Vísir - 21.08.1941, Blaðsíða 3
VÍSIR
Moskvabúar taka stríðinu
með mezta jafnaðargeði.
Eftir A. T. CHOLERTON, fréttaritara Daily Telegraph í Moskva.
Eg hefi séð þessa borg breyt-
ast undanfarin 15 ár úr
drungalegri borg- í nýtízku lit-
auðga heimsborg, þar sem mik-
ið af hinu gamla lífi finnst enn-
þá undir yfirborðinu. Hvernig
hefir hún breyzt síðan German-
isminn hóf þessa árás sína á
hina austrænu Slava?
Á yfirborðinu liafa ekki orðið
miklar breytingar, en undir t
niðri allmiklar. Allir, sem komið
hafa til Rússlands, hvort sem
það voru kaupahéðnar á tímum
Elisahetar drottningar, eða
Stjórnmálamenn nútimans, liafa
tekið eftir skeytingarleysi
Moskovítanna, jafnvel þegar
þeir spígspora eftir götunum í
hinu eilifa múglífi sinu. í dag
verða þeir, sem koma lil Moskva
hins sama varir.
Ferðamaðurinn, sem væri
frekar hugmyndaflugssnauður,
mundi alls ekki láta sér detta í
hug, að styrjöld væri í fullum
gangi, ef ekki væri vegna loft-
varnaráðstafananna. Það ber
ekkert á því, sem fram fer hið
innra með borgarbúum, nema
mikið sé í húfi.
Litlar fréttir frá
vígstöðvunum.
Maður verður þessa var vegna
flokkanna af piltum og körlum,
sem ganga um göturnar — en
að sjá svo muninn á móðurinni,
sem situr í garðinum bak við
húsið, sem eg bý í og prjónar.
Það er ómögulegt að hugsa sér,
að eiginmaður hennar eða son-
ur sé e. t. v.x á vígstöðvunum
og hún hafi áhyggjur þeirra
vegna, en ef hún sæi Ijósglætu
út um glugga eftir sólarlag, eða
einhver ókunnugur kæmi inn í
garðinn, mundi hún ekki vera
lengi að tilkynna það.
Yegna liraðans sem verið hef-
ir á bardögunum koma bréf
sjaldan frá vigstöðvunum og
lítið af fréttum nema það, sem
birt er i opinberum tilkynning-
um. Það hefir ekki verið komið
með neitt af særðum hermönn-
um til Moskva. Þeir eru allir
sendir til kyrlátari staða úti á
landi, þar sem engin eða lítil
hætta er á að loftárásir tefji
bata þeirra og þeir fylli ekki
samgönguæðarnar til og fná
borginni sem er ein aðalbæki-
stöð og forðabúr alls rússneska
hersins sem berst á hinni 3000
km. löngu víglínu.
Yarúðin gagnvarf
njósnurunum.
En þnátt fyrir þá rósemi, sem
einkennir alla framkomu fólks-
ins, veit það þó ofurvel, að nú
á það í örlagamestu baráttu
sinni — örlagarikari en bylting-
in 1917. Þetta stríð er að gera
þjóðina frjálsari og jafnari að
réttindum en nokkuð annað,
sem eg liefi séð undanfarin 15
ár. Þetta er ekki eðlileg föður-
landsást andspænis gömlum
fjandmanni, Iieldur útrýming
mismunarins, sem verið hefir
milli stétta, og fjandskapar
þeirra í milli.
Rússar þekkja fjandmanninn
og þeir sýna bezt binar áköfu
tilfinningar sínar með því,
hversu þöglir þeir eru. Þar, eins
og í öðrum löndum, ætlar fólk-
ið ekki að segja neitt, sem komið
geti njósnurum að gagni.
Um daginn var eg t. d. á ferð
í strqgtisvagni og spurði þá ekil-
inn — en það var kona — hvort
vagnihn fæi’i ekki til „hvitrúss-
nesku“ stöðvarinnar. Eg endur-
tók ^ spurninguna nokkurum
Þjóðverjar segjast liafa tekið fanga í hundruð þúsundatali.
Hér sést einn þéirra og er þýzkur varðmaður að leiða liann á
brott, er liann hefir gefizt upp. Myndin var send þráðlaust til
Ameriku frá Berlín.
sinnum, en fékk ekkert svar. 1
Loks sagði vagnstjórnn: „Eg |
held að það sé bezt að eg segi j
ekkert um það?“
Moskovitar eru alveg jafn * 1
þagmælskir gagnvart þeim |
löndúm sínum, sem þeir þekkja !
ekki. Þetta er alveg rétt, því að
þá er engin hætta á að leyndar-
njál berist út.
Þegar eg fór heim eina nótt
fyrir skemmstu eftir miðnætti,
en þá má almenningur ekki vera
á ferli úti, var eg stöðvaður 12
sinnum á tveggja og hálfs kíló-
metrá vegalengd. Eg varð að
sýna skjöl mín, en það var ekk-
ert fum eða flaustur á neinum
og eg verð að dást að því.
Ein helzta
bækistöðin.
Þótt eg sé alveg sammála rétt-
mæti þessara „ferlihafta“, firinst
mér ekki skvnsamlegt lijá vfir-
völdunum að stöðva alla umferð
í borginni, þótt aðvörunar-
merki sé gefið. Lífið liggur
niðri í hvert skipti, sem njósna-
flugvél kemur í nágrennið. Lon-
don vandist af þessu og þeir,
sém ráðandi eru í iðnaðinum í
Moskva, vilja hafa það eins.
Moskva er nú mesta miðstöð
styrjaldarinnar. Hún mun því
aldrei verða lýst opin borg eins
og París forðum. Til þess að
ekki þurfi að flytja of mikð af
mat til borgarinnar lianda þeim,
sfem ekki vinna að framleiðsl-
unni, hafa börn og gamal-
menni verið flutt á brott. Það
liafa ekki orðið neinar deilur
um nauðsyn þess og það gekk'
miklu betur en í London. Fjöldi
giftra lcvenna, sem ekkert hafa
að gera, hafa verið sendar til
þess að starfa við uppskeruna
og þeir flóttamenn, sem komast
til borgarinnar, eru strax sendir
áfram, ef þeir liafa ekki ein-
hverja læknikunnáttu til brunns
að bera.
Loftvama-
ráðstafanir.
Moskva býst nú til bardaga
og öllu því, sem ekki er til gagns,
er varpað útbyrðis. Borgarbúar
elska borgina sína og vilja því
belzt ekki fara, en þeir fá ekki
að ráða.
í húsinu, sem eg bý i, er sér-
stök nefnd, sem starfar að loft-
varnaundirbúningi, samkvæmt
fyrirmælum innanríkisráðu-
neytisins. Margt verður auðvit-
að að læra af reynzlunni, en eg'
held að flestir kjallara þeirra,
sem teknir hafa verið fyrir loft-
varnaskýli, hafi verið ágætlega
styrktir með timburstaurum,
sem lialda eiga loftinu uppi,
þótt liúsin hrynji ofan á það.
Þá hafa líka verið grafnar
margar og langar grafir, sem
styrktar eru með tréveggjum.
Svo eru það neðanjarðarbraut-
irnar, sem víðast þola að
sprengja hæfi á jörðina beint
fvrir ofan.
Sándur er afarmildð notaður.
Hann er geymdur í litlum pok-
um og á hverri stigaskör og á
Iiverri gluggakistu. í fordyri
hverrar íbúðar er lika stór sand-
kassi.
Baðkerin í íbúðunum eru
alltaf höfð fleytifull á næturnar
en ég lield að borgarbúar liafi
alltof mikla trú á vatni í barátt-
urini við íkveikjusprengjur. í
livern húsgarð hafa verið settar
stórar tunnur, sem koma auð-
yitað að góðum notum i baráttu
við eldsvoða, en þeir liafa eklci
gert sér ljóst, hversu þægilegt
það er að liafa skóflur með
löngu skafti til að berjast við
íkveikj usprengj urnar.
Eins og nú standa sakir verða
allir þeir að fara í skýli, sem,
ekki vinna að loftvarnastörfum.
Þannig var það i London, en
það má gera ráð fyrir því að
menn komist að sömu niður-
stöðu í Moskva, að við það fari
of margar vinnustundir for-
görðum.
Myrkvun
borgarinnar.
Eftir því sem reynzlan hefir
sýnt í Bretlandi, leggja þeir of
mikla álierzlu á algera myrkv-
un. Um daginn kveikti eg mér í
pípu út við opinn glugga og sam-
stundis var eftirlitsmaður kom-.
inn á vettvang. Þó lá Moskva
höðuð í skini norðurljósanna.
En þetta er bara betra, þvi að til
þess að menn lilýði settum regl-
um hér, verður að framfylgja
þeim vægðarlaust.
En það hefir litið verið gert
að því að reyna að dulmála
borgina svo að hún sjáist síður
úr lofti. Húsaþökin eru öll
rauð bárujárnsþök og þau hafa
ekki verið máluð öðruvísi, en
hinsvegar liefir Rússum tekizt
að dulbúa ýms minnismerki,
sem þeim er sárt um, og legstað
Lenins hefir verið lokað.
Það eru eiginlega sandpok-
arnir einir, sem breytt liafa svip
Moskvaborgar, því að þeir sjást
um allt, svo að það er lítið að
sjá af því sem stríðsfréttaritarar
liafa gaman af að flétta inn i
frásagnir sínar.
Sunnlendingar
skemmta
Norðlendingum.
•I dag munu þau Alfreð And-
résson leikari, Bára Sigurjóns-
dóttir, dansmær og Sigfús Hall-
dórsson bankaritari skemmta
Akureyringum með söngi,
bljóðfæraleik og dansi.
Er það vel til fallið, að svo
ágætir listamenn, sem hér um
ræðir, skuli fara lil Akureyrar
og skemmta þar. Án efa mun
mönnum langa mjög að sjá og
heyra Alfreð syngja gamanvís-
ur, þvi hann er nú einn færasti
og bezli gamanleikari landsins.
Bruggarí tekinn.
Seldi’ hálfflöskuna á
30-40 krónur.
Nýlega hefir maður af nafni
Benedikt Jóhannsson, trésmið-
ur hér í bæ, verið handtekinn
fyrir bruggun.
Hafði hann fengizt eitthvað
smávegis við þessa iðn fyrst
framan af sumri, en ekki býrj-
að fyrir alvöru fyrr en Áfengis-
búðinni var lokað í seinna skipt-
ið. Hafði þessi nýja staða lians
reynzt honum all arðvænleg, þvi
hann seldi hálfflöskuna á 30—
40 krónur. Þegar liann var tek-
inn reyndust birgðirnar ekki
miklar, því sala áfengisins mun
liklega liafa gengið að óskum.
Benedikt situr nú í gæzluvarð-
haldi og bíður dóms.
í STUTTU MÁLI
London. — Þýzka útbreiðslu-
málaráðuneytinu hefir ávalt
verið mjög' á móti skapi, að
blöðin þar liktu saman lierför
Ilitlers og Napoleons til Rúss-
lands, og liefir þessvegna sér-
staldega gert sér far um að und-
irstrika sem mest mismuninn.
Þessvegna kemur mönnum þao
alleinkennilega fyrir sjóni'r, að
i Leipziger neueste Naehrichten
í síðastliðinni viku er saman-
burður gerður á þessum, tveim
lierferðum og lyktar með þess-
um orðum: „Ef Adolf Hitler
léti stjórnast af metorðagirnd
einni saman, þá væri henni fyr-
ii’ löngu fullnægt með þeirri
vissu, að nafn hans er óafmáan-
lega geymt í sögunni, sem jafn-
vel napóleónskur endir gæti
ekki komið í veg fyrir.“
*
Síðustu 6 mánuðina hefir
flugvélaframleiðslan í Banda-
rikjunum aukizt um 36%,
skriðdrekaframl. um 800%
og framleiðsla annara farar-
tækja fyrir herinn um 600%.
SmoldláQar Dl»ll!!l StÓlka U lllulVIVIOuOI fkast m', ]^ear U1 iðnftair- tækis, þarf að vera liandlagin. ásamt neðangreindum teg- Tilboð, merkt: „Hraðhent“ sendist til afgreiðslu blaðsins undum af lausum lyklum ásamt upplýsingum um aldur fyrirliggjandi: °g hvar viðkomandi hefir Unnið áður. Sargent
Yale
Damm n • 1 • 3S í ■ ' SifmiBostjorar JaweI . með meira prófi, „„„ óskast nú þegar. Uppl. í síma 1467 og 5612. _ Wilka
•
\ liKZLUISlJN Tvær unpr duglegar stúlkur
^ ^ stúlka til að vera í eldhúsi á Bezt ðQ auglýsa í VI8I veitingastofu eftir kl. 3 á daginn. Uppl. i sima 4516 til
. kl. 6, eflir þann lima i 3640.
VERZLUNIN T> r> Tf HJr <n n
FRAMNES Framnesvegi 44.—Sími 5791, hefir á boðstólum allar |il|"|j|~| Nýlenduvörur Smávörur án húsgagna óskast 1. Hreinlætisvörur september fyrir tvo Tóbak reglusama pilta, 19 og 20 Sæjgæti ára. Allar nánari upplýs- Ýmsar snyrtivörur ingar i sima 4168.
Nyttsmjör
a\au iyririiggjandi. llooliiiii kílir Sendum heim. óskast keyptar. Lipur afgreiðsla. H. f. JÚPÍTER. Reynið viðskiptin. Hafnarfirði. Sími 9111.
B.S, H 6 k l Góðir^bíLr Abyggileg afgreiðsla
Nýtomið mikið úrval af Barnaleikfðngum K. Einapsson & Bjöpnsson Bankastræti 11.
'V JLiiioleiini i fjölbrcyttn iit'vafi e 0 ,9 A. Einarsion A Funk Tryggvagötu 28. — Sími: 3982.
Vegna jarðarfarar
Guðmnndar Eliríjkiionar
bæjjarfnlltiiía verða §krif-
stofur bæjarin§ ogr bæjar-
§tofnana lokaðar frsi liá-
deg'i á morgfun fösiwtlagf.
B orgarstj órirm.