Vísir - 01.09.1941, Blaðsíða 2

Vísir - 01.09.1941, Blaðsíða 2
I VÍSIR DAGBLAÐ Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F. Rltstjóri: Kristján Guðlaugsson Skrifst.: Félagsprentsmiðjunni Afgreiðsla: Hverfisgötu 12 (Gengið inn frá Ingólfsstræti) Símar 1 6 60 (5 línur). Verð kr. 3,00 á mánuði. Lausasala 15 og 25 aurar. Félagsprentsmiðjan h.f. »Út úr myrkrunumcc H alldór Kiljan Laxness fókk nýlega skeyti frá formanni rithöfundasambands ráðstjórn- arríkjanna, þar sem þess var farið á leit við Laxness, að hann legði nokkuð af mörkum í rit eitt, er beinast skyldi gegn hin- um nazistisku öflum i lieimin- um. Virðist svo, sem pólitsíkur áhugi rithöfundarins hafi vakn- að við jietta að nýju, — sótt- kveikjan leyndist á sínum stað, og ekki þurfti nema herzlumun- inn til þess að líkams- og sálar- ástandið yrði hið sama og fyr. Ekki er látið staðar numið við skrifin i hið alþjóðlega ráð- stjórnarrit, heldur gerist nú Kiljan málsvari kommúnist- iskrar starfsemi hér heima fyrir. Benjamín Eiríksson nefnist • ungur hagfræðingur. Hann mun hafa stundað nám í Svíþjóð, en auk hagfræðináms lagði hann þar stund á nám í rússneskri tungu, og tók þátt í kommún- istiskri félagsstarfsemi. Benja- mín er sagður greindur maður, og mun um þessar mundir liafa verið liðtækur línudansari, enda er sagt að fyrir þá snilli sína hafi hann fengið þriggja ára dvöl í ráðstjórnarrikjunum, en slík landseta erlendra manna er þáttur í „uppbbyggingarstarfi" Komintern. • Svo virðist, sem við nánari kynni hafi Benjamín hagfræð- ingur ekki getað fellt sig alls- kostar við hnossgæti það, er honum var á borð borið, og er hann flytzt aftur hingað til lands, segir hann skilið við kommúnistiska starfsemi til þess að helga sig hinni sósíalist- isku baráttu, og skipar sér nú i sveit Héðins og Arnórs Sigur- jónssonar, að því er virðist. Um þessar mundir er von á bók einni í islenzkri þýðingu á markaðinn, er nefnist á frum- málinu „Out of the Night“, eftir þýzkan kommúnista, Jan Valt- in, sem kvað heita Krebs réttu nafni. Bók þessi er æfisaga höf- undarins, en hann starfaði um tvo tugi ára í þjónustu þýzka kommúnistaflokksins og „Kom- intern“. Nokkur ágreiningur hefir ris- ið milli þeirra félaga Benjamíns og Laxness varðandi það, hvort frásögn Ivrebs hafi við rök að styðjast eður ei. Benjamín er þó maður fróðari Laxness og meira mark á honum takandi allra or- saka vegna og skal því slcýrt frá viðhorfi hans til bókarinnar, en um hana reit hann grein í „Nýtt land“ 22. ágúst s.I. Þar segir svo m. a.: „Þeir sem fyrir hvern mun vilja lialda bókinni frá ís- lenzkum socialistum, gera það vegna þeirra lýsinga, sem þar eru á starfsaðferðum Komin- tern. Fyrir þá, sem vel hafa fylgst með þróun Komintern, kemur ekkert á óvart það, sem Valtin segir. Ræktun kommún- istaflokkanna með hinum bolsé- vísku starfsaðferðum hefir bor- ið þessa kynlegu ávexti. Þá segir Benjamín: „Social- isminn hugsar sér að byggja baráttu sína á háu siðgæði á- hangendanna, siðferðisþroska VlSIR Lpftvarnip á Norðurlandi: Síldarverksmiðjurnar þurfa sjálfar að eiga slökkvitæki. Viðtal við Svein Einarsson verkfræðing. Sveinn Einarsson verkfræðingur er nýkominn norðan úr landi, en hann fór samkvæmt beiðni norðanmanna til að athuga og leiðbeina um loftvarnir hjá þeim. Elftír €liopin-kon§ert 12. maí 1941 — hjá Árna Kristjánssyni, píanóleikara. Flýgillinn tónana flytur um salinn, með fallandi, stígandi þrótti og mildi; það er, sem blossi upp eldur falinn og endurhljómi i djúpi sálar. Meiningu tónanna túlkarinn skildi, með tendrandi litbrigðum hljómana málar. Sindrandi, eilifa ómríka mál, sem alvaldur sendir af hæðunum niður, það tengir og sameinar sál við sál, þvi svífandi hugsun í algleymi þýtur á tónanna vængjum, sem talandi kliður frá tónskáldsins brjósti, er hlustandi nýtur. Túlkarans vald er að vekja það aftur sem var — en þó er þegar harpan það flytur, þá endurskapast sá andlegi kraftur, er andinn lifði á horfinni stund, sem féll það í skauLað vera vitur og vorhuginn efla og göfga lund. Einar Markan. Allslierjar sýning: Menzkra listn Bandalag íslenzkra listamanna hefir farið fram á það við bæjarráð, að það fengi að halda allsherjar málverkasýningu í garðyrkjuskálanum nýja við Garðastræti, að garðyrkjusýning- unni Iokinni. og fórnfýsi (Innskot hér: shr. Alþýðuflokkinn). í flokkum, Ivomintern liafa þeir hinsvegar tekið meir og meir við völdun- um, sem léttasta liafa hlekki mannlegra dyggða um fót. Glæpahneigðir menn ' hafa oft reynst liinir þörfustu þjónar. I stáð hugrekkisins með hreinan skjöld liafa refjarnar og klæk- irnir komið — og með þeim ým- islegt enn verra. Hinir sjálf- stæðustu og hugrökkustu hafa annað livort verið brotnir á bak aftur með sjálfsgagnrýninni, sem fyrirskipuð hefir verið að ofan, bæði að efni og forrni (man nokkur sumarið 1934?) — eða reknir. í stað umhugsun- ar, persónuþroska og sannfær- ingar, hefir hin auðsveipna hlýðni komið, á pólitísku máli: verkfærið." Enn kveður Benjamín: „Sið- gæðisgrundvöllur sosíalismans er arfur frá hinni vestrænu menningu. En tækni valdabar- áttunnar — þar sem skamm- sýn sjónarmið ráða — þolir engar siðgæðishömlur. Lygar og glæpir verða eingöngu prakt- isk atriði. Þar sem ekki er samt hægt að beina átökum manna i eina og sömu átt án ákveðinnar sameiginlegra siðgæðishug- mynda, tekur foringjaskipulag- ið hollustuna við foringjann.sem mælikvarða siðgæðisins, og flokksdýrkunarskipulagið holl- ustuna við flokkinn, sem oft er ekki annað en klika ein, er hrifsað hefir til sín völdin á ó- fjTÍrleitinn hátt, kallað sig síð- an „fIokkinn“, „miðstjórnina“ eða eitthvað svipað. Ágætt dæmi er flokkurinn sem svo kallaði sig hér i Reykjavík sumarið 1934“. Hér er ekki rúm til að rekja þessi skrif nánar, þó skal að lokum vitnað í Laxness, er liann segir, v— að bókin lýsi aðallega „morðingjum, drykkjumönn- um, þjófum, landráðamönnum o. s. frv.“ og „Benjamín Eiríks- son má gjörst vita sjálfur um siðferðisástand þeirra kommún- ista, sem hann hefir ha'ft sam- skipti við, bæði hér heima, í So- vétlýðveldunum og á Norður- löndum.“ Benjamin segir: „Bók ! Valtins er ein af stórkostlegustu bókum vorra tíma. Hún er sönn.“ Síra Gunnar Benediktsson hefir frá þessum mánaðamótum látið af ritstjórn Nýs dagblaðs, en við henni hafa tekiÖ þeir Einar Ol- geirsson alþingism. og Sigfús Sig- urhjartarson, cand. theol. f grein um Brynjólf Oddsson í laugar- dagsblaðinu, misprentaðist menn- ing í stað minning. Vísir hefir snúið sér til Sveins og spurt hann um förina norð- ur og um loftvarnaráðstafanir nyrðra. „Loftvarnir eru bæði á Akur- ; eyri og Siglufirði skipulagðar með áþekku fyrirkomulagi og hér i Rvík, og liafa þeir yfir- leitt tekið sér loftvarnirnar hér til fyrirmyndar.“ „Hafa þeir komið upp lijálp- arsveitum?“ „Já, og skipulag þeirra er líkt og hér og fjöldi starfs- manna í hlutfalli við starfs- mannalið hjálparsveitanna hér.“ „Leiðbeinduð þér nokkuð um loftvarnir í þessum kaupstöð- um?“ „Á Siglufirði hafði eg sýningu á því, hvernig slökkva ætti i í- kveikjusprengjum. Þar mættu fleiri hundruð manns til að liorfa á, og virtist mér sem fólk- ið yrði öruggara miklu á eftir og hyrfi óttinn af því, þegar það var búið að kynnast meðferð íkveikjusprengjanna af eigin sjón. Þá sat eg ennfremur á fundum loftvarnanefnda bæði á Akureyri .og Siglufirði og leysti úr þeim spiu-ningum varðandi loftvarnamál, sem fyrir mig voru Iagðar.“ „Hvernig virtist yður áhugi manna vera fyrir loftvörnun- um?“ „Mjög mikill á háðum stöð- unum, svo að honum er í engu ábótavant.“ „Hvað fannst yður helzt á- bótavant?“ „Það er of litið til af slökkvi- tækjum á báðum stöðunum. Til þessa hefir verið miðað við eðli- lega tíma eingöngu, en alls ekki við loftárásir. Nú munu þó ráð- stafanir liafa verið gerðar til að afla aukinna slökkvitækja. Hvað Siglufjörð snertir, þá er eldsliættan þar óvenju mikil vegna þess, að þar er allt löðrað í lýsi og olíu. Ættu síldarverk- smiðjurnar að koma sjálfar upp slökkvitækjum, því á þeim er brýnni nauðsyn en e. t. v. á nokkrum öðruni stað á land- inu.“ Slökkviliðið gabbað að befir borið nokkuð mikið á því, að slökkvi- liðið hafi verið lcvatt út núna síðustu dagana. Hefir annað livort verið um eitthvað smá- vægi að ræða eða hara gabb. Á laugardaginn var, var slökkviliðið kallað tvisvar sinn- um út, i annað skiptið niður í Lagarfoss. Var einhver litils- liáttar bruni þar. í fyrrinótt var brunaliðið gabbað einu sinni út. Var brot- inn brunaboðinn í Austursræti fjögur. I nótt var það kvatt tvisvar út. Annað skiptið á Laugaveg og bitt Bergstaðastræti. Var það gabb í annað skiptið. Hitt var smávegis. Haustmót II, flokks hófst í gær. Fyrstu leikir II. flokks móts- ins (haustmótsins í knatt- spyrnu) fóru fram í gær á íþróttavellinum. Úrslitin urðu þau, að Víking- ur vann Hafnfirðinga með 1:0, K. R. vann Fram með 4:0, Val- ur vann Vestmannaeyinga með 3:2. Munaði mjóu með bæði utan- bæjarfélögin að þau sigruðu í gær, því að Vikingur vann Hafnfirðingana á vitaspyrnu, og leikurinn milli Vals og Vest- manneyinganna var svo jafn, að ekki mátti milli sjá hver ynni. Um Vestmanneyingana má segja, að þeir hafi átt öllu sterk- ari menn en Valur, en skorti samleik og knattmeðferð á við Valsmennina. Þetta er „knock out“ keppni svo að þau félögin, sem töpuðu í gær, konia ekki til leiks aftur. Hvað Vestmannaeyinga snertir, munu þeir þó sennilega lceppa aukaleik við K. R. áður en þeir hverfa lieim, og sömuleiðis hafa þeir óskað eftir að keppa við Hafnfirðingana. Næsti leikur II. flolcks mótsins verður á morgun milli Vals og Víkings, en á fimmtudaginn keppir það félagið, sem vinnur þá, til úrslita við K. R. Að undanförnu hafa íslenzkir listmálarar haldið sameiginleg- ar sýningar i miðbæjarskólan- um, nema i sumar og fyrrasum- ar. En þá hefir skólinn verið tekinn lil annarra nola og þvi ekki liægt að lialda sýningu þar. Er þetta mjög bagalegt fyrir listamennina, því þeir liafa ekki getað lialdið neinar sýningar eftir að kaupgeta almennings óx, og liefir það orsakað minni sölu á listaverkum, og það sem er þó öllu verra, að það hefir komið listunnendum að mestu leyti úr sambandi við listamenn- ina sjálfa, og að því er menn- ingarlegt tjón. Nú vill stjórn Bandalags is- lenzkra listamanna nota þetta einstaka tækifæri sem fæsl með býggingu hins nýja 'garðyrkju- sýningarskála við Garðastræti. Það skilyrði var að visu sett af bálfu bæjarráðs, að skálinn yrði rifinn þegar að garðyrkjusýn- ingunni lokinni, sem yrði um mánaðamótin scptejnber og október. En B. í. L. liefir farið fram á það við bæjarráð, að skálinn fengi að standa einn mánuð enn, eða út októbermán- uð og þá héldu listamennirnir sýningu sína. Það má treysta því að bæjar- ráð bregðist vel og drengilega við þessari málaleitun lista- mannanna og þeim mun frem- ur, sem húsnæðisvandræði eru svo mikil í bænum, að ógerlegt mun reynast að halda sýningar fyrir einstaka listamenn. Hér er því um að ræða einasta tækifær- ið fyrir jiá til að halda sýningu í ár. Hefir stjórn Bandalags ísl. listamanna fengið leyfi lóðar- eigenda og eigenda garðyrkju- skálans til að lialda sýningu í skiálanum að aflokinni garð- yrkjusýningunni, svo að það er bæjarráð eitt, sem hefir örlög sýningarinnar í hendi sér. Eftir þvi sem Jóhann Briem, form. Bandalags ísl. listamanna tjáði Vísi, munu yfir 20 listmál- arar hafa fullan hug á að taka þátt í sýningunni. Hámarksverð á nýjum ilski. Verðlagsnefnd hefir nú á- kveðið hámarksverð á nýjuni fiski í Rvík. Verðið er sem hér segir: Þorskur, slægður, með liaus: 1. sóttur af kaupanda til fisk- sala kr. 0.55 pr. kg. 2. Heimsendur til kaupanda kr. 0.60 pr. kg. Ýsa, slægð, með liaus: 1. Sótt af kaupanda til fisk- sala kr. 0.60 pr., kg. 2. Heimsend til lcaupanda kr. 0.65 pr. kg. Suður-Amerikuþjóð- irnar og styrjöldin. Skiptar skoðanir um nazisma og kommúnisma. (Grein þessi er frá United Press — vikuleg- yfirlitsgrein um málefni Suður-Ameríku). Innrás Þjóðverja í Rússland hefir orsakað nokkura breyt- ingu á afstöðu flestra þjóða Suður-Ameríku til styrjaldar- innar og þeirra stefna, sem þar berjast. Það var undantekningarlítið skoðun ráðandi manna í þessum löndum, að kommúnisminn væri hættulegri fyrir Suður- Ameríku en nazisminn og fas- isminn. Frá þessu hafa þó verið nokkurar undantekningar, en þær hafa verið fáar og látið minna á sér bæra. Kommúnistar hafa liaft litið áhrifavald í stjórnmálum í Suður-Ameríku. Víðast Iivar hefir starfsemi þeirra farið minnkandi að undanförnu, ef hún hefir ekki verið bönnuð. Undantekningar að þessu leyti eru þó Chile, þar sem kommún- istar hafa tekið drjúgan þátt í stjórn alþýðufylkingarinnar, Kúba, þar sem kommúnistar höfðu forgöngu um að Fulgen- cio Batista var kjörinn forseti og Mexíkó. Samningur Rússa og Þjóð- vera, sem gerður var í ágúst 1939, varð til þess að margir, sem voru lilynntir Þjóðverjum, snéru við þeim bakinu og hann var óspart notaður af lýðræðis- flokkum og félögum til þess að fá þá á sitt band, sem liöfðu verið á tveim áttum áður. Þessi nýju viðhorf munu þvi vafalaust liafa allmikil áhrif — skoðanabreytingu hjá vissum flokki andnazista, sem voru aldrei alveg heilir í því efni. — Þau munu líka gefa þeim, sem ldyntir eru möndulveldunum ný „skotfæri“ til að vinna stefnu sinni fylgi. Þeir geta brugðið upp mynd af Hitler, þar sem hann fari í krossför til þess að brjóta bolsivismann á bak aftur og forða heiminum frá hættum þeim, sem af honum stafa. Þetta virðist þegar hafa verið gert viða og eklci án sýnilegs ár- angurs. í Quito í Ecuador gefa ka- kaþólskir menn út blað, sem nefnist „E1 Debate“. Þar segir svo fyrir skemmstu: „í baráttu þeirri, sem nú er háð milli Þýzkalands og Rússlands .... erum við með Þýzkalandi og óskum þess að það beri sigur úr býtum.“ Enda þótt slíkar samúðarlýs- ingar sem þessi sé aðeins sjald- gæfar í Suður-Ameríku, er það alls ekki undarlegt, þótt undir- alda hkra hugsana og skoðana verði víða til. Hvað stjórnir ríkjanna snertir hafa þær jafn- an gætt þess að kynna sér sem bezt afstöðu stjórnar Banda- ríkjanna í öllum atriðum þess- ara mála og engin þeirra mun láta sér koma til liugar að gera neitt, sem gæti orsalcað ósam- komulag við Bandaríkjastjórn. Eina rikið, sem hefir gengið fram fyrir skjöldu og lieitið á landslýðinn að veita Rússum hjálp, • er Uruguay. Það riki mun hafa gengið lengst af Suð- ur-Amerikurikjum i að sýna lýðræðisanda sinn síðastliðin tvö ár. Tók þingið til meðferðar að tekið yrði upp aftpr stjórn- málasamband við Rússland og Rússum veittur gjaldíVestur, ef þeir hefði hug á að festa kaup á afurðum frá Uruguay og gæti eklci borgað strax. Styrjöld Rússa og Þjóðverja hefir ekki stöðvað neina af þeim opinberu rannsóknum, sem hafnar liöfðu verið til að rann- saka starfsemi möndulveld- anna og fulltrúa þeirra í Suður- Ameriku. I Argentínu liefir nefnd ein, sem kölluð er „Ta- borda-nefndin“ starfað. Starf hennar var að atliuga alla starf- semi, sem stefnt væri gegn lýð- ræði og þingræði. Þegar Rússar og Þjóðverjar fóru að berjast, settist nefndin þegar á rökstóla — hún var þá stofnuð fyrir nokkuru — og byrjaði að yfir- heyra alla, sem gefið gátu Upp- lýsingar um stai-fsmenn þeirra. Nefndin snéri sér lika til Dies-nefndarinnar i Bandaríkj- unum, sem sett var á stofn til að grafast fyrir um alla „ó- ameríska“ starfsemi þar i landi. Nazistar höfðu starfað mjög ötullega í Argentínu og höfðu mikil áhrif á skoðanir almenn- ings, sérstaklega unga fólks- ins. Kúba er annað landið, þar sem gerðar hafa verið ráðstaf- anir til þess að ráða niðurlög- um útbreiðslustarfs- nazista og njósnanna, sem þeir eru ásak- aðir um. Hafa nokkurir menn verið teknir fastir þar, en sér- stölc lögregludeild hefir verið sett á stofn, sem á eingöngu að taka til meðferðar mál af þessu tagi.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.