Vísir - 09.09.1941, Blaðsíða 3

Vísir - 09.09.1941, Blaðsíða 3
VÍSIR Síðasti söludagur í 7. flokki í dag Kriitjóu Jónsson frá Nkarði. Dáinn 14. júní 1941. Þú barðist sem hetja í harðviðri kífs, er lioldið þitt sárkvaldi nauðin. Nú hvilir þú dáinn á líkfjölum lifs, — að lokum þig sigraði dauðinn. Með ljóðandi tungu, í lundinni rór —- svo liðu þín sjðustu árin — og fleiri en „Hjálmar“ svo hugdirfskustór til helfarar barstu þín sárih. Nú hrosir þinn andi við hatnandi kjör. Nú boðast þér heilsan og iðjan.—- Mót lausnara þínum með ljóðið á vör nú lyftir þér eilífa gyðjan. Nú liggur til vorblóma veglínan pi*ýdd um víðáttu óskanna þinna —: Þér hjálpaði’ af örlæti himnanna vídd, en heimurinn greiddi þér minna. • Eg minntist þess lengi og muna það vil — er margþættu gleðinni bjargar — liið saldausa lyftandi ljóðræna spil, er lékum við kveldstundir margar. Með konu og sonarins syrgjandi þökk er síðasta kveðjan í gildi —: Eg veit það, af mildi þau minnast þín klökk, þó margt væri annað en skyldi —. Nú gnæfir svo hátt yfir harma og tál þinn hugstæði minninga-varði, mitt kærasta þakklæti’ og kveðjunnar mál áttu, Kristjón minn Jónsson frá Skarði. J. S. Húnfjörð. Fréttir frá I. S. I. Ævifélagar I. S. í. liafa nýlega gerst þessir: Richard Tliors, forst., Thor R. Thors, verzlm., Richard Thors, stud. med., Þórður Thörs og Ólafur Þor- grímsson hrm., allir í Reykja- vík. Eru ævifélagar samliands- ins nú 119 að tölu. Golf kþibbur Ves tmannaeyj a gekk nýlega í íþróttasamband Islands. Félagar klúbbsins eru 55, formaður Þórhallur Gunn- laugsson. Þá hefir nýlega geng- ið í sambandið iþróttafélag Hvanneyringa á Hvanneyri. Tala félagsmanna er 55, for- maður er Jón M. Guðmundsson. Stjórn I. S. I. hefir farið þess á leit við bæjarráð Reykjavíkur, að fá að tilnefna 2 menn til að- stoðar bæjarverkfræðingi við að velja land undir leikvelli (Stadion). Þessi menn liafa verið skip- aðir formenn íþróttaráða: Form. íþróttaráðs Vestmanna- eyja, Jón Ólafsson, og form. íþróttaráðs Akraness Jón Sig- mundsson. Iþróttadómstóllinn hefir fyr- ir skönnnu afgreilt kærumál Guðm. Sigurðssonar knatt- spyrnudómara á hendur Skúla Agútssyni í knattspyrnufélaginu Víkingur. Er' niðurstaða dóms- ins sú, að Skúla er bannað að taka þátt í knattspyrnuleikjum í 1 ár, frá 15. ógúst 1941 að telja. Iþróttasambandið hrýnir fyr- ir sambandsfélögum sinum, þeim er héldu skíðamót s. 1. vetur, að senda fyrir 1. okt. n. k., skýrslur um mótin. Þær skýrsl- ur sem síðar berast, verða ekki teknar til greina við flokka- skiptingu i skíðaíþróttum. Stjórn I. S. I. liefir staðfest reglugerð um Walters-bikar- inn, en bikar þann gaf frú Hlega Sigurðsson knattspyrnufélaginu Víking á 30 ára afmæli félagsins, til minningar um Walter heit- inn Sigurðsson stórkaupmann. Keppni um bikarinn hefst að þessu sinni 7. sept. Það félag sem vinnur hikarinn 3svar í röð eða 5 sinnum alls, hlýtur hann til fullrar eignar. Stjórn I. S. I. hefir og fyrir sluttu staðfest met i 60 mtr. lilaupi, á 7.4 sek, Methafar eru Jóliann Rernhard og Sigurður Finnsson, báðir félagar í Knatt- spyrnufélagi Reykj avíkur. Skrifstofa I. S. I. verður fram- vegis opin tvisvar i viku, þriðju- daga og fimmtudaga kl. 8—10 siðdegis. Forðist fýla- sóttina. Varist fyliniB. Eg hefi orðið þess var, að fýll hefir eitthvað verið seldur og hagnýttur hér í bænum undan- farið. Nú er fýlutekja og hverskon- ar hagnýling fýlunga bönnuð, vegna hinnar illkynjuðu sóttar, fýlasóttarinnar (Páfagauka- veiki), sem af þeim, getur staf- að. —- Ilinsvegar er heimiluð veiði fullorðins fýls (vetrarfýls) og Iiagnýling hans. En þar sem fýlungarnir nú munu fullvaxnir, fleygir orðnir og komnir á sjó út, þá mun lítt gerlegt, ef ekki alveg ómögu- legt, nenia þá með nákvæmri rannsókn, að þekkja ungfugl- inn frá hinum eldri. Eg vil því alvarlega vara fólk við að hagnýta þessa fugla eða handfjalla þá, þar sem engin trygging er fyrir því, að þeir geti ekki valdið hættulegri sýk- ingu. Iléraðslæknirinn í Reykjavík, * 5. sept. 1941. Magnús Pétursson. 80 ára jr Einar Isaksson sjómaður. Mig langar til að geta hans nokkrum orðum, þvi að eg var með honum á sjónum á Aus't- fjörðum og líka hér fyrir sunn- gn. Hann var þá ungur til.þess að gera og einnig mjög hugað- ur og djarfur við sjósókn. Enda fiskúðum við mikið. fram yfir flesta aðra þar og eins hér fyrir sunnan. Hann aldist upp við sjóinn og vandist og lærði sjómennsku hjá föður sínum, ísak Eyjólfs- syni í Melsliúsum á Álftanesi. Einar var ágætis ræðari. Fáir munu liafa snúið á það horðið, sem hann réri á. Nú er liann orðinn aldraður maður, en þó fór hann einn á kænunni sinni nú um vorið 7— 8 róðra vestur á svið, á árunum og handleggjunum, og eins upp í Hvalfjöi'ð. Þetta er dugnaður og kjarkur. Þetta liefi eg frétt, og það er satt. Lifi hann sem lengst. Þess óskar honum gamall háseti hans og þakkar honum fyrir samvinnuna og allt gott. Sjómaður. Bæjar fréttír Áheit á Strandarkirkju afhent Vísi: Kr. io,oo frá H. B., 7,oo frá þakklátri móSur, 6,oo frá Z., 3,00 frá ónefndum, 5,00 frá V. S., 2,00 frá SigríSi, 5,00 frá Þ. V. S., 2,00 frá J. G., 5,00 frá 1. G., 10,00 frá S. Sveinssyni (gamalt áheit). Til veiku stúlkunnar afhent Vísi: Kr. 10,00 frá Á., kr. 10,00 áheit frá sjómanni. ólafur Halldórsson, Bókhlöðustig 6, fyrrum verka- maður, er i dag 70 ára. Næturlæknir. Bjarni ,Jónsson, Asvallagötu 9, sími 2472. Næturverðir i Lauga- vegs apóteki og Ingólfs apóteki. Útvarpið í kvöld. Kl. 15.30 Miðdegisútvarp. 19.30 Hljómplötur: Lög úr óperettum og tónmyndum. 20.00 Fréttir. 20.30 Erindi: Indland og Indverjar (Sig- fús Halldórs frá Höfnum). 20.55 Hljómplötur: Píanókonsert í d-moll eftir Bach. 21,25 Upplestur: „Af jörðu ertu kominn“, sögukafli(Guð- mundur Daníelsson, rithöf.). Vélskólinn í Reykjavik tekur til starfa 1. okt. — Umsóknir sendist skólastjóra fyrir 20. se])t. Um inntökuskil- yrði, sjá lög nr. 71,23. júní 1936, umkennslu í vélfræði, ög reglugerð Vélskólans frá 20. sept. 1936. SKÓLASTJÓRI. 5 — H stílllsiir vanfar til verksmiðjuvinnu. Uppl. á Nönnugötu 8. — Ekki svarað í síma. — 8und£öt fyrir dömup — herra — böpn NÝKOMIÐ MIKIÐ TjRVAL. Eygló Laugaveg 46. é NIHíOHí_________________________ Skólakjólarnir komnir (smáar stærðir) Einnig Pils og Peysur ------------------------ Bankastræti 7 Frð Reylijaifjkurhölii Hérmeð tilkvnnist öllum vöruinnflytjendum til Reyk javíkur, að vegna samninga þeirra, er Reykjavík- urhöfn hefir gert við herstjórn Bandaríkja hér á landi, verður framvegis eigi levft að hafa vörur geymdar á hafnarlóðunum lengur en 3 sólarhringa frá því er af- fermingu skips er lokið. Þær vörur, er eigi hafa verið hirtar innan þess tíma, verða fluttar á stakkstæðið suður hjá Haga (á Melun- um) og geymdar þar á kostnað og ábyrgð eigenda. Skip þau, er flytja timbur, verða eigi tekin upp að bryggju til afgreiðslu, nema farmeigendur geti flutt timbrið beint á geymslupláss után hafnarsvæðisins. Reykjavík, 8. sept. 1941. H AFN ARSTJ ÓRINN. Illilaui u irirhikitir Umsóknum um ellilaun og örorkubætur skal skilað á bæjarskrifstofuna fyrir lok þessa mánaðar. Athygli skal vakin á því, að allir, sem notið hafa ellilauna eða örorkubóta á þe^su ári, og óska að fá þaú framvegis, verða að sækja um styrk á ný fyrir árið 1942. Um- sóknareyðublöð fástí Góðtemplarahúsinu alla virka daga kl. 10—12 og 2—5, nema á laugar- dögum eingöngu kl. 10—12. Boioaistjiirioi i Reykjavik Tilkynning frá ríkisstjórnliiiii Brezka flotastjórnin hefir tilkynnt íslenzku ríkisstjórninni að nauðsynlegt sé að öll íslenzk , skip, 10 til 750 smál. að stærð, fái endurný juð j eins fijótt og liægt er, ferðaskírteini þau, sem ; um ræðir í tilkynningu rikisstjórnarinnar, 6 dags. 7. marz 1941. Skírteini þessi fást hjá brezku flotastjórninni í Reykjavík, Akureyri, Seyðisfirði og Vest- mannaeyjum. Atvinnu- og samgöngumálaráðuneytið, 5. sept. 1941. Konan mín elskuleg, Oddbjörg Jónsdóttir andaðist á Landspítalanum þann 7. þessa mánaðar. Fyrir mína hönd, harna minna og annara ástvina. Eggert Kristjánsson. Jarðarför móður og tengdamóður okkar Helgu Fridriksdóttur Welding fer fram miðvikudaginn 10. þ. m. Hefst með húskveðju á lieimili hennar, Hallveigarstíg 6 A, kl. 1%. Ingibj. Finnbogad. og Elías Kristjánsson.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.