Vísir - 24.09.1941, Side 3

Vísir - 24.09.1941, Side 3
VISIR / ICennsluskrá Háskóla Islands er nú tilbúin Margrir nýir kcnnarar liefja starf §emi iína við skólann i lianst. Kennsluskrá Háskóla íslands fyrir haustmisserið 1941—'42 er nú tilbúin. Er hún miklum mun fjölbreyttari en áður fyrr, því mörgu nýju hefir verið bætt í hana. í Guðfræðideild og Lækna- deild starfa sömu kennarar og áður. Lagadeild hefir verið hreytt mjög mikið. Nefnist hún nú Laga- og hagfræðideild. Er þar slegið safnan í eina deild lögfræði, hagfræði og viðskipta- fræði. En eins og mönnum er kunnugt, var þessi breyting staðfest á síðasta þingi. Var hinn svokallaði Viðskiptaháskóli inn- limaður í Háskólann og enn fremur var bætt við einni grein, liagfræðinni. Þeir nýir kennar- ar, sem starfa við þessa deild, eru Gylfi Þ. Gíslason, sem ný- verið var skipaður dósent, cand. polií. Ölafur Björnsson, Steinþór Sigurðsson, stjörnu- fræðingur, cand, act, Guðþuind- Ur Guðmundssón, Cyril Jacksón, sendikennari, Ingvar Brynjólfs- son, Lic.és. letters. Magnús G. Jónsson, hrm. Theodór B. Lín- dal og Þorsteinn Bjarnason. . I heimspekideild hefir enn fremur verið bætt nokkrum, kennurum; eru þeir: cand. mag. Björn Guðfinnsson, sem er ráð- inn lektor í nútiðarmáli og hag- nýtri íslenzku kennslu, Cyril Jackson sendikennari, Frau Dr. Irmgard Kroner, fil. mag. Anna Z. Osterman, Dr. Símon Jóh. Ágústsson, Þórhallur Þorgilsson og Hallgrímur Helgason tón- skáld. Verkfræðideildin, sú sem sett var á laggirnar i fyrra haust, heldixr áfram með sama fyrir- komulagi og áður og sömu kennurum, nema Guðm. Kjart- ansson stjörnufræðingur hætist við. Fyrir utan þetta hefst kennsla í leikfimi og sundi, eins og fyrr hefir verið frá skýrt hér í blaðinu. Verða allir nýir skrá- settir stúdentar skyldaðir til þess að stunda þessar íþrótta- greinar fyrstu 4 misserin. Bene- dikt Jakobsson verður kennari i þessari grein. Hljómleikar verða haldnir í hátíðasal Háskólans fimm sinn- um í vetur, fyrir kennara og stúdenta. Flutt verða meðal ann- ars eftirfarandi tónverk: Beethoven: Sónata í C-molI. Mozart: Sónata i F-dúr. Ravel: Sónata. Carl Nielsen: Variationer. Corelli: La Folia. Hallgr. Helgason: Tilbrigði fyrir fiðlu og píanó. Hándel-Raclilew: Passacaglia. Lalo: Synphonie erspagnoli. Desemhei'-hljómleikar verða lielgaðir Mozart í tilefni 150 ára dánardægurs hans. Janúar- hljómleikar verða helgaðir nor- rænum tónverkum, og muu ungfrú Guðrún Þorsteinsdóttir syngja lög eftir Sibelius, Nielsen og Grieg. Þeir félagar, Árni Kristjánsson (flygill) og Björn Ólafsson (fiðla) munu annasí þessa hljómleika. Fluttir verða ýmsir fyrirlestr- ar fyrir almenning i hátíðasaln- um. Eru þeir sem hér segir: 1. Prófessor Árni Pálsson: Sjálfstæðisbarátta Islendinga i upphafi 14. aldar, sunnu- daginn 1. nóv. kl. 2—-3. 2. Sigurður Guðmundsson, skólameistari: Jónas Hall- grímsson, sunnudaginn 16. nóv. kl. 2—3. 3. Próf. Jón Steffensen: Þórs- dælir liinir fornu, sunnudag- inn,14. desember kl. 2—3. 4. DósentSigurður Einarsson: Kristileg messa, þróun lienn- , ar í höfuðdeildum kirkjunn- ar, sunuudaginn 4. jan. kl. 2 —3. 5. Prófessor, dr. Guðmundur Finnbogason landsbólcavörð- ur: Ást, sunnudaginn 13. jan. kl. 2—3. 6. Prófessor ísleifur Árnason: Afbrot og refsing, sunnud. 1. febrúar ld. 2—3. 7. Prófessor, dr. Alexander Jó- hannesson: Hvernig lærði frummaðurinn að tala? sunnudaginn 22. febr. kl. 2 —3. 8. Prófessor Jón Hj. Sigurðs- son: Framfarir og breytingar í lyflæknisfræði síðustu 30— 40 ár, sunnud. 8. marz kl. 2 —3. 9. Cand. jur. Gunnar Thorodd- sen: Um málfrelsi og meið- yrði; sunnudaginn 22. marz kl. 2—3. 10. Prófessor Ásmundur Guð- mundsson: Skírdagskvöld, -skírdag 2. april kl. 2—3. Bókarfregn. Samtíð og k saga. Nokkrir háskólafyrirlestrar. I. — Reykjavík 1941. ísafoldar- prentsmiðja h.f. 184 bls. í stóru átta blaða broti. Það hefir oft verið kvartað undan því, að háskóli vor væri ekki alþýðlegur. Það er nokkuð til í því. Hann lokar um of að sér og gerir leiðina inn fyrir sina þröskulda of þrönga, en leiðina út sennilega fullvíða. Hinsvegar má auðvitað ekki gera hann að lýðháskóla, að þeim ólöstuðum, eða að einhverju, sem enn miklu síður skyldi, eins og sumir sýn- ast hafa tilhneigingu til að gera; þetta kemur }>ó ekki þessu máli við. Það hefir og með réttu verið kvartað undan því, að liann ein- skorðaði sig um of við embætt- ismahnakennslu, en sinnti vis- indastörfum annars vegar, en alþýðufræðslu hins vegar of lít- ið. Þar hefir háskólinn þó haft gilda afsökun, þvi húsnæði það, sem hann til skamms tima hef- ir búið við, hefir verið örðugur tálmi. Það hefir þá ekki heldur staðið á því, eftir að komið var í nýju hibýlin, að háskólinn hafi reynt að ráða bót á þessu. Hinar ýmsu fræðistofnanir, sem við hann eru tengdar, vinna nú við þau skilyrði, að þeim er unnt að inna vísindastörf af hendi, skólinn hefir teygt sig yfir fleiri fræðisvið en áður, en er þó sennilega betra að gera ekki meira að því fyrst um sinn, heldur leggja aðaláherzlu á það, að kennsla og afköst hverrar deildar verði eins fullkomin og hægt er.Þá hefirliáskólinnopuað salarkynni sín fyrir hljómlist- inni, og ætti endirinn auðvitað að verða sá, að tónlistarskólinn, sem nú er hornreka, verði há- skóladeild. Loks hefir sá ágæti siður verið tekinn upp á síðasta ári, að háskólakennarar flyttu noklíra fyrirlestra árlega fyrir almenning, hver úr sinni grein. Það eru sex þessara fyrirlestra, sem hér Jnrtast, auk tveggja há- skójahátíðarfyrirlestra. Fyrirlestrar þessir fjalla um siðfræði, lögfræði og réttarsögu, læknisfræði, kirkjusögu og al- menna sögu, en höfundarnir eru prófessorarnir Ágúst H Bjarna- son, Ólafur Lárusson, Niels Dungal, Guðmundur Thorodd- sen, Magnús Jónsson og Sigurð- ur Nordal. ÖIl eru erindin ágæt og fróðleg,og er gersamJega ó- | mögulegt að gera nokkurn sam- j anhurð á ágæti erinda um svo ólík efni, enda mtm hvern ein- stakan mann skorta þekkingu til að dæma um þá alla. Sá, sém þetta ritar, leiðir til dæmis fyrst og fremst hest sinn frá að dæma um læknisfræði- fyrirlestrana, en þeir eru ákaf- lega fróðlegir, að minnsta kosti fyrir þann, sem ekkert kann, og skipulegir; sérstaklega nýtur annar þeirra sin prýðilega sem ritgérð, en sama verður ekki sagt um hami, þegar liann var fluttur, því það var gert með þeim hætti, að hann fór úr reip- unum; þeim, sem ekki er gefin eðlileg málsnilld, og svo er um ýmsa ágæta menn, verða að venja sig á það, þegar þeir tala, að þræða handrit sitt skilmála- laust, annars ldýtur hér um hil alltaf að fara ver. Af fyrirlbstr- um prófessors Ágústs þykir mér erindið um verðmæti mannlegs hfs vera með sérstökum ágæt- um, af fyrirlestrum próf. Ólafs þykir mér erindið um hefndir skemmlilegra en hitt, sennilega af því, að eg er þvi efni liand- gengnari en hinu. Erindi síra Magnúsar er fyrirtakstilraun til þess að leiðrétta skcðun manna á Guðmundi góða, sem fram að þessu hefír verið mjög ranglega dæmdur, hæði af mér og öðr- um; og þó Guðmundur sé fjarri því að vera fullafgreiddur í ei’- indinu, er það ágæt byrjun, og athugun síra Magnúsar um hugsanlegt samhand milli lífs- skoðana og lífstakmarks Guð- mundar og Bernliards af Clair- vaux og Frans frá Assisi er glæ- ný og einkar sennileg; hinsvegar liefði það verið til skilnings- auka, ef gleggri grein liefði verið gerð fyrir forum externum og forum internum i dómsvaldi kirkjunnar og eins fyrir því, að deilunni um gildi guðs laga og manna olli ólíkur skilningur leikmanna og lclerka á því, hvað guðs lög væru; klerkar töldu það vera korpus juris canonici með þeim viðbótum, sem hann jafnóðum fékk, en leikmenn töklu þau liins vegar vera parti- cularétt kirkjunnar eins og liann var á hverjum stað. Erindi Sigurðar próf. Nordal er merki- leg tilraun til þess að baéta úr hlutdrægni í garð Gunnhildar konungamóður, þó ekki sé það orð nefnt, sem gætir í fornum sögum. Er gott að slíku sé hreyft, því • vafalaust eru forn- sögur vorar yfir höfuð mjög hlutdrægar, eins og forn sagnrit annarra þjóða; handbragð höf. er með sömu ágætum liér sem annarsstaðar. Það er mjög vel ráðið að prenta þessi erindi, því fæstir landsmanna áttu kost á að heyra þau. 1 vetur verður áframhald á þessari fyrirlestrastarfsemi, og í forinála ritsins er lofað framhaldi á útgáfu fyrirlestr- anna, en allt er það stórþakka- vert. Guðbr. Jónsson. Ljósaperur Niðursuðuglös og margt fleira nýkomið. Sólvallag. 9. — Sími 2420. Skiltamálari ÓSKAST STRAX. SKILTAGERÐIN, Aug. Hákansson, Hverfisgötu 41. Sími 4896. Dagheimili fyrir börn 4—6 ára starfrækir Bryndís Zoega í vetur. Byrjar eftir mánaðamót- in. Uppl. í sírna 3626, milli 11 og 12 og 4—5 daglega. Utanbords- mótop 5—6 hestafla, sem nýr til sölu, með sérstöku tækifæris verði. A. v. á. Stúlka sem getur annast hréfaskriftir á ensku og íslenzku, óskast strax til heildverzlunar hér í bænum. Umsókn, merkt: „Bréfritari“ sendist afgr. Vísis. Slálí iiljjiiir Mnrikeiðar FYRIRLIGGJANDI. Vcrzlnu B. H. B|arna§on Tilkynning frái ríkisstjórninni. Samkvæmt ósk brezku hernaðaryfirvaldanna tilkynnist hér- með að ferðaskírteini skipa 10—75 smálestir, sem. um ræðir í tilkynningu ríkisstjórnarinnar, dags. 7. marz og 5. september 1941, verða afgreidd sem hér segir: I Reykjavík hjá brezka aðalkonsúlnum. Á Akureyri hjá brezka vice-konsúlnum. í Vestmannaeyjum hjá brezku hernaðaryfirvöldunum. Á Seyðisfirði hjá brezku flotastjórninni. Atvinnu- og samgöngumálaráðuneytið, 23. september 1941. OOQOQQQOQOQQQQQQQQQQQQQQQQQQQQQQQQQQQQQQQQQQQQQQQQOOQC $ % í? « Magnús Benjaminsson & Co. fserir ahiðarþakkir vinum og viðskiptamönnum fyrir htýjar kveðjur og heillaóskir tit félagsins á 60 ára starfsafmæli Magn- úsar Benjamínssonar, úrsmíðameistara, og sérstakar þakkir færum vér ötlum þeim, sem vottuðu honum og konu hans virðingu á þessum minningardegi. OOOQQQQQQQQQQQQQQQQQQCQQQCQQOQQQQQQQQQQQQQQQQQQQQQQQQC Fer mingarkj ólaef ni. ULLARTAU í mörgum fallegum litum. SILKI í eftirmiðdags- og kvöldkjóla. CHEVIOT í drengjaföt. NÆRFATASATIN og margt fleira. ¥erzlnnin Suót Ve§tnrgötn VS Bókhaldara stúlku eða karlmann, vantar í nágrenni bæjariins. Hátt kaup. Þægilegur vinnutími. Getur haft frí tvo daga vikunnár. Til- boð, merkt: „Bókhald“ sendist afgr. Vísis. FOREiMIIV'Cí EW MMEBROCi •• I Anledning af H. M. Kongens Födselsdag d. 26. ds. afholder Foreningen Fest i TÍieatersalen i Iðnó Kl. 20,30 pr. Alle Danskere velkommen. BESTYRELSEN. Gód matreidslukona \ *1 * óskast 1. október. HÁTT KAUP. Skíðaskálinn, Hveradölum. Grammofónplötur. Mikið úrval af orkestur plötum. Nýtízku dansplötur. Klassiskar plötur. Komið á meðan nógu er úr að velja. HLJíéBFÆBiHIÓSIÐ. Krakkar Duglegír og átbyggilegír óskast til aö bera blaðið til kaupenda Dagblaðið VISIK fe Tilboð óskast í Hvalveiðastöð vora á Suðureyri við Tálknaf jörð. Meðal mannvirkja eru ibúðar- og skrifstofuhús, með vistamærum fyrir um 50 verka- menn. Vörugeymsluhús, bræðsluhús með bræðsluker- um, ketilhús með gufukatli, smiðja, vatnsgeymir og vatnsleiðsla, hafskipabryggja, þrýstibræðslukatlar, hvaladráttarbraut, hvalskurðaplan og kjötþurrkplan, auk ýmislegs annars útbúnaðar til hvalveiða. Frekari upplýsingar á skrifstofu vorri. H.f. Kópnr Tryggvagötu 28. Sími 2201 og 3111.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.