Vísir - 27.03.1942, Side 2
VlSIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÖAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson
Skrifst.: Félagsprentsmiðjunni
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12
(Gengið inn frá Ingólfsstræti)
Símar 1 6 6 0 (5 línur).
Verð kr. 3,00 á mánuði.
Lausasala 15 og 25 aurar.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Fjárlaga- •
frumvarpið
Jakob Möller lagði i gær
fyrir Alþingi fjárlaga-
frumvarpið fyrir árið 1943.
Engum getur komið það iá óvart,
þótt frumvarp þetta séliiðliæsta,
sem enn hefir verið lagt fyrir
Alþingi. Sú varð raunin á, að
fjárlög liækkuðu ár frá ári,
meðan friður var, og það entla
þótt atvinnuvegum og fram-
leiðslu færi hnignandi og
greiðslugeta að sama skapi
þverraði. Nú vita það allir, að
framleiðslan hefir margfaldazt
að krónutali, síðan stríðið byrj-
aði. Þar við bætist svo hinn
stöðugi fjárstraumur vegna
þarfa setuliðanna. Islenzkir
gjaldþegnar hafa þess vegna
aldrei haft nándar nærri eins
mikið fé handa á milli og nú.
Hver einstaklingur getur um
það borið, hve útgjöld hans
hafa aukizt hin síðustu misseri.
Útgjöld rikissjóðs eru auðvitað
sömu lögum liáð. Það væri þess
vegna fánýtt, að telja stóraukin
útgjöld ríkissjóðs nokkura
bendingu um, livað þá heldur
sönnun þess, að alvarlega sé á-
statt. Þarf í þessu sambandi
ekki annað en minna á sjálfa
dýrtíðarhækkunina og svo t. d.
það, að útgjaldaliður eins og
viðhald vega hefir einn út af
fyrir sig, hækkað upp i
1.700.000, í stað þess að fyrir
árið 1940 var þessi liður áætl-
aður kr. 750.000. Hér er þó ekki
talið það fé, sem setuliðin greiða
til viðhaldsins.
Þá má benda á, að vegna þess,
að við höfum nú tekið utanrik-
ismálin í okkar eigin hendur
hafa þessi útgjöld meira en
tvöfaldazt. Þau voru allt að kr.
231.250 á fjárlögum 1940, en
eru á fjárlagafrumvarpinu áætl-
uð kr. 568.100.
Af öðrum stórhækkunum út-
gjalda má nefna kostnað við
lögréglu, sem áætlaður er kr.
300.000, í stað kr. 80.000 fyrir
stxáð.
Þessi dæmi ættu að nægja til
að gefa örlitla mynd af þeim
óhjákvæmilegu liækkunum.sem
orðið hafa á stríðsárunum. En
auðvitað er nálega sama hvar
gripið er niður. T. d. hefir kostn-
aðurinn við kennslumál hækkað
um tæp 600.000. Alls eru rekstr-
arútgjöldin samkv. frumvarp-
inu kr. 28.333.238. Til saman-
burðar má nefna, að á seinasta
l'járlagafrumvarpi, sem samið
var fyrir stríð, — fjárlagafrv.
fyrir 1940 — voru rekstrarút-
gjöldin áætluð kr. 17.857.448.
Mismunurinn á þesum tveim
upphæðum er kr. 10.475.890,
eða rétt um 60%. En dýrtíðar-
hækkunin er nú 83%.
Tekjur ríkissjóðs fóru gífur-
lega fram úr áætlun á síðasta
ári, svo tekjuafgangur er yfir
17 inilljónir króna, eða mai-gfalt
hærri en hann hefir nokkru
sinni verið áður.
Tekjurnar fyrir 1943 eru á-
ætlaðar kr. 33.736.100 og rekstr-
arafgangur því kr. 5.402.862. En
greiðslujöfnuður, eftir að tekið
er tillit til afborgana á lánum
og eignaauknings, hagstæður
um kr. 3.084.564.
Auðvitað vex-ður engu spáð
um það, hvei’nig afkoma íúkis-
sjcxðs verður á næsta ári. Það
veltur mest á afkomu atvinnu-
veganna og þeim möguleikum,
sem verður á innflutingi til
landsins. En ef ekki verða því
geigvænlegri breytingar á þessu,
verður ekki sagt, að áætlunin,
hvorki tekjur né gjöld — sé
ógætileg.
Að öðru leyti má skíi'skota til
ræðu þeirrar, er fjármálaráð-
heri'a f lutti, og útvarpað var. Þótt
ýmsunx kunni að vaxa fjárlögin
i augum að lítt rannsökuðu máli,
munu allir sanngjarnir menn
viðurkenna, að hér sé um eðli-
legai' hækkanir að ræða, sem
stafar af því einu, hve óskaplega
allt verðlag hefir færzt úr
skorðum. a
Handknattleiksmótið,
Verða Haukar
meistarar í
2. ílokki?
Handknattleiksmótið hélt á-
fram í gærkveldi og fóru fram
þrír leikir eins og endra nær.
Fyrst kepptu Valur og Haulý-
ar i 2. flokki. Sigraði Valur með
11 mörkum gegn 9. Haukar
liafa þó mesta möguleika til að
verða meistarar í þessum
flokki. Munu þeir aðeins þurfa
að vipna einn leik i viðbót til
þess að hafa tryggt sér titilinn.
Annar leikur til fór fram í
2. flokki milli í. R. og K. R.
Sigruðu í. R.-ingar með 31:17.
I fyrsta flokki sigi'aði í. R.
Fram með 23:20.
í kveld fara fram tveir leikir
í 2. fl. t—■ K. R. keppir við Val,
og F. H. við Viking. í fyrsta
flokki keppa K. R. og F. H.
íslenzkur sjómaður
hveríur á Englandi.
í síðustu för bv. Gyllir til Eng-
lands hvarf einn skipverja, með-
an Iegið var í höfn.
Gei'ðist þetta í siðustu viku.
Maðurinn — Tómas Guðmunds-
son, háseti, héðan úr bænum —
fór á land með fleiri skipverj-
um, en varð viðskila við þá og
kom ekki aftur um horð.
Gyllir varð að fara aftur, án
þess að vart yrði við Tómas, en
skipstjóri tilkynnti lögreglunni á
slaðnum Iivarfið.
Tómas var maður um fimm-
tugt. Hann var eltkjumaður og
átti uppkomin börn. Hafði hann
stundað sjómennsku um langt
skeið.
Gamlir brunnar
grafnir upp.
Tveir brunnar hinnar gömlu
Reykjavíkur hafa verið grafnir
upp að nokkru leyti og er verið
að rannsaka valnið í þeim.
Verkfræðingar bæjarins hafa
fundið þessa gömlu brunna með
aðsíoð gamalla korta af bænum
og samkvæmt upplýsingum frá
fólki, sem vissi um þá.
Vatnið úr þessum tveim
brunnum hefir verið sent til
rannsóknar, til þess að gengið
verði úr skugga um það, hvort
óhætt er að hafa það til neyzlu.
Er rannsókn þessi gerð, ef svo
skyldi fara, að bilun yrði á vatns-
veitunni af einhverjum óviðráð-
anlegum orsökum. En reynist
vatnið ekki fullkomlega heil-
næmt, verður það auðvitað ekki
notað.
Ýmsa brunnana er vitað fyrir,
að elcki er hægt að nota, af ýms-
um ástæðum.
í dag kveður þjóð vor einn
sinna fremstu sona, kirkja vor
einn afreksmanna sinna og liöf-
uðborg vor, Reykjavík, einn
þeii-ra, er „settu svip á bæinn“
flestum fremur, um langt skeið
undanfarið. Starf þessa mikla
lærdóms- og athafnamanns er
orðið svo víðtækt og fjölþætt, að
því verða engin skil gerð í stuttri
minningargrein. En um dr. Jón
Helgason er unnt að staðhæfa
það, að hann hefir sjálfur i vei’k-
um sínum gengið svo frá minn-
ingu sinni, að liún mun lengi
uppi vera.
I I
Dr. Jón Helgason var' fæddur
í Görðum á Álftanesi 21. júní
1866. Foi'eldi'ar lians voru síra
Helgi Hálfdanai'son, síðar lektor
prestaskólans, og kona hans,
Þórhildur Tómasdóttir prófasts
Sæmundssonar á Rreiðabóls-
sta^. Tveggja ára gamall fluttist
hann með foreldrum sínum til
Reykjavíkur, og ólst þar upþ.
Hefir Reykjavikurbær ekki átl
saniiari, trúrri og ræktarsamari
son en hann, svo sem verk hans
volta.
.Tón Helgason kom í Reykja-
víkurskóla 1880 og var útskrif-
aður þaðan 1886 með l.einkunn.
Samsumars sigldi hann til
Kaupmannaliafnarháskóla. Tók
hann þar í janúar 1887 próf í
Iieþresku með einkunninni „ad-
missus cum laude“, og sama ár
í júnimánuði próf í heimspeki
með 1. einkunn. Prófi í kirkju-
feðrafræði lauk hann í júní 1889,
og embættisprófi í guðfræði 20.
júni 1892 með 1. einkunn. Vet-
urinn 1892—93 dvaldi liann
heima í Reykjavík við kennslu-
störf, og gegndi hann þá um
tíma kennslustörfum fyrir föð-
ur sinn, er þá fór utan að leita
sér lækningar. Vorið 1893 fór
hann aftur til Danmerkur, og
var þá 6 mánaða tíma óvigður
aðstoðarmaður hjá síra Peter
Dahl í Langehæk, sóknarpresti
í Kallehave á Suður-Sjálandi. 1
febrúar og marz 1894 tók liann
próf í trúkennslufræði og pré-
dikunarfræði í Kaupmanna-
höfn, hvorttveggja með 1. eink-
unn. í byrjun aprílmánaðar
sama ár ferðaðist hann suður á
Þýzkaland og dvaldi þar fram
í júlímánuð, einkum í háskóla-
bæjunum Erlangen og Greifs-
wald. Hinn 30. júlí þetta ár var
honuin veitt 1. kennaraembætU
ið við prestaskóíann, og lcom
hann þá út hingað. Þá um haust-
ið tókst hann á hendur jafn-
frámt embætti sínu, og endur-
gjaldslausl, að flytja aukaguðs-
þjónustur við Dómkirkjuna í
Reykjavík, og tók prestvígslu
12. maí 1895. Þessu aukastarfi
gegndi liann i 13 ár samfleytt.
Hann var skipaður í milliþinga-
nefnd í kirkjumálum 22. apríl
1904. Hinn 30. sept. 1908 var
hann settur forstöðumaður
prestaskólans, þá er Þórhallur
Bjarnarson tók við biskupsem-
bætti.
Þegar Háskóli íslands var
stofnaður 17. júni 1911, varð dr.
Jón prófessor í guðfræðideild
og fyrsti forseti þeirrar deildar.
Samverkamenn hans þar voru
prófessor Haraldur Níelsson og
dócent Sigurður Sívertsen, síðar
prófessor.
Þórhallur biskup Bjarnarson
andaðist 15. desember 1916, og
var þá dr. Jón settur biskup, og
síðan veitt embættið. Var hann
vígður biskupsvígslu 22. apríl
1917 af vígslubiskupi Skálholts-
biskupsdæmis Valdimar Briem.
Gegndi hann siðan biskupsstarfi
&V. I
lil ársloka 1938, en ságði þá af
sér embætti, bæði fyrir aldurs
sakir, og svo til þess að geta
lielgað síðustu ár sín ritstörfum,
og lokið við ýms verk, er hann
hafði á prjónunum, og síðar
mun getið verða.
x
Hér liafa þá verið greind
nokkur ártöl og ytri drættir úr
ævisögu dr. Jóns biskups Ilelga-
sonar, en með því er lítið sagt,
þegar um ævi slíks atliafna- og
afkastamanns er að ræða. Skal
því nokkru nánar að verkum
hans vikið.
Eins og ráða má af námssögu
dr. Jóns, hlaut liann hinn bezta
undirbúning undir lífið, og tók
góð og glæsileg próf í öllum
greinum guðfræðinnar. Hefir
liann verið námsmaður með af-
brigðum, gæddur lærdómsþrá
og þekkingargleði. En eigi var |
síður rík í brjósti hans sú þörf
og þrá að láta þekkingu sína og
lærdóm bera arð, þjóð sinni og
kirkju til upplýsingar, leiðbein-
ingar og menntunar á allan liátt. !
Verður því ekki gleymt í því
sambandi, að hann var sonur
eins af beztu fræðurum, sem
þjóð vor hefir átt, síra Helga
Hálfdanarsonar, og dóttursonur
þjóðarleiðtogans Tómasar Sæ-
mundssonar. Er og enginn efi
á því, að hann vildi vera þess-
um forfeðrum sínum samboð-
inn, og neyta til þess þeirrg
hæfileika, sem lionum voru
beztir gefnir. En þeir voru um~
fram allt góðar gáfur, mikið
starfsþrek, ósérlilífinn starfs-
• vilji og óvénjuleg slarfsgleði.
| Eg liefi mörgum mönnum
j kynnst, sem eiga skilið að heita
| góðir og miklir starfsmenn. En
j eg held eg megi fullyrða, að
cnginn þeirra hafi liaft meiri
nautn og yndi af því að beita
kröftum sínum á viðfangsefn-
inu, en dr. Jón Helgason, enda
voru afköstin eftir því, á þeim
sviðum, þar sem hann einkum
beitti sér.
Dr. Jón Ilelgason var guð-
fræðingur ágætavel lærður,
einkum í nýjatestamentisfræð-
um, trúfræði og kirkjusögu.
Um sáhnakvéðskap allra alda
kristninnar mun hann hafa ver-
ið fróðari en nokkur samtíðar-
manna hans hér á landi.
Lærdómur dr. Jóns á guð-
fræðisviðinu naut sín ágætlega
í kennarastóli. Hann var lifandi
og fjörugur kennari, skýr í
framsetningu, að sjálfsögðu
kröfuharður um trúmennsku og
nákvæmni við námið, en jafn-
framt boðinn og búinn til að
veita nemendum sínum hinar
beztu leiðbeiningar og uppörva
þá. Eg minnist þess frá náms-
árum mínum við Háskólann,
hversu mjög eg saknaði þess,
að hann varð að hverfa frá Há-
skólanum til biskupsstarfsins,
er eg hafði notið kennslu hans
aðeins hálft háskólamisseri, og
svo mun hafa verið um oss
fleiri, er þá vorum nemendur
hans.
Dr. Jón Helgason samdi og
gaf úl fjölda rita og ritgerða um
guðfræðileg efni, á íslenzlcu og
erlendum málum, sem öll lýsa
lærdómi lians og vakandi á-
liuga á fræðigrein sinni. Hann
vakti mikla hræringu á trúmála-
sviðinu, er hann tók að kynna
löndum sínum „aldamótaguð-
fræðina“ svo nefndu, eða nýju
guðfræðina, eins og hún var oft-
ar kölluð hér á landi. Var hann
sjálfur baráttumaður mikill og
djarfmáll í kappræðum, um
skoðanir sínar, sótti hart fram
og lilífði sér hvergi, eins og
mörgum mun minnisstætt. En
ætíð var liann virtur af andstæð-
ingum sínum, fyrir einurð og
hreinskilni. Og þegar hann
gjörðist biskup, og guðfræði-
deilurnar kringum hann smá
lijöðnuðu, kom það æ skýrar í
ljós, sem var lífæð allrar trú-
rækni hans. En það var „trúin
á Drottin vorn Jesúm Krist, sem
hinn eilífa og óhagganlega
grundvöll hjálpræðis vors í lífi
og dauða — hjartablað trúar
vorrar“, eins og hann orðaði
það sjálfur i síðasta erindi sínu
á prestastefnu úr biskupsstóli.
Það er þá og vitanlegt, að liinir
beztu menn úr hópi þeirra, er
fylgdu annari guðfræðistefnu en
hann, virtu hann jafnan mikils,
og minnast hans nú sem eins af
fremstu mönnum íslenzkrar
kristni fyrr og síðar. í biskups-
dómi sínum sat hann á friðstóli,
og fór það vel, og var kirkju og
kristni fyrir beztu.
Auk rita dr. Jóns um guð-
fræðileg efni, sem nokkur rnurn*
! talin síðar, þýddi hann í hinni
nýju biblíuþýðingu Matteusar
og Jóhannesar guðspjall eftir
j frumtextanum og auk þess
] Rómverjabréfið og bæði Kor-
intubréfin.
j Dr. .Tóni Helgasyni veittist
, ýmisleg viðurkenning fyrir guð-
; fræðileg og kirkjuleg ritstörf
! sín. Kaupmannahafnarháskóli
gerði bann lieiðursdoktor í guð-
fræði á 400 ára afmæli siðbót-
| arinnar árið 1917. Iláskóli ís-
I lands sæmdi hann hinni sömu
í nafnbót árið 1936, á 25 ára af-
j mæli sínu. Munu þessar sæmd-
ir liafa verið honum kærastar
allra hinna mörgu viðurkenn-
! ,Um biskupsstörf dr. Jóns
í Helgasonar skal eg vera fáorður,
enda þótt þar sé margs og mik-
ils að minnast. Þar mátti, eins
og annarsstaðar, kenna svip
hins mikla dugnaðarmanns og
ósérhlífna athafnamaéns. I eft-
irlitsferðum, sínum sótti hann
heim öll prestaköll og kirkjur
landsins, og sýndi í þvi starfi
hina mestu röggsemi. Var hann
dugnaðarmaður hinn mesti i
þessum miklu ferðalögum, sem
þá voru víðasthvar meiri örðug-
leikum bundin en nú eru þau,
síðan samgöngur færðust í ann-
að og þægilegra horf. Á þessum
ferðum sínum vann hann, ásamt
biskupsstörfum og skörulegu
prédikunarstarfi, verk, sem telja
má að hafi mikið menningar-
legt gildi: Hann neytti listgáfu
sinnar til að teikna myndir af
öllum kirkjum landsins, er hann
heimsótti, og er það safn og
Frh. á bls. 3.
til sölu, laust til íbúðar. —
Tilboð sendist afgr. Vísis,
merkt: „Hús strax“ fyrir n.
k. sunnudag.
Þvottakonn
vantar strax. — Uppl. á Bif-
reiðastöð íslands. Sími 1540.
Kven-nærföt,
kven-undirfatasett,
Manchettskyrtur,
Sportskyrtur og
fermingarskyrtur.
Verzl. ÓÐINSGÖTU 12.
Þvotta-
pottur
nýr eða lítið notaður óskast
v.
til kaups. Sími 4673.
Röskur
sendísveinn
óskast strax. FyrirspurriUm
ekki svarað í síma.
f
Jóhann Karlsson & Go.
Heildverzlun, Þingholtsstr. 23
Athugið
Gúmmískórnir reynast
bezt frá okkur. Legghá og
linéhá reimuð vatnsleður-
stígvél.
Margskonar verkamanna-
skór o. fl. skófatnaður ódýr.
Verzl.
Gúmmískógerðm
Laugavegi 68.
eða lagtækur maður, helzt
vanur járnsmíði óskast. -—
Langur vinnutími. Uppl. í
^smiðjunni Sindra, Hverfis-
götu 42.
Einar Ásmundsson.
Húsnæöi.
Barnlaus hjón óska eftir
ibúð 1 til 2 herbergi og eld-
hús. Tilboð leggist inn á afgr.
blaðsins, merkt: „Vél-
stjóri X“. —