdrunurnar heyrðust ekki.
Á meðan skothríðin sást í
vestri kom önnur flugvél úr
austri, nokkuru sunnar en sú
fyrri og stefndi til vesturs. Virt-
ist hún vera af annari gerð og
minni en hin flugvélin. Flaug
hún hátt, en þegar hún var kom-
in í stefnu ýfir Bláfjöllin sneri
hún til suðurs á haf út og síðar
til austurs aftur. Hvarf hún á
bak við Skálafell.
Ármenningar sem voru uppi
í Bláfjöllum sáu mjög vel til
þýzku flugvélarinnar er hún
flaug vestur yfir, sáu og heyrðu
skothríðina og sáu loks er hún
kom að veslan aftur og flaug
austur með ströndinni. Kom þá
önnur flugvél úr austri, er þeir
hugðu vera brezka, sneri hún til
suðurs er yfir Bláfjöllin kom og
stefndi þá i áttina til hinnar
þýzku. Sáu þeir síðast til þeirra
er þær voru komnar austur yfir
Þorlákshöfn, en þar hurfu þær
sjónum — fjarlægðin var orðin
svo mikil.
Samkyænil upplýsingum,
sem Vísir hefir aflað sér, brugðu
hjálparsveitir þær, sem stofnað-
ar liafa verið hér í bænum,
fljótt og rösldega við, og mættu
á stöðvum sínum, svo sem fyrir
þær hafði verið lagt. Voru
heimtur taldar góðar þrátt fyrir
veikindi þau, sem nú eru bér í
-bænum.
Vegfarendur munu liinsvegar
lítt hafa liirt um reglur þær,
sem settar liafa verið, en lög-
reglan gerði allt, sem í liennar
valdi stóð til þess að beina fólki
til loftvarnabyrgjanna. Eink-
um lét fólk það blekkja sig er
Ioftvarnamerki var hætt og
bugði, að þá væri hætta öll lijá
liðin, og tók lögreglan þá það til
bragðs, að gefa hættumerki að
nýju,
Þau alvarlegu mistölc urðu
bér í bænum í gær, að sum loft-
varnarbyrgin munu hafa verið
rammlega lokuð og læst, og
þeir, sem lyldanna gættu fund-
Ust hvergi. Er slíkt gérsamlega
óverjandi slceytingarleysi, og
verður að gera naiiðsynlegar
ráðstafanir til jiess að slíkt end-
urtaki sig ekki. Þá bar það við
í stórhýsi einu hér í bæ, þar sem
loftvarnabyrgi er í kjallara, en í
hann gengið frá tveimur hlið-
um, að dyravörður liússins
hrakti hvern þann á braut, sem
liann taldi að kæmi um rangar
dyr, og sýnist eldd vanþörf á að
gera einhverjar umbætur að
þessu leyti einnig, — annað-
livort á dyrverðinum sjálfum,
— eða merkjum þeim, er sýna
skulu hvar inn í byrgin sé geng-
ið.
• Að öðru leyli er fótt eitt um
þessa. óvenjulegu „loftvarnaæf-
ingu“ að segja. Menn tóku
lienni yfirleitt rólega, en ein-
staka veikgeðja fólki mun þó
bafa þótt nóg um, og einstaka
konur fallið í yfirlið. Þar, sem
búast má við að sagan kunni að
endurtaka sig hér í bænum, og
verða jafnvel öllu alvarlegri og
örlagaríkari en að þessu sinni.
sýnist það ekki úr vegi að veikl-
uðu fólki verði komið á óhultan
stað, ef með þarf, þannig að það
verði ekki til trafala, ef á kann
að bjáta.
Loftvarnanefnd sat á fundi í
morgun, og mun bafa rætt við-
burði dagsins í gær og þær
framtiðarráðstafanir er gera
þarf.
Yisir álli lal við capl. Wise
árdegis í dag. Ekki hefir frétzt
til flugvélarinnar síðan í gær, er
hún var suðaustur af Sand-
skeiði. Vérið getur að flugvélin
liafi hrapað í sjó niður. — Hún
mun áreiðanlega bafa orðið fyr-
ir vélbyssuslcoti á Selfossi og
skot úr loftvarnabyssum fóru
ekki langt frá lienni, og kann
þrýstingurinn, er þau sprungu,
að hafa valdið einhverjum
spjöllum á flugvélinni. Þar fyr-
ir getur flugvélin liafa haldið á-
fram ferð sinni. — Flugvélin
mun liafa verið í um, 2000
enskra feta hæð, er liún var yf-
ir Reykjavík. Munu flugmenn-
irnir vart hafa séð skip á höfn-
inni, t. d. vegna þess, hversu
mökkurinn yfir bænum var
mikill. — Talið er að flugvélum
sé liættast fyrir skotum út loft-
varnabyssum í 5000—15.000
enskra feta liæð.
Þýzka útvarpið skýr-
ir írá íluginu til
Reykjavíkur.
Þýzka útvarpið skýrði svo
frá að þýzkar flugvélar hefðu
flogið allt lil Revkjavíkur, höf-
uðborgar íslands, en þangað sé
1100 mílna flug talið frá norð-
urodda Skotlands og alla leið
yfir sjó að fara. Taldi útvarpið,
að flugvélarnar hefðu skotið á
brezkar flugvélar á jörðu niðri
á flugvelli einum í nánd við
Reykjavík. Hefði þýzku flug-
vélunum ekki hlekkst á í för
þessari.
Inflúenzan.
Héraðslæknirinn í Reykjavík
biður þetta tilkynnt bæjarbú-
um:
Skátar bjóða aðstoð til
skyndihjálpar á lieimilum, sem
eru ósjálfbjarga vegna inflú-
enzu. •
Skátavörður verður þvf fyrst
um sinn á skrifstofu héraðs-
læknis í Mjólkurfélagshúsinu,
lierb. 23—25, frá ld. 9 árd. til
kl. 9 síðd., simi 5054. — Þau
heimili eða einstakhngar, sem,
eru svo nauðulega staddir vegna
inflúenzu að þeim sé bráðnauð-
syn skyndihjálpar, svo sem til
sendiferða eða nauðsynlegrar
heimilisaðstoðar, mega því
leita þangað.
Munu skátar þá eftir fremsta
megni reyna að leysa þeirra
vandræði.
Þess er einkum vænst, að
læknar tilkynni skátaverðinum,
ef þeir telja nauðsyn skjótrar
hjálpar.
SKÍÐAFERÐIR
UM HELGINA.
Yfirleitt fjölmennti fólk á
skíðum um helgina, þótt snjór
væri yfirleitt lítill og færi ekki
sem bezt. Veðrið var eins fag-
urt og bezt varð á kosið og
hélzt það jafn fagurt frá morgni
til kvölds.
Ármenningar létu einna bezt
af skíðafærinu. Sögðu þeir, að
það hefði verið silkifæri á köfl-
um í Bláfjöllunum. Um ot)
manns voru á vegum félagsins
í gær — þar af um 30, eru fóru
í Jósefsdal á laugardagskvöldið..
Um 50 K.R.-ingar fóru í skála;
sinn á laugardagskvöldið og 35,
manns bættust við á sunnudag-
inn. Talsverður snjór var, en
frystandi skari og færi ekki á-
kjósanlegt. í Skálinni var ein
góð brekka og þar liélt fólkið
sig aðallega um daginn.
Á Kolviðarhóli voru um 100
manns i gær, Ul» 20 fórii þang-
að á laugardagskvöldið. Göngu-
færi var yfirleitt ekki gott en
einstakar brekkur ágætar.
Tundurduíl spríngur
á Melrakkasléttu.
Fregn frá Raufarliöfn hermír,
að tundurdufl hafi rekið þar á
land í gær nálægt Harðbak, en
þar eru tvö íveruhús, annað úr
timbri, hitt úr steini. Rúður
brotnuðu í báðum liúsunum,
myndir duttu af veggjum o. s.
frv. Grjót hentist 200 metra úr
fjörunni upp á land. Sprenging-
in heyrðist til Raufarliafnar, 12
krn. vegalengd. Smávægilegt
tjón varð á símanum, þræðir
slitnuðu o. s. frv.
Sprengingin varð kl. 9 í gær-
kvcldi.
Hess flytur ræðu:
Hain biíili ótikiarlt-
oOan kaíbátaiiernað í vor
London í morgun.
Rudolf Hess, staðgengill Hit-
lers, flutti ræðu í gær. Hann
boðaði ótakmarkaðan kafbáta-
hernað með vorinu og sagði, að
Bretar ætti sök á stríðinu og
þar með hefði þeir tafið um
mörg ár endurreisnarverk Hit-
Iers í álfunni.
Hess sagði, að Bretar hefðu
aðeins fengið smjörþefinn af
því, livers Þjóðverjar væri
megnugir í hernaði. Þjóðverj-
ar hefðu náð kverkataki á
Bretum, og þyrfti enginn að
efast um hversu fara mundi
fyrir þeim.
Grikkir skutu niður
8 ítalskar flugvélar
í gær.
London í morgun.
Gríski flugherinn var at-
bafnasamur í gær og hafði
hann betur í öllum viðureign-
um við ítalska flugherinn. Átta
ítalskar flugvélar voru skotn-
ar niður.
ítalskar flugvélar gerðu til-
raunir til árása á Tepelinivíg-
stöðvunum, en griskar flugvél-
ar hröktu þær á flótta, og skutu
tvær niður.
Grikkir treysta aðstöðu sína
á vígstöðvunum og tafa tekið
allmarga fanga.
1 gær var tilkynnt í Aþenu-
borg, að Grikkir hefði grand-
að 3 ítölskum kafbátutn í styrj-
1 öldinni og sökkt herflutninga-
skipum, sem voru samtals 35
þús. smálestir.