Vísir - 22.06.1942, Síða 1
Ritstjórl
Blaðamenn Slmii
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri 5 Ifnur
Afgreiðsla
Reykjavík, mánudaginn 22. júní 1942. 116. tbl.
A ráð§tefnu
í Bandaríkjunum.
Myndin er af Sir Álan Fran-
cis Brooke, yfirhersliöfðingja
Breta, sem nú er staddur í Vesl-
urheimi. Hann er talinn slyng-
asti sérfræðingur Breta í véla-
liernaði.
»Rússar eiga
heimtingu á
Sókn til Berlinar.
Sir Stafford Cripps, Beaver-
brook lávarður og Bevin verka-
málaráðherra hafa haldið ræður
til að minnast þess, að ár er nú
liðið síðan Rússar lentu í styrj-
öldinni.
Beaverbrook talaði i Birm-
ingham í gær. Sagði hann m. a.,
að ef Þjóðverjar hefði brotið
Rússa á bak aftur á síðasta ári,
þá mundi innrás í Bretland
standa yfir nú. Rússar eigi því
heimtingu á að fá allt, sem þá
vanhagar um hjá bandamönn-
um sinum og til þess að hjálpa
þeim og skapa aðrar vígstöðvar
væri nú unnið dag og nótt i verk-
smiðjum Bretlands.
Cripps hélt sína ræðu i Lon-
don á laugardag. Hann sagði, að
sá dagur nálgaðist nú óðum, er
gerð yrði árás á Þjóðverja úr
vestri og þá mætti ekki létta
sókninni fyrr en komið væri til
Berlínar.
Bevin sagði í útvarpsræðu, að
þegar að þvi kæmi, að styrjöldin
yrði á enda kljáð og hafizt yrði
handa um að skapa nýjan og.
hetri heim, mundu þær þjóðir
sitja við háhorðið, sem hefði
barizt fyrir honum, en ekki þær,
sem hefði ekki tekið afstöðu til
baráttunnar eða veitt möndul-
veldunum lið.
lapanir á Kiska
Herstjórn Bandaríkjanna til-
kynnir, að japanskt beitiskip
hafi laskazt og flutningaskip
sokkið í .loftárás amerískra
flugvéla á bækistöð Japana á
'Kiskaey í Aleut-keðjunni.
Veður hefir skánað á þessum
slóðum og því hægt að halda á-
fram hemaðaraðgerðum á
hækistöð Japana þarna. Fyrst
eftir að þeir réðust á land tókst
að halda uppi á ársum,. en síðan
varð að hætta þeim aftur vegna
veðurs.
Japanir hafa komið sér upp
tjaldborg á Kiska og reisa
bráðabirgðabyggingar í miiklum
flýti.
Kiska er tæpl. 1000 km. fyrir
vestan Dutch Harbor og um
1100 km. frá meginlandi Ame-
i’íku.
Tobruk fallin, en
Sebastopol verst.
Fyrsta álilaup iiiöndiil-
her|anna bar tilætlaðan
árangnr.
obruk féll í gærmorgun, eftir eins
dags ákafa árás möndulherj-
anna, sem var „með fullkomlega
þýzku sniði“, að því er sagt var í tilkynn-
ingum frá Ivairo í gær. Það var fyrst til-
kynnt í London í morgun, að Tobruk
væri faliin, en þá liafði ekkert heyrzt frá
hersveitunum þar í heilan sólarhring.
Hafa Bretar því ekkert „horn í síðu“
Rommels og hann getur einbeitt kröftum
sínum að sókn austur yfir landamæri
Egiptalands og í áttina til Suez-skurðarins.
- Samkvæmt tilkynningum Bommels i gær
gafst setuliðið í Tobruk upp kl. 7 í gærmorgim,
en daginn áður bafði hann sent hersveitir sínar
til árásar á virkið frá suðaustri. Tókst þeim að
rjúfa varnirnar og koma sér fyrir innan þeirra,
en þá var brezkur liershöfðingi sendur fram til
þess að bjóða uppgjöf.
Þjóðverjar lýsa töku Tobruk
þannig, að þeir hafi rofið sam-
band borgarinnar austur á bóg-
inn þ. 19. og daginn eftir — þ. e.
laugardag — hafi verið lagt til
atlögu úr suðaustri með þeim
árangri, að víggirðinarnar voru
rofnar á 5 km. svæði og 12 virki
tekin. Þegar svo var komið sáu
Bretar sér þann kost vænstan,
að gefast upp og var liðsforingi !
sendur með hvitan fána til að
bjóða uppgjöf.
Þýzka herstjórnin tilkynnir,
að 25.000 fangar hafi verið tekn-
ir í Tobruk, auk afarmikils her-
fangs af allskonar hergögnum.
í fregnum frá London er einnig
talað um, að gera megi ráð fyrir
því, að bandamenn liafi misst
um 25.000 manna.
Bretar skýra frá því, að á
laugardag bafi verið gerð mikil
loftárás á Tobruk, en þegar
steypiflugvélamar bafi verið
búnar að vinna hlutverk sitt,
hafi skriðdrekar verið sendir
fram í stórhópum og þeim hafi
tekizt að rjúfa varnirnar þrátt
fyrir vasklega vöm. Síðan fylgdi
fótgönguliðið á eftir og gátu
Þjóðverjar búizt um til þess að
gera frekari áhlaup. Hafi Þjóð-
verjar beitt öllum liðsafla sín-
um á örmjóu svæði, eins og
venja sé hjá þeim.
I útvarpi á þýzku frá London
er taka Tobruks talin fyrsti
raunverulegi sigur Þjóðverja á
þessu ári og hafi Bretar orðið
fyrir tilfinnanlegu áfalli méð
því að missa borgina. Eru her-
málasérfræðingar í London með
ýmsar bollaleggingar um það,
bváð bafi orsakað það, að To-
bruk félli nú á fyrsta degi, þeg-
ar hún liafi staðizt 6 mánaða
umsátur í fyrra. Telur einn or-
sökina vera þá, að Þjóðverjar
hafi verið svo miklu sterkari, að
bandamenn liafi alls ekki getað
staðizt þeim snúning, enda liafi
aldrei verið lagt til svona ó-
kveðinnar atlögu í fyrra. Banda-
mönnum muni ekki hafa gefizt
timi til að útbúa jarðsprengju-
belti umhverfis borgina, sem
sé bezla vörnin gegn skriðdrek-
um.
I slceyli frá U. P. í morgun
segir, að óhug hafi slegið á al-
menning í Bretlandi við þessa
R úsiar liafa orðio að
hörfa en, maonfall
nækjendanna er úgurlegt.
ið Sebastopol er sú breyting orðin,
samkvæmt tilkynningu frá rúss-
nesku herstjórninni, að Þjóð-
verjar og Rúmenar hafa rekið fleyg inn
í varnarkerfið og hafa verjendurnir orðið
að hörfa undan á nokkurum kafla. Þjóð-
verjar hafa sent aukið lið fram á vígvöll-
inn, bæði stórskotalið og fótgöngulið og
er hvert áhlaupið gert af öðru, án þess að
skeytt sé um mannfall. En það, sem þeir
vinna, er alls ekki í réttu hlutfalli við
kostnaðinn, segja Rússar.
I tilkynningum Þjóðverja segir, að eingöngu
eitt strandvirki sé eftir norðan við borgina og
hersveitir þeirra hafi þegar brotizt inn i það
og megi því búast við að það faili bráðlega.
Þá segjast þeir lika hafa tekið virkið Lenin, en
áður var búið að taka Stalin, Molotov og Maxim
Goi’ki, auk nokkurra eldri virkja.
Aðalþungi þýzku sóknarinn-
ar til Sebastopol er að norðan og
sunnan, og horfur eru alvarleg-
ar, að því er segir í Rauðu
i stjörnunni, blaði lrersins. Ann-
ars er lítið getið um nánari at-
vik. Rússar segjast hafa upprætl
fimm þýzkar herdeildir í þess-
um bardögum og tvær rúm-
enskar. Hrósa Þjóðverjar mjög
rúmensku fjallahersveitunum,
sem teflt er fram á Krimskaga.
Þjóðverjar skýra frá því, að
barizt sé i húsunum norðan við
höfnina, en flutningaskipi hafi
verið sökkt í höfninni og 8 flug-
vélar Rússa skotnar niður yfir
henni. Á einum stað segjast
Þjóðverjar liafa tekið mikilvæga
hæð, sem muni létta þeim frek-
ari hernaðaraðgerðir, en þær
gangi annars að óskum.
Annarsstaðar frá Rússlandi
eru litlar fréttir, en þó skýra
Rússar frá því að viða hafi verið
staðbundnir, harðir bardagar.
Hafi Þjóðverjar reynt árangurs-
laust að rjúfa varnir Rússa, en
ekki tekizt. Einna harðastir hafa
þessir bardagar verið austur af
Kharkov, en þar segir Rauða
stjarnan, að Rússar hafi eyði-
lagt 100 skriðdreka á litlu svæði
á einum degi. Herstjórn Rússa
tilkynnir, að þeir hafi eyðilagt
264 þýzkar flugvélar, en misst
103 sjálfir í síðustu viku. Þá til-
kynnir herstjórnin og, að kaf-
bátar liafi komizt út úr Finn-
landsflóa, þrátt fyrir kafbáta-
girðingar og tundurduflabelti.
Þýzki loftherinn hefir haldið
uppi víðtækum árásum á flutn-
ingakerfi Rússa og næturárás
hefir verið gerð á Rostov við
Donósa. Er mjög Iangt síðan
næturárás hefir verið gerð á þá
horg. Segja Þjóðverjar að víð-
tælcir eldar liafi kviknað víða í
borginni.
Blað Hitlers „Völkisclier
Beobachter", hefir ritað minn-
ingargrein um eins árs styrjöld
við Rússa. Þar segir m. a. að
meira en 4.000.000 rússneskra
hermanna sé fangar í höndum
Þjóðverja, en auk þess hafi
þýzki herinn tekið eða eyðilagt
25.000 skriðdreka, 38.000 fall-
hyssur og 24.000 flugvélar.
Kalinin hefir ritað grein í
Isvestia um „árshátíðina“, frá
Berlin—Lidice
Borg ein í Maryland-fylki í
Bandaríkjunum hefir sótt um
það til fylkisstjórnarinnar, að
hún fái leyfi til að skipta um
nafn. Var þetta samþykkt á
borgarafundi, en hið nýja
nafn, sem borgarbúar vilja
fá, er LYDICE — eftir þorp-
inu í Tékkóslóvakíu, sem
Þjóðverjar jöfnu'ðu við jörðu.
Nafn borgarinnar nú er —
BERLIN.
fregn, því að flestir liafi vonazt
til að önnur vömin yrði jafn
glæsileg og sú fýrsta. Meðal
sumra manna í London er að-
staða Breta við Miðjarðarhaf
talin verri en nokkru sinni. Er
húizt við að Rommel hefji sókn
inn í Egiftaland við fyrsta tæki-
færi, enda stendur hann betur
að vígi með aðflutninga.
I gær sló lítillega í bardaga
milli hrezkra hersveita og
og möndulliersveita hjá Sidi
Azeis, 20 km. norðvestur af
Capuzzo-virki. Annarsstaðar er
ekki samband milli andstæðing-
anna þarna.
Smuts hefir skýrt frá því, að
álitlegur hópur Suður-Afriku-
manna liafi verið tekinn til
fanga í Tohruk.
Ráðstefna í undir-
búnlngi í U. S.
Allt bendir til þess, að haldinn
verði í Bandaríkjunum allsherj-
arfundur á næstunni með æðstu
mönnum bandamanna.
Cliurchill og Roosevelt lialda
áfram viðræðum sinum, en
ýmsir Iandflótta þjóðhöfðingjar
eru komnir vestur um haf. Vil-
lielmína Hollandsdrottning, er
komin fyrir nokkuru, og nú er
Pétur Jugoslavakonungur kom-
inn þangað. Eru utanríkisráð-
iierrar þeirra i för með þeim.
Sir Alan Brooke og Sir Hast-
ings Ismayr eru á stöðugum
ráðstefnum með yfirforingjum
Bandaríkjanna.
Sókn Japana í Chekiang
Japanir tilkynna nú, að þeir
haf? brotið alla mótspyrnu á bak
aftur í Chekiang í Kína og flýjí
Kínverjar óskipulega vestur á
bóginn.
í þessum hardögum, segja
Japanar, að þeir liafi næstum
alveg upprætt tvær kínverskar
herdeildir og sú þriðja liafi
misst helming mannafla síns.
Auk þess liafi Kínverjar misst
mikið af stórskotaliði og flug-
vélum, enda sé nú svo komið,
að allir flugvellir í Chekiang sé
í höndum Japana.
Japanir skýra jafnfram.t frá
þvi, að her þeirra í Kwantung-
fylki (Kanton) sæki með ár-
angri norður á hóginn.
Kaltur skýtur á
Vancouver-eyju.
Japanskur kafbátur hefir gert
árás á borg á Vancouver-eyju á
Kyrrahafsströnd Kanada.
Japanir tilkynna, að miklir
brunar hafi kviknað af skothríð-
inni, en í tilkynningu frá Kan-
ada segir, að ekkert tjón hafi
orðið. Mvrkvun hefir verið fyr-
irskipuð í Washington og Ore-
gon-fýlkjum í Bandaríkjunum
og Alaska.
í London er þessi árás talin
gerð i því augnamiði að sýnast.
Tvöfaldur sumartimi i Bret-
landi (2 klst. á undan Green-
wich-tíma) verður aðeins látinn
gilda til 8. ágúst. Þá verður
klukkunni seinkað um eina klst.
•
Flugvélar möndulveldanna
flugu oft yfir Malta í gær, en þó
án þess að varpa sprengjum.
Fjórar sprengjuflugvélar voru
skotnar riiður, 3 þýzkar og ein
ítölsk.
íslandsmótið:
Fram vann K.V.
með 2:0.
í gærkveldi hélt Islandsmótið
áfram, á milli Fram og Vest-
mannaeyinga, og sigraði Frarn
með 2:0.
Var þetta síðasti kappleikur
Vestmannaeyinganna i mótinu
og liafa þeir unnið einn leiic
(Viking), en tapað þremur. Má
þetta heita allgóð frammistaða,
ef tekið er tillit til þess, að þetta
er í fyrsta sinn, sem þeir keppa
í meistaraflokki.
í kvöld kl. 8.30 keppa Valur
og K.R. og er með engu móti
Iiægt að segja fyrir um. úrslit
leiksins, því hvorugt þessara fé-
laga hefir ennþá tapað leik í
mótinu. Án efa verður þetta einn
fjörugasti leikur mótsins, því
það félagið sem sigrar keppir í
úrslitaleik.
Dómari verður Þráinn Sig-
urðsson.
því að innrás Þjóðverja liófst.
Þar segir m. a. „Það bólar ekki á
vorsókn Hitlers, enda er þýzki
herinn svo máttlítill,- að hann
getur ekki haldið uppi sólcn á
öllum vigstöðvunum í einu, að-
eins á litlu svæði, eins og við
Sehastopol.“
Blöð j Bretlandi og Banda-
ríkjunum minnast líka innrás-
arinnar.
Lambið var fast
í ullarreifi.
I morgun um kl. 6 var ó-
nafgreindur maður á leið í
Sléttuhlíð nálægt Hafnarfirði,
er liann sá hvar kind kom á
móti honum og tók liann eftir
því, að ianiþ var fast i ullai’redi
kindarinnar og dró kindin það
á eftir sér. Maður þessi tók til
fótanna og hljóp til kindarinnar
með þeim ásetningi, að losa
lambið úr ullarreifinu, en lcind-
artetrið hljóp hrætt af stað og
dró á eftir sér lambið. Hélí elt-
ingarleikur þessi áfram um
liríð, en svo fór að lokum, að
maðurinn náði kindinni og Ios-
aði síðan lamhið, sem var ó-
skaddað, þó merkilegt megi
virðast.
Haukar og F. H. gerðu
jafntefli, 1 : 1
Úrslitakeppni í 1. flokki í
kriattspymu milli Hauka og
Fimleikafélags Hafnarfjarðar
fór fram í gær og lauk með
jafntefli.
Var þetta önnur umferð í
knattspyrnukeppninni en Hauk-
ar höfðu sigrað í fýrri umferð
og eru þeir því sigurvegarar í
1. flokki. Leikurinn i gær var
bæði skemmtilegur og fjörug-
ur og voru áhorfendur mjög
margir.
26 sjúkrasamlög á öliu
landinu.
Vísi hefir nýlega borizt Arbók
Tryggingarstofnunar ríkisins
fyrir árið 1940 og má finna þar
ýmsan fróðleik um tekjur og
gjöld stofnunarinnar.
Tala sjúkrasamlaga á öllu
landinu í kaupstöðum, hreppum
og skólum er meiri en nokkuru
sinni fyrr, eða samtals 26.
Meðlimatala sjúkrasamlag-
anna eykst hröðum skrefum og
er komin upp í 35.868 á árinu
1940, en til samanburðar má
geta þess, að hún var 33.258 árið
1939. Að meðaltali hefir þeim,
sem greiða iðgjöld til sjúkra-
samlagsins fjölgað um tæp
1600, en það er um 1000 meira
en tala tryggingarskyldra og
frjálsra meðlima hefir aukizt.
Samtals námu iðgjöldin (tekj-
urnar) fyrir árið 1940 kr.
1.652.033.69 á móti kr.
1.471.751.85 árið áður. Er þetta
liækkun um rúmlega 12% og
stafar sumpart af ineiri þátt-
töku og sumpart af því, að ið-
gjöld voru hækkuð vegna hinn-
ar almennu hækkunar verðlags
í landinu. Aftur á móti voru út-
gjöld sjúkrasamlagsins fyrir ár-
ið 1940 kr. 1.732.137.36, eða sem
samsvarar 65.02 á livem með-
lim.
669 búnir að kjósa
kl. 10.30 í morgun.
Kl. 10/2 í morgun voru 669
kjóseridur búnir að neyta at-
kvæðisréttar síns fyrirfram.
Virðist ekkert lát ætla að
verða á kjörsókninni fyrir
kjördag, því tala kjósenda
eykst hröðum skrefum dag
frá degi.
Allir þeir, sem ekki Verða
í bænum á kjördag, en eiga
kosningarrétt hér, eru á-
áminntir um að kjósa áður eri
þeir fara burt. — Kosið er í
suðurálmu Miðbæjarbarna-
skólans kl. 10—12 f. h. og
1—5 e. h.
KJÓSIÐ ÁÐUR EN ÞÉR
FARIÐ CR BÆNUM!