Vísir - 25.02.1942, Blaðsíða 1
Ritstjóri:
Kristján Guðlaugsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð).
32. ár.
Ritstjóri 1
Blaðamenn Simi:
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri S Knur
Afgreiðsla
Reykjavík, miðvikudaginn 25. febrúar 1942.
24. tbl.
16. þýzki herinn króaður
inni við Staraya Russa.
12.000 ÞJóðverjar félln 1 bardög:-
n n u m þar.
EINKASKEYTI frá United Press. New York í morgun.
Ifregnum frá Moskvu árdegis í dag segir, að or-
usturnar á Staraya Russa-svæðinu, sem lykt-
aði með sigri hers Kurovski herforingja, yfir
16. þýzka hernum, hafi staðið í 8 daga samfleytt.
Sigur þessi er talinn einhver hinn þýðingarmesti sem
Rússar hafa unnið í styrjöldinni.
Auk þess sem 12.000 menn féllu af liði Þjóðverja,
tóku Rússar marga fanga, og mikið herfang. M. a. tóku
þeir þar 185 fallbyssur, 29 skriðdreka, járnbrautar-
vagna í tugatali, mikinn fjölda herflutningabíla, skot-
færi, þ. á. m. eina milljón riffil- og vélbyssuskota.
í fyrri fregnum segir svo:
Rússar hafa unnið mikinn sig-
ur á vigstöðvunum fyrir sunnan
Ilmenvatn, að því er hermt er í
sérstakri aukatilkynningu, sem
birt var í Möskvu seint í gær-
kveldi. Þegar Rússar höfðu kró-
að þarna inni 16. þýzka herinn
— her von Busch — gerðu
Rússar áhlaup, eftir að von
Busch hafði neitað að gefast
upp. Um 12.000 Þjóðverjar féllu
í bardögunum.
Staraya Russa er um 200 kíló-
metra frá landamærum Rúss-
lands og er Staraya Russa mjög
mikilvægur hær þar sem þar
mætast margar járnbrautir.
Rússar segja, að þarna hafi
verið gersigruð 290. og 30. her-
fylkið og herfylki stormsveitar-
manna.
Rússar tóku þarna mikið her-
fang m. a. um 186 fallbyssur,
bíla, járnbrautarvagna, riffla og
Vélbyssur o. m. fl.
Áframhald er á bardögum á
svæðinu milli Vyasma og Smol-
ensk, þar sem Rússar tóku í gær
þýðingarmikla jórnbrautarstöð.
Þjóðverjar bafa sent þangað allt
það varalið, sem þeir geta.
í rússneskum tilkynn. segir,
að þýzkar hersveitir, sem sendar
voru suður á Krít sér til livíldar,
séu nú komnar til austurvíg-
stöðvanna, enda þótt tilætlunin
liafi verið, að þær fengi hvíld
þar til vorsóknin byrjaði.
MIKIÐ FLUGVÉLATJÓN
ÞJÓÐVERJA VIKUNA SEM
LEIÐ. —
Rússar tilkynntu í gærkveldi,
að mánudag síðastliðinn hefðu
þeir grandað í loftbarögum og á
jörðu 21 þýzkri flugvél, en vik-
una sem endaði á laugardaginn
var misstu Þjóðverjar 157 flug-
vélar, en Rússar 64.
Hafa Japanir sett lið
á land fyrir suð-
vestan Rangoon,
Östaðfestar fregnir, sem
borizt hafa til London,
herma, að Japanir hafi kom-
ið liði á Iand við mynni Ira-
waddy-fljót fyrir suðvestan
Rangoon. Hafa Japanir til-
kynnt þetta, en Bretar ekki
játað það ennþá.
Jafnframt berast fregnir
um það, að kveikt hafi verið
í mörgum vöruskemmum,
sem ekki hafi verið hægt að
flytja vörurnar úr.
G-menn handtaka þýzka og
ítalska njósnara í Kaliforniu.
G-menn (leynilögreglu-
menn sambandsstjórnarinn-
ar í Washington) gerðu hús-
rannsókn á mörgum stöðum
á Kaliforniuströnd í fyrra-
kvökl í sama mund og jap-
anski kafbáturinn var að
slcjóta á olíuslöðina fyrir
norðan Sanla Barbara.
Margir þýzkir og ítalskir
njósnarar og undirróðurs-
menn voru teknir höndum og
voru þeirra meðal þýzk fyrr-
verandi prinsessa, ítalskur
greifi o. m. fl. Tekin voru
og gerð upptæk útvarpstæki,
áróðursrit o. m. fl.
Hitler var ekki á
afmælishátíðinni í
Munchen.
j Einkaskeyti til Vísis.
j I gærkveldi var minnst af-
! mælis nazistaflokksins í Mun-
chen en flokkurinn er nú 22.
óra.
i Ilitler gat ekki verið við-
staddur, en liann sendi sam-
komunni orðsendingu, og
minntist bann þar m. a. á vetr-
arhörkurnar í Rússlandi. Þær
liefðu verið meiri en nokkuru
sinni í heila öld, og þess vegna
liefði orðið hlé á sigursælli sókn
Þjóðverja, en er voraði myndi
aftur stefnt í austurátt og sótt
fram.
Knox ávarp-
ar sjóliða.
Einkaskeyti til Vísis.
Knox flotamálaráðherra
Bandarí,kjanna birti ávarp til
sjóliðsins í tilefni af minningar-
degi Georgs Washington og
kvaðst geta fullvissað þá um, að
sá dagur væri ekki langt undan,
er þeir ætti ekki lengur við of-
urefli að etja.
En — bætti liann við — það
eru mikil og liörð átök framund-
an. Sjóorustur þær, sem búast
má við að liáðar verði, munu
verða í svo stóruni 'stíl, áð allar
fyrri sjóorustur, sem Banda-
ríkjamenn liafa tekið þátt i,
verða sem barnaleikur í saman-
burði við þær.
Meginátökin
um Rangoon
að byrja.
Kínverskur herafli á
leið til vígstöðvanna
Bretum til hjálpar.
Samkvæmt fregnum, sem
bárust til London í gær er brott-
flutningur íbúanna frá Rangoon
hafinn í stórum stíl, en að und-
anförnu hefir raunar verið um
stöðugan fólksstraum að ræða
úr borginni, enda færist hildar-
leikurinn stöðugt nær. Hvorki
við Salweenfljót né Bilin-ána
tókst Bretum að stemma stigu
við framsókn Japana til lengdar,
en þeir virðast liafa lið nóg, og
allt, sem þeir þurfa til sóknar.
En þeir hafa beðið mikið tjón í
þessari sókn sinni, bæði vegna
þess, að flugher bandamanna í
Rangoon er öflugur og liefir
haldið uppi árásum sýknt og
heilagt á framvarðstöðvar
þeirra, og svo hefir alla tíð ver-
ið um snarpa mótspyrnu að
ræða á vígstöðvunum í Suður-
Birma. En nú er svo komið, að
fall Rangoon virðist yfirvofandi,
nema þeim takist að stöðva
Japani við Sittangfljót, en þar
er seinasta varnarlínan fyrir
suðaustan Rangoon.
Kinverjar halda áfram að
senda herlið til Birma, en meg-
inlier Kínverja er 700 km. norð-
ar, þar sem honum hefir verið
falin gæzla landamæranna og
Burmabrautarinnar. Svo* er þó
að sjá af seinustu fregnum, sem
Kínverjar séu að senda Bretum
lið til hjálpar á Rangoonvig-
stöðvunum.
JAVA — BALI.
Frá eynni Java er það helzt
að frétta í morgun, að Japanar
halda uppi loffcárásum á ýmsar
stöðvar Hollendinga, en flugher
bandamanna veitir snarpa mót-
spyrnu. Mestur hluti Balieyjar
virðist nú vera á valdi Japana,
en enn hafa ekki borist neinar
aðrar fregnir um herskipa- og
flutningaskipaflota þann, sem
Japanar sendu upp undir Bali-
strendur, en að tvö japönsk her-
slcip sáust á norðurleið og voru
þau með önnur tvö í eftirdragi.
Var hér um að ræða 2 beitiskip
og tvo tundurspilla.
LEARY FLOTAFORINGI.
! Hann er nú kominn til Well-
ington á Nýja Sjálandi, en þang-
að er komin amerísk flotadeild
og herafli, og mun Leary hafa
bækistöð þarna framvegis.
Bandarikjamenn eru enn að
senda fluglið og landher til ým-
issa stöðva i Kyrrahafi.
Rúðubrot.
Nokkru fyrir kl. II í gærkveldi
braut amerískur hertnaÖur rúðu í
veitingastofu í kjallara Uppsala (á
horni Aðalstrætis og Túngötu).
Var maður þessi inni í stofunni með
félaga sínum og braut rúðuna með
flösku. Siðan flýðu þeir báðir, áð-
ur en lögreglan kom á vettvang.
lliÍN^newkt KÍórwkoRilió
Þessi fallbyssusveit liefir komið byssu sinni fyrir í góðu
fylgsni i skógi og sendir Þjóðverjum þaðan kveðjur sínar. —
r i siyrj
m\ i neðri mðlsíoiiiii
Churchill frummælandi.
Umræður hófust í gær í neðri
málstofunní um styrjaldarmálin
og var Churchill frunnnælandi.
Umræðum þessum m.un verða
Iokið i dag.
Churchill sagði i ræðu sinni,
að ef menn einskorðuðu sig ekki
við að lmgsa um hin miklu áföll,
sem bandamenn hafa orðið fyrir
og niunu verða fyrir, en liug-
leiddu ástand og horfur í heild,
hefði aðslaðá bandamanna til i
1
þess að sigra að lokum batnað
stórum, vegn afreka og dugn-
aðar Rússa, og vegna þess, að
Bandaríkin eru komin í stríðið.
Churchill hafði þau tíðindi að
flytja, að undangengna 2 mán-
uði hefði skipatjón bandamanna
aukist svo, að mjög alvarlega
horfði.
Hann skýrði frá þvi, að 40.000
manna lið hefði verið sent til
Singapore, i 9 skipalestum, og
voru öll skip, sein fyrir hendi
voru, tekin til þessara flutninga.
Japanar segjast hafa tekið yfir
70.000 fanga, sagði Churchill,
vér höfðum þar vissulega svo
mikið lið.
Hann kvaðst ekki v.ilja hall-
mæla neinum, og hann hefði
ekki fengið neinar fregnir frá
Singapore, svo að hanú gæti
ekki rætt þetta frekaya.
Churchill gerði itarlega gréin
fyrir skipan og starfsháttu hinn-
ar nýju striðsstjórnar.
Næturakstur
án ljósa fer frani kl. 18.30—21.00
miðvikúdaginn þ. 25. febr. á vegin-
um Geitbáls—Kolviðarhóll.
Háskólafyrirlestur.
Símon Ágústsson flytur fyrir-
lestur á morgun kl. 6.15 í 1. kennslu-
tsofu Háskólans. Efni: Andleg
heilsuvernd. — Öllum heimill að-
gangur.
Frá hæstarétti:
tailor -i M sinn
— fyrir ölwun.
I dag var kveðinn upp dómur
í hæstarétti í málinu Valdstjórn-
in gegn Guðmundi Ragnari
Magnússyni.
Kærði var sakaður um að
hafa verið ölvaður á almanna-
færi. Þótti það sannað með
framburði lögregluþjóna og
með tilliti til tíðra áfengisbrota
kærða, en liann bafði áður verið
sektaður 158 sinnum fyrir ölv-
un. Var hann sektaður um 500
krónur í lögreglurétti Reykja-
víkur. Kærði skaut dómiþessum
til hæstaréttar, en þar var dóm-
urinn staðfestur.
Skipaður sækjandi málsins
var hrm. Einar Ásmundsson, en
verjandi lirm. Gústav. A Sveins-
son.
Banatilræði við
von Papen?
Fregn frá Ankara hermir, að
i gær hafi orðið sprenging mik-
i! í Ankara, í miðju hverfi því,
sem. erlendir sendiherrar og
ræðismenn húá í. Var maður þar
staddúr á götu með handtösku
og sprakk vítisvél, sem í tösk-
unni var, og heið maðurinn
hana, en gluggarúður sprungu
i næstu Iiúsum, meðal annars í
liúslað hrezka sendilierrans.
Tveir menn særðust.
\ron Papen sendiherra og frú
hans voru nærstödd, er þetta
gerðist — aðeins í 15 metra
fjarlægð, og munaði þvi
minnstu, að illa færi fyrir þeim.
Fáum mínútum eftir að þetta
gerðist var þýzkur hlaðaljós-
myndari kominn á vettvang til
þé^s að taka myndir, en lögregl-
an kom og tólc myndavélina og
filmuna.
Rannsókn hefir verið fyrir-
skipuð og Inonu forseti og for-
sætisráðherrann sendu aðalfull-
Irúa sína á fund von Papens til
þes að spyrjast fyrir um liðan
hans og konu hans, en þeim
mun hafa orðið allmikið um
þetta. Innanríkisráðherra Tyrk-
lands og borgarstjórinn i An-
kara fóru á vettvang þegar, er
þeim hafði verið gert aðvart um
spreng j utilræðið.
TVEIMUR OLÍUFLUTNTNGA-
SKIPUM ENN SÖKKT FYRIR
BANDARÍKJAMÖNNUM.
Bandamenn eru farnir að
hafa meiri áhyggjur en nokkru
sinn iaf því, hve vel kafbátum
| möndulveldanna verður ágengt
að sökkva skipum, þeirra, eink-
anlega olíuflutningaskipum við
strendur Bandarikjanna.
' í nótt bárust fregnir um, að
enn liefði verið sökkt tveimur'
olíuflutningaskipum, 8000 og
5000 smálesta. Tölf menn biðu
hana.
Oíbeldisverk
amerískra
hermanna.
Síðastliðið laugardagskVeld
réðust f jórir amerískir hermenn
á íslenzkan manri, Njál Þórar-
insson, er var á gangi á Reykja-
víkurvegi, kinnbeinsbrutu hann
og misþyrmdu honum á annan
hátL
Var Njáll einn á gangi
skammt frá þeim stað, þar sem
Sjóklæðagerðin var, en Banda-
rikjamennirnir komu á eftir
honum. Er þeir náðu honum
réðust þeir tafarlaust á liann og
féll hann í götuna. Hann komst
þó á fætur aftur, en hlaut þá
aftur högg, svo að hann féll við
og missti nærri meðvitund.
Spörkuðu þeir þá í hann, þar
sem liann lá á götunni.
Verður að gera þá kröfu til
amerísku herstjórnarinnar, að
hún hafi liemil á mönnum sín-
um, svo að friðSamir borgar-
búar geti farið ferða sinna ó-
hultir.
Bruni á Lauga-
vegi 27.
KL 2 eftir hádegi í gær kvikn-
aði í húsinu nr. 27 við Laugaveg
og urðu allmiklar skemmdir á
því og munum i því, áður en
slökkviliðinu tókst að ráða við
eldinn.
Eldurinn knnv upp í he'rbergi
á efri liæð hússins. Bjuggu í því
þrir einhleypir menn. Á þeirri
liæð hjó einnig verkamaður,
Filippus Tómasson að nafni.
Missti hann allar eigur sinar ó-
vátryggðar i hrunanum.
Lánaðist ekki að slökkva eld-
ins fyrr en eftir að honum hafði
teldzt að hrjólásl upp á þakhæð
hússins.
Eldurinn komst ekki niður á
neðri hæðina, en þar urðu
nokkrar skemmdir af vátni og
reyk. Bjuggu þar SigUrbjarni
Tómasson, hílstjóri, btió'ðir Fi-
lipusar, og Stefán Hérmánnsson
' úi’smiður. —- Skemmdir urðu
1 nokkrar á eignum þeirra, áðal-
lega Sigurhjarnai • eir þær voru
. óvátryggðar.. 1 í -":iv
i