Vísir - 12.11.1941, Page 2
V 1 S I R
VÍSIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Ititstjóri: Kristján Guðlaugsson
Skrifst.: Félagsprentsmiðjunni
AfgTeiðsla: Hverfisgötu 12
(Gengið inn frá Ingólfsstræti)
Símar 1 6 6 0 (5 línur).
Verð kr, 3,00 á mánuði.
Lausasala 15 og 25 aurar.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Heilbrigðismálin.
undanförnu hafa nokkrar
umræður orðið í blöðunum
um heilbrigðismál bæjarins, og
reið frú Sigríður Eiríksdóttir,
formaður Líknar, þar á vaðið.
Gerði liúii að umræðuefni með-
ferð mjólkur og dreifingu og
komst að þeirri niðurstöðu að
mjög skorti á, að þess þrifnaðar
væri gætt, sem nauðsyn krefði,
ef sómasamlega ætti að vera að
almenningi búið. Einkum hefir
ástand þessara mála orðið við-
sjárvert eftir að liætt var að
selja mjólkina á luktum flösk-
um, en hún mæld í búðum á
flöskumar, en því fylgir hinn
mesti sóðaskapur, sem ekki
mun þó gott við að gera, nema
með gerbreyttri afgreiðslu, sem
þyifti þá að færast í fyrra horf-
ið, þannig að mjólkin kæmi á
flöskum beint frá lireinsunar-
stöðinni.
Allir munu á einu máli um
það, að svo slæleg liafi fram-
kvæmd heilbrigðisráðstafana
verið hér í bænum á undanförn-
um árum, að ekki mætti enn
sækja í horfið til bins verra,
enda engin ástæða til að sú yrði
raun á. Flest hefir miðað i átt-
ina fram á við til }>essa, og er sú
von manna, að svo megi v«rða
enn um skeið, þar til fullnægj-
andi árangri er náð á öllum svið-
um. Hitt er mönnum og Ijóst,
að langt stöndum við að baki
öðrum nágrannaþjóðum okkar,
um meðferð algengustu neyzlu-
vara og dreifingu á þeim. Hér
verðum við jx’j að semja okkur
að siðum þeirra þjóða, sem
lengst eru komnar áleiðis i þessu
efni, og þá ekki sízt Dana, sem
allra þjóða bezt gæta hreinlætis
um meðferð matvæla. Gildir
/
jafnt ura búðir þær, er sala fer
fram í, sem meðferð vörunnar
að öðru leyti.
Flest liefir verið skipulagt á
síðustu árum, og skyldu menn
ætla, að skipulagning þessi mið-
aði meðal annars að því, að auð-
veldara reyndist að fullnægja
þeim kröfuin, sem neytendurn-
ir hljóta að gera um meðferð
og dreifingu varanna, en ekki
aðeins að hinu, að hækka verð-
lag vörunnar. Er Mjólkui-sam-
salan tók til starfa, breyttist
þó afgreiðsla mjólkurinnar
strax neytendunum til óhagræð-
is, og er hitt bætist við, að ó-
þrifnaður í meðferð mjólkur-
innar eykst að sama skapi getur
slíkt ástand með engu móti við-
unandi talizt, og verður úr að
bæta. .Mjólkursamsalan hefir
borið því við, að ekki sé unnt að
selja mjólkina á flöskum, er
sendar væru beint frá hreinsun-
arstöð, af þeim sökum, að
flöskulok væru ófáanleg. Verð-
ur það að teljast litil fyrirhyggja
og þætti ekki henta einstakling-
um, ef svipað væri ástatt um
aðrar nauðsynjar til sómasam-
legrar framleiðslu og dreifing-
ar innlendra matvæla. Einnig
má telja Iíklegt, að auðvelt væri
að afla þessara hluta frá Vest-
urheimi, ef til þess væru ráð-
stafanir gerðar, en ekki fullyrt
fju'irfram, að ógerningur sé að
afla þeirra.
Þess er að vænta, að þeir aðil-
ar, sem um heilbrigðismálin
fjalla, gæti frekar skyldu sinn-
r-* — ;__^
ar í þessum efnum hér eftir en
hingað til, þannig að borgararn-
ir verði þess varir, að hagsmuna
þeirra og velferðar sé gætt af
þeim aðilum, sem það eiga að
gera. Það er mikill misskilning-
ur, ef menn ætla, að unnt sé að
bjóða neytendum hvern ósóma
óátalið, en hitt mun sönnu nær,
að nú er það almenningur, sem
krefst þess réttar, sem honurn
Ijer, og nauðsynlegs starfs og ár-
vekni frá liendi þeirra manna,
sem.falin hefir verið umsjá þess-
ara mála.
Frá hæstarétti:
Samningur skipstjóra
var hindandi.
x DAG var kveðinn upp dómur
* í málinu: Eigendur m.b. Jón
Þorláksson gegn Síldarverk-
smiðjum ríkisins.
Málavextir eru þessir:
' Sumarið 1939 gerði Ingvar
Vilhjálmsson út á síld bátana
m.b. Gaut og m.b. Jón Þorláks-
son. Var svo um samið við Síld-
arverksmiðjur ríkisins, að þær
keyptu allan síldarafla Gauts.
Skipshöfnin á m.b. Jóni Þor-
Iákssyni var ráðin með þeim
kjörum, að hún fengi ca. 50%
af afla skipsins. Ákvað hún að
selja afla sinn föstu verði, en
útgerð skipsins kveðst hafa vilj-
að láta sinn hluta síldarinnar til
vinnslu. Skipstjórinn átti tal við
framkv.stj. Síldarverksmiðj-
anna dagana 9.—16. júní 1939
og fór fram á að verksmiðjurn-
an keyptu ’helming aflans, en
tækju hinn til vinnslu, en eftir
að hafa átt tal við stjórn verk-
smiðjanna lýsti framkvæmdar-
. stjórinn yfir því, að annaðhvort
keyptu verksmiðjurnar allan
aflann eða tækju liann allan til
vinnslu og 1. júlí undirritaði
skipstjórinn samning um sölu
allrar síldar m.b. .Tóns Þorláks-
sonar það sumar fyrir fast verð
pr. mál.
Eigendur m.b. Jóns Þorláks-
sonar virðast ekki hafa gert
neinar athugasemdir út af ]>ess-
um sanmingi fyrr en í apríl
1940. En þá krefjast þeir þess,
að sildarverksmiðjurnar greiði
þeim kr. 10.132.76, og er sú
krafa byggð á því, að verksmiðj-
unum liafi verið ólieimilt að
setja það skilyrði, að aflinn yrði
allur annaðhvort tekinn til
vinnslu eða keyptur, og nefndur
samningur skipstjórans hafi
orðið til vegna þess, að hann
hafi neyðzt til þess að gera hann
til þess að forða síld frá
skemmdum. En eigendur m.b.
Jóns Þorlákssonar telja, að ef
hlutur þeirra hefði verið tekinn
til vinnslu, liefðu þeir borið úr
býtum hina umstefndu uppliæð
fram yfir það, sem þeir fengu
með þvi að selja liana föstu
verði.
Sí Idarverksmið j urnar mót-
mæltu greiðsluskyldu sinni.
Úrslit málsins urðu þau, að
Síldarverksmiðjurnar voru
sýknaður af kröfum áfrýjanda,
og segir svo í forsendum hæsta-
réttardómsins:
„Þegar áfrýjandi fékk vit-
neskju um samning stefnda og
skipstjórans á m.b. .Tóni Þor-
lákssyni frá 1. júlí 1939, hefði
hann átt að tilkynna stefnda, að
hann áskildi sér verð það, sem
greitt yrði á sínum tima fyrir
vinnslusíld, ef liann ætlaði að
gera þá kröfu síðar. En með þvi
'að áfrýjandi gerði ]>etta ekki,
þá getur hann þegar af þeirri
ástæðu eigi fengið kröfur sínar
í máli þessu teknar til greina,
og ber því að staðfesta héraðs-
dóminn að niðurstöðu til.
Eftir atvikum þykir rétt, að
málskostnaður fyrir liæstarétti
falli niður.“
Hrm. Lárus Jóhannesson
flutti málið af hálfu áfrýjanda,
en hrm. Pétur Magnússon af
hálfu stefnda.
Bílstjórar fá ekki meira
próf, nema þeir læri hjálp
íTÍfllögum.
90 bílstjópar á nám-
skeidi Slysavapnafél.
Á síðastliðnu ári tóku 335 manns héðan úr Reykjavík þátt í
námskeiðum Slysavarnafélags íslands, en 488 manns utan af
iandi. Auk námskeiðanna hafði Slysavarnafélagið víðtæka starf-
semi á landi, svo sem eldsvarnir, umferðarfræðslu, kom upp
slysakössum á vinnustöðvum, slysavarnir á hverasvæðum.
kom upp björgunartækjum við Reykjavíkurtjörn, gaf út
aðra útgáfu af „Hjálp í viðlögum“ og ‘loks hlutast til um það
við Heilbrigðisstjórnina, að sala og framleiðsla leikfanga úr blýi
yrði bönnuð.
Er hér um veigámikla starfsemi að ræða og eins hefir það
verið í ár. Hefir tíðindamaður Vísis nýlega hitt Jón Oddgeir
Jónsson fulltrúa að máli og hefir Jón góðfúslega skýrt blaðinu
frá ýmsum framkvæmdum og áætlunum félagsins.
Svo var mál nxeð vexti, að
líðindamaður Vísis hitti Jón að
máli þar sem hann var að inn-
rétta rúmgóðan sal í kjallara
hússins nr. 4 við Ingólfsstræti.
En þar verður fyrsti samastað-
ur Slysavarnafélagsins til nám-
skeiðshalda. Hefir það til þessa
verið í hraki með húsnæði, en
þarna verða framvégis haldin
námskeið félagsins fyrir verk-
smiðjufólk og ýms félög bæjar-
ins. Er milcið hagræði að þessu
fyrir Slysavarnafélagið.
Þess var getið í Vísi í gær, að
námskeið yrði lialdið fyrir sjó-
menn i sundi og lífgun, og hefst
það á morgun. Þurfa sjómenn
þeir, er ætla að taka þátt í nám-
skeiðinu, að tilkynna það Slysa-
varnafélaginu i dag.
Sem stendur er einnig verið
að kenna 90 bílstjórum lijálp í
viðlögum. En ]>að er nú orðin
skylda þeirra bílstjóra, sem ætla
að taka meira próf, að kunna
hjálp i viðlögum, og þekkja
ýmsar hættur, sem stafað geta
af bilum, eins og t. d. hina al-
kunnu kolsýringseitrun, sem
getur drepið mann á skömmum
tíma, ef t. d. bill er látinn vera
i gangi inni í Iokuðu liúsi.
Fulltrúi Slysavamafélagsins
hefir farið þess á leit við sér-
leyfisnefnd þá, sem fjallar um
sérleyfi bifreiða, að áætlunar-
bifreiðar liefðu lítinn sjúkra-
kassa í öllum ferðum, þannig að
unnt sé að veita fyrstu hjálp, ef
slys ber að höndum.
Þessai’i málaleitun var ágæt-
lega tekið, og það má telja mjög
liklegt, að ákvæði um ]>etta
verði sett í reglugerðina um sér-
leyfi bifreiða, nú í vetur.
í fyrravetur lærðu allir lög-
regluþjónar Reykjavíkurbæjar
hjálp í viðlögum, og hefir það
æði oft komið að góðum notum,
því það er ekki svo sjaldan, sem
lögregluþjónar hafa orðið að
veita hina fyrstu lijálp, þegar
allskonar slys hefir að höndum
borið, og kemur þá kunnátta
þeirra sér vel. Nú er í ráði að
endurtaka þessi námskeið fyrir
lögregluþjóna upp úr áramót-
unum.
Alþýðuskólarnir hafa sýnt
mikinn áhuga fyrir því, að taka
upp kennslu í hjálp í viðlögum,
og liafa námskeið þegar verið
haldin á héraðsskólunum að
Eiðum og Laugavatni. En fyr-
irhugað er nú að senda fulltrúa
Slysavarnafélagsins í vetur til
héraðsskólanna að Laugum, í
Reykholti og ef til vill víðar.
Koma þessi námskeið á al-
þýðuskólunum að mjög miklum
notum, því að í dreifbýli sveit-
anna, þar sem langt er til lækn-
is, er einna brýnust þörfin fyrir
kennslu í hjálp í viðlögum, en
frá skólunum berst þessi kunn-
átta með nemendunum víðsveg-
ar út um sveitir landsins.
Um næstu lielgi fer Jón Odd-
geir Jónsson norður i land til
að lialda námskeið á Húsavík,
Raufarliöfn og jafnvel viðar.
I. O. O. F. (spilakvöld).
Hin almenna
fjársöfnunarnefud Hallgrims-
kirkju í Reykjavík, biÖur þess get-
ið, að gjöfum til kirkjunnar sé veitt
móttaka daglega frá kl. i—6 e. h.
á skrifstofu Hjartar Hanssonar i
Bankastræti ir.
Hallgrímskirkja í Reykjavík.
Þeir af trúnaðarmönnum við
hina almennu fjársöfnun til kirkj-
unnar, sem enn ekki hafa sótt fjár-
söfnunargögn, eru vinsamlegast á-
minntir um að vitja þeirra nú þeg-
ar á skrifstofu Hjartar Hanssonar
í Bankastræti n.
Dr. Símon Agústsson
flytur fyrirlestur fyrir almenn-
ing á morgun kl. 6.15, i I. kennslu-
stofu háskólans. Efni: Uppeldi og
áróður. Öllum heimill aðgangur.
Leikfélag Reykjav)íkur
sýnir leikritið ,,Á flótta“ annað
kvöld, og hefst sala aðgöngumiða
kl. 4 i dag.
Bandaríkjaherinn tilkynnir:
Skotæfingar fara fram 13., 14.
og 15. þ. m., á Sandskeiði, og á
svæðinu fyrir austan og norðan
það, að Geitháls—Þingvalla vegin-
um. Umferð á veginum mun ekki
stafa nein hætta af skotæfingum
þessum.
Pond§
iDptíYÖrnrDar
eru komnar.
Háskólafyrirlestrar.
Próf. dr. Ágúst H. Bjarnason
mun i vetur flytja flokk fyrirlestra.
um siðfcröilcg vandamál. Efni fyr-
irlestranna verður sem hér segir:
1. Almennur inngangur. 2. Skylda
og dyggð. 3. Mannrækt. Líkams-
rækt. 4. Uppeldi barna og unglinga.
, 5. óhóf — hófstilling. 6. Hræðsla
— hugprýði. 7. Samvizka og siða-
vit. 8. Skyldurnar við landið. 9.
Skyldurnar við þjóðina. 10. Þegn-
legar dyggðir. 11. Samlíf og sam-
lífsdyggðir. 12. Þjóðfélagsstefn-
ur. 13. Trúar- og lífshugsjónir. 14.
Viðhorf nútímamanns. — Fyrir-
lestrarnir verða á miðvikudögum kl.
6 e. h. í I. kennslustofu Háskól-
ans, og er öllum heimill aðgangur.
Fyrsti fyrirlesturinn verður í kvöld
kl. 6.
Kína
heitir ný bók eftir frú Oddnýju
Sen, en hún hefir dvalizt í Kína
um 15 ára skeið og kann því frá
mörgu að segja, enda fróð um
menningu, sögu, lifnaðarhætti, siðu
og bókmenntir Kínverja. Ber þetta
allt á góma í bókinni. Er hún’ í
stóru broti og prýdd mörgum mynd-
um. Aftast í bókinni eru gamlar
dæmisögur kínverskar, er Kristján
Friðriksson hefir þýtt. ísafoldar-
prentsmiðja h.f. gaf bókina út.
Tvær barnabækur
hefir Isafoldarprentsmiðjan ný-
lega gefið út. Er annað löng ung-
lingasaga eftir Stefán Jónsson
kennara, er hann nefnir Vini vors-
ins, hitt er ljóð og þulur, lítið kver
Ien prýtt myndum eftir Guðrúnu
Jóhannsdóttur frá Brautarholti.
Sigurgeir Sigurðsson biskup ritar
formála að bókinni.
Ljóð
heitir litil en falleg ljóðabók eft-
ir Guðfinnu frá Hömrum. Hafa
fáein kvæði áður birzt eftir hana
á prenti og hafa þau vakið óvenju
mikla athygli allra ljóðaunnenda.
Nú hefir Isafoldarprentsmiðja gef-
ið út ljóð hennar í lítilli en mjög
vandaðri útgáfu.
Næturlæknir.
Jóhannes Björnsson, Sólvallagötu
2, sími 5989. Næturvörður i
Reykjavíkur apóteki og Lyfjabúð-
inni Iðunni.
Brezka setuliðið tilkynnir:
Skotæfingar fara fram öðr.u
hvoru í suðvestur átt frá Sauðholts-
mýri í áttina að Vífilsstaðavatni.
Á meðan á skotæfingunum stend-
ur, mun verða flággað með rauðu
flaggi á hæð, sem kölluð er Sel-
hryggur. Menn eru varaðir við að
ferðast á þessu svæði, meðan rauða
flaggið er uppi.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 18.30 íslenzkukennsla, 1. fl.
19.00 Þýzkukennsla, 2. fl. 19.25
Þingfréttir. 20.00 Fréttir. 20.30
Kvöldvaka: a) Þættir úr Heims-
kringlu, I (H. Hjv.). b) 21.00
Friðfinnur Guðjónsson leikari: Úr
skjalasafni Plausors. Upplestur. c)
21.25 Jón Jónatansson: Kvæði. d)
21.35 Fritz Weisshappel: Harmó-
níkuleikui1. 21.50 Fréttir.
íslendingur heiöraður.
í gær var Jón Sigurðsson,
járnsmiður, Laugavegi 40 B,
sæmdur heiðursmerki The
Royal Humane Society, fyrir að
gera tilraun til að bjarga brezk-
um hermanni frá drukknun.
Atburður þessi skeði um mán-
aðamótin febrúar—marz, þegar
fárviðrið geisaði um Suðvestur-
land. Hermanninn íók út af ein-
um liafnargarðanna hér, en Jón
var nærstaddur og varpaði sér
þegar til sunds.
Hermaður, sem einnig reyndi
að bjarga þessum sama m,anni,
var sæmdur sama heiðursmerki
og Jón.
Þá fékk liermaðurinn, sem
bjargaði barninu á Akureyrar-
polli í fyrra, viðurkenningar-
skjal frá félaginu.
Frú Elínborg Lárus-
dóttir skáldkona
fimmtug.
Frú Elihborg Lárusdóttir
skáldkona er fimmtug í dag.
Hún er fædd á Tunguhálsi í
Skagafirði 12. nóv. 1891, og ólst
upp í Skagafirðinum. En fimmt-
án ára að aldri geklc hún á
Kvennaskólann á Blönduósi og
síðan á Kennaraskólann hér i
Reykjavik. Þar veiktist hún og
gat þvi ekki lokið námi. Var
hún næstum þrjú ár sjúklingur
á Vífilsstaðahæli, og munu þau
ár hafa verið mikill reynsluskóli
fyrir liina ungu og verðandi
skáldkonu.
Árið 1918 giftist Elinborg.
Ingimar Jónssj-ni skólastjóra.
Árið 1921 vigðist hann að Mos-
felli í Grímsnesi og næstu 6 ár-
in bjuggu þau hjónin þar, en þá
var Ingimar veitt skólastjóra-
staðan við Gagnfræðaskólann í
Reykjavík. Hafa þau búið hér i
Reykjavík síðan. 1
Þetta er ævisaga frú Elinborg-
ar Lárusdóttur í stuttu máli. f
dag stendur hún á fimmtugu og
getur litið yfir viðburðaríkan
lifsferil og veigamikil ritstörf.
Frú Elinborg liefir skrifað sjö
bækur og kemur sú siðasta
þeirra út í dag. Heitir liún „Frá
liðnum árum.“ Áður hafa kom-
ið út „Sögur“ 1935, „Anna frá
Heiðarkoti“ 1936, „Gróður“
(smásögur) 1937, „Dimmu-
borgir“ og „Efri Ásættin“ 1939
og „Sólon Sókrates“ 1940. Þess-
ar þrjár bækur voru raunveru-
lega eitt ritverk, er skáldkonan
nefnir „Förumenn“.
Óskar Vísir frú Elinborgu
langra lífdaga og gifturikra
starfa og ennfremur að hún
megi gleðja hina mörgu lesend-
ur sína með mörgum nýjum og
góðum bókum.
»Gullna hliðiðu
Páll ísólfsson semur
lögin í leiknum.
Leikfélagið er byrjað að æfa
jólaleikritið „Gullna hliðið“, eft-
ir Davíð Stefánsson, fyrir nokk-
uru.
Félagið fór þess á leit við Pál
Isólfsson, að hann semdi lög fyr-
ií’ Ieikinn og hefir hann tekið
það verk að sér.
Aðalhlutverkin leika Arndis
Björnsdóttir og BrynjólfUr Jó-
hannesson, sem leika Icarl og
kerlingu. Lárus Pálsson hefir
leikstjórn á hendi.
Gúmmískógerðin
Laugavegi 68. Sími 5113.
Innfskór
Nilki- og kóin-
nllarsokkar
Stúlka
óskast til að sauma vesti.
Mætti sauma heima.
GUNNAR A. MAGNÚSSON,
klæðskeri.
Laugavegi 12. — Sími: 5561.
Frammistöðu
stúlka
óskast á
Ðótel
Hafnarfjörðnr
H
v
a
ð
e
r
s
V
o
S
o
t
t
s
e
m
«
o
L
D
I
N
Þ
V
o
t
t
■1
d
II
f
t
i
ð