Vísir


Vísir - 31.03.1941, Qupperneq 2

Vísir - 31.03.1941, Qupperneq 2
VlSIR DAGBLAÐ Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIIt H.F. Ritstjóri: Kristján Guðiaugsson Skrifst.: Félagsprentsmiðjunni Afgreiðsla: Hverfisgötu 12 (Gengið inn frá Ingólfsstræti) Símar 1 6 60 (5 línur). Verð kr. 3,00 á mánuði. Lausasala 15 og 25 aurar. Félagsprentsmiðjan h.f. Hvers vegna mótmælum vér ekki? jyj ÓTMÆLI eru á stundum lítils virði, að því leyti, að þau breyta lítið i svip þeim að- stæðum, sem mótmælt ,er. En þau geta oft síðar verið mikils virði, til þess að halda á lofti þeim rétti, sem brotinn hefir verið. Engum kemur til hugar, að mótmæli frá íslands hálfu muni breyta þeirri ákvörðun Þjóð- verja, að setja hafnbann á land- ið, en þrátt fyrir 'það mun hverjum íslending þykja það sjálfsögð skylda ríkisstjórnar- innar, að mótmæla óhikað og eindregið þvi gerræði við ibúa landsins, sem felst í hafnbanns- yfirlýsingunni. Þótt vér getum ekki varið oss, þá er óþarfi að sagan þurfi síðar að geta þess, að vér höfum ekki haft mann- dóm til að mótmæla þessu bana- tilræði við þjóðina. Alþingi, undir forustu Jóns Sigurðssonar, hrópaði til full- trúa konungs „vér mótmælum allir“, þegar þingið var beitt of- beldi af hinum danska konungi landsins. Þegar landið var her- numið, mótmælti stjórnin fljótt og einarðlega þessari árás, sem gerð var á frelsi og hlutleysi þjóðarinnar. Hinni seinustu á- rás, sem heinist að lifsafkomu landsmánna, má ekki sögunnar vegna láta ómótmælt. Þótt vér búum í hemumdu landi, höfum vér samt lögmæta ríkisstjóm og hið þjóðkjörna löggjafarþing skipar öllum mál- um þjóðai-innar eins og áður. Landsmenn verða sjálfir að sjá sér farhorða, annast siglingar sinar, flytja afurðirnar á mark- að og flytja heim aðkeyptar nauðsynjar. Hið þýzka herveldi er því ekki aðeins að færa út kvíarnar gagnvart liinum vold- uga andstæðingi sínum, Breta- veldi, heldur er það um leið að banna allar bjargir hlutlausri smáþjóð, sem verður að senda 'ski'p sín >-fir hafið og sigla um miðin, til að geta lifað. Lífsréttindi einnar smáþjóð- ar eru ef til vill ekki mikils virði í augum ]>eirra, sem heyja hinn ægilega liildarleik. En fyr- ir smaþjóðina sjálfa eru þessi réttindi sama og Iífið sjálft, og þess vegna verður hún að gera það eina, sem hún getur gert, að mótmæla. Fulltrúi Þjóðverja hér er sænski ræðismaðurinn. Honum á að afhenda þessi mót- mæli, og þarf ekki að efast um, að þau muni komast í hendur réttra aðila. Er því eklci hægt að.bera því við, að ekki sé hægt að koma mótmælunum • til þýzku stjórnarinnar. Það er einnig full ástæða til i að mótmæla þvi, að yfirvöld Þýzkalands líti á Island sem „danska eyju“, enda mætti segja að slíkt kæmi úr hörðustu átt, þar sem margir ágætismenn Þjóðverja fyr og síðar hafa stutt íslendinga i frelsisbarátt- unni með ráðum og dáð. Auk þeés hefir þýzka ríkið viður- kennt fullveldi landsins sam- kvæmt sambandslögunum 1918. Ríkisstjórnin verður að taka Mikilsverðar samgöngu- bætur í nágrenni Brýr fereikkaðai' og: nýjar býg^ðar. P' laugardagsmorgun voru Elliðaárbrýrnar ný ju opn- aðar til umferðar. Er fyrst um sinn ætlazt til að umferðin frá bænum fari eftir nýju brúnum, en um- ferðin til bæjarins fari áfram eftir gömlu brúnum, þangað til öðruvísi verður ákveðið. Þessar brýr eru 8.70 metrar að utanmáli,en ökubreidd þeirra er 6.00 mtr. og gangstígar eru báðum • megin. Er ökubreidd þeirra jafnmikil o'g steypta veg- arins inn að Elliðaám. Brýrnar eru 13. mtr. langar liver um sig. Byrjað var á smíði brúnna snemma í nóvembermánuði síð- ast liðnum. Þá hefir brúin á Varmá i Mosfellssveit - brúin hjá Brú- arlandi - verið breikkuð, svo að ökubreidd hennar er nú 6 metrar, eins qg á Elliðaárbrún- um, en auk þess er gangstígur öðrum megin á henni. Loks liefir brúin lijá Korp- úlfsstöðum verið breikkuð upp í sex metra. Með nýju Elliðaárbrúnum og breikkun hinna brúnna tveggja er hrundið í framkvæmd mikils- verðum samgöngubótum, sem voru orðnar mjög aðkallandi vegna hinnar gífurlega auknu umferðar á nágrenni bæjarins. Skíðamót Reykjavíkur; Mjög misjaln árangur. »Himiiariki« í Bláf jöllima. Bezta veður var í BláfjöIIum í gær, sól og norðan andvari. Áhorfendur á mótinu voru rúmlega tvö hundruð. I skála Ár- manns voru 70 næturgestir aðfaranótt sunnudagsins og í Himnaríki voru allir, sem þar komust fyrir, en það er varla meira en 15 manns. Dvöl barna við Silunga- poll. Dvalartíminn miklu lengri en í fyrra. Tíðindamaður Vísis hitti-Jón Pálsson að máli i gær og spurð- ist fyrir um það, livort Odd- fellowar liefði í liyggju að halda uppi sumardvöl að Siíunga- polli fyrir „fátæk og veikluð börn“, eins og að undanfömú, og þá á hvern veg að þessu sinni. Jón Pálsson sagði: Já, áreið- anlega! Undirbúningur til þess er þegar liafinn. Það verður aug- lýst í blöðum og útvarpi næstu daga, að umsóknir megi senda til mín um þetta nú þegar eða liið allra fyrsta. Fyrirkomulagið verður eins og ávallt áður, en eg tel líklegt, að byrjað verði miklu fyrri en venjulega, og að dvalartíminn verði að miklum mun lengri en vant er. Að eins stúlkur 5 til 12 ára og drengir 5 til 9 ára koma til greina, og þá að undangenginni læknis- skoðun, sem auglýst verður sið- ar á sömu lund sem áður segir. Focke-Wulff-flugvél af „Condor“-gerð, eins og hingað kom í gær. Þriðja heimsókn þýzkrar flugvélar til nágrennis Reykjavíkur. Talið að flng:véliii 9iafi orðið fyrfr siireng:|n. Um kl. 10 í gærmorgun hófst áköf skothríð af loftvamabyss- um í nágrenni bæjarins, og nokkuru síðar hljómuðu loftvama- merkin og aðvörunarmerki var gefið í símann um árásarhættu. Skothríðin hélt áfram nokkura stund, en þagnaði því næst alveg og hófst ekki að nýju. Keppnin hófst kl. 2, eins og auglýst var og var fyrst keppt i A- og B-flokkum. Þar voru fimm keppendur skráðir, en einn kom ekki til keppni og annar var dæmdur úr leik fyrir að fara ekki um eitt lilíð. Leikar fóru svo sem hér seg- ir í þessum flokkum: 1. Einar Eyfells (Í.R.) 1:01.0 minútur. 2. Haukur Hvannberg (K.R.) 1:03.4 mín. 3. Bolli Gunnarsson (Í.R.) 2:07.6 mín. Einar Eyfells er i B-flokki og gengur upp í A-f lokk við þenna sigur. Strax á eftir — ]>egar búið var að breyta brautinni — fór fram keppnin í C-flokki. (Urslit í þeim flokki urðu þessi: 1. Georg Lúðvíksson (K. R.) 1:36.9 mín. 2. Jóhann Eyfells (I. R.) 1:39.0 mín. 3. Eyjólfur Einarsson (Á.) 1:41.6 mín. 4. Bragi Brynjólfsson (K. R.) 1:43.9 mín. 5. Guðm. Samúelsson (Á.) 1:47.2 min. 6. Björn Þorbjarnarson (Í.R.) 1:50.2 mín. 7. Hörður Þorgilsson (Á.) 1:52.3 mín. 8. Hörður Ólafsson (í. R.) 1:52.8 m. 9. Magnús Guðmundsson (Hafnarfj.) 1:56.1 mín. 10. Haraldur Árnason (I.R.) 2:02.0 mín. Af 28 á leikskrá gengu 6 úr leik en einn kom, ekki til keppni. Menn höfðu yfirleitt betri tíma í fyrri umferð, því að brautin versnaði fljótlega. Bezta tíma í einni umferð hafði Eyjólfur Einarsson (Á.), 44.6 sekúndur. mál þetta upp með fullri ein- urð, og þótt það breyti ekkert því, sem orðið er, verður það þó fróun öldnum og óbornum, að vér höfum haft manndóm til að mótmæla. Uppi í Bláfjöllum hafa nokk- urir Ármenningar komið sér upp litlum skála, sem þeir nefna „Himnaríki“. I>ar í kring er allt af snjór, ef liann er þá á ann- að borð einhversstaðar hér í nágrenni Reykjavíkur. I skálanum eru sex tveggja manna kojur, en alls munu geta verið 15 manns þar á nóltu. — Fyrir framan skálann er tjörn, þar sem hægt er að vera á skautum, ef menn vilja það heldur. Ármenningar reistu þennan skála í fyrrasumar. Þurftu þeir að bera allt efni á bakinu langa og erfiða leið. Ber „Himnaríki“ dugnaði og áhuga Ármenninga lofsamlegt vitni. liór og bílþvottamaður geta feng- ið atvinnu nú þegar hjá Steindóri. Trillu-bátur til sölu með 6 lia. Kelvin-vél. Uppl. í síma 2562. Að þessu sinni var það stór þýzk langferðaflugvél, sem kom í heimsókn. Flaug hún í fyrstu í allmikilli hæð, en lækkaði flugið, er hún flaug suður yfir flugvöllinn í áttina til Hafnar- fjarðar. Þaðan flaug hún aust- ur yfir í átt til Þingvalla, og livarf þá sjónum manna, en síðast spurðist til hennar yfir Vestmannaeyjum og veittu þá þrjár brezkar flugvélar henni eftirför. Vísir átti' i morgun tal við Capt. Wise og taldi hann að flugvélin hefði í fyrstu verið i 11.000 feta hæð, er hún flaug inn yfir bæinn. Sjónarvottar hafa skýrt blað- inu svo frá, að skotin úr loft- varnabyssunum hafi sprungið mjög nærri flugvélinni, og full- yrða jafnvel, að hún muni hafa orðið fyrir broti út sprengju. Marka menn það á því, að er ein kúlan sprakk mjög nærri flugvélinni, _ virtist hvítleitur reykur koma frá einum hreyfl- inum. Um þetta er þó ekkert unnt að fuhyrða, og má vel vera, að hér hafi verið um sjón- blekking eina að ræða. ' > ! a Svana-smjörllkiö er sælgæti ofan á branð, það ©■• oviðjafnanlegrt til að steikja í og: bezt í allan bakstnr. Nýja Svana-smjöHíkið Alllangur tími leið frá því er flugvélin hvarf sjónum, þar til er merki var gefið um að hætt- an væri liðin hjá, en það mun hafa verið stundái'fjórðung yfir lcl. 11. Hér var augsýnilega aðeins um rannsóknarflug að ræða, og er þetta þriðja heimsóknin, sem Reykjavík fær af þýzkum flug- vélum. Er því auðsætt, að Þjóð- verjar fylgjast með því, sem hér fer fram og full líkindi til, að þetta verði ekki síðasta heim- sókn þeirra hingað til lands, heldur öllu frekar upphafið á því, sem verða vill. Almenningur mun liafa tek- ið viðburði ]>essum með hinni mestu rósemi, og er það gott út af fyrir sig, einkum ef slík ró- semi helzt, þótt eitthvað kunni út af að bera. Nefndir starfa nú að því að undii'búa ýmsar ráðstafanir, sem gera þarf fyrir voi'ið, eink- um varðandi brottflutning barna og svo öryggisráðs tafanir innan bæjai’ins, sem óhjá- kvæmilegt er að gex'ðar verði. Vísir háfði tal af Agnari Ko- foed-Hansen, lögreglustjóra, formanni Loftvarnanefndar, í moi-gun og spurði liann um atburðina i gær. Honum fórust svo orð: „Eg var staddur á Sóleyjai’- götu, þegar fyi'sta skotið reið af, og var þá flugvélin komin yfir bæinn. Var eg að ljúka við æfingu með lögreglunni og fór þegar niður á Lögreglustöðina og lét gefa loftái'ásai'merki. Göturnar tæmdust fljótlega, en þegar skothríð loftvarna- byssanna hætti, fór fólk að tin- ast út úr byrgjunum, enda þótt ekkert merki hefði verið gefið um að hættan væri liðin hjá. Ber þetta vitni um fádæma hugsunarleysi, því að sprengju- brotum rignir lengi niður, eftir að skothríðinni er hætt. Má það teljast mesta mildi, að enginn skyldi slasast af þessum sökum í gær. Loftvarnanefndin iríún senda út yfirlýsingu vegna atburð- anna í gær“. Bllar til sölu. FORD, 5 manna, BUICK, 7 manna, CHEVROLET, 5 manna, CHEVROLET, vörubíU. Hagkvæmir greiðsluskilmál- ar. A. v. á. /

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.