Vísir - 29.11.1941, Page 2

Vísir - 29.11.1941, Page 2
V 1 S I R VÍSIF? DAGBLAÐ Útgefandi: BLAÐAÚ’Í’GÁFAN VÍSIIÍ H.F. Ritstjúri: Kristján Guðlaugsson Skrifst.: Félagsprentsmiðjunni Afgreiðsla: Hverfisgötu 12 (GengiÖ inn frá Ingólfsstræti) Símar 1 6 6 0 (5 línur). Verð kr. 3,00 á mánuði. Lausasala 15 og 25 aurar. Félagsprentsmiðjan h.f. Fullveldið. JL mánudaginn kemur mánn- ** umst við fullveldis íslands í 23. sinh. Margt hefir til tíð- inda borið í sjálfstæðismálum okkar síðan 1. desember í fyrra. Við höfum gert nýja ski]>un um æðstu stjórn landsins. Innlend- ur þjóðhöfðingi fer nú með það vald, sem urn 7 aldir hafði ver- ið í hendi erlends lconungs. Þessi nýja skipun hefir mælzt vel fyr- ir og valið á rikisstjóranum tekizt svo, að ekki hefir verið að fundið. Þá hafa Bandaríkin skipað sendiherra á íslandi og tekið við sendiherra af okkar liálfu. AHt eru þetta mikil tíðindi og góð. Má raunar segja að við sémn á undan áætlun í sjálf- stæðismálunum. En þó við gleðjumst yfir þessum tiðind- um, liöfum, við ekki ástæðu til að hrósa sigri. Sigur fæst ekki nema fyrir baráttu. Það sem okkur hefir i hendur borizt er fyrst og fremst afleiðingar ut- anaðkomandi viðburða, sem okkur hafa verið ineð öllu óvið- ráðanlegir. Við finnum með okkur sjálfum, að hér er urn að ræða éinskonar pólilískan „stríðsgróða“.. Ella liefði fögn- uður okkar verið stórum meiri. En fíeira hefir gerzt. Nú höld- um við fullveldishátíðina „und- ir smásjá tveggja stórvelda“. í fyrra voru hér brezkir hermenn — i banni okkar. Nú eru hér einnig bandarískir hermenn — í boði okkar. Á tuttugu ára af- mæli fullveldisins treystum við því, að við fengjum að sitja sem fjarlægir áhorfendur, hvað sem i kynni að skerast meðal hern- aðarþjóða heimsins. Við treyst- um þvi, að yfirlýsingin um æ- varandi hlutleysi yrði sá vernd- arengill, sem héldi öllu óhreinu frá vöggu þessa unga ríkis. Tíminn er fljótur að líða. Það eru ekki nema þrjú ár síðan við lifðum öruggir i þessari hugð- næmu barnatrú. Þrátt fyrir ýms vonbrigði, sem við höfum orðið fyrir af völdum stríðsins, þrátt fyrir hið mikla manntjón, sem við höfum beðið á hafinu, væri ó- maklegt af okkur að ljósta upp kveinstöfum yfir hlutskifti okk- ar. Við þurfum ekki annað en líta til nánustu frændþjóða okk- ar á Norðurlöndum, Dana og Norðmanna. Sjálf fullveldishá- tiðin'er sönnun þess, að allt öðruvisi er að okkur búið. I fyrsta sinni i sögunni erum við betur setlir bæði efnalega og pólitískt en þessir suðlægari frændur okkar. Þessa ber okkur að minnast. Við skulum ekki fara að spá neinu um framtiðinav Við fáum engu ráðið um það, sem ofan j á verður. En við hljótum að treysta því, að fullur drengskap- j ur og einlægni hafi verið að baki þeim sáttmála, sem leiðtogar Breta og Bandaríkjanna gerðu á liafinu vestur af Islandi fyrir hálfum fjórða mánuði. Sá sátt- máli var i fullu samræmi við þær yfirlýsingar, sem áður voru gefnar um brottköllun herliða þessara rikja, þegar að ófriðn- um loknum. En.þó.tt við efumst ekki um heilindi þeirra stórvelda, sem hér hafa aðsetur um stundar- sakir, færi ekki illa á því, að við vönduðum okltar ráð sem hezt meðan við erum undii; „smásjá“ þeirra. Við skulum segja að ekki sé hætta á, að við stofnum frelsi olíkar í voða. Hitt getur skeð, að áliti okkar og mannorði sé ekki með öllu ó- hætt, ef við þelckjum ekki okk- ar vitjunartima. Við höfum hælt okkur af því, liver um annan þveran, að hafa slíðrað sverðin þegar hættan nálgaðist. Við vorum húnir að æfa okkur í innanlandsfriði í heilt misseri, þegar styrjöldin skall á. Hvernig er ástatt um innanlandsfriðinn i dag? Ekk- ert mál er svo friðhelgt, að það sé ekki dregið niður í strákslegt dægurþras. Það er jafnvel far- ið með hraklegustu dylgjur um þá menn, sem við höfum sjálfir valið til að vera fulltrúa okkar meðal stórþjóðanna. Og það er blað sjálfs utanríkismálaráð- herrans, sem gengur á undan í þessum ósóma. Við erum undir „smásjá tveggja stórvelda“, sem öllu vilja fórna til að vinna bug á nazismanum. Samt dynja svo að segja daglega nazista-brígsl á stærsta stjórnmálaflokki lands- ins, og það frá sjálfum sam- starfsflokkum hans. Undir vernd tveggja öndveg- isþjóða lýðræðisins í heiminum höfum við nýlokið þingi, sem var markleysa. Ráðherrar valsa út og inp um ríkisstjórnina og hæla sér af j>ví að vera ábyrgð- arlausir. Það eru líklega landráð að minnast á jietta, af því að við erum „undir smásjánni“. En jiað eru meiri landráð að þegja yfir þvi. Við komumst ekki hjá að sýna okkur eins og við er- um, hversu fegnir sem við vild- um. Og við hækkum ekki í áliti jjótt við bætum hræsni og yfir- drepskap ofan á framhleypnina og ábyrgðarleysið. FuIIveldis- deginum yrði bezt varið svo, að við athuguðum oklcar ráð, og strengdum þess heit að hæta úr því sem áfátt er. Við fáum ekki spornað við utanaðkomandi hættum. En við eigum að forð- ast að búa okkur sjálfir liættur. a Fyrir fimm árum var stofn- að hér i bænum dálítið kristilegt stúdentafélag. Þótt þetta félag sé enn ekki ýkja stórt, liefir það verið all-athafnasamt. Það hefir á hverju ári, síðan það var stofnað, gefið út m.yndarlegt IO'istlegt stúdentablað, sem lief- ir notið mikilla" vinsælda, það hefir haldið opinberar samkom- ur og guðsþjónustur, sem liafa verið mikið sóttar og það hefir lialdið stúdentakvöld, sem liafa orðið til mikillar blessunar. 1. desember í ár hyggst félag- ið að koma opinberlega frain, að vanda. Það gefur út Kristi- Iegt stúdentablað og heldur tvær opinberar samkomur. Kristilegt stúdentablað er nú stærra og fjölbreyttara en nokkru sinni fyrr. í það skrifa m. a. dr. theol. síra Bjarni Jóns- son vigslubiskup og síra Sigur- björn Einarsson, ennfremur er viðtal við sira Guðmund Eín- arsson, sem nefnist: Frá stúd- entsárunum, greinaflokkur eftir unga stúdenta, athyglisverð grein um visindin og Biblíuna, kvæði og margt fleira. Blaðið verður selt á götunum og kostar 1 krónu. Opinber samkoma verður kl. 5 e. li. i húsi K. F. U. M. og K. í Reykjavík og aftur kl. 8% i liúsi K. F. U. M. i Hafnarfirði. Á þeim samkomum tala nokkr- ir ungir stúdentar og eru allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. S. Loftvarnaæfingin í gær: Myrkvtmin iórst fyrir — vegna þess að herflugvélar var saknað, Að öðru leyti fór æfingin vel fram. Loftvarnaæfingin’’ hófst í gær á tilætluðum tíma, nokkurar mínútur fyrir ellefu, en eitt aðalatriði hennar, myrkvun bæj- arins, skothríðin úr loftvarnabyssunum og flug yfir bænum, sem fyrirhugað var til þess að gera æfinguna sem líkasta veruleik- anum, féllu niður. Annars gekk æfingin vel. Hveli- og reyksprengjum var varpað viða í hæum, j>egar fólk var farið í skýli, en göt- urnar voru orðnar mannlausar á augabragði. Verkfræðingur loftvarnanefndar fór um Vest- urbæinn og kenndi hverfa- xlökkviliðinu að fást við eíd- sprengjur. Ætlunin hafði verið að flug- vélar færi á lofl fáeinum mínút- um eftir að loftvarnamerki hafði verið gefið, þær væri , „sprengjuflugvélar“, sem væri að koma til árásar, en jafnskjótt og þeirra yrði vart yrði öll ljós í hænum slökkt og um leið færi varnarflugvélar á loft og hleypt vrði af loftvarnabyssunum. En j>etta fórst hvorttveggja fyrir. Tíðindamaður Vísis fór um Vesturbæinn með verkfræðingi loftvarnanefndar. Brugðust hverfaslökkviliðin yfirleitt fljótt við, og sýndu dugnað við að slökkva í eldsprengjunum. Á einum stað kom það þó fyrir, að enginn slökkviliðsmanna var kominn í bækistöðina, þegar jiangað var komið. Þrýstingurinn af sprengjun- uin braut rúður í stöku húsum, en ekki mun tjón að öðru leyti hafa orðið verulegt. Víðsvegar um bæinn voru hjálparsveitir á vétvangi, er sóttu „særða“ og báru þá á bör- um til næstu hjúkrunarstöðv- ar. Gekk sú starfsehii greiðlega, þar sem tíðindamaður Visis var á ferð. Virtust hjálparliðin yfir- leitt liafa staðið vel í stöðu sinni og brugðið fljótt við. Eitt atvik skeði j)ó í gær- kveldi, sem bent gat til hins gagnstæða. Svo var mál með vexti, að i gærkveldi, meðan á æfingunni stóð, var hringt til lögreglunnar og hún beðin að sækja drukkinn mann, er væri að slangra á milli húsa á einum stað í bænum. Lögreglan brá við og sótti manninn, en er til kom, var þetta byrgisvörður eins loftvarnabyi’gisins. I Nýja Bíó var engum hleypt út úr húsinu meðan loftvarna- æfingin stóð yfir, og voru leikin ýms skemtileg lög fyrir fólkið unz æfingin var á enda. í Gamla Bíó fór eitthvað af fólki upp á þak hússins og var lögreglan send þangað upp, til að reka fólkið í burtu. Annars bar nokkuð á þvi, að fólk væri á ferli eftir götunum, sem þar átti ekki að vera. I allmörgum húsum mun fólk hafa slökkt ljósin, af því að það hélt, að myrkva ætti hjá sér, og setið í myrkrinu meðan á æfing- unni stóð. Tilkynning frá brezka setuliðinu: Myrkvuninni, sem átti að fara fram í gærkveldi, var aflýst af því, að brezk flugvél hafði ekki komið fram. Ljósin i bænum voru lálin loga til þess að þau gætu verið leiðarvísir fyrir flug- vélina, ef hún skyldi hafa villzt. Munið hlutaveltu Farfugla kl. 2 á morgun. Þúsundir eigulegra muna. Ekkert happdrætti. Áheit á Strandarkirkju, afhent Vísi: 15 kr. frá B.J.A.S. 10 kr. frá J.M. (gamalt áheit). 20 kr. frá Þ.E. (tvö áheit). 3 kr. frá Þ.S. 15 kr. frá xrx. 10 kr. frá J.J. ísland og andkom- múnistabandalagið. Það er óvéfengjanlegt, að Danmörk hefir gerzt 13. „aðil- inn“ að andkommúnista-banda- laginú. Svo virðist og seni danskir stúdentar liafi ekki fagnað jieim tíðindum. Eftir 1918 var talið, að sam- band íslands og Danmerkur væri málefnasamband, enda fór Danmörk með utanríkismál ís- lands af þess hálfu. Sumir héldu því fram, að utanríkis- málin hlytu að vera sameiginleg. Þá var jafnrétti jiegnanna, sepi sumir töídu sameiginlegan jiegnrétt. Er öldungis víst, að nafn ís- lands hafi ekki flotið með við undirskriftina í Berlín? Og er öruggt, að enginn hafi litið svo á, þó að nafn íslands kunni að vera ónefnt? Er ekki undirskrift Scavenius gerð i nafni konungs Danmerkur og Islands? Það er erfitt að ræða utanrík- ismál, eins og nú er ástatt. En eg lield, að jiað geti verið háska- samlegt, að stjórnarvöld ís- lands láti lijá liða að lýsa yfir þeirri staðreynd, að sambandi íslands og Danmerkur sé að fullu og öllu slitið. Eftir fáa daga ætla stúdentar að fagna 1. desember. Eg hef alltaf verið þeim hátíðahöldum andvigur. 17. maí og 17. júni 1941 munu verða taldir merkari dagar. Einnig 10. apríl 1940. En nú er tækifærið. Stjórnar- völd landsins mega ekki láta undir höfuð leggjast, að lýsa yfir j>ví 1. desember 1941, að sambandi íslands og Danmerk- ur sé að fullu slitið. Magnús Thorlacius. Hlutaveltu heldur Farfugladeild Reykjavík- ur á morgun í Verkamannaskýlinu, og hefst kl. 2 e. h. Á hlutaveltunni verður fjölmargt eigulegra muna, enda hafa flest stærri fyrirtæki bæj- arins gefið muni til híutaveltunnar og flest gefið af rausn. íslenzka útvarpið frá London á morgun verður um Winston Churchill, forsætisráð- herra. Það hefst kl. 2.30. verSur jialdinn í Oddfellowliúsinu sunnudaginn 30. nóv. og liefst með dansi kl. 10 síðd. Nokkurir aðgöngumiðar seldir í Oddfellowliúsinu í dag kl. 5—6. — Pantanir sækist á sama tíma, annars seldar öðrum. -— Borð tekin frájen aðeins til kl. IOV2. SAMKVÆMISKLÆÐNAÐUR! STJÓRNIN. Stúlku vantar til eldhússtarfa nú jiegar á HÓTEL ÍSLAND. -— Ekki svarað í sima. ÞAÐ ER GAMAN AÐ GLEÐJA BÖRNIN. Gefið þeim Mýsnar og mylluhjólið PRfWTAOÍPRfNr^M. fODU Hf-RfVKTAVIK MfM*11 Barnabókin, sem engan á sinn líka Það er litmynd á hverri síðu og gat gegnum bókina miðja, en 10 iierir myioirnar Vinsælasta bókin á þessu hausti kemur út i dag. Skáldsaga eftir Þóri Bergrsson: Vegir og vegleysur Bókavepzlun ísafoldar. Martha McKenna: Hersteinn Pálsson þýddi. Eg var njósnari - bókin, sem Churchill vakti yfir fram undir morgun - er nú komin í bókaverzlanir aftur. Vakid í kvöld og lesið þessa bókl

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.