Vísir - 08.12.1941, Blaðsíða 2
V 1 S I R
t
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN . VÍSIR H.F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson
Skrifst.: Félagsprentsmiðjunni
Afgreiðsia: Hverfisgötu 12
(Gengið inn frá Ingólfsstrsöti)
Símar 1 6 60 (5 línur).
Verð kr. 3,00 á mánuði.
Lausasala 15 og 25 aurar.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Hitaveitan og
eir eru sjálfum sér verst-
ir, þessir blessaðir menn.
Það má nú segja. Líklega er
þeim alveg óviðbjargandi. Þeir
geta engu gleýmt og ekkert
lært. Aldrei geta þeir látið sér
neitt að kenningu verða. Alltaf
þurfa þeir að liggja á sjálfs
síns bragði. Það er eins og þetta
auðnuleysi sé ekki einleikið-
Bæjarstjórnarkosningar eiga
að fara fram i næsta mánuði.
Kosningabaráttan er að byrja.
Alþýðuflokkurinn gengur með
lifið í lúkunum. Hann þarf að
ná sér í eitthvert flothólt. Og
hvað verður honum hendi
næst? Ekki einu sinni hálm-
strá. Það er ekki svo vel. Nei,
hann grípur dauðahaldi i
sjálfa blýsökkuna, eins og lion-
um. sé það eitt í hug að kom-
ast ennþá lengra niður í græn-
golandi ófarnaðinn og fylgis-
leysið. Var ekki andstaðan
gegn hitaveitunni orðin Al-
þýðuílokknum nógu dýrkeypt,
þó hann færi ekki enn að gera
sig beran að fjandskap við
málið?
Það er ekki ánægjulegt fyrir
AlþýSuflokkinn að líta yfir
fariim veg, en þó verður hann
að harka það af sér, ef hann
vill vita hvar hann stendur í
dag. Hversvegna hefir hann
misst fyígið? Ástæðurnar eru
vitanlega fjölmargar, og skulu
aðeins fáar nefndar. Ein er sú,
að hinum óbreyttu liðsmönn-
um hefir fundizt foringjarnir
hugsa meira um sjálfa sig en
liðið. önnur er sú, að flokkur-
inn hefir hrugðizt yfirlýstri
stefnu sinni i þýðingamiklum
málum. T. d. má nefna það, að
fyrir síðustu kosningar var því
lýst yfir, að hvað sem á dyndi
mundi flokkurinn aldrei garrga
inn g gengislækkun. Áður en
tvö ár ,voru liðin liafði flokk-
urinn gkki einungis gengið inn
á gengislækkunina, heldur
höfðu sumir af kununstu leið-
togum hans gerzt flutnings-
mejin málsins á þingi og bar-
izt fyrir því, eins og um.væri
að ræða eitthvert mesta sálu-
hjálparatriði í barnatrú þeirra.
Sama er að segja um varalög-
regluna. Þar brugðust foringj-
arnir, þegar til kom, öllu því,
sem þeir höfðu sagt Iiðsmönn-
um sínum undanfarinn hálfan
annan áratug. Meðal hinna ó-
breyttu liðsmanna er litið á
þessar aðfarir leiðtoganna, sem
vott þess að þeir hafi viljað
allt til vinna að fá að vera í
stjórnaraðstöðu.
En þótt flokkurinn liafi beð-
ið hið mesta tjón af þeim á-
stæðum, sem hér hafa verið
nefndar, er óhætt að fullyrða,
að ekkert eitt mál hefir spillt
eins fyrir flokknum og and-
staðan gegn hitaveitunni. Al-
þýðuflokkurinn hefir alltaf
tjaldað því tvennu, að hann
væri umbótaflokkur, en Sljáf-
stæðisfloklcurinn hins vegar
kyrrstæður og framkvæmda-
laus afturhaldsflokkur. Hita-
veitan er að allra dómi mesta
menningarframkvæmd, sem til
hefir verið stofnað á þessu
landi. Andstaðan gegn henni
er andstaða gegn auknum jiæg-
indum, bættu heilsufari og
bættum efnahag höfuðstaðar-
búa.
Framkoma fyrrverandi
stjórnarflokka hefir verið slík
í þessu máli frá öndverðu, að
þeim er hollast, að ekki sé á-
málið minnst, þegar. þeir leita
kjörfylgis bæjarbúa. Formað-
ur Framsóknar lýsti þvi rétti-
Iega yfir snemma á árinu 1938,
að ástæðan til þess, að hita-
veitulánið í Englandi brást,
væri sú, að fjárhagsástæður
landiin.1? væru slikar, að ekki
mætti búast við að nokkur
maður lánaði hingað fé „að
óhreytum kringumstæðum“.
Þegar sjálfstæðismenn höfðu
fengið íhlutun uin stjórn lands-
ins, komst málið þegar á rek-
spöl. En þegar samningurinn
var gerður i Danmörku 1939,
gat formaður Framsóknar-
flokksins ekki leynt gremju
sinni. Hann bölsótaðist yfir því,
að sá samningur væri „versta
plaggið“, sem nokkurn tíma
hefði til Islands borizt.
Allir vita, að hitaveitan hefði
verið komin á, ef styrjöldin
liefði ekki stöðvað flutninga á
efninu frá Danmörku. Nú eru
vonir um, að úr þessu rætist.
Hitaveitan verður að sönnu
dýrari en lil var slofnað. En
hækkunin er þó ekki nærri eins
mikil og kolahækkunin á sama
tíma. Þess vegna hljóta allir
heilbrigðir menn að fagna ]ivi,
ef þetta fyrirtæki kemst upp,
þrátt fyrir styrjöldina.
Alþýðuflokkurinn á eftir að
reyna það, að framkoma hans
í hitaveitumálinu verður hon-
um erfið. Honum hefði þess
vegna verið hollast, að gefa
ekki íilefni til þess að sú fram-
koma væri rifjuð upp. Nú hef-
ir hann enn sýnt andúð sína,
þegar horfur hafa batnað um
framkvæmd málsins. Það sýn-
ir, livað liann er heillum horf-
inn. a.
Skídaferdir.
40-50 manns á
skíðum á Kol-
viðarhóli í gær.
íþróttafélögin hér í bænum
notfærðu sér fyrsta snjóinn á
haustinu, með því að heimsækja
í fyrrakvöld og í gær skíðaskála
sína og stíga á skíði. Fjölmenn-
ast var á Kolviðarhóli, og munu
40—50 manns hafa verið þar á
skíðum.
Kvartaði fólk samt undan
snjóleysi á Hólnum og liélt það
sig mest á túninu og í gili utan-
vert við túnið.
Nokkrir Ármenningar fóru í
fyrrakvöld upp i Bláfjöll og
gengu þeir á skíðum alla leið
frá akveginum og upp i Bláfjöll-
in. Sögðu þeir að snjór hefði
verið nægur í BláfjöIIum og
færi prýðilegt.
Fáeinir K. R.-ingar fóru í
skála sinn hjá Skálafelli í gær-
morgun, en frekar í eftirlits-
ferð heldur en með það fyrir
augum að fara á skíðum, enda
hefði skíðafæri verið lélegt
vegna þess hvað snjórinn var
litill.
„Gasmjólk((
Aðfaranótt laugardags voru
um 10 menn teknir fastir fyrir
ölvun á almannafæri.
Eins og venjulega gófu menn
upp ýmiskonar áfengi, sem or-
sök ölvunarinnar, en einn gaf
það upp, að hann hefði drukkið
„gasmjólk“. Hélt hann fast við
þann framburð, hvernig sem
hann var spurður og hvikaði
ekki frá honum.
Alþýðuflokkurinn.
Mýkomlds
Flauel
í mörgum litum.'
(Vefnaðarvörudeildiný.
Grettisg. 57. Sími 2849.
Bæjop ■ i
. fréiíír |
Systrafélagið „Alfa“.
Samkvæmt auglýsingu á ö'Örum
stað hér í blaðinu heldur Systrafé-
lagið ,,Alfa“. liinn árlega Basar sinn
til síyrktar fyrir líknarstarfiS á
morgun kl. 3 e. h. í GóÖtemplara- j
húsinu, .niðri.
Málverkasýningu
hefir Finnur Jónsson, listmálari.
opnaÖ á vinnustofu sinni, íþöku viÖ
Menntaskólann. Er hún daglega op-
in frá 11—12 árdegis og 1—10 síð-
degis. GengiÖ er inn á Menntaskóla-
lóðina frá Bókhlöðustíg.
Hjúskapur.
Síðastl. föstudag voru gefin sam-
an í hjónaband af síra Árna Sig-
urðssyni Ólafía Einarsdóttir og
Hans Kristjánsson, forstjóri. Heim-
ili Jieirra er á Víðjmel 37.
Ferðafélag fslands
heldur skemmtifund í Oddfellow- j
húsinu Jiriðjudagskvöldið 9. des.
1941. Húsið opnað kl. 8,45. Sýnd-
ar skuggamyndir frá Hengli, út-
skurðar af mag. scient. Steinþóri
Sigurðssyni. Dans á eftir til kl. 1.
Aðgöngumiðar seldir á þriðjudag-
inn í l)ókaverzl. Sigfúsar Eymunds-
sonar of ísafoldarbókaverzlun.
Næturlæknir.
Halldór Stefánsson, Ránargötu
12, sími 2234. Næturvörður í Lyfja-
búðinni Iðunni og Reykjavíkur apó-
teki.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 18.30 íslenzkukennsla, 1. fl.
19.00 Þýzkukennsla, 2. fl. 19.25
Hljómplötur: Skemmtilag eftir
Stravinsky. 20.00 Fréttir. 20.30 Um
daginn og veginn (Magnús Jónsson
prófessor). 20.50 Hljómplötur. —
20.55 Þættir úr Heimskringlu, V.
(H. Hjv.). 21.20 Útvarpshljóm-
sveitin: Amerísk þjóðlög. Ein-
söngur (Gunnar Pálsson).
Misritazt
hafði í Vísi á laugardaginn heiní-
ilisfang Sigriðar Guðjónsdóttur frá
fsafirði. Er hún nú til heimilis á
Hverfisgömi 83 hérl í bænum.
Heglusamup
og ábyggilegur niaður ósk-
ar eftir .að verða meðeigandi
í góðu fyrirtæki. Framtíðar-
atvinna áskilin. Tilboð með
tilgreindu nöfni fyrirtækisins
sendist Visi sem fjn-st,
merkt: „Þagmælskuheiti“.
Ódýrt
Rennilásatöskur, smáar og
stórar (leður), kvenveski
(leður), allskonar leikföng,
mjög ódýr, dúkkur, stórar á
kr. 20.00, khakiskyrtur á kr.
11.50 o. m. m. fl.
Leðurvöruverkstæðið.
Skólavörðustíg 17 A.
rrrrruyii. <>i nrrm
1:11 -r-1
Súðin
fer vestur um land til Altur-
eyrar eftir miðja þessa viku.
lvomið verður við á Húna-
flóahöfnum aðeins í baka-
leið.
Vörumóttaka á alla venju-
lega viðkomustaði á morgun
og til liádegis á miðvilcudag.
Pantaðir farseðlar óskast
sóttir á miðvikudag.
„Björn Austræni"
hleður á morgun til Bolung-
arvíkur, Súgandafjarðar og
ísafjarðar.
Vörumóttaka til Iiádegis.
»
mm
Grámann og
Mjaflveig Mánadflttir
eru gerðar eftir íslenzkum þjóðsögum, og með
teikningum eftir íslenzka listamenn og eru því
þjoðlegar barnabækur.
Nendisveinn
óskast strax til léttra sendiferða. Þarf að hafa hjól.
hátt kaup. — A. v. á.
§IdLIK«AR
milli Bretlands og Islands halda áfram,
eins og að undanförnu. Höfum 3—4
skip í för.um. Tilkynningar um vöru-
sendingar sendist
Cnllnford «& €lark ua.
BRADLEYS CHAMBERS,
LONDON STREET, FLEETWOOD.
kóðnr
bifreiðarstjóri
getur fengið atvinnu við að keyra góðan fólksbíl A.v.á.
Veggfóður og
veggfóðurslím
ppnoor
Mótorskipið
CAPITANA
er til §öln.
Skipið, sem er útbúið til flutnings á ísuðum fiski, er
287.57 brúttó smálestir að stærð. — Skrifleg tilboð
vsendist undirrituðum eigi síðar en 14. desember. —
Réttur er áskilinn til að hafna öllum tilboðum.
MAGNÚS ANDRÉSSON.
Hótel ísland. — Sími: 5707.
ALADD1N“ Qlíulampnr
9 y JT\ JU JLml J3J U JLJL « með glóðarneti
„ALADDir Verzlon 0. Ellis OlliBinr
osen bl
Konan mín, móðir og tengdamóðir okkar,
Guöfinna Pétursdóttir
Fálkagötu 26, andaðist á Landakotsspítala 6. desemher.
Halldór Steinþórsson.
Inga Halldórsdóttir. Valdemar Þórðarson.
Hólmfríður Gísladóttir. Haraldur Halldórsson.
Innilegt þakklæti til allra þeirra, sem veittu oklcur lijálp
og liuggun í veikindum mannsins míns og föður okkar,
Gísla Pcturs Jóhannessonar
og við fráfall hans.
Fríður Tómasdóttir og börn.