Vísir - 14.02.1942, Page 3

Vísir - 14.02.1942, Page 3
Úr ýmsum átlum frá U. P. Júgóslavnesku ættjarðarvinirnir láta aldrei taka sig lifandi. Foringi þýzka hersins við Múrmansk • Sprengjuflugvélar í 11.500 hlutum • Tanner hinn finnski • Fangelsi án múra og fangavarða.-- Setuliði Þjóðverja og ítala i Júgóslavíu mun að lik- indimi takast smám saman að fella ættjarðarvinina, sem enn veita viðnám, en það mun aldrei takast að handsama þá íifandi. Ef einhver þeirra væri svo ó- gætinn, að Þjóðverjum eða íl- ölum tækist að ná honum á lífi mundi liann hafa svikið eiðinn, sem hann sór við rýtinginn sinn, vættan í hlóði sínu, og skamm- byssuna sina, er hann gekk í leynifélagið serbneska, sem nefnist „Clietnik". Það þýðir „hinir velvakandi“. Fréttaritari United Press i Belgrad — Leon Kay — fékk tækifæri til þess að vera við- staddur þegar nýr félagi var lát- inn sverja trúnaðareiðinn. Þetta var mánuði áður en Þjóðverjar réðust inn í Jugóslavíu. Frétta- ritáranum var ekið að nætur- lagi út fyrir Belgrad og stað- næmst við hreysi bónda eins. Þar inni siátu 10 grímumenn umhverfis horð. Ellefti maður- inn — hinn nýi félagi — vann við ritstjórn blaðs eins i Bel- grad. Það var vinveitt Þjóðverj- um og leynifélagsskapurinn vildi því gjarnan hafa njósnara meðal starfsmanna þess. Athöfnin var ofureinföld. Rýtingur og skammbyssa hins nýja félaga liggja í kross á borð- inu. Rýtingirrinn hefir verið vættur í hlóði —- blóði manns- ins, þvi að æð í handlegg lians liafði verið opnuð. I skamm- byssunni er aðeins eitt skot — merki þess að góður Chetnik ætli alltaf sjálfum sér síðasta skotið, láti aldrei taka sig til fanga. Þegar inaðurinn hefir unnið eið að þvi að fylgja í blindni reglum félagsskaparins, eru honum sögð nöfn tíu annara félagsmanna og engra annara. Þá er atliöfnin á enda. Chetnik-félagsskapurinn var stofnaður er Tyrkir réðu á Balk- anskaga fyrr á öldum. Þegar Þjóðverjar höfðu sigrað heri Júgóslava leituðu margir ó- breyttir liermenn og liðsforingj- ar upp í fjöllin og tólcu með sér þau vopn, sem hægt var að flytja. Hafa þeir meðal annars léttar fallbyssur. —o— Hershöfðinginn, sem er fyrir her Þjóðverja 'á nyrztu vígstöðvum Rússlands, er Nikolaus von Falkenhorst, sá sami og stjórnaði innrás Þjóð- verja í Noreg. Er þetta í annað sinn, sem Falkenliorst berst við hlið Mannerheims, marskálks, því að árið 1918 var hann send- ur til Finnlands með liði, til þess að hjálpa Finnum til að sigra raliðliða. Falkenhorst gekk i gamla keisaraherinn árið 1903, er hann var 17 ára gamall. Tólc hann þátt í nokkurum orustum á Vesturvigstöðvunum tvö fyrstu heimsstyrjaldarárin, en var þá tekinn i lierforingjaráðið. Hlaut hann nokkur heiðursmerki fyr- ir afrek sín í heimsStyrjöldinni. Þegar henni var lokið var von Falkenhorst í þjónustu her- málaráðuneytisins og var her- málaráðgjafi við sendisveitir Þjóðverja í Prag, Belgrad og Búkarest. Árið 1935 var hann gerður að formanni herforingja- ráðs þriðja hersins í Dresden, en ári síðar tók hann við stjórn 32. fótgönguliðsdeiklarinnar. Falkenhorst tók þátt i inn- rásinni í Pólland 1939 og börð- ust menn lians í Austur-Prúss- landi. Síðan varð liann fyrir valinu til að stjórna innrásinni í Noreg, því að hann hafði sér- staklega kynnt sér fjallahernað. TJ ifreiðasmíðar eru barna- leikur í samanburði við það verk, sem margar hifreiða- verksmiðjur í Bandaríkjunum hafa nú tekið að sér — nefnilega smíðar á sprengjuflugvélum eða hlutum þeirra. Chrysler-verksmiðjurnar, er venjulega framleiða Clirysler- bíla, De Soto, Plymouth og Dodge, liafa tekið að sér að smíða alla hluti i fram- og mið- hluta sprengjuflugvélaskrokka. Eru það 13 smálesta Glenn Mar- tin sprengjuflugvélar, sem Chrysler lijálpar við að smíða. Til jiess að sýna, að 'það sé rétt slaðhæfing, að bifreiða- smíðar sé barnaleikur i saman- burði við flugvélasmíðar er rétt að gera nokkurn samanburð. Það eru 2500 hlutir í bifreið- arskrokk (Plymoulh 4ra dyra) en í þeim tveim skrokklilutum, sem að framan eru nefndir, eru 11.500 hlutir alls. San)settur vegur bílskrokkur- inn 976 ensk pund, en flugvéla- hlutarnir vega samtals 4800 ensk pund. Bílskrokkurinn er samtals 11 fet og 5 þumlungar (um 3.47 m.), en flugvélalilutarnir eru alls 33 fet á lengd (rúmlega 10 m.). Það er aðallega aluminíum, sem notað er við flugvélahlut- ina — nemur það 85% af öllu efni, sem fer í þá, eða rúmlegá 4000 pundum. Chrysler-verksmiðjurnar eiga alls að framleiða hergögn fyrir 400.000.000 dollara til að hyrja með. I að er oft sagt um Vaino Tanner, að liann sé eini Finninn, sem er þtekktur um allan heim og á það að stafa af því, að hann liefir í 15 ár verið forseti alþjóðasambands sam- vinnufélaga. Tanner er 60 ára gamall og hefir komið við opinbert líf í ! Finnlandi frá þvi árið 1907. Hann var kosinn á þing árið I 1917 fyrir flokk sósíaldemó- | krata og liefir jafnan verið með- al atkvæðamestu manna í þeim flbklci. Tanner er nú verzlunarmála- ráðherra finnsku stjórnarinnar. Hann hefir áður verið ráðherra og m. a. meðan Finnar vörðust Rússum veturinn 1939—40, en vegna fjandskapar Rússa varð hann að segja af sér sæti utan- ríkismálaráðherrans um sumar- ið 1940. Þegar borgarastyrjöldin geisaði í Finnlandi í lok heirns- styrjaldarinnar var Tanner fjármálaráðlierra. í rúman aldarfjórðung liefir Tanner verið framkvæmda- stjóri eins stærsta kaupfélags í Finnlandi. Er það Elanto-kaup- félagið í Helsinki, en hann var kosinn i stjórn þess árið 1915. Meðlimir félagsins eru um 90.000 og það á 400 verzlanir í Helsinki og umhverfi. Hjá borginni Chino í Cali- forniu er fangelsi, sem er einstakt í sinni röð. Þar eru eng- ir fangaverðir né fangelsismúr- ar. Fangelsið er hálfgerður hóndabær í San Bernardinodaln- um og í fyrstu var ætlað að taka Mötisneyti stúdenta vantar kvenmann til þvotta, 2 daga í viku. Einnig stúlku til valctaskipta við uppþvott. Uppl. í MÖTUNEYTI STÚDENTA, Háskólakjallaranuum. 2 §tnlkur vantar okkur á loðskinnasaumastofu okkar. Klæðaverzl. ANDRÉSAR ANDRÉSSONAR h/f. Laugaveg 3. Ntúlku vana karlmannavestissaum, vantar okkur á lsta flokks vinnu- stofu okkar. Klæðaverzl. ANDRÉSAR ANDRÉSSONAR h/f. Laugaveg 3. 1300 ekru land til afnota í þessu skyni, en nú hefir 1100 ekrum verið bætt við. Er þegar rúm fyrir 440 fanga, en ætlunin er að alls verði þar 1500 fangar, þegar fram liða stundir. Chino-fangelsið er haft fyrir fanga, sem settir eru inn fyrir fyrsta glæp sinn og sálarfræð- ingar telja að geti orðið þarfií og góðir þjóðfélagsborgarar, ef þeir verða eklci fyrir áhrifum forhertra glæpamanna. Þess- | vegna er Chino-fangelsið látið vera eins frábrugðið venjuleg- um fangelsum og hægt er. Um fangelsislandið eru engir veggir, aðeins girðing. Fangarn- ir geta valið um matarrétti í „veitingahúsi“ fangelsisins og þeir geta ráðið, livernig þeir eru klæddir. Fangaverðir í einkenn- isbúningum eru ekki þarna, heldur liafa verkstjórar eftirlit með föngunum og halda uppi aga. Girðingin er frekar sett upp til þess að bægja forvitnu fólki frá að koma og skoða fangelsið, en til þess að koma i veg fyrir flóttatilraunir fanganna. Mesti örðugleikinn við stofnun fang- elsisins var að fá samþylcki liér- aðsbúa í San Bernandino-hér- aði á þessu. Þeim leizt ekki á þá hugmynd að hafa í liéraðinu hundruð fanga, sem léki svo að segja lausum hala. En jætta hef- ir tekizt svo vel, að mótmæli heyrast ekki framar. Fangarnir sofa í svefnskálum, en jió eru margir klefar fyrir þá, er bregðast traustinu, sem þeim er sýnt. Fangarnir vinna að landbún- aði, kvikfjárrækt, njðursuðu og margskonar öðrum þarflegum störfum. Rækta þeir sjálfir all- an mat, sem ]>eir borða. Messur á morgun. Dómkirkjan: Kl. n síra Bjarni Jónsson (altarisganga), — kl. iþá barnaguðsþjónusta (síra Fr. Hall- grímsson), kl. 5 síra Friðrik Hall- grímsson. N esprestakal l: Bar naguðsþ j ón- usta í Skerjafirði kl. 11 f. h. — og messa þar kl. 5 síðd. Hallgrímsprcstakall: Kl. 10 f. h. sunnudagaskóli í Gagnfræðaskólan- um við Lindargötu. — Kl. 11 f. h. barnaguðsþjónusta í Austurhæjar- skólanum. Síra Jakob Jónsson. Kl. 2 e. h. messa í Austurbæjarskólan- um. Síra Sigurhjörn Einarsson. Langarncsprestakall: Guðsþjón- ustur falla niður í Laugarnesskóla á morgun (einnig barnaguðsþjón- usta). Fríkirkjan í Rcykjav-ík: Kl. 2 barnaguðsþjónusta, síra Árni Sig- urðsson. Kl. 5 sira Árni Sigurðs- son. Hafnarfjarðarkirkja: Kl. 5 síðd. Sr. Hálfdan Helgason messar. Útvarpið í kvöld. Kl. 15.30 Miðdegisútvarp. 18.30 Dönskukennsla, 2. fl. 19.00 Ensku- kennsla, 1. fl. 19.25 Hljómplötur: Samsöngur. 20.00 Fréttir. 20.30 Tónskáldakvöld: Karl O. Runólfs- son. 22.00 Danslög til kl. 24. Útvarpið á morgun. Kl. 10.00 Morguntónleikar (plöt- ur). 11.00 Messa i -dómkirkjunni _(sr. Bjarni Jónsson). 12.15 Hádeg- isútvarp. 15.30 Miðdegistónleikar (plötur: Norðurlandatónskáld. — 18.30 Barnatími (síra Jakob Jóns- son). 19.25 Hljómplötur: Karneval eftir Schuinann. 20.00 Fréttir. 20.20 Hljómplötur: Létt sönglög. 20.30 Erindi: Hvað heldur Islandi uppi ? (Guðm. Kjartansson mag.). 20.55 Samleikur á harmonium og píanó (E. Gilfer og Fr. Weisshappel): Adagio og Serenade eftir Beethoven. 21.10 Upplestur: Úr þulum Theó- dóru Thoroddsen (Lárus Pálsson leikari). 21.30 Hljómplötur| Dans- sýningarlög úr „Le Cid“ eftir Mas- senet. 22.00 Danslög til kl. 23. I r ýiiiNiiin attiina Kínverskur stúdent, sem stund- aði nám við háskólann í Michigan, lærði siði vestrænna þjóða úr siðabók. Lagði hann á minnið ýms- ar setningar. Fyrsta skiptið, sem stúdentinn var boðinn út, ákvað hann að nota kunnáttu sína. Hann var boðinn til tedrykkju og þegar honum var færður tebolli, þakkaði hann fyrir sig á þessa leið : „Þakka yður fyr- ir, herra eða frú, eftir því hvort á við.“ • Ameríkumaður hafði ferðast til Evrópu, en fariö hratt yfir og ekki verið lengur en tvo daga í höfuð- borg hvers lands. Þegar hann kom heim var hann spurður, hvort hann hefði komið til Feneyja: „Já,“ svaraði hann, 4 „en það voru svo mikil flóð þar, að við stóðum ekkert við. Vatnið flæddi yfir allar götur, svo að ekki var hægt að komast neitt nema í bát- um.“ Candíssykur. Púðursykur. Flórsykur. Búðingsduft, útl., fl. teg. SIMI 4205 §I«LIH«AR milli Bretlands og Islands halda áfram, eins og að undanförnu. Höfum 3—4 skip í förum. Tilkynningar um vöru- sendingar sendist Cnllif ©i*d A Clark i.t«i. BRADLEYS CHAMBERS, LONDON STREET, FLEETWOOD. \1\0\------------------------------------ Kvöld- og eftirmiðdags (model) k jólar. Sportk jólar úr angora og jersey. Hvitir brúðark jólar. Vatteraðir silkisloppar. Barakastræti 7. Tilk^iiiiiiig frá skrifstofu lögreglustjóra Til viðbótar við það, sem áður hefir verið auglýst, tilkynnist hér með, að vegabréf eru nú afgreidd til fólks,. sem bjó samkvæmt síðasta manntali við eftirtaldar götur: Garðastræti, Garðaveg, Grandaveg;, Grensásveg, Grettisgötu, Grímsstaðaholt, Grjótagötu, Gróf- ina, Grundarstíg og Gunnarsbraut *' ' ' 4. ■■ _ Og er fólk, sem samkvæmt síðasta mannlali bjó við þær götur, sem nú þegar hafa verið auglýstar, áminnt um að sæk ja vegabréf sín hið allra fyrsta. LÖGREGLUSTJÓRINN I REYKJAVÍK. Smásöluverð á eldspítum Útsöluverð á eldlspýtum má eigi vera hærra en hér segir: VULCAN eldspýtur (í 10 stokka búntum), búnlið kr. 1.25 — stokkurinn 13 aura. > # Utan Reykjavikur og Hafnarfjarðar má verðið vera 3% hærra, vegna flutningskostnaðar. ‘ TÓBAKSEINKASALA RÍKISINS. Tilkyiiiiiii:* Irð iideyris- os ifluinisosnei Með tilvísun til tilkynningar viðskiptamálaráðuneyt- isins, dags. 4. þ. m., um kaup á hampi, gúmmívörum, járni, stáli og öðrum málmum frá Bandaríkjunum fyr- ir milligöngu ríkisstjórnarinnar, er hér með vakin at- hygli viðkomandi innflytjenda á því, að umsóknir um gjaldeyris- og innflutningsleyfi fyrir vörum þessum fyrir 12 mánuði þurfa að vera komnar til nefndarinn- ar fyrir 25. þ. m. Umsóknunum skulu fylgja upplýsingar um birgðir af þessum vörum og um það, hve mikið umsækjandi hefir þegar pantað af þeim og gerir ráð fyrir að fá af- greitt eftir venjulegum viðskiptaleiðum. Reyk javík, 14. febr. 1942. GÍALDEYRIS- OG INN FLUTNIN G SNEFND. Leðnrhú§g:ög:n sóffi og tveir stólar, óskast. Húsgagnaverzl. KRISTJÁNS SIGGEIRSSONAR.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.