Vísir - 22.11.1941, Qupperneq 2
VÍSIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson
Skrifst.: Félagsprentsmiðjunni
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12
(Gengið inn frá Ingólfsstræti)
Símar 1 6 6 0 (5 línur).
Verð kr. 3,00 á mánuði.
Lausasala 15 og 25 aurar.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Þingslit
TþETTA er allt saman hálf ó-
víðfeldið og undarle'gt. ViS
þingslit i gær var á að giska
þriðjungur þingmanna fjarver-
andi. Samt voru flestir utan-
bæjarþingmenn ófarnir. Tveir
ráðherrastólarnir voru , auðir.
Og vel á ininnzt. Það var yíst
enginn af sendiherrum erlendra
ríkja viðstaddur, nemaJHr. Fon-
tenay, sendiherra Dana. Ef til
vill eru þetta allt saman smá-
munir. En er það nú samf ekki
dálítið óskemmtilegt, að þriðji
hver stóll skuli vera auður við
þingslit? Það eru ekki nema 5
mánuðir síðan við kusum okk-
. ur rikisstjóra, Valið á þeim
manni tókst svo vel, að enginn
hefir neitt út á það að setja.
Hann fer með það vald, sem áð-
ur hefir verið í h'öndum erlends
manns í fjarlægu landi. í fyrsta
skipti um 7 aldir á æðsti valda-
maður fslands heima á íslandi.
Eigum við ekki sjálfir að sýna
þessu manni fyllstu virðingu,
þegar hann er að framkvæma
embættisstörf sín við elztu og
veglegustu stofnun þjóðarinn-
ar? í hvert skipti, sem konungar
okkar hafa sýnt það lítiljæti, að
koma í heimsókn til þessara
fjarlægu stranda, hefir verið hér
uppi fótur og fit. Eigum við að
sýna rikisstjóranum meira tóm-
læti af þvi að hann er einn af
oss?
Nei, þelta er allt saman kauða-
legt og ólundarlegt. Það er engu
líkara en að þriðjungur þing-
manna sé í slíkri fýlu, að þeir
geti ekki lagt það á sig að sitja
svo sem tíu mínútur við atliöfn,
sem á að hafa yfir sér þann
virðuleik, að samboðin sé frið-
helgri stofnun fullvalda ríkis.
Hvernig geta þingmenn ætlast
til þess, að kjósendur liti upp til
Alþingis, ef þeir sjálfir gera sig
hera að fullkomnu skeytingar-
Jeysi? Kippumst við ekki allir
við, eins og komið sé við hjart-
að í okkur, hvert sinn, sem
minnzt er á lýðræði? Teljum við
það ekki höfuðsóma þjóðarinn-
ar, að eiga elztu lýðræðis-sam-
kundu í heiminum? Erum við
ekki sögúþjóðin, sárnæmir fyrir
því, að arfhelgi og þjóðlegar
minningar sé í heiðri haft?
Jú, mikil undur. Við froðu-
fellum allir og tölum tungum,
hvert sinn, sem við fáum að
tjalda þjóðrækni okkar og ætt-
jarðarást. Við kyrjum „fram,
fram, aldrei að vikja“, hvenær
sem þrjár hræður fási til að
taka undir. Við segjurn „Isíénd-
ingar viljúm við allir vera“ svo
hjartnæmt, að við fáum kökk i
hálsinn, og áheyrendurnir
snökta af hrifningu. Við kunn-
um þetta, þingmennirnir. Ann-
ars værum við ekki þingmenn.
En svo þegar við eigum að
kveðjast nndir forsæti innlends
þjóðhöfðingja, að enduðu dáð-
ríku þjóðheillastarfi á elztu iýð-
ræðisstofnun veraidarinnar, er
þriðjungurinn vant við látinn!
Þetta jafnast allt sainan, þeg-
ar við förum að tala við hátt-
virta kjósendur. Við „hefnum
þess í liéraði, sem hallaðist á
Alþingi“. Við sækjum bara dá-
iítið meira í okkur veðrið næst,
þegar við förum að tala um
„vernd hinna þjóðlegu verð-
mæta“, um aðsteðjandi hættur,
og umfram allt eininguna, frið-
inn og bræðralagið. Ilvað ætli
það geri, þótt kveðjurnar i þing-
lokin verði eins og „þegar hund-
ur hund hitti á tófugreni“. Við
verðum víst allir nógu tungu-
langir á kjósendafundunum til
að sleikja af, það sem á okkur
kann að írast út af tómlæti okk-
ar og skeytingarleysi.
Við segjum auðvitað, að það
sé ekkert nema smámunasemi,
að vera að rekast í þessu lítil-
ræði. Höfum við kannske ekki
verið vökumenn þjóðarinnar?
Er okkur þá ofgott að fá að sofa
út eina morgunstund? Og svo
var einn með tannpínu, annar
með gigt og þriðji með aðkenn-
ingu af þembu. Allt saman lög-
leg forföll. Enginn liafði verið
fjarverandi vegna fýlu eða dutt-
lunga. Ef einhver kjósandi
skyldi dirfast að koma upp með
slikt, skulum við kenna honum
að tala með meiri virðingu um
fulltrúana á löggjafarsamkomu
íslendinga. Við heimtum virð-
ingu fyrir Alþingi. I nafni lýð-
ræðisins, frelsisins, arfhelginn-
ar og allrar framtíðar islenzku
þjóðarinnar heimtum við: Virð-
ingu fyrir Alþingi! — Svona
munu alþingismenn tala við
kjósendur, þegar þar að kemur.
Sjómenn segja stundum um
gömul skip og lek að þau „liangi
saman á málningunni“. Það er
víst óþarft að gera ráð fyrir leka
á þjóðarskútunni okkar, enda
eru tvö vel búin björgunarskip
til verndar á næstu báru. En
engu að siður væri ekki úr vegi
að lialda málningunni við. Ef
við viljum að siglingin sé glæst,
má farið ekki vera vanhirt. AI-
þingi er lyftingin á þjóðarfley-
inu. Allt getur svo sem flotið,
þótt lyftingin sé ekki sem glæsi-
legust. En ættu þingmenn samt
ekki að varast, að skafa máln-
inguna af?
a
Messur á morgun.
/ dómkirkjimni kl. n. Prests-
vígsla. Engin síðdegismessa.
Halhjríinspr c stakall. Barnaguðs-
þjónusta í Austurhæjarskólanum
kl. ii. Síra Jakob Jónsson. •— í
dómkirkjunni kl. 5, sr. Sigurbjörn
Einarsson. Altarisganga.
Ncsprestakall. Stofnfundur Kven-
félag Nesprestakalls verður hald-
inn í 1. kennslustofu Háskólans kl.
2./ á morgun.
í kapellu Háskólans kl. 5. Jens
Benediktsson stud. theol. predikar.
Sira Sigurður Einarsson þjónar
fyrir altari.
Fríkirkjan í Rcykjavík, kl. 2. Sr.
Arni SigurÖsson.
Frjálslyndi söfnuðurinn, í frí-
kirkjunni í Reykjavík kl. 5J/2. Sr.
Jón Au'ðuns.
Hafnarfjarðarkirkja, kl. 5 síð-
degis. Sr. Garðar Þorsteinsson.
/ Laugarncsskóla. Barnaguðs-
])jónusta kl. 10 árd. Messa kl. 2.
Sr. Garðar Svavarsspn.
Karlakórinn Fóstbræður
mun endurtaka samsöng sinn á
þriðjudagskvöld kl. 11 ]/2. Uppselt
er á sunnudags-hljómleikana.
Hjúskapur.
í dag verða gefin saman í hjóna-
liand af sýslumanninum í Arnes-
sýslu ungfrú Valgerður Árnadóttir
(Jónssonar frá Múla) og Óli Her-
mannsson stud. jur.
Gunnlaugur Einarsson, læknir,
hefir flutt lækningasstofu sina í
hús sitt, Sóleyjargötu 5.
Mæðrafélagið
heldur fund á Amtmannsstig 4
n.k. mánudagskvöld kl. 8)4. — Sjá
augl. í blaðinu í dag.
Leikfélag Reykjavíkur
sýnir leikritið „Á flótta“ annað
kvöld og hefst sala aðgöngumiða
kl. 4 í dag.
Operettan Nitouche
verður sýnd í 60. sinn á morgun
kl. 2j4, og hefst sala aðgöngumiða
kl. 4 i dag.
Næturlæknar.
í nótt: Þlalldór Stefánsson, Rán-
argötu 12, sími 2234. Næturverðir
í Ingólfs apóteki og Laugavegs
apóteki.
Aðra nótt: Ólafur Þ. Þorsteins-
son, Eiríksgötu 19, simi 2255. Næt-
urvörður í Reykjavíkur apóteki og
Lyfjabúðinni Iðunn.
V í S I R
Amerlkamenn yfírtaka
fisksölnsamninginn.
Samningar undirritaðir í Washington í gær.
amkvæmt skeyti er Vísi barst frá United Press í
Washington í gærkveldi hefir Hull, utanríkis-
málaráðherra Bandaríkjanna tilkynnt, að samningar
hafi verið undirskrifaðir í gær af fulltrúum Bandaríkj-
anna og íslands, sem innihalda „almennt láns- og leigu-
samkomulag“.
I skeyti þessu felst ekki nánari skýring á efni sanin-
ings þessa, en líklegt er, að hér sé um að ræða samkomu-
lag ura, að allar þær vörur, sem fluttar eru frá íslandi
til Bretlands verði greiddar í dollurum, en ekki i pund-
um, þannig að millifærzla fari fram í Bandarikjunum
samkvæmt láns- og leigulögunum.
Allsendis mun óvíst hvenær samkomulag þetta geng-
ur í gildi, og mun ekki ólíklegt, að það dragist ennþá
eitthvað. Á þessu stigi málsins er ekki ástæða til að gera
sér of b jartar vonir um þá framtíðarskipun, sem verða
kann á þessum málum. Nægir þar út af fyrir sig að vekja
athygli á, að þótt andvirði vara, sem fluttar eru til Bret-
lands, greiðist okkur í dollurum, — sem að s jálfsögðu
bætir m jög aðstöðu okkar á hinum ameriska markaði,
— liggur ekkert fyrir um það, að sómasamlegt verðlag
sé tryggt á útflutningsafurðum okkar, en á því veltur
fyrst og fremst hve hagkvæmir samningar þessir reyn-
ast.
Samkvæmt upplýsingum, sem Vísir fékk hjá Stefáni Þor-
varðarsyni rétt áður en blaðið fór í pressuna, voru samningar
undirritaðir í Washington þ. 20. þ. m. um að Bandaríkin yfir-
taki fisksölusamninginn, sem við höfðum gert við Breta, en
þangað til skapist millibils ástand og verði andvirði alls útflutn-
ings okkar sett á sérstakan biðreikning.
1 gær Var svo undirritaður annar viðskiptasamningur við
Cordell Hull.
aðrir fengu 300 kr. sekt hvor.
Það var 7. ágúst í sumar, að
íslenzka lögreglan kom því upp,
að Ragnar Lövdal, sem var að
byggja 2 hús inn hjá Iiöfða,
hafði keypt til þeirra nokkuð af
sementi hjá hernum.
Við rannsóknina upplýstist
það, að hann hafði fengið efni
þelta, samtals um 80 tunnur, úr
tveimur áttum. Fyrst og fremst
fékk liann nokkuð af sementinu
fyrir milligöngu Jóns Bergs
Jónssonar, frá birgðaverði setu-
liðsins, og borgaði kr. 4.00 fyrir
pokann. Nokkuð fékk hann frá
yfirmanni í Pípuverksmiðjunni
T
EIín Zoégra.
Thor Thors gengur
fyrir Roosevelt.
íslendingar í samfélag fr jálsra þjóða
MJÞlöðin í Bandaríkjunum birtu í gær ræður þær og
. ávarpsprð, er haldnar voru af þeim Thor Thors,
sendiherra og Roosevelt forseta, er Thor lagði fyrir for-
setann skírteini sín, sem sendiherra íslands í Banda-
ríkjunum.
Thor, sendiherra, lagði ríka áherzlu á það, að með at-
burði þessum væri stórt skref stígið í þá átt að tryggja
árangur af sjálfstæðisbaráttu íslendinga og sjálfstæði
landsins.
„f dag standa stærsta og voldugasta lýðveldið og elzta
og minnsta lýðveldið, meðal frjálsra lýðræðisríkja,
hlið við hlið,“ sagði sendiherrann.
I svari sínu sagði Roosevelt forseti að sendiherrann
væri ekki ókunnur maður í Bandaríkjunum og ísland
væri það ekki heldur. Þúsund ára barátta þess fyrir
sjálfstæði, frelsi og þjóðlegri menningu, væri kunn.
Þegar nú menn um heim allan berðust gegn hinum illu
öflum, er Ieituðust við að færa mannkynið í f jötra þræl-
dóms og ómenningar, færi ekki hjá því að allir hlytu
nokkur óþægindi. Harmaði forsetinn að til árekstra
hefði komið milli íslendinga og setuliðsmanna úr
Bandaríkjahernum, en fullyrti, að allt yrði gert til að
fryggja að slíkt ætti sér ekki stað framar. Sagði forset-
inn ennfremur að sér og þjóð sinni væri mikil ánægja
að því, að ísland stæði nú í nánum tengslum við Banda-
ríkin, sem frjálst land og fullvalda. Myndu Bandaríkin
ávalt veita því með ánægju fjárhagslegan stuðning og
annað Iiðsinni eftir því, sem ástæða gæfist til, og byði
íslendinga velkomna í samfélag frjálsra manna.
30 daga Íaugelsi og:
sviftir kosningarrétti
vegna hylmingar og viðskipta við hermenn.
KI. 9 Vz í mórgTin kvað Jónatan Hallvarðsson, sakadómari, í
aukarétti Reykjavíkur, upp dóm yfir Ragnari Lövdahl og öðr-
um þeim, er unnu að því með honum að kaupa sement af setu-
liðsmönnum. Var Ragnar og annar maður til dæmdir í 30 daga
fangelsi skilorðsbundið og sviptir kosningarétti, en tveir menn
Merkiskonan frú Elín Zoéga
kvaddi þennan heim að kvöldi
þess 8. þ. m. Fædd er hún í
Reykjavik 1. jan. 1869, dóttir
hinnar velþekktu reykvísku
konu frú Jóhönnu Zoéga, d.
1925, er lengst bjó í Vorhúsum,
(Vesturbænum) og fósturdóttir
manns hennar, Björns Stefáns-
sonar, ágætismanns, d. 1915,.
föður þeirra systra frú Guðrún-
ar, d. 1926 og frú Gróu Ander-
son.
Með frú Elínu Zoéga er geng-
inn einn af hinum traustu stofn-
um þessa bæjarfélags, er allt frá
blautu barnsbeini fjdgdist vel
með þróun bæjarins og lagði þar
sinn góða skerf til, enda var
sjálfstæðistilfinningin í óvenju
ríkum mæli hjá henni, þróttur
mikill og félagshneigð.
Elín Zoéga var fyrirmannleg
sýnum, gjörfuleg, svipmikil og
■ættarmerki glögg. Myndarbrag-
ur einkenndi allt látbragð henn-
ar og fas, heiina fyrir sem utan.
Stórbrotin, geðrík, fór sínu
fram og berorð, ef því var að
skipta, en vinur vina sinna, og
átti hver þar hauk í horni, þótt
ekki væri hún með neinn fagur-
gala við þá, og urnfram allt var
hún skyldurækin við öll störf og
góð heim, að sækja. Frá því eg
man eftir mér var hún kunn-
ingi fólksins míns, og naut eg
þess ekki sízl síðari árin, er
og borgaði kr. 20.00 pr. tunnu.
Jón Bergur fékk fyrir milli-
göngu sina helming andvirðis-
ins í sinn eigin vasa.
Bæði Jón Bergur og Ragnar
Lövdal voru dæmdir fyrir hylm-
ingu og brot gegn tolllögunum,
(þ. e. viðbótinni, er fjallar um
bann gegn viðskiftum við setu-
liðið). Þeir voru dæmdir í 30
daga fangelsi livor, óskilorðs-
bundið, og sviftir kosningarétti.
Þriðji maðurinn, sem við mál
þetta var riðinn, var Helgi Sum-
arliði Einarsson bílstjóri. Hann
flutti sementið úr Pípuverk-
smiðjunni til Ragnars og kom
kaupunum á og var dæmdur í
300 kr. sekt gegn broti á tolla-
lögunum.
Sá fjórði, sem við þetta mál
kom, var Gisli Kristjánsson.
Hann falaði sementspoka af Jóni
en Jón'bauð lionum þá tólf se- j
mentspolca lil kaups og keypti
Gisli þá. Hann var dæmdur fyrir
þetta eftir 263. gr. hegningarlag- j
anna, er f jallar um það ,þegar
menn kaupa ófrjálsa hluti af
stórfelldu gáleysi, einnig eftir
tolllögum, í 300 kr. sekt.
Dómur í málinu hefir tafizl
svona lengi vegna þess, að setu-
liðsstjórnin hefir einnig haft
mál þetta til rannsóknar.
fundum okkar bar oft saman
vegna íélagsmála. Munu hin
mörgu félög, svo sem: Góð-
templarareglan, Ivvenfélagið,
Vörður (hún var ein af stofn-
endum þess), Húsmæðrafélagið,
„Hvöt“, Bejdcjavíkurfélagið,
salcna hennar sem hins skyldu-
rækna félaga síns, er ekki taldi
eftir sér sporin, þó aldur fyrn-
ist yfir hana, heldur var þar á
verðinum, lét sig öll þjóðfélags-
mál miklu skifta og var þar
einkar fróð. Hún var ein af
stofnendum sjálfstæðislcvenna-
félagsins „Hvöt“, gegndi þar
ýmsum trúnaðarstörfum og
vann fyrir félagið alveg til hins
siðasta. Barátta var henni í blóð
borin og elcki að ganga af hólmi
fyrr en í fulla hnefana.
Alltaf minnti hún mig á hina
stórlátu, hugmiklu lconu, er
dreymir stóra drauma fyrir þjóð
sína, allt hálfkák, flas og flá-
ræði var henni fráhverft og á-
mælisvert.
Sjálfstæðisstefnunni treysti
hún bezt til þjóðarheilla, var
henni trú, og öllu því, sem ís-
lenzlct var.
Elín giftist eftirlifandi manni
sínum, Erlendi Erlendssyni
kaupmanni, laust fyrir aldamót-
in. Eigi varð þeim barna auðið,
en ólu upp son liennar, Kjartan
Konráðsson aðstm. bæjarsímans
og síðar elztu dóttur lians, Bryn-
hildi, stúdent, er var þeim eink-
ar hugþekk, dvelur hún nú með
fósturföður sínum. Elín lætur
eftir sig önnur barnabörn þrjú
og barnabarnabörn.
Hinir mörgu vandamenn
hennar og vinir finna aldrei bet-
ur en nú, hvað átt hafa, er henn-
ar nýtur eklci lengur við, jafn
myndarleg húsmóðir, frænd-
rækin og trygglynd sem hún var.
S. M. Ó.
Helgidagslæknir.
Gunnar Cortes, Seljaveg 11, simi
5995-
Útvarpið í kvöld.
Kl. 15.30 Miðdegisútvarp. 18.30
Dönskukennsla, 2. fl. 19.00 Ensku-
kennsla, 1. fl. 19.25 Þingfréttir. —
20.04 Fréttir. 20.30 Útvarpstríóið:
Einleikar og tríó. 20.45 Erindi:
Japanar og trúarbrögð þeirra (Frið'-
rik Hallgrímsson dómprófastur).
21.10 Aldarminning Antonin Dvo-
ráks (1841—1941) : a) Formáli. b)
Dumky-trió (plötur). 21.50 Fréttir.
22.00 Danslög til kl. 24.
/
Er kaupandi að
4
— Verð, tegund og aldur til-
greint í tilboði merlctu ,1919‘,
er sendist Vísi fyrir mánur
dagskvöld.
I
fi:ii j.um 71
m imý-rmn
Skaftfellingnr
hleður n. lc. mánudag til Vest-
mannaeyja.
Vörumóttaka til hádegis.
Björn Austræni
hleður n. lc. mánudag til Súg-
andafjarðar, Bolungarvíkur
og ísafjarðar.
Vörumóttaka til hádegis
sama dag.
OQQOQQCaQQQOQQQOOQOOOOQOOaOQOÖQOQOQOQOöaöQQQQöQOOQQOIX
o Eg undirrilaður þakka góða gjöf, sem stjórn Kennara- |
S félags Miðbæjarskólans færði mér frá starfsfólki skólans.
g En Lim leið og ég þakka vinahug þann og hlýju þá, er
gjöfinni fylgdi, langar mig til að votta öllu starfsliði skól-
drenglijndi og hollustu í starfi á liðnum árum.
ans innilegt hjartans þakklæti fyrir samvinnuþýðleik,
Reykjavík 22/lí. 194-1. B
f.v. skólastjóri g
H H allgrí mur J ó nsso n.
lOOQOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOQOOOOOOOOOQOOOOOOOOOOOOOOOOC