Vísir - 06.05.1942, Qupperneq 1
Ritstjóri i
Kristján Guðlaugsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð).
32. ár.
Reykjavík, miðvikudaginn 6. maí 1942.
Ritstjóri 1
Blaðamenn Sfml:
Augl/singar 1660
Gjaldkeri S Ifnur
Afgreiðsla
79. tbl.
Flotastöð Frakka á
Madagascar
einangruð - - -
Fallhlífarhermenn svifu á land áður
en landganga hersveitanna byrjaði.
Franska setulidid hefíp fengid fyrir-
skipun um aö verjast.
EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun.
Eftir fregnum frá Vichy og London að dæma í
gærkveldi og snemma í morgun voru brezku
landgöngusveitirnar búnar að ná á sitt vald
tanganum milli aðaleyjarinnar og smáeyjarinnar, þar
sem flotastöðin er, Diego Suarez. En það er fyrsta og
stærsta mark Breta á Madagascar, að ná flotastöðinni.
Landgöngusveitirnar höfðu sótt fram um 10 km. í gær
frá landgöngustaðnum og voru aðeins 5 km. frá flota-
stöðinni. Sótt var að flotastöðinni úr tveim áttum, en
úti fyrir henni voru herskip Breta og í lofti sveimuðu
hrezkar flugvélar, án þess þó að gera árásir. Þær voru
til taks, ef tilraun yrði gerð til þess að ráðast á flotann^/
I>að munu hafa verið 2 beitiskip, 4 tundurspillar og flutninga-
skip, sem Bretar sendu til Madagascar, og fluttu þau 20.000
manna lið þangað. Þetta er samkvæmt Vichyfregnum og var
talið líklegt, að flugvélarnar hefðu verið frá flugvélaskipi. —
í fregnum frá Vichy var enn-
fremur sagt, að Bretar liefðu
látið fallhlífahermenn svifa til
jarðar úr flugvélum, en land-
göngusveitirnar liefðu vélaher-
gögn meðferðis. Bretar til-
kyuntu, að heraflinn væri allur
frá Bretlándi, og var teldð fram,
að. engar Bandaríkjahersveitir,
Suður-Mfíkuhersveitir, né lield-
ur.prjplsir Frakkar væru meðal
landgöngusveitanna. Yfirmaður
landgöngusveitanna er Sturges
hershöfðingi (Major-General),
hinn sami, sem stjórnaði hrezka
hernum, er sendur var til þess
að hernema ísland. Hefir Stur-
ges verið hækkaður i tign siðan.
Hann er kunnur m. a. fyrir þátt-
töku sína í landgöngunni á
Gallipoliskaga í heimsstyrjöld-
inni.
Undir eins og fregnin harst til
Vichy brugðu tveir menn við og
„tóku fyrstu Iest“, annar til Ber-
línar og hinn til Rómaborgar.
Þessir menn, Japanirnir Nom-
ura aðmíráll og Abe aðmíráll,
voru þar til að semja við Vichy-
stjómina, að líkindum um sömu
not af Madagascar sem af
Franska Indokína. Úr því að
Bretar voru komnir til Madaga-
scar var ekki um neitt að semja
frekara.
Petain og Darlan sendu
skeyti til landstjóra og setuliðs á
Madagascar fyi’irskipanir um
að verjast. Bæði í frönskum og
brezkum fregnum segir, að við-
nám sé veitt. Eftir brezkum
fregnum að dæma er mótspyi'n-
an ekki öflug og manntjón í liði
Breta er ekki mikið. Til við-
bótar því, sem að framan grein-
ir er þess að geta, að meðal
landgöngxiliðssveita Breta eru
einnig strandhöggslið (comm-
andos) eða víkingasveitir.
Eins og getið var i gær hafa
Bandarikjamenn lýst yfir, að
hernaðarlegar ráðstafanir af
hálfu Vichystjórnarinnar gegn
Bretum vegna hernámsins,
myndu verða skoðaðar sem ráð-
heild. Cordell Hull lagði svo
frekari áherzlu á þetta í gær með
því að segja, að Bandarikjafloti
og her væri þess albúinn að
gripa inn i Bretum til stuðnings,
ef til gagnráðstafana kæmi. Og
tekið fram, að Bandaríkjamenn
liefði nú vakandi auga á Martin-
ique, liinni frönsku eylendu í
Vestur-Indíum, dag og nótt.
Hversu fljótt Bretum tekst að
tryggja aðstöðu sina á Madaga-
scar er að sjálfsögðu að veru-
legu leyti undir afstöðu Frakka
þar komið. Verði þeir að brjóta
á bak aftur mótspyrnu þeirra
liarðri hendi tefur það fyrir þvi,
að þeir komi sér þar skjótt og
öruggl. fyrir. Þó er það engan
veginn víst, að mótspyrnan
verði hörð né löng, þar sem
kunnugt var, að á eynni eru
fjölda margir Frakkar, sem
hlyntir eru bandamönnum og
vilja talca upp samvinnu við
frjálsa Frakka. Þetta vissi Laval
og þess vegna voru sendir nýir
menn til Madagascar og mörg-
um embættisinönnum þar vikið
frá. En þegar flotastöðin er á
valdi Breta má segja, að björn-
inn sé unninn.,—• I Diego Suarez
er eitthvert bezta herskipalægi
heims, og með Ceylon og Mad-
agascar á sínu valdi, ættu yfir-
ráð Breta og bandamanna yfir
Indlandshafi að vera trygg, en
það mundi liafa stórkostleg-
ustu áhrif til hins verra á allan
gang styrjaldarinnar hvarvetna,
ef Japanir hefðu náð þessum yf-
irráðum. Með því að verða fyrri
til en Japanir að hernema Mada-
gascar, gangi það að óskum,
hefir ef til vill verið kollvarpað
stórkostlegum vorsóknaráform-
um möndulveldanna.
í seinustu frégnum frá Lond-
on segir, að enn sé beðið frekari
fregna um bardagana á Mada-
gascar. Ástæða er til að ælla, að
j vörn Frakka sé mjög liarðnandi,
I og að Frakkar hafi t'alsvert lið
í Diego Suarez, er verjist kapp-
Eyvirkið
Corregidor
fallið.
Eftir fregnum þeim að
dæma, sem borizt hafa í gær-
kveldi og snemma í morgun,
er vörnin brostin á eyvirk-
inu Corregidor í Manilla-
flóa — eða að bresta. —
Wainwright hershöfðingi
hefir tilkynnt, að aðfara-
nótt þriðjudags hafi Japan-
ir byr jað tilraunir til þess að
set ja lið á land í stórum stíl,
á norðurhluta eyjarinnar,
þar sem eru sendnar f jörur,
og skilyrði til landgöngu
bezt. —
Sundið milli Bataanskaga og
eyjarinnar er aðeins 3 km. á
breidd. Á eyvirkin Drum og
Huglies var ekki minnzt. Tal-
■ ið er, að setuliðið á Corregidor
hafi skort mat og skotfæri í
seinni tíð. —
Roosevelt forseti sendi Wain-
wright skeyti í gær og kvað hin-
um frjálsu þjóðum liafa verið
sett skinandi fordæmi með
vörninni á Corregidor. Á fjórða
huridrað loftárásir hafa verið
gerðar á eyna.
Seinustu fregnir herma, að
samkomulagsumleitanir fari
fram milli Japana og setuliðsins
á Corregidor um uppgjöf þess.
FRÉTTIR
í STUTTU MÁLI.
í Rússlandi er stöðugt ura sókn J
af hálfu Rússa að ræða og nokk- j
ur merki eru þess, að Timo- j
chenko sé að hef ja sókn í stærri j
stíl en áður.
I fyrrinótt gerðu brezkar
sprengjuflugvélar enn árásir á
Þýzkaland (Stuttgart) og einnig ;
var varpað sprengjum á Skoda- í
hergagnaverksmiðjurnar í Pil-
sen, hafnarmannvirki i Nantes í
Frakklandi, og 4 skip voni hæfð
sprengjum undan ströndum
meginlandsins.
Bostonflugvélar varðar or-
urstuflugvélum gerðu árásir á
Zeebrugge i Belgiu i gærmorg-
un og síðar um riaginn fóru
brezkar flugvélar í 3 mikla árás-
arleiðangra til Frakklands.
t nótt voru brezkar flugvélar'
enn yfir Þýzkalandi, en engar
óvinaflugvélar yfir Bretlandi,
en þýzk flugvél gerði skyndi-
árás á brezka borg snemma í
morgun. —
SEINUSTIJ FREGNIR.
Brezkar sprengjuflugvélar
fóru í nýja árás til Stuttgart í
nótt og sprengjum, var varpað
í fleiri borgiv í Þýzkalandi.
1 Berlínarfregnum er það haft
eftir Laval, að Frakkar á Mada-
gascar muni verjast meðan auð-
ið sé.
CtvarpiS í kvöld.
KI. 19.00 Þýzkukennsla, 2, fl.
19.25 Þingfréttir. 20.00 Fréttir.
20.30 Upplestur: „Fnþ yztu nesj-
um“ eftir Gils Guðmundsson (höf.
les). 20.55 Söngvar úr gamanleikj-
um með undirleik á gítar (Nína
Sveinsdóttir). 21.10 Upplestur:
Kvæði (Jón SigurÖsson kennari).
21.25 Hljómplötur: íslenzkir söngv-
arar.
stafanir gegn bandamönnum í
samlega.
Japanir stöívaöir á landa
mærnm Kfna og Bnrma.
Bretar notuðu innrásar-
pramma eins og á myndinni
sést, þegar þeir settu lið á
land á Madagascar í fyrri-
»nótt. — Myndin er tekin, þeg-
ar brezk „éommando“-sveit
er að koma úr strandhöggs-
leiðangri.
Skyndiárásir Kínverja á 6 stórar
borgir, sem Japanir haía á valdi sínu
Fregnir frá Chungking í gærkveldi hermdu, að Kínverjar'
hefðu stöðvað japanska herinn, sem sott hefir fram frá Lashio
alla leið norður fyrir landamæri Burma og Kína. í fjalllendinu
rétt norðan við landamærin komu kinverskar hersveitir móti
Japönum og stöðvuðu þá. Er nú barizt þarna af miklum móði.
Ivínverjar hafa nú byrjað sókn gegn Japönum á vígstöðvum
i nánd við margar stórborgir á austurströndinni og inni i landi.
Meðal þessara borga eru hafnarborgirnar Shanghai og Amoy,
Nanking, Hangchow, Ningpo og Nanchang. Inn i þessar borgir
réðust víkingasveitir og ollu miklum spjölluin. I Nanking vorn
sprengdar i loft upp miklar hergagnabirgðir og komu þar upp
miklir eldar. Víða voru járnbrautarstöðvar eyðilagðar.
Það, sem vekur mesta athygli
í sainbandi við þessar árásir,
sem byrjuðu.21. apríl, er það,
hversu djarflegar eru árásir
víkinganna, sem eru æfðir á
sama hátt qg hinir brezku vík-
ingar eða strandhöggsmenn
(commandos), og að þær
hei>.pnuðust svo, sem reynd ber
vitni, þótt hér sé um að ræða
Hvort framhald verðúr á
þessari sókn verður ekki sagt,
en Kínverjar segja, að þeim
hafi verið kleift að gera þessar
árásir, af því að varnir Japana á
þessum slóðum séu veikari en
áður, vegna þess að þeir hafa
flutt á brott herlið og flugvélar
til Burma og annara vígstöðva.
borgir í þeim hluta landsins, sem
Japanir hafa lengi liaft á valdi
sínu, svo sem Nanking frá 1937,
en þar er aðsetur leppstjórnar
þeirrar, sem Japanir konni þar
á fot.
Chiang Kai-shek er kominn
til borgar í Yunnan og dregur
þar að sér mikið lið. — I þýzk-
um fregnum segir, að Japanir
séu komnir 60 km. inn í Yunnan.
9 ára tlreng^nr
bíður bana.
Frá fréttaritara Vísis.
Ólafsvík í gærkveldi.
Sunnudagskvöldið 3. maí varð
það sorglega slys hér í kaup-
túninu, að níu ára gamall dreng-
ur varð undir bíl og beið bana.
álysið vildi til með þeim
hætti, er nú skal frá greint:
Unnið var að uppskipun á vör-
um úr m.s. Andey og bifreiðin
P - 7 — bifreiðastjóri Guðmund-
ur Þórðarson — ók vörunum
frá bryggju í vörugeymsluhús.
Um kl. 10.30 var bifreiðin að
fara upp bryggjuna með full-
fermi og ók hægt. Hljóp þá níu
ára gámall drengur, Agnar
Randversson, á eftir bifreiðinni
og fram.,með henni, en féll inn
á milli hjólanna, svo að annað
afturhjólið fór yfir brjóst hans.
Vár .strax farið með hann til
læknis, er á heima rétt hjá, en
er þangað kom, var drengurinn
'örendur.
Drengurinn var sonur ekkj-
unnar Gyðu Gunnarsdóttur í
Bakkabæ í ,Ólafsvík.
Landbúnaðurinn;
164 bændnr æsbja
270 mann§ í viiiiiu.
Frá Hafnarfirði:
Fénaður veldur
tjóni í görðum.
Fólkið vill sfður vera í nærsveitunum.
Ráðningarstofa landbúnaðarins hefir nú verið opin í fimm
daga og hefir haft allmikið að gera þann tíma. Vísir hefir
snúið sér til Pálma Einarssonar, ráðunauts, sem veitir skrifstof-
unni forstöðu og fékk hjá honum eftirfarandi upplýsingar.
Þá fimm daga, sem stofan
hefir verið opin, hafa 164 bænd-
ur beðið að útvega fyrir sig 276
manns, og framboð um vinnu
liefir borizt frá á 2. hundrað
manns. Er nú verið að semja
við þetta fólk og mun megin-
hluti þess verða ráðinn. Hefir
framboðið reynzt framar von-
um.
Beiðnirnar um vinnufólk Iiér-
ast lir öllum sýslum lándsins,
en þó mest úr Áruessýslu,- Rang-
árvallasýslu, Mýra- og Borgar-
fjarðarsýslum og Eyjafjarðar-
sýslu. Halda beiðnirnar áfram
að berast og sama ér að seaia
um framboðstilkynningar.
Það er áberandi, hvað fólk
sækist ineira eftir því að kom-
ast út í sveitirnar, lieldur en að
ráðast í þær stöður, sem fáan-
legar eru næst bænum. Má vera
að einhvei’jir vilji vera sem
lengst frá bænunj, ef einhverjir
stórviðburðir gerðust.
Ráðningarstofa lándbúnaðar-
ins starfaði fyrst á s. 1. vori, en
tók þá ekki eins snemma til
starfa þá. Þá réð stofan á 5.
lumdrað manns til bænda víðs-
vegar á landinu, en þeir höfðu
æskt eftir lielmingi fleira fólki.
Það hefir átt sér stað á hverju
vori um all-langt árabil, að fén-
aður sé Iátinn ganga laus í Hafn-
arfirði cg vinnur hann tjón mik-
ið í görðum.
Tjónið, sem bæði sauðkindur
og liestar vinna, nemúr jafnvel
þúsundum króna, og í vor mun
bera meira á þessum. flökkufén-
aði en endranær. Ætti bæjarfé-
lagið að létta þessari plágu af
bæjarbúum, annaðhvort með
]ivi að ráða mann, er hafi það
starf, að reka féð út fyrir
bæinn, eða með því að skylda
eigendur þess til að liafa liemil á
því.
Gullna hliðið.
Sýning vcr'Öur annað kvöld kl. 8.
A'ðgöngumiðasala hefst í dag.
Áheit á Strandarkirkju,
afh. Vísi: io kr. frá K. K. io
kr. frá P. P.
/