Vísir - 16.05.1942, Page 2

Vísir - 16.05.1942, Page 2
V 1 S I R m « DAGBLAÐ . Útgefandi: BLAÐAÚTGÁPAN VÍSIR H.F. Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson Skrifst.: Félagsprentsmiðjunni Afgreiðsla: Hverfisgötu 12 (Gengið inn frá Ingólfsstræti) Símar 1660 (5 linnr). Verð kr. 3,00 á mánuði. Lausasala 15 og 25 aurar. Féiagsprentsmiðjan h.f. Ótrúlegt en satt £j F skráður væri sögukafli um stjórnrtiálaviðburðina hér á landi síðasta misserið, væri ekki fráleitt að bafa fyrirsögnina: „Ótrúlegt en satt“. Það er ótrúlegt, að samstarf, sem til var stofnað fyrir þremur árum í þvi skyni, að verjast á- föllum yfirvofandi styrjaldar, skuli rofið að fullu og öllu, þeg- ar svo er' komið, að styrjödin hefir truflað allt líf þjóðarinnar á miklu áþreifanlegri hátt en nokkurn óraði fyrir. Já, það er ótrúlegt, en satt. Það er ótrþlegt, að sundrung skuli magnast dag frá degi, þeg- , ar öllum er ljóst, að sámheldni er lífsnauðsyn. En það er satt. Það er ótrúlegt, að stjórnar- skipti skuli hafá verið tíðari, þegar svona stendur á, en nokkru sinni fyrr, síðan við fengum innlenda stjórn. En það er satt. Það er ótrúlegt, að flokkur, sem kennir sig við lýðræði, skuli lileypa öllu í bál og brand, til að vernda það misrétti, að nokkrir kjósendur landsins liafi tvöfald- an rétt á við alla aðra. En það er satt. Það er ótrúlegt en satt, að stjórnmálaflokkur, sem krafizt hefir kosninga mánuð eftir mán- uð, skuli, þegar að kosningum líður, brigsla öðrum flokkum um ábyrgðarleysi fyrir að taka þátt í þeim kosningum, sem liann liefir sjálfur stofnað til! Það er ótrúlegt, að ráðherra skuli bera fram sömu forsend- urnar fyrir því, að taka sæti í rikisstjórn og að fara úr rikis- stjórn. Við skulum Iita ofurlítið nán- ar á þetta síðasta aíriði. Her- mann Jónasson baðst lausnar fyrir sig og stjórn sína í fyrra- haust, vegna þess að hann taldi (j- nglega) að ósamkomulag va ri innan ríkisstjórnarinnar um lausn ákveðins máls. Eftir nokkrar vikur settist hann aftur að völdum með sig og stjórn sina, án þess nokkur Iausn væri fengin á málinu. Þetta er ótrúlegt en satt. Þegar svo Hermann Jónasson tekur að sér forustu samsteypu- stjórnarinnar á ný, lýsir hann því yfir, að hann taki ekki á- byrgð á þeirri stefnu, sem Al- þingi hafi tekið í því máli, sem um var deilt. Ráðherra, sem samkvæmt stjórnarskránni á að framkvæma vilja Alþingis og bera ábyrgð gagnvart þinginu, úrskurðar sjálfan sig ábyrgðar- lausan, um Ieið og hann tekur við forustu stjórnarinnar. Vissu- lega ótrúlegt — en satt Sami ráðherra lýsir því yfir í gær, að hann muni beiðast lausnar fyrir sig og stjórn sína, af því að hann treysti sér ekki til að „bera ábyrgð á þeim vinnubrögðum, sem að er stefnt.“ Ábyrgðarleysinu er með öðrum orðum ^tjaldað alveg jafnt, hvort sem setzt er eða staðið upp. Og þessi ráðherra, sem er jafn „ábyrgðarlaus“, hvort sem hann kemur eða fer, hefir tilhneigingu íil að telja sig einan ábyrgan allra íslenzkra stjórnmálamanna. Ótrúlegt, en satt! Og svo kernur það í ljós, að ástæðan, sem borin er fram fyr- ir lausnarbeiðninni, er fyrirslátt- ur einn. Hermann Jónasson get- ur ekkert sagt um vinnubrögð þeirrar stjórnar, sem ekki er enn setzt að völdum. Hann lýsti því yfir fyrir nokkrum vikum, að hann mundi segja af sér, ef dag- skrártillaga minnihluta stjórn- arskrárnefndar yrði felld. Þessi tillaga var felld í gær og þvi baðst Hermann lausnar. Það er ótrúlegt en satt, að nokkur ráð- herra skuli leyfa sér að segja þinginu ósatt til um ástæðuna fyrir lausnarbeiðni sinni. Loks er það dagskrártillagan sjálf. Hún er mjög eftirtektar- verð, því hún felur í sér viður- kenningu Framsóknarflokksins á því, að hann getur ekki fengið stöðvunarvald í vor. Upphaf tillögunnar er á þessa Ieið: „Með því að með frumvarpi þessu er stofnað til vanhugsaðr- ar, óundirbúinnar og ófullnæg.j- andi breytingar á stjórnskipun ríkisins og þjóðinni þannig hrmidið út í tvennar alþingls- kosningar (Leturbr. hér.) með stuttu millibili....“ Ef Framsókn fengi stöðvun- arvald, mundi hún vitanlega fyrst og fremst nota það vald til „stöðvunar“ „vanhugsaðrar, óundirbúinnar og ófullnægj- andi“ stjórnarskrár. Þingið gæti setið þar til kjörtímabilið væri á enda, eða 4 ár. Þar af leiðandi væri aðeins um að ræða einar, en ekki „tvennar alþingiskosn- ingar með stuttu millibili.“ Hér liggur því fyrir alveg skýlaus yfirlýsing Frainsóknar- manna um það, að allt tal þeirra um stöðvunarvald eftir kosning- ar í vor er ekkert annað en hlægileguslu mannalæti. Það er engu líkara en að Tímamenn séu þegar orðnir frávita af hræðslu við.þau örlög, sem þeir hafa sjálfir kallað yfir sig. Þeim hefir aldrei verið talið mjög til gildis, hvað þeir væri vandaðir. En þeir hafajþótt býsna klókir oft á. tiðum. Einhver hefir orðað það svo, að allt vit þeirra væri hrekkjavit. Nú hefir skelfingin gripið þá svo, að þeir tala af sér, ef þeir opna munninn og koma upp um sig, þegar verst gengur. Þessir útsmognu hrekkjalómar koma engum nema sjálfum sér í klípu. Með tákmarkalausum ofsa hafa Tímamenn knúið fram kosningar, sem þeir ótt- ast svo, að þeim heldur við ör- vílnun. Þetta er ótrúlegt — en satt, a Woreg:§söfnnnin. Dagskrá 17. maí. KI. 9: Merkjasalan hefst (Merkin aflient í Iðnskólanum og þar verður einnig tekið á móti gjöfum). Kl. 12.30: Ávarp söfnunamefndarinnar lesið í útvarpið og Ámi Páls- son prófessor flytur ávarp. Kl. 13.15: Lúðrasveit Reykjavíkur leik- ur norsk lög á Austurvelli. (Hljómleikunum verður út- varpað). Kl. 13.30: Sigurgeir Sigurðsson biskup flytur ávarp af svölum Al- þingishússins. (Verður út- varpað). Skrúðganga norskra barna staðnæmist fyrir fram- an Alþingishúsið. KL 15.15: Skemmtisamkoma: Kvik- myndasýning og einsöngur: Einar Markan, með undirl. Páls íslólfssonar. Aðeins Norðmenn — boðsgesti. KL 1G: Kvartett syngur á Hótel Borg: Kjartan Sigurjónsson o. fl. Söfnun á Hótel Borg. — Sigvard Andreas Friid.: IT. msií Dagur \oi(‘S's «gr H álefni Noregs Þegai eg, hinn 17. maí í fyrra, var ritstjóri eina frjálsa norska blaðsins — „Norsk Tidend“ í London —• fékk eg tvær kveðj- ur til Norðmanna um allan heim. Þær voru fná Hákoni kon- ungi og Ólafi krónprins. Hákon konungur skrifaði: „í meira en hundrað ár hefir 17. maí sameinað norsku þjóð- ina um frelsishugsjónina, og enginn getur varnað oss þess að sækja framvegis þrek og þol til endurminningarma um frelsis- starfið á Eiðsvelli.“ Eg er fullviss um að mnds- menn heima og erlendis taka undir þetta af heilum hug og með óbifandi sannfæringu þann 17. maí — en jafnframt með fullri skyldukend: Vi vil oss et land som er frelst og fritt og dette várt land heter Norge.“ Ólafur krónprins skrifaði: „^7. inaí liefir jafnari verið dagur minninganna í hug okk- ar; í dag finnst okkur hann vera hinn fyrirheitni dagur framtíð- arinnar. Með starfi okkar eigum við að endurreisa það, sem feðurnir á Eiðsvelli skópu, og gera að veru- leika frelsisdrauminn sem lífir og ætíð mun lifa í hug allra norskra karla og kvenna.“ Þessar konunglegu kveðjur til Norðmanna um allan heim hafa sömu þýðingu 17. mai í ár og þær liöfðu á þjóðhátíðardegin- u m í fyrra. Baráttan, sem hófst þegar Þjóðverjar réðust ó okkur á hinn lúalegasta hátt, 9. apríl 1940, heldur enn áfram. í tvo mánuði börðust Norð- menn gegn þýzku ofurefli. Dan- mörk varð að ofurselja sig or- ustulaust, Holland og Belgía vörðust í nokkra daga, herveldið Frakkland gafst upp á stuttum tíma. En Norðmenn létu ekki bugast. Frá 9. apríl til 30. apríl héldu þeir velli í Suður-Noregi gegn tryllingslegum hernaðarað- gerðum Þjóðverja. Og í Norður- Noregi vörðu þeir Iand sitt, svo að segja fet fyrir fet, þangað til sá dagur kom, að skotfærin fór að þrjóta og taka varð fluglið bandamanna úr landi, vegna á- standsins i Flandern og Frakk- landi. Þá var aðeins um tvennt að velja fyrir konunginn og norsku stjómina: að láta taka sig til fanga eða að yfirgefa landið til þess að taka upp um skeið stjórnarsetur utan land- steinanna. Síðasti fundur norska Stór- þingsins — „neyðarakkeri landsins á stund hættunnar" — var haldinn í smábænum Elver- um, sem er langt uppi í sveit, kvöldið 9. apríl kl. 9.30—12. Hákon konungur, Ólafur krónprins og Stórþingið, hafði farið frá Osló nálægt klukkan 7 um morguninn. Þegar komið var til Lilleström, áleiðis til Hamar, varð lestin að nema staðar vegna flugárásar frá Þjóðverjum. Kjeller-'herflug- völlurinn er þama rétt hjá og var sprengjum dembt 'yfir flug- völlinn og húsin lögð í ösku, meðan konungurinn og stjórain sátu i Iestinni á járnbrautarstöð- inni í Lilleström. Um þessar mundir vissu Þjóð- verjar ekki hvaf konungurinn og stjómin voru niðurkomin, annars mundi æðstu stjómar- völd Noregs eflaust hafa verið drepin þama. Lestin hélt áfram og stjómar- völdin komust til Hamar. Þar kom Stórþingið saman á fund og Nygaardsvold forsætisráð- herra tilkynnti, að alþýðuflokks- stjórnin segði af sér, en eftir til- lögu C. J. Hambro, forseta Stór- þingsins og formanni hægri | flokksins, var stjóminni gef- ! in traustsyfirlýsing; en jafn- ; framt var ákveðið, að fulltrúum fyrir hina aðalflokkana skyldi j bætt við i stjórnina: hægri, vinstri og bændaflokkinn. Nú bárust þau tíðindi, að Þjóðverjar væm á leið til Ham- ar til þess að taka konunginn, stjórnina og stórþingsmennina til fanga. Og því var ákveðið, að stjórnarvöldin og fylgilið þeirra skyldu halda áfram til Elvemm. Áður en við héldum frá Ham- ar um sjö-leytið um kvöldið, heyrðum við í útvarpinu land- ráðamanninn, Herr Vidkun Quisling tilkynna, að hann hefði tekið við stjórninni og myndað rikisráð. Hann lokkaði og hótaði í þeim tilgangi, að allir opinber- ir starfsmenn skyldu hverfa aftur til Osló. Hann hafði — í samráði við hina erlendu of- beldismenn — hrifsa$ völdin í landinu. Þau völd stóðu aðeins eina viku. En það er önnur saga. Eg var svo gæfusamur að vera viðstaddur síðasta Stórþings- fundinn — eini blaðamaðurinn sem þar var — hinn 9. apríl að kvökli. Eg mun aldrei gleyma því. Við vitum i dag, meira en tveimur áram eftir hina lubba- legu árás, að Norðmenn láta aldrei undan óvininum. Og það var sá andi, sem réði Stórpingi Noregs hinn fyrsta styrjaldai’- dag, kvöldið 9. apríl. Ákvarðanir voru teknar og' heimildir voru gefnar stjóm- inni, í einu hljóði. Meðal annars var það samþykkt, að Noregs vegna yrði að afstýra þvi, að konungurinn, krónprinsinn og stjórnin féllu í hendur óvinanna, jafnvel þó að það kostaði það, að þau yrði að leita sér dvalar- staðar erlendis. Yfirleitt fékk konungur og stjórn hin víðtækustu umboð til þess að halda baráttu Noregs á- fram. Og stjórnarvöld vor hafa ekki brugðist þessu umboði. Þegar leggja varð niður vopn- in eftir tveggja mánaða baróttu í Noregi átti konungur og stjórn um biturt og sárt hlutskipti að velja. En er barátta Noregs átti að hafa tilgang, ef að sú stefna, sem hið samhuga Stórþing á Elverum hafði tekið, átti að komast að nokkru marki, og ef varðveitast átti möguleikinn til þess, að Noregur ætti framtíð í vændum sem sjálfstætt riki, hlaut það að vera skylda kon- ungs og stjómar að halda áfram stjómarstefnu þjóðarinnar frá þeim eina stað, sem rikisstjórn- in gæti starfað frjáls á, og að- eins með framtiðarheill ríkisins fyrir augum. C. J. Hambro, forseti Stór- þingsins, sem riú er í Ameriku, sagði í útvarpsræðu frá London þann 22. júní 1940: ' „Enginn sem tók þátt i um- ræðum þeim, sem fóru fram á undan ákvörðuninni, er óhjá- kvæmilega varð að taka, mun nokkumtíma gleyma þeirri stund, eða þeirri festu og virðuleik sem Hákon kon- ungur hefir jafnan sýnt í öllum raunum, er hann hefir orðið að beygja sig vegna landsins og landsheilla einvörð- ungu. Stjómin varð að taka á- kvörðun sína vegna umboðs þess, sem Stórþingið fól henni 9. april. Hún hefir eigi getað skot- ið sér undan neinni ábyrgð með þvi að kalla Stórþingið saman til fundar á ný. Enginn stór- þingsfulltrúi, sem dvelur í landi þvi, sem hernumið er af erlendri þjóð, hefir frjálsræði til að tala og breyta á þann hátt, sem grundvallarlögin gera ráð fyr- „Konungur og ráð hans hafa verið útilokuð frá að heyra frjálsa skoðun frjálsra manna og hafa því undanfarna mánuði orðið að breyta samkvæmt skyldutilfinning sinni og sam- vizku, í djúpri og óbifanlegri sannfæringu um, að geta haldið áfram að vinna landinu með því eina móti að yfirgefa landið, en það var huggun öllum þeim, sem tóku þátt í ákvörðuninni að vita, að sá maður sem með svo jiolinnióðri karlmennsku og jafnvægi hafði skipulagt her- varnir landsins þegar hinar þungu raunir bar að garði, Ruge hershöfðingi, var algerlega sam- þykkur þessum ákvörðunum, fvrir hönd þeirra, sem höfðu haldið uppi varnarbaráttunni. Það var 7. júní, sem konungur- inn og ráð hans yfirgáfu Noreg. Og í dýpri merkingu var einmitt jjessi dagur sögulega hinn rétti. Hið þjóðernislega frelsisstarf varð eklci rækt í Noregi lengur. Með því einu að velja sér dval- arstað þar sem hægt væri að starfa frjálst, var ríkisstjórninni kleift að vinna að stjófnarfars- | legri framtíð landsins, gætafjár-. hagslegra hagsmuna þess, vinna að því að undirbúa hjálpina til alls hins hernumda lands, sem 1 hungur og neyð geta ógnað síð- ar. Þungar raunir hiða okkar allra, þjmgstar þeim, sem innan landamæra lifa undir oki fram- andi þjóðar, afskornir frá sér- hverju tækifæri til sjálfstæðrar rannsókna á staðreyndunum, og öllum möguleikum til þess, a$ mega tala frjáls um stjórnarfar- ið, á þann hátt, sem grundvallar- lögin gera ráð fyrir. Dugur þeirra til þess að gefast ekki upp, vilji þeirra til að lilýða anda landslaganna en ekki erlendu valdboði, mun á þeim þung- bæru árum sem framundan eru geta ráðið úrslitunum um fram- tíð Noregs.“ — — — Já, í sannleika: Dugur heima- fylkingarinnar til þfess að gefast ekki upp mun ráða úrslitunum um framtíð Noregs. Og norska heimafylkingin hefir sífellt ver- ið að eflast. Sú fylking er skipuð allri þjóðinni. I baráttunni eru konurnar, börnin, verkamenn- irnir, prestamir, kennarastéttin, lögfræðingamir, blaðamenn og allt norska iþróttafólkið — hin blómlega og snarpa æska Nor- egs. Utan Noregs erum við nokkur þúsund manns í dag, sem með ýmsum hætti vinnum af allri orku okkar fyrir málstað Nor- egs, i herflotanum, flugliðinu, í hemum og stjórnardeildum jæim, sem hafa verið stofnaðar, en starf okkar er lítið í saman- bnrði vié það starf sem landar okkar vinna heima. Það er fylk- ingin heima í Noregi, sem við Norðmenn erlendis lítum til með von og trúnaðartrausti. Það er fylkingin heima í Noregi, sem verður að standast, ef við eigum að endurheimta landið. Og við vitum að sú fylking bilar ekki. Hún striðir í kyrjjei, hún þjáist, en hún gefst ekki upp. Þúsundir norskra karla og kvenna, hundruð beztu og fremstu manna Noregs sitja í fangelsi eða fangaherbúðum, þar sem það er kvalið, misþyrmt og pyntað. En ])að gefst ekki Norsk Gudstjeneste holdes 17. mai kl. 2 e. m. i domkirken. Bama m0ter hos den norske minister, Fjohi- götu 15, kl. 12 f. m. isteden- for Y2 1. Tvö bílaboddy 12 manna, til sölu á Ohustöð B. P. á Klöpp. Hig vantar góðan bifreiðarstjóra á vöra- bíl. Tek aðeins vanan niana. STE3NDÓR. Lítið herbergi handa ráðsettum og reglu- sömiun manni vantar mig ná þegar. Fæði og þjónusta æski- legt á sama stað. Sigbjörn Ármann. ‘ Sími: 3244 og 2400. 14-16 á v a stúlka óskast upp í Borgar- f jörð. Uppl. hjá Eggert Jóns- syni, Óðinsgötu 30. Sími 4548. 200 krónnr fær sá, sem getur útvegað reglusömum manni herbergi, Fyriframgreiðsla fyrir árið. Tilboð sendist afgr. Yísis fyr- ir mánudagskveld, merkt: „200“ Sumar- bústaður til sölu, 2 herbergi og eldhús. Tækifærisverð. Sími 5275. — Lagtækur maður sem vill vinna við bifreiðavið- gerðir, getur fengið góða at- vinnu. STEINDÖR. á bensínstöð vantar strax, STEINDÓR. Kristján fioðlangsson Hæstaréttarlögmaðar. Skrifstofutími 10—12 og 1—6. Hverfisgata 12. — Sfmi 3400.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.