Vísir - 10.06.1941, Page 1
Ritstjóri:
Kristján Guðlaugsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð).
Ritstjóri \
Blaðamenn Sími:
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri 5 línur
Afgreiðsla
31. ár.
Reykjavík, þriðjudaginn 10. júní 1941.
129. tbl.
Lítil mótipyrna .■ S,vi‘lsm«li
Beyrut ogr Damaskus brátt á valdi Breta og frjálsra Frakka
Darlan ávarpar frönskn þjoðina
í kvöld.
H
EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun
■orfurnar voru þannig í morgun, að líkur eru til,
að þess verði ekki langt að bíða, að hafnar-
borgin Beyrut og höfuðborg Sýrlands — Da-
maskus — falli í hendur Breta og frjálsra Frakka.
Frakkar veita litla mótspymu og manntjón í liði banda-
manna hefir ekki verið teljandi. Þjóðverjar hafa verið
„óvirkir áhorfendúr“ til þessa.
Hersveitir Breta og frjálsra Frakka fóru í gær yfir Litliafljót,
sem rennur Miðjarðarliafsbotn um 5 enskar mílur fyrir norðan
liafnarbæinn Thyre. Það var við fljót þetta, sem Bretár og her-
sveitir De Gaulle lielzt bjuggust við snarpri mótspyrnu, en til
þes kpm eldci, og það er ekki sizt þess vegna, sem menn búast
ekki við, að Damaskus og Beyrut verði varðar af kappi, nema því
aðeins að Þjóðverjar gæti veitt Dents landstjóra, sem hefir per-
sónulega tekizt á hendur herstjórnina, einhvern stuðning.
En það var ekki að lieyra á
talsmanni þýzku stjórnarinnar í
gær, að Þjóðverjar ætluðu að
hafast neitt að þarna, því að
hann sagði, að það sem gerðist í
Sýrlandi, kæmi Frökkum og
Bretum einum við. Þessi um-
mæli þykja alleinkennileg,
nema þau hafi verið viðhöfð til
þess óbeinlínis að afsaka það,
að Vichystjóminni verði ekld
veittur neinn stuðningur. Hún
hafi og sagst geta varið nýlend-
ur Frakka gegn hverskonar
árásum, og reyni nú á hvað hún
geti. Þjóðverjar myndi vafa-
laust hafa brugðist öðruvísi við,
ef þeir hefði verið komnir
lengra áleiðis með áform sín i
Sýrlandi. í sænskum blöðum er
því haldið fram, að það sé ólíkt
Þjóðverjum, að hætta Við ijjá-
form sín fyrr en i fulla linef-
ana. Að líkindum liggi þannig
í málunum, að Bretar hafi orðið
fyrri tíl hér sem í Iraq, og kom,-
ið þannig i veg fyrir áform
Þjóðverja, sem ætluðu t. d. að
vera búnir að taka alla stjórn
Aleppohéraðs í sínar hendur þ.
15. júni.
Fréttaritari svissnesks blaðs
símar t. d. frá Rómaborg, að
Þjóðverjar og ítalir hafi alls
ekki gert ráð fyrir, að Bretar
myndi hefjast handa í Sýrlandi
fyrr en „of seínt eins og vana-
lega“, en það fór á annan veg.
Kemur fram mikil greinja í
Þýzkalandi og Italíu yfir inn-
rásinni, auðheyrt er ,að undir
niðri hlakkar í Itölum yfir því,
að Frakkar muní ekki geta var-
ið Iandið.
Sendiherra Breta í Ankara
ræðir við Sarajoglu.
I>að hefir vakið nokkra at-
hygli, að sendiherra Breta í An-
kara hefir farið á fund utanrík-
isráðherra Tyrklands, Sarajoglu
og átt við hann langar viðræð-
ur. EJkkert hefir verið tillcynnt
opínberlega enn sem komið er
um hvað þessar umræður hafi
fjallað, en vafalitið er, að þær
hafa snúizt um Sýrland.
Bretar hafa sent vistir
til Sýrlands.
Bretar hafa tilkynnt, að þeir
hafi þegar sent mikið af vistum
og öðrum nauðsynjum til þess
hluta Sýrlands, sem þeir hafa
þegar hernumið, en mikill
slcortur var meðal íbúanna, en í
Sýrlandi hefir öllu hrakað eftir
lippgjöf Frakka í styrjöldinni,
og enn versnaði eftir að Bretar
lögðu hafnbann á landið fyrir
skemmstu. Bretar segja, að Sýr-
lendingum verði séð fyrir nóg-
um matvælum og nauðsynjum,
og eins vei-ði lijálpað öllum
þjóðum, sem rísa upp gegn
Þjóðverjum og snúast algerlega
á sveif með Bretum og banda-
mönnum þeirra.
Eru Frakkar í Sýrlandi
að bregðast Vichy-
stjórninrii?
Nokkurar Iíkur eru fjæir því,
að Frákkar í Sýrlandi muni
bregðast Vichystjói-ninni alger-
lega. Ymsir franskir yfirforingj-
ar liafa þegar gengið í lið með
De Gau'lle, en aðrir eru liættir
að berjast. Mótspyrna hefir ekki
verið mikil og manntjón Breta
og frjálsra Frakka mjög lítið.
Mikla athygli vekur, að
franskur eiribættismaður, sem
Vichystjörriin sendi opinberra
erinda til Sýrlands, hefir beðist
Iausnar, og gengið De Gaulle á
hönd. Hann kvaðst ekki lengur
geta stutt sfjörn, sem vildi sigur
Þjóðverja.
Þá vekur það feikna athygli,
að dr. Church, forseti Carnegie-
stofnunarinnar í Bandaríkjun-
um hefir skilað aftur handi
héiðursfylkingarinnar frönsku,
: sem franska stjórnin sæmdi
hann. „Heiðursfyllíingin
franska er úr sögunni,“ sagði i
liann, „og það er aðeins á valdi j
De Gaulle að endurvekja hana !
tíl lífs og virðingar“.
Mótmæli Frakka.
Þeim er ekki sinnt.
Sendiherra Vichystjórnarinn-
ar í Madrid fór í gær á fund Sir
Samuels Hoare, sendiherra
Breta á Spáni, og afhenti hon-
um orðsendingu, sem hann bað
hann að koma áleíðis til brezku
stjórnarinnar. Orðsending þessi
hefir inni að halda mótmæli
gegn því, að Bretar hafa ráðist
inn í Sýrland. Orðsendingin hef-
ir nú borizt til London og er til
athugunar þar.
Sendih. Vichystjórnarínnar í
Washington fór á fund Cordells
Hulls uranrikisráðherra i gær
og skýrði honurn frá mótmæl-
um Vichystjórnarinnar út af
innrás Breta. Cordell Hull er f
sagður liafa svarað því til, að
Vichystjórnin hefði ekki veitt
neitf viðnám gegn hinum þýzku
flugvélum, er fóru til Iraq, til
þess að hjálpa uppreistarmönn-
Víða á ströndum Bretlands eru faþbyssur af þessari gerð. Eru þær með 9.2 þml. hlaup-
vidd. Þær þeyta 350 punda kúlum langar leiðir.
um, lieldur greitt fyrir þeim o.
s. frv. Auk þess væri alls ekki
víst, að unnt væri að viðurkenna
lengur, að Fralvkar hefði nein
umboðsstj órnarréttíndi í Sýr-
landi, þar sem Vichystjórnin
hefði sagt Frakkland úr þjöða-
bandalaginru
Darlan flytur útvarpsræðu
í kvöld.
Það liefir verið tilkynnt, að
Darlan flytji útvarpsræðu í
kvöld. Ávarpar hann frönsku
þjóðina og hafa verið gerðar
ráðstafanir til þess, að menn
geti hlustað á ræðuna hvarveln i
1 frönskuin löndum. Er beðið
með talsverðri óþreyju eflir að
heyra livort Darlan liefir nokk-
urn óvanalegan boðskap að
flytja, en það er ekki ólíklegt,
að það komi í ljös, að margra
ætlan.
SEINUSTU FREGNIR:
United Press símar laust fyr-
ir hádegi, að buist sé við, að
hersveitír Breta og frjálsra
Frakka fari inn í IJeyrut og
Damaskus þá og þegar — séu
ef til vill komnar þangað. 1
fregnum frjálsra Frakka segir,
að barist sé í úthverfum Beyrut,
en vélahersveitir séu komnar
að hliðum Damascus. Hinsveg-
ar er þess að geta, að samkvæmt
öðrum heimildum eru hersveit-
irnar enn um 30 mílur enskar
frá fyrmefndum borgum. Fram j
að þessu hafa Bretar og frjálsir
Frakkar sótt fram 50 enskar
mílur á sólarhring, og hafi þeír
ekki orðið að hægja á sér, ættí
hersveitir þeirra að vera komn-
ar til fyrmefndra tveggja aðal-
borga landsins. Þegar. þessar
borgir hafa yerið teknar, er tal-
ið, að öll mótepyma muni fara
út um þúfur. Bretar segja, að
Frakkar berjist aðeins til mála-
mynda.
FRÉTTIR
í STPTTP MÁLI
Loftárásir Breta á Þýzkaland
í nótt voru aðallega gerðar á
Dortmund og Essen. Miklir eld-
ar komu upp í Dortmund.
Kaliíorniu-
verkfallið
úr sögunni
London í morgun.
ATIar tilrauriir til þess að fá
fríðsamlega lausn á verkfall-
inu í Inglewood, Kaliforníu
mistokust. Forsetinn skipaði
þá yfirstjóm landhersins að
taka verksmiðjurnar í sína
umsjá og Var það gert. — t
morgun símaði . yfirmaður
herstjómarinnar, að verkfall-
ið hefði verið brotið á bak aft-
ur, verksmiðjuhliðin opnuð
og verkamennirnir streymdi í
verksmiðjumar.
1 verksmiðjum þessum,
sem eru eígn North American
Aircraft Corporation, eru
framléiddar flugvélar fyrir
Bandaríkin og Bretland, og
hafði framléiðslan tafizt
vegna verkfallsins.
Bretar mistu
10 herskip
við Krít.
London i morgun.
Það var tilkynnt í London i
gær, að Bretar hefði misst tvo
tundurspilla, Harewood og Im-
perial, í herflutningum frá Krit,
og 4200 smál. loftvarnabeiti-
skipið Calcutta. Alls misstu
Bretar við Krít, meðan herflutn-
ingarnir stóðu yfir, 4 heitiskip
og 6 tundurspilla, en 17000
manna liði tókjst að lcoma á
brott. .
tí
Tveimur flutningaskipum,
sem áttu að birgja upp Bis-
marck og Prinz Eugen að olíu
og vistum hefir veríð sökkt.
Brezkar flugvélar gerðu árás-
ir á skip og hafnarmannvirki í
Brest á Frakklandi í fyrrinótt.
Ennfremur liafa verið gerðar
margar ánásir að degi tíl með
miklum árangri á skip víð Hol-
landsstrendur og Noregs-
strendur og sprengjum varpað á
skip í höfninni í Bergen.
Laval er nú komnni til híns ó-
hernumda hluta Frakklands —
í fyrsta sinn síðan í désember,
er hann varð að fara úr stjórn-
inni.
Fregnir hafa borist um mikið
manntjón af völdum hvirfil-
vinds og flóðöldu við Ganges 25.
maí. Um 5000 manns drukkn-
uðu.
Sunnukórinni á fsafirði,
undir stjórn Jónasar Tómasson-
ar, hélt samsöng þar í bænum síð-
astl. föstudag, við ágætar undir-
tektir.
nar nur
á édíií.
i-
500,000 peningar slegn
ir af hverri tegund.
Skíptimyntin er nú öll komin
hingað til landsins og liggur síð-
asta sendingin í skipi hér á höfn-
inni. Er hér um að ræða einnar
og tveggja króna peninga, en
áður hafa komið sendingar af
smærri mynt margskonar.
Smámynt þessi hefir öll verið
slegin í Bretlandi, en svo sem
kunnugt er höfðu ráðstafanir
verið gerðar til að fá myntina
frá Danmörku, en sendingin
komst aldrei af stað vegna her-
námsins, og olli þetta tilfinnan-
legum erfiðleikum á viðskipta-
sviðinu.
Búist er við að sending sú, er
Iiér liggur nú, verði tekin í
notkun síðarí hluta vikunnar.
Hálf milljón peningar hafa ver-
ið slegnir af hverri mynt fyrir
sig, og má nú búast við, að ekki
komi til neinna vandræða úr
þessu vegna skorts á skipti-
mynt, þótt peningaveltan sé ó-
eðlilega mikil í landinu, eins og
sakir standa.
Franski ræðismaðurinn
hér, herra H. Voillery, hef-
ir tilkynnt íslenzku ríkis-
stjórninni, að hann hafi
beðist lausnar frá embætti
sínu sem ræðismaður Vichy-
stjórnarinnar hér á landi.
Jafnframt hefir ræðismað-
urinn lýst sig fylgismann
De Gaulle, leiðtoga frjálsra
Frakka.
KNATTSPYRNUMÓT
ÍSLANDS.
K.R. varni Fram
5:2
Það er oft svo á leikjnm milli
K.R. og Fram, að mör’g mörk
ern sett. Stafar það af því, að
bæði félögin leika mjög „opið“.
Það getur auðvitað gefið mjög
aukna sóknarmöguleika, og er
skemmtilegt fyrir áhorfendur,
en getur verið svolitið vafasamt,
eins og t. d. við fjórða markið
hjá Fram, sem <a. 10 sekúndum
eftir að Fram var i ákafri sókn,
þétt upp við mark K. R.
Leikurinn var ekki heillegur,
en fjörugur með sprettum. Var
ekki spenningnr i áhorfendum
ámóta við Vals-Víkings-leikinn,
enda þessi leikur ekk eins jafn.
Vörn Fram var ofviða að ráða
við Björgvin Schram, sem skor-
aði þrjú mörk, og söknuðu
menn Sigurðar Halldójrssonar
og Sigurðar Jónssonar, þó þeir
hefðu ef til vi'II ekki ráðið við
rás atburðanna. — Beztur var
hjá Iv.R. Björgvin Schram og
margir hinna góðir, og er Iv.R.-
liðið mjög gott, ef það næði
svolítið samstilltum leik.
í Frani. var Sæmundur einna
beztur, þó Björgvin væri hon-
um ofviða. Margir hinna voru
liprir og leiknir og þar sem
þetta eru yfirleitt mjög ungir
knattspyrnumenn, geta þeir tek-
ið miklum framförum. Jón'
Magnússon skoraði annað mark-
ið fyrir Fram, en Högni hitt
mjög fallega. Jón var mjög
snöggur að vanda.
Mörkin komu þannig; að K.
R. setti eitt í miðjum fvrra
hálfleik, sem var jafnari. í síð-
ara hálfleik skoraði fvrst Har-
aldur Gislason fyrir K.R. og
eftir 11 mín. hækkaði K.R. síð-
an um tvö mörk, en þá fékk
Fram góða skorpu og skoraði
tvisvar með stuttu millibili um
miðjan hálfleikinn. K.R. (Óli
B. Jóns) skoraði úr vítaspvrnu,
er 9 mín. vora eftir.
Leikurinn var allliarður á
köflum og var óþarflega mildS
fótaspark hjá mörgum leik-
mönnum. Meiddust tveir meim,
Sigurjón Jónsson, bakvörð'ur í
K.R., og Sæmundur Gislason,
miðframvörður Fram. Meiddusfc
báðir á fæti og er hætt við að
báðir hafi meiðst nokkuð illa.
25 ára hjúskaparafmæli
eiga í dag þau hjónýi Ágústa
Hildibrandsdóttir og Sigurður
Árnason kaupmaður, Lindargötu 3.