Vísir - 04.12.1941, Side 1
Ritstjóri:
Kristján Guðiaugsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð).
31. ár.
Reykjavík, fimmtudaginn 4. desember 1941.
RitstjórS 1
Blaðamenn Sími:
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri 5 línur
Afgreiðsla *
276. tbl.
Rixssai* sækja fram í sppengj uregni.
Þessi mynd, sem er send út aí' Rússum, er af rússneskum herflokki, sem gerir árás upp
litla hæð, meðan Þjóðverjar slcjóta á hann. Reykurinn af sprengikúlu, sem springur sést lengst
til vinstri á myndinni. ——
Þjöðverjar Oytja herlið frá Krfm-
skaga vod Kleist tll staðnings.
Á miðvígstöðvuimm hefip
dpegið úp sékn Þjóöverja.
EINKASKEYTI frá United Press. New. York í morgun.
Seinustu fregnir frá Rússlandi eru þær, að Þjóð-
verjum hafi ekki tekizt að stöðva Rússa við
Taganrog, vegna þess, að rússneskar hersveit-
Ir komust vestur fyrir hersveitir Þjóðverja í úthverfum
þar. Þjóðverjar flýja nú hratt til Mariupol, tæpum
100 kílómetrum fyrir vestan Taganrog. — En vegna
þess hve Rússar fylgja Þjóðverjum hratt eftir er sú
spurning á allra vörum hvort þeim muni auðnast að
koma í veg fyrir, að Þjóðverjar búist til varnar við
Mariupol. Þjcðverjar vita vel hvaða hætta er á ferð-
um, ef undanhaldið verður ekki stöðvað, og seinustu
fregnir herma, að þeir hafi flutt lið frá Krímskaga til
stuðnings liði von Kleists. Hann var búinn að fá tvö
ítölsk herfylki, en hermennirnir þoldu illa kuldann og
voru óánægðir yfir lélegum klæðnaði sínum.
Á miðvígstöðvunum hefir brugðið til fannkomu og
sumstaðar verður Þjóðverjum ekkert ágengt af því að
skriðdrekar þeirra eru fastir í snjónum. Rússneskir
smáskæruflokkar hafa þegar notað þau tækifæri, sem
þama hafa boðist til árása.
Pravda skýrði frá því í gær, að þýzki herinn á suðurvígstöðv-
Tinum héldi áfram undanhaldi sínu í áttina til Mariupol, en áð-
ur höfðu borizt fregnir um, að Þjóðverjar hefðu gert tilraun til
að veita viðnám í úthverfum Taganrog, 40 enskum mílum eða
tæpl. 65 kílóm. frá Rostow. Þetta var í fyrrakvöld, en eftir frétta-
stofufregnum og útvarpsfregnum, sem birar voru í nótt, eru
líkur til, að meginherinn þýzki stefni til Mariupol, en hætti
við að veita verulega öflugt viðnám við Taganrog.
Frá 1. S. í.
Enginn íþróttamaður fær
að keppa án læknisleyfis.
Rússar segja, að Þjóðverjar
skilji eftir ógrynni hergagna og
kveiki i skriðdrekum sínum og
birgðum og ónýti hergögn, til
|>ess að koma í veg fyrir, að
Rússar fái þeirra not.
í russnesku herstjórnartil-
kynningunní var fátt sagt að
vanda, nema að barizt hefði ver-
ið á allri viglínunni, en í útvarpi
og blöðum var ýmislegt sagt,
:svo sem
að flugherínn rússneski
hefði sig stöðugt • meira í
frammi og í fyrradag voru
skotnar niður 58 þýzkar
flugvélar, en 17 rússneskar.
í aukatillc. segir, að rúss-
neski flugherinn hafi eyði-
lagt 154 skriðdreka og 114
herflutningahíla o. m. fl.
svo sem um 50 fallbyssur,
álíka marga hervagna o. s.
frv.
Á miðvígstöðvunum þokast
Þjóðverjar enn áfram, var sagt
í gærkveldi, en Rússum hefir
orðið nokkuð ágengt með gagn-
álilaupum, en megintilraunir
Þjóðverja til að brjótast í gegn
hafa enn mistekizt.
RÚSSAR SAGÐIR YFIRGEFA
HANGÖSKAGANN.
I gærkveldi var frá því sagt
i finnsku útvarpi, að Rússar
væri að yfirgefa Hangöskagann.
Hangöskaginn er í Finnlandi og
fengu Rússar liann fyrir hern-
aðarbækistöð, eftir finnsk-rúss-
neska stríðið.
Þessi finnska fregn hefir
ekki verið staðfest í Lond-
on, að því er tilkynnt var í
gærkveldi.
Finnar sögðust búa sig undir
að senda herlið til skagans.
Tilraunir Finna og Þjóðverja
til þess' að ná skaganum á sitt
valda Iiafa allar mistekizt. —
Ekki varð séð af hinni finnsku
l'regn í gær annað en að Rússar
væru að yfirgefa skagann af
sjálfsdáðum og ekki hefir verið
getið um hardaga þar að und-
anförnu.
I þýzka útvarpinu segir, að
Rússar hafi yfirgefið Hangö-
skagann, en ekki er þetta stað-
fest í Rússlandi.
VEÐUR VERSNA
Á MIÐVÍGSTÖÐVUNUM.
Þótt mikið sé rætt, að vonum,
um undanhald Þjóðverja á suð-
urvígstöðvunúm, — það er í
fyrsta skipti í þessari styrjöld,
sem Þjóðverjum hefir verið
greitt slíkt liögg, að þeir hafa
riðað við og hörfað undan ■—-
heinist athygli manna mjög sem
fyrrum að því, sem er að gerast
á miðvígstöðvunum, en Þjóð-
verjar lialda áfram sókn sinni
þar af 'hinu mesta kappi og
senda þangað aukið lið, þrátt
fyrir versnandi færð og veður,
og er talið, að þetta stafi af því,
að Þjóðverjum sé brýn nauð-
syn að fá Moskva fyrir vetrar-
bækistöð handa meginher sín-
um á miðvígstöðvunum.
Fregn frá Washington segir,
að Rússar hafi tilkynnt Randa-
ríkjastjórn, að svæðið undan
Vladiwostock sé bannsvæði, og
séu siglingar liæltulegar á þessu
svæði. Ekki er beint tekið fram,
að siglingar séu bannaðar á
þessu svæði, en talið er víst, að
engin skip muni áræða að fara
um þetta svæði hér eftir, nema
flotastjórnin í Vladiwostock láti
í té hafnsögumenn.
Fjórar þýzkar
farþeg:aflng:vélar
farast.
í fregn frá Ankara segir, að
á undangengnum hálfum mán-
uði hafi fjórar þýzkar farþega-
flugvélar á leiðinni Belgrad—
Saloniki hrapað til jarðar. Er
talið, að skemmdarverk muni
orsök þessara flugslysa.
Herstjóm í
Noregi?
Quisling og Terboven
hafa brugðizt vonum
Þjóðverja.
Frá Stokkhólmi er símað, að
Quisling megi nú sjá sín örlög
fyrir, þar sem hann var víðs
fjarri er sáttmálinn var undir-
skrifaður í Berlín á dögunum,
til framlengingar andkommún-
ista sáttmálanum. í fregnum,
sem horizt liafa til Stókkliólms
frá Noregi er því haldið fram,
samkvæmt norsk-þýzkum heim-
ildum, að nazistar séu mjög ó-
ánægðir yfir Quisling og Ter-
boven, þar sem þeir hafi elcki
getað aflað sér fylgis með þjóð-
inni. Er nú talað um, að hvor-
ugur sé starfi sínu vaxinn, og
eina lausnin sé að setja á lagg-
irnar herstjórn í Noregi, og yrði
þeim þá háðum yikið frá,
Líklegt, að Bretar
segi Finnum stríð á
hendur í vikulokin.
Stjórnmálamenn í London
eru þeirrar skoðunar, að
þess muní skammt að bíða,
að brezka stjórnin taki fulln-
aðarákvörðun um afstöðu
sína gagnvart Finnlandi og
þeim löndum öðrum, sem
veita Þjóðverjum hernaðar-
legan stuðning gegn Rússum.
Að því er Uniled Press hef-
ir fregnað er mjög líklegt,
að ákvörðunin um að segja
Finnlandi stríð á hendur
verði tekin fyrir næstu helgi.
I kjölfar þeirrar styrjaldar-
yfirlýsingar kemur stríðs-
yfirlýsing á hendur Ungverj-
um og Rúmeníu.
Franskir faagrar
koma keim.
Fyrir nokkuru var þess getið,
að nýtt samkomulag væri náð
eða i þann veginn að nást milli
ÞjóðVerja og Frakka, og væri
það eitt atriði samkomulagsins,
að Þjóðverjar sendi heim, all-
marga stríðsfanga.
Nú eru þessir fangaflutningar
hafnir. Qm 1300 striðsfangar
komu til Compiegne i fyrradag.
Þeir voru allir franskir.
Almenn hervæðing
í hollenzku Austur-Asíu
framkvæmanleg á nokk-
urum klukkustundum.
Fregnir frá Batavia á Java
herma, að á hollenzku eyjunum
séu menn viðbánir hverju sem
fjrrir kann að koma. Talið er,
að almenn hervæðing sé svo vel
undirbúin, að hún sé fram-
kvæmanleg á nokkurum
klukkustundum.
Hollenzki nýlendumálaráð-
herrann er sem stendur staddur
i Batavia. Hann hefir frestað
brottför sinni vegna þess hve
horfurnar i Austur-Asíu eru
iskyggilegar.
Stór flugvélaverksmiðja verð-
ur reist nálægt Chungking fyrir
láns og leigulagafé. Verksmiðj-
an er smíðuð vestra og verður
flutt í pörtum til Kina.
Stjórn íþróttasambands ís-
lands hefir á fundi sínum 19.
nóv. s.l. samþykkt að frá 1. jan.
1942 slculi enginn fá að taka þátt
i íþróttakeppni iiínan véhanda
Í.S.Í., nema að hann liaí'i til þess
í'engið læknisvottorð, er sanni,
að viðkomandi sé fullkomlega
heilbrigður og hafi þjálfun til
að þola harða keppni, án þess
að.verða meint af.
Ennfreniur hefir stjórn Í.S.Í.
samþvkkt, að eklci sé leyfilegt
að láta íþróttakeppni fara fram,
nema að læknir sé viðstaddur.
Viðkomandi íþróttaráð og for-
stöðunefndir móta skulu sjá um
að þessum ákvæðum sé fram-
fylgt, og hera þessir aðilar fulla
i
Helgafellið
hæit komíð.
Gísli Jónsson forstjóri kom í
morgun vestan af Patreksfirði
með „Helgafellinu“ eftir 36 klst.
ferð að vestan sem er þrisvar
sinnum lengri tími, en venju-
lega þarf til að komast þessa
leið.
Helgafell lagði af stað frá
Patreksfirði ld. 81/, síðd. þann
2. des. s. 1. Um nóltina fengu
þeir versta veður og haugasjó.
Fyllti skipið um nóttina undir
Bjarginu, en gat þö Iialdið för
sinni áfram.
En i gærmorgun var sjór svo
mikill auk hvassviðris, að ekki
var viðlit að lialda áfram. Lá
Ilelgafellið við svokallaðan Koll-
ál vesturundan Jöldi fná því ld.
7i/o i gærmorgun til kl. 11 /4 í
nótt eða 16 ldst. samfleytt beitt
upp í vindinn og gat sig eklci
hreyft fyrir sjógangi. Gengu
sjóirnir látlaust yfir skipið og
fylltist það, svo að í nærri 1 klst.
var það kolfullt af sjó, urðu
skipverjar að brjóta upp þó
nokkur lýsisföt til að lægja sjó-
ina umhverfis skipið.
Um miðnætti í nótt gat skip-
ið loks lagt af stað, en ferðin
gekk seint, einkum í fyrstu, því
vélin var eklci í gangi og skipið
þungt. Lónaði það aðeins und-
an vindi til að byrja með. Er á
leið nóttina gekk skipið ]>ó öllu
betur og kom í morgun hingað
til Reykjavíkur.
Sagði Gísli í viðtali við frétta-
ritara Vísis i morgun, að enda
þótt sér þætti ferðin hin sögu-
legasta, væri þetta víst eklci i
frásögur færandi, því þetta væri
daglegur viðburður í lífi sjó-
mannanna.
í STUTTU MÁLI
Nokkurrar óánægju liefir
orðið vart í Rússlandi vegna
láns og leiguvörusendinganna
til Arkangel, og segir í fregn frá
Bandarikjunum, að bráðlega
verði bætt úr óánægjunni.
Japanir liafa enn engu svarað
orðsendingu Cordells Hull á
dögunum, né fyrirspum Roose-
velts. Horfurnar í Austur-Asíu
eru stöðugt taldar ískyggilegar,
en þó dálítið skárri en að und-
anförnu, því að vægast sagt eru
Japanir dálítið hikandi þrátt
fyrri hægslaganginn í blöðum
þeirra.
áhyrgð á, ef út af er brugðið.
Ævifélagi 1. S. I. liefir nýlega
gerzt K. A. Bruun, gleraugna-
sérfræðingur, og eru nú ævifé-
lagar Sambandsins 122 að tölu.
Stjórn í. S. í. hefir nýlega
gengið frá flokkaskiptingu
skíðamanna, er hefir verið send
fil allra félaga, sem skíðaíþrótt-
ina iðka.
I Knattspyrnuráð Reykjavík-
ur hafa þessir menn verið skip-
aðir: Formaður: Pétur Sigurðs-
son, háskólaritari, til ein,s árs;
og meðstjórnendur til tveggja
ára: Jón Sigurðsson fyriv Fram;
Sigurðiu* Halldórsson fyrir
Knattspyrnufélag Reykjavikur;
Ólafur Sigurðsson fyrir Val og
Guðjón Einarsson fyrjr Viking.
Sömiddðis hiifa Yerið skipað-
ir tveir varamenn i K.R.R., fyi’-
ir hvert hinna fjögra knatt-
spyrnufélaga. , *
íþróttakvikmyndir S. S. I. Þaii
félög, sem óska að* fá kvik-
myndir Sambandsins lánaðar
til sýningar, verða að sækja um
það til stjórnar í. S. I. með viku
fyrirvara.
Sundmót Ármanns
í Sundhöllinni í kvöld.
Sundmót ]>etta mun haldið i
tilefni af afmæli Ármanns, sem
er hráðlega (félagið er stofnað
15. des. 1888). Hefst mótið kl.
8 M>. Keppendm* eru 40—50, frá
K. R., Ægi og Ármanni.
Keppt verður i sex greinum:
50 metr. sundi, frjáls aðf. Meðal
þáttlakenda Stefán Jóiisson og
Gunnar Eggertsson (Á), Hörð-
ur Sigurjónsson (Æ) og Rafn
Sigurvinsson (K.R.). — 500 m.
bringusund. Þátttakendur Ingi
Sveinsson (Æ), Sigurjón Guð-
jónsson (Á), Georg Thorberg
(K.R.) Mjög spennandi keppni
í 4x50 m. bringuboðsumdi (K.
R„ Æ., Á.). Auk þess 4x100 m.
frjáls aðferð; 100 m. frjáls aðf.
drengir innan 16 ára; 100 metra
bringusund, drengir innan 16
áa. Einnig sýndar dýfingar.
Aðgöngumiðar seldir í Sund-
höllinni í dag.
Bílstjórar segja
upp kaupsamn-
ingum.
Húsgagnasveinar
einnig,
Tvö fagfélög hafa epn' sagt
upp kaupsamningum sínurn við
atvinnurekendur.
Bifreiðastjórafélagið Hreyfilí
hefir sagt upp samningum við
bifreiðastöðvarnar og Strætis-
vagna Reykjavikur h.f. Sam-
þykktu bifreiðastjórar fyrir
mánaðamótin að segja upp, en
samningar þeirra gilda til 1.
marz næsta ár.
Sveinafélag húsgagnasxniða
liefir og sagt upp samningum
frá sama tíma.
Samningaumleitanir milli
prentara og prentsmiðjueiganda
munu vera um það bil að hefj-
ast. Samningar Hins íslenzka
pi*entarafélags eru útrunnir um
áramótin.