Vísir - 15.05.1941, Blaðsíða 1
Ritstjóri:
Kristján Guðiaugsson
\
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð).
Ritstjóri Blaðamenn Sfmi:
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri 5 línur
Afgreiðsla
31. ár.
Reykjavík, fimtudaginn 15. maí 1941.
109. tbl.
I
Flotti He§§ viii* úrilitatih’ann • •
til þe§§ að fá hertogron af Hamiiton til að
heitn sér fyrir samkonnilagrsniaBleitnnnsn
nm frið milli Breta og* Þjoðveria.
Vatnsleiflslnr bilaðar í
5. hverin húsi.
Hess hafði margsinnis skrifað hertoganum
um málið, en ekki fengið neitt svar.
Yfirlýsing frá Churchill á þingi í dag.
EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun
Gátan í Hessmálinu er ekki ráSin enn — en málið
er að skýrast smám saman. Ýmislegt hefir
komið fram, sem varpar nokkurri skímu á
það, sem til grundvallar liggur. Af því, sem kunnugt
varð í gærkveldi, vekur þetta mesta athygli:
Þýzk yfirlýsing í dag um
samkomulag Hitlers og
Darlan.
EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun.
Á fundi stjórnarinnar í Vichy í gær var einróma samþykkt
samkomulag Hitlers og Darlan, en ekkert um það sagt, hvers
efnis samkomulagið er.
1) Hess ætlaði að finna hertogann af Hamilton að
máli og ræða við hann skilyrðin til þess að koma á friði
milli Þýzkalands og Bretlands. Hess hafði margsinnis
skrifað hertoganum, en ekki fengið neitt svar.
2) Kirkpatrick hefir sent stjórninni skýrzlu um við-
ræður sínar við Hess.
3) Churchill mun flytja ræðu um flótta Hess í dag, er
neðri málstofan kemur saman til fundar. Mun Churc-
hill þá skýra frá öllu því, sem hægt er að gera grein fyrir
á þessu stigi málsins.
Það var frá þvi skýrt í London í gær, að þegar Hess liafði lent
bað hann skozka bóndann, sem kom á vettvang, að visa sér leið
til landseturs hertogans af Hamilton. Hess lenti að eins 15 mílur
enskar frá landsetri liertogans, sem er við Stravon, en þótt Hess
hefði komist þangað, hefði það gagnað honum lítið. I fyrsta lagi
var hertoginn ekki heima —\ hann er i brezka flughernum —
„að berjast við Þjóðverja“ eins og það er orðað i enskri tilkynn-
ingu — en þótt liann hefði verið heima, mundi hann ekki hafa
sinnt miálaleitunum Hess. Það er nefnilega kunnugt orðið, að
Hess hefir skrifað hertoganum mörg bréf, en hertoginn hefir
afhent þaii réttum yfirvöldum.
Fyrir Hess vakti, að finna samkomulagsgrundvöll til þess að
koma á friði.
A uppdrætti þeim, sem Hess
hafði meðferðis var merkt við
landsetur hertogans með bláum
slrikum. Hess og hertoginn
kynntust á íþróttamóti i Þýzka-
landi fyrir mörgum árum.
í þýzkum fregnum er nú far-
ið að lýsa Hess sem friðarins
manni og liugsjónanna, hanu
hafi ætlað að koma vitinu fyrir
Breta — en þó ekki gera neina
tilraun til þess að ræða við
Ghurchill sjálfan — og Hess
hjóst jafnvel við þvi, eftir því
sem, þýzka útvarpið segir, að
það mundi verða greitt fyrir
heimferð hans, er hann hefði
aflokið erindi sínu til Bretlands.
í einu brezka blaðinu segir, að
það muni. ekki vekja neina
furðu, þótt útbrciðslumála-
ráðuneytið þýzka, sem hefir
birt tilkynningar um, að líkur
væri til að Hess hefði framið
sjálfsmorð, að hann væri geð-
hilaður og lengi borið á því o.
s. frv. —- fær'i nú að halda þvi
frani, að þetta væri alls ekki
svo, heldur hefði hann farið af
mannúðarástæðum og upp á
eigin spýtur til þess að reyna
að koma því til leiðar, að hild -
arleikurinn mikli stöðvaðist.
Og mörg hlöð drepa á það, að
það hljóti vægast sagt að hafa
komið mjög illa við þýzku
þjóðina, að fá allt i einu fregn-
ir af þvi, að einn hennar helztu
manna liafi farið til lands óvin-
anna til þess að þreifa fyrir sér
um frið — til lands þeirra
fjandmanna, sem Þjóðverjar
hafa alltaf sagst vera i þann
veginn að sigra.
En það er ekki aðeins i Bret-
landi og Bandaríkjunum, sean
Hessmálið er enn aðalefni allra
hlaða. Það er rætt um heim all-
an, þar sem prentfrelsi er við
lýði. í Þýzkalandi var ekki unnt
að þagga málið niður. — En í
Rússlandi er ekki á málið
minnst.
HeSs er sagður hafa skýrt
skoska bóndanum og konu hans
frá því, að Þjóðverjar ætti við
miklar hörmungar að búa af
völdum loftárása Breta. Hann
ræddi frjálslega um margt og
mun hafa gefið brezkum, yfir-
völdum mikilvægar upplýsingr
ar. Upplýsingar þær, sem Hess
hefir látið í té, sýna enn betur
en áður var kunnugt, hversu
flótti hans var vandlega undir-
húinn, annaðhvort af honum
sjálfum eða fyrir hann. Hess
ætlaði til landseturs hertogans
af Hamilton, vegna þess að
liann hafði hinar merkustu
upplýsingar að láta honum i té,
og mætti þær
koma Bretum að gagni til
þess að uppræta þá lcúgun,
sem þýzka þjóðin á nú við
að húa.
Það er haft eftir Hess sjálf-
um, að hann hafi undirbúið
flóttann eins vandlega og hon-
um frekast var unnt.
. Hertoginn af Hamilton er
frægur flugmaður. Hlaut hann
heimsfrægð, er hann flaug yfir
Mont Everest 1933.
Sú skoðun kemur fram í
ýmsum blöðum, að Hess hafi
fallið í ónáð hjá Hitler, af því
að hann var mótfallinn stefnu
hans um samvinnu við Rússa.
I London er minnt á, að stefna Petains hafi verið að snúast
ekki gegn Bretum, fyrri bandamönnum Frakka, en hafa sam-
vinnu við Þjóðverja á grundvelli vopnahléssamningsins. ----
En það er líka tekið fram, að
sámvinnu Þjóðverja og Frakka
hafi aldrei verið nein takmörk
sett í framkvæmdinni, og þrátt
fyrir góðan vilja liins aldraða
Petains marskálks, sem vafa-
laust liefir streitst gegn kröfum
Hitlers eftir megni, hefir Laval
orðið æ meira ágengt, en Darlan
virðíst alveg kominn á sömu
braut.
Það var komist svo að orði
Fregnin um flótta Rudolfs
Hess vakti feikna athygli i
Bandaríkjunum. Lýsir frétta-
ritari „Times“ i New York þvi,
Iivernig þúsundir fólks hlýddu
með athygli á útvarpsfréttirn-
ar og gættu þess, að missa ekki
af neinni stöð. Hefir sjaldan
verið önnur eins eftirspurn eft-
ir fyrstu útgáfum morgunblað-
anna, — en þær koma út
skömmu eftir miðnætti.
Margar skoðanir voru látnar
i Ijós i blöðum, útvarpi og
manna á milli, símar fréttarit-
ari „Dailj7 Telegraph“, en um
eitt eru allir sammála, að þessi
atburður sé þvngsta áfallið,
sem nazismanum hefir hlotn-
ast. Engum virtist koma til
hugar að leggja nokkurn trún-
að á hinar opinberu skýring-
ar frá Berlin.
En hvað sem þessu líður,
virðast hinar opinberu skýr-
ingar hafa vakið mikinn ugg
í Þýzkalandi sjálfu, eftir þvi
sem fréttaritari „Times“ á
landamærum Þýzkalands skýr-
ir frá. Nánustu kunningjar
Hess hafa skýrt frá því, að það
sé Hitler sjálfur, sem haldinn
sé óbifandi trú á stjörnuspá-
dóma, en að Hess muúi hafa
spáð honum góðu gengi þar til
í marz siðastliðnum, en þá hafi
hann spáð því, að gæfa hans
væri á þrotum, þrátt fyrir
mikla sigra, sem Þjóðverjar
unnu siðar.
Til dæmis um vinsældir Hess
má geta um grein, sem birtist
í þýzka blaðinu „Das Reich“
um síðustu jól: '
„Ef Rudolf Hess væri elcki
algerlega vammlaus maður, ef
hann væri eigingjarn eða sér-
vitur, þá myndi hann eiga
marga óvini. En það er stað-
reynd, að hann á þá enga. Ekk-
ert sannar betur hve dóm-
greind hans er hrein og þjóð-
hollusta lians ómenguð. Hann
er sannkallaður óskmpgur
Þýzkalands.“
um Darlan í London i morgun,
að liann — maðurinn sem í
byrjun styrjaldarinnar stjórnaði
hinum mikla flota Fakklands í
stríði gegn Þjóðverjum — hafi
fyrir nokkuru lotið svo lágt, að
jiakka Þjóðverjum fyrir að
„gefa“ Frökkum matvæli, sem
Þjóðverjar höfðu tekið af
frönsku þjóðinni — og það er
fyrir slíkar tilslakanir og gjafir,
sem Darlan hefir nú falhzt á
nýtt samkomulag, nýjar kröfur.
En hyerjar eru þessar kröf-
ur? Það vita menn ekki með
vissu. Þær varða ef til vill flota
og flughafnir Frakka, ef til vill
bækistöðvar i Sýrlandi — ef til
vill samvinnu Frakka og Þjóð-
verja í hernaðarframleiðslu-
málum. En þetta verður vafa-
laust kunnugt í dag.
Mikla athygli vekur, að land-
stjórinn og herforinginn í Mið
Afríkunýlenduveldi Frakka, er
flutti útvarpsræðu í gærkveldi,
sagði að hann treysti því, að svo
mundi fara á stund mestu liætt-
unnar, að Weygand vfirherfor-
ingi Frakka i Norður-Afríku,
mundi taka stefnu, sem væri
samboðin heiðri Frakklands —
og hann mundi gera það hvað
sem ofan á yrði i Frakklandi.
Yfirforingjar, sem flúið hafa
frá Marokko, liafa sannfært
hann um þetta.
Fréttaritari United Press í
Vichy símar, að Leahy sendi-
herra Bandaríkjanna i Vichy
liafi tjáð Petain, að ef Vichy-
stjórnin gerði hernaðarlegt
samkomulag við Þjóðverja,
gæti hún ekki lengur talist
hættuláus i styrjöldinni.
En sama daginn kröfðust
frönsku blöðin i París (þau eru
öll á valdi Þjóðverja), að
Frakkar leggist með öllum sín-
um þunga á sveif með Þjóðverj-
um svo fremi, að Bandaríkin
fari i styrjöldina með Bretunr.
STALIN OG HITLER
HITTAST EKKI.
London í morgun.
Fregnir frá Berlín í gær
herma, að orðrómurinn um
fund Hitlers og Stalins hafi
ekki við neitt að styðjast. Á
slíkar fregnir beri að líta sem
heimskulegan þvætting.
Bústaðaskipti.
Þeir kaupendur Vísis, sem hafa
bústaðaskipti, eru beðnir að tilkynna
það í síma 1660.
Brýua iiiaB()§,vii K>er til að kippa
]>es§u í lag^.
Vísir hafði tal af Helga Sigurðssyni verkfræðingi í morgun
og skýrði hann svo frá, að í morgun, gærmorgun og fyrramorg-
un hefðu vatnsgeymarnir ekki verið fullir. En þangað til hefðu
þeir fyllst á hverri nóttu, frá því tekið var til að loka fyrir vatn-
ið í þeim húsum, þar sem það var látið renna á nóttunni.-
í morgun hefði verið 30 cm.
vatnsborð i geymunum, í gær-
morgun Yz m. en í fyrradag 1
meter. Verið gæti, að þetta staf-
aði af hreingerningum þessa
daga og væri nú beðið eftir
því, að þeim yrði fokið, svo séð
yrði, hvort vatnseyðslan Væri
þeim að kenna, eða þá af trassa-
skap einum og óhófseyðslu.
Annars kvað Helgi mánudaga
og þriðjudag vera mestu vatns-
eyðsludagana í hverri viku, en
þó hefði að undanförnu, eða frá
því tekið var að loka fyrir vatn-
ið, ávallt eða nær ávallt flotið
út úr geymunum á morgnana,
eins og líka vera ætti.
Þá gat Helgi þess ennfremur,
að undanfarið liefði maður ver-
ið sendur í hús til að gera við
bilanir á óþéttum krönum, og
lokum salernum. Ilefðu þær
götur fyrst verið teknar fyrir,
sem mestu vatni liafa eytt að
undanförnu. Hefir komið í ljós,
að í fimmta hverju húsi er ein-
hver bilun á vatnsleiðsluútbún-
aðinum, ýmist óþéttir kranar
Júgóslavar halda
uppi skæru-
hernaði.
Fréttaritari United Press í
Iíairo símar, að Júgóslavar
haldi stöðugt uppi skæðum
smáskæruhernaði í f jöllum
Serbíu og Bosníu. „Eg sá sjálf-
uiy hvernig fjöldi ungra manna
lagði af stað upp í fjöllin með
byssur sínar. Þessir menn hafa
svarið þess eið að hætta eigi að
berjast, fyrr en Þjóðverjar eru
hraktir burt úr landinu. Yalda
þessir smáflokkar Þjóðverjum
hinu mesta tjóni, því að landið
er viðlent, en erfitt að hafa þar
nægan herafla til að hafa liend-
ur í hiári vopnaðra flokka. Auk
Jiess veita óbreyttir borgai’ar
Þjóöverjum allt það viðnám,
sem þeir geta, með því að vinna
skemmdarverk á liernaðar-
stöðvum og samgöngutækjum.
Margt af þessu tæi liefi eg séð
með eigin augum.
Hér í Kairo hefi eg séð fána
Júgóslava blakta við hlið brezka
fánans. Hundruðum saman
flykkjast Júgóslavar undir
merki. En i Króatíu hafa vinir
Hitlers aftur verið sviknir. ítal-
ia og Ungverjaland hafa hrifsað
til sín lönd frá Króötum. Þess
verður ekki langt að biða, að
allar þjóðir Júgóslavíu samein-
ist gegn Hitler að nýju, og mun
þá fara eins og í fyrra striði, að
þeir reynast skæðir hermenn og
hættulegir andstæðingar.“
eða óþétt vatnssalérni. Ber
brýn nauðsyn til að fólk hyggi
að vatnsleiðslunum í húsum
sínum og geri Vatnsveitunni
(sími 1200) aðvart ef það verð-
ur vart hilunar, ekki síður leigj-
endur en liúseigendur.
Njósnum er ennþá haldið á-
fram og hefir nýlega verið lok-
að fyrir vatnið í húsum inni í
Kleppsholti.
Tilgáta hefir komið fram um
það opinberlega, að vatns-
Ieiðslupípurnar úr Gvendar-
hrunnum væru ekki fullar. —
Iívað Helgi þetta ekki liafa við
nein rök að styðjast, þvi eftir-
lit með því hefði verið gott, og
vatnið í hrunnunum alltaf meir
en nóg. Frá 24. apríl til 13. maí,
eða i þrjár vikur samfleytt, hef-
ir flotið út úr vatnsgeymunum,
að undanteknum tveim morgn-
um, sem örlítið borð var á þeim.
Hefir fjöldi manns vottað
Vatnsveitunni þakklæti sitt, þar
sem vatnsþurrð var áður en
ráðstafanirnar voru gerðar —-
en nóg vatn nú.' Sanna þessar
ráðstafanir, að enn er nóg vatn
til lianda Reykjavíkurbæ, ef þvi
er ekki eytt í óhófi.
Varðaríundurinn
l
í gærkveldi.
Fundur Varðarfélagsins í ,
gærkveldi var fjölsóttur mjög,
og var fullt hús áheyrenda þeg-
ar kl. 8V2.
Gisli Sveinsson alþm. var
frummælandi, og flutti langt og
ítarlegt erindi um frestun kosn-
inga, en það mál hefir að nokk-
uru verið rætt innan þingflokk-
anna að undanförnu. Gerði
frummælandi grein fyrir hinu
almenna viðhorfi, sem og hinu
fræðilega, og komst að þeirri
niðurstöðu, að hið eina, sem Al-
þin^i ætti að gera og gæti gert,
væri að fresta kosningum.
Tóku því næst þessir til máls:
Jakob Möller f j ármálaráðherra,
Gísli Jónsson forstjóri, Bjarni
Benediktsson borgarstjóri, Sig-
björn Ármann kaupmaður,
Bjarni Jósefsson efnafræðingur,
Guðmundur Benediktsson bæj-
argjaldkeri, Stefán A. Pálsson
kaupm., frú Soffia M. Ólafs-
dóttir, Halldór Guðmundsson
útgm., Guðbjartui- Ólafsson
hafnsögumaður og Ámi alþm.
Jónsson frá Múla.
Fundurinn var langur og um-
ræður fjörugar.
Næturlæknir.
Halldór Stefánsson, Ránargötu
12, sími 2234. NæturvörSur i
Reykjavíkur apóteki og LyfjabúS-
inni Iðunni.