Vísir - 23.04.1941, Blaðsíða 2
/
m _____
VISIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson
Skrifst.: Félagsprentsmiðjunni
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12
(Gengið inn frá Ingólfsstræti)
Símar 1 6 6 0 (5 línur).
Verð kr. 3,00 á mánuði.
Lausasala 15 og 25 aurar.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Kosningar.
g\MKVÆMT ákvæðuni stjórn-
arskrárinnar, eiga kosning-
ar að fara fram hér á landi
fjórða hvert ár, og stendur nú
þannig á, að þær eiga að fara
fram í sumar. Þingmenn liafa
á hendi umboð sín þar til kosn-
ingum er lokið, og nýir full-
trúar kjörnir, og hlýtur það að
vera i fullu samræmi við lýð-
ræðisskipulagið, að Alþingi. sé
ávallt starfhæft og skipað lög-
lega kjörnum fulltrúum þjóð-
arinnar. Frestuðust kosningar
einhverra hluta vegna, yrði
vafalaust að líta svo á, að um-
boð þingmanna féllu ekki nið-
ur, — annars væri með öllu
vikið frá lýðræðisgrundvelli
þeim, sem þjóðskipulagið hygg-
ist á, og ráðandi rikisstjórn
hvorki liáð vilja þings né þjóð-
ar, þótt hún yrði að sjálfsögðu
að bera fulla áhyrgð gagnvart
þingi, er síðar settist á rökstóla,
og væri það lienni nokkuð að-
hald. Elf umboð þingmanna
félli niður skilyrðislaust, sam-
kvæmt ákvæðum stjórnar-
skrárinnar, eins og haldið hef-
ir verið fraúi i blaði einu, væri
aðeins tvennt til: annarsvegar
einræði ríkisstjórnarinnar eða
algjört upplausnarásland, og
getur hvorugt staðizt.
Hitt er svo annað mál, að
löggjafinn ætlast tri þess, að
ákvæðið um kosningar fjórða
livert ár sé í heiðri haldið, og
ekki vikið frá því nema því að-
eins, að ótvíræð nauðsyn krefji,
og samkvæmt gildandi grund-
vallarreglum brýtur nauðsyn
lög, þegar svo ber undir. Nauð-
synin verður að vera ótviræð,
og handahófsmat í því efni fær
ekki staðist. Einhverjar full-
gildar ástæður til frestunar
kosninga, verða að liggja fyr-
ir, — ástæður, sem miðast við
almanna heill, — og kosning-
ar verða að fara fram svo fljótt
sem því verður frekast við
komið. Því getur ekki komið
til mála, að kosningum verði
frestað um óákveðinn tíma, eða
yfirleitt til lengri tíma en svo,
að líkindi séu tij að brevttar
verði ástæður frá því, sem var
er ákvörðunum um frestunina
var tekin. Væri kosningum
frestað uin óákveðinn tíma eða
óeðlilega langan tíma, væri
slíkt misbeiting valds eða að-
stöðu, sem væri óheimil að lög-
um og ótvirætt stjórnarskrár-
brot. Það verður því að fata
allt meðalhóf, ef til þess kem-
ur, að kosningum verði frestað
nú í vor, og varast að fresta
þeim um of Iangan eða óákveð-
inn tíma, — slíkt er ekki í sam-
ræmi við lýðræðisreglur né
þjóðarvilja. Æskilegast væri,
að til þess þyrfti ekki að koma,
að kosningum yrði frestað. Öll
röskun á gildandi stjórnskip-
unarlögum, sem að ástæðulitlu
er ger, stefnir til engra heilla,
en vafalaust frekar til óheilla.
Hefir ekki verið horfið að því
ráði í nokkru Iandi, nema ef
það verður gert hér, að fresta
kosningum, og hafa þó flest !
ríki við sömu erfiðleika að
stríða og við íslendingar.
Þær raddir hafa heyrzt, að
vel mætti hafa kosningar, og
VlSÍR
Loftvarnirnap;
Hverfisstjórarnir liafa
verid á námskeiði
undanfarin kveld.
í dag byrja þeir að leiðbeina bæjarbúnm.
Sveinn Einarsson, verkfræðingur Loftvarnanefndar, hefir
undanfarin kveld haft námskeið með hverfisstjórum
þeim, sem valdir hafa verið til að vera fulltrúar nefndarinnar
í hinum ýmsu hverfum bæjarins.
Hverfisstjórarnir eru samtals 61 að tölu, og byrjuðu þeir
fyrstu að fara um hverfi sín í gær, til að leiðbeina bæjarbúum.
haga þeim á annan veg, en tíðk
azt hefir til þessa. Væri engin
nauðsyn, að framboðsfundir
yrðu lialdnir, en nægja myndi
að frambjóðendur ræddu við
flokksmenn sína og fylgismenn
í hverju kjördæmi. Mætti með
því móti koma í veg fyrir til-
gangslitlar ýfingar millum
sfjómmálaflokkanna, sem tor-
veldað gætu samvinnu siðar, —
en slík samvinna sé nauðsyn,
eins og nú standa sakir. Auð-
sætt er, að slík tilhögun >Tði
ekki framkvæmanleg, nema að
nokkru, og þá aðallega þar,
sem sömu frambjóðendur væru
og fyr, enda orðnir kunnir
kjósendum. Þar sem nýir franv
bjóðendur kæmu fram á sjón-
arsviðið, yrði þessi tilhögun
sennilega ekki framkvæman-
leg. Frambjóðendurnir yrðu að
fá tækifæri til að kynnast kjós^,
endunum, og kjósendurnir
þvrftu þó öllu frekar að fá
tækifæri til að gera sér grein
fyrir, hvort frambjóðendurnir
væru nokkurs megnugir, eða til
nokkurra liluta líklegir. Enginn
vafi er þó á því, að auðvelt
er að baga kosningahríðinni
þannig, að hún væri i fullu
sámræmi við alvöru yfirstand-
andi tíma og nauðsyn þjöðar-
innar til samheldni og sam-
starfs.
Hvað, sem ofan á kann að
verða i þessu efni, er eitt nauð-
synlegt, en það er að varast
frekari frestun kosninga en ó-
hjákvæmileg er, og enga röslc-
un ber að gera, sem hægt er
að forðast, en til þess eru vít-
in öll að varast þau. En ekki
er víst til hvers þau kunna að
leiða, ef óvarlega eða óhönd-
uglega er með þau farið.
Frá hæstarétti:
Sigurðup
Benedikts—
son sýknaðup
í dag var í hæstarétti kveðinn
upp dómur í málinu Réttvísin
gegn Sigurði Benediktssyni
póstmanni.
En Sigurður þessi var, svo
sem kunnugt er, tekinn fastur
af brezku heryfirvöldunum um
síðastliðin áramót og sakaður
um að hafa reynt að koma því
til leiðar, að skemmdarverk
yrðu unnni á skipum í þjónustu
Breta. Síðar var hann svo af-
hentur íslenzkum yfirvöldum,
er rannsökuðu mál hans, og
gekk dómur í þvi í aukarétti
Reykjavíkur í febrúarmánuði s.
1. Féll hann á þá leið, að ákærði
var sýknaður. I hæstarétti urðu
úrslit málsins þau, að 'héraðs-
dómurinn var að öllu leyti stað-
festur og sakarkostnaður allur
lagður á ríkissjóð.
Skipaður sækjandi málsins
var hrm. Gunnar Þorsteinsson,
en skipaður verjandi hrm. Pétur
Magnússon.
Metsala á blaði.
BarnadagsfilaOia seldist
íyrir kr. 1313 J i sær
Það mim vera einsdæmi,
að nokkurt hérlent blað selst á
einum degi fyrir nær hálft
fimmta þúsund krónur. En
slíkri sölu náði Barnadagsblað-
ið í gær, því það seldust af þvi
5000 eintök fyrir samtals kr.
4363.
I Sundhöllinni fór fram sund-
mót til ágóða fyrir sumardvöl
barna, og var þar húsfyllir.
í dag kemur „Sólskin“ út og
verður selt á götum bæjarins. I
dag munu ennfremur 10 ungar
stúlkur fara til ýmissa bæjar-
búa og sækja til þeirra gjafir.
En á morgun er aðalsöfnun-
Vísir hafði tal af Sveini Ein-
arssyni í gær og spurði liann
í hverju kennslan liafði verið
fólgin. Sveinn skýrði svo frá:
„Námskeiðið hafði þrenns-
konar tilgang:
í fyrsta lagi að kynna þeim
skipun loftvarnanna í bænum í
einstökum atriðum.
í öðru lagi að kenna J>eim að
úlbúa sprengjubrotheld byrgi i
íbúðarhúsum.
í þriðja lagi að kenna þeim
almennar varúðarráðstafanir
gegn eldhættu og að eyðileggja
ikveik j usprengj ur.
Hverfisstjórarnir eiga að
ganga í livert hús í sínu liverfi
og leiðbeina íbúunum til að
velja hentugasta staðinn, sem
völ er á i húsinu, fyrir loftvarna-
skýli, segja þeim hvernig það
verði gert sem tryggast og ör-
uggast á læztan og ódýrastan
hátt, hvað hafa þarf nauðsyn-
lega í skýlinu og leiðbeina fólki
með aðrar varúðarráðstafanir,
sérstaklega með tillili til eld-
hætlu.
Byrja hverfisstjórarnir á
þessu í dag.
Ef til loftánásar kemur, þá
myndar hverfisstjórinn mið-
stöð í sínu hverfi og hefir Jiar
þrjá menn sér til aðstoðar, og
eru tveir þeirra sendiboðar.
I bverfismiðstöðinni er tekið
við boðum úr hverfinu, hjálpar-
beiðnum o. s. frv. Fylgjast
starfsmennirnir með öllu er
gerist í hverfinu, - kalla á
slökkviliðið og ruðningsdeildir,
ef þess gerist þörf, tilkynnir lög-
reglunni ef sprengjur falla, sem
springa ekki, svo að hægt sé að
afgirða' umhverfið og flytja
íbúana á brott.
Þá á hverfisstjóri og að til-
kynna loflvárnanefnd um tjón
það, sem verður í hverfi hans.“
5. Háskólatónleikar
Árna Kristjánssonar og
Björns Ölafssonar.
Tónleikarnir voru einkar
skemmtilegir. Verkefnin voru
aðlaðandi, listamennirnir í ess-
inu sínu, og svo var leildð nýtt
fiðluverk i fyrsta sinn eftir áð-
ur óþekktan höfund, Helga
Pálsson frá Norðfirði, sem,
Idaut ágætar viðtökur. Af fiðlu-
verkum er islenzk tónlist mjög
fálæk. Áhuginn hefir allur ver-
ið á söngnum. Það er því ný-
lunda að heyra íslenzk tónverk
önnur en sönglög, ekki sízt þeg-
ar höfundurinn kynnir sig í
fyrsta sinn opinberlega með
slíkum verkum. Verk það, sem
liér er um að ræða, er „Svita
fyrir fiðlu og klaver“ og er það
í þrem, köflum. Eg treysti mér
ekki til að leggja neinn dóm á
verkið eftir fyrstu heyrn, sízt
hvað snertir rökfasta byggingu
og heildarsvip, en áhugi minn
á því var strax vakinn með
fyrstu tónunum og fór stöðugt
vaxandi allt verkið á enda.
Fannst mér höfundurinn leita
til okkar þjóðlegu uppsprettu
öðrum þræði og tjá á nýtízku
ardagurinn, «g hefir áður verið
tekið fram hér í blaðinu hvern-
ig sú fjársöfnun fer fram.
vísu það, sem honum bjó í
brjósti, það er að segja, þó ekki
á róttæka nýtízku vísu, lieldur
m,eð hógværð og prúðmennsku
og málfari nútímamannsins. í
miðkaflanum bregður fyrir ís-
lenzku kóralstefi: „Hver sem
reisir hæga byggð“, sem er
rammislenzkt og eitthvert allra
bezta sálmalagið okkar. Helgi
Pálsson hefir aflað sér tónlista-
menntunar hér innanlands og
liefir iðkað tónlist í tómstund-
um sínum, að því er mér hefir
verið tjáð, sér lil hugarhægðar,
en hvorki sér lil lofs né frægð-
ar. Er það vel farið, þegar lista-
menn okkar sýna íslenzkum
tónsmíðum ræktarsemi, svo
sem þeir Árni og Björn hafa
gert, og hlýtur það að verða
' tónskáldunum’ okkar til uppörf-
unar að mega vænta þess, að
falleg verk eftir Jiau verði leikin
opinberlega.
Árni Kristjánsson lék einleik
á pianóið sónötu í f-moll éftir
Brahms, einhverja veigamestu
og fegurstu píanósónötuna eftir
*daga Beethovens. Sónatan er
mjög að skapi Árna, Ijóðræn og
dreymin á köflum, stórbrotin
og þrungin þess á niilli. Hann
lék hana með vandvirkni og ná-
kvæmni, eins og honum er lag-
ið, og með'andagift og tilþrif-
um. Sónatan er skáldlegt verk
og maður finnur ihninn, þegar
Árni situr við hljóðfærið.
Björn Ólafsson lék með und-
irleik Árna rússneska þjóðdansa
eftir Béla Bartók og Chaconne
eflir Vitali, auk svítunnar is-
lenzku. Bjöm var óvenjulega
vel ui^plagður og minnist eg
þess ekki, að hafa heyrt hann
spila með öllu rneiri hita og
fjöri.
Húsfyllir var og viðtökurnar
ágætar.
B. A.
„íslenzk nllu.
í sýningu þeirri, er „íslenzk
ull“ hélt dagana fyrir páskana
voru eftirfarandi verðlaun veitt:
1. verðlaun, 50 krónur, hlaut
frú Ólína S næbjarnardóttir,
Stað, Reykjanesi, fyrir framúr-
skarandi vinnslu á ull, þ. e. a. s.
fyrir hært þel og fínar sam-
kembur, sömuleiðis fyrir spuna.
2. verðlaun, 35 krónur, urðu
þrenn og hlutu þau frú Jólianna
Bjarnadóttir, Fossi, Hruna-
mannahreppi, Árnessýslu, fyrir
„lopaband“ í þrem sauðlitum,
frú Kristín Þorsteinsdóttir, Ól-
afsfirði, fyrir urtalitun á bandi,
frú Sigríður Ófeigsdóttir og
ungfrú Aðalheiður Jónsdóttir,
Skaganesi, Skaptafellssýslu fyr-
ir tvibanda vettlinga. Dómnefnd
skipuðu: Frú Karólína Guð-
mundsdóttir, Frú Sveinbjörg
Klemenz og Matthías Þórðarson
fornminjavörður, auk þess for-
stöðukonuraar, frú Anna Ás-
mundsdóttir og frú Laufey Vil-
hjálmsdóttir.
Níræð
er á morgun (sumard. fyrsta) frú
Guðný HafliSadóttir Zoéga, nú í
Mýrarholti við Bakkastíg. Er hún
fædd í Reykjavík og hefir alið hér
allan aldur sinn.
Sundmótið í
gærkveldi.
Sundmót var haldið í Sund-
höllinni í gærkvöldi til ágóða
fyrir sunuirdvöl barna í sveit.
Hófst mótið, með keppni í
100 metra sundi, frjálsri að-
ferð fyrir drengi innan 16 ára.
Þátttakendur voru aðeins tveir,
Benny Magnússon úr K.R., er
bar sigur úr býtum á 1 mín.
19.9 sek. og Einar Iljartarson
úr Ármanni, er synti vegar-
lengdina á 1:20.2 mín.
I 100 mtr. bringusundi fyrir
drengi innan 16 ára, voru þátt-
takendur einnig tveir: Einar
Davíðsson (Á.) synti vegal. á
1:31.1 mín. og Jóhann Gíslason
(K.R.) á 1:36.7 mín/
Þá fór fram sundknattleik-
ur milli Ægis og Ármanns. Var
hann fjörmikill og skemmti-
legur. Til að byrja með virtust
yfirburðirnir vera Ármanns-
megin. Settu þeir á skammri
stund 2 mörk, en áður en hálf-
leik lauk gátu Ægismenn jafnað
seinna markið og lyktaði
keppninni með 2:2.
Á eftir fór fram skyrtuboð-
sund og hindrunarsund og
loks var listræn sundsýning
stúlkna úr K.R. Um þá sýningu
er vafalaust allt gott að segja,
en hún sást bara ekki, nema
hjá þéim áhorfendum, er voru
fyrir miðri Sundhöllinni. Þetta
er feykilegur galli, en úr þessu
mætti bæta, ef hægt yrði að
sýna i þrem flokkum, sinn í
hvorum enda Sundhallarinnar
og einn fyrir henni miðri. Þá
er misráðið að hafa kastljós,
J)ví enda þótt þau séu skraut-
leg, þá fá allir áhorfendur, sem
sitja í innri hluta Sundhallar-
innar, ljósin beint í augun og
njóta ekki neins af því, sem
fram fer.
Fyrirkomulagið á mótinu í
gær var ekki gott; tafirnar
vöru allt of mildar. Það er t. d.
með öllu misráðið að láta sund-
knattleik fara fram á eftir
kappsundi, því það tekur svo
langan tíma að koma mörkun-
um fyrir. Það urðu einnig mild-
ar tafir við hindrunarsundið,
en sundmót verða að fara fram
með hraða, og þeim mun frem-
ur sem óþægilega heitt er í
Sundhöllinni og fólk því ó-
rórra að híða.
Aðalfundur Norræna
félagsins.
orræna félagið hélt aðal-
fund sinn í gær í Oddfell-
owhúsinu. Hefir félögum fjölg-
að á árinu um 45 og eru nú 934
á öllu landinu. — Fjárhagur fé-
lagsins er hinn bezti.
Ritari félagsins, Guðlaugur
Rósinkranz, gaf skýrslu um
starfsemi félagsins og fara hér á
eftir nokkur atriði úr henni.
Félagið gekkst fyrir söfnun
17. maí til norskra flóttamanna.
Var úthlutað fatnaði og borgað
fæði fyrir 20 menn á Akureyri
og hér. Þá hafði félagið og boð
fyrir Norðurlandasjómenn.
Tveir skennntifundir voru
haldnir og einn fyrirlestur, þar
sem sagt var frá styrjöldinni í
Finnlandi.
„Nordens Kalender“ gat ekki
komið út og fengu félagsmenn
því bókina „Svi]>jóð á vorum
dögum“, eftir Guðlaug Rósin-
kranz. Næst er ætlunin að gefa
út bók um Noreg, að öllum lík-
indum eftir Skúla Skúlason, rit-
stjóra. Einnig á að gefa út jóla-
rit, er nefnist „Norræn jól“.
Stjórn félagsins var öll endur-
kosin, en hún er svo skipuð:
Stefán Jóh. Stefánsson, formað-
ur, G. Rosinkranz, ritari og með-
stjórnendur: Jón Eyþórsson,
Páll Isólfsson og Vilhjálmur Þ.
Gíslason.
leismkotiliit'
á lítn.
Svo bar við í refabúi norð-
ur á Blönduósi fyrir skömmu,
að tófa ein gat ekki fætt eða
homið frá sér yrðlingum sín-
um.
Þjáðist dýrið mjög og þótti
brátt sýnt, að þess biði ekki
annað en dauðinn, ef ekki
fyndist einhver ráð til bjarg-
ar. Þetta var afbragðs dýr,
eitthvert bezta eða allra bezta
kvendýrið á búinu.
Var nú leitað til Páls Kolka
læknis, ef þar væri hjálp að
fá. Brá hann þegar við og
gerði keisaraskurð á tæfunni
og barg með því lífi hennar
og . yrðlinganna. Heilsaðist
tófunni vel, er síðast fréttist.
Mun þetta fyrsti „keisara-
skurður“, sem gerður hefir
verið á tófu hér á landi.
Ræða Ólafs Thors á
Varðarfundi í gær-
kveldi.
(Ólafur Thors talaði um
stjórnmálaviðhorfið á Varðar-
íundi í gærkvöldi fyrir fullu
liúsi áheyrenda. Ræðan stóð á
aðra klukkustund.
Ræðumaður fór nxjog ýtar-
lega út í skattamálin. Gerði
hann grein fyrir frumvarpi því,
sem' riú liggur fyrir Alþingí,
rakti sögu málsins og aðdrag-
anda. Benti hann á, að hér værí
um að ræða langmesla deilu-
málið, sem verið hefði milli
stjórnmálaflokkanna hér á
landi. Yrðu menn að hafa þetta
í huga, ])egar dæmt væri um þá
lausn málsins, sem nú llcgi fyr-
ir. Hann skýrði síðan með
dæmum, hvernig útkoman yrði
fyrir ú tgerða rf yi'i r tæki n sam-
kv. frumvarpinu og gerði sam-
anburð á skattgreiðslum ein-
staklinga samkv. frumvarpinu
og núgildandi lögum.
Síðan talaði Ól. Th. um sjálf-
stæðismálið. Rifjaði hann upp
þær tillögur, sem hann hefði
sjálfur borið fram í málinu og
talið, að hefðu stuðning Sjálf-
stæðisflokksins. Kvaðst hann
vona, að um lausn þessa máls
yrði samkomulag innan stjórn-
arflokkanna og mætti búast við
að það yrði bráðlega lagt fyr-
ir Alþingi.
Þvi næst sneri ræðumaður
sér að þeim erfiðleikum, sem
atvinnulíf vort á nú við að
stríða, siglingateppuna og flótt-
ann frá framleiðslunni. Sýndi
hann fram á hver vá væri fyrir
dyrum, ef siglingar lægi niðri
til langframa, en framleiðsla ís-
lenzkra matvæla minnkaði
jafnframt stórlega, sökum
skorts á vinnuafli. Þá minntist
hann á ófriðartryggingarnar
og fór að lokum nokkrum orð-
um um kosningarnar. Lýsti
hann nokkuð þeim erfiðleikum,
sem á því væri að kosningar
færi fram nú í vor, enda væri
uppi raddir um, að fresta kosn-
ingum meðan svo stæði.
Sumardvalir barna 1941.
Gjafir: Kristján Eggertsson io
kr. Svava Þórhallsdóttir 20 kr.
Markús Sigurðsson og fjölskylda,
Miðstr. 8, 15 kr. Kr. E. 5 kr. Á.
50 kr. Ó. 100 kr. Ónefndur 100
kr. Frú Hjartarson, Egilsg. 22, 100
kr. Fr. Bertelsen 50 kr. Þ. E. J.
100 kr. O. Johnson & Kaaber 1000
kr. Eimskipafélag Reykjavíkur
h/f 1000 kr. Kvittun nr. 1 1000 kr.
— Áður augl. Slippfélagið í Reykja
vílc h/f. 2000 kr. — Kærar þakkir.
Sumard valan efnd.
Innkomið
til kristniboðs á pálmasunnudag:
672.56 kr. Kærar þakkir. Stjórnin.