Vísir - 25.03.1942, Blaðsíða 3
VÍSIR
Minningarorð
um
Lárusínu Lárusdóttur
17. þ. m. andaðist að heimili
sinu, Njálsgötu 32 B hér í hæ,
fru Lárussína Lárusdóttir (fædd
Fjeldsted). Hún var fædd 1. nóv.
1873 að Móabúðum í Eyrarsveit.
Foreldrar hennar voru Lárus
Eggertsson Fjeldsted og kona
hans, Sigríður Hannesdóttir. —
Var Lárus búhöldur mikill en
Sigríður þótti allra kvenna í'eg-
urst.
Lárussína dvaldi í foreldra-
Iiúsum unz hún giftist Salómon
Sigurðssyni óðalsbónda í Drápu-
hlíð árið 1896. Þau bjuggu fyrst
í Drápuhlíð, en síðar fluttu þau
að Máfahlið, en árið 1903 flutt-
ust þau að Laxárbakka í Mikla-
holtshreppi og þar dó Salómon
árið 1908. Sambúð þeirra hafði
verið hin ástúðlegasta. Salómon
var búhöldur góður, trúmaður
mikill og góður drengur. Hann
var tvikvæntur og var Lárus-
sína síðári kona hans. Þegar
hann dó var Lárussína ein og
óstudd með 8 börn þeirra Saló-
mons, auk fjögurra stjúpbarna.
Þarf eúgum getum að því að
leiða, hve þung spor hinnar
ungu ekkju hafa verið, er hún
fylgdi bónda sínum til grafar.
Lárussína bjó á Laxárbakka
til ársins 1911. Þá fluttist hún
íil Stykkishólms, en fluttist
þaðan til Isafjarðar árið 1915.
Árið 1922fluttist hún til Reykja-
víkur og bjó eftir það hér í bæ
til dauðadags. —- Árið 1918’gift-
ist hún eftirlifandi manni sin-
um, Einari Friðrikssyni, er
reyndist henni hinn ágætasti
förunautur.
Sjö af litlu börnunum ekkj-
unnar á Laxárbakka eru enn á
lífi og eru þau öll liin mannvæn-
legustu. Þau eru: Pétur,
Tryggvi, Lúther, Lárus og Har-
aldur, allir í Reykjavík, Guð-
rún, húsfreyja ;v Skeljabrekku
í Borgarfirði, og Gunnar í Dan-
mörku. Tvö stjúpbörn hennar
eru látin, en á lífi eru Helgi
Hjörvar og María hér í bæ, og
Friðrik útgerðarmaður, Flatey.
Ævi Lárussínu heitinnar var
viðburðarík og skiptust þar á
skin og skúrir. Þótti mikið í ráð-
ist, er hún gerðist ung stjúp-
móðir fimm barna, en svo vel
leysti hún þá þraut, að stjúp-
bömin unnu henni hugástum,
sem væri hún móðir þeirra.
Það sem gerði Lárussinu ó-
gleymanlega þeim, sem kynnt-
ust henni, var góðleikur hennar,
starfsemi, ástríki og trú, og var
hún elskuð og virt af öllum,
sem kynntust henni.
Hinn langi starfsdagur er lið-
inn. Móðurhöndin hlýja er nú
köld, en minningin um hve ást-
ríkt hún strauk kinn barnsins
mun lengi lifa í þakklátum
lijörtum, sem í dag þakká guði
fyrir góða móður.
Guði veri með þér!
Árni Þórarirtsson.
Nætorhljómleikum
frú Hallbjargar Bjarnadóttur, var
frestað vegna fjarveru hljómsveit-
arinnar til föstudagsins 27. þ. m.
Aðgöngumiðar eru seldir í Hljóð-
færahúsinu.
Frá Búnaðarþingi.
Á fundi Búnaðarþings á laug-
ardaginn var, voru mörg mál til
umræðu og stóð fundurinn frá
kl. 2 til 11.30 síðd.
Meðal annars samþykkti Bún-
aðarþingið einróma að veita
Jóni Gestssyni, bónda í Villinga-
holti í Flóa, heiðursverðlaun,
1500 kr., fju-ir uppfinningu og
endurbætur og smíði búvéla.
Hefir Jón bóndi, sem er nú há-
aldraður maður, unnið bænda-
stéttinni hið mesta gagn með
smíðum sínum, sem hann mun
hafa stundað allt frá æsku. Voru
allir sammála um að hann ætti
þennan heiður skilið.
Einn fulltrúanna, Páll Stef-
ánsson, bar fram tillögu þess
efnis, að athugað yrði hvort ekki
mætti draga úr verkafólksvand-
ræðum þeim, sem landbúnað-
urinn á við að stríða, með þvi að
þegnskylduleiðin . vrði farin.
Búnaðarþingið samþykkti svo-
fellda tillögu í því máli:
„Alþingi 1941 hefir samþykkt
heimildarlög um þegnskyldu,
sem ekki er enn komin reynsla
á. Ennfremur hefir þetta Bún-
aðarþing samþykkt frumvarp
til laga um vinnumiðlun, sem
ætlazt er til að verði grundvöll-
ur fyrir rikisstjórnina til að
tryggja nauðsynlegustu atvinnu-
greinum þjóðarinnar vinnuafl.
Búnaðarþing telur því af þess-
um ástæðum ekki rétt á þeim
tímum, sem nú standa yfir, að
gera nýjar tillögur um þegn-
skylduvinnu, þó Búnaðarþing
hinsvegar viðurkenni þá hug-
mynd, sem felst í tillögunni, og
tekur þvi fyrir næsta mál á
dagskrá.“
Búnaðarþingiriu var slitið í
fyrrakveld og voru fundir langir
þrjá síðustu dagana og mörg
mál afgreidd.
M. a. samþykkti Búnaðarþing-
ið tillögu um að stofna hrossa-
kynbótabú á Hólurn í Hjaltadal,
og er ætlazt til að hrossaræktar-
ráðunautur Búnaðarfélagsins
veiti því forstöðu og hafi þar bú-
setu.
Ennfremur var samþykkt
svolátandi þingsályktunartil-
laga, vegna tillögu um búnaðar-
skóla á Suðurlandi, frá Páli
Stefánssyni:
„Búnaðarþingið mælir með
því, að stofnaður verði bænda-
skóli á Suðurlandi, hið fyrsta að
við verður komið. Jafnframt fel-
ur það stjórn Búnaðarfélags Is-
lands að láta fara fram athug-
un um allt fyrirkomulag bún-
aðarfræðslunnar i landinu. Sé
þá, meðal annars, athugað hvort
ekki muni nauðsynlegt og fært,
að stofna búnaðarskóla á Aust-
urlandi og Vesturlandi. Leggi
stjórnin álit og tillögur um þessi
mál fyrir næsta Búnaðarþing, á-
samt tillögum um þær laga-
breytingar, er nauðsynlegar
teljast, i sambandi við búnaðar-
fræðsluna. Heimilt er stjórninni
að skipa milliþinganefnd, er
vinni að þessum málum.“
Handknattleiksmótíð,
I gær hélt Handknattleiksmót-
ið áfram og voru þá leiknir þrír
leikir.
Úrslit urðu sem hér segir:
I öðrum flokki vann K.R.
F.H. með 15:11 mörkum. I
sama flokki kepptu Valur og
Víkingur og sigraði Valur með
21:13. Loks kepptu i fyrsta
flokki F.H. og Vikingur, og lauk
þeim leik með jafntefli, 22:22.
I kvöld kl. 9 (ekki kl. 10)
keppa í öðrum flokki I.R.—
Haukar og Ármann—F.H. og i
fyrsta flokki Valur—Fram og
Ármann—K.R.
Guðspekistúkan Septima
efnir til fræðsluerindis í húsi fé-
lagsins, Ingólfsstræti 22, kl. 9 í
kvöld.
E>
—t
u
Málarar!
1
Heildsölubirgðir hjá:
Gotfred Bernhöft & Co.h.f.
Sixni 5912. — Kirkjuhvoli. — P.O. 985.
^or§k Jnl
Nú er komið hingað til lands norska tímaritið Norsk
Jul. Heftið er stórt og fallegt. Flytur f jölda mynda
frá innrásinni í Noreg, norsku konungsf jölskyldunni
og þeim mönnum, sem fremst standa með norsku
þjóðinni. Þetta er eitt fegursta jólaheftið, sem hingað
hefir borist. Kostar aðeins 4 krónur.
Bókaverzlun ísafoldar.
Lokað vegna jarðarfarar á morgun allan
daginn.
_____ 0
K. Einarsson & Björnsson
Verzl. Dyngja
Iðnaðarpláss
Eg liefi fundið veru-
lega gott shampoo, og
_ V '
nota eg nú ávaUt og
aldrei annað en hið ó-
viðjafnanlega
„Drené44 nhampoo
„DBENÉ“ shampoo
fæst í næstu verzlun.
HEILDSÖLUBIRGÐIR:
nrs%
Aðalstræti 16. — Sími 2484. \
Rúmgott iðnaðarpláss óskast. Má vera óinnréttað-
ur kjallari. Nánari upplýsingar í síma 4495.
Vegna jarðarfarar
verður verzlun mín lokuð allan daginn á
morgun (fimmtudaginn 26. þ. m.)
MARTEINN EINARSSON & Co.
Flóra
Sími 2039, S639
Matjurta-
og Blómafræið
er komið
Flóra
SENDISVEINN
óskast strax.
JvpmiMT
Aðalfundur
í Blaðaútgáfunni Vísir h.f. verður haldinn að Hótdl
Borg, þriðjudaginn 31. þ. m. kl. 3% e. h.
STJÖRNIN.
BEZT AÐ AUGLÝSA í VÍSL
Verkamenn
Nokkra menn vantar i vinnu innanbæjar.
ALMENNA BYGGINGAFÉLAGIÐ H/f.
Lækjargötu 10 A.
Df. theol. Jón Helgason biskup
verður jarðsunginn föstudaginn 27. marz næstk., og
hefst athöfnin með'Tiúskveðju á lieimili hans kl. 1 e. h.
María Helgason, börn og tengdadætur.
Hér með tilkynnist, að lijartkær sonur okkar.
Magnús Ingibergur Jónsson
andaðist á Vífilsstöðum 24. þ. m.
Lilja Helgadóttir, Jón Kjartansson.
Rauðarárstíg 13 C.
Elsku litli drengurinn okkar,
Clias
sem andaðist 20. þ. m., verður jarðsunginn föstud. 27. þ..
m. kl. 10% f. h. frá heimili okkar, Sjafnargötu 8.
Sigríður Elíasdóttir. Sveinn Sigurðsson.,
1
J