Vísir - 20.03.1942, Blaðsíða 1
Ritstjóri:
Kristján Guðlaugsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð).
32. ár.
Reykjavík, föstudaginn 20. marz 1942.
Ritstjóri 1
Blaðamenn Slmi:
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri 5 línur
Afgreiðsla
44. tbl.
Skipatjón Japana
er mesta áhyggjuefni þeirra. — Sldpa-
smíðastöðvarnar geta ekki sint ný-
smíðum vegna viðgerða
á löskuðum skipum.
EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun.
Ifregnum, sem birtar voru í gær, var tekið fram, að
þau 23 skip, sem orðið hafa fyrir sprengjum
nýlega og sokkið eða laskazt við austurströnd
Nýju Guineu, væri í flokki þeirra, sem hafa orðið fyrir
árásum þar undangengna 10 daga. Hér var því ekki um
nýja viðureign að ræða- En árásunum á skip Japana við
strendur Nýja Bretlands og Nýju Guineu er haldið
áfram af miklu kappi, og eins og skeyti hermdu, sem
birt voru í gær, hefir stórt japanskt beitiskip í höfninni
í Raboul á Nýja Bretlandi orðið fyrir sprengju og lask-
azt stórlega. — Skipatjónið verður æ alvarlegra fyrir
Japana — þar eru þeir veikastir fyrir — og skipasmíða-
stöðvarnar í Japan og víðar eru nú önnum kafnar við
viðgerðir, en nýsmíði liggur niðri að mestu. — Hér fer
á eftir amerísk fregn um skipatjón Japan til þessa. —
Af 23 skipum, sem um getur
'lfér að framan, voru 12 herskip,
að því er tilkynnt var í Wash-
ington. í árásinni, sem skip
þessi urðu fyrir, urðu og miklar
skemmdir á hafnarmannvirkj-
um, strandvirkjum, sem Japan-
ar eru að koma uþp o. s. frv.
Með árás þessari liafa Banda-
ríkjamenn enn „borgað fyrir
sig“ vegna árásarinnar á Pearl
Harbour.
1 orustunni á Javasjó var liðs-
munur svo mikill, að Japanar
höfðu 2 lierskip móti liverju
einu bandamanna,' og auk þess
miklu meiri flugvélastuðning,
en þó var 8 japönskum skipum
sökkt i þeirri viðureign. 12 fyrr-
nefnd herskip, sem urðu fyrir
sprengjum í Roubal, koma tölu
japanskra herskipa, sem Banda-
ríkjamenn hafa sökkt eða stór-
laskð, upp í 66. Engin skip eru
með talin, sem Bretar eða Hol-
lendingar hafa sökkt. Auk þess
hafa Bandaríkjamenn sökkt eða
stórlaskað 109 flutningaskip
fyrir Japönum og voru mörg
þeirra í herliðsflutningum, er
gerðar voru árásir á þau. í þess-
ari tölu eru meðtalin þau, sem
eyðilögð voru í árásinni við Lae
og Salamaua á Nýju Guineu.
Aívarlegasta tjónið þar var, að
sökkt var 3 beitiskipum, en það
ljórða laskaðist.
Þegar styrjöldin byrjaði áttu
Japanar, að því er kunnugt var:
40 beitiskip. Bandaríkjamenn
einir hafa sökkt 6 beitiskipum
'fyrir Japönum og laskað 16. —
Bandaríkjamenn hafa misst eitt
beitiskip: Houston.
Við endurathugun fregna um
skipatjón Japana í styrjöldinni
til þessa kemur í ljós, segir í
fyrrnefndri fregn frá Washing-
ton:
Full vissa er fyrir, áð sökkt
hefir Verið 91 skipi: Tveimur
flugvélaskipum, 1 orustuskipi,
G beitiskipum, 9 tundurspillum,
6 kafbátum, 2 tundurduflaskip-
um, 2 fallbyssubátum, 5 olíu-
flutningaskipum, 34 herflutn-
ingaskipum, 16 herbirgðaskip-
um og 8 öðrum skipum.
Miklar Hkur eru til, að sökkt
hafi verið:
Einu flugvélaskipi, 3 tundur-
spillum, 1 tundíurduflaskipi, 2
herflutningaskipum, 2 skipum
öðrum.
Kunnugt, að laskazt hafa:
..49 skip, meðal þeirra: Eitt
flugvélaskip, 3 orustuskip, 13
beitiskip, 6 tundurspillar, 1 kaf-
bátur, 16 herflutningaskip og 9
skip önnur.
Kunnugt, að grandað hefir
verið: 323 flugvélum, meðal
þeirra sprengju- og orustuflug-
vélar og stórir flugbátar. Flug-
vélarnar, sem Japanar misstu i
árásinni á Pearl Harbor ekki
meðtaldar.
AÐRAR FREGNIR AF STYRJ-
ÖLDINNI VIÐ JAPANI.
Japanskar sprengjuflugvélar,
allar stórar, gerðu árás á Port
Moresby í gærmorgun. Árásin
stóð í hálfa klukkustifnd. Engar
fregnir hafa enn borizt um
manntjón eða eigna. í fyrradag
gerðu Japanir tvær árásir á Tul-
agi á Salomonseyjum. Tveir eða
þrir innbornir menn biðu bana,
en skemmdir á mannvirkjum
voru litlar.
f/
Háttsettur amerískur embætt-
ismaður i Asíu hefir staðfest, að
frásögn Edens um hryðjuverkin
i Hongkong er rétt. Embættis-
maður þessi hefir persónulega
yfirheyrt vitni þau, sem, Eden
studdist við í frásögn sinni.
Bandaríkjaflugmenn hafa
eyðilagt 15 japanskar flugvélar
á flugstöð Japana við Moulmain
í Burma. Alls var grandað 25
flugvélum. Var liér um sameig-
inlega brezk-ameriska loftárás
að i-æða. — Amerískt lið er nú
komið til Indlands.
Brezkar hersveitir hafa hörf-
að frá Tharrawaddy, sem er um
96 kílómetra norðvestur af
Rangoon á leið til Prome. Að
öðru leyti liafa engar verulegar
breytingar orðið á vigstöðvun-
um í Burma, en Japnar halda
áfram að þreifa fyrir sér með
þvi að send a njósnaflokká
hingað og þangað. Smábardagar
hafa orðið um 160 km. norður
af Rangoon og 70 km. vestur af
•Toongon.
Rockwell flotaforingi, sem
var með MacArthur á Filipseyj-
um er nú kominn til Ástraliu og
starfar þar undir yfirstjórn
MacArthurs.
Fregn frá Chungking liermir,
að Japanar noti gas í bardögum
gegn Kínverjum.
Stillwell Iierforingi frá Banda-
Rússar hvetja
bandamenn til
sóknar á öll-
um vfgstöðvum
Blaðið Moscow News, sem
birt er á ensku í Kuybishev, hef-
ir skorað á bandamenn að hef ja
samtímis sókn gegn Þjóðverjum
á öllum vígstöðvum, til þess að
fullur árangur náist af sókn
þeirri, sem Rússar hafa haldið
uppi í Vetur, og herða nú sem
mest.
Rússar tilkynna, að þeir hafi
umkringt Gzhatck, á miðvíg-
stöðvunum. Hafa Þjóðverjar þar
allmikinn her og miklar birgða-
stöðvar. 2000 þýzkir hermenn
eru innikróaðir á Smolensk—
Vyazm'asvæðinu.
'• Enn berast fregnir um, að
barizt sé i úthverfum Kharkow
í návígi. í sambandi við þetta er
vakin athygli á, að í rússnesk-
um blöðum var boðað fyrir fá-
um dögum, að brátt myndu
800.000 íbúum Kharkow verða
bjargað úr greipum Þjóðverja.
— Stórskotaliðið rússneska hef-
it malað mjölinu smærra vern-
arvirki Þjóðverja í útjöðrum
Kharkow. Jafnframt berast
fregnir um, að hersveitir Timo-
chenko fyrir sunnan Kliarkow
Iiafi tekið þýzkar varnarstöðvar
og um 1000 Þjóðverjar fallið i
bardögunum.
Þjóðverjar gera örvæntingar-
fullar tilraunir til þess að hintíra
framsókn Rússa á Kerchtanga,
Krím.
Berlínarfregnir lierma, að
Rússar noti 53 smálesta skrið-
dreka i árásunum við Rzhev.
— I Lundúnafregnum segir, að
alger eyðing vofi yfir 60.000
manna liði, sem Þjóðverjar hafa
sent til Kharkowvígstöðvanna.
Seinustu fregnir frá Washing-
ton herrna, að Rússar sæki fram
á Vyazmasvæðinu suður á bóg-
inn, eftir Nikitinkaveginum frá
Dorgúbús, og stefna Rússar að
því að umlykja allan her Þjóð-
verja á Vyazma- og Rzhevsvæð-
inu.
I Stokkhólmsfregnum segir,
að hungursneyð sé nú viða svo
mikil í Finnlandi, að börn deyi
unnvörpum vegna matvæla-
skorts. Kornbirgðir landsins eru
á þrotum. Finnsk stjórnarvöld
fyrirskipuðu bændum í feln-ú-
ar að láta helming alls sáðkorns
af liendi, en siðar var bændum
fyrirskipað að láta af Iiendi allar
kornbirgðir, sem þeir ætluðu til
matar handa sér og fjölskyldum
í sínum.
rikjunum, sem að undanförnu
liefir verið forseti herráðs Chi-
angs Kai-sheks, hefir nú tekið
vlð yfirstjórn 5. og 6. kínverska
liersins, en þeir eru í Burma.
Stillwell talar og ritar kín-
versku. Chiang Kai-shek átli
frumkvæði að þessu. — Þetta
er í fyrsta skipti, sem amerísk-
ur herfoiúngi stjórnar miklum
erlendum lier.
FRÉTTIR
í STUTTU MÁLI.
Morrison öryggismálaráð-
lierra skýrði frá þvi í neðri mál-
stofunni í gær, að ritstjórn Lon-
don Daily Mirror hefði fengið
aðvörun um, að birta ekki á-
deilugreinar, sem spiltu árangr-
inum af því, sem gert er til þess
að inna af liendi störf vegna
styrjaldarinnar.
De Brinon, fultrúi Petains í
París, hefir ráðlagt honum að
Riom-réttarliöldunum verði
hætt. Þetta er talið stafa af ó-
ánægju Hitlers út af því, að rétt-
arhöldunum sé ekki hagaðþann-
ig, að hann geti skellt skuldinni
á Frakkland fyrir, að til styrj-
aldar kom milli Frakka og Þjóð-
verja,' en yfirlieyrslurnar hafa
snúist um skort Frakka á und-
irbúningi, og fyrirhyggjuleysi.
Mikil ólga virðist vera í Rúm-
eníu út af kröfum Þjóðverja.
Landbúnaðarráðlierrann liefir
beðizt lausnar vegna þess, að
Þjóðverjar krefjast meira korns.
—- Leiðtogar bænda og frjáls-
lyndra hafa sent forsætisráð-
herra ávarp og lýsa yfir, að ef
Þjóðverjar geti ekki sigrað án
aðstoðar Rúmena, sé engin von
til, að Þjóðverjar sigri i stvrj-
öldinni.
í opinberri skýrslu pólsku
stjórnarinnar í London segir, að
Pólverjar fái nú aðeins 1/6-1/3
af venjulegum matarskammti,
en áfengisfranileiðslan er nú
fimm sinnum meiri en fyrir
styrjöldina. Pólskar stúlkur eru
neyddar til ólifnaðar. Pólskum
piltum og stúlkum er tíðum
bannað að hafa nokkurt sam-
hand við frændur sína og önnur
skyldmenni.
Göhbels virðisl hafa komizt í
nokkurn bobba í fréttaflutningi
sinum, vegná skipunarMacArt-
hurs i yfirhershöfðingjaembætt-
ið i Ástralíu. í fyrstu þýzku
fregninni um þetla var sagt:
Þetta kom Japönum alls ekki
á óvænt. — Fimmtán mínútum
, síðar: Skipun MacArthurs i
embættið hefir vakið milda
furðu i Japan.
Amerískur kafbátur hefir
bjargað 43 sjóliðum af brezka
tundurspillinum Elektra. sem
sökkt var i orustunni á Javasjó.
Fimm höfðu særzt illa. Hol-
lenzkt tundurduflaskip tók við
sjóliðunum og flutti þá til hafn-
ar.
Japanskar flugvélar vörpuðu
25 sprengjum á Port Darwin,
Norður-Ástralíu, i gær. Mann-
tjón og eigna var lítið. Ibúðar-
og sjúkrahús urðu fyrir
skemmdum.
CASEY SKIPADUR STRÍÐS-
STJÓRNARRÁÐHERRA MEÐ
AÐSETRI I KAIRO.
Tilkynnt var í Loiídon í gær,
að Casty, sendiherra Ástralíu i
Washington, hefði verið skipað-
ur striðsstjórnarráðherra með
aðsetri i Kairo, og tekur liann
þar við embætti því, sem Sir
Oliver Lyttleton, núverandi her-
gagnaframleiðsluráðherra —
gegndi til skamms tíma.
í seinustu fregnum segir, að
nokkur ágreiningur liafi verið
um þetta, þótt ástralska stjórn-
in hafi veitt samþykki sitt, því
að liún taldi þess mikla þörf,
að slíkur maður sem Casey væri
áfram sendiherra í Bandaríkj-
unum.
Málið verður rætt á þingi Ást-
ralíu bráðlega.
Fifrsti íidur nfju
bæjarstjórnariar.
Bjarni Benediktsson
kosinn borgarstjóri.
gJARNI BENEDIKTSSON var
kcsinn borgarstjóri á fyrsta
fundi hinnar nýju bæjarstjórn-
ar, sem haldinn var í gær. For-
seti bæjarstjórnar var kosinn
Guðmundur Ásbjörnsson, 1.
varaforseti Jakob Möller, 2.
varaforseti Valtýr Stefánsson.
Skrifarar voru þeir kosnir Helgi
H. Eiríksson og Björn' Bjarna-
son og til vara Gunnar Þor-
steinsson og Steinþór Guð-
mundsson.
Þá var kosið í ýmsar nefndir
og trúnaðarstöður:
Bæjarráð:
Guðmundur Ásbjörnsson,
Jakob Möller, Helgi lí. Eiríks-
son, Sigfús Sigurhjartarson, Jón
A. Pétursson.
Framfærslunefnd:
Guðmundur Ásbjörnsson,
Guðrún Jónasson, Gísli Guðna-
son, Katrín Pálsdóttir, Arngrim-
ur Kristjánsson.
Barnaverndarnefnd:
Jón Pálsson, ólafur Svein-
björnsson, Guðrún Guðlaugs-
dóttir, Guðrún Jónasson, Pet-
rína Jakobsson, Arnfinnur Jóns-
son, Guðný Jónsdóttir.
Brunamálanefnd:
Ilelgi H. Eiríksson, Guðrún
Jónasson, Gunnar Thoroddsen,
Steinþór Guðmundsson, Jón A.
Pétursson.
Byggingarnefnd:
Hörður Bjarnason, Guðmund-
ur Ásbjörnsson, Ársæll Sigurðs-
sön, Steinþór Guðmundsson.
Hafnarstjórn:
Gunnar Þorsteinsson, Valtýr
Stefánsson, Sigurður Sigurðs-
son, Björn Bjarnason, Sigurður
Ólafsson.
Fræðsluráð:
Helgi IJ. Eiríksson, Gunnar
Thoroddsen, Steinþór Guð-
mundsson, Soffía Ingvarsdóttir.
Endurskoðendur
bæ jarreikninganna:
Ari Thorlacius, ólafur Frið-
riksson.
Endurskoðandi styrktarsjóðs
verkamanna og sjómanna:
Alfreð Guðmundsson.
Matarskammtur í Þýzkalandi
minnkar að miklum num inn-
an þriggja vikna.
Þrír þýzkir njósnarar hafa
verið handteknir i Braziliu.
Höfuðpaurinn er liðsforingi í
þýzka hernum.
I Mexico hafa 30 menn verið
handteknir grunaðir um njósn-
ir. Þeir sem sekir finnast um
njósnir fyrir Hitler verða af-
hentir Bandarikjunum.
t
Dr. theol.
Jón Helgason
biskup andaðist í gær.
Dr. theol. Jón Helgason bislc-
up andaðist að heimili sínu um
kl. 11 i gærkveldi. Hann hefir
til skamms tima verið ern og
hraustur, farið allra ferða sinna
og verið sistarfandi að ritverk-
um sínum. I haust kenndi hann
liinsvegar veiki þeirrar, er dró
liann til dauða, og síðustu vik-
urnar hefir hann legið rúm-
fastur.
Með dr. Jóni Helgasyni er ein-
liver merkasti kirkjuhöfðingi
þessa lands i valinn hníginn.
Ilann var manna fróðastur um
flesta hluti, er sagnfræði vörð-
uðu og þá einkum íslenzka
kirkjusögu og sögu höfuðstað-
arins. Hann var maður stjórn-
samur og svo starfssamur, að
ekki féll lionum verk úr hendi.
Hann var hreinn maður og
djarfur og svo mikill drengskap-
armaður, að hann naut óskerts
trausts og virðingar allra, er
lians handleiðslu hlíttu, jafnt
lærðra sem leikra um land allt.
Að þessu sinni verða störf
þessa merka manns og kirkju-
höfðingja ekki rakin, en það
verður gert síðar hér i blaðinu.
Handknattleiksmótið,
Enn var keppt í gærkveldi,
þrír leikir, eins og hin kvöldin.
I 2. flokki fóru fram tveir
leikir. Sá fyrri var milli Hauka
og F.H., og sigruðu hinir fyrr-
nefndu með 11:8. Síðari leikm'-
inn í þeim flokki var milli Vals
og Víkings. Þar varð jafntefli,
10:10. — Loks kepptu Ármann
og Fram i 1. flokki. Sigruðu Ár-
menningar með 21:17.
1 kveld keppa þessi lið: 1 2.
flokki Ármann og Vikingur, í 1.
flokki Í.R. og K.R. og i meistara-
flokki Vikingur og Haukar.
ITér er verið að koma lundurskeyti fyrir í „Beaufort“ sprengju-
, flugvél, áður en hún er send i eftirlitsferð.