Vísir - 29.04.1942, Blaðsíða 1

Vísir - 29.04.1942, Blaðsíða 1
■*>- rl Ritstjóri: Kristján Guðiaugsson Skrifstofur: Féiagsprentsmiðjan (3. hæð). 32. ár. Ritstjórl 1 Blaðamenn Slmii Auglýsingar i 1660 Gjaldkeri 5 Ifnur Afgreiðsla Reykjavík, miðvikudaginn 29. apríl 1942. 74. tbl. 800 útvarpsstöðvar í U. S. A. flnttn Bandaríkjaþjóðinni boð- skap Roosevelts í nótt. Amerísk kepskip eru nú á Miðjardarliafi og amepískap ftugvélar taka þátt í ápása— feröum til meginlandsins. EENKASKEYTI frá United Press. London í morgun. Roosevelt forseti flutti ræðu klukkan tvö í nótt til þess að hvetja allar stéttir manna í Banda- ríkjunum til samvinnu um tillögur hans er miða að því að halda dýrtíðinni í skefjum, en einbeita orku sinni til að ná því marki, að sigur vinnist í styrj- öldinni, en tillögur forsetans, sem hér að lúta, voru sendar þjóðþinginu í fyrradag, ásamt greinargerð. Eru tillögurnar í sjö liðum, sem fjalla um hækkun skatta, hámark verðlags og húsaleigu, lögfesting launa, fast verðlag á landbúnaðarafurðum, nauðsyn sparnaðar og að menn kaupi meira af stríðsverðbréf- um, skömmtun á vörum sem skortur kann að verða á, nauðsyn þess að menn forðist afborgana fyrirkomu- lag í viðskiptum o. s. frv. Þetta er fyrsta myndin, sem islenzkt blað birtir af uppgjöf Breta í Singapore. Maðurinn (t. v ), sem situr andspænis ljós- rayrdaranum, er Yamasbita, hershöfðingi. Percival, hershöfð- ingi, er fremri maðurinn til hægri. — Þessi ræða Roosevelts vár rabb við arineldinn, eins og sagt er vestra, þ. e. forsetinn flutti ræðu sína í Hvíta húsinu, og ávarp- aði þaðan alla þjóðina, því að þegar hann flytur arineldsræður sínar, má heita, að allar útvarpsstöðvar landsins séu teknar í notkun til þess að koma því áleiðis til manna, sem forsetinn hefir að segja. Og það var gert að þessu sinni. irás á flotast ijóðiferja ■ ■ Forsetinn minntist á ]>að í upphafi ræðu sinnar, að brátt væru 5 mánuðir liðnir frá því, er Japanar gerðu hina fyrirvara- lausu árás sina á Pearl Harbour, sem varð uppliaf þess, að Banda- ríkirt lirðu aðili í styrjöldinni gegn mondulveldunum. Þennan tiltölulega skamma tíma, sem liðinn var frá Pearl Harbour- árásinpi, hafði verið notaður í Bandaríkjunum til þess að knýja fram af íti’ustu getu, að fram- leiðslan yrði aukin sem mest, en jafnframt var þegar hafist handa um að manna ýmsar þýð- ingarmiklar stöðvar og senda herlið til landa, sem mikilvægt Var að bandamenn hefðu á valdi sínU i styrjöldinni. Við gerðum okkur ekki neinar tálvonir, er vér fórum út í þessa styrjöld, vér vissum að hún hlaut að verða erfið og langvinn, en vér vorum ekki óviðbúnir í byrjun, og vér lögðum út í hana til þess að berjast þegar í stað, þótt þess vrði alllangt að bíða, að vér gæt- um beitt oss af fullum krafti. Vér höfum nú herskip á öll- um höfum heims, í Norður-ís- hafi, Norður- og Suður-Atlants- hafi, Miðjarðarhafi, Norður- og Suður-Kyn-ahafi og Indlands- hafi, og höfum sent herafla til ýmissa landa, Islands, írlands, Nýfundnalands, Indlands, Ástra- líu, Nýju Kaledoniu o. s. frv., og herflugvélar Bandaríkjanna eru þegar farnar að taka þátt í Ioftbardögum jrfir meginlandi Evrópu. Roosevelt lýsti að nokkuru þeirri ákvörðun Bandaríkjanna, að halda áfram baráttunni, þar til leystar væru úr viðjum allar þær þjóðir, sem búa við kúgun af völdum nazista og fazista. Gat hann einkum um frönsku þjóðina og baráttu hennar i þessu sambandi. Hann kvað frönsku þjóðina vel vita, að framtíð liennar öll og frelsi væri undir því komið, að banda- menn sigruðu. Því aðeins að bandamenn sigra, getur franska ’þjóðin losað sig úr hlekkjum þeim, sem hún hefir verið lögð i af erlendum kúgurum og inn- lendum svikurum. Roosevelt ræddi einnig nokk- uð Kyrraliafsstyrjöldina og leiddi athygli að þvi, að sókn Japana suður á bóginn hefði verið stöðvuð, og þar með hefði bandamenn fengið tækifæri til þess að búast fyrir í hinum mik- ilvægustu stöðvum, og þaðan yrði svo hafin sókn á hendur Japönúm á sínum tíma. í hvert sinn og Japanar liafa sótt fram, sagði forsetinn, liafa þeir orðið að leggja mikið í sölurnar. Þeir hafa misst fjölda herskipa, flulningaskipa og flugvéla, og margt manna hefir fallið af liði Japana. Og þetta tjón er þegar farið að verða japönsku þjóð- inni tilfinnanlegt. Það liafa borist fregnir um það, að einhverir liafi varpað sprengjum á Tokio og aðrar iðn- aðarborgir Japan, sagði forset- inn. Ef þetta er rétt er það í fyrsta skipti, sem Japanar hafa orðið a ðþola, að þeim væri slík óvirðing gerð. Roosevelt forseti lagði óherzlu á það i ræðu sinni, að haldið yrði áfram að senda liergögn til Iíina — það væri verið að gera það, og myndu Bandaríkjamenn styðja Kínverja áfram í hví- vetna. Að svo mæltu sneri forsetinn sér að því, að ræða horfurnar á heimavígstöðvunum, nauðsyn ]>ess, að þjóðin stæði sameinuð í baráttunni, en til þess að slriðsbarátta hennar næði til- gangi sínum, yrði hún að neita sér um margt og bera byrðar, ]>ví að i þeirri styrjöld sem nú er háð er óhjákvæmilegt að leggja fram mikið fé, og það verður að gera án ]>ess, að vand- ræði og erfiðleikar skapist heirna fvrir, verðbólga myndisf og hinar illu afleiðingar hennar ónýti allt. Þess vegna, sagði for- setinn, lagði hann tillögur sínar fyrir þjóðþingið i fyrradag. í þessum tillögum er meðal annars gert ráð fyrir að enginn Bandaríkja]>egn Iiafi meiri arð af atvinnu sinni en 25.000 doll- Loftárásir á Kiel og York Fjölda margar brezkar sprengjuflugvélar fóru til árása í nótt sem leið á flotastöð Þjóð- verrja í Þrándheimsfirði og her- skip þeirra. Flugvélarnar fluttu mikið sprengjumagn með sér. Á leiðinni yfir Norðursjó var stormur mikill, en þær héldu áfram allt að einu. Yæntanlega fást upplýsingar í dag um árás- ina í fyrrinótt. Brezkar sprengjuflugvélar gerðu árás í Kiel í nótt, en þýzk- ar flugvélar, tuttugu talsins, komu til árása á York, forn- fræga borg í austurhluta Eng- lands. Ein þýzku sprengjuflug- vélanna var skotin niður. Mann- tjón mun ekki hafa orðið mjög mikið, en geysilegt tjón varð á sumum hverfum borgarinnar og hrundu þar eða stórlöskuð- ust frægar, gamlar byggingar. Það er opinberlega tilkynnt í London, að Bretar muni halda óbreyttri stefnu í lofthernaðar- málum og vinna Þjóðverjum allt það hernaðarlegt tjón, er þeir geta, með loftárásum, hvar sem þeir ná til þeirra. I I fyrri fregnunj segir svo: i í nótt sem leið fóru brezkar sprengjufiug\rélar enn íil árása á Þýzkaland, en þýzkar flugvél- ar gerðu árás á borg í Bretlandi. Bagárásum brezka flughers- ins var haldið áfram í gær og voru m. a. gerðar tvær árásir á St. Omar, á Calais og víðar. I Þrjár þýzkar orustuflugvélar voru skotnar niður, én 6 brezk- j ar. Orustuflugvélar Breta, sem ■ fóru í þessar árásarferðir, komu i allar aftur hcilu og höldnu. í fyrrinótt voru gerðar loft- árásir á flotastöð Þjóðverja í Þrándheimi og á Köln og fleiri Rínarborgir o. s. frv. Talið er að þýzku herskipin Tirpitz, Ad- miral Scheer, Admiral Hipper og Prinz Eugen liggi á Þránd- heimsfirði. í mai hátíðahöld Sjálístæðismanna, Enn verður að berjast gegn pólitískri á- nauð, sem stéttarsamtökin eru beitt. hátiðisdegi verkamanna — 1. maí — verður nú, eins og' að undanförnu, efnt til margvíslegra há- tíðahalda af hálfu S.jálfstæiðsfélaganna hér í Reykjavík. Sjálfslæðismenn liafa barizt fyrir því að brjóta pólitíska ánauð sósíalisla innan verkalýðssamtakanna á bak aftur. Þeir berjast áfram að því marki að skapa þjóðleg og óháð stéttasámtök í landinu. Miklar orustur í Burma. 100.000 manna japanskt lið sækir fram til f þess að rjúfa sambandið milli Lashio og Mandalay. Fréttaritari United Press í Kalkutta símar, að Japanar séu nú á að gizka 160 kílómetra frá Lashio, hinum suðlægari enda Burmabrautarinnar, en sumar hersveitir Japana munu lengra komnar, og virðist markmið Japana vera að rjúfa samgöngurn- ar milli Lashio og Mandalay. Herir Kínverja og Breta, sem nú liafa tekið saman höndum, gera allt sem þeir geta til þess að hindra frekari framsókn. Aðalvarnarlínan liggur úr Irrawad- dydalnum til austurs um 120 kílómetra fyrir sunnan Mandalay og nær um 80 kílómetra til austurs frá Irrawaddy. Stórkostlegar loftárásir hafa verið gerðar á Lashio, sem stendur í björtu báli. En Japanar eru liðfleiri en bandamenn. Talið er, að Japanar bafi fimm herfylki eða allt að því 100.000 menn og gnægð skrið- dreka og annara vélahergagna og flugvéla. Japanar sækja fram norður á bóginn eftir þremur aðalleiðum, sem liggja um dali, er fljót renna um, Salween austast, þá Sittang og loks Irrawad- dy. -— Japanar leggja megináherzlu á, að ná markinu, að rjúfa samgöngurnar um brautina, og helzt hertaka Lashio og Man- dalay lika, áður en rigningatíminn byrjar. En innan hálfs mán- aðar tíma kann hann að byrja. Japanar eru komnir til Mong- kung á leið sinni til Lashio. — Ef Japanar hertaka Lashio er BurmabrautinKinverjum gagnslaus tilflutninga og allur herafli bandamanna í Burma í liættu. ara árstekjur, þegar skattur hefir verið greiddur. Roosevelt sagði, að þegar hildarleiknum væri lokið, myndu menn segja, að ]>að liefði ekki verið of mikið i söl- urnar Iagt — ekki of mildu fórnað fyrir sigurinn — svo mikilvægt væri það, sem um er barist, —- en til þess væri bar- izt að bjarga menningunni. Rússar hafa skotið niður 31 flugvél fyrir Þjóðverjum á Svartahafi, en 1 við Leningrad á nokkrum dögum. í fyrradag 20, en þann dag misstu Rússar 12. Það er nú látið í veðri vaka í blöðum Alþýðuflokks og komm- únista, að ýms stéttafélög bæj- arins efni sameiginlega til há- líðalialda 1. maí — eftir að „einir.g“ Iiafi náðst um, daginn. „Einingin“, sem hér um ræð- ir, er sambræðsla kommúnista og „krata“ um það, að misnota verkalýðssamtökin 1. niai til framdráttar pólitískri niðurrifs- starfsemi sinni. Fyllstn sönnun þessa má ráða af ávarpi því, sem birtist í dag í nafni stéttafélaganna, i blöðum rauðu flokkanna. Alll innihald þessa kommúnistiska ávarps beinist að því að liefja á ný æs- FRÉTTIR í STUTTU MÁLI. I fyrri vjku grönduðu Rússar 227 rússneskum flugvélum, en misstu 78 sjálfir. Brezki lcafbáturinn Trident hefir sökkt stóru þýzku flutn- ingaskipi við Noregsstrendur. Fimm Frakkar hafa verið teknir af lífi, vegna árásar á þýzkan hermann i Rouen. Her- maðurinn beið elcki bana. 15 til verða teknir af lifi, og 500 flutt- ir í fangastöðvar, ef árásar- mennirnir finnast ekki fyrir þriðjudag. Giraud hersböfðingi hinn franski, sem slapp úr kastala- fangelsinu i Königstein var kom- inn til Sviss 4 dögum áður en Þjóðverjar tilkynntu hvarf hans í útvarpi og hétu 100.000 marka launum þeim, sem gæfi upplýs- ingar um bvar hann væri niður lcominn. — Giraud fékk að balda áfram frá Sviss til ótil- tekins ákvörðunarstaðar. Bretar hal'a sölckt 4 skipum fyrir ítölum á Miðjarðarliafi. Þetta eru ekki þau 4 skip, sem tilkvnnt var um s. 1. sunnudag. ingar og uppivöðslu gegn dýi’- tiðariáðstöfunum, þeim, sem gerðar liafa verið. Það er sorglegt að sjá öll öm- urlegustu einkenni hins býlting- arsinnaða kommúnisnia í á- vaipi, sem birt er í nafni stétt- ai-félaga í tilefni liátíðahalda 1. maí. Sjálfstæðismenn hafa’því ald- rei baft meiri ástæðu til þess •en nú, að sameinast með óbil- andi festu og djarfhugá einingu uni sín eigin hátíðahöld, sem lielguð eru virðingu og samúð með hátíðisdegi hins óháða og frjálsa verkamaiins. Hátíðahöld sjálfstæðismanna fara i aðalatriðunum fram með cftirtöldum hætti: ÚTIFUNDUR: Kl. 1 Vé fara fram ræðulxöld af svölum Varðarhússins. — Lúðrasveitin „Svanur“ leikur milli ræðanna, á undan þeim og eftir. / SKEMMTUN I NÝJA BÍÓ: Kl. 21/é verður baldin bai’na- skemmtun í Nýja Bíó. Verður á allan hátt sem bezt til henn- ar vandað. KVÖLDSKEMMTUN AÐ HÓTEL BORG: Kl. 8% e. li. liefst kvöld- skeinmtun að Ilótel Borg. Þar fara fram ræðuhöld, margvís- leg skemmtiatriði og dans. MERKI „ÓÐINS“. félags sjálfstæðisverkamanna — verða seld á götunum um daginn. Þau eru með áletruðu félagsmerki „(Óðins“ og þrílitum borða með islenzku fánalitun- um. Sjálfstæðismenn! Látið engir undir höfuð leggjast, sem getið komið því við, að taka þátt í hátíðahöldum sjálfstæðisfélag- anna 1. maí.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.