Vísir - 26.02.1942, Blaðsíða 3
V 1SIR
Fiskloftssamsöngurinn i
Sandgerði var einnig hálfgerð
slysaför — með góðum mála-
lokum Við komum helzt til
seint á staðinn, af því að það
var nærri búið að stúta okkur
af einskærri gestrisni og góð-
gerðum á leiðinni —• og við ætl-
uðum aldrei að geta slitið okk-
ur frá góðum kökum •— og fall-
egum heimasætum. Þegar til
Sandgerðis kom, var liúsið orðið
augafullt af gestum — ekki til-
tök að selja einum einasta
manni inngang í húsið — en
það sem verra var —- að hlust-
endurnir voru fokvondir orðnir
sem reiðir hanar út af seinlæli
okkar, og það var ekki fyrr en
Jakob var búinn að skríða upp
á bakið á Jóni og spriklaði það-
an öllum öngum, að hann fékk
hljóð til að stilla til friðar.
En nú voru góð ráð dýr —
þvi okkur fannst það lielv,..
hart að þurfa eklci aðeins að
syngja, heldur að syngja í
gisnu fisklofti, og fá auk þess
formælingar og skammir i
hattinn — án þess að fá grænan
eyri fyrir. Tókum við þvi það
til bragðs, að selja út úr húsinu,
að söngnum loknum. — En
hvort sem það hefir verið af því,
að fólkið var hrifið af söngnum,
eða af því að það var fegið að
losna við okkur — þá borgaði
liver maður sinn túskilding með
glöðu geði. — Og þarna sérðu
— að það er alveg eins gott að
selja útgangseyri sem aðgangs-
eyri. Fólk verður ekki síður
fegið að komast út en inn.
Annars ætlum við, óðux’ en
„séra Bjarni“ rekur þig út, að
mæla við þig fáein orð í fullri
alvöru.
Þau geta verið á þessa leið:
1 fyrsta lagi: Músikin er okk-
ur fyrir öllu. Við syngjum fyrst
og fremst fyi’ir sjálfa okkur —
en ef aði'ir geta liaft yndi af því
með okkur, þá er okkar ánægj-
an að skemmta þeim.
1 öðru lagi: Við höfum hvar-
vetna mætt óvenjulegri velvild
og alúð, og livar sem við höfum
farið, hefir okkur verið tekið
með kostum og kynjum. Þetta
viljum við í eitt skipti fyrir öll
þakka.
í þriðja lagi: Við höfum frá
fyrstu tíð notið aðstoðar af-
bragðs krafta við raddsetningar
þeirra laga sem við höfum sung-
ið. Lengi vel nutum við aðstoð-
ar Carls BiIIich, en í þetta skipti
hafa þeir Emil Thoroddsen og
Árni Björnsson píanóleikari
verið okkur mjög innan handar
við raddsetningu og aðra hjálp
á framsetningu þeirra viðfangs-
efna, sem við nú glímum við
Þessum mönnum viljum við
einnig þakka, og þá má ekki
gleyma Bjarna Þórðarsyni, sem
leikið hefir undir með okkur ár-
um saman, og verið okkur hin
mesta hjálparhella.
Og í fjórða lagi: Hypjaðu þig
nú út blaðamaður góður, þvi að
brúnin á honum „síra Bjarna“
er orðin ygld.“ Þ. J.
Óskum eftir tveimur til
þremur liarmonikuspilurum
um mánaðamótin á veitinga-
liús. —
Uppl. í síma 1521.
Ibnð
Kona, með stálpaða telpu,
óskar eftir 2ja herbergja
íbúð 14. maí eða fyrr. —
Uppl. i síma 2877.
Bcejar
fréttír
I.O.O.F. 5= 1232268V2 =
Listsýning-.
Bretar hafa ákveðiÖ að halda sýn-
ingu á málverkum, teikningum og
öðru eftir hrezka hermenn, flug-
menn og sjómenn í næstu viku. —
Sýningin verður í Stadium Camp —
hjá íþróttavellinum.
Dansk-íslenzka félagið
heldur fund í Oddfellowhúsinu í
kvöld kl. 8j4- Dr. Fr. de Fontenay
sendiherra Dana talar um „Dan-
marks Stilling efter den g. April
1940“. Gunnar Pálsson söngvari
syngur íslenzk og dönsk lög. Dans
til kl. 2.'
Bridge-keppnin
heldur áfram í kvöld í Ingólfs
kaffi. Keppa þá flokkar Einars B.
Guðmundssonar og Lárusar Fjeld-
sted, flokkar Lúðvíks Bjarnasonar
og Harðar Þórðarsonar, og flokkar
Gunnars Viðar og Péturs Halldórs-
sonar.
Næturlæknir.
María Hallgrímsdóttir, Grundar-
stig 17, sími 4394. Næturvörður i
Ingólfs apóteki og Laugavegs apó-
teki.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 18.30 Dönskukennsla, 2. fl.
19.00 Enskukennsla, 1. fl. 19.25
Þingfréttir. 20.00 Fréttir. 20.30
Kvöldvaka: a) Guðm. próf. Thor-
oddsen: Ferðasaga. b) 20.55 Ragn-
heiður Þórólfsdóttir og Ólafur Þor-
steinsson: Smálög, leikin á gítar og
mandólín. c) 21.10 Friðfinnur-Guð-
jónsson leikari: Úr ritum Plausors.
d) 21.35 Hljómplötur: Islenzkir
kórsöngvar.
Hermaður ræðst
a 9 ára dreng.
1 síðastliðinni viku framdi
brezkur hermaður ódæðisverk
á íslenzkum dreng, níu ára
gömlum.
Gerðist þessi atburður kl. 8
um kvöldið suður við Póla.
Lokkaði hermaðurinn drenginn
afsíðis nxeð sælgæti, en er nokk-
uð var komið frá húsinu réðist
hermaðurinn á hann, reif af
honum fötin i þeim tilgangi að
nauðga honum. í þeirri viður-
eign hlaut drengurinn þó nokkra
áverka, en gat sloppið við illan
leik á brott, nakinn og særður.
Bifreið, sem tók hann upp af
veginum, flutti hann á lögreglu-
stöðina — en þaðan var honum,
strax ekið á Landspítalann og
búið um sár hans.
Rannsóknarlögreglan hóf leit
að hermanninum og er hann
fundinn. Við rannsókn kom i
ljós, að þetta er í annað sinn sem
þessi hermaður hefir framið
samskonar brot á sömu slóðum.
Hafa hernaðaryfirvöldin mál
þetta til meðferðar.
Þetta er Ijótt mál, og vonaridi
að þvílik athæfi endurtaki sig
ekki í neinni rnynd. Að þessu
geta foreldrar og aðstandendur
barna sjálf unnið, með því að
vara börnin við þvi, að gefa sig
að hermönnunum. Við eigum
sjálf að forðast sem mest sam-
neyti við það herlið, sem her-
tekið hefir land vort, og við eig-
um einnig að brýna það sama
fyrir bornunum.
r inur
stórar, lögheldar, til sölu.
HAMBORG h.f.
Laugavegi 44.
ÞAÐ BORGAR SIG
AÐ AUGLÝSA
1 VlSI!
(JllglÍltglII*
óskast til léttra sendiferða hálfan eða allan daginn.
A. v. á.
Sendisveinn
Að gefnn tiiefni
viljum vér vekja athygli á að árangurslaust er að hringja lil
starfsfólks vors, þar sem þvi er ekki levft að svara í sima í
vinnutímanum.-
Matstofan CÍUIXFONH
Aðvörnn
i fiskimatsstjóra
Samkvæmt 7. gr. fiskiníatslaga 8. september 1931 er
yfirfiskimatsmönnum heimilt að banna fisksöltun úr
salti, er þeir álíta ónothæft.
Enn fremur er, samkvæmt 1. gr. laga nr. 9, 1. febrú-
ar 1936 heimilt að skylda eigendur fiskgeymslu- og
fiskverkunarhúsa til þess að hreinsa hús og áhöld úr
gerlaeyðandi efnum.
Með því að óvenjulegar skemmdir hafa orðið að und-
anförnu á saltfiski af völdum rauðagerla, hefir þessi
sótthreinsun verið upptekin og þegar framkvæmd að
mestu í þeim húsum, er rauða varð vart í. En yfirfiski-
matsmenn álíta salt, sem hefir verið í eða nálægt smit-
uðum fiskstöflum óhæft til fisksöltunar. Bæði fyrr-
nefnd lagaákvæði eru því nú i framkvæmd.
Nú hafa nokkrir eigendur smitaðra húsa, ýmist ekki
hirt um eða ekki leyft sótthreinsun á húsunum ennþá.
Þessir menn mega búast við að hamlað verði eða neit-
að að meta til útflutnings fisk úr þeim húsum, er þann-
ig er ástatt um eða saltaður úr salti, sem eg eða yfir-
fiskimatsmenn telja óhæft til fisksöltunar.
Reykjavík, 26. febrúar 1942.
SVEINN ÁRNASON.
Fignist góða bók
Kanpið
Harín Stúart
eftir Stefan Zweig
Bókaverzlun ísafoldarprentsmiðju.
Háir vextir
Af sérstökum ástæðum er til sölu strax 600.000 krónur í góð-
um skuldabréfum, með 6% vöxtum. Ennfremur veðdeildarbréf
og önnur verðbréf. Tilboð, merkt: „Háir vextir“ sendist afgr.
Vísis sem fyrst, þar eð fyrstu kaupendur verða að öðru jöfnu
látnir sitja fyrir.
Bifvélavirki
eða járnsmiðiir
getur fengið góða atvinnu og nýtízku íbúð nú þegar. A. v. á.
Stórliýisl
í vesturbæ er til sölu strax. Húsið er vönduð nýbygging. Laus
íbúð fylgir. Hagkvæmir greiðsluskilmálav.
Uppl. gefur
V v
HEILDVERZLUN
Guðm, H. Þórðarsomr
Sími: 5815.
8I«LI1íkAR
I milli Bretlands og íslands halda áfram,
eins ög að undanfornu. Höfuin 3—4
skip í förum. Tilkynningar úm vöru-
sendingar sendíst
Cnlliford <ék Oark
BRADIÆYS CHAMBERS,
LONDON STREET, FLEETWOOD.
Krakka
vantar okkur til að bera út blaðið til kaupenda,
Talið strax við afgreiðsluna.
Ðagbiaðið VlSIR
Auglýsiog:
nm verðlagfiákvæði.
Verðlagsnefnd hefir samkvæmt heimiki í lögum nr.
118, 2. júlí 1940, ákveðið hámarksálagningu á fiski-
öngla svo sem hér segir:
1 heildsölu .... kr. 31.26 pr. þús.
1 smásölu .... kr. 34.00 pr. þús.
Þetta birtist hér með öllum þeim er hlut eiga að ináli.
Viðskiptamálaráðuneytið, 25. febrúar 1942.
þnrt ogr grott vantar okknr
nú þegar undir prentpappir
Bagblaðið l isir
Það tílkynriist vinum og vandamönnum að dóttir min,
móðir og systir,
Grudný Finnhogadóttir
andaðist á Farsóttarhúsirtu 25. þ. m.
Hálldóra Eyjólfsdóttir, Finnbjörg Guðmundsdóttir
og systkini.
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við fráfall og
jarðarför mannsins míns, föður okkar og tengdaföður,
Matthíasar Ólafssonar
fyrrv. alþingismanns.
Marsibil Ólafsdóttir, börn og tengdabörn.
Jarðarför bróður okkar,
Þóparins Arnórssonar,
fer fram frá dómkirkjunni föstudaginn 27. febrúar og
hefst með húskveðju á Laufásvegi 19, kl. .1% e. h.
Systkini..
f