Vísir - 19.11.1941, Síða 2

Vísir - 19.11.1941, Síða 2
,V í S I R Dráttarbraul Keflavíkur h.f. Hægft að hafa 2¥ háta nppl I einu —- Starísmenn 40—50, launagreiðslur s. 1. ár 164 þús. kr„ Viðtal við íorstjórann, Valdimar Björnsson. TZ'eflavík er eitt af hinum ört vaxandi sjávarþorp- um, os hefir það bjargazt furðanlega yfir örðug- leika sjávarútvegsins, enda þótt þeir hafi óneitanlega haft lamandi áhrif á alla þróun þess. Eitthvert mesta framfaraspor byggðarlagsins var þegar hafskipabi'yggjan var byggð, árið 1932,-fyrir for- göngu Óskars Halldórssonar, og svo bátahöfnin nokkru síðar, enda þótt hvorttveggja liafi reynzt ófullnægj- andi. Keflavík hefir oft verið olnbogabarn ríkisvalds- ins, og gengið erfiðlega að fá nokkra styrki til hafnar- bóta, enda þótt framleiðsla útflutningsverðmæta hafi oft verið þar mikil. í Keflavík hefir á undanförnum árum risið upp all myndar- legt fyrirtæki, þar sem er Dráttarbraut Keflavikur h.f. Vél- smiðjan og' aðrar byggingar þess standa í svo kallaðri „Gróf“, vestan við þorpið. — Hefir Vísir beðið fréftaritara sinn, að skýra leséndum blaðsins frá þessu fyrirtæki, sem er eitt hið þarfasta í Keflavík, og fer grein lians hér á eftir: VÍSIR DAGBLAÐ Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F. Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson Skrifst.: Félagsprentsniiðjunni Afgreiðsla: Hverfisgötu 12 (Gengið inn frá Ingólfsstræti) Símar 1 66 0 (5 línur). Verð kr. 3,00 á mánuði. Lausasala 15 og 25 aurar. Félagsprentsmiðjan h.f. Framsóknarflokkurinn er 25 ára gamall. AHan þennan aldarfjórðung hefir hann setið að völdum, ýmist einn eða i samstarfi við aði*a flokka, að undanteknu tímabilinu frá 1921 —27, er sjálfstæðismenn fóru einir með völd. Það er ekki að kynja, þótt þessi nálega ævi- langi valdaferill hafi sett nokk- urn drottnunarsvip á floklcinn. Enda er það svo. Honum finnst hann eigi að vera liúsbóndinn á heimilinu. Þetta gerir allt sam- starf við hann erfitt, öðrum en þeim, sem sætta sig við að vera í hjúa-aðstöðu. Að þessu sinni hefir Fram- sóknarflokkurinn rekið sig á. Hann ætlaði að beila Sjálfstæð- isflokkinn kúgun. Sú fyrirætlan mistókst. Sjálfstæðisflokkurinn lét hvorki hótanir né yfirgang á sig fá, og endirinn varð sá, að Framsóknarflokkurinn beygði sig. Mönnum eru atburðir undan- farinna vikna svo í fersku minni að óþarft er að rekja þá hér. Það skal aðeins á það minnt, að um það bil, sem Alþingi var sett, lagði Framsóknarflokkurinn fram tillögur sinar í dýrtiðar- málunum, með j>eim ummæl- um, að nú væri það samstarfs- flokkanna að „velja eða hafna“. Þrátt fyrir jiessa úrslitakosti var enn leitað samkomulags um lausn dýrtíðarmálanna. Og er vika var liðin af þingi, var svo komið, að samkomulag virtist fengið um hina „frjálsu leið“. Mánudaginn 20. október skýrðu ráðherrar Sjálfstæðisflokksins frá þvi á flokksfundi, að Fram- sóknarráðherrarnir mundu sætta sig við þessa lausn. Sam- tímis flutti Stefán Jóhann flokksmönnum sínum þennan sama boðskap. Næsta dag skeður það svo, að Hermann Jónasson ákveður að segja af sér fyrir sig og ráðu- neyti sitt — vegna ósamkomu- lags um dýrtíðarmálin. Það er mjög eftirtektarvert, að Fram- sóknarráðherrarnir hafa aldrei treyst sér til að mótmæla því, að sá skilningur samstarfs- manna þeirra í rikisstjórninni, að Framsóknarráðherrarnir mundu sætta sig við hina frjálsu leið, væri réttur. Hinsvegar hef- ir Hermann Jónasson þráfald- lega lýst því yfir, að hann liefði ekki trú á hinni „frjálsu leið“. F.n það er auðvitað sitthvað að hafa fullkomna trú á einhverju, eða sætta sig við það til sam- komulags. Nú er lausnarbeiðnin lögð fram. Ríkisstjóri vill ekki taka hana til greina, fyrr en séð verði, hvaða afgreiðslu dýrtíðarmálin fái í þinginu. Dýrtíðarfrumvarp Framsóknar er felt við 2'. um- ræðu i neðri deild. Þá er lausn- in veitt. Þetta er gangur málsins í mjög stórum dráttum. Fram- sókn byrjar með þvi að setja úrslitakosti. Þeir eru hafðir að engu. Ráðherrar Framsóknar ákveða að segja af sér. Það breytir heldur ekki neinu. Loks er dýrtíðarfrumvarpið drepið. Meðan þessu fer fram skrifar blað forsætisráðherra og hann sjálfur af mikillæti um málin. „Hermann vill ekki /]ianga“ er slagorð Tímans. Það ér talað um, að hér sé ekki lengur þörf á samstjórn og óspart vitnað í fjarlæg lönd, eins og Kanada og Ástraliu, þessu til sönnunar. Jafnframt rignir niður frum- vörpum, sem nánasl er að skoða sem „refsiaðgerðir“ gegn hinum, mótþróagjarna Sjálfstæðis- flokki. Það er gefið í skyn, að Framsóknarftokkurinn geti far- ið með völd án nokkurs til- verknaðar sjálfstæðismanna. En allir þessir tilburðir koma fyrir ekki. Sjálfstæðisflokkur- inn breytir í engu uppteknum liætti og biður rólegur átekta. Og nú liggja úrslit þessara átaka fyrir. Það er ástæðulaust að bælast neitt um yfir þeSsum úrslitum. Sjálfstæðisflokkurinn hefir frá upphafi Jjessarar deilu tjáð sig alls ófáanlegan til að ganga til einhliða samstarfs, eins og sakir standa. Hann hefir talið, að þörfin á samstjórn hafi aldrei brýnni verið en nú. Frá þeirri stefnu llefir bann ekki hvikað, þrátt fyrir úrslitakosti, liótanir. og ofbeldi Framsóknar öðrum þræði, og ögranir Aljiýðuflokks- ins á hinu leitinu. Kjósendur landsins eiga að misseri liðnu að kveða upp sinn dóm. Sjálfstæðisflokkurinn leggur alls ókvíðinn út í þá bar- áttu. Hann liefir staðist öll á- lilaup andstæðinganna og hefir aldrei verið öruggari né sam- lieiitari en nú. a Hafnarf jarðarmálið: ✓ Herréttur ekki byrjaður. Herrétturinn í máli amerísku hermannanna Cox og Farmers hefir ekki enn tekið málið til meðferðar. 1 fyrstu var vonazt til að rétt- urinn gæti tekið málið fyrir s.l. mánudag, en af Jjví gat ekki orð- ið og er nú gert ráð fyrir, að Jiað verði síðast í Jjessari viku eða fyrst í næstu viku. Það tekur skiljanlega nokk- urn tima fyrir sækjanda og verj- anda að undirbúa málsmeðferð sína. Rétturinn mun vart ljúka málinu á minna en tveim dög- um, þar sem yfirheyra Jiarf mörg vitni með aðstoð túlks. Loftvarnaæfingar í lok mánaðarins. í lok mánaðarins, þ. 28. þ. m., eða um það leyti, mun Loft- varnanefndin láta fram fara loftvarnaæfingu. Þessi æfing verður að likind- um viðtækari en flestar þær æf- ingar, sem bæjarbúar kannast við — og verður gengið ríkt eft- ir þvi, að fólki hlýði settum reglum. Er nú verið að setja upp flaut- ur Jiær, sem bætt hefir verið við og verða þá flauturnar í bænum og úthverfunum samtals 23 að tölu. 300 kr. sekt fyrir aö g ráöast inn i ibúö. Maður einn hér í bæ var fyrir skemmstu dæmdur í 300 kr. sekt í aukarétti Reykjavíkur fyrir að ráðast í heimildarleysi inn í íbúð konu. Maðurinn var drultkinn er hann gerði Jietta, í maí síðastl. — Var konan ein í íbúðinni er Jietla gerðist, og hélt hún þvi fram, að hún hefði orðið fyrir líkamlegri árás af hendi manns- ins. Það þótti ekki sannað fyrir réttinum og var maðurinn sýkn- aður af Jieirri kæru. Hinsvegar var hann sektaður fyrir að ráð- ast inn i íbúðina. Áður Jiurfti að sækja allar viðgerðir, bæði á bátum og vél- um, til Reykjavíkur, og kostaði ]>að bæði mikla fyrirhöfn og ó- Jiægindi, auk þess, sem af því leiddi oft talsvert tap, vegna timans, sem til ]>ess fór. Ef eitt- livað þurfti að athuga báta pnd- ir sjómáli, Jiá varð að láta J>á standa í fjörunni og voga Jieim, iindir veður, sem oft eru mis- jöfn að vetri til, eða að tapa góðu sjóveðri til slíkra Jiluta. Haust og vor voru bátarnir settir á land lil eftirlits, og til Jiess not- aðar lausar trérennur og gam- aldags spil, sem snúið var ineð mannafli, og Jkitti slik uppsetn- ing ganga vel ef dagurinn ent- ist til. Þeim, sem komu í „Grófina“ fyrir 6—7 árum og sáu karlana labba í kringum, spilið, til að tosa bátnum upp, — og koma Jiangað núna, Jjegar bátarnir J>jóta upp á 30 mínútum, möstrin eru eins og skógur til að sjá og beina- grindur nýrra báta bera við liim- in langt uppi á túni, — verður á að spyrja, hverjar orsakir liggi til þessarar stórfeldu breyting- ar. Svarið við Jjeirri spurningu fæst bezt með }>ví, að ná tali af forstjóra dráttarbrautarinnar, Valdimar Björnssyni, og leiðin til lians liggur í gegnum dynj- andi vélaverkstæðið og upp á skrifstofu félagsins á annari Iiæð. Eftir hæfilegan formála um dýrtíð og styrjaldarhorfur segi eg honum erindi mitt, sem er að fá nokkrar upplýsingar um vöxt og viðgang Dráttarbraut- arinnar, og fer bér á eftir samtal okkar: „Hver eru fyrstu tildrögin að stofnun þessa fyrirtækis?“ „Eg hefi ekki verið með frá byrjun,“ segir Valdimar. „Það voru J>eir Magnús Björnsson, Gunnar Emilsson og Olafur Hannesson, sem, allir vinna nú bér í vélsmiðjunni, sem fyrstir athuguðu möguleika á þvi, að byggja dráttarbraut einmitt hér í „Grófinni“. En J>á reyndust miklir örðugleikar á fram- kvæmdum, bæði fjárhagslega og eins með landið, enda var J>etta á mestu örðugleikatímum út- gerðarmanna og þeir J>vi ekki aflögufærir um hlutafé eða önnur fjárframlög, enda þótt Jieim væri ljós nauðsyn slíkra framkvæmda.“ „Hvernig stóð á }>ví, að Jiú, sem varst bóndi og trésmiður að iðn, fórst að gefa }>ig að járn- smiðum?“ „Það var aðallega fyrir til- mæli Magnúsar bróður míns, sem um þetta leyti rak liér litla vélsmiðju, en hún var svo kom- in, að þar þurfti gagngerðrar breytingar við. Höfðu erfiðleik- ar útgerðarinnar og árferðið eðlilega bitnað á J>eim rekstri, sem öðrum atvinnugreinum okkar. Atliugun J>eirra mála réði }>vi að mestu, að J>að féll í minn lilut að hafa forustuna við bvggingu Jjessarar dráttarbraut- ar.“ „Hvernig byrja svo fram- kvæmdir?" „Fyrst var að afla fjár, og tókst mér að ná í nokkra menn, sem voru svo trúaðir á fram- tíðina, að J>eir voguðu fé sínu i fyrirtækið. Hlutliafar voru upp- baflega 18 talsins, en eru nú orðnir 21.“ „Eru J>etta eingöngu útgerð- armenn?“ „Nei, ekki eingöngu, þó að það hefði verðið æskilegt. Þeir liöfðu ekki allir ástæður til f jár- framlaga.“ „Hvenær var bygging drátt- arbrautarinnar hafin ?“ „Fyrsti undirbúningur byrj- aði i mai 1935, en bygging var hafin í júlí sama ár. Okkur tókst að liaga byggingunni þannig, að þessi braut er fljÓtvirkari en aðrar, sem hér eru þekktar, og í því sambandi má geta J>ess, að okkur hefir tekizt að setja upp 4 bála á sama flóði. Uppsetning tekur um 30 minútur frá }>ví að báturinn er tekinn i sleðann og þar til hann er kominn upp, en að meðaltali tekur setning út á garða um 1 til 1 a/2 tíma. Fyrsti báturinn var tekinn upp 16. nóvember 1935. Þá var brautin fullgerð fyrir 18 báta.“ „Er dráttarbrautin innlent smíði?“ „Sleðinn og spilið er frá Nor- egi, en allur annar útbúnaður, J>ar á meðal til hliðarsetnings, er smiðaður í vélsmiðju Magn- úsar Björnssonar liér í Ivefla- vik.“ „Hvernig geklc reksturinn til að byrja með?“ „Fyrsta árið liöfðum við að- eins upp- og ofan-setningar báta. Magnús Björnsson liáfði eins og áður vélaviðgerðir, en Peter Wigelund sá um trésmíðina og var J>að hvorttveggja okkar rekstri óviðkomandi. Næsta ár hættir svo Magnús að reka vél- smiðjuna og tekur Dráttarbraut- in bana J>á á leigu, en smiðjan var í binum enda J>orpsins og var að J>ví mikið óliagræði, og J>á var þörfin fyrir aukin verk- stæði bæð.i fyrir tré og járnvinnu orðip svo knýjandi, að ekki var annað fært en að aulca þau að mun. Var því liorfið að því ráði, að kaupa vélsmiðjuna af Magn- úsi og reisa stærri hús liér vest- urfrá, og var þá byggt verk- stæðishús, sem hefir 800 fer- metra gólfflöt og vélar auknar að mun og allar knúðar með rafmagni. Þegar fram í sótti reyndist það óheppilegt fyrirkomulag, að annar aðili hefði á hendi tré- smiðavinnuna við bátana, og var J>ví horfið að J>ví ráði, að taka trévinnuna lika í relcstur félags- ins. Var því ráðinn liingað ung- ur skipasmiður frá Akureyri, Herluf Ryel að nafni, en lians naut stutt við, því að hann fór af landi búrt skömmu siðar. Tók þá við Sigurðui’ Guðmundsson, skipasmiður úr Reykjavik, og liefir hann verið yfirsmiður síð- an og leyst starf sitt prýðilega af hendi.“ „Hafið þið getað fullnægt eft- irspurninni ?“ „Árlega hefir verið aukið við húsrými og verkfærum, og nú eru stæði fyrir 27 báta. Auk þess er búið að reisa sérstakt bif- reiðaverkstæði — en þrátt fyr- ir J>að er enn ekki hægt að full- nægja eftirspum um stærri og smærri viðgerðir.“ „Hafið þið framkvæmt nokkra nýsmiði á bátum?“ „Já. Það hefir verið smíðaður hér einn bátur og tveir em i smíðum, auk þess umsmíðaðir 3 bátar og 5 lengdir og borð- bækkaðir." „Hvað átt þú við með um- smíði?“ „Árið 1939 var keypt gömul vélarlaus skúta vestan af Barða- strönd, sem „Guðný“ hét, og var liún stækkuð og breytt í nútíma bát. Heldur hún nú fáu af sínu upprunalega, nema nafninu, og svo J>ví, að hún reynist mesta Iiappafleyta eins og áður fyrr. Svipaða meðferð fékk „Vonin“ frá Akureyri, sem nú heitir „Björninn II“. Hún var áður um 38 tonn, en er nú 47 tonn, og lík- ar prýðisvel að öllu leyti.“ „Hvað vinna margir við tré- smíðina?“ „Það eru frá 14 til 30 smiðir og vantar þó oft íleiri — svo vinna auk þeirra nokkrir verka- menn. Nú höfum við skift verk- um þannig, að nýsmíði allri stjórnar Sigurður Guðmunds- son, en Egill Þorfinnsson hefir yfirstjórn allra viðgerða. Okk- ur hefir borizt fjöldi beiðna um nýsmíði, sem við höfum þvi miður ekki getað sinnt, sumpart vegna vöntunar á efni og vinnu- krafti.“ „Hvað vinna margir við járn- smíðina?“ „Frá 16 til 18 manns. Verk- stjóri vélaverkstæðisins er Ólaf- ur Hannesson, en deildarstjóri renniverkstæðisins er Gunnar Emilsson. Við höfum ávallt ver- ið svo heppnir, að ná í duglega og góða smiði, og á fyrirtækið því mest að J>akka, hve vel hefir gengið — því að án góðra starfs- manna væri allt dauðadæmt.“ „Hvað er mikið greitt í vinnu- laun yfir árið?“ „Það hefir farið vaxandi með hverju ári, eins og að líkindum lætur. Árið 1938 voru til dæmis greiddar yfir 98 þúsundir króna, árið 1940 164 Jmsundir og i ár komast launagreiðslur vafalaust langt yfir 200 J>úsundir.“ „Eru nokkrar nýjar fram- kvæmdir á prjónunum?“ „Við erum að hefja byggingu á stórri timburgeymslu, — og kaffistofu fyrir trésmiðina.“ „Hafa nokkur slys orðið við starfsemina siðan hún hófst?“ „Nei, ekki sem teljandi eru. Eg fótbrotnaði einu sinni, en J>að er nú löngu gróið; við höf- um verið heppnir að því leyti, að állt hefir gengið slysalaust.“ „Ertu ekki ánægður með ár- angurinn af starfinu?“ „Jú, ekki get eg sagt annað, J>egar á allt er litið. Eg minnist þess, að i upphafi töldu margir þetta fyrirtæki glannaskap einn og vöruðu mig af heilum hug við að leggja út í það, töldu það fyrirfram dauðadæmt. En eftir að „Framtíðin“, sem var fyrsti báturinn, er upp var sett- ur, var kominn á sinn stað, lieilu og höldnu, J>á komu 6 bátaeigendur og pöntuðu upp- setningu og síðan hafa bátar verið teknir 800 sinnum upp, og nú finnst öllum sjálfsagt að þarna sé dráttarbraut.“ „Hverjir eru í stjórn félags- ins?“ „í stjórn hafa frá upphafi ver- ið þeir Björn Ólafs frá Mýrar- liúsum, Elías Þorsteinsson í Keflavik og eg,“ segir Valdimar Bjömsson, „og hafa J>eir i hvi- vetna reynzt góðir samstarfs- menn. Þegar eg lít yfir liðna daga, þá virðist mér fyrirtækið hafa gengið að óskum og hafa eðli- legan vaxtarþrótt.“ Hsj. 15—20 bátar uppi. M.b. Guðný eftir breytinguna. <

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.