Vísir - 17.03.1942, Blaðsíða 2

Vísir - 17.03.1942, Blaðsíða 2
/ VÍSIR ♦ VÍSIR DAGBLAÐ Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F. Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson Skrifst.: Félagsprentsmiðjunni Afgreiðsla: Hverfisgötu 12 (Gengið inn frá Ingólfsstræti) Símar 1 6 60 (5 línur). Verð kr. 3,00 á mánuði. Lausasala 15 og 25 aurar. Félagsprentsmiðjan h.f. Sjórimt og sveitirnar. Enginn ágreiningur er um það að Reykjavílc stafar hætta af þeim óstöðvandi fólks- straumi, sem liingað leitar, livaðanæfa af landinu. Þetta er hérumbil það eina, sein allir stjórnmálaflokkarnir eru sam- mála um. Þótt aðstreymi sé um þessar mundir meira en ella, vegna atliafna liinna erlendu setuliða, verða menn að hafa hugfast, að hér er ekki um stundar-fyrirbrigði að ræða. Á árunuin 1929—1939 fluttust hingað yfir 7000 manns. Ekki var þá neinni erlendri vinnu til að dreifa. Þótt engin setuliðs- vinna liefði verið i hoði, hefði fólkið samt streymt liingað, ef atvinnurekstur bæjarbúa hefði getað fært út kvíarnar, svo að samsvaraði vinnuþörf hinna erlendu herja. Fólkið leitar þangað, sem það telur afkomu- skilyrðin hezt. Því lögmáli verð- ur ekki hrundið. Hér liefir eklc- ert nýtt komið fyrir. Allt, sem gerzt hefir er það, ,að straumur- inn hefir vaxið eins og á í leys- ingu og er um þessar mundir orðinn að beljandi stórfljóti. Hér blasir við eitt mesta vandamál komandi ára. Þótt sumt af því fólki, sem hingað leitar nú, hverfi kannske aftur til áttahaga sinna að ófriðnum loknum, má búast við, að mik- ill hluti þess verði hér innlyksa. Reynslan hefir sýnt, að á venju- legum timum eru atviifnuskil- yrðin sízt betri í öðrum kaup- stöðum landsins en hér. Af því leiðir, að ekki má gera ráð fyrir, að þangað verði þeirrar atvinnu að leita, sem ekki verður fyrir hendi hér. Þessvegna þyrftu sveitirnar að geta tekið við því vinnuafli, sem hér verður um- fram þörf. En eru líkindi til þess að svo verði? ¥ Ef landbúnaðurinn verður á- fram að byggjast að langmestu leyti á innanlandsmarkaði, er hæpið, að hann geti bætt til mikilla muna úr atvinnuþörf- inni. Eftir því sem landbúnað- urinn færist meira til nútíma- horfs, eftir því þarf færra fólk til að framleiða sama magn. Aukin ræktun og vélanotkun þýðir það, að minni mannafla þarf til þess að heyja handa kún- um og ánum. Þótt gert sé ráð fyrir því, að auka megi neyzlu kjöts og mjólkur allmikið frá því, sem nú er, þá er samt auð- sætt að þessari framleiðslu er mjög markaður bás, ef atvinnu- reksturinn byggist að langinestu leyti á neyzlu landsmanna sjálfra. Og hvaða likindi eru til pess, að við verðum samkeppn- isfærir við aðrar þjóðir með þessar höfuðframleiðsluvörur landbúnaðarins? Uin kjötið er það að segja, að reynslan virðist hafa leitt í ljós, að við séum ekki samkeppnisfærir með. framleiðslu þess. Um mjólkur- afurðirnar, osta og smjör gegnir nokkuð öðru máli. Það er ekki I t hægt að telja, að úr því sé fylli- lega skorið. livort við getmn reynst þar samkeppnisfærir. Og er auðsætt að róa verður að því öllum árum, að koma þeim vör- um á erlendan markað að stríð- inu loknu. Er sjálfsagt að styrkja eftir föngum þær til- raunir, sem gerðar kunna að verða í þá átt. * En livað sem því líður, verð- um. við að húa okkur undir að gefa horfst í augu við þá staðreynd, að sveitirnar geti ekki tekið aftur við nærri öllu þvi vinnuafli, sem þaðan hefir leit- að. Það verður að búast við á- framhaldandi framförum við landbúnaðinn. En framfarirnar tákna vinnusparnað, færra fólk til að framleiða ákveðið magn. Þótt af öllu því leiði aftur minnkaðan framleiðslukostnað, á það svo langt i land að við verðum samkeppnisfærir á er- lendum markaði um helztu landbúnaðarvörurnar, sem nú eru, að ekki má búast við því, að landbúnaðurinn geti nema að litlu leyti bætt úr þeirri hrýnu atvinnuþörf, sem hér verður ó- lijákvæmilega, þegar stríðinu lýkur. Hitt hlasir við, að landbúnað- urinn verði þá, eins og fyrir stríðið, að hyggja afkornu sina að mestu á innanlandsneyzlunni. Þessvegna verður nauðsyn sveit- anna sennilega bezt leyst með þvi, að bæta úr atvinnuþörf neytendanna, sem við sjávarsíð- una búa. Hér erum við þá komin að einu mesta vandamáli náinnar framtíðar. Hvernig á að komast yfir ný framleiðslutæki til end- urnýjunar á þeim úreltu og þeim, sem liafa farið forgörðum í styrjöldinni? Og hvernig á jafnframit að útvega ný fram- leiðslutæki handa öllum þeim mikla fjölda, sem, bætzt liefir við, upphaflega til þess að ná í erlenda vinnu, en síðan hefir í- lenzt hér? Hér er um svo viðtækt mál að ræða, að ekki verður drepið á annað en það, sem mest liggur i augum uppi. Það er auðsætt, að efla verð- ur sjávarútveginn stórlega, ekki einungis fiskiflotann, heldur lika siglingaflotann. Við erum þegar mesta fiskiveiðaþjóð í heimi að tiltölu við fólksfjölda. En við þurfum líka að verða mesta far- mannaþjóðin. Við verðum að bjarga okkur á sjónum, ekki bara okkur, sem við sjóinn bú- um, heldur lika hinum, sem i sveitunum búa. a Vélbátur strandar. Sauðárkróki, i morgun. Mótorbáturinn Þormóður rammi frá Siglufirði strandaði f gœr á Ásbúðartöngum við Skaga. Áhöfnjn, 5 menn, björguðu sér í land eftir 4 klukkutima, á lestahlerum og lóðabelgjum. Um fjöruna rann báturinn af skerinu og sökk. Eigandi, Skafti Stefánsson, Siglufirði, varð fyrir miklu tjóni, því liann missti einnig öll veiðarfæri bátsins. Valgard. Fyrsta kveld Hand- knattleiksmótsins. Handknattleiksmót Islands hófst í gærkveldi kl. 10 í íþrótta- húsi Jóns Þorsteinssonar, og voru leiknir þrír leikir . Fóru leikar þannig, að í 1. fl. vann Í.R. Ármann með 34 mörk- um gegn 22. J 2. fl. kepptu Val- ur og Fimleikafélag Hafnarfj., og bar Valur sigur úr býtum með 22:13. Loks kepptu Vik- ingar og K.R. í meistaraflokki með þeim úrslitum, að Víking- ur sigraði með 21:17. Keppnin fór fram af miklu fjöri. Veröur áburðarverk- smiðja reist á Islandi? ____ \ / Þjóðhagslega getur það borgað sig. Freyr, þrjú fyrstu hefti þessa árs eru nýlega fullprentuð, en nokkur dráttur hefir orðið á útgáfunni vegna vinnustöðvunar í prentsmiðjum.Birtast í heftum þessum margar athyglisverðar greinar, varðandi málefni landbúnaðarins» Þó er þar ein grein, sem mesta athygli mun vekja, enda er þar um mál að ræða, sem mikilsvert er og horfir til þjóðþrifa, ef vel tekst að leysa. Fjallar grein þessi um „áburðarverksmiðju“ og er eftir Árna G. Eylands ritstjóra Freys. I upphafi máls síns rekur höfundurinn aðstöðu hænda, fólksfæð í sveitum og aðra erf- iðleika. Leggur hann áherzlu á, að nauðsýn heri til að aukin séu afköst einstaklinga þeirra, er að búrekstri starfa, með bættri ræktun nytjajurta og húfjár og bættum vinnubrögðum. Þá ræð- ir höf. áburðaþörf landbúnaðar- hafa verið og reknar eru köfn- unaref nisverksmiðj ur, sem ekki framleiða öllu meira magn en þetta. Verksmiðjur, sem framleiða 3—4000 smál. af köfnunarefni á ári eru víða. Jafnvel i Ameríku — þar sem flest er stórt -f hefir til skamms tíma verið til áburðarverk- smiðja, sem framleiddi aðeins 750 smál. af köfunarefni á ári. j Þetta bendir ótvírætt til þess, að það sé vel hugsanlegt að byggja hér á landi það litla verksmiðju, að hún sé við liæfi þeirrar þarfar, sem hér er fyrir hendi. Til hins sama benda hin teknisku atriði áætlunarinnar, sem gerð var 1935, jafnvel þótt fjárhagshlið þeirrar áætlunar fengi þá ekki að öllu leyti stað- izt, og sé vitanlega ekki nærri neinu lagi nú orðið. Höfundur bendir að lokum á að milljónum króna hafi að undanförnu verið varið til auk- innar ræktunar landsins, en hvers virði sé sú nýrækt, sem , ekki sé unnt að halda við né j nytja vegna áburðarskorts. Telur hann sjálfsagt að ráðast , nú í byggingu áburðarverk- smiðju, og þótt hún kosti mik- j ið fé horgi það sig þjóðhagslega. ! Verði að afskrifa svo framlag til verksmiðjunnar, að hún geli j staðið sjálf undir rekstri sínum, j þótt vöruverði sé i hóf stillt. íns og segir m. a.: Köfnunarefnisáburðurinn er sá áburður sem okkur vantar mest og tilfinnanlegast. Verk- smiðja sem reist væri, yrði því í'yrst og fremst að framleiða köfnunarefnisáburð, og vegna dýpra flutninga innanlands, helzt sem ‘sterkastan áburð. Golt væri að verksmiðjan gæti einnig framleitt algildan áburð (Nitrophoska), en til þess þarf innflutning liráefna, sem t. d. ekki er hægt að fá til landsins eins og nú standa sakir. Ef slík verksmiðja hefði verið byggð fyrir nokkurum árum, myndi hún nú, sökum stríðsins, aðeins framleiða köfnunarefn- isáburð, en það mætti lika telja mikilsvert og gott úrræði á striðstímum. Köfnunarefnisnotkunin hér á landi, í tilbúnum áburði, liefir orðið 650 smólestir á ári, þegar hún hefir mest orðið. Þessi notkun er hinsvegar mótuð af verði, sem er það hátt, að það er landbúnaðinum mjög erfitt miðað við rekstur hans yfirleitt. Jafnvel þessi mesta notkun er því enginn réttur mælikvarði þess, hver þörfin er, ef köfnun- arefnisáburður væri fáanlegur með hagkvæmu vérði. Verk- smiðja, sem byggð væri með það fyrir augum að leysa þörf landbúnaðarins, bæði um verð og magn, þyrfti því að geta framleitt um 1000 smálestir af köfnunarefni á ári, strax frá byrjun. Það samsvarar tæplega 50000 heilsekkjum af Kalk- ammonsaltpétri. Það er kunnugt að byggðar Loftvarnirnar. Herra ritstjóri. í sambandi við tilkynningar j loftvarnanefndar vildi eg biðja j yður að birta eftirfarandi i heiðruðu hlaði yðar. Loftvarnanefnd er öðru hvoru að hirta tilkynningar til bæjar- . húa um eitt og annað viðvíkj- j andi loftvörnum, og er það að j sjálfsögðu vel meint, en hætt er ^ við að sumar leiðheiningarnar j kæmu að litlu gagni ef veruleik- j inn berði að dyrum. Það er t. d. j ekki líklegt, að þær yrðu marg- , ar konurnar — sem vonlegt er j — sem gætu slökkt í íkveikju- ■ sprengjum. En húast má við að þær séu oft einar heima, stund- um með fleiri eða færri börn, og jafnvel gamalmenni, þeg- j ar hætta er á ferðum. 1 Fæstir karlmenn eru heima frá morgni til kvölds, en hættan getur alveg eins borið að liöndum á þeim tíma eins og öðrum, og ekki siður. Og hvern- J ig er það? Er ekki allt fólk á ; liverju heimili og í hverju húsi skyldað til að vera i loftvarnar- herbergi, meðan hætta stendur yfir, og kemur eldsprengjuað- gæzlan ekki í bága við þá skyldu, þó einhver væri í húsinu að í sinna því starfi? Svo á lika að loka fyrir vatn og rafmagn — og gas þar sem það er — og einhver verður að gera það. Nýlega var frá því skýrt, að eigi mætti slökkva eld í eld- sprengju með blautum eða rök- um sandi. En nú er sandur sá | er loftvarnanefnd hefir sent út um bæinn til þessarar notkun- ar, langt frá því að vera þurr. Ef húseigendur eiga að ]>urka hann, þarf skýrra fyrirmæla um það. E'g fór nýlega að atliuga sandinn sem mér var sendur fyrir meira en mánuði, og sem eg hefi geymt á þeim stöðum i húsinu sem allt þornar í, en þó er langt frá því, að hann sé vel þurr enn. Þó að þessi ráð sem hirt eru til að reyna að fyrirbyggja hættu af eldsprengjum, séu kannske góð, þar sem duglegt og kjarkgott fólk er heima þeg- ar hætta er á ferðum, er annað í sambandi við loftvarnirnar, sem ekki síður ætti að leiðbeina almenningi um, og það er fyrst og fremst í hvaða herbergi | fólkið í hverju húsi á að hafast við í, meðan á loftárás stendur. Eg veit að sum%taðar a. m. k. hefir fólk ekki hugmynd um þetta. Víða eru mörg herbergi í kjallara, en í hverju er bezt að vera ? I mínu húsi eru t.d. 5 her- bei-gi í kjallara, en eg er í mikl- j um vafa um, í hverju þeirra er öruggast að vera í loftárás. Þetta þarf að segja fólki, og það eiga hverfisstjórarnir að gera. Eitt sinn var þess getið í blaði, að einn hverfisstjórinn, Jóhann Hjörleifsson verkstjóri, hefði I DAN BROWN: Japan hefir 3,000,000 her og útbúnaö handa 7,000,000 í^viðbót Japan hefir nægan mannafla. Ekki aðeins til þess að halda áfram hinum stórfelldu hernaðaraðgerðum, sem hafnar eru, heldur einnig til þess að yrkja jörðina, reka verksmiðjurnar og halda öllum samgönguleiðum opnum, að áliti höfundar þess- arar greinar, en hann var í 10 ár við ritstjóm Tokyo-blaðsins „Japan Advertiser“. Hann er þeirrar skoðunar, að andstæðingar Japana geri of lítið úr hermennsku þeirra og þoli. Hann sér fyrir langa og erfiða styrjöld, áður en Japan verður sigrað. — Japan hefir meira en 10 milljónir manna á herskyldu- aldri, sem liægt er að beita í þeirri baráttu, sem nú er háð um yfirráðin í Austur-Asíu, á veslurhluta Kyrrahafsins og eyjum þess. Af þessum fjölda eru meirá en þrjár milljónir fullæfðar, en nauðsynlegasti útbúnaður mun vera til handa þeim milljónum, sem þá eru ótaldar. Hernaðarsinnar Japans hafa lengi verið að undirbúa þetta stríð og þeir hafa undirbúið það með þeirri nákvæmni, sem gerir Japani að svo mörgu leyti lika Þjóðverjum. Fólk úr löndum þeim, sem Japanir hafa lagt undir sig —að- allega Kínverjar — hefir verið flutt til Japans til þess að starfa þar. Milljónir annara „þræla“ eru látnar vinna fyrir vígbúnað Japana í Manchukuo, en því landi hefir verið breytt í geysi- stórt iðnaðar- og Iandbúnaðar- forðabúr fyrir Japan. Það er mér ljóst af 10 ára dvöl minni í Japan árin 1931—41, að Japanir munu ekki tapa þessu stríði vegna þess að þá slcorti hendur til að vinna. Til að byrja með er kjarninn, 80 milljónir „hreinna“ Japana, sem mun leggja til megnið af hernum og beztu verkamennina í hergagnaiðnaðinum. Þetta fólk hefir, verið „þjálfað" undir langt strið með öllum hugsan- legum ráðum og aðferðum. Þjóðin er afar stolt og hroka- full, og hún hatar alla hvíta menn. Næst þessum „hreinu“ Jap- önum koma 24 milljónir Kóreu- manna, sem fá inngöngu í her- inn sem s|áIfboðaliðar, ef þeir uppfylla viss slcilyrði. Hlutlaus- ir menn líta svo á, að megnið af koreönsku þjóðinni sé nú orðið svo japanskt í anda vegna „upp- eldis“ þeirra, aðhún muni halda tryggð við keisarann, meðan barizt er annarsstaðar en í Koreu. Eftir Kofeumönnum koma sex milljónir Formósinga og hið sama’á við um þá. Þá er komið að liinum svo- nefndu „hernumdu“ lilutum Kina — þar sem líklega eru a. m. k. 100 milljónir manna. Þenna „forða“ nota .Tapanir þegar þá vantar verkamenn einhversstaðar. Milljónir manna hafa þegar verið fluttar til Manchukuo, þar sem þær eru farið í öll hús í sínu hverfi„ kynnt sér innréttingar og fyrir- komulag livers liúss, og leið- Iieint fólki um val á loftvarna- herbergi m. m.. Hann féklc lof fyrir framtalc sitt og dugnað og það að maklegleikum. Eu það er ekki nóg að þetta geri einn hverfisstjóri. Þeir þurfa að gera það undantekningarlaust allir, og einnig aðstoðarmenn þeirra, t. d. þeir sem eiga að slökkva elda, eða hjálpa slösuðu fólki. Það segir sig sjálft, hvort það er ekki hægara að inna slík verk af hendi, ef þeir sem það eiga að gera, Iiafa komið í húsin og þekkia fyrirkomulag þeirra og innrlttingu, a. m. k. að nokkuru. En hefir þetta verið rækt sem skyldi? Aldrei liefir neinn maður komið í mitt hús fram til þessa í þessum erindagerðum. Um það get eg borið. Þessu þyrfti loftvarnanefnd að kippa í lag sem fyrst. Að síðustu örfá orð um loft- varnaæfingarnar. Eg (og vafalaust margir aðr- ir) er dálítið undrandi yfir því, að þær skulu vera boðaðar fyr- irfram og oftast látnar fará fram á þeim tíma, er almenningi hent- ar bezt t. d. um og eftir hátta- tíma, en aldrei á þeim tíma er verst gegnir, að kvöldinu, með- an öll samkomuhús eru full af fólki, og maður er við mann á öllum aðalgötunum. Stað- reyndin gæti þó komið á þeim tíma eins og öðrum, og væri þá ekki verra, að hafa einhvern- tíma æft það, að taka á móti henni. Þegar síðasta æfing fór fram, var talað'um að bærinn hefði verið „myrkvaður", en hvernig: er hægt að „myrkva“ í heiðskiru lofti og glampandi tunglsljósi? Sú myrkvun virðist heldur þýðingarlitil 1 annað sinn var myrkvun fyrirskipuð, en svo logaði á öllum götuljósum all- an æfingartímann. En hefir ekki verið of htið gert að því, að myrkva bæinn í verulegu myrkri, þ. e. i nátt- myrkri skammdegisnæturinn- ar, alskýjuðu lofti, og þegar tungl ber enga birtu? Það skal að lokum tekið fram, að greinarstúfur þessi er ekki skrifaður sem ádeila til neins, heldur sem athugasemdir frá einum bæjarbúa, þessum mál- um viðkomandi. A. J. Johnson. Næturlæknir. Jóhannes Björnsson, Sólvallagötu 2, sími 5989. Næturvörður í Lyfja- búðinni Iðunni þessa viku. látnar starfa á bóndabæjum, í námum og verksmiðjum. I aug- um Japana eru þessar „óæðri“ þjóðir ekki hæfar til neins ann- ars en að vera verkamenn — Þeir sjálfir eigi að berjast. En Japanir vita af reynsluani, að mannaflinn einn ræður ekki sigrinum. Þegar þeir voru að- eins 41 milljón árið 1894 tókst þeim að sigra 310 milljónir Kin- verja. Tíu árum síðar var fjöldi japönsku þjóðarinnar orðinn 49 milljónir og þá hrósaði hún sigri yfir 100 milljónum Rússa. Loks hafa Japanir séð, að Þjóð- verjum tókst að leggja imdir sig mestan hluta Evrópu með einum 90 milljónum manria. Japanir áætla að þeir hafi imt 10.8 milljónir vopnfærra manna á aldrinum 18—35 ára, en til samanburðar má geta þess, að Bandaríkin hafa um 22.8 millj. manna á sama aldri. Samkvæmt japönskum lögum verða aDir menn á aldrinum 17—40 ára að bera vopn, ef þeir eru kvaddir til þess. Með þessu móti hafa Japanir um 12.7 milljónir manna, sem hægt er að vopna. Því fer auðvitað fjarri, að aWr

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.