Vísir - 06.03.1942, Síða 1
Ritst jóri:
Kristján Guðlaugsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð).
32. ár.
Ritstjórl 1
Ðlaðamenn Simi:
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri S linur
Afgreiðsla
32. tbl.
JAPANAR TILKYNNA FALL BATAVIA.
I gærkveldi voru hersveitir Jáp-
ana 15-16 kilometra frá úthverfum
borgarinnar.
EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun.
rpanska útvarpið tilkynnti fall Batavia í morg*
un, en samkvæmt fregnum þeim, sem bárust
til London seint í gærkveldi voru hersveitir
Japana aðeins 15—16 kílómetra frá úthverfum borgar-
innar. — Batavia er höfuðborg eyjarinnar og var þar
aðsetur stjórnar Hollenzku Austur-Indiulanda þar til
fyrir nokkurum dögum, að hún fluttist til Bandoeng.
I fregnum sem bárust til
London í gær var sagt, að mark-
mið Japana væri að sækja fram
á Mið-Java, allt til suðurstrand-
arinnár og rjúfa þar með allt
samband milli austur- og vestur-
hlutans. Einn af landgöngustöð-
um Japana var hafnarborgin
Rembang, eins og áður var get-
ið, og þaðan voru Japanar
komnir 150—160 km. inn í
landið, til Solo, sem, er mikil-
væg flutningamiðstöð, þvi að
hún er miðdepill mikils járn-
brauta- og vegakerfis. Er Hol-
lendingum liinn mesti hnekkir
að þvi, að missa þessa borg. —
Búizl var við, að Japanar myndu
halda áfram sókninni þaðan til
suðurstrandarinnar i framan-
greindu augnamiði.
Á Vestur-Java hafa Japanir
sótt enn lengra fram, en víglína
þeirra var um það bil /200 km.
frá landgöngustaðnum, Ind-
ramayo. Þá voru Japanir búnir
að ná á sitt vald einum eða
tveimur stöðum við járnbraut-,
ina milli Indramayo og Bata-
via.
Hersveitir Hollendinga og
Javamanna bafa barizt vask-
lega gegn ofureflinu, en standa
illa að vígi, i fyrsta lagi vegna
þess, að fluglier bandamanna,
sem er minni en Japana, hefir
nógu að sinna við loftárásir á
lierskip og flutningaskip Japana
og flugvelli, sem þeir hafa tekið,
og geta þvi ekki veitt landhern-
'um nægan stuðning, og í öðru
lagi vegna þess, að Japanir eru
liðfleiri.
Þá var leidd athygli að því,
að Japanar hafa náð á sitt vald
naörgum flugstöðvum á eyjum
í nánd við Java og torveldar það
mjög varnaraðstöðu Hollend-
inga.
I fregnum frá London segir,
að fregnin um, að Japanar hafi
tekið Batavia, sé ekki staðfest.
Engar fregnir höfdu borizt til
London um bardagana á Java
laust fyrir hádegi í dag.
INNRÁS í ÁSTRALlU
YFIRV OFANDI.
Ástralíumenn óttast nú innrás
Japana meira en nokkuru sinni
og liggja fyrir þinginu tillögur
stjórnarinnar um að lögleiða
herskyldu til 60 ára aldurs.
Gordon-Bennett hershöfðingi
sem stjórnaði hersveitum, Ástra-
líumanna á Malakkaskaga og í
Singapore, mun stjórna varnar-
liernum ástralska.
Gordon-Bennett befir lýst yfir
þeirri skoðun sinni, að Japanar
muni þá og þegar reyna að
koma liði á land í Ásti-alíu, og
kveðst hann viss um, að takast
muni að uppræta landgöngu-
hersveitir Japana.
FILIPSEYJAR.
I framhaldstilkynningu frá
Washington um árásir flugvéla
McÁrthurs á skip Japana á Su-
bic Bay, segir að þúsundir jap-
anskra hermanna hafi drukkn-
að, er þremur stórum herflutn-
ingaskipum var sökkt þar. — I
lestum skipana var án efa mikið
af skotfærum, því að skipin
sprungu með ógurlegum gný.
CHIANG KAI-SHEK
KOMINN HEIM.
Chiang Kai-shek er kominn
til Chungking, eftir mánaðar
brottveru. Brottför hans frá Ind-
landi tafðist vegna þess, að hann
lagði lykkju á leið sína til þess
að ræða við Wavell yfirhers-
höfðingja, sem nú hefir aftur
tekið við yfirherstjórn Indlands
og Burma.
Fregnir bárust um það til
London í fyrradag-, að 9000
norskir kennarar hefði neitað
að verða við kröfum Vidkun
Quisling, að ganga í nýstofnað
kennarasamband, en það var
stofnað að tilhlutan Quislings. 1
kennarasambandinu norska eru
10.500 kennarar og sést af þessu,
hversu daufar undirtektir
Quisling hefir fengið. Ofsókn-
um er haldið uppi gegn hinum
frjálslyndu kennurum Noregs
og hafa margir verið hnepptir í
fangelsi eða fangabúðir. Meðal
þeirra er Eide, formaður kenn-
arasambandsins. Jafnvel kenn-
arar, sem veikir eru, hafa verið
hnepptir í fangelsi.
X
Kennarar Noregs hafa tekið
sömu afstöðu og biskupar og
prestar landsins, að berjast gegn
því, að börn Noregs verði knúin
til þess að ganga í æskulýðsfélög |
nazista, að þar með væri girt
fyrir að þau nyti uppeldisáhrifa
heimilis og kirkju.
X
Viku fyrir jól flutti Vidkum
Quisling inn í hina nýju “höll“
sína á Bygdoy. — Hús þetta,
„Grandevillaen“, er afar skraut-
Dregur að úrslit-
um í Staraya
Russa og Orel
Eftir seinustu fregnum að
dæma dregur að úrslitum við
Staraya Rússa og Orel.
16. þýzki herinn, sem innikró-
aður er við Staraya Russa, virð-
ist elcki eiga sér undankomu
auðið, því að Rússar þrengja æ
meira að honum. Af þessum her
liafa um 40.000 menn fallið eða
verið teknir til fanga. Herinn
var uppliaflega um 96.000
menn.
Við Orel eru tvö þýzk her-
fylki innikróuð. Rússneski hers-
höfðinginn hefir skorað á Þjóð-
verja að gefast upp, en þeir
hafa neitað því.
Rússum verður stöðugt meira
ágengt á Leningradvígstöðvun-
uni og hefir það vakið mikinn
ugg í Finnlandi.
Rússar eru sagðir liafa eina
milljón riddaraliðs reiðubúna
til þess að taka þátt í bardögum,
er vorleysingar byrja og mikl-
um erfiðleikum verður bundið
að koma við skriðdrekum og
bílum.
Rússar hafa tekið Yuknov á
Smolenskvigstöðvunum eftir
harða bardaga. Missu Rússar
þar feikn mikið af birgðum og
hergögnum.
lega innréttað og í því er
sprengjuheldur kjallari. —
Skammt frá er frægur baðstað-
ur, en almenningi er nú bann-
aður þar aðgangur. — Ibúum
8 húsa í nágrenninu hefir verið
skipað að flytja. — 24 menn eru
stöðugt á verði við þennan bú-
stað Quislings. — Þegar Hákon
konuungur bjó á Bygdoy, hafði
almenningur frjálsan aðgang
að baðstaðnum (Hukodden).
„En Hákon þurfti líka ekkert að
óttast“, eins og einn Bygdoy-
búi sagði.
X
Margir norskir piltar innan
við tvítugt hafa verið handtekn- I
ir í Noregi. Piltar þessir eru syn-
ir Norðmanna, sem eru liðsfor-
ingjar í her frjálsra Norðmanna j
i Bretlandi. — Terboven er sagð- .
ur liafa fengið „heimild“ frá
Berlin til þess að handtaka alla
karlmenn á aldrinum 17—60
ára, sem eru skyldir norskum
mönnum í lier frjálsra Norð-
manna.
Þjóðverjar liafa tekið 400
norskar fiskiskútur og nota þær
sem eftirlitsskip.
TQM MOONEY LÁTINN.
•
Ameríski verklýðsleiðtog-
inn heimskunni Tom Mooney
er látinn. Hann var dæmdur
fyrir það 1916, að hafa kast-
að sprengju á hermanna-
fylkingu á götu í San Fran-
cisco, en þegar varð mikil
deila um þetta, sem vakti
miklar æsingar. Var talið, að
hér væri um falska ákæru að
ræða. Réttarhöldin voru löng i
og hörð og háð var hörð bar-
átta fyrir því, að Mooney
væri náðaður. Sannaðist, að
Mooney hafði verið í öðrum
bæjarhluta, er sprengjuárás-
in var gerð.
Hann sat yfir 22 ár í fang-
elsi. Það hafðist ekki fram, að
hann væri látinn laus fyrr en
nokkru eftir að demokratar
höfðu náð völdunum í Kali-
forniu 1939, sem ríkisstjór-
inn þar náðaði hann.
BRIDGE-KEPPNIN:
Flokkur [liars B. fiuð-
mundssonar sigraði.
í gærkveldi fór síðasta um-
ferð í bridgekeppninni fram í
Ingólfskaffi, með þeim heildar-
úrslitum, að flokkur Einars B.
Guðmundssonár bar sigur úr
býtum með 380 stig, samanlögð.
Éftir stigaútreikningi þeim,
seni þessi bridgekeppni hefir
verið dæmd eftir að þessu sinni,
hefir flokkur Einars unnið fjóra
flokkana, en tapað fyrir einum
(flokki Péturs Halldórssonar í
gærkveldi). En eftir venjulegum
reikningi hefir flokkur Einars
unnið alla flokkana.
I flokki Einars B. Guðmunds-
sonar eru auk lians, þeir Axel
Böðvarsson, Helgi Eiríksson og
Stefán Stefánsson.
Röð flokkanna er sem hér
segir:
1. fl. Einars B. Guðmundsson-
sonar, lilaut í gær 71 stig,
alls 380 stig.
2. — Gunnars Viðars, hlaut í
gær 79 stig, alls 366 stig.
3. — Lárusar Fjeldsted, hlaut í
gær 76 stig, alls 364 stig.
4 — Péturs Halldórssonar,
hlaut í gær 73 st., alls 356
stig.
5. — Harðar Þórðarsonar hlaut
í gær 68 stig, alls 347 stig.
6. — Lúðvíks Bjarnasonar,
hlaut í gær 65 stig, alls 347
stig.
fiiirlosafromvarpið lait
Iri
Tekjuafgangur 5,4
millj. kr.
Fjárlagafrumvarpið fyrir árið
1943 hefir nú verið lagt fram á
Alþ/'ngi. Tekjur eru áætlaðar
FREITIR
FRA
MOREGI
KOSNINGAPISTLAR
Ekki get eg betur séð, en að
samfylking sé komin á milli
allra flokkanna þriggja, sem
keppa við Sjálfstæðisflokkinn
nú við bæjarstjórnarkosning-
arnar. Það er fjarri því, að
mönnum geti komið þetta á ó-
vart. Enda þarf ekki nema að
vitna í Dagsbrúnarkosningarn-
ar á dögunum, uni það, sem í
aðsigi var. Þetta er gamla sagan
um það, að öllum rennur blóðið
til skyldunnar, þegar mikið ligg-
ur við. Það sýnir sig alltaf við
kosningarnar, að ekki ber svo
mikið milli þessara þriggja
flokka. Kommúnistarnir játa
þetta hreinskilnislega. En pram-
sókn og Alþýðuflokkurinn þykj-
ast of fin til að vera í slikum
félagsskap. Þessvegna er sam-
fylkingunrii „opinberlega mót-
mælt“, eins og stendur í stríðs-
fréttunum.
En það stoðar ekkert. Við
kosningar er alltaf saman það
sem saman á. Þótt Alþýðuflokk-
urinn, Framsókn og kommún-
istar skammist eins og hundar
364 daga á árinu, eru þeir alltaf
búnir til bræðralags 365. daginn.
Það er dagurinn, sem kosið er.
Það hefir verið minnzt á það
i kosningaumræðunum und-
anfarið, að liætta sé á því, að
útgerðarmenn flytji fram-
leiðslutæki sin héðan, ef þeir
álíta hagfelldara að gefa skipin
út einhversstaðar annarsstaðar.
Og ekkert þui-fi nema bæjarút-
gerð til að fyrirbyggja þetta. En
hvernig er á Isafirði? Mér er
sagt að bærinn hafi þar átt stór-
an part í togara, og ekki vílað
neitt fyrir sér að selja skipið
burt úr bænum á síðastliðnu ári.
Quðmundur Ásbjörnsson hef-
ir farið heldur óþyrmilega
í taugarnar á andstæðingunum.
Hann leyfði sér að tala um
„óvini“ Reykjavíkur. Hvílík
dauðasynd! Eins og Reykjavík
eigi neitt nema vini,— svona ör-
fáum dögum fyrir bæjarstjórn-
arkosningar! Það merkilegasta
er að allir þrir andstöðuflokkar
sjálfstæðismanna hafa tekið
þetta til sín. Alþýðuflokkurinn
sannar visindalega, að Guð-
mundur hafí átt við hann.
Framsókn segir: „Nei, hann átti
við mig“. Og kommúnistárnir
æpa öskuvondir: „Auðvitað átti
33.7 milljónir króna, en gjöldin
28.3 milljónir. Tekjuafgangur
er því 5.4 milljónir.
Tekju- og eignarskattur, á-
samt stríðsgróðaskatti, nemur 7
milljónum i frumvarpmu, en
var 3 milljónir á frv. þessa árs.
Vörumagnstollur er áætlaður 5
milljónir (7 milljónir á þessu
ári) og verðtollur 10 milljónir
(16 millj. á þ. árj).
Hæstu gjaldaliðir eru 5.9
milljónir til samgöngumála og
4.8 milljónir til verklegra fram-
kvæmda.
hann við okkur.“ Ef allir þess-
ir flokkar hafa góða samvizku,
er einkennilegt að þeir skuli
hrökkva svoná við, bara ef
minnzt er á, að Reykjavík kunni
að eiga óvini.
Æ tli það sé ekki líka dauða-
synd, að minna á gamalt
máltæki, sem segir: „Ekki eru
allir vinii', sem i eyrun hlæja“?
Það vantar svo sem ekki, að
talað sé nógu ísmeygilega v'ið
kjósendur. Framsókn býður að
setja nýtt andlit á bæinn. Al-
þýðuflokkurinn lofar nýju
skipulagi. Og kommúnistarnir
segja, að nú eigi að stjórna bæn-
um eftir nýjum grundvallar- %
reglum. Svona keppast „vinirn-
ir“ um að lofa gulli og grænurn
skógum. Og auðvitað hafa þess-
ir menn aldrei talað illa eða ó-
virðulega um stjórnendur bæj-
arins. Þeir bafa aldrei minnzt
á „kyrrstætt og liugsjónasnautt
íhald“. Þeir hafa aldrei sagt að
„íbaldið bæri börnin út“, þeir
bafa því síður sagt: „íhaldið þrá-
ir dauðann og allsleysið.“ Nei,
það er enginn nema Guðmund-
ur Ásbjörnsson, sem talar illa
um andstæðinga sína — þessa
líka blessaða sakleysingja.
Enginn maður hefir skrifað
eins margar greinar og Jón-
as Jónsson um „lúxusvillur auð-
borgaranna14 í Reykjavík. En
svo skeður það ótrúlega, að Jón-
as flytur sjálfur í „lúxus-villu“
með Ipftvarnabyrgjum og öllu
tilheyrandi.
Af öllu broslegu, sem komið
hefir fram í umræðunum um
bæjarstjórnarkosningarnar þyk-
ir varnarræða Hermanns fyrir
lúxusvillu Jónasar einna kátleg-
ust. Hvað hæstvirtur forsætis-
ráðherrann gat lagt sig fram um
það, að sanna að bústaður Jón-
asar væri engin lúxusvilla, held-
ur bara hús, svona venjulegt
meðalhús! Þetta minnir á það,
sem segir um löngu liðinn
stjórnmálamann í gamalli gam-
anvísu: „Og haldiði hann búi í
höll, eða hvað? Nei, í hálftunnu-
stærð, eða rúmlega það.“ Já, og
svo upplýsti Hermann, að það
væri ekki J.ónás, heldur S.Í.S.,
sem ætti „hálftunnuna“.
H versvegna ætli Hermann
hafi annars verið að afsaka
þetta? Jónas hefir sig ekkert
frammi við bæjarstjórnarkosn-
ingarnar, svo kjósendur Reykja-
vikur þurfa ekki þessvegna að
brjóta lieilann neitt um, það,
hvort bann býr í „villu“ eða
húsi. En Hermann þekkir sitt
heimafólk. Út um landið eru
bændur sumstaðar í vandræð-
um, af því að þeir geta varla
fengið spýtu til að dytta að
skemmukofa, livað þá heldur
vmeira. Þeirra vegna var nauð-
synlegt að má „luxus“-stimpil-
inn af hinu nýja beimkynni for-
manns Framsóknarflokksins.,
Kjósandi.
D-LI8TIM
er listi Sjálfstæðisflokksins
/
I