Vísir - 09.04.1941, Page 1
A
Ritstjóri:
Kristján Guðlaugsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð).
Ritstjóri
Blaðamenn Simi:
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri S linur
Afgreiðsla
31. ár.
Reykjavík, miðvikudaginn 9. apríl 1941.
82. tbl.
BRETAR OG GRIKKIR YFIRGEFA SALONIKI
Þjóðverjar liafa ruðst inn í Vardardalinn og
sækja fram í áttina til borgarinnar.
Vöm Grikkja írábær, en
liðsmunur er gífurlegur.
EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun.
Igær var tilkynnt í Aþenuborg, að vegna þess að
Jugoslavar hef$i neyðst til þess að hörfa und-
an syðst í Serbíu hefði varnarlínu Grikkja til
vinstri verið teflt í mikla hættu, en Grikkir berðist af
miklu móði og ekki væri neinn smáblettur látinn í hend-
ur óvinunum án þess úthelt væri blóði. Mannfall var
talið ógurlegt í liði Þjóðverja, sem höfðu dregið að sér
ógrynni liðs í Petrich í Búlgaríu, og hófu sóknina það-
an. Fyrsta markið var að rjúfa sambandið milli hers
Serba og Grikkja og náðu Þjóðverjar því, er Serbar
neyddust til að hörfa undan, og komu svo Grikkjum í
opna skjöldu.
Samkvæmt tilkynningu, sem birt var í nótt, frá Aþenuborg
liefir Þjóðverjum tekist að ryðja sér braut inn í Vardardalinn
og hefir þar með verið aðskilinn her Grikkja í Þrakiu og Make-
doniu, og verði framhald á sókninni er Saloniki í mikilli hættu.
Væri það bandamönnum ómetanlegur hnekkir að missa borg-
ina, en þó telja Bretar hana ekki eins mikilvæga hernaðarbæki-
stöð eins og í seinustu styrkjöld.
Seinustu fregnii4 sem borizt hafa til Aþenu-
i borgar herma, að hersveitir Grikkja og Breta
í Vardardalnum hörfi hratt undan Þjóðverj-
um, sem geisa fram á þessum vígstöðvum.
Aðalherinn gríski er að yfirgefa Saloniki og er
unnið af feikna kappi að brottflutningi her-
gagna.
Ný loftárás
á Coventry.
Allra seinustu fregnir
herma, að Covenlry hafi orð-
ið fyrir mikilli árás í nótt
sem leið. Mun hún vera borg
sú, sem átt var við í fyrri
fregnum.
ítarlegar fregnir eru ekki
fyrir hendi, en fullyrða má,
að árásin hafi verið mjög
hörð, því að hún stóð í
margar klukkustundir, og
miklum fjölda íkveikju-
sprengja og sprengikúlna var
varpað yfir hana.
Búist er við að manntjón
hafi orðið mikið.
Eins og menn muna hefir
Coventry orðið fyrir ægilegri
loftárás.
f alliu.
Bretar hafa tekið Massawa og
hafa ítalir þá aðeins eina hafn-
arborg í Eritreu -— Assab.
Lið frá Eritreu verður flutt
til Cyrenaica, því að Bretar bú-
ast við hörðum átokum um
Egiptaland á næstunni.
Fregnir frá Istanbul herma,
að grískir flóttamenn úr Mar-
itzadalnum séu farnir að koma
til Tyrklands, en Þjóðverjar
hafi liertekið alla Vestur-Þra-
kíu eftir að Grikkir rýmdu það-
an.
Talsmaður grísku stjórnar-
innar sagði í morgun, að þýzki
herinn héldi áfram stöðugum á-
hlaupum í Strumadalnum, en
Grikkir hafa haldið öllum
stöðvum og varist af mikilli
hreysti.
Það er nú kunnugt orðið
hvers vegna Serbar neyddust til
að hörfa undan. Serbneskt her-
fylki var innikróað, þegar Þjóð-
verjar höfðu sótt, inn í Serbíu á
tveimur stöðum, með eldingar-
hraða. Sóttu Þjóðverjar þar
fram, sem hentast var að koma
við vélahersveitum. Þegar inn í
Vardardalinn var komið var
auðvelt að sækja fram til Ghev-
gheli og niður á slétturnar neðar
í dalnum síðar um daginn.
Hersveitir Serba, sem tóku
Skutari, hafa tekið Lesh 25
milum sunnar, segir í útvarpi
frá Ankara, og hersveitir Serba
hafa vaðið inn í Albaníu á öðr-
um stað til.
VÖRN GRIKKJA.
Grikkir hafa barist af frá-
bærri hreysti gegn Þjóðverjum
og viðast við ofurefli liðs. Mjög
er rómuð vörn Grikkja í Rupel-
skarði, þar sem 150 griskir sjálf-
boðaliðar sprengdu í loft upp
brýr og eyðilögðu skriðdreka og
töfðu framsókn Þjóðverja í 36
klst., meðan grísku hersveitirn-
ar tóku'sér stöðu annarsstaðar.
Þegar Þjóðverjar loks gátu hald-
ið áfram sókninni stóð enginn
maður uppi af þessum 150
grísku sjálfboðaliðum.
VARNIR SERBA.
Það er engum vafa undirorp-
ið, að Serbar verjast af mikilli
hreysti, en fregnir þaðan hafa j
verið óljósar og erfitt að átta sig
á hvað þar hefir gerst. Sennilega
verður það nú auðveldara, þar
sem útvarpsstöðin í Belgrad er
aftur tekin til starfa, en hún hef-
ir ekki látið frá sér heyx-a siðan
vopnaviðskipti hófust þar til i
gærkveldi. Mikill hluti borgar-
innar mun í rústum eftir hinar
grimmilegu árásir Þjóðverja.
Atvinnumálaráðherrann, leið-
togi Slóvena, fórst í árásinni.
Fregnir xun að Þjóðverar hafi
tekið Skoplje og Nisch hafa ekki
vex-ið staðfestar, en Jugoslavar
hafa sótt 25 mílur suður fyrir
Skutai'i í Albaniu.
BRETAR
1 GRIKKLANDI.
Um hersveitir Breta og Ástra-
líumanna i Grikklandi er það að
segja helzt, að þær hafa tekið
við nokkrum hluta vígstöðv-
anna, en ekki er tilgreint hvar.
Brezki flugherinn hefir veitt
Gi’ikkjum mikilvæga aðstoð
með árásum sínum á herstöðv-
ar Þjóðverja.
EINS OG FYRRI
DAGINN. —
Eins og fyrri daginn — á vest-
urvígstöðvunum — virðist Þjóð-
verjum hafa tekist að finna
„veikasta punktinn“ og þar
gerðu þeir meginárás mönnum
að óvörum. 1 þessu tilfelli var
árásin gerð, skammt þar frá,
sem landamæri Sei'biu og
Gi'ikklands og Búglariu mætast.
ROOSEVELT SENDIR PÉTRI
KONUNGI SAMÚÐARSKEYTI.
Roosevelt fox’seti liefir sent
Péti’i II. konungi Jugoslaviu
samúðai'skeyti og látið i ljós að-
dáun sína og allra Bandai'íkja-
manna á liinni vasklegu vörn
Jugoslava gegn Þjóðverjum,
sem gert hafa glæpsamlega árás
á land þeirra. — Endurtekur
Henry Wallace:
Bandaríkín
fara í stríðið,
ef þörf
krefur.
London í morgun.
Henry Wallace varaforseti
Bandarikjanna saigði í ræðu í
gær, að aldrei mætti til þess
koma, að nazistar ynni sigur.
Heimurinn vill ekki nazistafrið,
sagði liann — og ef þörf krefui',
fara Bandaríkin í styrjöldina, til
þess að tryggja lýðræðisþjóðun-
um sigurinn.
BANDARÍKIN KAUPA
DÖNSKU SKIPIN.
Roosevelt forseti ætlar að
fara fram á, að lög verði sett,
sem heimila kaup á 39 dönskum
skipum í höfnum i Bandaríkjun-
um. Sendiherra Dana í Was-
hington mun ekki hreyfa mót-
mælum.
ÞÝZKU OG ITÖLSKU SKIPIN
VERÐA TEKIN EIGNARNÁMI.
Þýzku og ítölsku skipin verða
tekin eignarnámi — án þess far-
ið verði fram á nokkura sérstaka
lagaheimild, og ekkert tillit
verður tekið til þriðju mótmæla-
orðsendingar Þjóðverja, sem
lögð hefir verið fram i Washing-
ton.
í MEXICO.
í Mexico hefir verið tillcynnt
að ríkisstjórnin muni taka
þýzku og ítölsku skipin til eigin
nota.
Roosevelt forseti loforð sín um
aðstoð.
PÉTUR II. OG MATCHEK
ÁVARPA JUGOSLAVA.
Pétur konungur og dr.
Matchek, varaforsætisráðherra
hafa ávai-pað Serba, Slovena og
Ivróata, og skoi’að á þá að vai’ð-
veita einingu sína og samheldni.
Nýr brezkur flugvéla-
hreyfilL
Bretar eru nú farnir að fram-
leiða nýja gerð flugvélahreyfils,
sem er aflmeiri að tiltölu við
stærð, en nokkur annar hreyf-
1 ill, sem smíðaður hefir verið.
Hreyfill þessi er framleiddur
af Napier-verksmiðjunum og er
nefnduiv„Sabre“. Hann fram-
leiðir rúmlega 2000 hestöfl og
er um 6 fet á lengd.
Verið er að teikna nýjar or-
ustu- og sprengjuflugvélar við
hæfi þessa hreyfils.
Kínverjar vinna
mikinn sigur.
Samkvæmt síðustu herstjórn-
artilkynningu Kínverja, gefinni
út í fyrrakvöld, hörfa Japanir í
áttina til Nanchang-Kiukiang-
jámbrautarinnar í Mið-Kína,
240 km. suð-austur af Hankow.
Ivínverjar sækja fast á eftir
og nota margar flugvélar í eftir-
förinni.
Orustan stóð skammt frá
borginni Nanchang, sem er höf-
uðborgin i Kiangsi-héraði. Her-
málaráðherra Kinverja, Ho
Ying-cliing, hefir lýst þessum
sigi'i sem hinum mesta er Kin-
verjar hafi unnið i styrjöldinni.
Japanir liafa misst 20.000
sæi’ða og fallna, að því er Kín-
verjar tilkynna. Meðal hinna
föllnu voru þrír hershöfðingjar.
Rússar og fallhlífar-
* hermenn.
Rússar leggja nú mikla á-
herzlu á að æfa menn í að verj-
ast árásum fallhlífarhermanna.
Fara t. d. nú fram miklar æf-
ingar í Moskva-héraði.
Alls eru 28 héruð í Rússlandi
að æfa slikar sveitir til varnar
fallhlífarhermönnum, en í fjór-
um þeirra, umhverfis Moskva,
eru æfingarnar lengst komnar.
I þessum 4 héruðum eru sam-
tals 34.000 fullæfðir menn.
Bandaxíkjamenn fara
í sprengjuleiöangra.
Fulltrúar Bandaríkjahers, sem
eru komnir til Bretlands, eiga
bráðlega að taka þátt í árásar-
leiðöngrum Breta á Þýzkaland.
Menn þessir eiga að fara i
hinum nýju, langfleygu
sprengjuflugvélum, sem Bretar
fá frá vei'ksmiðjum í Banda-
rikjunum og er það ætlunin að
þeir sendi skýrslur yestur um
baf um hvernig þær reyndust.
Hefir það aldrei komið fyrir
áður, að fulltrúar ríkis, sem
ekki væi'i í stríði, tæki þátt i
árásarleiðöngrum.
Loftárásir Breta.
Vikuna sem lauk 4. april,
gei'ði brezki flugherinn allharð-
ar árásir á bækistöðvar óvin-
anna handan Ermarsunds og í
Þýzkalandi sjálfu, þnátt fyrir
mjög óhagstætt veður. Meðal
staða þeirra, sem ráðist var á,
voru Bremen, Emden, Rotter-
dam, Ameland og Terchelling. í
Emden voru hinar nýju sprengj-
ur notaðar með miklum árangri,
en i Terchelling var ráðist á
byssustöðvar og hei'lið og valdið
miklu tjóni, enda tókst hinum
brezku flugvélum að dýfa sér
niður í 50 feta hæð. Tvö oliu-
flutningaskip voru skotin i bál
utan við Frakklandsstrendur, en
sprengjur komu á þýzkan tund-
urspilli og kaupfar á höfninni í
Alderney. Birgðaskip, kafbáta-
spillir og tvö vopnuð kaupför
urðu einnig fyrir sprengjum úti
fyrir Frakklandsströndum. ' í
leiðöngi’um þessum misstu Bret-
ar 10 flugvélar, en ein þýzk
sprengjuflugvél var skotin niður
S yfir eigin flugvelli af nætur-
orustuflugvél og þýzk oi'ustu-
flugvél var skotin niður af
brezkri sprengjuflugvél.
Fyrir 1 ári:
Norðmenn minn-
ast innrásarinnar
Þ. 9. apríl í fyrra hófu Þjóð-
verjar innrásina í Noreg, sam-
tímis í Oslo, Stavanger, Bergen,
Trondheim og Narvik.
1 norsku útvarpi frá London
í nótt minntust Norðmenn
þessa. Sagði norskur sjóliði frá
bardaga, er skip hans átti við
þýzk herskip, en síðan var út-
varpað frá samkomu Norð-
manna, einhversstaðar i Eng-
landi.
London í morgun.
Brezkar sprengjuflugvélar
gerðu mikla loftárás á Kiel í nótt
sem leið, en nánari fregnir eru
ekki komnar af henni.
Loftárásin á Kiel í fyrrinótt
var hin ógurlegasta sem Bretar
nokkuru sinni hafa gert á þýzka
borg — og sennilega einhver hin
mesta, sem gerð hefir verið.
Varpað var sprengikúlum svo
hundruðum smálesta skipti yfir
borgina, aðallega stórum
sprengikúlum af nýrri gerð, sem
hafa fimm sinnum meira
sprengiefni en eldri gerðir, og
30.000 íkveikjusprengjum. Á
ferhyrningsmílusvæði stóð allt í
björtu báli og feikna tjón varð í
hafnarhverfunum, skipasmiða-
stöðvunum og kafbátasmíða-
stöðinni. Mikið tjón varð í
sjálfri borginni. Vindur var all-
snarpur og er talið ólíklegt, að
unnt hafi verið að hindra út-
breiðslu eldsins um nóttina.
Einn flugmannanna sagði, að
hann hefði aldrei séð neitt þessu
líkt, og það hefði virst gersam-
lega útilokað að slökkva eldinn,
nema ef hægt hefði verið að
„ýta borginni í sjóinn“.
Mörg hundruð sprengjuflug-
vélar tóku þátt í árásinni og
komu þær í hópum inn yfir
borgina.
Fjórar brezkar flugvélar voru
skotnar niður.
ÁRÁS Á BORG 1
MIDLANDS 1 NÓTT.
Mikil loftárás var gerð á borg
eina í Midlands í Englandi í nótt
og mun hafa orðið þar mikið
tjón. Sex þýzkar flugvélar voru
skotnar niður eða einni fleiri en
í fyrrinótt.
Loftvarnarmerki voru gefin
í London í gærkveldi.
fréttir.
Samkvæmt Berlínarfréttum
eru Þjóðverjar komnir 120 km.
inn í Júgóslavíu — yfir Vard-
ardalinn — og hafa tekið 20
þús. fanga, þ. á m. 6 hershöfð-
ingja.
Þá eru Þjóðverjar komnir
framhjá Doiran-vatni og hafa
alveg slitið sambandið milli
júgóslavnesku og brezk-grísku
herjanna.
Loks segja Þjóðverjar, áð
Bretar búist til að flytja her
sinn frá Grikklandi. Sé mörg
skip komin til að sækja hann.
Hinknr vid
böfnina.
1 nótt varð lögreglan vör við
mink í timburstafla á Faxagarði
— nýja garðinum vestast í höfn-
inni.
Fórii nokki'ir lögregluþjónar
þangað til þess að reyna aðvinna
minkinn, en hann stökk þá i
höfnina og misstu lögregluþjón-
arnir þannig af honum.
Þetta er ekki í fyrsta skifti,
sem minks verður vart hér í
bænum, þvi að fyrir eigi all-
löngu varð vart við mink hjá
Sundhöllinni, á svæðinu, sem
Hitaveitan hefir haft til afnota.
Þá var miiilcur drepinn rétt
fyrir innan bæinn í lok síðustu
viku.