Vísir - 02.12.1941, Síða 1

Vísir - 02.12.1941, Síða 1
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson Skrifstofur: Félagsprentsmiðjan (3. hæð). 31. ár. Ritstjórl 1 Blaðamenn Síml: Auglýsingar 1660 Gjaldkeri S llnur Afgreiðsla Reykjavík, þriðjudaginn 2. desember 1941. 274. tbl. Horfumar í Austur-Asíu. Japanir hlka. Roosevelt rteðir við Stark flotaforing^ja. EINKASKEYTI frá United Press. New York í morgun. Þegar, er Roosevelt forseti var kominn til Wash- ington, ræddi hann við Hull utanríkisráð- herra, en það vakti engu minni athygli, að liann ræddi og þegar við Stark flotaforingja. — Menn hafa ekki áttað sig á því til fulls, hvort horfurnar hafi í raun og veru versnað eða ekki. Menn héldu það í fyrstu a.m.k., og að það hafi verið vegna þess, að Rossevelt fór aft- ur tíl Washington í skyndi. En sumir ætla, að einmitt það, að Bandaríkjaforseti taldi horfurnar alvarlegar og boðaði, að hann kæmi aftur, ef þörf krefði, hafi haft sín áhrif í Tokio, — stjórnin hafi sannfærzt um, að hótanir stoðuðu ekki; Banda- ríkjastjórn mundi horfast djarflega í augu við hættuna. Enda varð það að ráði, að ákveðið var að „halda áfram samkomu- Iagsumleitunum fram á seinustu stundu“. — I sumum blöðum rvestra kemur fram sú skoðun, að Japanir hafi hikað. ií Washington var sdgt í gærkveldi: Búast má við, að ein- hverjar mikilvægar ákvarðanir verði teknar innan tveggja sól- arhringa. Ræðismaður Bandaríkjanna í Thailandi hefir tilkynnt Bandaríkjaþegnum þar í landi, að þeir verði að vera við því himir að flytjr úr landi með stuttum fyrirvara. Er þetta fyrir- skipað 'vegna innrásarhættunnar. 1 fregnum sem bárust í gær og fyrradag voru borfurnar í Austur-Asíu taldar iskyggi- legri en nokkuru sinni, en lítið þótti þó betur liorfa, er það varð kunnugt í fyrrakveld, að enn yrði viðræðufundur haldinn (gær) í Washíngton. Var þá Roosevelt forseti á leið sinni til Washington. Hann liafði eklci ætlað að fara þangað aftur fyrr en á morgun úr fríi sínu vfir helgina, en vegna þess hversu liorfurnar voru iskyggilegar þótti honum ráðlegast að fara þangað þegar í stað. Domei- fréttastofan tilkynnti í gær, að Nomura sendiherra og Kurusu sendiráðgjafí hefði fengið fyrif- skipun um að ræða enn á ný við Cordell Hull, til þess að Bandarikjastjörn fengi enn eitt tækifæri til þess að taka af- stöðu sína í Austur-Asiumál- um til íhugunar. Áður hafði Tojo forsætisráðherra flutt ræðu og var hann gunnreifur. Sagði hann m. a., að viss Evr- ópustórveldi vildu halda að- stöðu sinni til arðnáns í Austur- Asiu óg myndi Japanir koma i veg fyrir að framhald yrði á slíku. Fregnir bárust í fyrradag um, að sézt hefði mikill japanskur skipafloti í nánd við eyjar þær, sem Þjóðabandalagið veitti Jap- önum umboðsstjórn yfir, og voru herskip þessi ekki fjarri Norður-Borneo, sem Bretar ráða yfir. Mikill herafli, brezk- Ur og indverskur, er kominn til Rangoon, hinn mesli, sem nokkuru sinni liefir komið þangað. —- í Burma, á Malakka- skaga og í Thailandi eru menn við öllu búnir, og í Hongkong hefir öllum heimferðarleyfum hermamia verið frestað, — í öll- um jæssum löndum er hver maður á sínum stað, í her- mannaskiálum, varðstöðvum, flotastöðviun eða farnir lil skipa sinna. Myrkvun er komin til framkvæmda á Filipseyjum. Japönsk blöð halda uppi árás- um á Thailand og salca Th'ai- lendinga um að hafa veitt Bret- um hernaðarleg hlunnindi "(af- not flugvalla o. fl.) og raun- verulega sé hlutleysi Thailands úr sögunni. í japanska flotanum sem fyrr var um getið eru, að sögn, 16 orustuskip og beitiskip, og flugvélaskip. Hinir mikilvægustu fundir hafa verið lialdnir og eru stöð- ugt haldnir í Washíngton, Lon- don, Tokio og Camberra. — Alexander flotamálaráðhérra flutti ræðu um helgina og sagði, að Bretar hefði sent mikinn flota til Austur-Asíu. Brezkt beitiikip ikýtnr þýzkt víkingaikip i kaf Brezka flotannálaráðuneytið tilkynnti í gær, að flugvélar beitiskipsins Devonshire hefði komið auga á skip nokkurt, sem hagaði sér grunsamlega. Var talið, að hér mundi vera um þýzlct víkingaskip að ræða. Devonshire fór á vettvang og var merkjum lierskipsins ekki svarað á fullnægjandi hátt og var þá hafin skothríð á skipið, sem Iiuldi sig reykjarmekki, en skot kom í slcotfærageymslu þess, og sökk skipið á 10 mín- útum. Kafbátar voru nærri og er líklegt, að skipið liafi verið birgðastöð þeirra. Ekki var hægt áð vinna að björgun undir þéssum kringumstæðum. Devonshire er 14 ára gamallt skip um 10.000 smál. Bretar urðu ekki fyrir neinu tjóni. Churchill 67 ára. Á afmælisdag ChurchiIIs á sunnudag fékk liann heilla- skeyti úr öllum áttum, frá brezku konungshjónunum, átt- unda liernum (Nilarhernum), ríkisStjórnum bandamanna, og afhentar voru gjafir úr ýmsum áttum, 12 skriðdrekar, flugvél- ar o. m. fL MÓTSPYRNAN MAGNAST í HERNUMDU LÖNDUNUM. SMÁSKÆRUHERNAÐUR í NORÐUR-NOREGI. Fregnir frá Stokkhólmi herma, að Norðmenn þar hafi fengið áreiðanlegar fregnir af því, að smáskæru- hernaður og skemmdarverk eru mjög að færast í aukana í Noregi norðanverðum. Samkvæmt seinustu fregn- um, sem borizt hafa frá Norður-Noregi, hafa smá- skæruflokkar gert árásir á járnbrautarlestir, sem voru með miklar hergagnabirgðir. Þegar tekizt hafði að stöðva lestina, voru Varðmennirnir umkringdir og teknir til fanga. — Hinir norsku ætt- jarðarvinir náðu þarrla miklu herfangi. j EINNIG SKEMMDARVERK 1 BELGlU. Fregnir frá Genf herma, að víða í Belgíu hafi verið dreift út prentuðum miðum, sem á eru prentaðar áskoranir til manna um að hefja samtök sín á milli um skipulagða hermdarverkastarfsemi gegn þýzka hernum í Belgíu. Erlendir sjó- menn særa íslendinga hættulega I gær var haldin skemmtun á Patreksfirði í tilefni af full- veldisafmælinu. — Á þessari skemmtun lenti í óeirðum milli skipverja af dönsku skipi, sem þar var statt, og siglir í brezkri þjónustu, og íslendinga. Tóku skipverjar upp hnífa og stungu tvo menn, annan í bakið en hinn í kviðinn, og særðist sá, sem fékk kvið- stunguna, mjög alvarlega. Loftvarnaæfingin. AÖ gefnu tilefni skal þess getið, aÖ slökkvilið þau í Vesturbænum, sem voru látin fást við íkveikju- sprengjurnar á föstudagskvöldið, eru stofnuð af Loftvarnanefnd Reykjavikur. Þau eru þvi óviðkom- andi Slökkviliði Reykjavikur, sem liefir bækistöð i Túngötu 22, ef til loftárásar kemur. Aðalfundur Skautafélags Reykjavíkur var haldinn i Kaupþingssalnum föstn- daginn 21. nóv. í stjórn voru kos- in: Formaður Katrín Viðar i stað Kristjáns Einarssonar, sem baðst undan endurkosningu. Sigúrjón Danívalsson varaform., frk. Júlíana Iseþarn gjaldkeri, Björn Þórðarson ritari, Eyþór Ólafsson svellvörður. Rommel sjilfar kominn I eidlfnnna. Áframhald á ægilegum skriðdrekaorusfum Áframhald er á miklum skriðdrekaorustum við Sidi Rez- egh, og' hafa Þjóðverjar teflt þar fram miklu liði, til þess að brjótast yfir göngin til vesturs. Er þar aðallega Nýsjálending- um að mæta. — Horfurnar í Libýu valda auknum áhyggjum á Ítalíu og í Þýzkalandi, — en Þjóðverjar hugga sig við það, að úrslitin í Libýu hafi ekki áhrif á heildarúrslitin í styrjöldinni. I fyrradag' voru 15 óvinaflugvélar skotnar niður í loft- bardögum, segir í enskri tilkynningu, en frá 18. nóv. til 30. nóv. voru 176 skotnar niður eða eyðilagðar á jörðu niðri í Libyu. í fyrri fregnum frá Libyu var sagt frá því, að miklar skriðdrekaorustur hefði verið báðar. Skriðdrekasveitir Rom- ntels gerðu árangurslausar til- raunir til þess að komast vestur á bóginn þvert yfir „göngin“ fyrir sunnan Tobruk, en mis- lókst það, og einnig mistókst ný tilraun Þjóðverja til þess að taka Sidi Rezegh á ný. Þrátt fyrir gifurlegt tjón balda Þjóð- verjar áfram að berjast af kappi. I gær var tilkynnt, að Johann von Rabenstein hers- höfðingi 21. þýzka vélaherfylk- isins hefði verið tekinn íil fanga. Hann var fluttur til To- bruk, 10 yfirforingjar pðrir og um 600 hermenn. Fótgöngulið Breta hefir lcomið sér öfluglega fyrir í „göngurium“ og hefir það nú stórskotalið og skrið- drekasveitir sér til aðsloðar. — Rahenstein hefir sagt við blaða- menn í Tobruk, að liann hafi verið í eftirlitsferðalagi, er Brennbyssusveilir Breta komu skyndilega og umkringdu lið Iians. Hersveitir Breta og Indverja í Jalovinjunum liafa fengið liðsauka og eru tilbúnar að halda áfram sókninni. Brezkir véla-varðflokkar hafa komizt til strandar milli Jadabaya og Bengbazi og rofið samgönguæð Þjóðverja og ít- ala þar. Takist Þjóðverjum og Itölum ekki að treysta þar að- stöðu sina á ný, horfir mjög illa fyrir þeiin hvarvelna í Vestur-Lybiu, þar sem höfuð- birgðastöðvarnar eru í Tripoli Austur-Libyu. Þó verður að gera ráð fyrir, að þeir eigi enn miklar birgðir í Benghazi og víðar. Blaðamenn er flogið hafa yfir bardagasvæðið segja, að hvarvetna geti að líta eyðilagða skriðdreka óvinanria, og sé skriðdrekatjón þeirra afskap- legt. í London er leidd athygli að þvi, að þótt amerísku skrið- drekarnir hafi reynst vel, þá sé mikill meiri hluti skriðdrek- anna brezkir, og liafi þeir reynst prýðilega, einkanlega stóru skriðdrekarnir. Þegar l>eir hafa bilað, hafa þeir verið notaðir sem staðbundin virki, unz við- gerð var lokið. Miklar loftárásir hafa verið gerðar á Bengliazi og Castel- benito á Sikiley. Fnllveldisins minnzt bæöi hér og erlendis. Fullveldisins var í gær minnzt víða um land og var nokkuru af hátíðahöldunum frá Reykjavík útvarpað. Einnig hafði enska útvarpið hér sérstaka dagskrá í tilefni af fullveldinu og flutti Árni Jónsson frá Múla þar ræðu um sjálfstæðisbaráttu íslend- inga, en á eftir var leikið „Lýsti sól“. Þess má ennfremur geta, að í útvarpinu frá New-York í gær söng Guðmundur Kristjánsson söngvari, íslenzk lög; og í þýzka útvarpið flutti Kristján Albertson, rithöfundur, ræðu. Aðal hátíðahöldin hérlendis fóru fram í Reykjavík, undir forystu stúdenta, og flutti Bjarni Benediktsson borgarstjóri ræðu af svölum Alþingishússins. Hátíðaliöld stúdenta í tilefni af fullveldisafmælinu hófust með skrúðgöngu stúdenta frá Háskólanum kl. 1,15 e. li. í far- arbroddi fóru tvær lúðrasveitir, er léku íslenzk ættjarðarlög. Á gatnamótum Bjarkargölu og Hringbrautar nam fylkmgin staðar í tvær mínútur. Var það gert í mótmæla- og andúðar- skyni við hernám, Garðs. Að því búnu var haldið beina leið niður í Alþingshús. Þar liélt Bjarni Benediktsson borgarstjóri ræðu af svölunum, en mannfjöldi riiikill safnaðist saman við Austurvöll meðan á ræðunni stóð. Kl. 3 M> hófst slcemmtisam- koma í hátíðasal Háskólans. Voru þar bæði liljómleikar og ræður til skemmtunar og var þar húsfyllir. Kl. 7 síðd. hófst borðhald stúdenta að Ilótel Borg. Ræður héldu undir borðum Magnús Jónsson prófessor fyrir mirini Islands og Sigurður Einarsson stúdentaminni. Ríkisstjóri flutti ávarp og gat fjögra skeyta, er bonum hafði borizt erlendis frá í tilefni af fullveldinu. Voru þau frá Montreux í Sviss, íslenzka konsúlnum í Edinborg, frá ís- lendingum í New York og frá sendifulltrúa Dana í Teheran. Próf. Ágúst H. Bjarnason mælti fyrir minni ríkisstjórans, en Stúdentar hrópuðu ferfalt liúrra fyrir ríldsstjórahjónunum. -— Björn Björnsson próf. flutti kveðju frá Vestur-islenzkum stúdentum og sira Garðar Þor- steinsson söng einsöng. Að loknu borðlialdi var dans stiginn til kl. 4. Fóru hátiða- liöldin yfirleitt hið bezta fram, enda þótt veður liafi ekki verið sem liagstæðast. Fánar blöstu við hún um allan bæinn, og her- merin voru með minnsta móti á ferli. Á Akureyri gekkst stúdentafé- lag Akureyrar fyrir fullveldis- fagnaði. Gengu stúdentar þar skrúðgöngu, en sira Friðrik Rafnar messaði í Akureyrar- kirkju. — Kl. 2 var almenn skemmtun haldin í Samkomu- húsinu með mörgum. ágætum skemmtiatriðum. Loks var svo hóf stúdgnta í gærkveldi og nótt, sem' fór fram í Gildaskála KEA. í Hafnarfirði fóra liátiðahöld Sjálfstæðisfélaganna þar fram í fyrrakvöld með fjölsóttri og veglegri skemmtun i Góðtempl- arahúsinu. Víðar liafa liátíðahöld farið fram í tilefni fullveldisafmælis- ins, en Visi hafa eklti borizt fregnir af þeim liátiðahöldum ennþá. Mikil loftárás á Ham- borg aöfaranótt mánudags. Mikil loftánás var gerð á borgir Vestur-Þýzkalands að- faranótt mánudags og var aðal- árásin gerð á Hamborg. Einn.g var varpað sprengjum á Emden og fleiri borgir. Talið er, að mörg hundruð flugvélar hafi tekið þátt i loft- árásinni. Nítján flugvélar voru ókomnar til bæltistöðva sinna á liádegi i gær og munu Bretar aðeins einu sinni hafa orðið fyr- ir meira flugvélatjóni á einni nóttu, er flugvélar l>eirra fóru til árása á þýzkar borgir. Nærri 40 manns teknir fyrir ölvnn síðastliðna 3 sólarhringa. Ölvun marina virðist, eftir skýrslu lögreglunnar að dæma, vera að færast í sama horfið nú og á meðan Áfengisverzlun rík- isins var opin. Undanfarna þrjá morgna, þ. e. i morgun, i gærmórgun og fyrramorgun voru alls teknir 37 manns fyrir ölvun á almanna- færi. Á sunndagsmorguninn voru teknir 12, í gærmorgun 17 og í morgun, þegar Vísir hafði tal af fulltrúa sakadómara, var búið að taka 8 manns. Gera má ráð fyrir, að megnið af þessu áfengi sé fengið frá setuliðsmönnum eða úr erlend- um skipum, sem liingað sigla, enda þótl erfiðlega gangi að færa á þetta sönnur. Er hér um að ræða athyglisvert mál, ekki aðeins vegna ölæðisins, heldur engu að siður vegna afskipta ís- lendinga af setuliðsmönnum, sem í þessu efni eru okkur til hins mesta vansa. Operettan Nitouche verður sýnd annað kvöld og hefst sala aðgöngumiða kl. 4 í dag. Kirkjukvöld. Annað kvöld eiga Reykvikingar kost á skemnitilegri og uppbyggi- legri kvöldstund í Dómkirkjunni. Kirkjunefnd kvenna, sem á undan- förnufn árum hefir gengizt fyrir mörgum slíkum samkomum í kirkj- unni, hefir enn sem fyrr vandað mjög til þess, sem mönnum er bo'Ö- ið' að koma og hlýða á, og hefir notið þar aðstoðar margra góðra vina safnaðarstarfsins. Þar verður mikið af fögrum söng og hljóð- færaleik og séra SigUrbjörn Einars-' son flytur erindi. — Eins og að undanförnu verður öllum arðinum varið til prýði kirkjunni og kirkju- lóðinni. Hver sem kemur gjörir það tvennt, að njóta góðrar kvöldstund- ar og styðja gott málefni. Næsti háskólafyrirlestur próf. Ágústar H. Bjarnasonar um siðferðileg vandamál verður á morgun kl. 6 í 2. kennslustofu Há- 1 skólans. Efni: Uppeldi barna og unglinga. Öllum heimill aðgangur.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.