Vísir - 24.02.1941, Síða 2

Vísir - 24.02.1941, Síða 2
VÍSIR VÍSIR DAG BLAÐ Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F. Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson Skrifst.: Félagsprentsmiðjunni Afgreiðsla: Hverfisgötu 12 (Gengið inn frá Ingólfsstræti) Símar 1 6 6 0 (5 línur). Verð kr. 3,00 á mánuði. Lausasala 15 og 25 aurar. Félagsprentsmiðjan h.f. Vaxandi dýrtíð. |£AUPLAOSNEFND og Hag- stofan hafa nú reiknað út vísitöluna fyrir marzmánuð og er hún 148 miðað við verðlagið 1. febrúar. Reiknast verðlags- upphót á kaupgjald frá 1. marz eftir þessari vísitölu, og hefir hún hækkað um tvö stig miðað við visitölu þá er gilti fyrir fe- brúarmánuð, sem er 146. I uppliafi var ætlun löggjaf- ans að vinna af fremsta megni gegn vaxandi dýrtíð. Voru í því augnamiði sett ýms lög og fyr- irmæli, þegar áður og eftir að stríðið hófst, en löggjafinn hvikaði þó fljótlega frá þessum góða ásetningi, — veitti tilslak- anir á tilslökun ofan, og snjó- boltinn, sem var fyrirferðarlít- ill i upphafi, hlóð utan á sig á leiðinni niður hrekkuna, og er nú orðinn að stórri óstöðvandi skriðu. Þau fyrirmæli, sem enn eru í gildi, hljóta að reynast skammgóður vermir , og má þar einkum nefna húsaleigu- löggjöfina, sem hlýtur að breyt- ast þegar á þessu þingi. í kaup- slöðunum eru það húseigendur einir, sem enga uppbót hafa hlotið vegna hinnar vaxandi dýrtíðar. Vinnulaun hafa þó stórhækkað og allar nauðsynj- ar til viðhalds Iiúsanna, og eru engin skynsamleg rök fyrir þvi, að þessir menn fái ekki fulla uppbót á leigu vegna viðhalds- kostnaðar liúsanna. Þeir eiga rétt á slíkri hækkun eins og allir aðrir, — undanlátssemin verður að koma þeim til góða með því að engan mannamun mega stjórnarvöldin gera sér í því efni. Ein og sömu lög verða að gilda fyrir alla. Hin aukna dýrtíð hér í Iandi hefir stórkostlega þjóðhagslega þýðingu, og hlýtur óhjákvæmi- lega að miða að algjöru hruni, ef allar varúðarráðstafanir eru ekki gerðar í tíma. Þessa liefir þegar orðið vart og nægir í því efni að henda á, að það eitt er ekki nóg að hækka kaupgjaldið í samræmi við dýrtíðina, með því að það eru hinir erlendu markaðir, sem ákveða hvaða kaupgjakl framleiðslan er fær um að greiða. Nú er það kunnugt að ýmsir hinna ágætustu markaða, sem við Islendingar höfum húið að, hafa lokast með öllu. Hefir það aftur leitt til þess að sumar framleiðsluvörur vorar liggja ó- seldar í landinu og eru óseljan- legar fyrir það verð, sem náuð- syn er á að fáist fyrir þær. Styrjöldin hefir leitt til þess að við höfum leitað til Vestur- heims um viðskiptasambönd. Þar situr allt í sama farinu að þvi leyti að verðhækkunar hefir þar ekki gætt og meðan svo er fæst ekki fuljnægjandi fram- leiðsluverð fyrir íslenzkar vör- ur, sem þangað eru seldar, — miðað við þá miklu dýrtíð> sem hér ríkir í landi. Þótt sá óvænti hvalreki liafi orðið hér í Iandi, að unnt reyn- izt -að greiða verðuppbætur á útflutta vöru á þessu ári, er það engin Iausn á vanjlanum, heldur aðeins gagnslitil stund- arfróun. Eina varanlega lækn- ing meinsemdanna hlýtur að vera sú, að öll áherzla sé lögð á að vinna gegn dýrtíðinni með öllum þeim ráðum, sem unnt er. Það er að sjálfsögðu Ijóst, að hér er ekki um vandalaust verkefni að ræða, en náist ein- hver árangur er hann miklu meira virði en tilgangslítil styrkjastarfsemi. Nú í bili bitnar dýrtíðin til- finnanlegast á landbúnaðinum. Afurðirnar liggja sumpart ó- seldar í landinu, en þær vörur, sem út hafa verið fluttar, hafa selst fyrir algerlega ófullnægj- andi verð. Kaupgjald hefir hins- vegar hækkað svo gifurlega, að litil líkindi eru til að bændur geti greitt það án tilfinnanlegs hallarekstrar á búum sínum. Slíkt ástand hvetur sízt til bjartsýni, og áður en varir munu erfUðleikarnir tala sínu máli á öðrum sviðum þjóðlífs- ins, vegna hinnar sivaxandi dýrtíðar. Viðleitnin hlýtur framvegis fjæst og fremst að beinast að þvi, að lækka dýrtíðina, með öllum þeim ráðum, sem gefast. Hver sigur í þvi efni, þótt smár kunni að vera, miðar í rétta átt, — það á að skapa heilbrigt og eðlilegt atvinnuástand í landinu, í stað þeirrar hættulegu hringa- vitleysu, sem nú veður uppi. Það þing, sem nú situr, hlýtur að marka stefnuna í þessu efni, og þótt kosningar séu fyrir dyr- um, og freistingar til óheil- brigðrar áróðurshneigðar kunni að gera vart við sig og liafi þeg- ar gert það að hálfu andstæð- inga Sjálfstæðisflokksins er þess að vænta, að þeir skorist ekki undan þeirri skyldu, að vinna einhuga að þeim nauð- synjamálum, sem mest er um vert og þingið þarf að leysa. Ekki er ráð nema í tíma sé tekið og allur dráttur er til ills eins. Því þarf að hefja barátt- una gegn dýrtiðinni og því fyr því betra. Hagur Flug- félagsins er góður. p LUGFÉLAG ISLANDS hélt aðalfund sinn á laugardag. Bergur G. Gíslason, formaður félagsins, gáf skýrslu um störf þess á liðna árinu, en eins og Vísir skýrði frá fyrir nokkuru flugu flugvélar félagsins rúm- lega 100.000 km. á árinu. Tekjur félagsins námu rúm- lega 115 þús. krónum, en gjökl- in tæplega 109 þúsund og eru þá afskriftir með taldar. Rekst- urshagnaður varð kr. 6831.52 og glerði stjórnin það að til- lögu sinni, að 5000 kr. væri lagðar i varasjóð, en hitt fært til þessa árs og enginn arður yrði greiddur. Þessi tillaga stjórnarinnar var samþykkt. Þá gaf Örn ö. Johnson, flug- maður, sem er jafnframt fram- kvæmdastjóri félagsins, skýrslu um flugið. Stjórn félagsins var öll end- urkosin og eru þessir menn í henni: Bergur G. Gíslason, Agn- ar Kofoed-Hansen, Örn Ó. Jolinson, Jakob Frímannsson (Akureyri) og Kristján Krist- jánsson (Ak.). Vilhjálmur Þór, bankastjóri, var kosinn varamaður í stórn- ina, en endurskoðandi Magnús Andrésson, fulltrúi, og Svan- björn Frímannsson, aðalféhirð- ir. — , Úthlutun mat.vælaseðla í Reykjavík fyrir næstu fjóra mánuði, hefst á morgun. Afgrei'ðsl- an er í Tryggvagötu 28, afgreiðslu- tími kl. 10—12 f. h. og 1—6 e. h. Hún verður opin fram til mánaða- móta. Lúðvlg? €!nðiniind§§on: Hefir al^er m^rkvim lbæ|arm§ verið ákveðm ? Myrkvunin rædd á Alþingi. T Alþbl. í dag sé eg, að hr. alþm. Finnur Jóns- son hefir á þingfundi í gær spurt „hvort nokkuð hefði frekar verið athugað um myrkvun bæjarins“. Skv. frásögn blaðsins svaraði forsætisráðherra því, að „eflaust yrði nánar athug- að um þetta“. Bæjarbúum munu enn vera i fersku minni myrkvunar- áform þau, er lögreglustjórinn birti um mánaðamótin júlí— ágúst, og ganga áttu í gildi þ. 15. ágúst síðastl. Áform þessi og ýmsar ráðstafanir, sem jafnframt var tilkynnt, að nauðs)rnlegar væru vegna myrkvunarinnar, svo sem skerð - ing á skemmtanafrelsi bæjar- búa o. fl., sættu megnri and- úð og gagnrýni bæjarbúa og voru úr gildi felld áður en þau kæmi til framkvæmda. Samkvæmt frásögn „Tím- ans‘ 9. ágúst siðastl., átti livorki loftvarnanefnd né lögreglu- stjóri, heldur yfirstjórn brezka setuliðsins, frumkvæði að á- formum þessum. En eftir að í ljós var komin mikil andúð bæjarbúa á ráðstöfunum þess- um, kvaddi fulltrúi brezka setuliðsins fréttamenn blaða og útvarps á fund sinn. 1 dagblöð- unum 7. ág. er skýrt frá fundi þessum, og er af frásögn þeirri Ijóst, að herstjórnin er þá orð- in fráhverf fyrri tillögum sin- um. Hinsvegar tilkymnt fulltrú- inn (skv. Mbl. 7. ág.), að lier- stjórnin mundi nú „leggja til við ríkisstjórnina, að verðir verði hafðir í rafmagnsstöðv- um, svo að liægt verði að taka rafstraum af strax, ef loftárás Væri yfirvofandi, eða tilraun til loftárásar yrði gerð“, og að herstjórnin þess vegna ráðleggi „almenningi að útbúa eitt lier- bergi í bverju búsi eða íbúð, sem hægt er að byrgja svo vel, að ekki sjáist út, þó haft sé í þessu herbergi kerta- eða Iampaljós“. Viðtal þelta sefaði hugina! Víða mátti heyra, að nú væri allt í lagi. Þetta væri svo sem eitthvað annað en myrkvunar- plön lögreglustjórans! — Leið nú og beið. Flestir munu einnig liafa beðið — og bíða sennilega enn, — með að „útbúa eitt herbergi í hverju húsi eða íbúð“ í samræmi við brezku ráðin. Almenningi er heldur eigi láandi, því að tii þessa dags munu engar opin- berar tilkyínningar — hvorki frá íslenzkum stjórnarvöldum né heldur frá stjórn brezka setuliðsins — hafa verið birt- ar um endanleg úrslit málsins og nauðsyn slíkra varúðarráð- stafana, sem að ofan getur. Síðastl. haust ritaði ég grein í „Vísi“ um mál þetta og rakti gang þess. Samkvæmt öruggum heimildum slcýrði eg þar frá þvi, að mál þetta, — þ. e. till. brezku herstjórnarinnar frá 7. ágúst — hafi þá nýlega verið til umræðu á fundi bæjarráðs- ins og ráðið þannig til úrslita, að vörðum á rafstöðinni við Elliðaárnar skyldi verða falið „að taka rafstraum af strax, ef loftárás væri yfirvofandi, eða tilraun til loftárásar yrði gerð“, svo að notað sé orðalag brezku tillagnanna. í grein minni lýsti eg eftir op- inberri tilkynningu um úrslit þessi. En árangurslaust. Eng- in slík orðsending befir kom- ið fyrir augu almennings, svo að mér sé kunnugt. Rétt eins og bér væri um ómerkilegan hégóma eða smámuni að ræða, sem bséjarbúa skipti engu að vita um. Vegna fyrirspurnar hr. alþm. F. J. lireyfi eg þessu máli enn á ný. Vil eg einnig biðja hátt- virta lesendur blaðsins að reyna að gera sér í lnigarlund ástand það, er skapast mundi hér í bqenum, ef t. d. þýzkar flugvélar kæmi hér að nætur- lagi, að bæjarbúum óviðbúnum gerri myrkvun. Fylgja liér nokkrir drættir, er nota mætti í þessa mynd: Þýzkar flugvélar fljúga t. d. yfir Selfoss. Fárra mínútna flug til Reykjavíkur.— Skyndi- boð til stöðva setuliðsins hér. — Aðvörun til lögreglustöðv- arinnar hér og rafstöðvarinn- ar við Elliðaárnar. — Rafflaut- urnar i gang! — Síminn hring- ir! — Þrjár mínútur líða. Raf • flauturnar þagna. — Flugvél- arnar yfir bænum. — Skothríð loftvarnabyssanna. — Bæjar- búar hafa vaknað með felmtri. — Hætta yfirvofandi! — Fólk- ið stekkur fram úr rúmunum. Reynir að kveikja ljós. — Raf- magnslaust. — Myrkur i svefn- lierberginu, stofunni, eldhús- inu, göngunum. Alstaðar myrk- ur. — Fáklætt leitar fólkið ör- yggis á neðstu liæð hússirrs eða i kjallara. — Myrkur. — Kon- ur, börn, gamalmenni. — Hræðsla grípur um sig. — Hvar er öruggast skýli? — Hvar er kerti eða olíulampi? — Hvern- ig er búið um glugga ? — Myrk- ur og kuldi. — Alstaðar myrk- ur. — Skothríðin dynur úti. — Óttinn magnast. — Fum. — Fát. — Ofsaliræðsla.------ Nú getur hver valið úr þess- um frumdráttum þá, er hann vill. Aukið við, ef ástæða þýk- ir til. Hafnað ]>eim — nokkr- um eða öllum, — ef honum þóknast það heldur. En livað sem þessu öllu lið- ur, — og án þess liér að kveða upp dóm um nauðsyn eða heppilegustu tilhögun myrkvun- ar, — veit eg, að eg mæli fyrir munn mikils fjölda bæjarbúa, þegar eg fer fram á, að birt verði afdráttarlaus opinber til- kjmning um það, hvaða ráð- stafanir hafa verið ákveðnar um myrkvun og hvaða fyrir- mæli sett um öryggisráðstafan- ir vegna myrkvunarinnar, ef til loftárása kynni að koma hér að næturlagi á meðan nótt er enn dimm. • Reykjavík, 22. febr. 1941. Lúðvig Guðmundsson. Rauði Krossinn opnar sýn- íngu 1 Félagid liefur Rauði Kross íslands hefir opnað fjölbreytta og eftir- tektarverða sýningu í Há- skólanum. Gefur hún glögga hugmynd um hið víðtæka mannúðarstarf fé- lagsins og vöxt þess og við- gang á undanförnum árum. Sýningin er mjög vel undir- búin og er öllu vel fyrir- komið. Hafa ýmsir sjálf- boðaliðar Iagt fram mikið starf til þess að sýningin gæti náð tilgangi sínum sem bezt. Ýms línurit sýna starfsemi félagsins. Eitt sýnir vöxt þess, en frá því árið 1937 til 1940 fjölgaði félögunum úr 516 i 1162. — Þá er og skrá yfir allar þær hjálparstöðvar, sem félag- ið liefir komið á fót, og er ætlað að starfa, ef svo skyldi fara að hér yrði gerð loftárás. Starfar fjöldi sjálfboðaliða við stöðvar þessar, læknar og læknanemar, hjúkrunarfólk o. s. frv. Félagið hefir eignast 100 sjúkrarúm, sem hægt er að flytja hvert sem mest er þörf á. Þá gefur að líta á sýning- unni sjúkrasleða, sém félagið á. Er hann mjög handhægur og fullkominn, og hægt að nota liann sem sjúkrabörur, ef þörf krefur. Hefir félagið mikinn hug á að auka sleðaeign sína og hafði gert ráðstafanir til þess að fá þá frá Svíþjóð, en þegar ófriðurinn barst til Norður- landa 1 vor, lokaðist sú leið. Félagið hefir líka unnið að ýmsum þörfum málefnum, svo sem því að koma börnum í útgáfu tímarits. sveit s.l. sumar, koma á bréfa- sambandi við útlönd, safnað fé til Finnlands o. fl. Rauði Krossinn selur ekki að- gang að sýningunni. Hún er til þess að sanna almenningi hvað félagið hafi megnað að gera og hvers megi af því vænla, er skilningur almennings á ágæti þess fer vaxandi. Á öskudag hefir R. K. I. merkjasöludag. Þá gefst bæjar- búum kostur á að sýna, að þeir kunni að meta starfsemi fé- lagsins. Þann dag eiga allir að bera merki þess. • Rauði Krossinn liefir nú bætt úr þeirri vöntun, sem, hér hefir verið á alþýðlegu riti um heilsu- vernd og heilbrigðismál. Er rit- ið nefnt „Heilbrigt líf“, en rit- stjóri þess er dr. med. Gunn- laugur Claessen. Segir svo í formála ntsins, eftir Gunnlaug Einarsson, lækni, formann Rauða Kross ís- lands: „Tímaritið verður smám saman vísir að liandbók lieim- ilanna í þessum málum, og bætir þar ófyllt skarð í bók- menntum vorum. Þess vegna er hverju beimili nauðsyn að fylgjast með frá byrjun.“ Ritið á að koma út 4 sinnum á ári eða i tvöföldum lieftum — 12—14 arkir árlega. Háskólafyrirlestur á ensku. J Dr. Cyril Jackson sendikennari ► ' flytur fyrirlestur fyrir almenning | í I. kennslustofu háskólans á mo.rg- i un kl. 8.15. Efni: Háskólar í Eng- landi. Finnlandssöf nunin: Hverjir voru örlátastir? [ HINU nýja riti Rauða Kross; Élands, „Heilbrigt líf“, er prentuð ársskýrsla formanns, Gunnlaugs Einarssonar, og hef- ir hún að geyma margan fróð- Ieik. Meðal annars er þar skýrsla um Finnlandssöfnunina, sem R. Kr. I. og Norræna félagið geng- ust fyrir, og sýnir hún hverstr mikið safnaðist í hverri sýslu og kaupstað á landinu. Alls söfnuðust kr; 174.486.89, og er þá meðtalið áætlað verð prjóna- og sklnnavara, 10 lýsistunna, 5 gullhringa, 2já skúfhólka, 2já skartgripa til, vaxtatekjur og fé frá ónefndúm úti á landi. Reykvíkingar gáfu í pening- um kr. 40.622.22 og þótt það sé- næstum fjórðungur alls fjárins eru þó' 18 sýsluiv og bæjir- jöfulli af íbúum 22ja bæja og sýslna, ef reiknað er hve mikið. kemur á hvern ibúa. Hver Reykvíkingur gaf að jafnaði kr. 1.09; Siglfirðingar voru rausnar- legastir, þeii’ gáfu kr. 9000 eða sem svarar kr. 3.18 á hvern íbúa. Næstir voru Dalamenn, sem gáfu kr. 3.898.05, eða hver ibúi kr. 2.62. Næstir voru Ak- ureyringar: Lægstir voru Vestmannaey- ingar. Þeir gáfu kr. 1052.94 eða kr. 0.30 á íbúa. Eyfirðingar voru næstlægstir með kr. Ó.94 á mann eða kr. 4975.00 sam- tals. — Allsstaðar annarsstaðar kom inn meira en ein króna á íbúa til jafnaðar: Sæbjörg dreour vélbát og llnuveira til lialnar Á laugardag var lökið við- gerðinni á Sæbjörgu, eftir á- fallið er hún varð fyrir um míðjan mánuðinn. Fór hún þá út til þess að hjálpa v.b. Garð- ari. Báturinn var staddur undan Hafnabergi við Kirkjuvog og var vélin biluð. Kom Sæbjörg með Garðar til Iíirkjuvogs í fyrrinótt. Sæbjörg fór síðan út aftur til þess að lijálpa línuveiðaran- um Rúnu frá Akureyri. Dró Sæbjörg hann einnig til Kirkju- vogs. Rúna var stödd sunnan Reykjaness, þegar hún bilaði. Dreifibréfsmálid s Sækjendur og verjendur fyr- ir Hæstarétti. JJÆSTIRÉTTUR er búinn að skipa sækjendur og verj- endur í landráðamáli kommún- istanna. Sækjandi verður Sig- urgeir Sigurjónsson, hdm., en verjendur Pétur Magnússonr hrm., og Egill Sigurgeirsson, hdm. Pétur Magnússon ver þá Ás- geir Pétursson og Eggert Þor- bjarnarson, en Egill Sigurgeirs- son hina átta: Hallgrím B. Hall- grímsson, Eðvarð Sigurðsson, Guðbr. Guðmundsson, Helga Guðlaugsson, Har. Bjamason, Guðm. Björnsson og Þjóðvilja- ritstjórana Einar Olgeirsson og Sigfús Sigurhjartarson. Verjendurnir fá útdrátt úr málsskjölunum og er þeir hafa athugað hann, fá þeir frest til að undirbúa vörn sina. Málafærslan er munnleg fyr- ir Hæstarétti. Fyrst talar sælcj- andi, siðan verjendur, þá svar- ar sækjandi þeim og að síðustu svara þeir og er þá málaflutn- ingi lokið.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.