Vísir - 22.11.1941, Side 3
V I S I R
KIRKJAI
Sunnudagurinn á morgun:
Guðspjallið: Matth. 9, 18—26. Pistill: Kól. 1, 9—14.
VAKIÐ!
„Það sem eg- segi yður, það
segi eg öllum: Vakið!
Jesús Kristur varar kröftug-
lega við andlegum svefni. Hann
vill, að menn sínir vaki, séu
trúir á verðinum, ætið viðbúnir,
láti aldrei koma að sér óvörum,
glati engri stund í gáleysi og
svefnmóki sálarinnar. Hann
vill að þeir séu ætíð liæfir til að
mæta mikluni atburðum, stór-
kostlegum umskiftum.
Nú eru þeir tímar, að jafnan
má vænta tíðinda og mikilla at-
burða. Og þann dag eða stund
veit enginn, er stórtíðindi kunna
að gjörast. Nú eru tímar tvísýnu
og liáska, hörmunga og neyðar
víða í heimi, tímar, þegar margt
er í voða, sem mönnum er dýr-
mætt, og þess vegna þörf að
vaka viðbúinn, og gæta sem bezt
þess góða, sem. mönnum er trú-
að fyrir, og sízt má í tvisýnu
tefla eða missa. Nú hentar því
eigi andlegur svefn eða doði. Nú
kallar sjálf öldin og allar lífs-
ins kröfur: Valcið! Nú, á þessum
vandans og voðans tímum er
þörf þeirra varðmanna, er vaka
með Guði þessa myrku mann-
kynsnótt, og gæta þess, sem
liann hefir trúað þeim fyrir. Nú
er sem Kristur tali til lærisveina
sinna eins og forðum: „Bíðið
hér og vakið með mér.“
Vakið yfir yðar helgustu trú,
sem blóðugar harðstjórahendur
liafa leitazt við að slíta út úr
hjörtum. milljóna manna víða
um lönd. Það verður sú trú og
það hugarfar, sem hún skapar,
er leyst getur vandræði verald-
arinnar og vísað leiðina fram
til guðsrikisins á jörðu.
Vakið yfir því öllu, sem Guð
gaf íslendingum: landinu, mál-
inu, menningunni, öllu því, sem
verðmætast er í lífi þjóðarinn-
ar, sem í meir en þúsund ár hef-
ir helgað sér þetta land með
Iífsbaráttu sinni. Og hiðjið af
sannri alúð og góðvild fyrir
þeim, sem eiga að vera vöku-
menn þjóðar vorrar i þeim em-
bættum og' störfum, er mest á-
byrgð fvlgir.
Vér vitum eigi, hve langt er
liðið á styrjaldarnóttina. En
meðan þessi nótt varir, skiftir
það mestu, að vaka vel, halda
öruggan vörð um allt, sem oss
er heilagt, allt, sem oss er dýr-
mætt. Jýökum yfir því, og lát-
um það eigi á oss fá, þótt
skammdegisnóttin sé skugga-
löng. Styrkjumst í bjartsýnni
trú skáldsins:
„Sína reynir mildur mest
máttarherrann allar tíðir.
Þeir lians forsjá þakka bezt
Jjegar birtir upp um síðir.
Eftir strið er friður fagur,
frelsis þegar ljómar dagur.“
Sigurvinningar kirkjunnar.
Fjögur sterkustu kirkjufélög
frikirknanna á Englandi ræða
nú mjög sameiningu i eitt öfl-
ugt kirkjufélag. Töluvert á ann-
að hundrað prestar og leikmenn
hafa skrifað undir áskorun, sem
fer í þessa átt. Blaðið „The
Christian World“ hefir birt
þessa áskorun hvað eftir annað
og er sameiningunni mjög fylgj-
andi. Kirkjufélögin, sem hyggja
á þessa sameiningu, eru þessi
fjögur: Biskupakirkjan, Meþó-
distar, Baptistar og Congregat-
ionalistar. Þeint er farið að
skiljast, að trúaratriðin og starf-
ið, sem er þeirra sameiginleg
eign, er máttugra en aukaatrið-
in, sem valdið hafa skilnaði, og
að kirkju Krists á jörðunni ber
að vera þjóðunum fyrirmynd í
santhug og samstarfi.
Viða gerist nú ýmislegt það í
heiminum, sent lofar góðu um
framlíð kristninnar. Einn rit-
höfundur hefir nýlega komizt
svo að orði: „Þrátt fyrir það,
að við hér á Englandi erunt nú
aðjtrengdir, er framgangur
kirkjunnar og guðskristni viðs-
vegar á jörðunni meiri en
nolckru sinni áður. Á Indlandi
hefir Jteim fjölgað um 15 Jtúsund
á 'inánuði undanfarið, sem láta
skírast lil kristinnar trúar. í
Afríku hefir tala þeirra tvöfald-
ast sumstaðar síðast liðin 13 ár,
og í Mið-Ameríku hefir hún þre-
faldast á santa tíma. Á Filipps-
eyjunt hefir á þessari öld risið
upp kirkja, er telur 200,000 fé-
laga. í Kína og Japan ltefir tala
þeirra, sem gengið hafa yfir til
kristinnar trúar, fimmfaldast á
þéssum sama tiina. P. Sig.
„Gefðu að móðurmálið mitt,
tninn Jesú, þess eg beiði,
frá allri znllu klárt og kvitt
krossins orð þitt útbreiði
mn landið hér,
til lieiðurs þcr,
helst mun það blessun valda,
uieðan þín ndð
lartur vbrt láð
lýði og byggðum halda.”
Unglingur
Laghentur og röskur unglingur óskast sem aðstoðarmaður
á vinnustofu.
f’ramtíðar atvinna hjá öruggu fyrirtæki.
Tilboð, ásamt meðmælum, merkt: „17 ára“ sendist Vísi fyrir
23. þessa mánaðar. >
MÆÐRAFÉLAGIÐ.
Fundur
verður í félaginu mánudaginn 24. nóv. á Amtmannsstíg 4, kl.
8% eftir hádegi.-
DAGSKRÁ:
1. Vetrarstarfið.
2. Kröfur félagsins til handar æskulýðnum.
3. Fræðsluhópar kvenna.
4. Upplestur, frú Halla Loftsdóttir.
5. Kaffidrylckja.
STJÓRNIN.
(ngiir maður
getur fengið atvinnu við afgreiðslustörf nú þegar. —
A. v. á. -
§IGLIHGAR
milli Bretlands og Islands halda áfram,
eins og að undanförnu. Höfum 3—4
skip í förum. Tilkynningar um vöru-
sendingar sendist
Cnlliford ék Clark i.«i.
BRADLEYS CHAMBERS,
LONDON STREET, FLEETWOOD.
Tvær rðskar stálkur
óskast á Hótel Borg
nú þegar eða 1. desember.
Húsfreyjan.
Oolfdnkar
Gólfd nkapappi
Gdlfdukalím
J»pflRÍKir
Verzlunin París
verðup lokud allan mánudaginn
24. nóv. vegna japðarfarar.
Vil borga
300 kr.
þeim sein getur útvegað mér
2 eða 3 herbergi og eldhús,
strax eða um áramót.
EINAR ÁSGEIRSSON,
Toledo. - Sími 4891.
Vil
kanpa
eða leigja bílboddy 12 eða 10
manna. Uppl. á Grettisgötu
36, eftir kl. 8.
vantar á
Landspítalann.
Talið við forstöðukonU ,spít-
alans á mánudagsmorgunn.
Stúlka
getur fengið atvinnu við inn-
heimtu og sendiferðir. Fram-
tíðaratvinna við iðnað gelur
komið til greina. — A. v. á.
Gerduft
í pökkum og lausri vigt.
í gódu standi
óskast til kaups
Tilboð, merkt: „Vörubifreið“
leggist á afgr. Vísis fyrir
mánudagskvöld.
Kristján Guðlaugsson
Hæstaréttarmálaflutningsmaður.
Skrifstofutími 10-12 og 1-6.
Hverfisgata 12. — Simi 3400.
Tónlistarfélagið og Leikfélag Reykjavikur.
MITOUCHE
60. Sýning á morgun kL 21.30
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4 til 7 i dag.
Ath.: Frá kl. 4 til 5 verður eldn svarað i síma.
Leikfélag Reýkjavíkur.
»Á 11 ó H st «.
Sýning annað kvöld kll. S
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4 til 7 :í tíag.
F. I. Á.
Dansleikur
i Oddfellowhúsinu sunnudaginn 23. nóv. kl. 10 siðdegis.
Dan§að bæði nppi og1 niðri.
HLJÓMSVEIT AAGE LORANGE leífeur niðri.
Dansaðir bæði gömlu og nýju dtamsarnir.
Aðgöngumiðar seldir í Oddfellowhúsinu frá kl 8 á sunnudag.
S. A. R.
Dansleikur
í Iðnó í kvöld. — Hefst kl. W.
Hin ágæta hljómsveit hússins leifeur.
Aðgongumiðar með lægi-a verði i Iðnó i kvöld kl. 6—8. —
Sími: 3191.
Skemmtifélagið Frelsi í Hafnarfirði.
í kvöld kl. 10 að Hótel Björninn. •—- Eingöngu eldri dansamii’.
— Panta má aðgöngumiða i sim 9024, 9262 pg 9292.
STJÓRNIN.
Dansleik
heldur Sundielagið Ægir í Oddfellow í kvöld.
ASgöngumiðar seldir á sama stað efiír kl. 5.
Aðeins fyrir íslendinga.
b.s. H e k 1 a *££»
Ábygmieg afgreiðsla
— -rw 'W.
Konan mín og móðir okkar,
Guðrún Eide
andaðist í nótt
Hans Eide, Kristín Eide, Ragnhftðör Eide.
jUtför dóttur minnar,
Guðrúnar Björnsdóttur Siguvðsson,
fer fram frá dómkirkjunni mánudaginn 24. nóv. og hefst
með húskveðju á heiinili okkar, Amtmanosstíg 5, kl. 1%.
Christine Sigurðsson.