Vísir - 18.02.1941, Blaðsíða 2

Vísir - 18.02.1941, Blaðsíða 2
VÍSIR DAGBLAÐ Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR II.F. Ritstjóri: Iíristján Guðlaugsson Skrifst.: Félagsprentsmiðjunni Afgreiðsla: Hverfisgötu 12 (Gengið inn frá Ingólfsstræti) Símar 1 6 G 0 (5 línur). Verð kr. 3,00 á mánuði. Lausasala 15 og 25 aurar. Félagsprentsmiðjan h.f. Afbrýðissemi Alþýðuflokksins. ÞAÐ er augljóst mál, að Al- þýðuflokkurinn er afbrýð- issamur. Það er ósköp skiljan- legt að hann sé afbrýðissamur. Hann hefir orðið að horfa upp á það á seinni árum, að fjöldi verkamanna hefir yfirgefið hann og sagt sig i sveit með sjálfstæðismönnum. Alþýðu- flokkurinn getur ekki ásakað sig unCað liafa ekki talað nógu illa um keppinaut sinn. Það er ekki mörg ár síðan Alþýðublað- ið slaðhæfði, að „íhaldið þráði ekkert nema dauðann og alls- leysið.“ Það er heldur ekkert langt síðan blaðið hélt því fram, að hæjarstjórnarmeirililulinn í Reykjavík vildi „bera hörnin út“! Það hefir ekki vantað að Al- þýðublaðið liafi reynt að gera Sjálfstæðisflokkinn að grýlu i augum verkamanna. En reynsl- an hefir sýnt, að þetta liefir ekkert stoðað. Fylgi sjálfstæðis- stefnunnar í hópi verkamanna hefir farið vaxandi að sama skapi, sem fylgi Alþýðuflokks- ins hefir farið minnkandi. Þetta er staðreynd, sem enginn getur mótmælt. Yerkamenn geta valið og liafnað. Þeir fylgja þeim flokki, sem þeir trúa bezt fyrir málum sínum. Fyrir nokkrum árum trúðu þeir Alþýðuflokknum hezt. Nú er þetta breytt. Al- þýðuflokkurinn á sér ekki við- reisnarvon, nema hann geri sér skynsamlega grein fyrir því, hvernig á því stendur, að verka- menn snúa við lionum hakinu. Ástæðan gelur ekki verið sú, að hann hafi ekki talað nógu illa um Sjálfstæðisflokkinn. Því hvað sem árvekni og samvizku- semi hans liður í öðrum grein- um, verður liann ekki sakaður um, að liafa brugðist þvi hlut- verki. Ófriðum manni stoðar ekki neitt að segja, að keppi- nautur sinn sé Ijótur, ef allir sjá, að hann er miklu ljótari sjálfur. Alþýðuflokkurinn gelur ekki sakað okkur sjálfstæðismenn um, að við höfum ekki verið honum ráðhollir. Við höfum oft bent honum á, að hann verði að manna sig upp. Við liöfum sagt honum að liann verði ein- hverntíma að standa við orð sín, ef honum eigi að verða trú- að. En þetta er eins og að stökkva vatni á-gæs. I rauninni væri ekkert við þvi að segja, þótt sjálfstæðimenn þreyttust með öllu á vinsamlegum leið- beiningum til þessa bágstadda stamstarfsflokks, úr því ekkert keinur mót, nema vanþakklæti og hortugheit. En sjálfstæðis- menn mega ekki setja þetta fyr- ir sig. Þeir líta svo á, að Al- þýðuflokkurinn megi sízt minni vera, en þegar er orðið. Alþýðublaðið liefir á undan- förnum árum sakað sjálfstæð- ismenn um fjandskap við verkalýðinn, og andúð gegn öll- um umbótum. Þegar þetta hefir ekki dugað, hefir verið fundið upp að flokkurinn væri hlyntur nazisma. Þegar það hefir held- ur ekki dugað, hefir honum verið brigslað um að vera hlynt- ur kommúnisma. En þessar ásakanir hafa enga þýðingu, af því að þær liafa ekki við neitt að styðjast. Sein- asta tilraunin er þó heppilcgust fyrir Alþýðuflokkinn. Það er engin hætta á að sjálfstæðis- menn fái óorð af kommúnist- um. Aftur vita allir menn í hvers skjóli kommúnisminn náði að dafna hér á landi. Það er talað um að kommúnist- ar sitji i opinberum stöðum. Hverjir eiga sök á þessu? Fyrr- verandi stjórnarflokkar. Það er engin líkindi til að Alþýðuflokk- urinn bafi dregið taum komm- úni§ta síður en Framsókn. Allt til síðustu ára leitaðist Alþýðu- flokkurinn við að sníða stefnu- skrá sína í samræmi við kröfur kommúnista. Eftir þingkosn- ingarnar 1937 var verið heilt misseri í samningamakki. Við bæjarstjórnarkosningarnar árið 1938 voru þeir á sama listan- um Haraldur Guðmundsson, Einar Olgeirsson og Stefán Jó- hann. Það er svona stutt síðan að þessir tveir flokkar gerðu opinbert kosningabandalag. Og það eru ekki nema 2—3 mánuðir síðan. Alþýðufloklcur- inn gerði samfylldngu við kommúnista í bæjarstjórn Reykjavíkur, ásamt Framsólcn, til þess að koma manni í nið- urjöfnunarnefnd. Sjálfstæðismönnum gera þessi kommúnistabrígsl ekkert til. Það eina, sem Alþýðuflokk- urinn liefir upp úr þessu, er, að menn rifja eitthvað upp feril lians á undanförnum árum og þar er kommúnistadekrið eitt skýrasta einkennið. Það er skilj- anlegt að Alþýðuflokkurinn sé afbi’ýðissamur. En við skulum ennþá ráða honum heilt: Hann ætti að reyna að leyna afbrýðis- seminni betur. a Viðskiptaumleitanir Japana og Rússa. EINKASKEyTI FRÁ U. P. Lond'on i morgun. Viðræður eru byrjaðar um nýja viðskiptasamninga milli Rússa og Japana. — Japönsku blöðin segja, að samkomulag hefði raunverulega náðst fyrir- fram um helztu ágreiningsat- riðin — eða fyrirsjáanlegt,. að þau verði leyst bráðlega. 70 ára er í dag Ólafur Bjarnason frá Gesthúsum í Hafnarfirði. llruiiiiin í grær: Miklar ikemmdir HB 1*41 II á lltiislllll. Eins og skýrt var frá í nokkurum hluta upplagsins í gær, var slökkviliðið kvatt að húsinu Hverfisgötu 30 klukk- an rúmlega þrjú. Var eldurinn orðinn allmagnaður, er liðið kom á vettvang, en þótt veður væri að öllu leyti hið hag- stæðasta til slökkvistarfa, gat liðið ekki farið heim aftur fyrri en klukkan rúmlega 5. Þegar slökkviliðið kom á vettvang, var eldurinn farinn að læsa sig upp á þakhæðina og neðri hæðina, en fyrst var ráðið við eldinn þeim meg'ii á miðhæðinni og neðstu hæ'ðinni, sem sneri frá götunni. Þá brauzt eldurinn úí um tvo glugga á miðhæð hit >ins, er sneru að götunni. Varð cft- ir það að berjast við eldinn frá tveim hliðum. Erfiðast var að komasi að -eldinum og rá'ða niðurlögum hans á efstu hæð hússins. Varð að rjúfa þakið til þess að kom- ast að honum, en þó að þnð væri gert, tók all-langan t'.i a að slöklcva, vegna þess hversu eldurinn var búinn að læsa sig víða um þakið og erfitt að komast fyrir liann. Þó var ekki um frekari út- breiðslu að ræða, er svo var komið og urðu engar skemmd- ir á húsunum i kring. í næsta húsi, Hverfisgötu 32, bjuggu Bretar á efri hæðinni. Báru þeir allt hafurtask sitt út á götu, og Vísi hefir verið tjáð, að fólk, er bjó á efri hæðinni í IJverfisgötu 28, liafi búið sig undir að flytja búsmuni sína út, því að veggurinn á milli liúsanna fór að hitna. Skemmdir urðu mestar á miðhæð hussins, en þar kom eldurinn upp. Er það ekki rétt, er gekk hér staflaust um bæ- inn í gær, að kviknað liefði i liúsinu vegna óaðgæzlu brezkra hermanna. Hermenn búa í neðri liæðinni, i kjallara, út- byggingu og annarri íbúðinni á þakhæðinni. En eldurinn mun hafa komizt í skotfæri hjá Bretunum, sem bjuggu á neðri hæðinni, þvi að tvær sprengingar ' :—-~ smávægilegar þó — urðu nokkuru eftir að eldurinn kviknaði. Fra Elísabet Einarsdóttir bjó á miðhæð hússins, en hún tel- ur, að eldurinn hafi átt upptök sín á þeirri liæð. Breiddist eld- urinn svo fljótt lit, að e ngu varð bjargað á þeirri liæð, og liefir frúin orðið fyrir mjög til- finnanlegu tjóni, þvi að allt var óvátryggt, er hún átti. — Brenndist frú Elísabet dálítið í andliti áður en hún komst út, Brezkir hermenn hjálpuðu til við slökkvistarfið. Litill þrýstingur var á vatn- inu í fyrstu er brunaliðið tók til starfa, en úr því var bætt á þann hátt, að skrúfað var fyrir tvær leiðslur, sem liggja til Vesturbæjarins, önnur um Tryggvagötu, en hin um Banka- stræti. Átti Vísir tal við Helga Sig- urðsson verkfræðing hjá Reykjavíkurbæ um málið og innti hann eftir, hvort borið hefði á vatnsskorti að undan- förnu. Skýrði bann svo frá í stuttu máli: „Þriðjudaginn annan er var bárust okkur kvartanir um vatnsskort, og var þar aðallega að ræða um, vatnsleysi i efri hæðum húsa. Sendum við þá strax menn upp að Gvendar- brunnum til þess að athuga valnsmagn þeirra, og reyndist það eitthvert hið mesta, sem um er að ræða í brunnunum. Við létum menn fara meðfram öllum æðunum til bæjarins, ef ske kynni að leki hefði komizt að leiðslunum, en svo reyndist ekki. Kl. 5 síðd. á miðvikudag, er við athuguðum vatnsmagn geymanna, reyndust þeir tómir, og sýnir þetta, að vatnsnotkun- in hefir verið afar mikil. Við höfum daglegt og stöðugt eftir- lit með vatnsmagni geymanna og liafa þeir reynzt fullir á liverjum morgni. Hafa geym- arnir aldrei tæmst yfir daginn, og vöru þeir þannig t. d. hálfir kl. 4 s.l. laugardag. Á sunnu- dagsnóttina “fylltust þeir að nýju og var nægur vatnsþrýst- ingur allan þann dag. í gær- morgun kl. 8 reyndust geym- arnir svo fullir, að út af þeim rann, en ld. 8 í gærkveldi voru þeir tómir. Vatnsnotkunin i gær hefir því verið óhóflega mikil, og þó var gripið til þess bragðs, meðan á brunanum stóð, að loka tveimur leiðslum af fjórum, sem, til Vesturbæjar- ins liggja. Voru leiðslur þessar lokaðar frá því ld. 3% til kl. 5V4 síðd. Eftirlit hefir verið haft með þeim fyrirtækjum, sem mesta vatnsnotkun hafa og þau hvött til þess að stilla henni i hóf, en reynslan sýnir að þetta'er ekki nægjanlegt. í haust þegar vatns- skorts gætti var almenningur hvattur til að eyða ekki vatni að óþörfu, og þá brá svo við, að allir liöfðu nægjanlegt vatn. Nú lítur út fyrir, að almenn- ingur hafi tekði upp fyrri háttu, og láti vatn renna að óþörfu. Slíkt getur reynst mjög baga- legt, og ættu menn því sjálfs sín vegna og annarra, að gæta sparnaðar í þessu efni, þannig að ekki þurfi að gera sérstakar og óvenjulegar ráðstafanir í því augnamiði að lcoma í veg fyrir óþarfa vátnsnotkun." Samkvæmt frásögn Sveins Þjóðverjar skýra frá fyrirætlunum sínum í nýlendumálum að stríðinu loknu. Um nokkurra ára skeið hefir starfað í Þýzkalandi félagsskapur, er hefir með höndum uppfræðslu ungra manna og kvenna í öllum þeim efnum, sem að ný- lendumálum lúta. Er þetta gert í sambandi við kröf- ur þær, sem Þjóðverjar hafa lengi gert til að fá aftur nýlendumar, sem Bandamenn tóku af þeim með Versalasamningunum 1919. Fólki þvi, sem síðar er ætlað að fara til nýlendnanna, þegar Þjóðverjar eru búnir að fá þær aftur, lærir ræktun ýmsra nauðsynja o. s. fi*v., yfirleitt allt, sem gera má ráð fyrir, að ný- lendubúum megi að gagni koma í baráttu sinni í landi, þar sem lífsskilyrði eru öll öðruvísi en í heimalandinu. Nýlendusambandið þýzka hef- ir sitt eigið málgagn er heitir Deutsche Kolonialzeitung. I grein, sem birtist í blaði þessu fyrir skemmstu er það gefið i skyn, að þegar Þjóðverjar liafi náð þýzku Suð-vestur-Afríku aftur muni 50% allra Búa og Breta, sem þar eru búsettir verða reknir úr landi. Fer hér á eftir útdráttur úr greininni, saminn af fréttaritara United Press í Berlín. „Margir búgarðar, sem að undanförnu hafa verið eign hatramra fjandmanna Þjóð- verja, munu verða afhentir þýzkum bændum,“ segir Deutsche Kolonialzeitung. „Bú- garðar þeirra, sem að eins hafa diegið fram lífið á opinberum styrkjum, verða einnig teknir af þeim. Það er elcki hægt að þola það, að í þýzkri nýlendu sé 40 % ibúanna Þjóðverjar og 60 % Bretar og Búar. Þegar tekin verður stjórnin á Suð-veslur-Afríku verða allir embættismennirnir og f jöl- skyldur þeirra að liverfa á brott þaðan. Jafnframt verða þeir látnir fara, sem tóku þátt í of- sóknum á Þjóðverja, livort sem þeir lifa á jarðrækt eða öðru. Og svo auðvitað allir Gyðingar og vinir þeirra. Fortíðin hefir mikið að segja. Ef Þýzkaland færi eins að og stjórn nýlendunnar í lok Heimsstyrjaldarinnar, þegar hún rak alla þá Þjóðverja úr landi, sem henni geðjaðist ekki að svipnurh á, þá myndi að eins örfáir Búar og Englendingar fá að dvelja þarna áfram. En við skulum bíða og sjá, hvað Þýzka- land gerir. Það, sein gert verður, mun að öllum líkindum velta iá afstöðu og framkomu Suður- Afríku-sambandsins í þessu striði. En jafnvel þótt 30% íbúanna væri Búar og Englendingar, myndi þessi háa hlutfallstala ekki gera það nauðsynlegt, að þeir væri kúgaðir. Þvert á móti myndi þeir fá að halda tungu sinni og siðum, því að við höfum enga löngun til þess að „þýzlca“ þá. En þeir mun verða áhrifa- lausir í stjórnmálum.“ Blaðið ræðir síðan möguleika og horfur á landnámi Þjóðverja i Suð-vestur-Afríku ‘og segir i lok þeirra hugleiðinga: „Mögu- leikarnir eru að eins litlir og landrýmið er ekki svo mikið, að það fullnægi þörf Þjóðverja fyrir aukið landrými lianda börnum sínum.“ Mikilvægar framkvæmdir fyrirhugaðar. Dr. H. Blumenhagen, sem er höfundur greinar þessarar, er þeirrar slcoðunar, að Þýzkaland muni ekki hika við að leggja fram mikið f jórmagn til þess að rétta við hag landsins. Með því að byggja stiflur, miklar og voldugar mun vatni verða veitt yfir mikil landflæmi og tilraun mun einnig verða gerð til þess að hagnýta megnið af því rign- ingarvatni, sem nú kemur að litlum sem engum notum. Á annaðhvort að byggja stíflúr til þess, eða steypa „varnargarða“ Fimmtugur: €runnar Ólafsion bifreiðastjóri. Gunnar Ólafsson bifreiða- stjóri, Frakkastíg 6A, er fimmt- ugur í dag, 18. febrúar. Hann hefir nú um 13 ára skeið haft með höndum akstur næt- urlækna bæjarins, og stund- að það starf með einstakri trú- mennsku og prýði. Hefir hann aflað sér almennra vinsælda bér í bæ, ekki sízt hjá þeim, sem skipti liafa átt við liann í störfum lians við næturakst- urinn. Gunnar nam í æsku liús- gagnasmíði lijá Jóni Halldórs- syni & Co. og stundaði þá iðn um skeið, en þegar bifreiðar fluttust hingað til lands, nam hann bifreiðastjórn og var einn af fyrstu bifreiðarstjórum hér á landi. Hefir hann ávallt stundað bifreiðastjórn siðan, haft með höndum kennslu í bifreiðaakstri, og átt sjálfur fjölda bifreiða. Gunnar er kvæntur Ragn- heiði Bogadóttur Sigurðssonar frá Búðardal, og eiga þau fjórar dætur. Verður fjölmennt á heimili þeirra hjóna í dag, og munu þeim berast hlýjar kveðjur í tilefni dagsins víðs vegar að„ Þ. Sæmundssonar lögregluþjóns, er Vísir átti tal við hann í morg- un, bafði lcviknað út frá mið- stöðinni á miðhæðinni —- en hún var inni i skáp eða litilli kompu inn af eldhúsinu — sem var sameiginlegt fyrir báðar í- búðir hæðarinnar. Stúlka hafði verið að bæta i mdðstöðina, en fór svo niður í kjallara til að sækja kol. Þegar þangað kom, varð hún þess vís- Frh. á 4. síðu. neðanjarðar, sem varni því að vatnið renni eftir jarðlögum á brolt frá þeim stað, sem því rigndi á. Blumenhagen segir, að ef þetta sé framkvæmanlegt, muni að minnsta kosti 10 sinnum fleiri bændur geta lifað í land- inu en nú lifa þar. Hann bætir því við, að með þvi að reisa stíflur og grafa áveituskurði, sé hægt áð gera sum landssvæði 300 sinnum frjósamari en þau eru nú. Ef svo reynist myndu þá 3 lieklarar gefa jafnmikið af sér og 900 áður. Skólinn, sem að ofan gelur er í Witzenliausen. Nemendurnir læra þar ýms Afríkumál og þeir læra ræktun og meðferð á mis- munandi jurtum, svo sem kaffi, kakaó, sago, kokain o. s. frv. Eins og Blumenhagen, eru þessir tilvonandi nýlendubúar þess fullvissir, að „ávextir sigra olckar fara nú að koma í ljós, og þá mun verða bætt fyrir hið -fyrirlitlega rán á nýlendum okkar.“

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.