Vísir - 24.10.1941, Síða 1
Ritstjóri:
Kristján Guðlaugsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð).
Ritstjóri
Blaðamenn
Auglýsingar
Gjaldkeri
Afgreiðsla
Sími:
1660
5 línur
31. ár.
Reykjavík, föstudaginn 24. október 1941.
242. tbl.
Timochenko falin yfurstjórnin á
suðurvígstöðvunum.
Zukov tók vsð að Timochenko á miðvígstöðv-
unum, — Lozovsky rseðir horfurnar. — Stalin
og landvarnaráðið enn í Moskvu.
Fékk nýtt hlutverk
BUDJENNY.
Tekur við —
TIMOCHENKO.
I STUTTU MALI
Ný láns og leigulagafjárveit-
ing að upphæð 1500 milj. stpd.
hefir verið samþykkt á þjóð-
þinginu i Washington.
Herskipavika er sem stendur
i Glasgow og Birmingham.
Glasgowbúar hafa lagt fram
8V2 millj. stpd. til smiði nýs
herskips og Birminghambúar
7.300.000 stpd.
Yfirhershöfðíngi Þjóðverja í
Paris hefir fyrirskipað að skjóta
skuli 50 gisla, vegna morðsins á
þýzka majórnum i Bordeaux.
50 til verða skotnir á sunnudag-
inn, ef ekki verður þá búið að
láta i té upplýsingar um árásar-
mennina.
De Gaulle hefir hvatt Frakka
til þess að hætta að drepa þýzka
yfirforingja. Þjóðverjar hafi
öll tök á að hefna slikra verka
svo grimmilega, að þjóðin ætti
ekki að taka upp slika bardaga-
aðferð, en búa sig heldur í kyr-
þei undir að taka þátt í lokaátök-
unum, en ástunda þolinmæði
þangað til og reyna að fox-ðast
að gefa átyllu til nýri'a ofsókna.
Fyrirskipun verður síðar gefin
um að hefjast handa, sagði De
Gaulle.
Þ
EINKASKEYTI frá United Press. New York í morgun.
að var tilkynnt í Moskvu í gær, að Timochenko
marskálkur hefði verið leystur frá störfum
sínum sem yfirhershöfðingi á miðvígstöðv-
unum, og jafnframt var tekið fram, að honum yrði fal-
ið annað herstjórnarstarf. í morgun snemma skýrði
Lozovsky fréttfulltrúi frá því austur í Kuibishev, þar
sem stjórnin hefir tekið sér aðsetur, að Timochenko
hefði verið falið að gegna yfirhershöfðingjastörfum á «
suðurvígstöðvunum. Timochenko hefir því verið falið
hið mikilvæga starf, að verja Donhéruðin og Kaukasus,
en Donhéruðum telja Rússar í meiri hættu en Moskvu.
Lozovsky skýrði frá því, að Stalin væri enn í Moskvu
og landvarnaráðið allt.
Ákvörðunin um, að flytja stjórnina frá Moskvu var
tekin þegar Þjóðverjar höf ðu brotizt í gegn á Moshaisk-
vígstöðvunum, en þar hafa þeir síðan rétt hluta sinn.
Zukov hershöfðingi hefir tekið við af Timochenko á
miðvígstöðvunum, er vara-hermálaráðherra og var yf-
irmaður herforingjaráðsins. Hann er sagður afburða
harðskeyttur og snjall hershöfðingi.
Lozovsky skýrði blaðamönnum frá því, að Rússar hefði
hrundið nýjum áhaupum á miðvígstöðvunum. United Press
skýrir frá því að Þjóðverjar hafi gert áhlaup enn á ný við Mos-
haisk og Malo Jaroslavetz, enn öllum áhlaupum hafi verið
hrundið.
Á miðvikudag voru skotnar niður 37 flugvélar fyrir Þjóð-
verjum, þar af 24 á leið til Moskvu, og fjórar í gær. Rússar
misstu ellefu flugvélar í fyrradag.
Á næturna er frost, en á daginn snjókoma eða rigning, og á
veðráttan vafalaust sinn þátt í, að Þjóðverjum hefir ekkert orð-
ið ágengt á miðvígstöðvunum.
Bardagarnir um Donhéruðin eru harðnandi og er augljóst af
því, að Timochenko hefir verið falin herstjórnin á suðuiwíg-
sötðvunum, að Bússar leggja meginálierzlu á það nú,
að Þjóðverum vetði ekki frekar ágengt í Suður-Ukrainu. Eng-
ar nýjar fregnir liafa boi’izt af sókninni til Klxarkow. Lozovsky
sagði í gærkveldi, að enn væri barizt í nánd við Taganrog. Á
einum stað tókst Þjóðvei'jum að ná rússneslcum stöðvum og
húast þar fyrir, en Rússar höi'fuðu til nýrra stöðva. Lozovsky
sagði, að fvrir norðvestan Moskvu væri enn harizt um Kalinin
og væri bai-izt þar í návígi á götunum. Helmingur hoi'garinnar
er á valdi Rússa. Ennfremur sagði hann, að Þjóðverjar liefðu
vei’ið stöðvaðir við Moshaisk og Malo Jaroslavetz.
Vér vitum, sagði Lozovsky, að þetta er ekki seinasta stórsókn
Hitlei-s — en hún er ein af seinustu sóknunum, sem liann á eftir
að hrinda af stað.
Horfurnar í gærkveldi.
1 fregnum frá Moskva í gær-
kveldi var komizt svo að orði,
að bardagarnir á miðvígstöðv-
unum væri nú liarðastir við Kal-
inin norðvestur af Moskva. Bar-
dagar hafa nú staðið þar í 8
daga samfleytt og er enn barizt
á götunum í borginni sjálfri.
Rússar segja, að Þjóðverjar hafi
fengið liðsauka á þessum víg-
stöðvum, og í bardögunum
þarna að undanförnu liafi 3000
Þjóðverjar fallið og særzt. Kal-
inin liggur við járnbrautina
milli Moskva og Leningrad og
leggja báðir aðilar sýnilega hið
’mesta kapp á að ná borginni.
Þjóðvei'jai’ tilkynntu í gær síð-
degis, að þeir liefði hrotizt gegn-
um yzta virkjahringinn við
Moskva, fyrir vestan og suð-
veslan borgina, og væri fremstu
hersveitir þeirra um 60 kiló-
metra frá borginni sjálfri. Þessu
neita Rússar og segja, að við
Mosliaislc, Malo Yaroslavets og
Orelvígstöðvunum fyrir sunnan
borgiha liafi Þjóðverjum ekki
orðið ágengt, og þess vegna geri
þeir nú nýja tilraun til sóknar
við Kalinin.
Frá vígstöðvunum var þetta
lielzt að frétta í gærkveldi:
Þjóðverjar hafa byrjað nýja
sókn á Perekopvígstöðvunum til
þess að reyna að ná Krimskag-
anum á sitt vald. Miklir bardag-
ar voru háðir fyrir norðan eið-
ið, sem tengir skagann við meg-
inlandið, og varð Þjóðverjum
og Rúmenum. í fyrstu nokkuð
ágengt, en svo voru Þjóðverjar
hraktir til sinna fyrri stöðva.
Áframliald var á bardögum
þarna og snarpar loftorustur
háðar.
Sókn Þjóðverja til Donhér-
aðanna er liægari, en horfur
taldar allískyggilegar. Rússar
hafa ekki enn játað, að Stalino,
um 112 kílómetra norður af
Mariupol við Azovshaf, sé á
valdi Þjóðverja en játa að barizt
sé í borginni sjálfri. Manntjón
Þjóðverja í bardögum á þessum
vigstöðvum að undanförnu, er
um 10.000 menn fallnir og særð-
ir. Uni áframhald á sólcn Þjóð-
verja til Rostov, er eklci getið.
Brezkar flugvélar hafa gerl
árásir á benzínstöð og flugbáta-
stöð við Árósa i Danmörku.
Flugmiðum var varpað yfir
danskar borgir á leiðinni til
Árósa. Árásin kom Þjóðverjum
nijög á óvart.
Eitt hundrað gíslar skotn-
ir í Frakklandi í morgun
Samkvæmt seinustu fregnum
voru 1Ö0 franskir borgarar
af ýmsum stéttum skotnir í
morgun. 50 þeirra voru skotnir
fyrir morðið á Holz hershöfð-
ingja i Nantes og hafa þá 100
saklausir menn verið drepnir
vegna þessa morðs. Hinir 50
voru drepnir vegna morðsins á
þýzka majórnum í Bordeaux.
Þegar Odessa var yfirgefin.
Blaðið Rauða stjarnan hefir
nú birt ítarlega frásögn um
brottflutninginn frá Odessa.
Þegar Rússar höfðu tekið á-
kvörðun sína um að yfirgefa
borgina, varð það að ráði, að
flytja ekki aðeins herinn og all-
ar hergagnabirgðir á brott,
heldur og íbúana. Brottflutn-
ingurinn stóð alls í 8 daga og
gekk að óskum og gerðu óvin-
irnir enga tilraun til þess að
liindra hann. Þegar brottflutn-
ingurinn var vel á veg kominn
fóru Rúmenar að bæra á sér
á ný, en hófu ekki árás á börg-
ina fyrr en bi'ottflutningnum
var lokið að kalla, og höfðu
Rússar þá aðeins lítinn liðsafla
í úthverfunum, til þess að tefja
fyrir Rúmenum og Þjóðverjum,
sprengja verksmiðjur í loft upp
o. s. frv. Er því verki var lokið
tóku Rúmenar og Þjóðverjar
borgina og sögðust hafa unnið
mikinn sigur.
Þjóðverjar lierða
enn isóknina
til 9Io§kvu.
Manntjón Þjóðverja 300.000
á þremur vikum.
Seinustu fregnir frá Moskvu
herma, að Þjóðverjar hafi, eftir
stutt hlé, byrjað sókn á ný fyr-
ir vestan Moskvu og er mest
barist við Mozhaisk. Er þar eitt
af frægustu herfylkjum Rússa
til varnar. Sókn sinni í Suður- í
Ukrainu halda Þjóðverjar ’
áfram, og er nú kunnugt, að það
er milli Taganrog og Rostow,
sem Rússar hafa hörfað undan
og tekið sér nýjar varnarstöðv-
ar. ----
Budjenny hershöfðingi hefir
ekki fallið í ónáð, heldur hefir
hann fengið annað hlutverk. Er
tilkynnt, að hann og Voroshilov
séu að ganga frá stofnun nýs,
mikils rússnesks hers. Rúss-
neskt varalið er daglega sent til
vígstöðvanna. Pravda birtir nýtt
ávarp til íbúa Moskvu og segir,
að hver einasti borgarbúi verði
að taka þátt í vörn borgarinn-
ar. —
Isvestia segir, að von Bock
hafi dregið að sér mikið af skrið-
drekum til Kalininvígstöðvanna.
Eftir seinustu fregnum að
dæma eru bardagar byrjaðir á
sjálfu Perekopeiði. Hafa Rússar
gert þar áhlaup á varnarstöðvar
Þjóðverja.
Lozovsky tilkynnti i gær, að
gizkað væri á, að manntjón
Þjóðverja seinustu 3 vikur tæp-
lega, eða 20 daga, hefði numið
300.000, og eru þá meðtaldir
fallnir, særðir og teknir til
fanga.
\a‘i* allstaðar slátrað
fleira fé en í fyrra.
11 punda munur á meðaldilkþunga.
Yísir hafði í morgun tal af formanni kjötverðlagsnefndar,
Páli Zóphoníassyni, og spurði hann um sauðf járslátrun í haust.
Sagði hann að henni væri ekki nærri allsstaðar lokið ennþá, svo
ekki væri hægl að segja til hlítar um dilkþunga né tölu slátraðs
f jár á landinu, en hinsvegar væri þó frá einstöku stöðum komn-
ar fullnaðarskýrslur, eða þar sem endanlegar niðurstöðutölur
breytast ekki að verulegu leyti. Fer hér á eftir skrá yfir þessa
staði, ásamt dilkafjölda og meðalþunga bæði í fyrra og nú:
Miðkot . .
Minniborg
Rakki ....
Sveinseyri
Þingeyri . .
ísafjörður
Arngerðareyi
Vatnsfjörður .
Hvammstangi
Skagaströnd .
Hofsós ....
Húsavík....
Þórshöfn
Bakkafjörður
Yopnafjörður
Seyðisfjörður
Eskifjörður .
Höfn, Hornafirði
Hólmur .......
Italir tilkynna, að brezkár
sprengjuflugvélar liafi gert nýja
árás á Neapel — hina þriðju
í þessari viku. í fyrri árásum var
varpað sprengjum, sem, vógu
allt að 2000 ensk pund.
ri
2470 11.74 2559—11.01--
745 13.49 1205—13.22-í-
1491 13.01 1533—13.24--
857 13.28 982—13.34+
3512 13.43 4111—13.72+
14.52 7246—14.74+
15.63 1487—16.20+
14.15 1755—14.93+
8150 16.42 8418—16.14--
4221 14.26 3775—14.27+
2778 13.23 2850—13.29+
18534 14.36 17751—14.81+
8685 14.03 7990—14.68+
289 13.64 301—13.55--
8713 14.76 8825—14.06--
2921 13.21 3365—13.77+
2817 12.96 2814—12.78-—
7875 11.48 8186—10.78--
4549 13.49 4581—12.90--
Eftirtektarvert við skýrsluna
er það, að nær allsstaðar er
slátrað fleira fé i ár en í fyrra,
þó til séu undantekningar á því.
Hinsvegar veltur á ýmsu um
dilkþunga, sumstaðar er meiri
meðalþungi í ár en í fyrra, ann-
arsstaðar minni.
Athyglisvert er einnig hvað
þyngd dilkanna er misjafn á
hinum ýmsu stöðum. Það mun-
ar t. d. nærri 5Ví> kg. á meðal-
þyngd dilka á Arngerðareyri og
Höfn í Hornafirði.
Beaverbrook lávarður um
horfurnar í Rússlandi.
Tlðræðnrnar við Slalin og að§toðin
Rii§§nm til lianda.
EINKASKEYTI frá United Press. New York í morgun.
Beaverbrook lávarður flutti ræðu í efri málstofunni í gær
og gerði ítarlega grein fyrir viðræðunum í Moskvu og aðstoð
þeirri, sem Bretar og Bandaríkjamenn láta Rússum í té. Eden
flutti ræðu um sama efni í neðri málstofunni. Beaverbrook
skýrði frá ýmspm athyglisverðum ummælum Stalins, svo sem
að hann óskaði ekki eftir neinu, nema því, sem Rússar hefði
brýna þörf fyrir, að styrjöldin sem nú væri háð væri fyrst og
fremst skriðdrekastyrjöld, að Rússar væri undir það búnir að
flytja iðnað sinn austur á bóginn eftir þörfum o. s. frv. Enn-
fremur sagði Stalin, að sú þjóð, sem gæti framleitt mest af
hreyflum myndi sigra í styrjöldinni — og kom þá bros fram á
varir Averills Harrimans, formanns amerísku nefndarinnar. 1
lok ræðu sinnar varaði Beaverbrook lávarður við innrásar-
hættunni.
Lávarðadeildin féllst einróma
á stefnu stjórnarinnar um að-
stoð Rússum til lianda. í báðum
deildum urðu miklar umræður
um þessi mál. Ýmsir ræðumenn
héldu því fram, að stjórnin ætti
að liætta á mikið Rússum til
hjálpar.
Beaverbrook lávarður sagði í
ræðu sinni, að það væri svipað
ástatt fyrir Rússum nú og Bret-
um vorið 1940, er þeir urðu að
gera róttækar breytingar á iðn-
aði sínum og innflutningsmál-
um, með hergagnaframleiðslu i
stórum stíl að markmiði, og
minntist hann þakksamlega
liinna miklu fórna brezks verka-
lýðs þá. Kvaðst hann þeirrar
trúar, að Rússar gætu tekið
þessu máli jafntraustum tök-
um, og náð settu marki, með að-
stoð vina sinna og samherja.
Bretar og Bandaríkjamenn ætla
að láta Rússa fá alla þá skrið-
dreka og flugvélar, sem Rússar
hafa misst og geta ekki bætt sér
Frh. á 3. síðu.